Lögberg - 09.05.1940, Page 1

Lögberg - 09.05.1940, Page 1
X PHONE 86 311 Seven Lines ,A VVw>''s.0> Cot- Service and Satisfaction ÁVD ‘'ÍS 3CIOJJ Cf7 nossjnjaj H .A9}J PHONE 86 311 Jk Seven Lines c0<* Better Dry Cleaning and Laundry 53. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. MAI, 1940 NÚMER 19 ísland tekur æðstu stjórn allra sinna mála í sínar hendur Sameinað Alþingi samþykti á fundi í nótt kl. 2.50 eftirfarandi tillögur til þingsályktunar frá ríkisstjórninni um æðsta vald í málefnum ríkisins og um með- ferð utanríkismála og landhelgis- gæzlu: “Með því að ástand það, sem nú hefir skapast, hefir gert kon- ungi íslands ókleift að fara með vald það, sem honum er fengið i stjórnarskránni, lýsir Alþingi yfir þvi, að það felur ráðuneyti fslands ag svo stöddu meðferð þessa valds.” “Vegna þess ástands, er nú hefir skapast, getur Danmörk ekki rækt umboð til meðferðar utanrikismála fslands samkvæmt 7. gr. dansk-íslenzkra sambands- laga né ilandhelgisgæzlu sam- kvæmt 8. gr. téðra laga. og lýsir Alþingi þess vegna yfir því, að ísland tekur að svo stöddu með- ferð mála þessara að öllu leyti i sínar hendur.” Báðar þessar tillögur voru sam- þyktar að viðhöfðu nafnakalli með 46 samhljóða atkvæðum, en þrír þingmenn voru fjarverandi: Finnur Jónsson, sem nú dvelur í Noregi, Gísli Guðmundsson og Pétur Halldórsson, sem báðir eru veikir. • Þegar það varð kunnugt hér í gærmorgun, að þýzkur her var að leggja undir-sig Danmörku og að danska stjórnin og kon- ungurinn höfðu tekið við vernd Þýzkalands, var fundum alþingis frestað, en fundur tafarlaust settur í ríkisstjórninni. Strax að þeim fundi loknum var utan- ríkismálanefndin kölluð saman á fund, og sat ríkisstjórnin einnig þann fund. Á þessum fundum voru hin pýju viðhorf rædd gaumgæfi- lega, en að þeim loknum var boðaður fundur með öllum stuðningsmönnum stjórnarinnar og málin rædd þar. Þegar þessir aðilar voru orðn- ir sammála um hvernig mæta skyldi hinu nýja viðhorfi, var boðaður sameiginlegur fundur ineð miðstjórnum allra flokk- anna og þingflokkunum, ásamt Bændaflokksmönnum og Héðni Valdimarssyni. Hófst þessi fundur kl. 10 i gærkvöldi og stóð óslitið til kl. að ganga 2 í nótt. Samstundis, að þessum fundi loknum, var boðaður fundur í sameinuðu al- þingi. og hófst hann kl. 2.25 og stóð til kl. 3. • Þegar forseti sameinaðs þings, Haraldur Guðmundsson, hafði sett fundinn, kvaddi Hennann Jónasson forsætisráðherra sér hljóðs og sagði: “Vegna þess ástands, sem skapast hefir i Danmörku og ríkir þar, hefir ríkisstjórnin á- kveðið. eftir að hafa haft ítar lega ráðagerð með útanríkis- málanefnd og þingmönnum þeim sem stvðja ríkisstjórnina, að bera fram tvær tillögur, sem út- býtt hefir verið varðandi æðsta valdi í málefnum rikisins og meðferð utanrikismála og land- helgisgæzlu. Telur hún óhjá- kvæmilega nauðsyn að alþingi iamþykki þessar tillögur án tafar.” • Þessi tíðindi eru einhver þau- merkustu, sem gerst hafa á al- þingi íslendinga, og fundurinn í nótt mun verða í sögunni skráður sem einhver merkasti fundur þess. Það mun ekki þurfa að skýra það fyrir mönn- um, hvílik nauðsyn bar til þess að slíkar samþyktir væru gerð- ar, eins og nú er komið. —Alþbl. 