Lögberg - 02.01.1939, Blaðsíða 1
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. JANÚAR 1939
NÚMER 1
Verið samtaka,
Islendingar
Eins og gjörÖ var grein fyrir
nieð “Áskorun til íslendinga
vestanhafs,’* er birt var í ís-
lenzku blööunum 15. des. síðastl.
var ákveðið að fara af stað með
almenna fjársöfnun til þess að
kosta afsteypu, í eir, af Eeifs
Einrikssonar líkaninu fræga, er
Bandarikjaþjóðin gaf Islandi
1930, til að prýða með framhlið
og til að vekja eftirtekt, á Is-
lands skálanum á heimssýning-
unni í New York á komandi
sumri.
Það er eftir ósk Sýningarráðs-
ins íslenzka, til Þjóðræknisfélags
íslendinga í Vesturheimi, að hér
skyldi skipuð nefnd til samvinnu
við Sýningarráðið, til þess að
aðstoða það við að gjöra ís-
lands sýninguna sem sérstæðasta
og eftirtektarverðasta á vett-
vangi þjóðasýninganna. Að
skreyta og skruma, sýningarskál-
ann sjálfan, umi það gat Is-
land ekki kept við aðrar þjóðir,
enda engin löngun til þess. En
hitt var, að láta skálann, hið
ytra og innra benda á hið mikla
framlag þjóðarinnar til þekking-
ar og sögulegra vísinda, fram
yfir það sem flestar aðrar þjóðir
höfðu að sýna, það gat komið til
mála, og að þvi ráði var horfið.
Því var það, að allir féllust á þá
skoðun, að utan veggja yrði
þessu takmarki á engan hátt
betur náð, en með þvi að reisa
afsteypu af þessu fræga minnis-
merki, utanbúðar, með áletran
þeirri er því fylgir, hinni sögu-
legu viðurkenningu Sambands-
þings Bandaríkjanna, fyrir Vín-
lands fundi Leifs Eiríkssonar. Á-
letranin er þessi:
“Leifr Eiricsson, a son of
Iceland, discoverer of Vinland
in 1000; presented in 1930 by
the United States Congress to
Iceland on the occasion of its
Millennial Celebration of the
founding of Althing.”
Nefnin var skipuð. Áður var
Sýningarráðið búið að útnefna
þrjá menn sér til aðstoðar, þá
Guðmund dómara Grímsson,
Dr. Viíhjálm Stefánsson og séra
Rögnv. Pétursson. Til viðbót-
ar voru nú kosnir Dr. B. J.
B.randsson, Gunnar B. Björns-
son, fyrverandi skattstjóri
Minnesotaríkis, Árni Eggertsson
og A. P. Jóhannsson.
Það var að tilhlutan og með
samþykki þessarar “Aðstoðar-
nefndar,” að ofannefnd “Áskor-
un” var samin og birt. Sýningar-
ráðið íslenzka óskar ekki eftir
neinum f járhagslegum stuðningi
öðrum en þessum, en á því ríður
Islandssýningunni mikið að þessu
takmarki verði náð. Að sýning-
unni lokinni verður myndinni
komið fyrir á hium virðulegasta
stað, íslandi til ævarandi kynn-
ingar hér í álfu. En slíkrar
kynningar þarfnast íslenzka
Paul Bardal
Mr. Bardal hefir verið endur-
kosinn vara-borgarstjóri i Win-
nipeg; hann hefir jafnframt
verið kjörinn formaður heil-
brigðismálanef ndar.
þjóðin, sem nú er að leita sér
'tnarkaðs og viðskiftasambands
við Bandaríkin og Canada.
Samskotin eru hafin.
Á öðrum stað er birt gjafa-
skrá, $349.00.
Söfnuninni þarf að hraða!
Gefið eftir beztu getu. Gefið
stórt eða smátt. Engin upphæð
of stór eða of lítil. Verið sam-
taka um þetta mál!
Bregðist ekki yðar garnla föð-
urlandi!
Affstoðarnefndin.
