Lögberg - 15.07.1937, Side 4

Lögberg - 15.07.1937, Side 4
Á LÖGBHBG, FIMTUDAGINN 15. JÚLl 1937 Xögíierg GefiS út hvern fimtudag af THE COLiXJMBIA PREBB L, I M I T E D 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba Utanáakrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. VerO |3.00 um drið — Borgiat fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbla Press, Limited, 69 5 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Ljóð og líf Mannkyninu má vel líkja við drápu eða hljómkviðu; æfi einstaklings við hljómbrot eða ljóðlínu; þegar bezt tekst um líf einstakl- ingsins líkist það að fullkomunun til fagurri vísu í heildardrápunni eða hljómkviðunni; komi til hins gagnstæða, truflast svo sam- ræmið, að til ófagnaðar og slysa leiðir. 1 heilagri sambúð við ljóðsins lög kemst lífið á æðsta stig. 1 hinni miklu bók sinni “Islendingar,” kemst Dr. Guðmundur Finnbogason þannig að orði: “Næst Guði treystu Islendingar bezt — ríminu.” Heimspeki þá, sem liggur til grundvallar fyrir þessari staðhæfingu má vel til sanns vegar færa. Um rökkur rauna og þjáninga í eldrauninni miklu við Hungur- vöku og Svartadauða, varð það ljóðið, sem reyndist hinn vígði þáttur. 1 stað þess að kveða sig í kút söng þjóðin út úr áþján og eymd; hún kvað' yfir sig frelsi í kúgunarstað; hún söng yfir sig krossfána sjálfstæðisins með þrumuljóði Einars Benediktssonar: ■ “ Bís þú unga Islands merki upp með þúsund raddabrag. ” 1 íslenzkum öræfabýlum breyttist illvígt skammdegið í heiðbjarta Jónsvökunótt við rímnakveðiskap og ljóðalestur. Máttur orð's- ins, máttur ljóðsins, rann saman í heild við lífstréð sjálft og styrkti greinar þess. Svo mikill máttur hefir fylgt íslenzkum ljóðum, að réttlætanlegt var að höfundar þeirra yrði nefndir kraftaskáld. Svo má segja að hver íslenzfc öld hafi átt sitt krafta- skáld frá dögum Ejgils til vorra daga. 0g víst er um það, að samtíð vor á þann mann- inn, sem að líkindum er mestur allra krafta- skálda íslenzkra að fornu og nýju, þó harpa hans ef til vill sé að mestu hljóðnuð, að því er nýsmíði eða nýyrkju viðkemur. Þessi maður er Einar Benediktsson; maðurinn, sem með “Hvarfi séra Odds á Miklabæ,” “Ásbyrgi” og öð'rum þrungnum ljóðum, skapaði svo skír- an skóla í íslenzkri ljóðagerð nokkru fyrir síðustu aldamót, að svo að segja hvert ein- asta skáld þjóðar vorrar frá þeim tíma hefir að einhverju leyti verið mótað af áhrifum hans; annaðhvort að hugsun til eða málfari; sum að hvorutveggju. Vitsmunastyrkur og ljóðgöfgi haldast svo í hendur hjá Einari um allan skáldf eril hans, að hann stendur einn og út af fyrir sig sem klettur úr ljóðhafi hinnar íslenzku þjóðar. Því hefir verið haldið fram, að skáld- skapur Einars Benediktssonar væri torskil- inn, og kæmi þess vegna ekki að tilætluðum og almennum notum; slík staðhæfing styðst eng- an veginn við gild rök. Jafnvel þegar Einar yrkir um djúp, heimspekileg efni, verður framsetningin svo ljós, að auðskilin ætti að vera hverjum þeim íslenzkum manni, sem á annað borð verður talinn bænabókarfær. Eftirminnileg hlýtur hún að verða hverj- um ljóðunnanda, þessi eftirfarandi vísa úr Stefjahreimi Einars: ‘ ‘ Mitt verk er þá eg f ell og fer eitt fræ, mitt land, í duft þitt grafið; mín söngabrot, er býð eg þér, eitt blað í ljóðasveig þinn vafið. En insta hræring hugar míns, hún hverfa skal til upphafs síns sem báran endurheimt í hafið.’’ Það er ekki einasta að Einar Benedikts- son sé djúpsyndur ljóðspekingur, heldur er hann frömuður íslenzkrar málsmenningar og fágaðs ljóðforms. Vísa sú, sem hér fer á eftir úr kvæðinu “Snjáka” sannar yfirburði Ein- ars þegar ferhendan á hlut að máli: “Ljúf er röddin líkt og vaki ljóð við streng í óði dýrum, stuðlar falla í hlátrum hýrum— hendingar í fótataki. ” Eitthvað meira en tómlæti og fáþökk skuldar íslenzk þjóð þeim, sem þannig hafa ort og haldið við í henni menningar-líftór- unni.— ‘‘Næst Guði treystu íslendingar bezt — ríminu.” Reynist þjóðin hvorutveggja trú í framtíðinni, mun henni vel farnast, því þang- að verður hún að sækja styrk sinn. Heimilisdeilur (Þýtt úr Free Press) Fréttir um háarifrildi á fulltrúaþingi samríkjanna um utanríkismálin eru að byrja að berast út á Englandi, og hefir verið frá því skýrt í tímaritinu “The Week” (Vikan). Það er frjálslynt rit og “Lefir áður náð í fréttir og spáð um málalok svo rétt og ná- kvæmlega að undrum sætir; alt reynst bók- staflega eins þegar til kom. Ritið flytur það um þetta mál, er hér seg- ir: * ‘ ‘ Sögur af fulltrúaþinginu um svo mikið rifrildi að við uppþoti lá, hafa flogið fyrir að undanförnu og eru heimildirnar fyrir þeim úr þeirri átt, sem óhætt er að treysta eða trúa. Blöðin bæði heima fyrir og erlendis hafa verið þögul eins og gaddurinn. En vikuna sem leið var þögnin rofin af einu blaði á Frakklandi, sem venjulega veit hvað það seg- ir. Þetta blað segir frá því að fulltrúar sam- ríkjanna hafi fordæmt utanríkisstefnu ensku stjórnarinnar. En að undanskilinni þessari grein hélt þögnin áfram. Það að ensku blöðin öll steinþögðu yfir þessari frétt, skapaði þá sterku sannfæringu meðal allra hugsandi manna, að alvarlegur skoðanamunur ætti sér stað milli hinna að- komnu fulltrúa og stjórnarinnar. Blaðamenn, sem á fulltrúaþinginu voru, fullyrða að Eden utanríkisráðherra hafi blátt áfram gengið úr sæti sínu yfir til Mr. Jordans fulltrúa frá Nýja Sjálandi, reitt til höggs með blýanti og krafist þess að hann tæki aftur sumt af því, sem hann hafði sagt, því það væri skömmóttara en svo að stjórnin gæti legið undir því. Sú skoðun að um alvarlegan stefnumun væri að ræða, fékk byr undir báða vængi þeg- ar Nash fjármálaráðherra frá Nýja Sjálandi fordæmdi harðlega utanríkisráðherra Eng- lendinga á fundi í Lundúnaborg. Blöðin mintust ekki á það fremur en það hefði aldrei átt sér stað. Sannleikurinn er sá, að svo rækilega var sett ofan í við ensku stjórnina, að engin dæmi eru til slíks, og var þar lengst gengið af Savage forsætisráðherra Nýja Sjálands. Mr. Savage byrjað ræðu sína með þeirri staðhæfingu að jafnvel þótt Englendingar hefðu verið síkvartandi og kveinandi um veik- leika Þjóðbandalagsins, þá væri sannleikur- inn sá, að þeir mættu þar sjálfum sér einum um kenna. Það væri í raun réttri England, sem mest og bezt hefði að því unnið, að veikja‘ þjóðbandalagið í hvert einasta skifti sem það hefði verið veikt. 