Lögberg


Lögberg - 28.04.1938, Qupperneq 1

Lögberg - 28.04.1938, Qupperneq 1
51. ARGrANGUR WINNIPBG, MAN., FIMTUDAGINN 28. APRIL, 1938 NÚMER 17 RAGNAR H. RAGNAR Söngstjóri Karlakórs íslendinga .í Winnipeg Veglegt og afar fjölsótt silfurbrúðkaup í Arborg SíÖastl. sunnudag stefndu allar götur til Árborgar, enda' stóð j»á niikið til, því þá höfðu vinir og samferðamenn ákveðið að halda há- tíðlegt silfurbrúðkaup þeirra merk- ishjónanna, Mr. B. J. Lifmans, sveitaroddvita í Bifröst og Margrét- ar frúar hans. Ekki mun það of- mælt, að á fimta hundrað manns hafi verið samankomið í samkonur húsi Árborgar þá um daginn, og skorti þar hvorki gleði né góðan fagnað. Silfurhátíð J>essi hin eftir- minnilega, var sett um klukkan hálf þrjú af séra Sigurði Ólafssyni, er hafði veizlustjórn með höndum og fór't hið prýðilegasta. Lét hann fyrst syngja tvö vers úr brúðkaups- sálminum alkunna, Hve gott og fag- urt og indælt er, en flutti þvi næst stutta bæn. Að því búnu hófst skemtiskrá, er saman stóð af stutt- um ræðum, löngum og stuttum kvæðum, ásamt islenzkum og ensk- um söngvum. Til niáls tóku Gísli Sigmundsson, verzlunarstjóri, frú Andrea Johnson. frú Gourd, S. V. Sigurðsson fiskikaupmaður, Einar P. Jónsson, ritstjóri, Sveinn Thor- vladsson kaupmaður, G. S. Thor- valdsson lögfræðingur og J. T. Thorson, K.C., þingmaður Selkirk kjördæmis í Sambandsþinginu. Kvæði fluttu þeir Dr. S. E. Björns- son, Lúðvík Kristjánsson, Einar P. Jónsson og Bergur J. Húnfjörð. Símskeyti og bréflegar kveðjur bárust heiðursgestum að úr ýmsum áttiun, J>ar á meðal frá einkaritara Mr. Brackens; Garson fjánnála- ráðherra; Mr'.og Mrs. A. S. Bardal og Dr. og Ms. B. H. Olson. íslendingum í Nýja íslandi hefir löngum verið viðbrugðið fyrir risnu og höfðingsskap; og smátækir voru þeir heldur ekki að þessu sinni, því þeir afhentu oddvita splunkurnýjan Ford-bíl af fullkomnustu gerð, til “eignar og íbúðar,” auk þess sem frú Lifman var sæmd forkunnar fögrum og verðmætum silfurmun- um; kvað þá við mikið lófaklapp um allan salinn, er gjafirnar voru afhentar. Við skreytt háborð sátu silfurbrúðhjónin, glæsilegur barna- hópur þeirra, aldurhnigin fóstur- móðir oddvita og annað venzlafólk. Mr. Lifman þakkaði með ágætri ræðu þá sæmd alla, er þeim hjón- um væri auðsýnd með samsætinu' og hinum veglegu gjöfum, og kvað þau um hvorttveggja geyma mundu helg- ar og ljúfar minningar fram á braut- arenda. Mr. Lifman stendur framarlega í fylkingu hinna mestu atkvæða- tnanna meðal íslendinga vestan hafs, og er hið sama að segja um hina ágætu kostakonu hans. SAWCHYN FUNDINN Lik flugmiannsins unga frá Dauphin, sem týndist þann 29. des- ember siðastliðinn, fanst á mánu- daginn í Riding Mountain héraðinu. Dr. Sigurður Júlíus Jóhannesson sjötugur Það var “glatt á hjalla” í Good- templarahúsinu mánudagskv. 