Lögberg - 20.06.1940, Blaðsíða 8

Lögberg - 20.06.1940, Blaðsíða 8
« LÖGBEBG, FIMTUDAGINN 20. JÚNl 1940 Bezti Svala- drykkurinn 2-glasa flösku Úr borg og bygð MA TREIÐSLUBÓK Kvepfélaga Fyrsta lúterska safn- aðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld- sted, 525 Dominion St. Verð: $1.00. Burðargjald 5c. -f -f -f Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 27. þ. m. -f -f -f Dr. A. B. Ingimundson verð- ur staddur í Riverton þann 25. þessa mánaðar. -f -f -f Mr. .1. H. Norman frá Hensel, N. Dak., komu til borgarinnar á mánudaginn og dvaldi hér fram um miðja vikuna. -f -f -f Ákveðið hefir verið að guðs- þjónustur falli niður í Fyrstu lút. kirkju frá fyrsta júlí ti! 11. ágúst. Þá hefjast aftur guðs- þjónustur á islenzku að kvöld- inu. -f -f -f Á skrifstofu Lögbergs er geymt íslandsbréf með eftir- greindri áritan: To Maryand Valdis, daughters of Mrs. Inga Valdasen, Winnipeg, Canada. Bréfið er frá frú Steinunni Stefánsdóttur i Skálholti í Bisk- upstungum. •f -f -f Þann 11. þ. m. lézt að heim- ili sínu i grend við Otto pósthús hér i fylkinu, Guðmundur bóndi Thorleifsson 82 ára að aldri; hann var jarðsunginn þann 13 þ. m. í Ottografreit af séra Valdi- mar .1. Eylands. -f -f -f Ungmenni fermd í Víðissöfn- uði sunnudaginn 16. júní: Sesselja Grace Eyjólfsson Jóhanna Guðbjörg Kristjánson Emily Magnússon Jakobína Guðrún Benderson Sigfús Franklvn Pétursson Torfi Sigurðsson. -f -f -f You can possibly afford to lose vour car in an accident, but you cannot afford to be sued for injury or death to a person caused by your car. Liability insurance protects you against this. In addition to insurance of all kinds we arrange the finance of automobiles being purchased. J. J. SWANSON & CO„ LTD. 308 Avenue Bldg. -f -f -f Þann 12. þ. m. lézt hér í borg- inni frú Jórunn Kristolina Hall- dórsson, ekkja H. K. Halldórs- sonar, mikilhæf kona og vel metin; hún var fædd á íslandi 1864, en fluttist hingað til lands 1883. Eftirgreind börn lifa móð- ur sína: Wilhelm, Laura, Mrs. Ward Shaver, Halldór, Franklin og Annabella, öli í Winnipeg, og Mrs. Harry VVhite í Vancouver. Bræður hinnar látnu, búsettir í Winnipeg, eru þeir William, Kristján, Magnús og Alex. — Útför frú Jórunnar fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á föstu- daginn þann 14. þ. m. Séra Valdimar J. Evlands jarðsöng. MIRACLE YEAST Bakar brauð á 5 tímum. Borðið það heilsunnar vegna. Gott ger fyrir bruggun. Framleitt hjá DYSON’S LTD. WINNIPEG MANITOBA Hinn 17. júní s.l. voru gefin saman í hjónaband á prests- heimilinu í Glenhoro, þau ungfrú Alice Florence Joel og Sveinn Sigurjón Sveinsson bæði frá Baldur, Manitoba. Brúðurin er dóttir Friðbjarnar Joel og konu hans Guðnýjar Antoníusdóttur, sem búa skamt frá Baldur, en brúðguminn er sonur Jóns Sveinssonar og konu hans Sig- urveigar Jóhannsdóttur, sein heimili eiga í Baldur. F.ftir brúðkaupsför til Winnipeg og annara staða í Manitoba, verður framtíðarheimili ungu hjónann:- í Baldur, þar sem brúðguminn vinnur á járn- og