Lögberg


Lögberg - 28.04.1938, Qupperneq 4

Lögberg - 28.04.1938, Qupperneq 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGLNN 28. APRIL, 1938 Xogberg QefiC út hvern firatudag af I H E COLUMBIA PR ES8 L1M1TE D 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba Utanáakrift ritstjórans: BDITOR LÖGBERO, 695 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. Editor: EINAR P. JÓNSSON TerO $9.00 um áriO — Hor<jist fyrirfram The "Lögberg" is printed and published by The Cobimbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnlpeg, Manitoba PHONE 86 327 Samsteypa járnbrautanna Lagt hefir verið á það meira kapp síðast- liðin tvö ár, en nokkru sinni fyr, að reyna að telja hinni canadisku þjóð trú um það, hve mikið fé henni árlega sparaðist ef járnbraut- arfélögunum yrði komið undir eina og sömu framkvæmdarstjórn. eins og Sir Edward Beatty, forseti Canadian Pacific félagsins venjulegast orðar það; þessir samsteypu- postular láta það í veðri vaka, að sparnaður inn myndi nema því sem næst sjötíu og fimm miljónum dollara á ári. og þetta á að nægja til þess að ginna þjóðina til að selja af hendi frumburðarrétt þjóðeignabrautanna; og þetta á alt að vera gert undir yfirskyni hagsmuna- legrar þjóðarþarfar. Einokun á hvaða sviði sem er, leiðir sjaldan til biessunar, heldur miklu fremur til hins gagnstæða. Flutnings- gjöld með jámbrautum þessa lands hafa jafn- aðarlegast þótt ærið há. Eh hvað myndi þau verða, ef kipt væri fótum undan núverandi samkepni milli járnbrautanna og Canadian Pacific félagið yrði eitt um hituna! Sam- steypu hjal og samsteyputilraunir Mr. Beatty’s og þeirra, er hliðstæðum augum líta við hann á málið, þýða hvorki meira né minna en það, að Þjóðeignabrautirnar hyrfi með öllu úr sögunni, en í stað þeirra kæmi hlífðarlaus einokun einkafélags, þar sem hluthafa-arð- urinn. skipaði öndvegi. Því er haldið fram af málsvörum samsteypunnar, að járnbraut- arráðið myndi á öllum tímum gæta vandlega hagsmuna fólksins, eða þeirra. sem járn- brautirnar nota til flutninga. Þetta kann að vera gott og blessað eins langt og það nær, og láta vel í eyra, En samt sem áður má almenn- ingur ekki missa sjónar á því, að pólitískir hagsmunastraumar gætu jafnvel óviljandi haft nokkur áhrif á þá. sem yfirumsjón eiga að hafa með flutnings- og farþegagjöldum, að ekki sé meira sagt. Hjá nágrannaþjóð vorri sunnan landa- mæranna, er fólki ekki með öllu ókunnugt um það, hvernig einokun jámbrauta hefir gefist og til hvers hún hefir leitt, Kæmist jám- brautasamsteypa á í þessu landi, myndi fólk vort áðnr en langt um liði kenna alvarlegrar skókreppu flutningsgjöldum viðvíkjandi, og naga sig sárt í handabökin fyrir sviksemina við fjöregg þjóðarinnar ásviði samgöngumál- anna, eða Þjóðeignabrautirnar. Meðan Duff-nefndin svokallaða, sú er um járnbrautarmálin og flutningsgjöldin fjallaði, sat á rökstólum, komu fram margar og skýrar raddir um það. hver feikna hætta hagsmunalegu lífi þjóðarinnar gæti stafað af einokun samgöngu- og flutningstækja. Einn af iðjuhöldum þessa lands, komst meðal ann- ars þannig að orði um hina fyrirhuguðu járabrauta samsteypu: “Að lögleiða jafn stórfelda og umfangs- mikla einokun á samgöngutækjum J)jóðarinn- ar og hér er ráðgerð, myndi fá fáum mönnum slíkt feikna vald í hendur, er auðveldlega gæti ef illa tækist til. stórskaðað efnahagstilveru hinnar canadisku þjóðar, og það jafnvel svo, að hún biði þess aldrei bætur/t Ýms stórblöð austanlands, hlynt Cana dian Pacific félaginu, telja samsteypuna hvorki meira né minna en hagsmunalegt