Lögberg - 15.06.1939, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. JÚNí 1939
5
COCKSHUTT No. 6
Hin Nýja, óviðjafnanlega Einmennis Uppskeru Combine
vandað og djúphugsað mál. Ber
skýrslan ljósan vott um skilning
forsetans á vandamálum sajm-
tiðarinnar, og skygni hans á tím-
anna tákn. Skrifari og féhirðir
lesa skýrslur sínar. Tala safn-
aða kirkjufélagsins er nú 48.
Fimmtíu og fjórir fulltrúar eru
staddir á þingi, auk presta og
sérstakra gesta. Málum er skip-
að í nefndir. Það líður að
kvöldi.
Eftir kvöldverð er aftur geng-
ið til fundar. Trúboðinn, séra
O'ctavíus flytur rækilegt erindi
um köllun sína til trúboðsstarfs-
ins, og starf sitt á því sviði. Var
gerður hinn bezti rómur að máli
hans þar, sem og öðrum ávörp-
um hans og erindum á þingi.
Séra Haraldur Sigmar flytur
erindi um heimatrúboð, nauðsyn
þess og erfiðleikana sem það er
háð. Séra Carl J. Olson flytur
erindi um Brezka og Erlenda
Biblíufélagið, sem hann er full-
trúi fyrir. Og það varð kveld
og það varð morgunn — hinn
fyrsti dagur.
Næsta dag lá fyrir, samkvæmt
dagsskrá þingsins, trúboðsmálið
heima og erlendis. En vegna þess
að því hafði verið skipað
nefndir var tekið fyrir næsta j
mál, og eitt aðalmál þessa þings;
Samband kirkjufélagsins við
United Lutheran Church in
America.
Framkvæmdarnefndin lagði
fram fyrir þingið tillögu til
þingsályktunar á þessa leið:
“Framkvæmdarnefnd kirkju-
félagsins hef ir komist að þeirri
niðurstöðu að brýn nauðsyn
sé til þess að taka fyrir á ný
það mál hvort ekki sé timi kom-
inn til að félag vort gangi sem
heild í stærri deild kirkju
vorrar hér i álfu. Nefndin er
einhuga þeirrar skoðunar að
næst standi að . saimeinast
United Lutheran Church in
America, og er þvi fylgjandi
af alhug.”
Þetta mál heyrir ekki undir
skjót úrslit á kirkjuþingi,
heldur er sjálfsagt að það
komi fyrir söfnuðina beint til
úrslita. Sterk sannfæring er
fyrir því að félag vort megi
ekki við því að draga úrslit
þessa máls lengur, og ættu all-
ir, hvort sem sannfæring
þeirra er með eða móti, að
telja það hið eina réttmæta,
að leggja málið fyrir söfnuð-
ina. Nefndin leggur þvi til
að eftirfylgjandi tillögur séu
samþyktar;
1 Þingið lætur það i ljósi sem
álit sitt að kirkjufélaginu
beri nú að ganga inn í
United Lutheran Church of
America.
2 Þingið felur framkvæmdar-
nefndinni að leggja málið
fyrir söfnuðina á komandi
ári til úrslita.
3 Það sé ákveðið að til sam-
þyktar þessu máli þurfi at-
kvæði að falla með því í
söfnuðum, er telji tvo þriðju
fermdra meðlima kirkjufé-
Lagsins eftir síðustu skýrsl-
um.
4 Framkvæmdarnefndinni sé
falið að liðsinna söfuðunum
með upplýsingum og leið-
beiningum málinu til undir-
búnings, eftir því sem henni
er unt.
5 Framkvæmdarnefndinni sé
heimilað og falið að til-
kynna og framkvæma úrslit
þau er málið verður fyrir
hjá söfnuðunum.”
