Lögberg - 27.07.1939, Blaðsíða 1
PHONE 86 311
Seven Liines
' \?CP
4&P
,«^<0.® *"or
Better
Kry Cleanlng
and Jjaundry
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. JÚLf, 1939
NÚMER 29
Góðir Gestir
Væntanlegir eru hingað til
borgar á næstunni tveir merk-
ir, íslenzkir athafnamenn á-
samt sifjaliði; eru það þeir
Vilhjálmur Þór, framkvæmd-
arstjóri íslandssýningarinnar í
New York og Árni G. Eylands,
verkfæraráðunautur sambands
íslenzkra samvinnufélaga;
báðir eru menn þessir á bezta
aldursskeiði, og hafa hvor um
sig markað djúp spor í sögu
íslenzks athafnalífs. —
Vilhjálmur Þór er eyfirzk-
ur að uppruna, og hefir um
alllangt skeið veitt forustu
einu allra umsvifamesta og
fjölþættasta verzlunarfyrirtæki
íslenzku þjóðarinnar, Kaup-
félagi Eyfirðinga; hefir hann
nú verið skipaður bankastjóri
við Landsbanka fslands frá
l. janúar næstkomandi að
telja.
Árni G. Eylands, ráðunaut-
ur, er skagfirzkur að ætt og
búfræðingur að sérmentun;
hefir starfað alllengi í þarfir
Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga og getið sér hinn bezta
orðstir.
Báðir þessir góðu gestir
flytja kveðjur að heiman á ís-
lendingadaginn á Gimli þann
7. ágúst næstkomandi.. Lög-
berg býður þá hjartanlega vel-
komna.
Hitaveitan í
brezka útvarpinu
Breska útvarpið sendir í dag
út stutta frásögn um Hitaveit-
una í Reykjavík, sem Pétur
Halldórsson borgarstjóri tal-
aði inn á plötu, er hann dvaldi
síðast í Kaupmannahöfn.
Umboðsmaður brezka út-
varpsins í Kaupmannahöfn,
Carstensen fyrv. ritstjóri,
sneri sér til borgarstjóra og
bað um leyfi til að taka á
plötu stutta skýrslu hans um
Hitaveituna, sem síðan yrði
send út frá brezka útvarpinu.
Borgarstjóri varð við þessum
tilmælum.
Fyrst talaði Carstensen
nokkur orð, þar sem hann
kynti borgarstjóra. Síðan gaf
borgarstjóri stutta skýrslu um
Hitaveituna.
Þessi frásögn verður svo
send út á National-programmi
frá brezka útvarpinu.
Geymarnir í öskjuhlíð
Ráðgert er að breyta nokk-
uð tilhögun geymanna á
Öskjuhlíðinni. Það var hugs-
að að reisa geymana á 10
metra háum súlum, til þess
að heita vatnið gæti runnið
sjálfkrafa í bæinn.
Sennilega verður hætt við
að reisa geymana á súlum.
Þykir það ekki full trygt,
vegna jarðskjálftahættu. Er
því nú helzt i ráði, að byggja
geymana á jafnsléttu (á
Or borg og bygð
Gefin saman i hjónaband
voru þau Lorne Fletcher Jef-
ferson og Benedicta Gladys
Doll þ. 7 júlí í kirkju Mikl-
eyjar safnaðar. Kirkjan var
þéttskipuð fólki og athöfnin
hin hátíðlegasta. Séra Bjarni
A. Bjranason gifti. Eftir gift-
inguna var rausnarlegt sam-
sæti haldið í samkomusal
Mikleyinga; og kallaði Skúli
Sigurgeirsson samkomustjóri
fram söngva og ræður. Brúð-
urin þakkaði fyrir sína hönd
ogr brúðgumans, og kvað þetta
vera hina ánægjulegustu stund
sem þau hefðu lifað. Heimili
ungu hjónanna verður í Black
Island í Winnipegvatni, þar
sem Mr. Jefferson ásamt bróð-
ur sínum starfrækir sögunar-
myllu. Brúðurin er dóttir
merkishjónanna Márusar og
Ingibjargar Doll, sem bæði eru
látin fvrir mörgum árum. Á-
samt jafnaldra systur sinni,
Kristínu, útskrifaðist Bene-
dicta (Bensa) í hjúkrunar-
fræði frá Selkirk General
Hospital fyrir tveiin áruin; og
hafa þær báðar starfað við
St. Mary’s Hospital í Roch-
ester, Minn., og hlotið ágætan
vitnisburð.—B. A. B.
Merkishjónin Mr. og Mrs.
