Lögberg - 12.10.1939, Side 1
Ilori. Thomns A. Crernr
Náttúrufriðinda ráðherra
sambandsstjórnarinnar, Hon.
Thomas A. Crerar, hefir verið
valinn til þess að mæta fyrir
Canada hönd á fundi, sem
ráðgert er að haldinn verði í
London á næstunni að tilhlut-
an ráðherra sjálfstjórnarþjóð-
anna brezku, Mr. Edens. Til
fundar þessa er kvatt vegna
stríðsmálanna til aukinna og
samræmdra átaka í frelsis-
stríðinu gegn yfirgangi Hitler-
ismans. Val Mr. Crerars sem
umboðsmanns canadisku þjóð-
arinnar á þessari mikilvægu
ráðstefnu, mælist hvarvetna
hið bezta fyrir; hann hefir
langan og athafnaríkan stjórn-
málaferil að baki, og átti
meðal annars sæti í hinu end-
urskipaða stríðsráðuneyti Sir
Roberts Borden frá 1917.
VATNSLITAMYNDIR TIL
SÝNIS AÐ AUDITORIUM
ART GALLERY
Málverk þau, sem sýnd
verða á næstunni í Auditorium
Art Gallery, erli á þvi lista-
stigi, að þau voru flest höfð
til sýnis á heimssýningunni i
New York; mörg eru mál-
verk þessi stór og næsta til-
komumikil; litblöndun hrif-
andi; alls eru málverkin 70
að tölu, og bera canadiskum
listmálurum hinn fegursta
vitnisburð. Sýning þessi opn-
aðist almenningi þann 9. yfir-
standandi mánaðar, og á hún
það fyllilega skilið að verða
fjölsótt.
Telegram from Iceland
Reykjavík, Oct. 5th,
11.51, 1939
Eggertson,
766 Victor Street,
Winnipeg, Canada.
L ö g b e r g, Heimskringla
Newspapers. Arrived Home.
Give best compliments to all
my friends and thanks for
their hospitality, joy and in-
forfnations and ever memo-
rable days amongst them.
Mnrgrét Eylnnds
Árni Eylnnds.
Stríðsmálin
Adolf Hitler flutti ræðu í
þýzka þinginu á föstudaginn
var. og lagði þar fram í mörg-
um liðum svonefnda friðar-
skilmála af sinni hendi; var
þar alt á eina og sömu bók
lært, hótunum og hylliboðum
grautað saman; lagði hann
aðaláherzlu á það. að með því
að Pólland væri formlega úr
sögunni, væri ekki lengur neitt
tilefni til framhaldandi stríðs.
Loforð Hitlers eru alþjóð
manna löngu kunn, og þess-
vegna eru þau nú hvergi tek-
in alvarlega. Forsætisráð-
herra Frakka, Daladier, svar-
aði Hitlór á þriðjudaginn í út-
varpsræðu þar sem hann lýsti
yfir því, að þjóð sin legði eigi
niður vopn fyr en fengin væri
fyrir því full trygging, að ör-
yggi Norðurálfuþjóða, smárra
sem stórra, yrði viðurkent í
aldir fram; bráðabirgða frið-
arkák kæmi að engu haldi;
heiminum riði á öllu öðru
meir, en einhliða Hitler-friði.
Mr. Chamberlain hefir lýst
yfir því. að hann svari ræðu
Hitlers í brezka þinginu á
fimtudaginn; frestaði svarinu
um dag til þess að geta ráð-
fært sig nánar við stjórnar-
völd hinna brezku samveldis-
þjóða.
Á mánudaginn varð all-
snörp loftorusta yfir Norður-
sjónum; gerðu þýzkir flug-
menn þar til þess ítrekaðar
tilraunir, að sprengja upp
brezk herskip, en unnu ekki
á; tvö loftför mistu Þjóðverjar
í þessari viðureign; ekki er
þess getið, að Bretar hafi sætt
þar nokkru tjóni.—
Rússar færa sig upp á
skaftið jafnt og þétt; hafa
þeir í raun og veru hnept
Esthoníu, Latviu og Lithuaníu
í efnahagslegan þrældóm; þeir
hafa sent hersveitir, að nafni
til samkvæmt fyrirmælum
hýrra öryggissáttmála, inn á
þessi lönd, og eru byrjaðir á
að byggja þar voldugar her-
skipakvíar. Og nú er röðin
komín að Finnlandi; kröfðust
rússnesk stjórnarvðld þess, að
stjórn Finnlendinga sendi um-
svifalaust erindreka til Mos-
cow til skrafs og ráðagerða;
fyrir vali varð sendiherra
Finnlands í Svíþjóð. Nú eru
Finnar i óða önn að styrkja
varnarvirki sín á landamærun-
um, og tjást albúnir til land-
varnar, ef á þá sé ráðist af
Rússum; þeir hafi komist í
hann krappan við Rússa fyr,
án þess að blikna né blána.