25. lapríl. Þar söfnuðust menn og kon- ur saman til að minnast æfistarfs Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar. Samsætinu stýrði herra J. J. Sam- son og ílutti hann doktornum stutt ávarp. Ræður fluttu: Dr. Rögnv. Pét- ursson, um blaðamensku doktorsins ; Mr. Einar P. Jónsson, um skáldskap hans; Stórtemplar A. S. Bardal, um bindindisstarfsemi; séra Guðm. Árnason, urn lækningar og líkn,ar- starf; Mr. Hjálmar Bergmann, K.C., um þjóðræknisstarf; sam- bandsþingmaður Joseph T. Thorson, Dr. Bi. J. Brandson, Mr. Gunnl Jóhannson, Mr. Ásm. P. Jóhann- son. Kvæði fluttu: Mr Magnús Markús- son, próf. Richard Beck, Mr. Hjörtur Brandsson, Mr. Jón Jóna- tansson, Mr. Páll Guðmundsson, Mr. Lúðvík Kristjánsson. i’róf. Runólfur Marteinsson flutti ávarp og af henti minningargjöf. Karlakórinn söng islenzka söngva undir stjórn Mr. R. H. Ragnars, og forseti kórsins, Mr. Guðmundur Stefánsson, flutti ávarp. Miss Sig- urbjörg Davidson söng einsöngva. Auk þessa barst f jöldi kveðjuskeyta víðsvegar að bæði í bundnu og ó- bundnu máli, voru þau lesin af próf. J. G. Jóhannsyfli og Mr* Bergþór Emil Johnson. Það má urn ræður þessar og kvæði segja, að þær lýstu einhuga hlýleik og aðdáun á doktornum, hæfileik- urn hans og hinu mikla og marg- breytilega æfistarfi. Það hefir oft sjaðið styr um Dr. Sig. Júl. Jó- hannesson, en samt er hann hvers manns hugljúfi. Þó hann hafi tek- ið hvassan þátt í dægurdeilum, hafa jafnt andstæðingar og meðhalds- rnenn orðið að kannast við mann- kosti hans og lyndisgöfgi. Hefir því svo farið, sem til forna, að þeir sem bárust á banajpjótum tókust í hendur á eftir og sórust í fóst- bræðralag. Þannig á það að vera þegar barist er af drenglund. Dr. Sig. Júl. er sjaldgæft fyrirbrigði í okkar þjóðsögu. Hann er í senn barnslega viðkvæmur vinur og harð- ur og óvæginn bardagamaður og ofurhugi. Hann er talinn vantrú- armaður, en lífsstarf hans er kristnara en annara manna. Hann er ávalt reiðubúinn að fórna líð- andi stund öllu og trúa forsjóninni Framh. á bls. 5 ♦ ♦ ♦ V V W V v V v v V v *♦* *♦* W ♦ ♦ ♦ Guð rún a Birki ínesi Erfðatáp frá heimahögum hátt ber enn í landans sögum. Yestanmegin Atlants ála Islands heilladísir mála kyngidráttum ljóss 0g lita landnámsþrek og fórnarhita. Víkingslund og móðurmildi móta norrænt þroskagildi; merla svipi sólarlagsins, sjást í fylling morgundagsins greiða vegferð góðra manna gegnum liryðjur stríðs og anna. Enginn jarðlífs erfðasjóður er til jafns við góða móð'ur, örmum kærleiks alt hún vefur, ekkert barn um vexti krefur; greiðir iðgjöld æfibylja alíatíð af fúsum vilja. Iðjuglöð til æfislita, engan bróður mátti vita særðan fram með förnum vegi,- fataðist þá líknin eigi. Hún var slík í hárri elli, hetja prúð og sterk á svelli. Fróð um hagi heimaþjóðar henni fylgja vorspár góðar Yfir djúpin draumabláu. Drottinlioll í stóru og smáu. Inn í hinztu óskir þínar Ísland fléttar kveðjur sínar. Einar P. Jónsson. T^T * Ur borg og bygð Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 5. maí. J Næsti Heklu fundur verður í Goodtemplarahúsinu mánudagskv. 