Lögberg - 27.10.1938, Page 3
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 27. OKTÓBER, 1938
3
öölast víðari sjónhring og frjáls-
mannlegra og alj?jóðlegra yfirbragð,
án þess að j>ær j>urfi að fyrirgera
noKKru at pjoðareinkennum sinum.
A síðustu áratugum hefir Norð-
mönnum farið stórkostlega fram á
ílestum sviðum, þrátt fyrir hina
erfiðustu aðstööu. Og eftirtektar-
vert er, að um leið og þetta gerist,
hljóðnar í j>eim j>jóðargorgeirinn,
sem lýtti j>á svo mjög áður. Ef-
laust á samneytið við ferðamennina
sinn j>átt í j>essu nýja heimsborgara-
sniði.
LÆRA AÐ TAKA TILLIT
Hér erum við íslendingar ennj>á
eftirbátar. En við verðum líka að
læra að nota j>að tilefni, sem aukið
samneyti við útlönd gefur, hrista
af okkur skeytingarleysið og drasl-
arabraginn, og læra að hafa hemil
á ýmis konar opinberri óreglu, sem
er öllum til minkunnar.
Sá sannleikur, að sönn siðfágun
sé seinlærð, er auðvitað ekki hug-
hreystandi. En j>ess er að gæta,
að j>að býst enginn við að hitta hér
fyrir neitt háinark í þeim efnum, og
svo er altaf gert ráð fyrir, að hver
j>jóð hafi sína eigin siði, sem út-
lendingar dirfast ekki að fetta fing-
ur út i. — En undir allri umgengn-
islist um allan heim liggur j>ó einn
og sami grundvöllur, sem allir geta
dæmt um — og hann er sá, að
taka tillit. — Sá, sem hefir innrætt
sér þetta frumatriði, er j>egar kom-
inn vel áleiðis á siðfágunarbraut-
inni.—
—Samtíðin.
Frá bœndaánauð
til Bellahöj
Tvennir eru tímarnir! mega
danskir bændur segja. Fyrir 150
árum voru j>eir j>rautkúgaðir og ó-
frjálsir aumingjar—i dag er danska
bændastéttin fyrirmyncj allra heims-
ins bænda og rekur landbúnaðinn á
fullkomnari hátt en nokkur önnur
j>jóð og Danmörk er eitt jmautrækt-
aðasta landið í veröldinni.
Það er því ekki að ófyrirsynju,
að danskir bændur mintust þess nú
í sumar, að 150 ár voru liðin síðan
þeir urðu nokkurnveginn frjálsir
inenn, þó að vitanlega væri frelsið
fremur í orði en á borði fyrstu árin.
En árið 1788 var hinn illræmdi átt-
hagafjötur afnuminn — það frelsis-
boð rak svo að segja afnám hinnar
algerðu verzlunareinokunar á Is-
landi. Og í einokunarákvæðunum
hafði það verið eitt, um skeið, að
menn máttu ekki verzla nema í á-
kveðnum stað. En þeir máttu þó
flytja búferlum. Danskt bændafólk
var það ver sett, að það mátti ekki
flytja búferlum — það varð að hýr-
ast þar sem það var komið. Bænd-
ur og bændasynir voru því í raun
réttri ánauðugir þrælar.
Bændaánauðin hvíldi eins og mara
á dönskum bændum í 55 ár, frá
1733 til 1788. Uppruna hennar má
rekja til herskylduákvæðanna í land-
inu. Með tilskipun frá árinu 1701
hafði lénsgreifum og óðalsherrum
verið fyrirskipað að hafa jafnan til
taks ákveðinn fjölda vopnfærra
ihanna, ef konungurinn þyrfti á að
halda til hernaðar. Þetta notuðu
óðalsherrarnir sér svo til þess, að
banna landsetum sínum að flytja á
burt af jörðunum og kváðust að öðr-
um kosti ekki geta haft vissu fyrir,
að nægilegir hermenn væru fyrir
hendi í þeirra umdæmi. Var )>etta
vitanlega algerlega ólöglegt. En
lénsherrunum tókst að fá konung-
inn til að staðfesta þetta. Kristján
konungur VI. eudurreisti landher-
inn með tilskipun 1733, er verið
hafði afnuminn þremur árum áður
og nú urðu það lénsherrarnir, sem
fengu hin eiginlegu herskylduvöld i
hendur. Þeim var í sjálfsvald set't
að gera livaða menn í umdæmi sínu
sem þeir vildu herskylda, á aldrin-
um 14—36 ára og samkvæmt þessum
lögum var hverjum bónda eða vinnu-
manni, sem var á herskylduskrá,
bannað að flytja á burt úr umdæm-
inu. Árið 1741 var aldurstakmark-
ið lengt, svo að nú voru allir átt-
hagafjötraðir á aldrinum 9 til 40
EF ÞÉR KENNIÐ MAGNLEYSJS
NOTiÐ NUGA-TONE
pau hin ýmsu eituretni, er setjast að
í likamanum og frá meltingarleysi staía,
verða að rýma sæti, er NUGA-TONK
kemur til sögunnar; gildir þetta einnig
um höfuðverk, o. s. frv.
