Lögberg - 18.01.1940, Blaðsíða 8
SVÖL EINS OG
FJALLABLÆR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. JANÚAR, 1940
'/££■ 5C
Úr borg og bygð
1!III!IIIIIIIIII!!III!IIIIIIIIIII!!II!!IIIIII!IIIIIIIIIIIIIII!!IIIIIIIIIIIIIII!!IIIIF
Mr., Th. Thordarson kaupmað-
ur á Gimli dvaldi í borginni í
vikunni sem leið.
-f ♦ ♦
Séra E. H. Fáfnis frá Glen-
boro var staddur í borginni í
fyrri viku.
•f -f -f
Þeir G. J. Oleson lögreglu-
dómari og G. Lambertsen skraut-
munakaupmaður frá Glenboro,
Man., voru staddir í borginni í
fyrri viku.
-f -f -f
Mr. Guðmundur Grímsson hér-
aðsdómari frá Rugby, N. Dak.,
kom til borgarinnar ásamt frú
sinni á föstudaginn í vikunni,
sem leið. Brugðu þau hjón sér
norður til Gimli, en héldu heim-
leiðis á Iaugardaginn.
♦ ♦ ♦ iA
Jón G. Gíslason (Gilli£) lézt
að heimili sínu, Gimli, Man.,
sunnudaginn 14. þ. m., Iiðlega 87
ára að aldri. Hann var bróðir
Kristjáns Gíslasonar kaupmanns
á Sauðárkróki í Skagafirði, fs-
landi. Þessa velmetna manns
verður nánar getið siðar.
-f -f -f
Bárður Sigurðsson, hniginn
allmjög að aldri, og lengi blind-
ur, lézt að heimili sinu 562 Sher-
brook Street á laugardaginn var;
hann lætur eftir sig ekkju og
tvö uppkomin börn. Bárður heit-
inn var hinn vænsti maður, og
óvenju næmur á íslenzk ljóð.
Hann var jarðsunginn á þriðju-
daginn frá útfarastofu Bardals
af séra Philip Péturssyni.
-f -f -f
Bréf, sem eiga að komast til
íslands með Goðafossi, næstu
ferð hans, þurfa að vera koihin
til New York ekki siðar en að
morgni þess 25. þ. m. Upplýs-
ingar þessar lét hr. Árni Eggerts-
son fasteignakaupmaður Lög-
bergi í té á mánudaginn, en
honum hárust þr bréflega frá
Jóni Guðbrandssyni, umboðs-
manni Eimskipafélags fslands í
New York.
ISLENZK
neimilisiðnaðarverzlun
Seltir allar tegundir af heima-
munum, ullarvörum, svo sem
sokka, sport vetlinga, trefla, vél.
band og einnig íslenzk flögg og
spil. — Sérstakur gaumur gefinn
pöntunum utan af landi.
Halldóra Thorsteinsion
PHONE 88 551
Heimili: 662 Simcoe St.
Mr. Ragnar Eggertson fésýslu-
maður frá Wynyard, Sask., kom
til borgarinnar á mánudaginn í
heimsókn til föður síns, Árna
Eggertssonar fasteignasala.
f -f -f
STAKA
Það er sæla að geta geymt
gleði bernskuára.
Einnig fró ef fengjum gleymt
fjölda sorgartára.
B. S. Lindal.
f f f
Mr. Landeryon, sambandsþing-
maður frá Alberta. talar á Marl-
borough-hótelinu næstkomandi
mánudagskvöld kl. 8. Þeir. sem
hafa áhuga fyrir Alberta-hreyf-
ingunni og ánægju af því að
hlýða á góðan ræðumann ættu
að vera viðstaddir.
f f f
Herra P. O. Enerson bifreiða-
kaupmaður í Wynyard hefir gef-
ið Sambandskirkjunni í Wyn-
yard tvo rafmagnslampa með
skygnum. Eru þeir hvorttveggja
í senn, til hinnar mestu prýði
og bera viðfeldna birtu um
kirkjuna. Þessi rausn og sam-
úðarvottur til kirkjunnar, verð-
skuldar þakklæti allra, sem hlut
eiga að máli.—Jakob Jónsson.
f f f
Látin er nýlega héh í borginni
Miss Jakobína Gillis, systir
Sveinbjörns Gíslasonar trésnriðs
hér í borg, freklega sjötug að
aldri; hún ól upp tvær bróður-
dætur sínar og gekk þeim i góðr-
ar móður stað. Útför hennar
fór fram frá Clark-Letherdale
síðastliðinn mánudag.
f f f
Sunday, Jan. 21st, a meeting
will be held in the Icelandic
Federated Church in Wynyard.