sálu- hjálpar atriði; má þar til telja Montreal Gazette. Hér vestra er litið næsta ólíkum augum á málið. f',ólk Jiað, er Sléttufylkin byggir, ber því nær undantekningarlaust hag Þjóðbrautanna fyrir brjósti og kann glögg skil á nytsemi þeirra fyrir bændur og búalið; það er engan veginn líklegt, að J)etta fólk bíti á sjötíu og fimm miljóna sparnaðar agnið, sem að því er lialdið af forkólfum samsteyp- unnar; og það á líka góðu heilli trúa og dygga fulltrúa á Samban<isþingi, sem standa vilja vörð um réttindi þess; þó er því vissara að vaka á verði og spyrna hraustlega á móti öll- um blekkinga-broddum í Jæssu tilliti úr hvaða átt sem þeir koma. því mörgum og lævísleg- um brögðum kann að verða beitt. Meðan frjálslyndi flokkurinn með Mr. King í fararbroddi, situr við völd í Ottawa, eru Þjóðeignabrautirnar sennilega ekki í mikilli hættu, því fullvemd þeirra er eitt af ófrávíkjanlegum stefnuskrár atriðum flokks- ins. En hinu má sarnt sem áður ekki gleyma. að mörg og f járhagslega voldug öfl eru sýknt og heilagt að verki, er ekkert láta sér fyrir brjósti brenna, er til þess kemur að forgylla samsteypuna í augum almennings. Þetta verður Jíjóðin að gera sér ljóst og vera við- búin sérhverri árás á Þjóðbrautirnar, og standa um þær drengilegan vörð. Öll einokun er einnar og sömu ættar; hún er grandvölluð á græðgi hinna fáu á kostnað almennings. Einátaklingshyggja og samvinna Eftir prófessor fíirhard Beck (Brot úr erindi um “Lífsspeki norrænna manna”) ^ Forfeður vorir voru miklir einstaklings- hyggjumenn. Það er ljósu letri skráð í fornsögum vorum og forakvæðum . Forfeðr- um vorum var ant um, að menn stæðu á eigin fótum andlega, skoðanalega eigi síður en stjórnarfarslega. Af sama toga er það spunnið, að þeir mátu manngildið eins mikils og raun ber vitni, mátu menn eftir því hvað þeir voru en ekki eftir því hversu auðugir þeir voru að löndum og lausum aurum. Fer það þá að vonum, að þeir voru gæddir ríkri sjálf- stæðistilfinningu. Einstaklingsfrelsið töldu þeir hið dýr- mætasta hnoss. Það, sem fornsagnritari sagði um Fríslendinga. er jafnsatt um frænd- ur þeirra á Norðurlöndum: “Frjálshuga eru þeir og vilja engum lúta; líf sitt leggja þeir í sölumar frelsisins vegna og kjósa fremur dauða heldur en að ganga undir þrældóms- ok. “ Þarf eg vart, að minna yður á það, að landnám Islands átti beinlínis rætur sínar að rekja til þessarar ríku frelsisástar feðra vorra. Frelsi fjarri átthögum og frændum töldu þeir sæmra áþján heima á ættjörð sinni. Kemur hér fram sem víðar einstaklings- hyggja þeirra. Sjálfstraust og sjálfræði töldu þeir skilyrði sannrar lífshyggju. Ilöfundur Ilávamála álítur það æskilegra, að ráða sjálf- ur búi, þó fátæklegt kunni að vera, heldur en að þurfa til annara að sækja. Slíkur metn- aður hefir verið ríkur í eðli Islendinga á lið- inni tíð. Heyrst hafa raddir um J)að, að hann fari minkandi vor á meðal. En hann er svo fagurt einkenni, og nauðsynlegur til sjálfs- þroska, að við megum hreint ekki við því að glata honum. Hver sú þjóð, sem glatar sjálf- stæðishug sínum og sjólfbjargarviðleitni á ekki langt líf fyrir höndum sem óháð menn- ingarþjóð. Mörg eru dæmi glæsilegrar frels- isástar í síðari alda sögu íslands, en einna svipmest finst mér dæmi Jóns biskups Ara- sonar; karlmannslund sinni og frelsisást reisti hann óbrotgjarnan minnisvarða í vís- unni alkunnu, sem hann kvað á deyjanda degi: “Vondslega hefir oss veröldin blekt, vélað og tælt oss nógu frekt; ef eg skal dæmdur af danskri slekt, og deyja svo fyrir kóngsins mekt.’