Lögberg - 23.03.1939, Blaðsíða 8
8____________LÖGBERG, FIMTUDAGINN -23. MARZ 1939
ÞAÐ ER
ENNÞA
BEZT
ÍB GoodAnytim«r
í 2-glasa
flösku
YFIRFRAKKAR
M£//?7 VÖRUGÆÐI FYRIR
PENINGA YÐAR
— hjá —
TESSLER BROS.
Mikið úrval af allskonar enskum
yfirfrökkum fyrir einungis .
Veljið nú þegar: Greiðið fyrstu afborgun
Yfirfrakkar til taks nært sem vera viU
326 DONALD STREET
Or borg og bygð
Mr. og Mrs. Gunnar Thomas-
son frá Hecla, voru stödd i borg-
inni um siðustu helgi.
♦ -f
Mr. Th. Thordarson kaup-
maður á Gimli var i borginni
síðastliðinn mánudag.
-f -f
Mr. Ólafur N. Kárdal, tenór-
söngvari frá Gimli hefir dvalið
í borginni nokkra undanfarna
daga.
-f -f
íslenzka deildin af Manitoba
Social Credit League heldur
fund næsta sunnudag kl. 2.30 að
heimili Hjálmars Gíslasonar, 753
McGee St. Allir S. Cr. sinnar
velkomnir.
-f -f
Mr. Sigfús Gillies, forstjóri
frá Vancouver, B.C., kom' til
borgarinnar á fimtudaginn, sunn-
an frá Brown, Man., þar sem
hann hafði dvalið um hríð hjá
skyldfólki sinu.
-f -f
SILVER TEA
Deildin No. 1, af kvenfélagi
Fyrsta lút. safnaðar, stendur
fyrir “Silver Tea and Home
Cooking” næsta mánudag, 27.
marz síðdegis og að kvöldinu á
heimili Mrs. J. K. Johnson, 352
McGee Stræti.
Konur þær, sem skeinkja kaff-
ið eru þessar: Mrs. R. Mac-
Keen og Mrs. W. J. Lindal (síð-
degis) ; Mrs. J. McCrae og Mrs.
K. Wí. Johannsson (að kvöld-
inu). Fólk er vinsamlega beðið
að fjölmenna. Allir eru vel-
komnir.
Mrs. Gunnl. Johannson.
Útsölumenn íslenzkra bóka ósk-
ast í öllum bygðum íslendinga
hér vestra. Þeir, sem sæu sér
fært að sinna þessu eru beðnir
að gefa sig sem fyrst fram og
semja við oss um sölulaun og
fleira.
Thorgeirson Company
674 SARGENT AVE.
WINNIPEG
íslenzku laugardágsskóli Þjóð-
ræknisfélagsins hefir ákveðið að
hafa hina árlegu barnasamkomu
laugardagskvöldið 22. apríl, n.k.,
í Fyrstu lútersku kirkjunni á
Victor St.; almenningur beðinn
að hafa það hugfast.
-f -f
Fræðslunefnd yngri þjóð-
ræknisdeildarinnar í Wynyard
heldur uppi námskeiði í íslenzku
í Wynyard. Kenslan fer fram
i Wynyard High School á hverj-
um þriðjudegi og föstudegi kl.
4 e. h.—Kennari er séra Jakob
Jónsson.—Allir velkomnir.—
-f -f
Þann 15. þ, m. lézt í Þing-
vallabygð í grend við Church-
bridge, bóndinn Sigurður Bjarna-
son, á sextugs aldri. Hann var
jarðsunginn í kirkjugarði Kon-
kordía safnaðar af presti safn-
aðarins, að viðstöddu fjölmenni.
Hann syrgja ekkja hans, sex
uppkomin börn, og þrjú systkini,
ásamt mörgum öðrum.
-f -f
Gefin saman í hjónaband þ.
18. marz s.l., voru þau Mr.
Robert Edward Steele Tomkins
og Miss Vigdís Jónína Swanson,
bæði til heimilis hér í borg. Fór
brúðkaup þeirra fram að heimili
föður brúðarinnar, Mr. O. S.
Swanson i Selkirk. Séra Jóhann
Bjarnason gfti. Á eftir hjóna-
vígslunni fór fram! rausnarlegt
samsæti, þar sem nánustu ætt-
ingjar og vinir brúðhjóna voru
samankomnir. Heimili ungu
hjónanna verður hér í borg, þar
sem Mr. Tomkins hefir stöðuga
atvinnu við allstóra verzlun ná-
lægt miðbiki borgarinnar.