Eftir allmiklar og fjörugar
umræður, sem þó voru næstum
einróma var nefndarálit þetta
samþykt. Ýmsir, sem áður tjáðu
sig hafa verið þessu máli and-
víga, lýstu því yfir á þingi, að
þeir hefðu eftir athugun málsins,
skift um hkoðun, og væru nú
málinu hlyntir.
Var það augljós hugsun allra
sem málið ræddu, hvort sem þeir
voru ákveðnir ineð því eða hik-
andi í sambandi við það, að
þetta mál bæri að ræða með
stillingu og ró, með velferð fé-
lagsheildarinnar í huga, menn
ættu að afla sér allrar fræðslu
um málavexti á báðar hliðar, án
fordóma og flausturs, og lúta
svo úrskurði meirihlutans er til
atkvæða kemur, á'hvern veg sem
hann kann að falla.
Á miðvikudagskvöldið flutti
forseti ítarlegt og fjörlegt erindi
um "Kirkjufélagið, fortíð þess,
nútíð og frámtíð.”
Á þingfundum á fimtudag og
föstudag voru hin venjulegu
dagskrármál rædd. Miðaði alt
umtal og ráðstafanir að viðhaldi
á hinum almennu starfsmálum.
Á fimtudagskvöldið fluttu þrír
prestar erindi um bindindismálið,
voru það þeir séra Guttormur
Guttormsson, séra VaJdimar J.
Eylands og séra Egill H. Fáfnis.
Breytt var skipulagsskrá Minn-
ingarjóðs Dr. B. B. Jónssonar,
og honum kornið í það horf sem
venjulegt er með slika sjóði. Á-
kveðið var að innsöfnun í sjóð-
inn skyldi haldið áfram unz
upphæðin nær $1000.00. Skal
sjóðurinn standa óskertur unz
þeirri upphæð er náð, en fram-
kvæmdarnefndinni heimilt eftir
það að nota hann til styrktar
námsnmnni eða námsimönnum,
“High-Tailing
Along”
THE gears sing as they take
up the load, and the exhaust
sounds like the gunning of
an, airplane motor — once rolling
there is the whine of rubber as
the hard road slips like a fluid
Under the wheels — up the steep
grade, the clutch is “double-
kicked” and the gears slipped
in. No stalling. SPEED is es-
sential to deliver the goods.
We, at EATON’S, fill your order
and send your merchandise,
“High-Tailing Along” to you in
the same way. Every nerve of
the whole organization is strain-
ed to bring to you, the things
you want, in the minimum of
time. Only a great Mail Order
House could offer you day after
day, the same tremendous array
of articles — the same wonder-
fully wide selection that you
find in your EATON Catalogue,
with every transaction backed
by the great EATON guarantee,
“Goods Satisfactory or Money
Refunded.”
That’s why at airports, docks,
stations and truck terminals,
you see inail bags by the hun-
dreds and freight by the ton
from EATON’S — proof positive
of the confidence our customers
have in us. That’s why everyone
along, the route smiles and says,
“It Pays to Buy from EATON’S.”
EATO NS
sem læra vilja til prests á vegum
kirkjufélagsins.
Síðasta þingdaginn var gengið
til embættismanna-kosninga.
Hlaut núverandi forseti, sem þá
hafði orðið að hverfa af þingí,
vegna embættisanna, nær einróma
endurkosningu á seðlum og án
útnefningar. Er það maklegur
vottur um það traust, sem
kirkjuféLagið ber til hans, og
viðurkenning á röggsemi hans og
skörungsskap í allri fundar-
stjórn. Embættismenn kirkjufé-
lagsins eru að öðru leyti þeir
sömu og áður, nema að séra
Haraldur Sigmar var kosinn
vara-fosreti í stað séra Sigurðar
Ólafssonar, sem mæltist til að
vera leystur frá því embætti.
Framkvæmdarnefndin er sömu-
leiðis skipuð sömu mönnum og
síðastliðið ár, nenm að séra Egill
H. Fáfnis var kjörinn í stað
Tryggva Anderson, sem mæltist
undan kosningu.
