Lögberg - 12.05.1938, Blaðsíða 3
LÖGrBESRG, FIMTUDAGINN 12. MAI, 1938
3
Fornritaútgáfan
Hin nýja útgáfa islenzkra forn-
rita, sem Hið íslenska fornritafélag
gengst fyrir og hófst með Egils
sögu vorið 1933, hefir unniÖ sér svo
miklar vinsældir með þjóðinni og
þaÖ mjög aÖ maklegleikum, að hvers
bindis er beðið með óþreyju af
fjölda manna. Það virðist því ekki
úr vegi að segja hér lítið eitt frá
útgáfunni og hvernig henni miðar
áfram.
Fornritafélagið var stofnað af
nokkrum áhugamnnum um íslenzk
fræði, og ekki sízt um fornsögur
vorar. Forseti félagsins 'hefir frá
upphafi verið Jón Ásbjörnsson
hæstaréttar málaflutningsmaður,
enda mun 'hann hafa verið aðal-
hvatamaður félagsstofnunarinnar og
íorgöngumaður. Útgáfustjóri var
þegar frá byrjun ráðinn prófessor
Sigurður Nordal, og var það happ
mikið fyrir félagið að eiga völ á
slíkum manni sem hann er til þess
að hafa á hendi stjórn útgáfunnar
og umsjón.
Um tilhögun útgáfunnar er þetta
meðal annars helzt að geta: Þau
eru gefin út með samræmdri staf-
setningu, svo að þau eru auðlesin-
hverjum manni. Skýringar eru neð-
anmáls á öllum vísum' og þeim at-
riðum í sundurlausa málinu, sem
nútímalesöndum geta verið torskil-
in, bæði fornyrðum og ýmsu, sem
lýtur að fornri menningu og hátt-
um. Vísað er til annarra fornrita
til samanburðar og helztu ritgerða
um einstök atriði, sem' lesendur
kunna að vilja afla sér frekari
fræðslu um. Orðamunur úr hand-
ritum er tilfærður, þar sem nauðsyn
þykir til. Ritunum fylgja rækilegar
formálar, þar sem gerð er grein
fyrir, hvar og hvenær þau eru rituð,
skýrt frá heimildum, sögulegu gildi,
tímatali o. s. frv., og ileitast við að
rekja uppruna hvers rits eftir
föngum. Ritunum fylgja nákvæm
kort um' sögustaði utan lands og inn-
an og myndir af sögustöðum, forn-
um gripum, handritum o. s. frv. Út-
gáfan á að vera vísindaleg alþýðu-
útgáfa, sem í senn er aðgengileg
hverjum manni, sem vill lesa forn-
ritin sér til skemtunar, og veita þeim
kost á skýringum og leiðsögu, er
óska þess að kynnast þeim til hlítar.
Ennfremur er a'llur frágangur mjög
vandaður, letrið fallegt og skýrt,
pappír og prentun mjög vönduð.
Miðað við alt þetta er útgáfan mjög
ódýr, svo að hin fögru og myndar-
legu bindi islenzkra fornrita eru
vafalaust hinar ódýrustu bækur, sem
út koma hér á landi um þessar
mundir.
Samkvæmt áætlun þeirri, sem
gerð hefir verið um útgáfuna, á hún
að vera alls 35 bindi, enda eiga þar
að birtast öll höfuðrit í'slenzkra
fornbókmenta, Islendinga sögur,
Sturlunga, Biskupa sögur, lögbækur,
Eddurnar, Fornaldarsögur Norður-
landa, Heimskringla og aðrar kon-
ungasögur, riddarasögur og æfin-
týri, vísindi og þýðingar og kveð-
skapur, það er einkum kvæði, sem
varðveitt eru án sambands
við sundurlaust mál. Líklegt er, að
bindin verði nokkru fleiri en áætlað
hefir verið í fyrstu.