NUGA-TONii vísar óhollum efnum á
dyr, enda eiga miljónir manna og
kvenna þvl heiisu sína að þakka.
Notið UGA-SOL við stýflu. petta
úrvals hægðalyf. 50c.
ára og 1764 komust drengir undir
átthagaf jöturinn fjögra ára.
Gallarnir á þessu skipulági komu
bráðlega í ljós. Fýrst og fremst
var það í fylsta máta ómannúðlegt
og í rauninni einskonar þrælahald.
Og í öðru lagi beittu margir óðals-
herrar þessa fjötruðu þegna sína
hinni mestu harðneskju, — þeir
vissu sem var, að þeir gátu ekki
hlaupið úr vistinni, hversu illa sem
með þá var farið. Og nærri má
geta hver áhrif þessi ánauð hefir
haft á bændurna sjálfa. Þeir mistu
allan hug til viðreisnar, þeir vissu
að þeir gátu aldrei eignast neitt og
að þeir voru ekki annað en vinnu-
dýr. Þeíta mikla þjóðfélagsmein
varð þess og valdandi, að öllum
landbúhaði hnignaði stórum og alt
gekk á tréfótum. Bændaánauðin er
eitt ömurlegasta hnignunarskeiðið i
sögu Danmerkur.
Frjálslyndir menn kváðu upp úr
um þessa óhæfu en þó hefði tæp-
lega verið tekið mark á orðum
þeirra, ef aðrir hefðu ekki einnig
■séð, að alt var að sigla í strand.
Og árið 1788, hinn 20. júní voru
átthagafjötrarnir loks afnumdir og
nýtt tímabil hefst í sögu Dana, Þá
var Christian VII. konungur í Dan-
mörku, en eins og kunnugt er, var
hann athafnalitill og á stundum ekki
með öllum mjalla, en hinn ágæti
stjórnmálamaður A. P. Bernsdorf
réð mestu í landi'nu; var það víð-
sýnn maður og næsta frjálslyndur
og næstu árin eftir afnám baénda-
ánauðarinnar var margt gert til þess
að rétta danska landbúnaðinn við.
En sú viðreisn fór hægt. Á fyrri
hluta síðustu aldar urðu ekki veru-
legar framfarir í landbúnaðinum
danska. Það er fyrst eftir stríðið
við Þjóðverja 1864 og missi hertoga-
dæmanna að bændastéttin danska
hefst til vegs, fyrir hina stórmerku
forgöngu Tietgens, Dalgas og ann-
ara ágætismanna. Þá kvað við kjör-
orðið: “Það sem út á við tapaðist
skal endurheimt inn á við.” Sam-
vinnan í landbúnaði, sem' danskir
bændur voru höfundar að, kemst
nú á fót og eflist, og búnaðarháttun-
um er gerbreytt. Áður hafði verið
lögð allmikil áherzla á kornrækt. Nú
var horfið frá henni því að kornið
danska stóðst ekki samkepni við
rússneska kornið, og öll á'herzla lögð
á framleiðslu mjólkur og kjöts.
Samvinnumjólkurbúin unnu smjör
og osta úr mjólkinni og vönduðu
afurðirnar svo, að þær fengu vissan
markað í Englandi og Þýzkalandi.
Og samvinnusláturhúsin tóku við
svínunum> og nautunum og gerðu
útflutningsvöru úr ketinu. Eggja-
samlögin tóku við eggjunum og
komu þeim á markaðinn. Danskar
landbúnaðarafurðir hlutu heims-
frægð og afkomendur ánauðugu
bændanna voru orðnir fyrirmyndar
btendur, sem ráku búskapinn á
strangvísindalegum g r u n d v e 11 i,
bættu bústofninn og jarðirnar og
hagnýttu alt svo sem frekast var
unt.
