Lögberg - 31.08.1939, Qupperneq 1
PHONE 86 311
Seven Lines
PHONE 86 311
Scven Ijines
d-#
w
D'or
Better
I)ry Clennlng
and Taiundry
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, P'IMTUDAGINN 31. ÁGÚST, 1939
NÚMER 34
Þjóðir
Tólf
King
heims
miljónir
standa
manna
á öndinni vegna Norðurálfumálanna;
undir vopnum
forsœtisráðherra Canada og Roosevelt
forseti senda Hitler og Mussolini áskorun um
að vinna að sœttum og fyrirbyggja ályrjöld
VIÐHORKIÐ í Norðurálf-
unni er alt annað en
friðvænlegt eins og sak-
ir standa. Hitler beitir sömu
aðferð og hann viðhafði í
Sudeten-deilunni; staðhæfir
með frekju mikilli, að svo sé
ástandið meðal Þjóðverja i
Danzig hraksmánarlegt vegna
ágangs Pólverja að ekki sé
lengur við slíkt unandi, og
alveg eins og þá, er þetta
heimabruggað yfirskin af
hálfu Hitlers, ef vera mætti að
hpnum lánaðist með því einu
sinni enn að auka við land
sitt; nú eru þó litlar eða eng-
ar líkur til j>ess taldar, að
honum verði kápan úr því
klæðinu, því Bretar og Frakk-
ar hafa heitið Póllandi skil-
yrðislausu fylgi ef á ])á verði
ráðist með vopnum; við þá
staðreynd verður hann nú að
horfast í augu hvort sem hon-
um líkan betur eða ver.
Sendiherra Breta i Berlín,
Sir Nevil Henderson, hefir
verið á ferð og flugi milli
London og Berlín með érindis-
hréf frá Hitler og brezka ráðu-
neytinu; um innihald j)eirra
er flest enn á huldu að öðru
leyti en því, að á hvoruga hlið
sýnist minstu tilslökunar vart;
þó hafa Bretar enn haldið
þeim leiðum opnum, sem lík-
legastar þóttu til samkomu-
lags.
Brezka þingið kom saman
aftur á mánudaginn; gaf
stjórnin þá hrezkum skipnm
samtimis fyrirskipan um j)að,
að hverfa brott af siglinga-
leiðum Miðjarðarhafs og hins
baltiska hafs; þá var og í
ráðagerð, að stofna stríðs-
ráðuneyti í því falli að alt
færi í bál og hrand.
Forsætisráðherra Frakka,
Daladier, sendi Hitler tvö er-
indisbréf yfir helgina með
brennandi áskorun um það,
að hrjóta odd af oflæti sínu
og reyna áð koma sættargerð-
um að; j)etta lét Hitler eins
og vind um eyru þjóta, að j)ví
er símfregnir á mánudaginn
herma, og var alt annað en
mildur í máli.
Pólverjar telja j)að ckki
koma til mála, að þeir láti af
hendi þumlung af landi sinu
við Hitler, og segjast heldur
munu berjast meðan nokkur
pólskur maður standi uppi,
enda sé málstaður þeirra slik-
ur, að hann krefjist allra
þeirra fórna, er þjóðin geti
int af hendi.
Nú hafa allir flokkar brezka
þingsins lýst yfir eindregnu
fylgi við stjórnina viðvíkjandi
afstöðu hennar til Póllands,
og hefir sendiherra Breta i
Berlín tilkynt Hitler niður-
stöðuna.—•
útvarpsfregnir snemma á
miðvikudagsmorguninn skýra
frá því, að Hitler hafi krafist
j)ess með hörðum orðum af
Pólverjum, að þeir léti sendi-
mann tilkynna sér innan
tuttugu og fjögra klukku-
stunda, að þeir gengi að kröf
unum um endurheimt Danzig
og annara þeirra svæða innan
takmarka Póllands þar sem
þýzkir menn byggju. v IíVöfu
þessari er mælt að Pólverjar
hafi svarað með útboði nýrra
hersveita.
Hitaveitan
Byrjað er nú fyrir nokkrum
dögum að vinna í hitaveitu
Reykjavíkur. Er það 40
manna flokkur, sem vinnur
þar að fyrstu framkvæmdun-
um.