10. apríl. Bretar senda alrœðismann til Islands Pétur Benediktsson' skipaður erindreki i London fyrir hönd ístenzku stjórnarinnar. Dagblöð Winnipegborgar fluttu þau tíðindi á laugardaginn var, að brezka stjórnin hefði ákveð- ið að senda alræðismann til ís- lands, en áður hafði hún ein- ungis vísikonsúl í ReykjaHk. Sama fregn lætur þess getið, að stjórn íslands hafi skipað Pétur Benediktsson til erindreka i London fyrir sína hönd. Pétur er sonur Benedikts Sveinssonar bókavarðar og fyrrum alþingis- forseta. GUNNAR B. BJÖRNSON l fyrra var Gunnari B. Björnsyni skattstjóra í Minneapolis boðið til íslands af hálfu íslenzkra stjórnarvalda, en eins og þá hagaði til. gat hann ekki þegið boðið; nú Jiefir heim- boð þetta verið endurtekið, samkvæmt upplýsingum. er Grettir konsúll Jóhannsson lét Lögbergi gúðfúslega i té. og leggja þau Mr. og Mrs. Björnson af stað til íslands frá New York á laugardaginn kemur með Dettifossi; verður Gunnar aðalræðumaður á næstkomandi Vestmannadegi á Þingvöllum þann 17. júní næstkomandi. Meðal farþega verða einnig Mr. ög Mrs. Ásmundur P. Jóhannsson, Mr. og Mrs. Árni Eggertsson, Miss Kristín Johnson, Mr. Edward Kuniholm aðalræðismaður Bandaríkjastjórnar til fslands. og Sveinn Björnsson, sem gegnt hefir sendiherraembætti fyrir hönd íslandsstjórnar í Kaupmannahöfn. Fregnina um siglingu Mr. Kuniholms og Sveins Björnssonar með Detti- fossi, lét Árni G. Eggertson, K.C., Lögbergi í té, en hann fékk hana bréflega frá Gretti bróður sínum í New York. Islenzkir þjóðréttir á heimssýningunni í New York Sú nýjung verður á íslands- sýningunni i New York, þegar hún hefst nú að nýju. að rekinn verður veitingaskáli í sambandi við sýninguna og verða þar á boðstólum allskonar þjóðlegir réttir. Sýningin verður opnuð 11. maí næstkomandi. Þessar upplýsingar fékk Morg- unblaðið hjá Thor Thors alþm. í gær, er blaðið átti tal við hann um sýninguna. Thor sagði: Við höfum fengiS umráð yfir skála þeim, sem er við, hlið fslandsskálans og verð- ur þetta veitingaskáli meðan á sýningunni stendur. f veitinga- skálanum verða framreidd alls- konar íslenzk matvæli. Forstöðu skálans hefir einn þektasti veit- ingamaður í New York, Larsen að nafni. Verður þessi veitinga- skáli rekinn okkur að kostnað- arlausu. Ennfremur er ákveðið að hafa fjölbreytta málverkasýningu í sambandi við sýningu okkar, og ef til vill einnig kvikmyndasýn- ingu. Haraldur Árnason kaupmaður fer vestur með næstu ferð Goða- foss, til þess að ganga frá sýn- ingarskála okkar, með Vilhjálmi Þór, sem enn dvelst vestra. Danir hafa nú ákveðið að fara að fordæmi okkar fslendinga og sýna áfram. Þeir höfðu, sem kunnugt er, áður ákveðið að verða ekki þátttakendur í sýn- ingunni á þessu ári. —Mbl. 9. apríl. “Taugastríð” Norðurálf- unnar harðnar—Bretar kveðja heim iið sitt ár Mið- og Suður Noregi Sléttueldar í Lundarbygð ualda mildu eignatjóni f fyrri viku geysuðu sléttu- eldar um bygðir íslendinga í grend við Lundarbæ, er ollu all- miklu eignatjóni; brann einkum allmikið af heyjuin; er það róm- að mjög hve bændur og aðrir bygðarmenn lögðu hart að sér til þess að vernda íbúðar- og peningshús gegn hinum hvæs- andi og sogandi eldtunguin. Steypiregn kom um síðastliðna helgi, er slökt mun hafa sléttu- elda á þessum og mörgum öðr- um brunasvæðum. 214 ísleuzkir námsmenn á Norðurlöndum Samkvæmt upplýsingum þeim, sem Upplýsingaskrifstofa Stú- dentaráðs hefir fengið, stunda nú 214 íslenzkir námsmenn (og konur) nám á Norðurlöndum. Það skiftist þannig niður á Norðurlöndin: í Danmörku eru 160, í Noregi 27, og í Svíþjóð 27. Af þessu námsfólki eru rúm- lega 70 stúdentar, sem ekki hafa lokið prófi og 22 kandidatar. —Mbl. 10. apríl. Þau tíðindi hafa einna sögu- legust gerst undanfarna daga, að Bretar ákváðu að kveðja heiin þann liðsafla sinn, er þeir höfðu sett á land til varnar innrás þýzka hersins í Mið- og Suður Noregi; voru síðustu hersveit- irnar kvaddar til baka frá Namsos, og fóru þar um borð i brezk herskip; eitthvað af þessu liði er mælt að sent hafi verið norður til Narvik, þó eigi muni það hafa verið mannmargt,— Afdrif þessa brezka leiðangurs