Lögberg - 12.05.1938, Síða 7

Lögberg - 12.05.1938, Síða 7
LCVGBERG, FIMTUDAGINK 12. MAl, 1938 7 Ný öíd er runnin Axel L. Wenner-Gren Um vamdamál nútimans. ♦ ’ ♦ ♦ Axel L. Wenner-Gren, stóriðju- höldurinn sænski, er gaf 30 miljóna sjóðinn til framfara- og menningar- mála Norðurlanda, og til þess að efla norræna samvinnu, gaf á síð- astliðnu hausti út bækling um þjóð- félagsmál nútímans er hann nefnir “Jag vádjar til envar.” í riti þessu gerir hann grein fyr- ir viðhorfi sínu til stjórnmálastefna og þjóðfélagsmála yfirleitt, og dreg- ur fram í stuttu máli höfuðeinkenni nútímaskoðana og deilumála. í formála ritsins kemst hann þannig að orði: Eftir 40 ára sífelda vinnu yerða menn að hafa leyfi til að hægja á sér og hvíla sig ögn. Allir hafa leyfi til þess. Og ekki nóg með það. Þetta er skylda manna. Þetta varð til þess að eg lét sjó- menskudrauma æskuára minna ræt- ast. Eg félek mér skip, og fór í langferð yfir heimshöfin sjö. Eg kvaddi kóng og prest og hélt af stað án nokkurrar áætlunar, til þess að njóta hafsins og heimsækja fjarlæg lönd er eg hafði ekki áður séð. En í einveru og kyrð hafsins fekk hugurinn ekki hvild, en leitaði til fortíðarinnar, nútíðarinnar með all- an hennar sæg af óleystum verkefn- um, og knúði á dyr hjá ráðgátum framtíðarinnar. Samtöl við menn frá mörgum þjóðum og mismunandi stéttum, við stjórnmálaleiðtoga og forgöngu- menn á ýmsum sviðum og við fyr- verandi félaga á verkstæðum og skrifstofum rifjuðust upp í huga minum. Öll þessi áhrif söfnuðust í eina heild og dróg eg ályktanir mínar af því sem eg hefi séð og heyrt og lært í skóla lífsins. Hver spurningin vakti aðra. Og svörin runnu upp frá reynslu þeirri og hugrenningum sem lengi höfðu legið í meðvitund minni, og vafalaust í meðvitund margra annara, en sem í umræðum dagsins dragast að miklu leyti i hlé fyrir áhyggjum augnabliksins og viðfangsefnum sem verða yfirgnæf- andi. Hvað verður um Sviþjóð, þetta gamla land frelsisins, á tímum sem bera einkenni ofbeldis og ofríkis, þröngsýni og þvingunar ? Er sú velmegun þjóðar vorrar trygg, sem talað er um i heiminum? Hvernig á velmegun þessi að dafna innan vébanda hins lýðfrjálsa þjóðfélags? Gerum við okkur grein fyrir, hve landnám, tækni og visindi er mikils virði? Getum við með núverandi lífsskil- yrðum þjóðarinnar notfært okkur þessar nýjungar? Er norræn samvinna nauðsynja- eða tilfinningamál ? Höfum við gert, eða gerum við nægilega mikið fyrir æskuna? Þessum og öðrurn spurningum hefi eg reynt að svara eftir lífs- reynslu minni og þar eð menn hafa sagt mér að sjónarmið min eigi er- indi til almennings, hefi eg safnað þeim saman í bók.” —Fyrsti kapítuli ritsins fer hér á eftir. Hann heitir: Ní/ öld er runnin. Visindi og tækni nútimans hafa gert okkur mögulegt að skapa vel- megun fyrir alla. Lífið er barátta. En hvort heldur sem einstaklingar eða þjóðir eiga í hlut, þá getur bar- áttan fyrir sig ekki sjálf verið tak- markið. Það er að vísu útbreidd skoðun að maðurinn sé “bardaga- dýr” (“a fighting animal”) og ó- neitanlega gefur mannkynssagan með sinum sífeldu styrjldum og baráttu tilefni til þess að þannig sé litið á. En samt sem áður er það rangt, að leita orsakanna að því sem var og er í þessu efni, í okkar eigin eðli og gera ófriðinn að náttúrulögmáli. I flestum tilfellum hafa ófriðir staf- að beinlínis eða óbeinlínis af vönt- un eða ímyndaðri vöntun á verald- legum gæðúm>, eða af ásókn i að afla sér þeirra á annara kostnað. | Styrjaldirnar hafa jafnað tilboð og eftirspurn meðal þjóðanna. Nú er það styrjaldartilefni úr sögunni. Nú eru skilyrði fyrir hendi, sem áður voru ekki til, til þess að fullnægja þörfum