trésmíðaverk- stæði í íélagi með föður sínutn. Séra Egill H. P'áfnis framkvæmdi hjónavígsluna. -f -f -f Hjónavígslur framkvæmdar af séra H. Sigmar í fyrri hluta júní mánaðar: Joyce M. Oihus og William Baldwin, á heimili foreldra brúðarinnar í Nash, N. IX, á laugardaginn 8. júní. Thóra G. Björnson og Kristján Dinus Dinusson, á heimili for- eldra brúðarinnar, Mr. og Mrs. S. T. Björnson, Hensel, N.D., þriðjudaginn 11. júní. Sigurjóna H. Johnson og Barnie Matthiasson á heimili móður brúðarinnar, Mrs. John- son í Edinburg, N.D., laugardag- inn 15. júní. Kristbjörg Ethe! Rristjánson og Harold Steingrimur Sigmar, í Víkurkirkju, Mountain, N.D., á laugardaginn 15. júní. -f -f -f Þann 11. þ. m. voru þau George Guðni Thompson og Guð- mundína Jóhanna Guðjónsson gefin saman í hjónaband á heim- ili brúðarinnar nálægt Mozart, Sask. Séra Carl .1. Olson em- bættaði. Foreldrar brúðarinnar eru þau Gisli Guðjónsson og kona hans Guðbjörg Hólmfriður Sigurðardóttir. Foreldrar brúð- gumans eru búsett að Svold, N. IX, og heita Kristján Thomp- son og Rebecca Benson Thomp- son. — Framtíðarheimili brúð- hjónanna verður að Cavalier, N. D. Fjöldi af ættmönnum og vinum óskar þeim allrar ham- ingju og blessunar. Brúðhjónin voru sem dagurinn og hann var sólríkur og indæll. -f -f -f Eins og auglýst er á öðruin stað í þessu blaði ætlar Karlakór íslendinga í Norður-Dakota, að takast all-langa ferð á hendur síðustu dagana af júnímánuði, og syngja undir leiðsögn Ragnars H. Ragnar, söngstjóra, í Wyn- yard, Sask., 27. júní, i Mozart, Sask. 28. júní, og í Leslie, Sask. 29. júní. Og eiga allar þessar samkomur að byrja kl. 8.30 að kveldinu. Söngsveitin hér syðra er ekki að ráðgjöra þessa ferð til fjár eða frama, heldur er það miklu fremur í vinsemdar erindum, sem ferðin er fyrirhuguð. Marg- ir hér í Norður Dakota bygðun- um, og þá Iíka ýmsir í karla- kórnum, eiga náin skyldmenni og kæra vini í Vatnabygðunum i Saskatchewan. Og er þeim það nú óblandið ánægjuefni, að stefna á fund frnda og vina þar vestra, sein hafa boðið þá svo einlæglega velkomna til sín. Er það mjög einlæg Iöngun karla- kórsins, að ferðin geti orðið þeim öllum, sem hlut eiga að máli til mikillar ánægju, og megi eiga sinn þátt í þvi, að treysta vin- áttuböndin milli bygðanna þar vestra og suður hér. x. A Speclal Message to Canadian Housewives Your house cleaning can now be made a pleasure by using our modern up-to-date cleaning brushes, polishes, moth-preventatives, cleaning powder, etc. Over 69 different articles designed purpoi3ely to take the drudgery out of your houáe work. All goods fully guar- anteed. WEAR EVER BRUSH COMPANY 622 Mclntyre Blk., Winnipeg. Phone 94 885 Offices in all leading cities. . Represented by Mrs. Ása Jónasson Mr. W. J. Arason, Valdi son- ur hans og Björn Johnson frá Gimli, voru staddir í borginni á föstudaginn var. f f f Á laugardaginn 15. júní voru þau Sigurður Oscar Gíslason frá Havland P.O. og Guðrún (Rúna) Johnson frá Vogar, gefin saman í hjónaband að 776 Victor St. Séra Valdimar