1 fyrsta lagi kvað hann Loeamo samninginn sönnun þess að Englendingar hefðu ekki hugsað sér að styrkja þjóðbandalagið, þar hefði einnig ver- ið um blekkingu að ræða — og þar af leiðandi árás á bandalagið. Hann kvað Bretland hafa spoppungað Þjóðbandalagið í annað sinn, þegr það (Bretland) neitaði samvinnu við Bandaríkin á meðan Manchuria-deilan stóð yfir. Svo hefði verið bætt gráu ofan á svart með því að bera það út að Bandaríkin hefðu neitað samvinnu. Þegar Mr. Savage kom að Eþiópíumálun- um kvað hann Breta hafa verið fyrsta til þess að leggja til að hegningaraðferð gegn Itölum skyldi hætt, og þetta sagði hann að hefði ver- ið ennþá ljótara vegna þess að Eþiópíumenn hefðu ennþá verið að berjast og sterkar líkur verið fyrir því að ræninginn hefði ekki þorað annað en sleppa tökum, ef alvara hefði verið sýnd. Mr. Savage ákærði stjómina um það, að bera fram þessa tillögu Mussolini í hag, án þess að ráðfæra sig við samríkin öll í heild sinni og sérstaklega Nýja Sjáland — landið, sem orðið hefði að gera margar og alvarlegar breytingar í sambandi við refsireglurnar; hefði brezka stjómin með þessu tiltæki stofn- að Nýja Sjálandi í hinn mesta vanda. Þá sneri Mr. Savage sér að samningun- um milli Ehglands og Þýzkalands. ‘ ‘ Hvernig er mögulegt að treysta Englendingum?” spurði hann: ‘‘þegar þeir gera sérstaka samn- inga við Þjóðverja og leyfa þeim að auka sjó- her sinn og flota fáeinum klukkustundum eft- ir að Þjóðbandalagið hefir samþykt það í einu hljóði að fordæma hersauka í nokkurri mynd, sem beint brot á undirrituðum samningum?” Sérstaklega var þó forsætsráðherra Nýja Sjálands harðorður og berorður, þegar hann talaði um hina svokölluðu “hlutleysisstefnu. ” Það vom einmitt sjálfir Englendingar, sem istungu upp á hlutleysissefnunni, og sú stefna var beinlínis og að öllu leyti í hag uppreistar- mönnum. Sjálfur kvaðst forsætisráðherrann vera hlyntur hlutleysisstefnu, sem bygð væri á alvöm og einlægni og framfylgt með djörf- ung og sanngirni. Hann ákærði stjórnina fyrir það að hafa sýnt hlutdrægni undir ein- lægnis yfirskini. AcV endingu lagði Mr. Savage áherzlu á það að Nýja Sjáland væri lítið land; f jarlægð þess frá Englandi og verndarher þess væri þess valdandi að alþjóða friður væri því nauðsynlegur um fram alt ann- að. Hann kvað það ómögulegt að Bretland gæti samtímis brotið öll sín loforð og allar sínar skyldur í sambandi við Þjóðbandalagið og vænst þess að samríkin styrktu það eða færu með því í framtíðar stríð, sem stafa kynnu af óheillastefnu, er samríkin væru allskostar ósam- þykk. Nýja Sjáland sagði hann með öllu afsegja að skuldbinda sig til þátttöku i stríði með Englendingum, ef þeir að sínu leyti neituðu að fylgja stefnu, sem beinlínis heyrði til anda og tilgangi þjóðbandalagsins og alþjóðafriði.” Af þessu sézt það að engin furða er þótt um óánægju sé að ræða í samrikjiíum^ þegar þannig er mis- boðið rétti þeirra og sanngjörnum kröfum, bæði í utanríkisdeild stjórn- arinnar og í fréttum þeim, sem blöð- in hér í landi flytja. Þar er það gef- ið í skyn að samríkin vilji semja við Þjóðverja, hvað sem það kosti og draga sem mest úr afli og áhrifum Þjóðbandalagsins. Sannleikurinn er aftur