Það var þessi framför, sem sýnd
var á landbúnaðarsýningunni á
Bellahöj við Kaupmannahöfn í júlí.
Bellahöj er litill búgarður við Bispe-
bjerg, í útjaðri Kaupmannahafnar
og þann stað valdi landbúnaðarráðið
sýningunni, því að þangað komast
Kaupmannahafnarbúar með spor-
vagninum fyrir fáeina aura og þar
var nóg landrými til þess að koma
öllu fyrir án þess að þröngt yrði.
Því að nóg varð að hafa rúmið og
veitti þó ekki af, því að suma dag-
ana komu hátt á annað hundrað
þúsund manns á sýninguna. En þá
tíu daga sem hún var opin komu
þangað nær ein miljón manna og er
það mesta aðsókn, sem verið 'hefir
að nokkurri sýningu i Kaupmanna-
höfn fyr og síðar, enda fór svo,
að allur hinn mikli kostnaður við
undirbúninginn fékst endurgoldinn
og meira en það, svo að ekki þurfti
að grípa til tryggingarf jár þess, sem
handbært var. Gestirnir borguðu
sýninguna sjálfir. Stóð sýningin
tíu daga og hófst 17. júní en var
opnuð formlega 18. júní.
Þarna var fyrst og fremst gripa-
sýning og mátti sjá þar öll helztu
verðlaunadýr þjóðarinnar frá síð-
ustu árum, naut og kýr, hesta, svín
og alifugla. Tvö naut vöktu mesta
athygli allra gripa á sýningunni og
heita þau “Höjager Nakke” og “Dan
Höjager.” Hið siðasta fékk heið-
ursverðlaun, konungsins. Sérstök
sýning var á mjólkurbúi, slátrunar-
húsi og öllum áhöldum til búskapar,
sem nöfnurn tjáir að nefna. “Himm-
erlands Eg” heitir kynbótahesturinn,
sem fékk verðlaun konungs. Þótti
það einn skemtilegasti þáttur sýn-
ingarinnar, er allir hestar og naut-
gripir sýningarinnar voru leiddir í
‘skúðfylkingu” fram hjá konungi
og eiga slíkar skrúðgöngur dýpri
rætur í þjóðinni en hermannaskrúí-
göngur.
Vitanlega var séð fyrir skemtun-
um á sýningunni. Þar voru alls-
konar tæki til skemtunar og daglega
einhverjar samkomur, en mest kvað
þó í þessu tilliti að útileikhúsi, þar
sem sýnt var á kvöldin leikrit er
samið hafði verið fyrir tækifærið,
um afnám átthagaf jötursins—“Ske
Bonden hans Ret” hét það. — Hafði
leikarinn Svend Methling forstöðu
leiksins. Þarna voru og daglega
hljómleikar, ræðuhöld, danssýningar
og allskonar sögulegar sýningar. Og
landbúnaðarþing var haldið í sam-
bandi við sýninguna. Útvarpshlust-
endur fóru heldur ekki varhluta af
þessu merkisafmæli í sögu bænda-
stéttarinnar, því að svo mátti heita
að ekki væri hægt að stilla útvarps-
tæki á danska stöð allan júnímánuð,
að ekki væri á dagskrá eitthvað í
sambandi við afmælið.
Það má nærri geta að mann-
kvæmt var i höfuðstaðnum sýningar.
dagana. Bæði var fjöldi útlendinga
staddur í borginni og þó einkuin
gestkvæmt af hálfu bænda utan af
landsbygðinni. Tugir þúsunda af
fólki lágu í tjöldum á stöðum þeim,
sem tilteknir höfðu verið til tjald-
stæða og höfðu margir komið í bif-
reiðum sínum, svo að bifreiðarnar
kringum sýningarsvæðið skiftu tug-
um þúsunda. En Hafnarbúar not-
uðu sporvganana svo ósleitilega, að
tekjur sporvagnafélagsins urðu um
þriðjungi meiri þessa tiu daga en
sömu tíu daga í fyrra.