> Megi það aldrei fyrir íslendingum liggja, að sjálfstæðistilfinning þeirra sljófgist svo, að þeir sætti sig við nokkurskonar harðstjóm, hvort em hún kemur frá konungum eða ríkis- bubbum, eða frá múgnum, það sem við mynd- um kalla á amerísku: mobrule! En þó höfundur Hávamála leggi mikla á- herzlu á sjálfstæðistilfinninguna, á það, að menn eigi að standa á eigin fótum, gleymir hann ekki, að það er aðeins shálfsögð sagan. Skáldið veit einnig, að þráin til samlífs við aðra menn á sér djúpar rætur í mannseðlinu. Hyggist menn að ná fullum þroska, dugir þeim eigi að lifa sjálfum sér, enda fær enginn gert það til fullnustu ,sízt nú á dögum. Sam- vinnu og samlífs er þörf, eigi mað'urinn að ná fylstum þroska. Því seg)ir í Hávamálum: Ungr var ek forðum, fór ek einn saman, þá varð eg villr vega; auðugr þóttumk er ek annan fann, maðr er manns gaman.” Þess er einnig að gæta, að þeir, sem ein- angra sig um of frá öðrum mönnum, verða ekki ósjaldan einrænir í háttum, og sjálfs- elskir úr hófi fram. Þroskun einstaklingsins og tamning í því að lifa saman við aðra menn, þarf að haldast í hendur, ef vel á að fara. F rásagn a r verður félagsskapur Eftir prófessor Richard Beck Rúmlega þrjátíu æðri mentastofn- anir í Vesturheimi, háskólar og mentaskólar, kenna nú islenzk fræði að einhverju leyti; en vitanlega er það mjög mismunandi, hver áherzla er lögð á þá fræðslu við skóla þessa, og eins hitt, hvort tungu vorri eða bókmentum er þar meiri gaumur gefinn. Mjög skiftir einnig í tvö horn um það, hve gömul í garði kenslan í fræðum vorum er í æðri skólum vestan hafs. I Cornell-háskólanum og ríkisháskólanum í Wisconsin, þar sem hún hefir lengst haldist samfleytt, á hún sér nærfelt sjötíu ára sögu að baki, því að kensla í riorrænum fræðum hófst í þeim skólum árið 1869. Siðan hafa hin- ar æðri mentastofnanir vestan hafs, sem slíka fræðslu veita, smám sam- an bæzt í hópinn; sumar hafa eftir nokkur ár týnzt úr lestinni, en aðrar komið í skarðið. Ekki er það þó ætlun mín með greinarstúf þessum, að segja sögu kenslu i íslenzkum fræðum í Vesturheimi, því að það hef i eg hugsað mér að gera á öðrum stað. Hér vil eg aðeins fara nokkr- um orðum um félagsskap við einn ríkisháskólann vestur þar, sem starf- að hefir i þágu norrænna fræða í aldarfjórðung, og mér finst þess vegna frásagnarverður. Við suma háskólana og menta- skólana í Vesturheimi, þar sem norræn fræði eru kend, eru jafn- hliða félög kennara og námsmanna í þeim greinum, sem vinna að aukn- um áhuga á Norðurlandamálum og bókmentum með samkomum og fyrirlestrahönldum. Slík félög eru t. d. við Harvard-háskólann, rikis- háskólann í Norður Dakota og St. Olaf College i Minnesota. Langmeírkhstur félagisskapur af því tagi, sem eg þekki til, er þó fé- lagið “Heimskringla” við rikishá- skólann í Illinois, í borginni Urbana þar í ríkinu. Átti félag Jætta ald- arfjórðungsafmæli haustið 1926, því að það var stofnað 17, október 1911. Var þeirra tímamóta í sögu þess minst með sérstöku hátíðahaldi, eins og maklegt var, og voru allmargir opinberir fyrirlestrar um menningu Noðurlanda fluttir á liðnum vetri í tilefni af afmælinu. Meðal annars flutti landi vor, prófessor Svein- bjöm Johnson, sem er prófessor i lögum við Illinois-háskólann og lög- fræðilegur ráðunautur hans, fyrir- lestur um samanburð á forngrískri og norrænni heimspeki (lífspeki), og prófessor George T. Flom, for- seti norrænudeildar hásklóans. fyrir- lestur um norræna goðafræði. Skal þá í stuttu máli horfið að sögu félagsins og starfi, einkum þeirri hliðinni, sem að íslandi snýr. Markmið