Það segir sig sjálft, að jafn stór-
íeld útgáfustarfsemi, sem hér er um
að ræða, er mjög tímafrek. Sér-
hvert bindi krefur mikillar vinnu og
rannsókna í ýmsum greinum, sem
jafnvel útgefendurna sjálfa órar
ekki fyrir í upphafi. Sómi islenskr-
ar fræðistarfsemi liggur við, að út-
gáfan sé í hvívetna vel af hendi
leyst, og það skiftir miklu minna
máli þótt útgáfan sé nokkrum árum
lengur á döfinni heldur en hitt, ef
þar væri um einhver alvarleg mis-
tök að ræða eða á einhvern hátt
höndum kastað til verksins. Útgáfa
þessi á að vera metnaðarmál allra
Islendinga.
Ein's og áður er getið hófst út-
gáfan með Egils sögu 1933, og eru
nú alls komin út 4 bindi, og eru þau
þessi (öll prentuð í Reykjavík) :
II. birftli. Egils saga Skallagríms-
sonar 1933; útgefandi Sigurður
Nordal.
IV. bindi. Erbyggja saga Brands
þáttur örva, Eiríks saga rauða,
Grændendinga saga, Grænlendinga
þáttur, 1935; útgefandi Einar Ól.
Sveinsson og Matthías Þðrðarson.
V. bindi. Laxdœla saga, Halldórs
þættir Snorrasonar, Stúfs þáttur,
1934; útgefandi Einar Ól. Sveinson.
VII. bindi. Grettis saga, Banda-
m'anna saga, Odds þáttur Ófeigsson-
ar, 1936; útgefandi Guðni Jónsson.
Innan skamms eða nú í vor er
von á fimta bindinu, sem út kemur,
en er III. bindi safnsins. I því eru
Borgfirðinga sögur, það er Hænsa-
Þóris saga, Gunnlaugs saga orms-
tungu, Bjarnar saga Hítdælakappa,
Heiðarvíga saga og Gísla þáttur 111-
ugasonar; útgefendur eru Sigurður
Nordal og Guðni Jónsson. Undir-
búningi næsta bindis þar á eftir
mun vel á veg komið.
—Fálkinn.
Vorvísur
Veðrin skána, voðinn flýr,
verður ánauð minni,
himinn blánar heiðisskýr,
hjartalán í sinni.
Sólin skæra frjóvgar fold,
fegurð ljær og yndi,
jurt svo grær í mjúkri mold,
máttug nærast lyndi.
Yfir líður lönd og sæ
léttur þýður andi,
veðurblíðan fyllir fræ
fjörs og prýðis standi.
Skógargyðju grænkar 'hár,
grær við hryðju ríka,
þess vér biðjum blessað ár
blómgvi iðju slíka.
Ekki kvíðum' ama hríð
eða stríði í geði,
veðurblíðu velti tíð
veitir lýða gleði.
Röðull fríður leggur lið
ljósum skrýðir hauður,
degi blíðum brosir við
bjartur prýðis-auður.
Sólskinsfagur fjörþrunginn
frdsisdagur ljómar,
út um haga alsunginn
ástabragur hljómar.
Lofgjörð sungin sólu næst
svo um klungur gjallar,
lífi þrunginjjóðin æðst
leika tungur allar.
Hörpur snjallar heilla þig
hljómar falla að eyra,
hærra kalia á kosta stig,
—hvert sem allir heyra?
Vorsins iðja vinnu hröð
verkaniðja kallar,
ástargyðju gróðrarstöð
greiðir viðjar allar.
Fuglar létt í loftin blá
líða, réttast þrautir,
vorið mettar vini smá,
vaxtar settar brautir.
Glóðar-hettu á færir fjöll
funa mettur röðull,
geislum fléttuð grundin öll,
gulli settur stöðull.
Birtir til í sinni og sál,
sorgar dylur kífið,
gróðrarilmur markar mál
manns, er skilur lifið.
Þó að leiðin lífs sé stirð,
lauguð neyðartárum,
vorsins heiði, vorsins kyrð
vetrar eyðir tárum.