ÁTAKANLEG
IIARMSAGA
Raunir jarðarbarna eru ekki
allar á einn veg, og þær senda
heldur ekki ávalt aðvörunarboð
á undan sér; meðan jólahelgin
enn breiddi friðarvængi sína
yfir þúsundir heimila í þess-
ari borg, drap eldvængjuð sorg
fyrirvaralaust á dyr hamingju-
samrar fjölskyldu á Queens
stræti vestur í St. James og
heimti þar hinn þyngsta skatt,
sem unt er að inna af hendi; í
bálviðrishörku jöfnuðu hamstola
eldtungur hið vingjarnlega heim-
kynni við jörðu og breyttu i
minningaduft húsmóðurinni og
fjórum ungum börnum hjón-
anna; því yngsta hálfs þriðja
árs. Eldur kom upp i húsinu
laust eftir klukkan hálf ellefu á
fimtudagskveldið þann 29. des-
ember síðastliðinn, er fjölskyld-
an hafði fyrir skömmu tekið á
sig náðir; varð húsið alelda á
fáum minútum. Heimilisfaðir-
inn, Mr. Leslie Robson, skað-
brendur, bjargaðist nauðlega af
og liggur þungt haldinn á
sjúkrahúsi; elzti sonurinn þrettán
ára gamall, var sá eini af fjöl-
skyldunni, er óskaddaður komst
af.
Fyrir atbeina blaðsins Winni-
,>eg Tribune hafa samskot verið
Iiafin til styrktar feðgunum
raunmæddu, sem eftir lifa.
MARCUS HYMAN
LÁTINN
Á aðfaranótt síðastliðins laug-
ardags lézt á Almenna sjúkra-
húsinu hér í borginni Mr.
Marcus Hyman, K.C., einn af
þingmönnum hins óháða verka-
mannaflokks í Manitobaþinginu
fyrir Winnipegborg; hann var
freklega 56 ára að aldri, frá-
bærlega víðmentur maður og
mælskur vel. Mr. Hyman var
af rússneskri Gyðingaætt; hann
lauk lagaprófi við Oxford há-
skólann en fór því næst til Ind-
lands 1907 og dvaldi þar í þrjú
ár; hann kom til Manitoba 1913
og tók þegar að gefa sig við
málaflutningi; um nokkurt skeið
flutti hann fyrirlestra um lög-
vísi við Manitobaháskólann, en
víðtækust voru þó áhrif hans
innan vébanda hins óháða verka-
mannaflokks, bæði á þingi og
utan þings.—Útför Mr. Hymans
fór fram á mánudaginn þann 2.
þ. m., að viðstöddu miklu fjöl-
menni úr öllum stéttum bæjar-
félagsins.
RJARTSÝNN A
FRAMTIÐINA
I nýárskveðju sinni til cana-
disku þjóðarinnar lætur fjármála
ráðgjafi sambadsstjórnarinnar,
Hon. Charles Dunning þá skoð-
un sína í ljós, að gild ástæða sé
til þess að líta björtum augum
á framtíðina; að flest bendi til
að hið nýbyrjaða ár verði at-
hafnaríkara og affarasælla en
árið á undan; þetta álit sitt
byggir Mr. Dunning meðal ann-
ars á því, hve mjög sé nú tekið
að birta yfir viðskiftalífinu hjá
Bandaríkja þjóðinni og hún sé
ein vor allra notadrýgsti við-
skiftavinur; fullyrðir hann að
hinir nýju viðskiftasamningar
við Bandaríkin myndu reynast
canadisku þjóðinni til marghátt-
aðra hagsmuna.
LITUR YFIR LANGA
ÆFI
Uppgjafarakari einn í London
hélt nýverið hátíðlegan hundrað-
asta afmælisdag sinn, .og nýtur
enn beztu heilsu; hann lét af
starfi á vopahlésdaginn 1918 og
stóð þá rétt á áttræðu; seytján
ára að aldri tók öldungur þessi
að reka rakaraiðn fyrir eigin
reikning og hélt áfram daglegu
starfi í sömu rakarastofunni þar
til hann dró sig í hlé áminstan
dag; ekki kvaðst hann vita til
þess að sér hefði nokkuru sinni
orðið misdægurt; allmarga af
frægustu stjómmálamönnum
Breta kvaðst hann hafa skafið
um kjálkana og skifst á við þá
orðum oftar en einu sinni, svo
að segja um flesta hluti milli
himins og jarðar.
Stofna með sér lögfræðingafélag
Arni G. Pggertson, K.C.
