Lögberg - 01.06.1939, Blaðsíða 1
52. ÁRGANGUR
PIIONE 86 311
Séven IJnes
Ö.V.N*
' oÁCV
V c0<
í'or
Better
Drj- Clenning
and Irfumdry
NÚMER 22
Konungshj ónunum
fagnað í Winnipeg
Sýningarskáli Islands á heimssýningunni í New York
Hér getur að líta framstafn hins glœsilega sýningarskála íslenzku þjóðarinnar á heims-
sýningunni í New York; prýðir skálann meðal annars, eirlíkan Leifs hepna, er Vestur-
Islendingar l'ógðu fé til, auk skjaldannerkis Islands. Við bakstafn er líkan Þörfinns
Karlsefnis eftir Einar Jónsson.
Á drotningiardaginn þann 24.
niaí síðastliðinn, klæddist Win-
nipegborg sínum fegursta hátíÖ-
arskrúða, í tilefni af komu þeirra
konunglegu hátigna Georgs Breta
veldiskonungs og E.lízabetar
drotningar; kom 'hin konunglega
eimlest inn á C.P.R. járnbrautar-
stöbina laust eftir klukkan tíu
um morguninn; voru þá öll
megin-stræti borgarinnar, er
konungur og fylgiliÖ hans átti
afc fara u-m, þéttskipuS fólki, er
'beðið hafði þess með eftirvænt-
ingu klukkutímum saman, að fá
að líta konung sinn og drotn-
ingu ; talsvert rigndi um morgun-
inn og fram eftir degi, en seinni
partinn birti mikið til og var
nokkuð sólfar með köflum.
Á j árnbrautarstöðinni kom
John Queen, borgarstjóri til
fundar við konungshjónin, á-
samt ýfnsum öðrum háttsettum
embættismönnum bæjarfélagsins;
þar næst fór fram virðuleg mót-
tökuathöfn við ráðhús borgar-
innar, þar sem bæjarfulltrúar og
nokkrir aðrir borgarar voru
kyntir konungshjónum; að því
búnu hélt skrúðfylking með kon-
Ung og drotningu í fararbroddi
suður að þinghúsi fylkisins þar
sem fylkisstjóri og forsætisráð-
herra tóku á móti hinum tignu
gesturn; bauð Mr. Bracken kon-
ung og drotningu hans velkomin
með snjaWri ræðu; einnig var
þar mikið um söng og hljóðfæra-
slátt; þar voru ráðherrar og
þingmenn kyntir konungshjón-
unum; þá var setin vegleg veizla
'hjá fylkisstjóra. Kl. 1 ávarpaði
konungur þegna sína ví$svegar
Um heim i skýrri og fagurhugs-
aðri útvarpsræðu. Síðari hluta
dags óku konungs'hjón um helztu
stræti borgarinnar að viðstödd-
um feikna mannfjölda; unnu
þau hug og hjörtu hins mikla
nnannfjölda hvar serni leið þeirra
lá; enda bæði ljúfmannleg i
framgöngu og laus við mikillæti.
Pör þeirra um Canada hefir ver-
ið óslitin sigurför. Þegar þau
koma vestan frá Kyrrahafinu,
heimsækja þau Strandfylkin þrjú
eystra.
LÝKUB PRÓFl /
LYFJAFRÆÐI
\
Mr. Cecil Johnson, sonur Hon.
T. H. Johnson, fyrrum dóms-
málaráðherra Manitöbafylkis og
ekkju hans frá’ Áróru Johnson,
'hefir nýlokið fullnaðarprófi í
lyfjafræði við Connecticut Col-
lege of Pharmacy með hinum
ágætasta vitnisburði. Hinn njji
lyfjafræðingur er vinmargur hér
í borg, og þarf af leiðandi berast
honurn héðan um þessi þátta-
skifti i lífi hans mörg hlý hug-
skeyti.