Heklufundur á fimtudags-
kveldið kl. 8.
-f -f
Barnasöngssamkoma sú, er
fram fór í Fyrstu lútersku
kirkju síðastliðið föstudagskveld
var ágætlega sótt, og fór að
ýmsu hið bezta fram; sum lög-
in prýðilega sungin. Tvö lögin
voru eftir söngstjórann, Mr.
Ragnar H. Ragnar, bæði einkar
viðfeldin í þjóðlagastil. Skemti-
skrá var langt of löng, og börn-
unum þar af leiðandi að nokkru
leyti ofraun.
Messuboð
FYRSTA LOTERSKA
KIRKJA
Séra Valdimar J. Eylands prestur
Heimili; 776 Victor Street
Sími 29 017
Sunnudaginn 26. marz
Ensk messa að morgninum kl.
11; íslenzk guðsþjónusta kl. 7
að kveldi.
-f -f
HIN LOTERSKA KIRKJA
1 VATNABYGÐUNUM
Sunnudaginn 26. marz
Ensk messa að Leslie kl. 8 e. h.
Föstudaginn 24. marz
halda bæði ungmennafélögin frá
Kristnes og Westside sameigin-
legan skenitifund að Westside-
skóla kl. 8 e. h. Skemtikráin
verður mjög fjölbreytt.
Allir hjartanlega velkomnir.
Guðm. P. Johnson.
-f -f
GIMLI PRESTAKALL
26. marz — Betel, morgun-
messa; Gimli, íslenzk messa kl.
7 e. h.
2. apríl—Mikley, messa kl. 2
e. h. (ársfundur safnaðarins eft-
ir messu).
Sunnudagsskóli Gimli safnað-
ar kl. 1.30 hvern sunnudag.
Fermingarbörn á Gimli mæta
föstud., 24. marz, kl. 4 e. h., á
prestsheimilinu.
-f -f
VATNABYGÐIR
Sunnudaginn 26. marz
Kl. 11 f. h., sunnudagaskóli í
Wynyard; kl. 2 e. h., ensk
messa.—Sungið verður “Vesper
Hymns.”—
-f -f
Sunnudaginn 26. marz messar
séra H. Sigmar í Vídalínskirkju
kl. 2 e. h. Er fólkið i Vídalíns-
söfnuði beðið að veita þessu
eftirtekt.
Þér getið aukið eignir
yðar um $400
fyrir lOc á viku nær sem er milli
15 tij 30 ára aldurs. Vér höfum á-
ætlun, sem aö verðlagi er við yðar
hæfi. Munið að fáein cent á viku
tryggja fjölskyldu yðar.
Skrifið á íslcnzk'u ef þér viljið
MANITOBA MUTUATj BENEFIT
ASSOOIATION
504 Aventie Bldg., Winnipeg
Knm »1«
NCTICE!
For Sale by Tenders: One room sch’ool and 1 acre of
land, ý2 mile from Hnausa, Man., on lakshore, near
dock. Gravel road. Could be used for summer home.
Highest tender not necessarily accepted. Tenders received
up to April 20th, 1939.
..-H.
MRS. M. R. MAGNUSSON, Sec. Treas.
, Hnausa Man.
—1
DOMESTIC GROCERY
& CONFECTIONERY
689 SARGENT AVENUE
Relief Vouchers Accepted
♦ TGBACOO and CIGARETTES ♦
SUGAR, 10 lbs. - 59c
OGILVIE’S OATS llc
BUTTER, lb. - - 22c -
COFFEE, lb. - - 25c
LARD, lb. - 9c
MANY OTHER BARGAINS
Mr. Sóffonías Thorkelsson,
verksmiðjustjóri, lagði af stað
í gær vestur á Kyrrahafsströnd,
og mun verða um tveggja mán-
aða tima að heiman.
-f -f
Sigurður Guðmundson, einn
af hinum eldri bændum í grend
við Garðar lézt á heimili sínu
laugardaginn 11. marz. Hafði
hann verið mjög heilsutæpur
mörg siðari árin. Sigurður var
fæddur á Skálum á Langanesi
á íslandi 30. október 1854. Hann
giftist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Guðrúnu Hallgrímsdóttur
8. maí árið 1877. Þau komu til
Ameríku 1882 og til Garðar
1892, og bjuggu þar ávalt síðan.
