Lögberg - 11.05.1939, Qupperneq 1
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. MAl 1939
NUMER 19
Brezku konungshjónin
á ieið til Canada
Síðaistliðinn laugardag lögðn konungshjónin brezku
af stað frá Englandi með farþegjaskipinu Empress of
Australia í heimsókn sína til CanadaogBandaríkjanna;
var blíðviðri hið mesta, er ]>au létu í haf; en er vestur
kom í Atlanitsála tók allmjög að hvessa, og herma
daglegar ýtvarpsfréttir frá skipinu, að það hafi hrept
stórsjó með köflum. Konungur kemur til Quebec þann
15. ]). m. ásamt drotningu sinni og föróneyti. Forsætis-
ráðlierra Canada, Rt. Hon* W. L. Mackenzie King,
verður þar þá kominn til þess að fagna hinum tignu
gestum fyi'ir hönd hinnar canadisku þjóðar.
“Hinn mikli morgunn”
Eftir Guðmtmd Böðvarsson
Vér liöfum vakað, hlýtt á draumsins spá,
og hugað að því, samkvæmt þessum draumi,
hvort nokkurn minsta neista væri að sjá
í næturhafsins kynjadjúpa straumi.
Vér höfum vakað, lilýtt á vindsins þyt,
er hljóður ræddi leyndarmál við skuggann,
og þráð hinn feimna, föla morgunlit,
er færisit liægt um veðurbitna gluggann.
Ó, eins og dásemd væntum vér að sjá
á vetrarríkið steypa geislamagni
hinn fagra morgunn. — Fast vér trúðum á
hinn fræga konungsson í gmllnum vagni.
Svo kom hann, — hljóður, hóf upp þungar brár,
— vor hugarþrá var engún draumsýn lengur —
á fjallsins herðum sat hann, gegnum-grár
og gugginn, eins og berklaveikur drengur.
—Dvöl.
Vökumenn og
Vestur-lslendingar
Eitt þeirra merku mála, sem
Vökumenn hafa á stefnuskrá
sinni, er aÖ auka og streysta
sambandið milli íslendinga í
Vesturheimi og hér heima á ís-
landi.
I þessu máli hafa Vökumenn
nú gert stórt átak í samráSi við
áhrifamenn fyrir vestan hafið.
Vökumenn hafa beitt sér fyr-
n því að koma á víðtækum
hréfaskiftum milli æskufólks hér
heima og í Vesturheimi. Sneru
þeir sér aðalfega til skólanna í
landinu og leituðu þar stuðnings
°g samstarfs skólaæskunnar.
Þótt enn séu ekki komin svör
trá öllum þeim skólum, er Vöku-
'uenn leituðu til, þá hafa þegar
gefið sig fram yfir fimmi hundr-
uð ungir menn og konur, sem
vilja taka virkan þátt í því göf-
uga starfi, að tengja æskuna í
Vesturheimi við ættland hennar
°g frændur sina er það byggja.
Þessa starfsemi Vökumanna
'uá telja eitt hið tnerkasta, sem
gert hefir verið til þess að við-
halda þjóðernislegu sambandi við
landana fyrir vestan Atlantshaf-
'ð, og með því að tengja stóra
hópa æskumanna og kvenna
hynningar- og vináttuböndum, er
hygður traustur grunnur undir
varanlegt samband og samvinnu
milli þessara tveggja hópa is-
'enzku þjóðanna um langa fram-
bð.—Tíminn 13. april.
I>(')NSK
KrilK.JUVIGSLA
Eitthvað um þrjátiu og sjö
'uíltir í austur frá Winnipeg, þar
s«n Ostenfeld nefnist, er dálítil
dönsk nýbygð; ekki verður sagt
að þar iancj frjósamt, þó iðni
°8 atorka hinna dcinsku nýbyggja
hafi gert þaft næsta lífvænlegt;
enda una búendur þar vel sínum
hag
og hlynna þar kappsamlega
að sameiginlegum áhugamálum
sinutn; tuttugu og fimm dansk-
ar fjölskyldur búa á stöðvum
Pessum; sameinað átak þessa fá-
nenna mannfélags, hefir nýver-
ið komið sér upp kirkju og nýt-
ur fastrar prestsþjónustu. Sið-
astliðinn sunnudag var kirkja
hinna dönsku Ostenfeldbúa
formlega vígð með glæsilegri og
eftirminnilegri athöfn; fluttu
þar þrir danskir prestar ræður,
en konsúll Dana og Islendinga í
Manitoba, Mr. Grettir Leo Jó-
hannsson, flutti í embættisnafni
prýðilegt ávarp til prests og
safnaðar. Seinni part dags var
setin vegleg veizla í samkomu-
sal kirkjunnar; voru þar fram-
reiddar vistir margbrotnar af
hinni mestu risnu.