Vinna þeir að undirstöðunni
undir aðalleiðsluna, sem liggja
á milli Reykja og öskjuhlíð-
ar. Sú undirstaða er úr grjóti.
Ofan á hana kemur leiðslan
er síðan verður byrgð með
mold.
En nokkur bið verður á þvi
að framkvwmdir hefjist í stór-
um stíl.
Sennilega verður ekkert
byrjað á því áð reisa geymana
á öskjuhlið fyr en að sumri.
Og aðalæðina að Reykjuin er
ekki hægt að leggja fyr en
seinna. Þvi fyrst þarf að gera
pípurnar. Þær eru gerðar i
verksmiðju Höjgaard &
Schultz í Höfn.
Verið er nú að ganga frá
útboðum á því sem kaupa
þarf til veitunnar, t. d. stál-
pípunum, sem á að nota í inn-
anbæjarkerfið.
Stálpípur þessar verða i
steyplunP rennum, sem lagðar
verða i göturnar. Verður unn-
ið að þessari rennugerð í vet-
ur. Er verið að gera tilraunir
með það inn á Barónsstig,
hvernig þægilegast er að koma
sér fyrir við það verk, hvernig
steypumótin eiga að vera og
þessh.
Búist er við að vikur verði
notaður til j)ess að einangra
stálpípurnar í bæjarkerfinu.
Alls verða þessar götuleiðslur
um 45 kílómetrar á lengd. En
rennurnar, sem steyptar verða,
til þess að leggja pípurnar í,
vérða i mörgum götum ekki
nema um 30 sentimetrar á
breidd.
Lundgaard verkfræðingur
stjórnar hér verkinu fyrir
Höjgaard & JSchultz ásamt
Langvad verkfræðingi, er var
við Sogsvirkjunina. Lund-
gaard er fluttur hingað. Lang-
vad er á leið hingað.
Skrifstofa firmans verður 1.
október og framvegis í húsi
Einars Péturssonar í Mið-
stræti.
—Morgunbl. 6. ág.
GÓÐIR GESTIR
Mr. Fred Fljozdal, forséti
járnbrautarþjóna sambandsins
í Norður-Ameriku, búsettur í
Detroit, Mich., var staddur i
borginni ú mánudaginn ásamt
frú sinni. Mr. Fljozdal er af-
burðamaður á margan hátt, og
hefir urn langfc skeið haft
meiri mannaforráð en nokkur
annar fslendingur að fornu
og nýju; hann var einn af
umboðsmönnum Bandaríkja-
stjórnar á Aljiingishátíðinni
1930.
BEITA SER FYRIR
MÁLAMIÐLUN
Leopold Belgíukonungur og
Wilhelmina Hollandsdrotning
hafa sent Hitler og forseta
Póllands erindisbréf, þar sem
þau bjóðast til milligöngu og
sadtagerða milli Þýzkalands og
Póllands vegna Danzig deil-
unnar.
SANDKORN f MINNISVARÐA
“K.N.” SKÁLDS
Lífstein skáldín lána sinn,
Lífsblóm þeirra kala—
Stuðulfelli steininn*) þinn
Steinar, sem að tala!
Engir slíkir eru hér.
Yfir dánu beinin:
Saskat-sjúan sendir þér
Sandkorn eitt í steininn!
Frá Islandi
Um þessar mundir er verið
að vinna að byggingu Matthí-
asarkirkju á Akureyri. Eins
og kunnugt er, var grunnur
kirkjunnar gerður í fyrra, en
snemma í júlímánuði í sumar
var verkinu haldið áfram.
Verða veggirnir steyptir í sum-
ar og kirkjan gerð fokheld.
Er talið, að því verði lokið
þessum mánuði. Ekki mun
fyrirhugað að starfa meira að
kirkjubyggingunni að sinni.
22.-8., ’39.
./. ./. Norninn.
*)Það er vel tilfallið af minn-
isverðanefndinni (og sem get-
ið er um í ritgerð Thorl. Thor-
finnssonar í Heimskringlu og
Lögbergi 9. og 10. þ. m.) að
gefa vinum skúldsins tækifæri
til að senda áletraða smásteina
(þó ekki væru óskasteinar eða
lífssteinar) til að stuðulfella
steypu varðans.
./. ./. N.