til Noregs hafa vakið megna óá- nægju í þjóðþingi Breta, og veit- ast mörg helztu blöðin þunglega að Mr. Chamberlain og ráðu- neyti hans; reifði forsætisráð- herra málið í þingræðu á þriðjudaginn. og varði afstöðu stjórnarinnar eins og hann bezt fékk viðkomið; viðurkendi hann það. að leiðangurinn til Noregs hefði valdið stjórninni nokkrum álitshnekki, að minsta kosti í svipinn; þó mætti því ekki gleyma, að við ofurefli hefði ver- ið áð etja þar sem þýzki loft- flotinn var, er náð hafði haldi á meginflugstöðvum Noregs áð- ur en hrezki herinn kom til landsins; þetta hefði gert Bret- um margfalt örðugra fyrir og áhættumeira, en ella myndi ver- ið hafa. Mr. Chamberlain kvað það vera síður en svo, að Bretar hefði gefið upp stuðning sinn við Norðmenn; umsátrinu um Narvik yrði haldið áfram unz yfir lyki með sigri fyrir her bandamanna. Þá lýsti Mr. Cham- berlain yfir því, að frá þessum tíma hefði Mr. Churchill með höndum yfirumsjón stríðssókn- arinnar allrar frá degi til dags, jafnframt því sem hann gegndi forustu flotamálaráðuneytisins. F2kki verður blöðum um það flett, að Chamberlain-stjórnin hafi mjög tapað í áliti vegna leiðangurs síns til Noregs, og var slíkt óhjákvwmilegt; hvort það riður henni að fullu, er enn eigi vitað, með þvi að umræðum um vantraustsyfirlýsingu af hálfu verkamannaflokksins, sem er mannflesti flokkur stjórnarand- stðæinga á þingi er enn eigi lok- ið. Áður en gengið verður til atkvæða flytja ræður þeir Wins- ton Churchill og David Lloyd George. Tveir af áhrifamönnum stjórnarflokksins. þeir Col. Amerv, fyrrum flotamálaráð- herra og jarlinn af Winterton, um eitt skeið ráðherra í Cham- berlain-stjórninni, töldu stjórn- ina með öllu hafa fyrirgert trausti sínu hjá þjóðinni vegna hiks og istöðuleysis í sambandi við sókn stríðsins. Bretar og Frakkar hafa sent ógrynni herskipa til Alexandríu, sem sagt er að stafi af óvissunni um afstöðu ítala, sem ávalt ann- að veifið hafa í hótunum um, að láta til skarar skríða í Miðjarð- arhafinu. Þjóðverjar stæra sig af því, að hafa fengið vissu fvrir fullum stuðningi ungverskra stjórnar- valda ef á þurfi að halda, og komist að hagkvæmum viðskifta- samningum við þjóðina, hvort sem nokkuð er á þvi að byggja eða ekki, því nú er daglega “mörgu logið,” eins og Benedikt Gröndal segir í Heljarslóðaror- ustu. GEORGE LANSBURY LÁTINN Nýlega er látinn í London friðarvinurinn víðkunni, George Lansbury, 81 árs að aldri; hann var einn af mestu áhrifamönn- um verkamannaflokksins brezka og átti sæti í ráðuneyti Ramsay McDonalds; um nokkur ár var hann foringi flokksins. Song of íhe Souitlk Winíl O sing to me, that I may learn your song, Ye happy birds! Come, pipe your lay, and fill The air with music fairylike, until Night spreads her shadowy robes. My way is long, And I would bear with me the liquid notes Of your sweet song. Give me of your warmth, O sun, that I May wake the distant North with vital breath, May stir the life that, shrouded, lies like death Silent and still. From plain and woodland nigh, O flowers, give me of your fragrant scent As I pass by. And I shall waft across the reaches wide, And woo with gentle words the icy North, Woo her till she wakes and ventures forth And, half-bewildered, smiles and casts aside Her snow-white veil. Then shall I kiss the lips Of my fair bride. —Helen Swinburne, Midnapore. 1 t «. * MISS KRISTIN JOIINSON Miss Johnson siglir með Dettifossi áleiðis til fslands á laugardaginn kemur; hún er heitmev Ragnars lögfræðings ólafssonar í Reykjavík. en dóttir Mr. og Mrs. Hinrik Johnson, sem lengi bjuggu við Ebor, Man.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.