Af níu börnum þeirra hjóna lifa
5, og eiga öll heimili í þessu um-
hverfi Sigurður var mætur
maður og vel látinn, starfsamur
duglegur og félagslyndur. Hafði
hann og fólk hans ávalt tekið
góðan þátt í félagslífi bygðar-
innar. Sigurður var jarðsung-
inn frá kirkju Garðarsafnaðar
og heimili sinu fimtudaginn 16.
marz. Séra H. Sigmar jarðsöng.
Konur gegna mörgum mis-
munandi störfum í Japan, en
þær fá að öllu jöfnu þrisvar
sinnum lægra kaup en karlmenn.
-f -f
Dönsk stúlka segir frá því, að
hún hafi bréfaskriftir við fjór-
ar ungar stúlkur erlendis. Ein
býr í Noregi, önnur í Sviss,
þriðja i Canada -og sú fjórða í
Suður-Ameríku. Það einkenni-
lega við frásögn hennar er það,
að allar stúlkurnar eru fæddar
sama dag, 6. febrúar 1920.
Frá Campbell
River, B.C.
(Framh. frá bls. 1)
land, sem þá er óselt til baka til
eigandans, og verður þá selt þeim
sem fyrst koma. Ekki er hægt
að fá hér keypt minna en eina
ekru, en það geta verið fleiri en
einn um kaup á einni ekru.
Landið á bak við ströndina er
mjög misjafnt, og er selt á $10
ekran, er ilt að komast þar að
ennþá, því það eru engar brautir
þangað inn, enn sem komið er.
Það er hægt að fá bygð hús
og eins að fá hreinsað land, ef
einhver vill.
S. Guðundson.
The Watch Shop
! Diamondg - Watches - Jewelrjr ]
Agents for BULOVA Watche.
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON * BALDWIN
Watchmakers A Jevoellrrt
699 SARGENT AVE., WPG.
HENRY’S BAKERY
702 SARGENT AVE.
flytur nú út til allra viðskifta-
vina sinna, rúgbrauð, tvíbökur,
kringlur og kökur af öllum teg-
undum. Brúðarkökur og af-
mæliskökur afgreiddar gegn
pöntunum.. Póstpantanir af-
greiddar fljótt og vel.
HENRY'S BAKERY
702 SARGENT AVE.
Sími 72 477
Minniál BETEL
í
erfðaskrám yðar
Wolseley Hotel
186 HIGGINS AVE.
(Beint á móti C.P.R. stöðinni)
StMI 91 079
Eina skandinaviska hóteiið
i borginni
RJCHAJl JJNDIIOI.M,
eigandi
ÞJÓÐRÆKNISFÉLA G
ISLENDINGA
Forseti: I)r. Rögnv. Pétursson,
45 Home Street.
Allir íslendingar i Ameriku ættu að
heyra til pjöðræknisfélaginu. Árs-
gjald (þar með fylgir Timarit fC—
lagsins) $1.00, er sendist fjármála-
ritara Guðm. Levy, 251 Furby
Street, Winnipeg.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðleg* um alt, «em *ð
flutningum lýtur, *máiim .0*
•törum. Hvergi *»nngjarn*ni
v.rfl
Heimili: 501 SHERBTTRN 8T
Stmi lf> »0»
Til þess að tryggja yðut
skjóta afgreiðslu
Sktiluö fAr Avalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Managar
•
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT & AGNES
COAL and COKE
per ton
DOMTNTON (Sask Lignite) Cobble ...$ 6.40
WESTERN GEM (Drumheller) Lump .... 11.75
WTLDFTRE (Drumheller) Lump ....... 11.75
FOOTH [LLS (Coalspur) Lump ....... 12.75
BIGHORN (Saunders Creek) Lump ..... 13.50
HEAT GLOW Carnonized Briquettes ... 12.25
POCAHONTAS, Nut ................... 14.00
WINNECO COKE, Stove or Nut ........ 14.00
ALGOMA COKE, Stove or Nut ........ 14.75
SEMET-SOTjVAY COKE, Stove or Nut.... 15.50
PHONES—23 811-23 812
McCURDY SUPPLY C0. LTD.
1034 ARLINGTON ST.