NYTT RÁÐUNEYTI f .TAPAN
General Nobuyuki Ahe hefir
tekist á hendur stjórnarfor-
ustu í Japan; er það fyrsta
atriðið í stefnuskrá hans, að
endurskoða frá öllum hliðum
afstöðu þjóðarinnar til Norð-
urálfumálanna og reyna að
vinna hylli brezkra stjórnar-
valda.
Fyrri hluta sumars var unn-
ið að lengingu bátabryggju
Grímsey. Er verkinu nú lok-
ið fyrir nokkru síðan. Þessar
lendingarbætur eru brýn nauð-
syn Gríinseyingum. Var þar
áður fært smábátum einungis
að lenda við bryggjuna, en
nú er við bryggjuhausinn um
tíu feta dýpi um húflæði, svo
ið 20—30 smálesta bátar og
jafnvel stærri geta lagzt að.
öll er hin nýja bryggja úr
steisteypu og var bygging
hennar fyrst hafin fyrir fjór-
um áruin.
Klemenz á Sámsstöðum hef-
ir skýrt blaðinu frá því, að
grasfræ verði þar snemm-
þroskað i ár, ekki síður en
kornið. Er þegar byrjað að
skera upp háliðagrasið, sem
ætlað er til frætekjunnar. Áð-
ur en langt um líður, kemur
röðin að mjúkfaxi, túnvingli
og hávingli. Að magni til mun
uppskeran ekki vera nema i
meðallagi. Veldur þar nokkru
um, að gæsir sóttu i og
skemdu grasfræekrurnar í vor.
—Tíminn 10. ág.
DANARFREGN
öli Kristinn Coghill, kjöt-
kaupmaður i Riverton, andað-
ist ^ð heimili sínu j>ar, eftir
árra daga legu, þann 15. ág.
Hann var fæddur í Reykja-
vík 12. jan. 1888, sonur John
Coghills fjárkaupmanns frá
Glasgow og Sigriðar ólafs-
dóttur. Ólst hann upp i
Reykjavík, og stundaði
snemma verzlunarstörf, árum
saman hjá Th. Thorsteinsson
“Liverpool” verzlun í Rvík.
Vestur um haf fluttist hann
árið 1910, og settist nærri
strax að í Riverton, og átti
þar ávalt heima síðan, nema
um fá ár, er hann starfaði og
bjó í Fairford, Man.
Þann 16. jan. 1913 giftist
hann Valgerði Helen Jóhanns-
dóttur Briem. Börn þeirra
eru: Guðrún Olive, gift W.
Cairns, Riverton; Jóhanna
Pearl, gift Sveini Jóhannssyni,
sama staðar; Marino Wilfred,
heima hjá móður sinni og
Valdheiður Mable, við nám i
Toronto. óli heitinn var mað-
ur hreinn og heilsteyptur að
skapferli, og mörgum góðum
hæfilegleikum gæddur; ákveð-
inn og einkar trygglyndur og
sannur vinur vina sinna. Gest-
risinn og hjálpfús vfir efni
fram. f viðræðum skemtinn,
fyndinn og fróður um margt.
Jafnlyndi og gott viðmót ein-
kendi hann.
Hans er sárt saknað af eftir-
skilinni eiginkonu og börnum
jieirra, tengdasonum og tengda
fólki, og fjölmennum hópi
vina og kunningja.
Útförin fór fram þann 18.
ágúst, frá heimilinu og kirkju
Bræðrasafnaðar og var afar
f jölmenn.
S. ólnfsson.
YOUNG ICELANDERS NEWS
One of the outstanding
events of the summer activ-
ities of the Young Icelanders
was a Boat Trip on the Ra-
monall, on Tuesday, August
22, 1939.
Mr. Dunlop of Dunlop’s
owner of the boat, invited the
Prescription Pharmacy, the
Young Icelanders and their
friends for a trip up the river.
Over 30 people took ad-
vantage of this., There was
the beautiful scenery, good
fellowship, community sing-
ing and refreshments to
satisfy everyone.
It was so obvious that all
thoroughly enjoyed this out-
ing, that Mr. Dunlop, very
graciously invited the Club to
mak'e this an annual event.
The way everybody sang “For
He Is a Jolly Good Fellow,”
conveyed to Mr. Dunlop the
appreciation of the crowd.