Fréttaritari óttast að sér verði
“vísað frá” með ritgjörð þessa
vegna þess hversu löng hún er
orðin, en finnur hins vegar til
þess að ekki sé svo hægt að
ganga frá umsögn um þetta
kirkjuþing að ekki sé getið sam-
komu þeirrar, sem efnt var til
af hálfu bygðarbúa á Mikiey á
föstudagskvöldið. Er þar að
vísu nægilegt efni fyrir sérstaka
ritgjörð, en þó skal hér drepið á
það helzta.
Samkoma þessi var einkar
fjölbreytt og vel til hennar efnt.
Ungfrú Ingibjörg Siguígeirsson,
organisti safnaðarins spilaði á
piano; Harold Sigmar, Jr. flutti
ávarp á ensku, og sömuleiðis
Eggert Erlendson, hinn nýkosni
forseti ungmennafélagssambands-
ins. Séra Octavíus flutti ræðu á
japönslcu máli, sem enginn skildi
orð í, en allir nutu með mestu
ánægju vegna þess hve fjörlega
var talað og fimlega útskýrt með
blæbrigðum raddar og tilburðum.
Mrs. Einar P. Jónsson frá Win-
nipeg flutti fagra og fyndna
-ræðu á islenzku. Er hún alin
upp á eynni. Fanst henni mikið
til um framtakssemi bygðarbúa í
sambandi við móttöku og með-
ferð þinggesta, og mælti þar allra
rnanna mál. Kvaðst hún hafa
orðið hissa er hún kom inn í
samkomusalinn og sá þar “káta
fiskimenn með svnntur, á þeyt-
ingi með rjúkandi rétti fram og
aftur — fanst að konurnar hefðu
þá framkvmt það ómögulega!”
Er konunum nokkuð ómáttugt?
Séra Egill H. Fáfnis söng
nokkra einsöngva, og stýrði hóp-
söng sem allir viðstaddir tóku
þátt í eftir megni. Frú Octavius
Thorlaksson spilaði á piano af
mikilli list. Barnakór söng til-
valcla söngva. Árni Sveinsson
frá Baldur spilaði á piano. En
veigamesta atriði skemtiskrár-
innar var ræða, sem Skúli Sig-
urgeirsson flutti sem forseti
samkomunnar. Er liann sonur
eins af frumherjum bygðarinnar
og hinn efnilegasti maður. Rakti
hann sögu bygðarinnar í fáum
en skýrum dráttum, lýsti baráttu
frumherjanna, þrautseigju þeirra
ög trúmensku við hugsjónir
kristindómsins, sem kom hvað
ljósast fram í því að eitt af því
fyrsta sem þeir gerðu var að
byggja kirkju á eynni. Lýsti
hann sÆ> þeim átökum sem
bygðarmenn hefðu þurft að
beita sér fyrir til að bjóða
kirkjuþingi, fór lofsamlegum
• Nú býður Cockshutt heiminum
þá lang notadrýgstu uppskeru
Combine, sem hugsast getur. pessi
No. 6 er einungis hálf að stærð
r.og kostar meira en helmingi minna
8en hinar gömlu og stóru Combines.
|£Qerðar fyrir hraða og fylztu not-
^jhæfni, hafa þær meðal annars til
íað bera útbúnað, er einn maður
4ræður yfir, sterka grind, saman-
ítengslaða eins og brú, Alemite
, smurningu og úrvals völtur. sem
s The COCKSHUTT
No. 6B
BINDARI
SPARAR VINNU,
TlMA OG KORN
The Cockshutt No. 6B Bindari
setur nýtt met I nothæfni. Kostir
innihalda meðal annars: Bolta og
róluvöltur úr ekta stáli; olíu-
baðaðan gear-kassa, innilokaðan
elevator gear, hápressu smurn-
orðum um samvinnu allra bygð-
armanna, og gerði grein fyrir
þeim andlega og mannfélagslega
ágóða, sem honum fanst bygð
sín hafa hlotið við heitmsókn
þingsins. Var ræða hans vönd-
uð og vel fram borin.