M. Ingimarssön.
Til Víglundar Vígfússonar
frá Úthlíð
Enn er bjart í bygðum landsins,
brotið þýfið, túnin slétt;
enn er gleði æskumannsins :
öldum fola hleypa sprett.
Ennþá rekur kýr og kindur,
kátur smali heim á ból.
Ennþá Glóey gullið bindur
geislatraf uim jökubtól.
Manstu vors í dýrðardraumi
daggarilm og þrastakvak,
eða svani svífa af straumi,
sveigja háls við vængjablak?
Manstu birki, brekku og liliðar
búning vors og sumars fá,
blóma grundir grænar þíðar
glitra vatns í speglum blá?
Manstu hraunið háa, breiða,
Hrútlhagann og Brúará?
þar sem stríðir straumar freyða
stöllum af, í þrönga gjá.
Manstu Höfðann háa fríða:
Haga- Rauða- Mosafell,
Jarlhettur, sem hérað prýða
Hagavatn og Jökulsvell?
Þetta voru þektar slóðir
þínum æskudögum á,
voru okkar vinir góðir, Sy
víðsýnið og fjöllin há.
Víðibrekkur, vatnaniður
vöktu i brjóstum dulda þrá:
Jambajarmiur, lóukliður,
laufguð björk og f jóla smá.
Þú hefir langan aldur unað
út í fjarri Vesturbygð,
en þó jafnan minst og munað
móðurands af ást og trygð.
H-vernig sem að ferð réð falla,
flest að heiman vel er geymt;
hljótt til íslands heiðu fjalla
hefir í vöku og svefni dreymt.
Páll á Hjálmsstöðum.
5. apríl 1938.
Vargöld
Mannúð á vök að verjast;
vopnaglamur hlustir sargar.
Valdafýknir vilja berjast,
Viðnám smátt og fátt til bjargar.
Vargs er eðlið blóði baða,
Binda lítifmagnans vilja,
I samráði við skuld og skaða
Skrumararnir dygðir mylja.
Ágirndýi! Þú ættarfylgja
Auðs og valda — metnaðsplógur;
Lægstu hvata eiturylgja,
Ektamaki þinn er rógur.
IIIu heilli hafið sprottið
í hugans akurlendum þjóða,
Úr imyrkraríkis djúpi dottið,
. —Dauðahryglu samtíð bjóða.
Enn í glötun á að toga
Instu kendum friðarvona;
Hatureldinn láta loga,
Líftjón auka beztu sona.
—Okrararnir auði safna,
Una sér við sláturpottinn;
Prúðmenskunnar pelli hafna
\ ið Pílatusar handaþvottinn.
Finna ei til eigin sektar
Ættlönd saurguð — drifin blóði,
Gullkálfurinn Mammons mektar
Manndóms týnir hverjum sjóði.
Viðurreisnar viðleitninni
Varpa brottu dráttum skýrum,
Dýrka kendir drápgiminnar,
Djöfullegri villidýrum.
Hugvit eytt til uppgötvana
j Eiturgufu og sprengitóla,
TiJ að hjálpa bróðurbana
Við barnamorð í hernaðsskóla.
Slikan glæp mót guða kenning
Getur enginn brottu skafið,
Á augnabliki — aldamenning
Eyðingar i sortann grafið.
•
V'argöld skerðir vit, — en orka
Verður smá til framtaks þrifa.
Lýðræðisins stjórnum storka
Stefpur einvaldsherra svifa.
Hnefaréttur hyltur — boðar
Hernáms f jötra reirða þjóðum,
Vargsins sem að völd sín skoðar
Veigamest, á heljarslóðum.
Heilladísir veginn varði,
* Vökumenn svo þjóða skynji,
Mannúð gangi á undan arði,
Eigingirnis skjaldborg hrynji.
Fyrst þá verður friðarvona
Fylling náð, og þroskaspori.
Bindast samtök beztu sona
Bróðurþels með nýju vori.
• Jóhannes H. Húnfjörð.
Oskar Þórðarson
Óskar Þórðarson, tilheyrandi ís-
lenzka mannfélaginu í Upham,, N.