manna, og veita öllum al- menningi góð trygg lífskjör. Það eru vísindin og tæknin, sem hafa gert þetta mögulegt. Eftir því sem eg fæ séð hafa menn ekki enn gert sér fyllilega grein fyrir hve þýðingarmiklum nýjungum mannsandinn hefir kom- ist að, á hinu praktiska sviði. Flest- ir okkar hafa hugmynd um að vis- indi og tækni hafa lagt grundvöllinn að nýju tímabili i sögu mannkynsins. En eitt er að hafa um þetta óljósa hugmynd og annað að skilja það til hlýtar, og notfæra sér hinar nýju uppgötvanir með dugnaði og stefnu- festu, ryðja burt hindrunum, sem standa í vegi fyrir því nýja, sem er i vexti, og losa mannkynið við þann kvíða, sem sífelt hefir íþyngt lífi manna. í stað þess, sem hingað til, að tæta menn sundur af skorti, ættu menn að hjálpast að við að f ramleiða alls- nægtir. Er okkur ofætlun að taka okkur það fyrir hendur? Mannfólkið er i sannleika und- arlega gert. Það er minnislaust. hörmulega tregt að læra af revnsl- unni. Fyrir tiltölulega fáum árum síð- an var heimsstyrjöld nærri búin að gera út af við alla^menningu vora. Til hvers? Hverjum að gagni? Fyrir örfáum árum sluppum við út úr hinni verstu kreppu, sem komið hefir yfir heiminn. Það væri ætlandi að slik lexía yrði mönnum minnistæð, a. m. k. einn mannsaldur. Enganveginn. Þjóðirnar eru nú í óðaönn að undirbúa næsta ófrið. Og enn ber- umst við út í næstu kreppu. Lexían er gleymd. Hversvegna? Óljósar óskir okk- ar miða að betri skipun málanna. En hugrenningar manna halda á- fram að fylgja úreltum leiðum for- tíðarinnar. Menn hafa hugmynd um tilveru þess nýja, en geta ekki losað sig við úreltar skoðanir sinar. Sá, sem einhverjar eigur á, heldur í þær dauðahaldi. Þetta gagntekur huga hans. Hann gefur sér ekki tíma til að skeyta utn erfiðleika ann- ara. Áhyggjurnar fyrir morgundeg- inum láta hann aldrei í friði. Sá •sem áhyggjur hefir sækir óánægju sinni sífelt nýja næringu í skort sinn, og hugleiðingarnar um erfið- leika sina. Taugaóstyrkur einblinir hann á það, hvenær hann fær sitt tækifæri. Þannig eykst ótti og beis'kja í hugum almennings, er menn svo skipuleggja í atvinnuskyni' bæði á þýóðlegum og alþjóðlegum •grundvelli. Þeir óánægðu . og óttaslegnu að- hyllast frekar ofbeldið en skynsem- ina. Hinar lítilf jörlegu umbætur á högum almennings hafa orðið til þess að æsa menn upp. Eintsakl- ingar, klíkur, stéttir, þjóðir og þjóðflokkar stancla vígbúnir gagn- vart hver öðrum. Menn hrinda og stjaka sér áfram til þess að fá pláss í sólinni, og úti- loka sig svo frá henni með sérgæð- isfullum ákafa sínum. Skynsemi, sjálfsagi og samúð fer forgörðum, í sjálfselsku og hatri manna. Þeir sem kunna bezt að notfæra sér ó- ánægju manna og óþolinmæði, og sem áhrifamest prédika ofbeldið fá hylli fjöldans. Þorir maður á þessum tímum glundroða, sjálfselsku, hörmunga og skelfingar að vona, að máttur fram- faranna, sem eykur velmegun al- mennings, geti rutt sér til rúms, og veitt mannkyni það, sem það þráir, sæmilegt öryggi, meiri lífsverðmæti ? Við stöndum á vegamótum. Önn- ur leiðin liggur til síaukinna fram- fara, sem gætu orðið það örar, að rnenn aldrei hafi dreymt um slikt. En hin leiðin liggur til eindæma hörmpnga og umbyltingar. Ef hægt væri að beina viðleitni ^ vorri að sameiginlegu takmarki í víðustu merkingu, ef hægt væri að sameina vísindarannsóknir, tekn- iskar framkvæmdir og nýtízku fé- lagsstarfsemi til þess að nytja ó- ins, og skifta réttlátt milli manna, þá rynni brátt upp nýtt tímabil, þar sem vonirnar um allsnægtir fram- tíðarríkisins nálguðust veruleikann. En í stað þessa, er öflum þessum einbeitt að því að leggja heims- menninguna í rústir. —Morgunbl. 