2. maí. Mr. B. J. Lifman, sveitaroddviti frá Árborg, kom til borgarinnar á mánudaginn. Dr. og Mrs. Númi Hjálmarsson frá Lundar, voru meðal þeirra mörgu, er sátu afmælisfagnað Dr. Sig. Júl. Jóhþnnessonar á mánu- dagskveldið. Mr. Arnór Árnason og Helga Thorgilson dóttir hans frá Oak Point, komu til borgarinnar á mánudaginn og sátu afmælisfagn- að Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar. Mr. og Mrs. F. Stephenson, Ste. 5 Baldwin Apartments, komu heim um helgina eftir tveggja mánaða dvöl hjá dóttur sinni í Toronto, Mrs. John David Eaton. Mrs. H. T. Halverson frá Regina, Sask., var stödd í borginni um sið- ustu helgi til þess að kveðja systur sína, fröken Halldóru Bjarnadótt- ur, er þá var að leggja af stað til íslands. Kvenfélagið “Hekla í Minne- apolis, heldur sina árlegu skemtisam- komu á laugardaginn þann 30. þ. m. íslenzkur kveldverður hefst kl, 6 e. h. Kvikmyndir frá íslandi sýnir Mr. Árni Helg&þon raffræðingur frá Chicago. Gera má ráð fyrir að íslendingar fjölmenni eftir föngum á mannfagnað þennan. Sjónleikurinn “Frá einni plágu til annarar” hefir nú verið leikinn tvisvar sinnum í WSnnipeg, við góða aðsókn, og skemtu áhorfendur sér vel, enda er leikurinn spennandi og mjög hlægilegur. Hafa komið alk margar fyrirspurnir um hvort hann verði sýndur út utn bygðirnar, og hefir nú verið ákveðið að leika hann í Selkirk 29. apríl, og að Árborg þann 13. maí n. k., og víðar eftir ástæðum. Mr. og Mrs. C. P. Paulson frá Gimli voru stödd í borginni í byrj- un vikunnar. Þeir Andrés Erlendson, Runólf- ur Sveinsson og Ásgeir Fjeldsted frá Árborg, voru staddir í borginni á mánudaginn. Kvenfélag Fyrsta lúterska safn- aðar heldur fund í fundarsal kirkj- unnar á fimtudaginn 28. apríl kl. 3 e. h. Jón Sigurdson Chapter, I.O.D.E., heldur fund að heimili Mrs. L. E. Summers, 204 Queenston St., á þriðjudaginn 3. mai, kl. 8 e. h. Stórstúkuþingið verður sett í Goodtemplarahúsinu, Sargent og McGee í kveld (miðvikudag1), kl. átta, undir forustu Mr. A. S. Bardal, stórtemplars. Það stendur einnig yfir á fitntudaginn. Dr. Richard Beck, prófessor við ríkisháskólann í Norður Dakota, kom til borgarinnar á mánudaginn, til þess að sitja sjötíu ára afmælis- fagnað Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar; hélt hann heimleiðis daginn eftir. Stúlkan er söng einsöng í laginu “Bí, bí og blaka” s.l. föstudag, yfir CJRC útvarpið heitir Lillian Good- man og er dóttir Mr. og Mrs. Bjarni Goodman í Winnipeg. Er þessa getið hér sökum þess að fjöldi manns hefir spurst fyrir um nafn þessarar stúlku, en það láðist að greina frá nafni hennar yfir út- varpið. Mr. og Mrs. Guðmundur Steven- son, 795 McDiarmid Avenue, eru nú í þann veginn að flytja að ioói Dominion Street. Mr. Stevenson hefir um langt skeið rókið iðn hér í borginni undir nafninu Ideal Plumb- í.ng Co., og hqldur því áf;ram í sama formi og með sama nafni. Hið nýja símanúmer þeirra Mr. og Mrs. Stevenson verður 89 767. MR. PAUL BARDAL Einsöngvari við hfjómleika Karla- kórs íslendinga í Winnipeg í Fyrstu lútersku kirkju þann 4. maí. Rev. E. H. Fáfnis, Jónas Helga- son, Mrs. Stefán Johnson og Mr. og Mrs. Fred Frederickson frá Glen- boro, voru stödd í borginni á föstu- daginn i vikunni sem leið. KVRÐJA ■ Eftir 44V2 árs veru inína í Lög- bergs- og I’ingMallanýlendu, kveð eg af hjarta hvert eitt og einasta íslenzkt mannsbarn, ungt og gani- alt í Lögbergs, Þingvalla, Breden- bury og Churchbridge bygðum, og bið