D., lézt á sjúkrahúsinu að Rugby,
kl. 6:45 árdegis, 18. apríl 1938, eftir
stutta legu. Hann var jarðsunginn
22. apríl að viðstöddu afar miklu
fjölmenni. Jarðarförin var frá ís-
lenzku, lútersku kirkjunni í Upham
og séra Carl J. Olson embættaði.
Sagt er að þetta hafi verið sú fjöl-
mennasta jarðarför í sögu Upham-
bæjar og mannfélags. Fólk af öll-
um stéttum og þjóðflokkum var
samankomið.
Óskar sál. var fæddur 2. febr.
1896 á Rauðkollsstöðum í Eyja-
hreppi i Snæfellsnessýslu á Islandi.
Faðir hans hét Þórður Þórðarson
og var Dannebrogsmaður. Móðir
hans heitir Pálína' ÞórÖarson. Hann
misti föður sinn á mjög ungum aldri.
Með móður sinni og yngri bróður
fluttist hann til Ameríku árið 1900.
Þau mæðginin komu til Winnipeg
15. júlí, en 5. ágúst til Bandarikj-
anna. Þau bjuggu 4 ár á Moun-
tain, N. D., í Montanaríki þrjá
rnánuði, í Chicago 1V2 ár og svo
aftur 8 mánuði í ofangreindu ríki,
sem heitir Kallispells. Hann var í
Bandaríkjahernum frá 1917 til 1919.
6. nóv. 1919 gekk hann að eiga
ungfrú Karolínu Henrickson í Up-
ham, N. D.; það hjónaband var ekki
langvint. Engill dauðans heimsótti
þau og tók þessa ungu konu 15.
marz 1923. Þau hjón eignuðust
eina dóttur, Pauline Margaret, sem
nú er 16 ára að aldri.
1 hálft annað ár var hann í þjón-
ustu Bandaríkjastjórnjiirinniar. At-
vinna hans kallaðist “Patrol laborer
in the Upper Souris Game Refuge.”
Þetta var í Foxholm, norður af
Minot.
Hann er nú sárt syrgður af aldr-
aðri móður og korungri dóttur. En
svo eru þrír hálfbræður og hálf-
systur á íslandi. Albróðir hans dó í
Chicago fyrir nokkrum árum.
Óskar sál. var hátprúður, ráð-
vandur og iðjusamur maður. Hann
vann öll sín skyldustörf með stakri
trúmensku. Hann var ágætum hæfi-
leikum gæddur bæði til sálar og lík-
ama. Hann var snarráður og fljót-
ur í hreyfingum, þrekmikill og hug-
rakkur. í hernum var hann látinn
starfa sem hraðboði á mjög hættu-
| THOSE WHOM WE SERVE 1
IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING M
AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS =
BECAUSE- |
OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- ^
ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF ÉE
THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER jEÉ
WE DELIVER. =
| COLUMBIA PRESS LIMITED |
= 695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 3*27 =
legum stöðvum; komu þá í ljós of-
angreindir eiginleikar.
Móðir hans og dóttir hafa beðið
mig að tjá fyrir sína hönd innileg-
asta þakklæti sitt fyrir hluttekning
una sem þeim hefir verið auðsýnd
af fjölda mörgum. Þær þakka fyr-
ir blóm og peningagjafir i minningu
um hinn látna. Þær þakka líka öll-
um, sem heiðruðu minningu hans
með nærveru sinni við jarðarförina.
Þessi mikli mannfjöldi fylgdi hon-
um til grafar með kærleika, lotn-
ingu og þakklæti í hjarta sínu.
Blessuð sé minning hans.
Carl J. Olson.
“Tengdamamma”
Fimtudagskvöldið 5. maí sýndi
leikflokkurinn frá Árborg sjónleik-
inn “Tengdamamma” i Goodtempl-
arahúsinu á Sargent Ave. Leikurinn
hefir áðúr verið sýndur hér í bæn-
um og einnig mun hann hafa verið
sýndur eitthvað út um bygðir, svo
flestum mun efni hans kunnugt.