félagsins er að efla áhuga á bókmentum Norðurlanda og kynni af hlutdeild þeirra i vísindum og mentun (education). Félagsmenn eru kennarar háskólans i þeim fræðum og skyldum fræðigreinum, framhaldsnemendur í Norðurlanda-’ málurn og bókmentum, og aðrir þeir, sem leggja rækt við þær ment- ir. Sézt það ljóslega af félagatal- -inu í bæklingnum, sem grein þessi byggist á (Heimskringla, Com- meimorative Booklet, 1911 — 1937, Urban, Illinois, 1937), að það er orðinn álitlegur hópur manna, sem verið hafa i “Heimskringlu” um lengra eða skemra skeið á liðnum aldarfjórðungi, og eru eigi allfáir þeirra víðkunnir fræðimenn og há- skólakennarar í Vesturheimi. Starfræksla félagsins er jafnaðar- lega með þeim hætti, að félagar koma einu sinni saman á mánuði, á tímabilinu október til maí, hlýða á- samt gestum sínum á fyrirlestur um eitthvert það efni, sem er í anda stefnuskrár félagsins, er einhver úr þeirra hópi flytur, eða aðkomandi fræðimaður, þegar svo ber vel í veiði. Sýnir hin prentaða skýrsla félagsins, að fyrirlestrar þeir, sem fluttir nafa verið á fundum þess á liðnum tuttugu og fimm árum, hafa verið bæði fjölbryettir að innihaldi og girnilegir til fróðleiks. Þeir hafa TILKVNNINö ! Hér með gefst almenningi það til vitundar, að Mr. Carlyle Jóbannsson að Gimli, hefir tekið að sér umboð fyrir vora hönd, til þess að veita viðtöku pöntunum af öllum tegund- um prentunar í bygðarlögunum við Winnipeg vatn. Hefir hann nú fengið v-ora. nýjustu verðskrá og getur uppfrá þessum degi veitt smáum og stórum prentunar pöntunum mót- töku. Hvergi sanngjarnara verð og vandað verk ábyrgðst. BOX 297. GIMLI, MAN. The Columbia Press LIMITTI> Toronto og Sargent, Winnipeg, Man. fjallað um Norðurlandaþjóðir að fornu og nýju, tungu þeirra, sögu og menningu, bókmentir þeirra og listir, um Ameríkufund norrænna manna, og um Norðurlandabúa í Vestur- heimi. Og ísland hefir sannarlega ekki orðið útundan, enda kafnaði “Heimskringla” illa undir nafni, ef svo hefði verið. Hafa tuttugu fyrir- lestrar félagsmanna verið um íslenzk efni að öllu eðá einhverjju leyti. Prófessor G. T. Flom, sem fyr var nefndur, en hann er Norðmaður að ætt og uppruna og kunnur málfræð- ingur, hefir á fundum félagsins. lagt drjúgan skerf til fræðslustarfa í vora þágu með mörgum f'yrirlestr- um um fornrit vor, séstaklega um Eddukvæðin. Og dr. Flom mun hafa átt einna mestan þátt í stofn- un “Heimskringlu”, því að stofn- fundur hennar var haldinn á heimili hans; hefir hann einnig til þessa dags veriðj hln helzjta máttarstoð félagsskaparins. Siðan prófessor Sveinbjörn John- son gerðist kennari í lögum við Illinois-háskólann (1926), hefir hann einnig, sem vænta mátti um jafn áhugasaman fræðimann og ræktarsamjan við íslenzkar erfðir, tekið mikinn þátt í starfi “Heims- kringlu” og jafnan valið sér islenzk efni til meðferðar i erindum sínum á félagsfundum. Hefir hann á þeim vettvangi flutt eftirfarandi fyrir- lestra: ‘Tslenzku bygðirnar í Norð- ur Dakota” (1927); “Hin komandi Alþingishátíð á íslandi (1929) ; “Alþingishátíðin íslenzka (1930) ; “Jón Sigurðsson” (1933) ; “Norræn áhrif á eyjunni Man” (1934) ; og “Hallgrímur Pétursson” (1937)- Þarf ekki að draga í efa, að fyrir- lestrar þessir hafi verið bæði vel samdir og fræðandi, og þess vegna Islandi til sæmdar og nytja. Pró- fessor Johnson er mörgum íslend- ingum heimafyrir kunnur af af- spurn, og ýmsum persónulega, síð- an hann sótti Alþingishátíðina sem einn af fulltrúum Bandaríkjanna. Hann er ýkjulaust einn af ágætustu og allra merkustu sonum íslands vestan