Jón Ólafsson frá Leslie, Sask.,
voru hér nýlega á skemtiferða-
lagi* ásamt tveim dætrum,
tengdasyni og dóttursyni. Var
förinni heitið til Minneapolis
þar sem ein dóttir jieirra er
búsett.—Stönzuðu þau í Win-
nipeg í báðum leiðum til að
heilsa upp á gamla vini og
kunningja. Þau ólafssons
hjónin voru búsett hér í borg
fyrir allmörgum árum, og
munu eiga haldgóð ítök í hug-
um fjölmargra bæjarbúa frá
þeim tímum. Þau lögðu á
stað heimleiðis síðastliðinn
laugardag. Gamlir og nýir
kunningjar þakka þeim kom-
una.
-f -f
íslenzkur harðfiskur er ný-
kominn beina leið heiman frá
íslandi í verzlun Steindórs
Jakobssonar að 680 Sargent
Ave. Aldrei hefir koinið betri
fiskur á markað hér í Ame-
ríku. Hann er barinn og
lieinlaus, lungamjúkur og vel
verkaður. Vafinn í “cello-
phane” pappír í smápökkum
og geymist vel án nokkurrar
sérstakrar varúðar, og er ódýr
eftir gæðum. fslenzkir verzl-
unarmenn út um bygðir fs-
lendinga, ættu að snúa sér
sem fyrst til S. Jakobssonar
með pantanir.
öskjuhlöðinni) og hafa þar
dælu, til þess að ýta á eftir
vatninu inn i bæinn.
—Mbl. 2. júli,
Til Gesta að Gimli
á Islendingadaginn
Óefað verður fjöldi fólks
víðsvegar að sem sækir þenna
allsherjar íslendingadag að
Gimli 7. ágúst. Kemur fólk
þar til að njóta góðrar skemt-
unar og mæta þar vinum og
frændum er það hefir eigi séð
um lengri eða skemri tíma.
f þetta sinn gefst fólki er sæk-
ir daginn sér til skemtunar,
einnig tækifæri að gleðja ís-
lenzk börn og gera þeim
mögulegt að njóta nokkurra
skemtilegra daga í sumarfrí-
inu, á Sumarheimilinu að
Hnausum. íslendingadags-
nefndin og bæjarráðið á Gimli
hefir góðfúslega leyft stjórn-
arnefnd Sumarheimilisins að
selja minnisborða þenna dag
til arðs fyrir heimilið. Á
nefndin og bæjarráðið stórar
þakkir skilið fyrir þessa
hjálp, sem er í sjálfu sér við-
urkenning á þörf og starf-
rækslu heimilisinS. Eru þess-
ir minnisborðar haganlega
gerðir og stimplaðir með nafni
heimilisins. Borðar verða
seldir víðsvegar um bæinn
þenna dag með líku fyrir-
komulagi og “Tag Day” eru í
Wirmipeg. Við óskum og von-
um að allir sem koma til að
njóta skemtunar á þessum há-
tiðisdegi hugsi til barnanna og
geri þeim einnig mögulegt að
njóta skemtunar og uppbygg-
ingar á Sumarheimilinu.
Stjórnarnefnd
Sumarheimilisins
1 01 árs
101 árs er í dag Jón Guð-
mundsqn, til heimilis hjá syni
sínum Páli Jónssyni snlið, að
Hulduhól á Húsavík. Jón hef-
ir stundað búskap alla æfi og
bjó áður í Yzta-Hvammi og
Austur-Haga.
Hann var kvnætur Rebekku
Pálsdóttur, ættaðri undan
Eyjafjöllum. Konu sína misti
hann árið 1909.
Fréttaritari yðar heimsótti
gamla manninn í gærmorgun
og hitt hann þannig fyrir, að
hann var ^að segja fyrir um
að heyi, sem sonur hans átti
samantekið, yrði dreift.
Hann fór síðan að segja
mér frá því að ekki væri mik-
ið að eiga við heyskapinn nú,
hjá því sem áður var, þegar
hann var ungur (um 1850!).
Þá hefði hann mátt, sökum
slæmrar aðstöðu, bera mest
af því heyi, sem hann heyjaði,
á bakinu. En nú væri þessu
hjólað heim í hlöðu í bílum,
svo að sama og ekkert þyrfti
fyrir því að hafa.
Jón gamli hlustar á útvarþ
og fylgist allmikið með þvi,
sem gerist innanlands. Og
mikið finst honum ganga á
fyrir þessum stóru mönnum
úti í heimi. En nokkuð er
Vleð morgunkaffinu
T\’eir gamlir vinir hittust
eftir að þeir höfðu ekki sézt i
fjölda mörg ár.
—Hvað gerir þú núna?
sagði annar.
—Eg hefi atvinnu í cirkus.
Eg hefi fundið upp sniðugt
atriði með ljón og geit.
-—Hvernig færðu dýrin til
að koma sér saman.