Engar stórorustur hafa fram
til þessa háðar verið á vestur-
vígstöðvunum. Þjóðverjar
hafa gert ítrekaðar árásir á
iliðssöfnuð Frakka og Breta
umhverfis Saarbrucken, en
jafnan farið halloka.
FPÁ ISLANDI
E-ru ísfiskveiðnr
mögulegnr?
Nú þegar síldveiðarnar eru
að fjara út vaknar sú spurn-
ing, hvort nokkur leið sé til
þess að senda togarana á is-
fiskveiðar, eða hvort h;egt sé
að hugsa sér að koma ísfiski
til markaðslanda.
Stríðstryggingar hafa verið
mjög háar undanfarna daga.
En nú er þetta mjög að hreyt-
ast i bili, hvað sem seinna
verður. í gær kom hingað
t. d. vátryggingarboð, þar sem
boðist var til að taka togara i
tryggingu fyrir 4%, og tryggja
þá í 3 mánuði í Englandsferð-
um. En nýlega voru heimtuö
5% fyrir togara í mánaðar-
tíma í slíkar siglingar.
Vátryggingariðgjöld á skips-
höfnum eru nokkru lægri, en
á skipum, því altaf eru tald-
ar líkur á því að skipshafnir
bjargist þó skipin farist.
í gær barst hingað tilkynn-
ing um það frá Englandi, að
innflutningur á fiski héðan
væri ekki lengur háður þeirri
skömtun frá hendi Breta sem
áður var. En það stoðar lítt,
ef ekki er ha'gt að koma þang-
að neinum fiski.
f ráði er að setja hámarks-
verð á fisk í Englandi, en
engar ákvarðanir eru gerðar
um það enn, hvernig það verð
verður.
—Mbl. 9. sept.
-f 4- -F
Slicmt veiðiveður
og lítill nfli
Nokkur skip komu með afla
í gær til Skagastrandar, mest
80 tn. á skip. Aflann fengu
þau undan Skaga. — Nokkur
skip eru á vesturmiðunum, en
flest enn þá austur frá, en
þar var sunnan átt og hvast i
gær, en í morgun 10 stiga hiti
og austari gola.—Vísir 6. sept.
Vel að verið
Við Maple Leaf Collegiate
Institute i bænum Morden hér
i fylkinu, er islenzkur skóla-
stjóri, Karl B. Thorkelson,
sem getið hefir sér frábærlega
góðan orðstír sem laginn og
hæfur kennari; hann hefir
gegnt við skóla þenna skóla-
stjóraembætti í samfleytt 9
ár, og hefir skólinn undir
stjórn hans árlega vaxið að
vinsældum og áliti.
Nú i vor sem leið, unnu
tveir af nemendum Maple
Leaf skólans námsstyrk Mani-
toka háskólans, Frances Coch-
lan $650.000 og Alvin Buhr
$■325 við verzlunardeild þeirr-
ar stofnunar. Fyrir skömmu
vann islenzk stúlka, Miss
Johnson frá Gimli, samskonar
námsstyrk, og er þess að
vænta, að íslendingum, er
þannig reynast við nám, fjölgi
allverulega í framtíðinni.
Dugleg námsmær
Miss Mnrinn Wells, B.A.
Hugljúft er inér að mirinast
Marian Wells. kennara í
Blaine. Stafar það að nokkru
leyti af náinni persónulegri
viðkynningu okkar um sjö ára
skeið, meðan eg var prestur
Blaine safnaðar. Allan þann
tíma, og lengur, var hún organ
leikari við kirkjuna. Einnig
starfaði hún í sunnudagaskóla
og ungmennafélagi safnaðar-
ins. Þessi kirkjulegu störf
rækti hún með þeim dugnaði,
sem henni er eiginlegur. Mér
þykir einnig vænt um að hafa
tækifæri til að kynna hana
lesendum “Lögbergs” vegna
þess að hún hefir sýnt frá-
bæra elju á framsóknarbraut-
inni, bæði að því er senertir
undirbúningsnám og starf síð-
ar. Hefir hún þannig orðið
sjálfri sér og fólki sínu til
sóma, og gefið jafnöldrum
sínum gott dæmi til eftir-
breytni. ^
Marian er fædd 28. júlí 1915
í grend við Minneota, Minn.