á móti sá, að þau (samríkin) hafa lagt áherzlu á að Þjóðbanda- lagið sé styrkt eftir mætti og því veitt alt mögulegt lið friðarstefnunni til viðreisnar. Það virðist því liggja í augum uppi að vísvitandi sé úr vissri átt leikinn þessi blekkingaleikur, í þvi skyni að koma á samningi milli Breta og Þjóðverja. Þessi saga er byrjuð, en ekki end- uð. Sig. Júl. Jóhannesson þýddi. ÁrsþÍDg Bandalags lúterskra kvenna Bandalag lúterskra kvenna hélt sitt 13. ársþing í kirkju Bræðrasafn- aðar í Riverton, dagan 3., 4. og 5. júlí. Þingið hófst kl. 2, laugardaginn 3. júlí, með stuttri guðræknisstund, er sóknarprestur stýrði. Bauð hann þingið velkomið fyrir hönd Bræðra- safnaðar og prestakallsins, og fór hlýjum orðum um störf kvenna í þarfir vestur-íslenzkrar kristni, fyr og síðar. Setti svo forseti Banda- lagsins, Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson þingið. Stóð svo fundur yfir til kl. 6 síðd. Skemtif undur var að kvöldi; erindi fluttu þá þær Miss E. Ander- son, um starfshætti í þjónustu “Social Service.” Mrs. Albert Wathne flutti fróðlegt og djúptækt erindi um íslenzkar fornaldarkonur kristnar. Auk þess skemtu þar með söng, Mr. Valdimar Benediktsson, verzlunarmaður og forseti Bræðra- safnaðar. Einsöng söng Mrs. V. Eyjólfsson frá Víðir. Miss Agnes Sigurðsson lék á hljóðfæri af mik- illi list. Var samræmi í ágætum ræðum, fögrum söng og góðum hljóðfæraslætti, — stundin ljúf og lifir í minni. Sunnudaginn 4. júlí hafði Banda- lagið starfsfund fyrri hluta dagsins. Messugjörð fór fram í kirkju Bræðrasafnaðar eftri hádegið. Til kvöldverðar var þinginu boðið til Geysis, stóð kvenfélagiðFreyja þar fyrir veglegri veizlu, er þingið, gestir þess og allir viðstaddir nutu af. Dagurinn var undra fagur í há- sumardýrð; með blómlega akra á allar hendur og samfögnuð manna og samræmi við sýnilega náttúru- dýrð. Um kvöldið fór fram breyti- leg og fullkomin skemtiskrá í kirkju Geysissafnaðar. Þar flutti fröken Halldóra Bjarnadóttir ítarlegt erindi um margþætt starf kvenfélaganna á íslandi. <— Mrs. Finnur Johnson flutti hugðnæmt og hrífandi erindi um kraft bænarinnar í daglegu lífi. Baldur Guttormsson lék á píanó og Jóhannes Pálsson lék á fíólín og Miss Lilja Pálsson spilaði einnig á píanó. Þetta unga og efnilega fólk, sem einnig er frændfólk, hefir náð mikilli listhæfni í músík, hvert á sínu starfssviði, og leika eingöngu klass- ísk viðfangsefni. Söngflokkur Ár- dalssafn. undir forustu Mrs. S. A. Sigurðsson söng, og tókst það með ágætum, eins og ávalt. Að lokinni samkomunni var öllum mannfjöld- anum boðið til kaf fiveitinga í sam- komuhúsinu. Á mánudagsmorgun hófust starfs- Biðjið matsalann um Clover Leaf Link Lax! Clover Leaf er inndælis fiskur og er ótrúlega ódýr. Njótið Clover Leaf máltíðar sem oftast. Ljúf feng á margan hátt! fundir á ný; og vöruðu til kl. 4. Fór þá fram, meðal antiara fundarstarfa, kosning starfskvenna félagsins: Forseti, Mrs. Ingibjörg J. Ólafs- son, Árborg Vara-forseti, Mrs. O. Stephensen, Winnipeg. Skrifari, Mrs. H. F. Daníelsson, Árborg. Vara-skrifari, Mrs. H. S. Er- lendsson, Árborg. Féhirðir, Mrs. Jóna Sigurdsson* Árborg. Vara-féh., Miss Kristín Skúla- son, Geysir. Meðráðakonur