1. april. Doktorsvörn Helga P. Briem Helgi P. Briem, viðskiftafulltrúi, varði í gær, til doktorsnafnbótar við heimspekideild háskólans, rit sitt, “Byltingin 1809.” Doktorsvörnin fór fram í lestrar- sal Landsbókasafnsins að viðstöddu fjölmenni. Dr. phil. Sigurður Nor- dal, forseti heimspekideildar, stýrði athöfninni. Andmælendur af hálfu heimspekideildar voru Árni Pálsson prófessor og dr. phil. Þorkell Jó- hannesson, en andmælandi úr hópi tilheyrenda Guðbrandur Jónsson. Er deildarforseti hafði ávarpað tilheyrendur, tók doktorsefni til rnáls, gerði grein fyrir tilorðningu ritgerðar sinnar og fór um viðfangs- efnið nokkrum orðum. Þá skýrði hann og frá því, að sér hefði verið það metnaðarmál að ljúka námsferli sinum við Háskóla Islands, þó að hann hefði orðið að sækja til ann- ara landa það sérfræðinám, er hann hefði. valið sér sem ungur stúdent. Væri sér það hið mesta gleðiefni að hafa nú náð því takmarki. Þá tók til máls fyrri andmælandi heimspekideildar, Árni Pálsson pró- fessor og rýndi einkum tvo fyrstu kafla ritsins, en annars lauk hann miklu lofsorði á natni doktorsefnis við rannsókn heimilda og niðurstöðu þeirra. Taldi hann doktorsefni tví- mælalaust verðskulda þann heiður, er heimspekideild hefði ákveðið að sæma hann fyrir verk hans, þxí að það varpaði skýru ljósi yfir kafla úr sögu landsins, sem áður hefði verið að nokkru hulinn æfintýra- hjúpi. Þegar doktorsefni hafði svarað aðfinslum fyrsta andmælanda, sem /hann taldi byggjast á skoðanamun um hin einu umdeilanlegu atriði ritsins, tók Guðbrandur Jónsson til máls. — Reyndi hann að sýna fram á stórkostlega galla á ritinu og eyddi til þess löngum tíma. Var auðheyrð beiskja hjá Guðbrandi sumpart til háskólans, sem ekki hefir viljað taka rit frá honum til doktorsvarn- ar, og sumpart til Helga, sem hafði tekið til meðferðar viðfangsefni, sem faðir hans hafði skrifað um minniháttar ritgerð. Guðbrandur viðurkendi þó, að doktorsefnið hefði safnað miklum heimildum og unnið isl. sögurannsóknum þarft verk. Þegar doktorsefnið hafði svarað Guðbrandi, tók til máls annar and- mælandi heimspekideildar, dr. phil Þorkell Jóhannesson. Snerist rýni hans einkum um agnúa á málfari doktorsefnis á nokkrum stöðum í ritinu, svo og tvö sagnfræðileg at- riði, sem hann átaldi doktorsefni fyrir að hafa ekki ransakað niður í kjölinn, en þá yfirsjón kvað hann stafa af því, að sagfræðin væri að- eins ígripaiðja doktorsefnis. Að öðru leyti lofaði andmælandinn mjög þann skerf, er doktorsefni hefði lagt til rannsókna á sögu landsins með verki þessu, og taldi hann mjög maklegan doktorsnafn- bótar fyrir það. Doktorsefni svaraði nú andmæl- anda og viðurkendi að aðfinslur hans væru á rökum bygðar og færði fram málsbætur fyrir sig. Því næst lýsti deildarfosetinn því yfir, að doktorsprófinu væri lokið. Niðurstaða þess yrði ekki birt nú, en áheyrendur gætu gert sér í hug- arlund, á hvern veg hún yrði. Að lokuitn mintist doktorsefni há- skólans með nokkrum hlýjum orð- um og óskaði honum blessunar í staríi sínu i framtíðinni. —Nýja dagbl. 8. apríl. Hækkar hagur Strympu Góðvinur minn Sigurður Bald- vinsson hefir siglt úr sinni vör með “Sitt af hverju,” á fyrstu síðu Lög- berg berg, 21. april þ. á. Hefir hann þar í fari sínu dásatnlegan fróðleik að færa lesendum blaðsins og dylst engutn sem les, að hér kemur engin smávægis veifiskati fram á vest- heimskan ritvöll. Má það segja, að Siggi greyið hafi tekið stórum þroska í þeirri grein síðan hann skrifaði leiðréttingar sínar á fæð- ingardag hins sæla Tómásar Edi- sons, er urðu þá í höndum hans mest megnis rangfærslur og hjákát- legar hugsanavillur. En þess ber að gæta að vinur minn