Rev. Jakob Jónsson will speak
on the subject : “Our Church, its
origin, its History and its
Ideals.” After the talk there
will be a round table discussion
by the younger people regarding
the subject delt with hy the
minister. — Jakob Jónsson.
f f f
Þann 30. desember síðastlið-
inn, voru gefin saman í hjóna-
band að 818 Arlington Street hér
í borginni Arthur William Le-
Blanc og Bergþóra Sigurðsson
frá Viðir; er brúðurin dóttir
Jóns heitins Sigurðssonar fyrr-
um sveitaroddvita í Bifröst, og
seinni konu hans Sigrúnar.
Brúðguminn er af frönskum ætt-
um. Rev. Manning framkvæmdi
hjónavígsluna. Heimili ungu
hjónanna verður í Winnipeg.
mmmmmmwA
Söngsamkoma
Söngflokkur Sambandssafnaðar efnir til samkomu í
kirkjunni fimtudagskvöldið 25. janúar. Margir vinsælir
íslenzkir söngvar sungnir.
Thelma Guttormsson — Piano Solo
Ragna Johnson — Einsöngur
Pétur G. Magnús — Einsöngur
Árni Sigurðsson — Upplestur.
Aðgangur ekki seldur, en samskot tekin.
Samkoman byrjar klukkan 8.15 e. h.
FJÖLMENNIÐ
m
i
1
Hmmmmmmm
mrnmm
MMmm
PCACL CALH/iS€N
VIOLIN RECITAL
CCNCECT EALL
WINNIPEG AUDITORIUM
VORK AVE. ENTRANCE
THURSDAY, HÍB. ®th AT 8.30 P.M.
SNJÓLAUG SI(iURDSON at the Piano
AIjIj 8EATS RESERVED 50<-
Box Office: James Croft & Son
»19 GARRY STREET
Tlckets also available at:
054 BANNING STREET — PHONE 37 843
Mr. Peter Anderson forstjóri
North-West kornsölufélagsins
hér í borginni, lagði af stað
suður til Miami, Florida á
sunnudagskveldið, og ráðgerði
að dvelja þar að minsta kosti i
tveggja mánaða tíma.
f f f
I dánarfregn Mrs. Hélgu sál.
Sólriiundson á Gimli, er birtist
í síðasta blaði, er þess getið, að
hún hafi verið fædd á Hafnar-
strönd í Skagafirði. En, sam-
kvæmt frekari upplýsingum mér
gefnum, er hún fædd í Bæ á
Höfðaströnd í Skagafirði. Leið-
réttist því þessi ritvilla hér með.
—B. A. Bjarnason.
f f f
BARNAKÓR R. H. RAGNAR
Barnakór sá, er R. H. Ragnar
hefir æft undanfarin ár, byrjar
æfingar þessa viku. F'yrsta æf-
ingin verður föstud. 19. jan. n.k.
í Jóns Bjarnasonar skóla, kl.
6.30 e. h. Börn þau er óska eftir
að taka þátt í söngnum eru beð-
in a-ð koma stundvíslega. Með-
limagjald er einn dollar fyrir
hvert barn. Frekari upplýsingar
má fá hjá R. H. Ragnar, —
sími 31 476.
f f f
Næsti Fróns-fundur verður
hjaldinn þriiðjudagskvöldið 23.
þ. m„ í efri sal Goodtemplara-
hússins. Dr. Kristján Austman
flytur ræðu. Mrs. Grace John-
son syngur einsöngva. R. H.