PRÓF. SIGFÚS
EINARSSON LATINN
Prófessor Sigfús Einarsson,
tónskáld, varð bráðkvaddur hér
í bænum í gær. Hann varð 62
ára, fæddur 30. janúar 1877.
Hann hafði verið veikur fyrir
hjarta undanfamar vikur.
Um miðjan dag i gær var
hann staddur í tóbaksbúðinni
“Havana” í Austurstræti, var að
fá sér í dósirnar sinar. Hné
hann þar niður og var nokkru
síðar örendur.
Tveir menn voru i búðinni og
náði annar þeirra, Andrés G.
Þormar, i lækni, Þórð Thorodd-
sen, sem staddur var i Austur-
stræti. Sá hann strax að um
alblæðing var að ræða og mað-
urinn í dauðanum.
Náð hafði verið í sjúkrabif-
reið og flutti hún prófessorinn á
Landsspítailann. Þegar þangað
kom var hann örendur.
Þessa mæta manns verður
nánar getið síðar.—Mbl. 11. mai.
Til
V eátur-íslendinga
Þegar við undirritaðir fórum
þess á leit við Íslendinga í
Ameríku að þeir legðu fram
nægilegt fé til þess að koma upp
myndastyttu af Eeifi heppna,
sem notuð skyldi við íslands-
deild sýningarinnar i New York
og síðan 'komið fyrir á hentug-
um og viðeigandi stað i Ame-
ríku, var stefnt að því marki að
safna $2500 ti! $2700. Fyrir
ötula aðstoð ótal| margra manna,
sem lögðu það á sig að safna fé,
hver í sínu bygðarlagi, og ótrú-
lega góðar undirtektir, svo að
segja alstaðar þar semi Islend-
ingar eru búsettir í þessari heims-
álfu, er þessu fyrirsetta takmarki
nú náð, og frekara tillagi til
þessa fyrirtækis verður ekki veitt
móttaka.
Qss undirrituðum er það bæði
ljúft og skytlt að þakka innilega
öllu fólki voru, sem gjörði það
fnögulegt að leiða þetta fyrirtæki
til happasælla lykta. Fyrst vilj-
um við þakka ölium þeim, sem
lögðu á sig mikið starf við fjár-
söfnunina í sínum eigin heima-
högum, og þar næst öllum þeim
sem með fjárframlögum, smáum
sem stórum, styrktu fyrirtækið.
Hinar góðu undirtektir, sem
þetta mál fékk hjá fólki voru
er gleðiríkur vottur þess að hið
ís'lenzka þjóðarbrot hér búsett,
ber innilegan hlýhug til Islands
i hjarta sínu. Heiður og sómi
Islands er þeirra eigin heiður og
sómi.
Einnig er þetta ánægjulegur
vitnisburður þess hvað Vestur-
Islendingar geta gjört á ótal
mörgumi sviðum, ef samhygð og
eining, en ekki sundrung og
þröngsýni, fá að ráða gjörðum
þeirra.
Winnipeg, Man. 29. mai, '39.
Rögnvaldur Pétursson
Asm. P. Johannsson
Arni Eggertsson
B. J. Brandson
G. Grímson
G. B. Björnson
Viíhjálmur Stefásson.
DR. CHARLES MAYO
LATINN
Síðastliðinn föstudag lézt á
sjúkrahúsi í Rochester, Minn.,
skurðlæknirinn heimsfrægi, Dr.
Charles Mayo, sá er í félagi við
bróður sinn grundvallaði hina
merku , Mayo-stofnun í Roch-
ester; hann var 77 ára að aldri,
og einn af mestu velgerðamönn-
um mannkynsins.
Barði G.
Skúlason
Eögbergi hefir nýverið
U>rist sú fregn, að háskól-
>nn í Oregotiríki, hafi sæmt
^arða G. Skúlason í Port-
^and doktorsnafnbót í lög-
Urn. Mr. Skúlason er nafn-
togaður mælskumaður og
glæsimenni hið mesta.