Foreldrar hennar voru þau
Mr. og Mrs. Norman Plummer.
Móðir hennar, Sigrún Christ-
ianson Plummer, var af is-
lenzkum ættum. Stundaði hún
lengi kenzlustörf i Albertá-
fylki, unz hún lézt í apríl-
mánuði siðastliðnum.
Kornung fluttist Marian, á-
Samt móður sinni til Blaine.
Aðeins níu mánaða að aldri
var hún tekin til fósturs af
þeim hjónum, Mr. og Mrs. C.
W. Wells, i Blaine. Mrs. Wells
er Abigal Thordarson, systir
Magnúsar Thordarson, sem
lengi var kaupmaður i Blaine.
og Matthildar, seinni konu
séra H. E. Johnson. Er. Mrs.
Wells hið mesta valkvendi;
hafa þau hjón gengið Marian í
foreldra stað, og annast upp-
feldi hennrir með stakri alúð.
Snemma stéfndi hugur hinn-
ar ungu meyjar til náms.
Gekk hún á miðskóla bæjarins
(High School) og lauk þar
venjulegu fjögurra ára námi
á þremur vetrum, og útskrif-
aðist vorið 1932. Vandaðist
nú málið, efnahagsins vegna
er sækja þurfti æðri skóla á
íjarlægum stöðum. En Marian
lét það ekki á sig fá, og vildi
engum fortölum hlýða. Hugur
hennar stefndi fram, og hún
reyndist sjálfri sér trú. Hún
innritaðist við kennaraslcól-
ann í Bellingham, og stundaði
þar nám unz hún útskrifaðist
ineð kennaraleyfi. i júní 1935.
Á þessum árum vann hún fyr-
ir sér með inargvíslegum
störfum, vann á veitingahúsi.
spilaði fyrir dansskóla og
hljómsveit, stundaði hússtörf.
vann á bókhlöðu og kendi.
Sumarið 1937 stundaði hún
nám við University of Wash-
ington í Seattle, og samdi þar
prófritgjörð um ísland.
Siðastliðin fjögur ár hefir
Marian stundað kenzlu við
bæjarskólann í Blaine. Á
þessum árum hefir hún tekið
mikinn þátt í þeim málum
er snerta stöðu hennar, auk
kenslustarfa sinna. Að hún
hefir i hvívetna notið hins
mesta trausts samkennara
sinna, sézt Ijósast á því hversu
oft hún hefir verið skipuð i
trúnaðarstöður meðal þeirra.
Hún var forseti “Association
of Childhood Education” í
tvö ár, og skrifari fyrir “What-
com County Unit of Washing-
ton Education Association.”
Á skólaárum sinum í Belling-
hain var hún um eitt skeið
forseti “Lutherap Students’
Association” og var kosin
erindreki á þing þess félags-
skapar, bæði í Portland, Ore-
gon og Moscow, Idaho. Á síð-
astliðnu vori var hún kosin
fulltrúi kennara til að fara
með mál stéttar sinnar á rík-
isþinginu í Olympia, Wash.
Ennfremur var hún kosin
annar tveggja fulltrúa kenn-
arastéttarinnar í Whatcom
County til að starfa í nefnd
er kallast “State Education
Board of Teacher’s Welfare.”
Að loknu sumarnámsskeiði
í ár við Western Washington
College of Education í Bell-
ingham hlaut hún mentastig-
ið “Bachelor of Arts.”
Fregnir < hafa borist um
væntanlega giftingu hennar og
Mr. Morris Irwin. Er hann
starfsmaður hjá Canadian
Customs i New Westminster,
og munu þau setjast að i þeim
bæ. Mr. Irwin er hið mesta
prúðmenni og vel gefinn.
Hinir mörgu vinir Marian i
Blaine og annarstaðar munu
samgleðjast henni yfir sigri
hennar á mentabrautinni, og
óska þess að athafnalíf fram-
tíðarinnar megi verða sigur-
sælt, bjart og fagurt.
Vnldimnr .1. Eylnnds.
SYÐUR í POTTINUM
Kosningahríðin i Quebec
hitnar og harðnar með hverj-
um deginum sem líður. Allir
þrír Quebec-ráðherrarnir i
sambandsstjórninni, eru nú
komnir til hinna pólitísku vig-
stöðva. Dómsmálaráðherrann,
Ernest Lapointe, flutti kröft-
uga útvarpsræðu á mánudag-
inn, og lýsti á ný yfir þvi, að
hann og félagar sínir mundu
segja af sér ef Duplessis sigr-
aði í kosninguin.