Ragnar leikur á píanó, og fleira
verður þar til skemtunar. For-
seti deildarinnar, Mr. S. Thor-
kelsson hefir heitið verðlaunum
til þess manns eða konu, sem
flesta meðlimi fær til að ganga
í félagið. Þar sem timinn er
nú útrunninn, er óskað eftir að
menn komi með nöfn þeirra,
sem hafa gengið i félagið og
verða verðlaunin afhent á fund-
inum. Fundurinn byrjar stund-
víslega klukkan 8.15. Allir vel-
komnir.
f f f
Skafti Grímólfson og Jónasína
Ruby Benson voru gefin saman
í hjónaband af séra Bjarna A.
Bjarnason 14. janúar, í kirkju
Mikleyjar lúterska safnaðar, að
viðstöddu miklu fjölmenni. Eftir
giftinguna var vegleg brúðkaups-
veizla haldin í samkomusal eyj-
arinnar, undir lipurri stjórn
Skúla Sigurgeirssonar. Til máls
tóku, auk samsætisstjórans og
prestsins, þau systkinin Helgi
Tómasson og Mrs. Christine
Jefferson, svo einnig brúðurin
með þakkarorð. Skemtiskráin
var fjölhreytt og góð, veitingar
rausnarlegar, brúðargjafir marg-
ar og verðmætar, og kvöldstund-
in öll hin ánægjulegasta. For-
eldrar brúðgumans eru Jóhannes
og Guðrún Grímólfson á “Ljós-
hússtanganum” í Mikley; en
brúðurin er dóttir Benedikts og
Guðrúnar Benson, einnig i
Mikley. Heimili hinna ungu og
vinsælu brúðhjóna verður þar í
heimabygðinni.—B. A. R.
f f f
MINNISVA RÐA SJÓÐUR
K. N. JÚLÍUSAR
Friðrik Sveinsson, $5; Þ. Þ. Þ„
$1; H. A. Bergman $10; Soffanias
Thorkelson, $10; Peter Ander-
son, $5; Páll S. Pálsson, $2; Dr.
Sig. JÚI. Jóhannesson, $2; Árni
Eggertson, $3; Thorleifur Han-
son, $1; ónefndur ðl; Halldór
Swan, $1.50; Guðman Levy, $1;
Gísli Johnson, $1; Jón J. Sam-
son, $1; Jón ólafson, 50c; Sig-
urður Sigurðsson, Flin F'Ion, $1;
Friðbjörn Friðrikson, $1; ó-
nefndur, 50c; Ásgeir Guðjohn-
sen, $1; Johann Beck, $1; Frið-
rik Kristjánsson, $10; Jakob
Kristjánsson, $1; Dr. Baldur H.
Olson, $2; Dr. Rögnv. Pétursson,
$5; Hannes Pétursson, $5; ólaf-
ur Pétursson, $10; Rev. Philip
M. Pétursson, $2; B. E. Johnson,
$2; Mrs. Hallbera Gislason, $1;
Dr. M. B. Halldórson, $2; G. ,1.
Johnson, $1; Mrs. Jónína Davíð-
son, Giinli, $1; Mrs. Ingibjörg
Bjarnason, Gimli, $1; Mrs. C. B.
Júlíus og fjölskylda, $7; Mrs.
J. Júlíus, $1; Mrs. B. S. Benson,
$2. — AIIs ...............$102.50
The Wolf Cubs and Bov
Scouts of the 71 st Winnipeg
Pack and Troop, of the First
Lutheran Church, will hold a
Silver Tea on Tuesday night,
January 23rd, in the Church
Parlors. There will be a short
variety program. All friends are
cordially invited.
f f f
Á fjölmennum safnaðarfundi,
sem haldinn var í Fyrstu lút.
kirkju á þriðjudagskvöldið sam-
þykti söfnuðurinn með meiri
hluta atkvæða að aðhyllast tillög-
ur síðasta kirkjuþings um sam-
vinnu íslenzka lúterska kirkju-
félagsins við United Lutheran
Church in America. Málið er
enn óafgreitt í nokkrum söfn-
uðum, endanleg úrslit þess því
epn óráðin.
f f f
YOUNG ICELANDERS’ NEWS
The annual meeting of the
Y.I. will be held on Sunday,
January 28th, 1940 — at the
home of Mr. and Mrs. A. S. Bar-
dal, 62 Hawthorne Ave„ East
Kildonan. The meeting com-
mences at the usual time, 8.30.