hafs, en þangað fluttist hann með foreldrum sínum barnungur. Starf “Heimskringlu-félagsins i vora þágu er þess vegna hreint ekki ómerkilegt. Og starfsemi þess í heild sinni þeim mun umfangsmeiri og ávaxtaríkari, þar sem námsmenn sem tekið hafa þátt í störfum félags- ins á skólaárunum, hafa dreifst í ýmsar áttir sem kennarar eða for- vígismenn á öðrum sviðum. En því hefi eg jafnframt dregið atyhgli íslenzkra lesenda að um- ræddum félagsskap, að hann er á- gætt dæmi þess starfs í þágu nor- rænna fræða og íslenzkra, sem unn- ið er við eigi allfáar æðri menta- stofnanir í Vesturheimi, innan veggja kenslustofunnar og utan, þótt minna rúm skipi víðast hvar, heldur en við Illinoisháskólann. Hefir það starf átt sér fleiri skjól ,og vaxið fiskur um hrygg á ýmsa lund hin siðari ár, og benda öll him- intákn til, að svo verði framvegis. ' Fyrst svo óheppilega tókst til að norrænum mönnum hélzt eigi á Vínlandi hinu góða, eru það nokkrar skaðabætur, að vinlenzkir menn nú- tíðarinnar færa með ári hverju út landnám sitt í ríki norrænnar menn- ingar.—Dvöl. Söngflokkur ungra Islendinga í Winnipeg syngur í útvarpið frá Wpg. Vonandi hafa allir íslendingar utan Winnipegborgar, sem hafa radio, hlustað á barnasöngflokkinn hans Ragnars H. Ragnars, á föstu- dagskvöldið 22. apríl. Það er ný- nærni meðal okkar Vestur-íslend- inga. Eg veit að eg verð máske ekki alveg óhlutdrægur í dómi, þegar eg ber sam)an Jænnan söngflokk við hérlenda barnasöngflokka, sem eg hefi hlustað á í gegnum útvarpið. En það get eg staðið við, að eg hefi aldrei heyrt 50 barna söngflokk, frá aldrinum 9—12 ára, syngja radd- sett lög með meiri festu og jafn- vægi og ágætum framburði. Það er vanalegra að heyra sungið ein- raddað af barnaflokk og oftast erfitt að greina orðaskil. Óskýr fram- burður í söng er ekki síður algeng- ur hjá fullorðna fólkinu. Það eru, því miður, fáir söngstjórar, sem taka nokkurt tillit til orðanna, sem sungin eru. Þar, er Ragnar fremri öllum þeim söngstjórum þeirra flokka, sem eg hefi heyrt syngja á íslenzku, eins og þú hefir tekið eftir í framkomu barnaflokksins. Sama listfengið kemur fram í Karlakór íslendinga í Winnipeg, sem Mr. Ragnar stjórnar. Vonandi syngur Karlakórinn einhvern tíma seinna í útvarpið. Þú, sem ekki hafðir tækifæri til að sjá barnaflokkinn í lútersku kirkjunni í Winnipeg fyrir stuttu síðan, mistir mikið af listfengri framkomu þessara ungu íslendinga. Auk framúrskarandi skilnings á efninu, sem þú gast heyrt í gegnum útvarpið, gastu lesið svipbreyting- ar barnanna eftir efninu. Það hefir mörgum hepnast vel að ala upp born, en engin hefir betur alið upp börn á þessu sviði, en Mr. Ragnar. Það sýnir auðvitað hvað þessir ungu íslendingar geta, undir góðri stjórn. Eg get ekki stilt mig um að þakka Mr. Rganar fyrir meðferðina á iþessum gömlu, íslenzku þjóðlögum. Hann hefir gefið þeim nýjan og mjög smekklegan búning; raddsetn- ingin er ágæt og fellur vel i anda laganna og kvæðanna. Eg dæmi eftir tilfinningu, en ekki söngfræði- legu sjónarmiði, því þar hefi eg enga þekkingu. Maður á því að venjast að heyra þessi gömlu lög, sungin í tilbreytingarlausri bunu, hálfgerðu hallæris-hungur-væli. En blessaðir litlu Winnipeg fslendingarnir hand- léku þessi gömlu lög með dularfullri lipurð og viðkvæmni. Sumir pianospilarar hafa til- hneiging til að láta taka ó}>arflega mikið eftir sér við slík tækifæri. En hér varð hvergi vart við þann galla. Miss Bergson er ekki að spila fyrir sig, hún er með líf og sál í röddum

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.