í framkvæmdar- nefnd: Mrs. A. Sigmar; Glen- boro; Mrs. B,. Bjarnason, Langruth; Mrs. Louise Gísla- son, Brown. Ritstjórar “Árdísar”: “Mrs. O. Stephensen, Winnipeg; Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson, Árborg. Ráðskonur blaðsins: Mrs. Finnur Johnson, Winnipeg; Mrs. G. Jóhannesson, Wpeg. Forstöðukonur í kristindóms- fræðslu: Mrs. H. G. Hinriks- son; Winnipeg; Mrs. B. S. Benson, Winnipeg. Kl. 4—6 á mánudag var bindindi rætt; flutti Miss Lilja Guttormsson frá Geysir einkar uppbyggilegt og fróðlegt erindi um bindindi. Nokkr- ar umræður fylgdu og þingsamþykt viðvíkjandi því máli. Enn fremur sungu nokkrar stúlkur. Piano spil gaf Baldur Guttormsson. Var fundi svo frestað til kl. 8. Á mánudagskvöld kl. 8.30 hófst hinn síðasti þingfundur. Allir kvöldfundir höfðu verið fyr- ir fullu húsi og ávalt erfitt um sæti. En að þessu sinni troðfyltist hin stóra og veglega kirkja Bræðrasafn- aðar svo, að í kirkjunni og um- hverfis hana, munu hafa verið hátt á 5. hundrað manns. Að þessu sinni fór nú fram úrslita samkepni í framsögn íslenzkra ljóða, er Bandalagið gekst fyrir, og á heiður af að hafa hrint af stað og haft með höndum á ýmsum stöðum, á þessu ári.— Áður en að úrslita samkepnin færi fram var annað prógram. Hlýjar glæður frá arineldum landnemabýl- anna eygðu menn í f jarska, er Mrs. B. S. Benson flutti erindi, sem hún nefndi “Kirkjan og konan”; rakti hún þar áhrif kvenna á krkjulegu málin, frá landnámstíð til vorra daga. Einnig sungu bræðurnir Hermann og Thor Fjeldsted tví- söng og voru margendurkallaðir fram. Unglingsstúlkur sungu á ný, undir stjórn Mrs. Sigurbjörn Sig- urðsson. Lítil stúlka, Frankie Fisher, bar fram mjög skemtilega: “Brúðan mín hefir fengið flú.” Fimm börn, f jórar stúlkur og einn drengur, tóku þátt i úrslita sam. kepninni. Beatrice Ólafsson frá Ár- borg hlaut medalíu Bandalagsins. Hinir þátt-takendur fengu Nýja testamentið að gjöf. Að þessu loknu fóru fram þing- slit. Konur Bræðrasafnaðar báru nú fram rausnarlegar veitingar fyrir mannfjöldann^ sem allir nutu, er vildu. Hrifning og fágæt aðsókn gjörði þennan kvöldfund sem og alla fundina, í sambandi við þingið, ó- gleymanlega. Sá er linur þessar ritar, var sérílagi hrifinn af andleg- um áhuga, er yfirleitt kom í ljós, og hinum vönduðu erindum, sem flutt voru á þinginu. Á Bræðrasöfnuð- ur og þá sérstaklega kvenfélag safn- aðarins og allir, er að unnu; ásamt kvenfélagi Geysissafnaðar og hjálp er það naut af hálfu bílaeigenda, við keyrslu innan héraðsins, hugheilar þakkir skilið. Ávalt hefir kirkjufélag vort, frá öndverðu og til vorra tíma, átt sinn ágæta bakhjarl í starfi kvenna í þarfir kristni og mannúðarmála í hinu vestur-íslenzka mannfélagi. Bandalag lút. kvenna táknar sam- einaða krafta, fómfúsan anda, skipulagða starfsháttu og mun mátt- ugt verða til blessunarríkra áhrifa í komandi tíð; semi að undanfömu. N. ólafsson. Kirkjuþingsþankar Eins og vant er, koma ýmsar hugs- anir til manns eftir að hafa setið nokkra daga á kirkjuþingi. Er og kannske verðmæti kirkjuþingsins í því fólgið, að það vekur ménn til umhugsunar um trúarástand þeirra sjálfra og annara. Að minsta kosti virðist