Hér verður ekki farið út í það
lýsa eða dæma tun leiklist hvers ein-
staks leikanda, en það má þó segja,
að sjaldgæft er að svo jafn vel sé
leikið af öllum þáttakendum sem
þarna átti sér stað. Það var aug-
ljóst að leikendurnir voru þaulæfð-
ir hver i sínu hlutverki, — kunnu
með afbrigðum vel, sem oft vill á
skorta. Framburðurinn var hreinn
og íslenzkur, eðlilegur i samræmi
við efni leiksins.
Árborgar leikflokkurinn hafði
þarna vissulega góðurn leikkröftum
á að skipa, og væri óskandi að við
hér í Winnipeg mættum oftar njóta
góðs af þessu starfi þeirra, sem er
áreiðanlega einn gildur þáttur á
þj óðræknisstarfsemi Vestur-Islend-
inga. Meðan íslenzkir sjónleikir eru
sýndir og sóttir hér vestra hjá okk-
ur, lifir Menzk tunga.
Leiksýningin var miður sótt en
skyldi, og að því láu tvær ástæður.
Fyrst, að kvöldið áður hafði verið
hér ein afarfjölmenn samkoma —
söngskemtun karlakórsins í Winni-
peg, — og svo var hrakviðri þetta
kvöld, stormur og krapahríð.
Eitt var það, sem mjög dróg úr
gildi leiksýningarinnar, en sem leik-
endurnir áttu enga sök á, en það
var hve lítið og óhentugt leiksviðið
var. Því miður er nú Goodtempl-
arahúsið tæpast hæft til slikra leik-
sýninga. Ef nokkuð skyldi sett út
á í sambandi við sýninguna, þá var
það helzt að sumir leikendur voru
um of málaðir, sem verður að mið-
ast við styrkleika ljósanna, sem not-
uð eru og svo fjaríægð áhorfenda
frá leiksviðinu.
Mrs. F. H. Daníelsson hefir æft
flokkinn og stjómaði leiksýningun-
um, og á hún miklar þakkir skilið
fyrir þá starfsemi sina,
Allir, sem leikinn sáu vilja þakka
fólkinu frá Arborg fyrir komuna,
og vona að það komi og leiki hér
aftur, við hagkvæmari kringumstæð-
ur.
Business and Professional Cards
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON DR. B. H.OLSON
216-220 Medical Arts Bldg. Phones: 35 076
Cor. Grahani og Kennedy Sts. 906 047
Phone 21 834—Office tímar 3-4.30
Consultation by Appointment
Heimili: 214 WAVERLEY ST. Oniý
Phone 403 288 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE
Winnipeg, Manitoba Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur 1 eyrna, augna, nef og hálssjúkdömum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstími — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofuslml — 22 251 Heimili — 401 991 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson
S ViCtalstlmi 3-5 e. h. •
218 SHERBURN ST.
Slmi 30 877
DR. A. V. JOHNSON Tannlæknir 212 Curry Bldg;., Winnipegr (Gegnt pösthúsinu) Sími: 96 210 - Heimils: 28 086 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlceknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
BARRISTERS, SO LICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1666 PHONES 96 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. islenzkur lögfræOinour 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 94 668
LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Lindal, K.C., A. Buhr Björn Stefánsson Telephone 97 621 Offices: 325 MAIN STREET \
BUSINESS CARDS
PRESCRIPTIONS FILLED CAREFULLY GOODMAN DRUGS Cor. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEO Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningal&n og eldsábyrgO af öllu tægl. PHONE 94 221 •
A.S.BARDAL 84 8 SHERBROOKE ST. Selur líkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaBur sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi: 86 607 Helmllls talstmi: 501 562 ST. REGIS HOTEL. 285 SMITH ST., WINNIPEG pægilegur og rólegur bústaOur < miObiki boryarinnar. Herbergl $2.00 og þar yflr; me8 baöklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltíðir 4 0c—60c Free Parking for Quests