Til dæmis um mergðina á sýn-
ingunni má geta þess, að ekki leið
nokkur dagur svo, að fólk týndi
ekki börnum sínum á sýningunni.—
Stöðvar lögreglunnar og björgunar-
félaganna höfðu nóg að gera að
hirða vanskilabörn og auglýsa þau
undir “Tapað — fundið” í sýning-
arútvarpinu. Og eftir síðasta sýn-
ingardaginn voru lögreglumenn önn-
um kafnir við það alla nóttina að
koma krökkunum heim til sin. For-
eldrarnir voru í fasta svefni og settu
ekki fyrir sig þó börnin týndust —
þau vissu, að lögreglan mundi koma
þeim til skila.
Það var bezta veður flesta sýn-
ingardagana og jók það vitanlega á
aðsóknina. En annars hafði sýn-
ingin verið auglýst rækilegar fyrir-
fram en flestar innanlandssýningar
og það réð auðvitað mestu. Máttur
auglýsingarinnar er mikill.
—Fálkinn.
Danskur greifi
við íslenzkunám
Knuth Knuthenborg lénsgreifi
kom hingað til landsins í fyrrasumar
ásamt fjölskyldu sinni. Hann fór
í land á Austfjörðum og landveg í
bíl hingað. Þetta var í fyrsta skifti
sem hann kom hingað.
Hann kom svo aftur einn síns liðs
í ágúst og fór í gær, eftir iýú
mánaðar dvöl hér. Lengstaf var
hann hér í Reykjavík. En um rétt
irnar fór hann austur í sveitir til
þess að kynnast sauðfé og f jall-
skilum.
Knuth greifi er maður á fertugs
aldri, myndarlegur að vallarsýn og
hinn viðfeldnasti. Erindi hans
hingað að þessu sinni var að læra
íslenzku. Fékk hann sér kenslu í
málinu strax og hann kom og stund-
aði námið af kappi. Hann les nú
blöð svo að hann fylgist með öllu
því helzta sem ‘hér er skrifað.
Þegar eg hér um daginn inti hann
eftir því, hvernig á því stæði, að
hann legði á sig svo mikla fyrirhöfn
við að nema íslenzku, sagði hann að
hann teldi það vera þátt í almennri
mentun Norðurlandabúa, að skilja
íslenzku. Ef samvinna Norður-
landaþjóða yrði í framtíðinni meira
en að nafninu til, þá þyrftu þjóð-
irnar að hafa eitt af Norðurlanda-
málunum sem sitt sameiginlega mál
í hinu opinbera lífi. Og til þess
væri íslenzkan bezt, þvi hún væri hin
upprunalega tunga þessara þjóða.
Hann kvaðst helzt hafa kosið að
hann hefði getað verið hér lengur.
En sem eðlilegt er, er erfitt fyrir
THE BUSINESS OF PRINTING
IS-
O carry your message into the liighways and
and developing trade for those who use its
purposes.
byways creating sales
powers for publicity
We suggest that you make us your printer and become enthusiastic with
us in the quality of the printing you need■
695 Sargent Ave. Winnipeg Phone 86327-8
Business and Professional Cards
DR. B. J. BRANDSON DR. B. H.OLSON
216-220 Medical Arts Bldg. Phonesf 35 076
Cor. Grahani og Kennedy Sts. 906 047
Phone 21 834—Office tímar 3-4.30 Corisultation by Appointment
Heimili: 214 WAVERLEY ST. Oniy
Phone 403 288 Heimili: 5 ST. JAMES PLACK
Winnipeg, Manitoba Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK Sérfrœöingur I eyrna, augua, nef og hálssjúkdðmum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 tll 5 Skrifstofuslmi — 22 2 51 Heimili — 401 991 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy 8t«. Phone 22 856 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
Dr. S. J. Johannesson 272 HOME ST. STE. 4 THELMA APTS. á fyrsta gðlfi Talsíml 30 877 Viðtalstími 3—5 e. h. DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth 8t. PHONE 26 545 WINNIPEO
H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfræöincrur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage -Ave. P.O. Box 16 56 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœöingur 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 94 668
LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Undal, K.C., A. Buhr Bjöm Stefánsson Telephone 97 621 Offices: 325 MAIN STREET Arlington Pharmacy Sórfræðingar í lyfjaforskriftum 796 SARGENT AVE. vlð Arllngton SlMI 35 550 Finnl oss t sambandi við lyf, vindlinga, brjðstsykur 0. fl.