All members and prospective
members are urged to be present.
All wishing to go meet at the
Jón Bjarnason Academy at 8.15
o’clock sharp. Car owners are
asked to co-operate in transport-
ing those who have no cars.
A skating party will be held
next Wednesday evening, Jan.
24, at River Park. All those
going will meet at the J.B.A. at
8 o’clock. A good time is as-
sured.
f f f
ÞAKKLÆTI
Okkar innilegt þakklæti biðj-
um við Lögberg að færa kvenfé-
lögunum báðum, Fríkirkju safn-
aðarins á Brú P.O. og Grund
Ladies’ Aid, fyrir jólagjafirnar,
sem þær sendu okkur mæðgun-
um um jólin. Við urðum svo
hissa, að alókunnugar konur
skyldu hugsa til okkar um jólin.
En mannúð og vinsemdar hlut-
tekning til þeirra, sem eru veikir,
er eitthvert það fegursta kær-
leiksverk, sem unnið er. Og við
biðjum þann, sem alt sér og alt
launar, að blessa ykkar göfuga
starf í framtíðinni. Guð gefi
ykkur öllum farsælt nýtt ár og
mörg af þeiin.
Með vinsemd,
Björg og Friðrika Johnson.
Manitoba Sanitoriuni,
Ninette, Man.
f f f
Forstöðunefnd K. N. Minnis-
varðans, hefir valið eftirgreint
fólk til þess að veita viðtöku
fjárframlögum í minningarsjóð-
inn:
Kristján Kristjánsson,
Garðar, N. Dakota
G. B. Olgeirsson,
Garðar, N. Dakota
W. G. Hillman,
Mountain, N. Dakota
T'h. Thorleifsson,
Mountain, N. Dakota
B. Stefánsson,
Hallson, N. Dakota
B. Thorvardson,
Akra, N. Dakota
Ásgrímur Ásgrímsson,
Hensel, N. Dakota
S. S. Einarsson,
Upham, N. Dakota
ólafur Pétursson,
Winnipeg, Man.
Friðrik Kristjánsson,
Winnipeg, Man.
Mrs. B. S. Benson,
Winnipeg, Man.
N OTIC E
Silver Tea will be held under
the auspices of the Grand Lodge
of Manitoba and the lodges
Hekla, Skuld and Britannia,
I.O.G.T. on Monday, Jan. 22, in
7th floor Assembly Hall, T.
Eaton Co„ from 2.30 to 5.30.
Receiving will be Mrs. A. S.
Bardal, Mrs. V. J. Eylands, Mrs.
G. Belton; in charge of Home
Cooking: Mrs. G. Johannson and
Mrs. S. O. Bjerring. Table Con-
venors: Mrs. ,1. T. Beck, Mrs.
H. Isfeld, Mrs. S. Oddleifson,
Miss S. Eydal, Mrs. E. Carr, Mrs.
Battley, Mrs. P. Guðmundson,
Mrs. J. Magnússon.
Illllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllll!!lllllllllllll!lll!lllllllll
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA IURKJA
Séra Valdimar ./. Eglands
Heimili: 776 Victor Street.
Sími 29 017.
Sunnudaginn 21. janúar:
Guðsþjónusta á ensku kl. 11
f. h.; sunnudagsskóli kl. 12.15;
íslenzk guðsþjónusta kl. 7 e. h.
f f f
VATNABYGÐIR
Sunnudaginn 21. janúar:
Kl. 11 f. h„ sunnudagaskóli í
Wynyard; kl. 2 e. h„ fundur
(samkv. sérstakri augl.).
Jakob Jónsson.
f f f
GIMLI PRESTAKALL
Sunnudaginn 21. janúar:
Betel, morgunmessa; Gimli, ís-
lenzk messa og ársfundur, kl.
3 e. h.; sunnudagaskóli Gimli-
safnaðar kl. 1.30 e. h. — Ferm-
ingarbörn á Gimli mæta föstud.
19. jan„ kl. 3 e. h„ á prests-
heimilinu.