S. B. er þarna á byrjunarstigi sinnar rit- mensku og eftir þeim framförum sem hann hefir nú tekið á skömmum tíma, — sérstaklega frá boðunardegi Maríu meyjar, — mætti af honum mikils vænta í næstu framtíð, að staðið gæti í sinni rittækni á borð við hinar frægustu hetjur fornald- anna í vopnatökum, t. d. Þorstein uxafót með beitiásinn,.eða Samson heitinn sterka með asnakjálkann. En svo kemur fleira “Sitt af hverju” til greina, er vini imínum Sigurði Baldvinssyni finst vert að geta er hann kveld eitt hafi á sex- æringi setið með skáldmæringum að sumbli. Var því til vonar að sam- ræður þeirra hneigðust að skáldleg- um efnum. Kemur þá upp á yfir- borðið hver vísa þyki þeim bezt gerð. Verður að úrskurði míns kæra Sig- urðar, þessi alkunna visa ákjósan- legust; “Magnús raular” o. s. frv. En með því að þessi vísa er alsendis efnislaus og hefir engu skáldlegu gildi fil að dreifa, bendir þessi úr- skurður hans til þess að Siggi garmurinn hafi þá hlotið að standa eitthvða aftarlega, er Óðinn spjó Suttungamiðinum; ekki haft svo núkið upp úr krafsinu af dreifinni, sem snefil í dómgreind á þeim fyrir- brigðum er kallast skáldskapur, orð- ið svo að saga í barminn eftir illa hreinum dreggjum. En svo segir hann að félögum sínum hafi þótt vísan góð og má það vel vera að því leyti, er hún felur í sér sína siikihúfuna á höfuð hvers þeirra sexmenninganna, í hinu umgetna sálufélagi. En svo rís upp sá vitrasti í hópn- um og kveður upp úr í sínu visna- vali, með þessa visu Bólu-Hjáknars “Siglir nú úr sultarvör” o. s. frv. Annað hvort hefir þesSi vitri mað- ur ekki verið vel kunnur vísum Bólu- Hjálmars eða þá ekki verið allsgáð- ur, þvi allur fjöldinn af vísum Hjálmars ber langt af þessari vísu, sem algildur skáldskapur, þótt vísan megi þykja vel ort. Því finst mér að Siggi minn hafi fremur lítið veifað þessum sumblvinum sínum til sæmdar í þessu vísnavali, með þvi að fara að geta þess í opinberu blaði. Og sjálfur finst mér hann verða þarna langtum fyrirferðarminni, en hann kemur mér fyrir sjónir á hinni fyrstu síðu biaðsins sem fregnrit-' ari. Því vil eg ráða mínum kæra Sig- urði frá því að hætta sér út á þann hála ís að fást um skáldskap. Og leiðréttingar hans ættu að verða honnm þess minnugar að þeim fylg- ir oft vandhæfni að vel fari, ekki sízt í ættfræði sem oft þarf ná- kvæmrar athugunar við, sem þó er ein hans veika hlið. Svo vona eg að fá að sjá minn kæra Sigurð Baldvinsson augliti til auglitis á þessu sumri. Með óskum góðs og gleðilegs sumars. Magnús Sigurðsson, á Storð. 25 oz. $2.15 40 oz. $3.25 G&W OLD RYE WHISKY (Gamalt kornbrennivín) GOODERHAM & WORTS, LIMITED Stofnsett 1832 Elzta ítfengisgerð 1 Canada Thla aaverusement ls not in«erted by th« Govornment Liquor Control Commiaslon. Th» Commisslon is not responsible for atatements m&de a* to th« quality of products advertised GEFINS Blóma og matjurta frœ OTVEGIÐ EINN NÝJAN KAUPANDA AÐ BLAÐ. INU, EÐA BOBGIÐ YÐAR EIGIÐ ÁSKRIFTAR- GJALD FYRIRFRAM. Fræið er nakvœmlega rannsakað og ábyrgst að öllu leyti TAKIÐ ÞESSU K0STAB0ÐI! Hver gamall kaupandi, sem borgar blaðiC fyrirfram, 43.00 áskrift- argjald til 1. janúar 1939, fær að velja 2 söfnin af þremur númerum, 1., 2. og 3 (I hverju safni eru ðtal tegundir af fræi eins og auglýsingin ber með sér). Hver, sem sendir tvö endurnýjuð áskriftargjöld, J6.00 borgaða fyrirfram, getur valið tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, Og fær nr. 4 þar að auki. Hver, sem útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftaxgjald hans, $3.00, fær að velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar að auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig að velja tvö söfnin nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4. þar að auki. Allir pakkar sendir móttakanda að kostnaðarlausu. No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets BEISTS, Detroit Dark Red. The best all round Beet. Sufficient seed for 20 feet of row. CABBAGE, Enkhuizen. Good all round variety. Packet will grow 1,000 lbs. of cabbage. CAR.ROTS, Half Long Ohantenay. The best all round Carrot. Enough seed for 40 to 50 feet of row. CCCl’MBER, Early Fortune. Pickles, sweet or sour, add zest to any meal. This packet will sow 10 to 12 hills. LETTUCE, Grand Rapids. Loose Leaf variety. Cool, crisp, green lettuce. This packet will sow 20 to 26 feet of row. LETTUCE, Hanson, Head. Ready after the Leaf Lettuce. ONION, Yellow Glohe Danvers. A splendid winter keeper. ONION, White Portngal. A popular white onion for cooking or pickles. Packet will sow 15 to 20 feet of drill. PARSNIP, Half Long Guernsey. Sufficient to sow 40 to 60 feet of drill. PUMPKIN, Sugar. Packet will sow 10 to 16 hills. RADISH, French Breakfast. Cool, crisp, quick-growing variety. This packet will sow 25 to 30 feet of drill. TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet will produce 75 to 100 plants. TURNIP, White Summcr Table. Early, quick-growing. Packet will sow 25 to 30 feet of drill. FIjOWER GARDEN, Surprise Flower Mixture. Eaelly grown annual flowers blended for a succession of bloom. SPAGHETTI, Malabar Melon or Angel’s HaJr. ' Boil and cut off the top and the edible contents resemble spaghetti. No. 2 COLLECTION SPENCER SWEET PEA COLLECTION 8—NEW BEAUTIFTTIi SHADES—8 Regular full size packets. Best and newest shades in respective color claes. A worth-while saving buying two. See regular Sweet Pea List also. SEXTH7T QUEEN. Pure White. GEO. SHAWYER. Orange Pink. Five and six blooms on a stem. WELCOME. DazDzling Scarlet. WTIAT JOÝ. A Delightful Cream. MRS. A. SF.ART.F.S. Rich Pink BEAUTY. Blush Pink. shading Orient Red. SMIIiES. Salmon Shrimp Pink. RED BOY. Rich Crimson. No. 3 COLLECTION—Flowers, 15 Packets EDGING BORDER MIXTURE. MATHIOLA. Evening scented ASTERS, Queen of the Market, stocks. the earliest bloomers. MIGNONETTE. Well balanced BACHET/OR’S BUTTON. any mixtured of the old favorite. CALe'nDULA: New Art Shades. NASTURTIUM. Dwarf Tom CALIFORNIA POPPF- New Thumb. You can never have to° hiany Nasturtiums. Prize Hybrids. J ____ CLARKIA. Novelty Mixture. PETUNIA. Choice Mixed Hy- CLIMBERS. Flowering climb- brids. ing vines mixed. POPPY. Shirley. Delicate New COSMOS. New Early Crowned Art shades. EVERTASmGS. Newest shades ZINNIA. Giant Dahlia Flowered. mixed. Newest Shadee. No. 4—ROOT CROP COLLECTION Note The Ten Big Oversize Packets BEETS, Half Long Blood (Large PARSNIPS, Early Short Round Packet) (Large Packet) OABBAGE, Enkhuizen (Large „.YTench ... Breabfast Packet) TURNIP, Purple Top Strap CARROT, Chantenay Half Ixmg rx.af. (Larí?e Packet). The (Large Packet) early white summer table ONION, Yellow Globe Danvers, turnip. (Ijarge Packet) TURNIP, Swede Canadian Gem LETTUCE, Grand Rapids. This (Large Paeket) packet will sow 20 to 26 feet ONION, White Pickling (Large of row. Packet) Sendið áskriftargjald yðar í dag (Notið þennan seðil) To THE COLUMBIA PRESS, LIMITED, Winnipeg, Man. Sendi hér með $.........sem ( ) ára áskriftar- gjald fyrir “Lögberg.” Sendið póst fritt söfnin Nos.: Nafn ................................................. Heimilisfang .................................^....... Fyllri ............................................... -4-

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.