—Það gengur vel, einstaka
sinnum slettist þó upp á vin-
skapinn og þá kaupi eg bara
nýja geit.
-f -f
f Stokkhólmi er hörgull á
vinnustúlkum í hús, eins og
viða annarsstaðar. Til þess
að fá vinnustúlkur eru notuð
ýmisleg ráð. Eftirfarandi aug-
lýsing var í sænsku blaði á
dögunum:
“Vinnustúlka óskast á heim-
ili sem er beint á móti Atlas-
kviknlyndahúsinu. Þessa viku
er sýnd mynd með Charles
Boye'r”!!
-f -f
Maður nokkur í Calkútta
hefir lokið stúdentsprófinu
enska, en það hefir lika tekið
11 ár. Fyrst reyndi hann að
taka stúdentspróf 1928, og
hefir siðan á hverju ári fallið,
þar til nú 1 vor. — Þolin-
mæðin þrautir vinnur allar.
-f -f
Maður nokkur var að lýsa
þrengslunum á götunum í
London, og til þess að sýna
að það væru engar ýkjur, sem
hann sagði um þrengslin,
skýrði hann frá því að þau
væru stundum svo mikil, að
vasaþjófarnir stælu úr hvers
annars vösum af vangá.
-f -f
Borgarstjórinn í Lusanne í
Sviss hefir mikið að gera.
Hann hefir hvað eftir annað
reynt að fá bæjarráðið til þess
að kaupa flugvél til afnota
fyrir borgarstjórann, en bæj-
arráðið hefir ávalt felt tillög-
una Nú hefir borgarstjórinn
sjálfur keypt sér flugvél og er
talið að hann sé eini borgar-
stjórinn í Evrópu, sem á
einkaflugvél.
-f -f
—Finst þér kærastinn minn
ekki gáfaður?
—Jú, en eg gruna hann um
að þetta sé uppgerð hjá hon-
um. —Morgunbl.
honum sama hvort þeir heita
Mussolini, Stalin-eða Hitler.
Síðustu tvö árin hefir Jón
verið við rúmið. En fyrir
fjórum árum fór hann í
sendiferðir og færði kaffi á
engjar.
Það mun vera sjaldgæft að
hitta svona gamlan mann jafn
ernan og Jón er, mann sem
getur sagt frá öllum þeim um-
brotum, sem orðið hafa i is-
lenzku þjóðlífi á hans löngu
æfi.—Mbl. 2. júlí.
Islenzkur
fiðluleikari
Björn ólafsson (Björnsson-
ar heitins ritstjóra) lauk prófi
við hljómlistarháskólann í
Vínarborg um miðjan síðast-
liðinn mánuð; lauk hann
prófinu með hæstu (ágætis)
einkunn.
Sérgrein Björns er fiðlu-
spil. Hefir hann stundað nám
við hljómlistaháskólann í Vín-
arborg síðan haustið 1934.
Áður hafði hann stundað nám
hér við Tónlistarskólann og
var meðal fyrstu nemendanna
sem sá skóli útskrifaði.
Björn er nú 22 ára.
S(ðustu árin hefir hann
leikið nokkrum svnnum opin-
berlega i Vinarborg og ávalt
hlotið ágæta dóma.
—Mbl. 2. júli.
Til kvenfélags
Glenborosafnaðar
við heimsókn til Betel
28. april 1939
-f>-f
f fyrsta sinni þið sækið oss heim,
með samhuga, kærleik og trygðir.
ósk vor og beiðni er að Guð
ykkur geym’,
og Guðs blessan krýni’ ykkar
bygðir.
Afmælishátíð hér haldið i dag
um hugljúft starf fjórða part
aldar.
Eg segi’ ykkur velkomnar ljúfl-
ings með lag,
með líknsemd og dygðir marg-
faldar.
Félagslíf ykkar sé farsældar mál,
með friðinn og kærleik í stafni.
Þið komið nú hingað með sumar
í sál
og sólskin í Frelsarans nafni.
Svo bið eg þig, Faðir, að bæn-
heyra mig,
að blessa nú félagshóp þenna;
hann eflist að vizku um æfinnar
stig;—
og enginn af hólmi má renna.
Þökk fyrir gleðina, gestir, í dag.
Þeir gleymast ei samfundin slikir.
Gott er að heyra þann gæfunnar
brag,
er góðmenska’ í hásæti rikir.
Vér biðjum að för ykkar farnist
vel heim,
með fúsleik að koma hér aftur.
Margt hér þið sáuð, í minningu
geym,
það megnar að vernda Guðs
kraftur.
—Lárus Árnason.
0
f ensku dagblaði stóð ný-
lega eftirfarandi auglýsing:
“Hundur óskast í skiftum
fyrir bíl, árgangur 1928!”