PRESCRIPTIONS FILLED CARIJFULLY GOODMAN DRUGS Cor. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð tJ öllu tægi. PHONE 94 221
A.S. BARDAL 84 8 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonai minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími: 86 607 Heimilis talsimi: 501 56 2 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEO pægilegur og rólegur bústaöur 4 miöbiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yflr; m«B baðklefa $3.00 og þar yfir. Agætar máittðir 40c—60c Free Parking for Guests
hann að vera lengi í burtu í einu.
Hann rekur mikinn búskap á
greiðasetrinu Knuthenborg á Lág-
landi, er auk þess formaður fyrir
Búnaðarfélagi Láglands og Falsturs,
en í því eru um 5,000 bændur. Fleiri
opinberum störfum gegnir hann.
Áður en hann fór, hafði blaðið
tal af honum, og barst ýmislegt í tal
um danskan landbúnað. Skýrði
hann m. a. frá á þessa leið:
“De samvirkende Lolland-Falst-
erske Landbrugsforeninger,” sem
eg er formaður fyrir, eru deild úr
allsherjar félagsskap bænda. Verk-
svið félaga þessara í Danmörku er
fyrst og fremst að annast leiðbein-
ingarstarfsemi. Við höfum eina
fióra ráðunauta, í bújfárrækt, í al-
mennri jarðrækt, í grasrækt sérstak-
lega og í búreikingum.
Félögin annast m. a. um árlegar
búf jársýningar og sýninghr á mjólk-
urafurðum o. fl. afurðum1 búnaðar-
ins. Hinar árlegu búfjársýningar
eru alveg nauðsynlegur liður í kyn-
bótastarfinu, þar sem undaneldis-
dýr eru verðlaunuð bæði með tilliti
til útlits og líkamsbyggingar, svo og
með tilliti til þess hve afkvæmi
þeirra reynast vel.
Búfjárræktinni, og þá einkum
nautgriparæktinni, fleygir fram hjá
okkur, enda eru nú 70% bænda í
eftirlitsfélögum, þar sem haldnar
eru nákvæmar mjólkurskýrslur.
Bændum, sem halda þær skýrslur,
hefir fjölgað mikið síðustu tvö árin.
Hvaða verð fáið þið fyrir mjólk-
ina?
\ ið fáum þetta nálægt ellefu aur-
um fyrir lítrann.
Og útsöluverðið í bæjunum—?
Er um 30 aurar. Það er mikill
munur, enda er mikið um það rætt,
að fá þann mismun minkaðan. En
það hefir ekki tekist ennþá.
Hvað mðiar kynbótum í nytja-
jurtum ykkar?
Við höfum ágæta tilraunastöð í
Abed á Láglandi. Forstjórinn þar,
Westergaard, aldraður maður, er
mikill frömuður í kornrækt. Hann
hefir bætt mjög bygg það, sem við
ræktum, enda er það nú orðið svo
gott, að við getum selt það víða um
lönd. Við seljum bygg til ölgerða
til ýtnsra þjóða, og til whisky-gerð-
ar til Skotlands.
Hverjar eru nýjungar í mjólkur-
iðnaðinum ?
Sú helzta, að nú komum við
nokkru af undanrennunni í verð,
með því að selja ostefni til ítalíu.
Þar er það notað í hina nýju klæða-
gerð úr mjólk.
Annars erum við farnir að vinna
að því hin siðari ár, að afla okkur
nýrra markaða fyrir ýmsar land-
búnaðarafurðir okkar með því að
sjóða þær niður og senda þær til
hitabeltislanda. Er von um að sala
þangað geti aukist mikið.
Þið haldið altaf hinum góða
markaði í Englandi fyrir svína-
kjötið? \
Já, en hann er nú miklum tak-
mörkum háður, þar sem menn aðeins
geta fengið enska verðið fyrir þau
svín, sem menn hafa sérstök leyfis-
kort fyrir að selja á þann markað.
Alt sem framleitt er af svínakjöti
umfram hið ákveðna magn, sem
Englendingar kaupa, er selt við
mjög lágu verði.
Það hefir heyrst að þér hefðuð
afskifti af stjórnmálum. Hvar í
flokki standið þér?
Þegar eg er hér á íslandi, tala
eg helzt ekki um stjórnmál. Skilst
mér að sú stefna, sem eg fylgi, hafi
hér ekki mikinn byr. Eg er í flokki
Nationalsósíalista. Sá flokkur fékk
við síðustu þingkosningar 16,000
atkvæði, og hafði því atkvæðamagn
sem svaraði til tveggja þingsæta.
—Morgunbl. 4. okt.