Auk Grettis konsúls og frúar
hans, voru viðstödd áminsta
kirkjuvígslu, ritstjóri Lögbergs
og frú sem gestir konsúlshjón-
ann^.—
Frá Íslandi
Torfi Sigurðsson í Mánaskál
í Laxárdal í Austur-Húnavatns-
sýslu skrifar blaðinu, að tíðarfar
hafi þar um slóðir verið óvenju-
lega milt í vetur, en nokkuð um-
hleypingasamt. Snjóalög voru
saimt töluverð og jarðbönn, vegna
áfreða. 1 marzmánuði tók snjó
mikið upp, en hinn fyrsta dag
einmánaðar gekk til norðanáttar
og fannkomu, er hélzt í nokkra
daga.
•f
Tíðindamaður Tímans hefir
nýlega átt tal við Klemenz Krist-
jánsson bústjóra að Sámsstöðum
i Fljótshlíð. Verður á morgun
byrjáð að sá korni í akrana á
Sámsstöðum, en allri sáningu á
að vera lokið um mánaðamótin.
Hafa tólf ára tilraunir Klem-
enzar sýnt, að ávalt er hentug-
asti öll ár, að sá korninu 20.
apríl til 1. maí. Að þessu sinni
verður korni sáð í 25 dagsláttur
lands. Er það fjórum dagslátt-
um rneira en venjulega og hafa
kornakrarnir á Sámsstöðum
aldréi fyr verið svo stórir Verð-
ur höfrum sáð i tæpan helming
sáðlandsins, 12 dagsláttur, en
byggi í hitt, aúk nokkurs af vor-
rúgi og tilraunakorni. — Gras-
frærækt verður stunduð á 8—9
dagsláttum lands, kartöflurækt
og tilraunir imieð kartöflur á aj/i
dagsláttu og í einni dagsláttu
verða ræktaðar fóðurrófur og
ýmsir aðrir rótarávextir, svo sem
gulrætur, gulrófur og fleira.
Fjórir piltar eru nú á Sámsstöð-
um til þess að nema akuryrkju.
Hafa jafnan verið þar hin seinni
ár 3—4 piltar til slíks náms á
hverju vori og sumri.
-f
Fyrir nokkru síðan ritaði ung-
ur íslendingur, Áskell Löwe, er
dvelur við nám við háskólann i
Lundi í Svíþjóð, grein í Sam-
vinnuna um soja-baunina og
möguleika á því að rækta hana
hér á landi. Að uppruna er
soja-baunin austurlenzk, en er
ræktuð víða um heim og mjög
gagnsömi jurt, vegna f jölnýtilegra
hráefna, er hún gefur til iðnað-
ar og neyzlu. í sumar verða
tilraunir gerðar með ræktun
soja-bauna að Laugarvatni, i um-
sjá Ragnars Ásgeirssonar garð-
yrkjuráðunauts. Hefir ræktun
þeirra aldrei áður verið reynd
svo norðarlega á hnettinum. Út-
sæðisbaunirnar eru fyrir noikkru
koinnar austur að Laugarvatni,
en þær útvegaði Askell Löwe
frá ættgengisstöðinni í Svalöf í
Svíþjóð, Verður því fyrsta sáð
i þessari viku, að nokkru í
laugajörð og að nokkru í kalda
jörð. Eru útsæðisbaunirnar af
allmörgum mismunandi afbrigð-
um, um 1-200 baunir af hverju
afbrigði. Sojabaunin spírar í
jörð, sem er um niu stiga heit,
en þolir hinsvegar nokkurra
stiga frost, þegar hún er komin
upp. Gera ýmsir sér þvi vonir
um að takast megi að rækta
hana í hlýrri hverajörð. Alt er
þó, eina og gefur að skilja, í ó-
vissu um slíka ræktun, þar sem
um fyrstu tilraun er að ræða.
Meðal annars þyldu mörg af-
brigði ekki hinn langa dag og
sífeldu birtu á vorin. í öllum
löndum Norðurálfunnar, .að Is-
landi og Noregi undanskildum,
hafa verið byrjaðar tilraunir með
ræktun sojabaunarinnar.
Tíminn hafði fregnir af því í
gær, að Vopnfirðingar hefðu á
sunnudagskvöldið haldið Gunnari
Gunnarssyni hreppstjóra á Ljóts-
stöðum og Guðrúnu dóttur hans
kveðjusamsæti í samkomuhúsinu
í Vopnafirði, en Gunnar er á
förum að Skriðuklaustri á
Fljótsdalshéraði, þar sem Gunn-
ar skáld, sonur hans, sezt að á
komandi vori. Sátu hófið um
150 manns. Var Gunnari gefinn
vandaður göngustafur, útskor-
inn. Gunnar eldri flytur ein-
hvern næstu daga að Skriðu-
klaustri, en Gunnar skáld kemur
sennilega heim í maímánuði.