B. A. Bjarnason.
f f f
PRESTAKALL NORÐIJR
NÝJA ISLANDS
Áætlaðar messur um nokkra
næstu sunnudaga:
21. jan. Árborg, kl. 2 síðd.
28. jan. Hnausa, kl. 2 síðd.
4. febr. Víðir, kl. 2 síðd.
11. febr. Geysir, kl. 2 síðd.
11. febr. Árborg, kl. 8 síðd.,
ensk messa.
18. febr. Riverton, kl. 2.30 síð.
18. febr. Riverton, kl. 8 síðd.
ensk messa.
25. febr. Framnes, kl. 2 síðd.
25. febr. Árborg, kl. 8 síðd.
S. ólafsson.
Minrýát BETEL
í
erfðaskrám yðar
Hefðarfrú í London þurfti,
vegna sjúkdóms, að fá blóði úr
öðrum manni sprautað í æðar
sér. Skoti einn varð fvrir val-
inil, að láta dæla úr sér blóðinu
og fékk frúin honum fimm
punda seðil að því loknu. En
svo varð hún að tara til hans í
annað sinn, og rann- þá svo mik-
ið Skotablóð í æðum hennar, að
hún lét sér nægja að kinka kolli
og segja við Skotann: “Þakka
yður fyrir.
•
Maður kemur i heimsókn að
skozkum heiðabæ. Hann gefur
sig á tal við bónda og spvr hann
hvernig hann geti látið búskap-
inn á þessu heiðarbýli bera sig.
“Jú,” segir bóndi, “þessi mað-
ur vinnur hjá mér, en eg get
ekkert kaup borgað honum. Eftir
tvö ár fær hann jörðina upp í
skuld og þá gerist eg vinnumað-
ur hjá honum, og þannig geng-
ur það koll af kolli.
•
MacTean hefir keypt sér nýtt
bindi. Hann borgar með stórum
peningaseðli og fær mikið af
smápeningum til baka. Hann
telur þá vandlega tvisvar. Þegar
hann, byrjar að telja þá í þriðja
skiftið, segir kaupmaðurinn:
“Er þetta ekki rétt, herra?”
“Jú, jú,” tautar MacTean, “en
heldur ekki meirá!”
•
Konan: “Hefirðu ekki séð
fingurbjörgina mína, Angus?”
Maðurinn: “Jú, hún stendur
hjá whiskyflöskunni. Eg gaf
MacWhister whisky í ‘ gær-
kvöldi.”
Jakob F. Bjaroasoo
TRANSFER
Annast greiBlega um alt, sem aC
flutningum lýtur, smáum eða
stórum Hvergi sanngtjarnara
verB.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Slmi 35 909
■Til þess að tryggja yður
shjóta afgreiðslu
SkuluC þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKDE, Manager
Light Delivery Truck
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT and AGNES
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Ag’ents for BULOVA Watches
Marriage Licenses Tssued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers and JeioeTlers
699 SARGENT AVE., WPG.
Wolseley Hotel
186 HIGGINS AVE.
(Beint á móti C.P.R. stöðinni)
SÍMI 91 079
Eina skamlinavlska hóteliO
i borginni
RICHAR LINDHOLM,
eigandi
Ársþing Þjóðrœknisfélagsins
verður haldið í Groodtemplarahúsinu í Win-
nipeg dag-ana 19., 20. og 21. febrúar næst-
komandi. Dagskrá þingsins verður auglýst
síðar.
Winnipeg, 15. janúar, 1940.
GISLI JÓNSSON, ritari..
Ú3
For Good Fuel Values
ORDER
WILDFIRE LUMP $11.75 PerTon
(DRUMHELLER)
BIGHORN SAUNDERS CREEK
(Saunders Area) LUMP $13.50 PerTon
CANMORE BRIQUETTES $13.75 PerTon
SEMET-SOLVAY COKE $15.50 PerTon
STOVE OR NUT
PHONES
23 811
23 812
C^\URDY OUPPLY
’BUILDERS
LICENSE No. 51
iO. Ltd.
^and COAL
fSUPPLIES
1034 ARLINGTON ST.
I