Þessi samkoma hefir staðið
fram undir miðnætti. Allir eru
í bezta skapi. En alt í einu blæs
“Keenora” alt hvað af tekur.
Hún er þá komin aftur á heim-
leið. Allir draumar enda um
síðir. Öllum er boðið til kaffi-
drykkju einu sinni enn, og í
þetta sinn að skilnaði. Áður en
staðið er upp í samkomulok, les
varaforseti tilhlýðilegt þakkar-
ávaq) frá kirkjuþingsgestum til
bygðarmanna. Endaði h,ann
lipra ræðu sína með þessum ljóð-
línum, sem allir vildu ort hafa
og stílað til Mikleyinga, með
hugljúfu þakklæti, er þeir minn-
ast hins 55. ársþings kirkjufé-
lagsins:
“Aldrei dvín, þó alt um þrotni
endurminning þess sem var.”
V. J. E.
Iceland’s Pavilion,
World’s Fair
(Eramh. frá 1. bls.)
segir hann: “Og hvem har sá
det sidste ord?”
Framan við sýningarskála
Norðmanna er stytta Ólafs
Tryggvasonar og er ritað á stall
hennar:
“Olav Tryggvasort, king of
Norway 985—1000 A.D., at
whose order Leiv Eiriksson
sailed from Norway to Green-
Land and discovered Vinland
—America.”
fyrirbyggja hristing; skurðhæð frá
1% þuml. til 26 þumlunga; 38
þuml. cylinder af rasp-gerð; starf-
rækt með orku “take off” eða
mótor; bygð í 5 feta 7. þuml. og
8 feta breiddum; fæst í kornhlöðu
eða bindings gerðum.
Skoðið I dag þessa framúrsKar-
andi) uppskeru Combine hjá Cock-
shutt umboðsmanni eða skrifið
eftir bæklingi!
ingu og ábyggilega starfshæfni
hnlfsins; ábyggilegur knotter; ný
skjótsnúin pole truck; bygð til
þessað flytja langa, stutta, létta
og þunga uppskeru. Skoðið No
6B !hjá Cockshutt umboðsmanni
eða skijifið eftir bæklingi I dag.
Leifs-styttan framan við Is-
landsskálann ber áletrunina:
“The original of this statue,
created by A. Stirling Calder,
stands in Reykjavik, tlie
capital of Iceland, and bears
the following inscription:
‘Leifr Eiricsson, son of Ice-
land, discoverer of Vinland;
the United States of America
to the people of Iceland on
the One Tousandth Anniver-
sary of the Althing, 1930.’ ”
Miss Julie Benell, sem er
Heimssýningar fréttaritari út-
varpsstöðvarinnar WINS i New
York, heimsótti Islands-skálann
fyrir skemstu og sagði m. a. í
útvarpserindi, sem hún flutti um
sýninguna þann 29. f. m.:
“People are becoming more
and more aware of the beauty
of this .little country and I
hope you won’t miss this ex-
hibit (Iceland’s) because it is
one of tlie most surprising at
,the fair — it is a beautiful
country . , . well represented
here . . . and you’ll find many
interesting things to look at
besides meeting some of the
people from Iceland who are
most charming.”
Miss BeneLl talaði umi ísland
og íslandssýninguna samtals í 15
mínútur.
Allmargir Vestur-íslendingar
hafa heimsótt sýninguna. Fyrir
skömmu kom 9 manna hópur í
bíl frá Mountain í Nortli Dakota,
þá hafa allflestir þeir, er búa í
New York og nágrenni komið,
sumir oft, og nokkrir Islending-
ar frá Winnipeg og Boston og
víðar.
í I
WINNIPEG - REGINA - SASKATOON - CALGARY - EDMONTON