mér það og er það þessvegna að eg læt þessar línur frá mér fara. Eitt sem eg tók eftir og þótti vænt um á þessu kirkjuþingi, var áhugi fyrir ungmennamálum, er sýnist vera að aukast hjá eldra fólkinu. Margt, sem sagt var á þessu þingi bendir í þessa átt og getur það ekki annað en talist góðs viti. Veit eg að yngra fólkinu þykir vænt um þetta, þar sem því hefir lengi fundist eldra fólkið ganga fram hjá sér og of lítil tillit væri tekið til hinna ungu. “Með aldrinum kemur vizka” segir það að sé álit hinna eldri og því skifti þeir sér lítið af þeim ungu. En nú virðast straumhvörf ætla að eiga sér stað. Voru margir erind- rekar ungt fólk. En þó get eg ekki verið bjartsýnn hvað framtíð kirkjufélagsins snertir. Eg fann til þess, að flestir, sem létu nokkuð til sin taka á þessu þingi voru eldri menn. Annaðhvort fanst þeim ungu þeir ekki geta sett fram hugsanir sínar skipulega á íslenzku og veigruðu sér við því að mæla á ensku, eða þeim fanst þeir ekki nógu kunnugir málum, til að ræða þau. Hræddur er eg því, að áhugi manna fyrir ungmennamálum hafi komið nokkuð seint. Hinir yngri hafa orðið útundan og þekkja ekki þau mál er liggja fyrir kirkjufélaginu. Kemur hér tvent til greina, það sem eg benti á að unga fólkinu hefir ekki verið sint og svo það, að svo margl af því hefir ekki full not af messum og umræðum, er fara fram á ís- lenzku. (Þó er nú stundum gert of mikið úr vímkunnáttu hinna yngri á íslenzku; en við það tapast kjark- ur. Þó er það virkileiki í mörgum tilfellum). Þetta hefir haft það í för með sér að hinir ungu hafa orðið andlega útundan. Þeir þekkja ekki sögu kirkjufélagsins né kenningargrund- völl þess. Og það er eimitt í þessu máli, sem mér finst kirkjufélaginu mest hætta búin. Það sýnist vera komið það los á hugsun manna í þessu máli, að illmögulegt er að vita hvar kirkjufélagið stendur hvað ýms trúaratriði snertir. Kom þetta greinilega í ljós i sambandi við um- ræður um mál nokkurt, en eg leiði hest minn hjá því. Nauðsynlegt finst mér samt hverri stofnun vera að vita á hvaða grundvelli hún er reist, því annars helzt eining ekki. Og nauð- synlegt er að hún hafi ýmislegt á starfsskrá sinni, er kostar erfiði og hugsun að eigast við. Er það ekki vegur farsældarinnar að losa sig sem fyrst við alt erfiði strax þegar í harðbakka slær eða hætta við byrjað verk vegna erfiðleika og láta aðra taka upp byrðina. Menn vinna þess betur sem erfiðleikarnir eru meiri. En til þess að eg snúi mér aftur að kirkjuþinginu, vil eg minnast á laugardagskveldið, sem helgað var ungmennunum. Ungmennasamband kirkjufélagsins stóð fyrir skemti- skránni það kvöld. Töluðu þar Allen Goodman frá Upham; Norton An- derson frá Selkirk og séra Vald. J. Eylands frá Bellingham. Ræða Norton Andersons fór eiginlega út á það, hvað erfitt væri fyrir unga fólkið, sem skildi ekki íslenzku, að fylgjast með kirkjumálum, og hefi eg drepið á það mál. Séra Eylands tók sem texta “Minnist Drottins Jesú Krists.” Er hann frábærlega- vel máli farinn; en fyrir vonbrigð- um varð eg. Mér fanst að ef til- heyrendur hans væru kristnir, þyrfti ekki að eyða eins mörgum orðum í f

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.