Þeir Árni G. Eggertson, K.C.
og G. S. Thorvaldsson, hafa
stofnað með sér lögfræðingafé-
lag hér í borginni og fylgja holl-
spár Vestur-Islendinga fyrirtæki
þeirra úr hlaði. Mr. Eggert-
son hefir um langt skeið stund-
að málafærslustörf í Wynyard,
Sask., en Mr. Thorvaldsson í
þessari borg; eru þeir báðir mik-
ilsmetnir lögmenn og njóta í
hvívetna almennra vinsælda.
Mr. Eggertson er fæddur í
Winnipeg, sonur atorkumanns-
ins víðkunna Árna Eggertsonar
fasteignasala og fyrri konu hans,
Oddnýjar, sem látin er fyrir all-
mörgum árum. Skólameutun
sína hlaut Árni lögfræðingur i
Winnipeg og útskrifaðist í lög-
um af háskóla Manitobafylkis
árið 1921 með ágætum vitnis-
burði; hann er áhrifamikill fé-
lagsmaður og hefir látið rnikið
til sín taka innan vébanda Liberal
flokksins. Kona Árna er Maja,
dóttir þeirra Mr. og Mrs. Grim-
ur Laxdal og eiga þau þrjú
börn.
Árni heldur jafnframt áfram
lögmannsstarfi í Wynyard, og
verður þar að hitta seinustu viku
hvers mánaðar. Bróðir hans E.
Ragnar Eggertson veitir skrif-
stofu hans þar vestra forustu.
Mr. G. S. Thorvaldsson er
fæddur i Riverton, sonur Sveins
kaupmanns Thorvaldson, M.B.É.,
fyrrum þingmanns Gimli kjör-
dæmis og Margrétar fyrri konu
hans; hann lauk stúdentsprófi
við háskólann í Saskatoon, en
útskrifaðist í lögum með ágæt'-
um vitnisburði af háskóla Mani-
tobafylkis árið 1925 og hefir
stundað málafærslu í Winnipeg
jafnan síðan. Mr. Thorvaldson
er vinsæll maður og hefir getið
sér góðan orðstír sem lögmaður;
hann er einn af meiri háttar á-
hrif amönnum Conservative
flokksins og sérlega vd máli
farinn. Mr. Thorvaldson er
kvæntur konu af skozkum ættum
og eiga þau þrjú börn.
Til Guttorms J.
Guttormssonar
skálds
við brottför hans frá landinu
12. september 1938.
Þið hafið gist oss þrjú að vestan.
Þið voruð beztu lands vors gestir.
Sjást nú glögg um landið liggja
ljósbönd hvar sem þið hafið farið.
Vinamundir, hugir, hendur
hafa þar mætzt við fundi glæsta,
hrifnir andar heitum bundist;
heitorð slik mun enginn svíkja.
Þið hafið hjartans strengi snortið
snild og krafti, glóð og mildi;
löndin tengt með orku andans,
íslands mjöll við Klettafjöllin.
Kveðjur ástar ykkur berast
yfir á fjærstu landamæri.
Minning heið skal helguð
þrenning
hjartfólgnustu gesta—að vestan.
Ingibjórg Benediktsdóttir.
—Nýtt Land, 16. sept. 1938.
FUNDUR NORRÆ.NNA
EMB7ETTISMANNA
Stefán Þorvarðsson skrifstofu-
stjóri kom heim með Goðafossi á
sunnudagskvöld.
Hann sat fund norrænna em-
bættismanna, sem haldinn var i
Helsingfors um miðjan nóvem-
ber. Fund þenna sátu embættis-
menn úr utanrikisráðuneytum
allra Norðurlanda.
Til umræðu á fundinum voru
viðskifti Norðurlanda við önn-
ur ríki og ýmislegt í* sambandi
við þau.
Stefán sat einnig nokkra fund:
í Osló með íslenzk-norsku samn-
inganefndinni.—Mbl. 8. des.
islenzkur salmur
Við jarðarför Maud drotn-
ingar sem fer fram á Akershus
á fimtudaginn kemur, verður
meðal annars sunginn sálmur
Hallgríms Péturssonar: “ A1
eins og blómstrið eina,” i
danskri þýðingu.—Mbl. 8. des
t