♦
Aflahæsti bátur í Keflavík á
þessari vertíð er búinn að veiða
hátt á 10. hundrað skippund. Er
það m.b. Guðfinnur; skipstj. og
eigandi Guðmundur Guðfinns-
son. Flestir bátar hafa veitt
6—8 hundruð skp. Gera útgerð-
armenn sér vonir uim', að ekki
verði rekstrarhalli á þessari ver-
tíð.
-f
I Innri-Njarðvíkum eru nú í
smíðum tveir bátar og verður
byrjað á þeim þriðja næstu daga.
Bátar þeir, sem í smíðum eru,
eru 55—ý)Q smálestir, eign Sam-
vinnuútgerðarfélags Keflavíkur,
og 24 smálestir eign Sveinlaugs
Helgasonar á Seyðisfirði. Þriðja
bátinn lætur Þorbergur Guð-
nrundsson skipstjóri smíða. Yfir-
smiður við bátabyggingarnar er
Peter Wigelund. Hefir hann
áður smíðað yfir tuttugu fiski-
skip og hafa bátar þeir, sem
hann hefir smíðað, þótt bera af
öðrum skiputn um vandvirkni og
fegurð.
—Timinn 18. apríl.
Úr borg og bygð
Séra Egill H. Fáfnis kom
vestan frá Glenboro á þriðju-
daginn. 1 för með honum var
Mr. Kristján Bjarnason frá
Gimli.
-f -f
Á síðastliðinn miðvikudags-
morgun lézt að Lundar, Man.,
Skúli Torfason 85 ára að aldri;
hann fluttist vestur úr Vopna-
f jarðarkaupstað.
-f -f
Mánudaginn 3. maí, voru þau
Markús Markússon frá Hnausa,
Man. og Mary Materuk frá
Shorncliff, Man., gefin saman
í hjónaband af séra Rúnólfi
Marteinssyni, að 493 Lipton St.
Heimili þeirra verður að Hnausa.
-f -f
Hinn 7. mai s.l. voru gefin
saman i .hjónaband á prests-
heimilinu í Glenboro, Mr. Krist-
inn J. Abrahamson frá Sinclair,
Man. og Mrs. Halldóra Olson
einnig frá Sinclair, Man. Séra
E. H. Fáfnis framkvæmdi hjóna-
vígsluna.
-f -f
Safnaðarfundur Fyrstu lút-
ersku kirkju verður haldinn að
aflokinni sunnudags kvöldguðs-
þjónustu 21. maí, 1939. Fundur
þessi er kallaður til að kjósa
f jóra erindreka og tvo varamenn,
að mæta fyrir safnaðarins hönd
á ársþingi hins evangeliska lút-
erska kirkjufélags í Vesturheimi,
sem haldið verður að Hecla,
Mikley, 5. júní n.k.
-f -f
Karlakór íslendinga í WSnni-
peg heldur hljómleika að Moun-
tain 20. mai n.k. Eru nú liðin
um tvö ár síðan flokkurinn söng
þar síðast. Sömú lögin verða
sungin að Monutain og sungin
voru í Auditoriiun, en auk þess
verða einsöngvar og fleira til
skemtunar. Samkoma þessi
verður nánar auglýst í næsta
blaði. 4. 4.
Allmargir söfnuðir kirkjufé-
lagsins eiga enn eftir að senda
ársskýrslur sínar til skrifara
Kirkjufélagsins, fyrir umliðið
ár, 1938. Eru þeir nú beðnir
að bregða við og senda skýrsl-
urnar sem fyrst, til séra Jóhanns
Bjarnasonar, Box 461 Selkirk,
Manitoba. — Kirkjuþing í ár er
æði mikið fyr en venjulegt er, en
allar skýrslur Kirkjufélagsins
eiga að vera tilbúnar að leggjast
fram á fyrsta degi þingsins. —
-f -f
Mæðradaginn ( sunnudaginn
14. mai) messar séra H. Sigmar
á þeim stöðum sem hér segir, í
prestakalli sínu;
Garðar (eldri kirkju) guðs-
þjónusta með ferming ogaltaris-
göngu kl. 11 f. h.
Fjalla kirkju, guðsþjónusta
kl. 3 e. h. Offur til heimatrú-
boðs.
Mountain, ensk messa kl. 8 að
kveldi, altarisganga. Ungmenn-
in sem útskrifast úr miðskólan-
um á Mountain sérstaklega á-
vörpuð. — Állir velkomnir.
LLOYD GEORGE
MEÐ HERSKYLDU
David Lloyd George, fyrrum
forsætisráðherra Breta, og um
langt skeið formaður frjálslynda
flokksins, hefir lýst yfir því í
þingræðu, að hann sé eindregið
meðmæltur herskyldufrumvarpi
Chamberlainstjórnarinnar; telur
hann horfurnar í Norðurálfunni
þannig vaxnar, að umi annað sé
í rauninni ekki að ræða, en vera
viðbúinn hverju sem er.