heilaga forsjón vernda það fólk og þau pláss á komandi tímum. Guðni. KVEÐJA OG ÞÖKK Um leið og eg legg af stað heim til íslands, langar mig til að senda löndum mínum og þeim öðrum góð- um mönnum, sem eg hefi kynst hér vestra, mínar beztu kveðjur og þakklæti fyrir ágætar viðtökur og vinsamlega hjálp þann tíma, sem eg hefi dvalið hér. Vera mín hér vestra hefir verið mér að öllu leyti hin ánægjulegasta og að ýmsu leyti mjög lærdómsrík. Eg óska yður, góðu landar, hvar sem þið eruð í dreifingunni, góðs gengis í framtíðinni. Látið mig vita ef eg gæti gert yður einhvern greiða heima, mér væri ánægja að reka er- indi yðar þar. Utanáskrift mín er “Hlín”, Reykjavík. Guð blessi yður ' Hdldóra Bjarmdóttir. AaAaAaAa i^A T^T T^T T^T Herra Ásmundur P. Jóhannsson, byggingameistari, leggur af stað til íslands í kveld ásamt frú sinni. Fer Ásmundur með umiboð vestur-ís- lenzkra hluthafa á ársfundi Einr skipafélags íslands, sem haldinn verður í Reykjavík í næstkomandi júnímánuði. Nokkuð munu þau hjónin fgrðast um Norðurálfuna í sumar og gera þau ráð fyrir að verða um fimm mánuði að heiman. Lögberg óskar þeim ánægjulegrar ferðar og heillar heimkomu. Halldór Jónsson og Margrét kona hans komu heim úr Islands- ferð sinni síðastliðinn föstudag; hafa þau d\|alið heim'a á Islandi síðan í júlí, og segir Halldór að þessi síðastliðni vetur sé sá mildasti, sem hann hafi lifað; til dæmis á Akur- eyri, þar sem hann dvaldi mest af vetrinum, hafi menn unnið stöðugt við útismíðar og málningu, bæði á skipum og húsum, og þegar hann fór þaðan 10. marz hafi verið grænt á túnum og hvergi vottað fyrir frosti í jörðu. Viðtökurnar á íslandi segir Hall- dór að hafi aldrei verið betri en nú, höfðingskapur og gestrisni heima- þjóðarinnar sé sannarlega ekki i neinni afturför, og að alstaðar mæti manni innileg velvild og vinarhugur til Vestur-íslendinga. Sigurðar-kviða Flutt (í 70 ára afnuelishátíð dr. S. J. Jóhannessónar 25. aþríl, 1938 Það sakar lítt, þó falli hrím á hárin, ef hjartað eigir að sama skapi frýs; ei leggjast þungt á þeirra herðar árin, sem þjakar enginn sálar vetrarís. Þín gæfa var, þann eldinn eiga í lijarta, sem Elli gömlu sjálfa bugað fær; l>ess liiminloga geislagullið bjarta á gengna vegu þína ljóma slær. Frá heimi þeim er hiti þinna kvæða, sem liafa fært í bæi yl og ljós, og mildað sorgir þess. er sárin blæða, og sína fögru drauma moldu jós. I bróðurliug þú vildir þeirra vitja, á vængjum söngva flytja máttarorð, sem tærðir, beygðir, tötrum búnir sitja með tóman disk við lífsins nægtaborð. Því reiddir þú að harðstjórn hnúa bera og liræsni greiddir óvæg svipuslög, og kaust um æfi þar á verði vera, sem varnarsnauðum hóta spjótalög. Þá drenglund, kærleikseld í lífi og ljóði, nú launa skal, þó illa lieimtist gjöld; með kærstu þökkum, hátt og eins hljóði, þig hyllir ferðasveitin öll í kvöld. Richard Beck. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦-♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦J* ♦$*♦$»♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦$♦♦*♦♦*♦♦*♦♦£♦♦$*♦$*

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.