J. Eylands gifti. f f f Vígð voru til hjónabands í Fyrstu lútersku kirkju á laugar- dagskvöldið þann 15. júní, þau Duncan Douglas Forrester og Thelma Eileen Nicholson. Brúð- urin er dóttir Mrs. Bertha David- son Nicholson að 557 Agnes St. Framtíðarheimili ungu hjónanna verður í Vancouver, B.C. Séra Valdimár J. Eylands fram- kvæmdi hjónavígsluathöfnina. , f f f IiRlSTlN BENSON In loving memory of our darling mother who passed away June 12th, 1935: Sunshine passes shadows fall Loves remembrance outlasts all, And though the years be many or few They are filled with remembrance of your, inother dear. —Jean Powell. f f f VEITIÐ ATHYGLI ! Á öðrum stað hér í blaðinu birtist auglýsing frá Wear Ever Brush félaginu, sem orðlagt er frá hafi til hafs fyrir vamlaðar vörur’. Félag þetta selur gólf- bursta, ryksugur, og margt ann- að, sem að því lýtur að halda einkaheimilum og fjölbýlishús- um hreinum og fáguðum. ís- lenzk kona, vinsæl og velmetin, frú Ása Jónasson, 215 Kensing- ton Street, St. James. starfar í þjónustu þessa umrædda félags, og sýnir vörur þess, og hvernig þeim skal beitt, þannig, að sem beztu haldi megi koma. Mrs. Jónasson sýnir Wear Ever áhöldin á heimilum. og væri þá gott, að sem flestar konur slái sér saman um að verða sýning- anna aðnótandi og það á sem allra flestum heimilum; þar sem sýningar eru haldnar, fær hús- móðirin eitt þeirra áhalda, sem sýnt er, að gjöf. Kirkjur og klúbbar geta einnig fært sér þetta i nyt, og kemur það sér vel fyrir stofnanir, sem þurfa að afla sér peninga, því álitleg upp- hæð af því, sem með þeim hætti selst, rennur i sjóð þeirra. Wear Ever Brush Company hefir skrifstofu að 622 Mclntyre, Winnipeg. Sími 94 885. f f f Mannúðarálarfsemi Kvenfélag Fyrsta lút. safn. í Winnipeg hefir tekið að sér að vinna eftir mætti fyrir Red Cross félagið í næstu tvo mánuði, júlí og ágúst. Er vinnan í því inni- falin að sauma og prjóna ýmis- konar fatnað, sem herinn þart á að halda. Kvenfélagið hefir fengið lofun fyrir húsnæði í Jóns Bjarnasonar skóla og er Æflast til að vinnan fari aðallega þar fram. Einnig hefir það fengið lofun fyrir þremur sauma- vélum til afnota þessa tvo mán- uði. Red Cross leggur til efnið, en kvenfélagið ætlar að Ieggja fram eins mikla vinnu eins og það getur í þessa tvo mánuði. Margar konur hafa nú þegar boðist til að taka þátt í þessu verki, en þær sem ekki hafa enn gert það, en kvnnu að eiga þess kost að hjálpa eitthvað til, hvort sem þær tilheyra kvenfélaginu eða ekki, eru vinsamlega beðnar að gefa sig fram við undirritaða við fyrstu hentugleika. Hér er um mikið nauðsynjaverk að ræða og allar íslenzkar konur, sem hér eiga heima, eru vafa- laust viljugar að leggja fram þá hjálp sem þær eiga kost á, hver um sig. Mrs. Finnur Johnson, 14 Thelmo Mansions, Burnell at Ellce. Sími 73 424. Þann 22. maí síðastliðinn, lézt af lungnabólgu á hermanna- spítala í Toronto, Lance-Corporal Clifford MacDonald Anderson, meðlimur Royal Canadian En- gineers, maður á 34. aldursári; hann var fæddur í Winnipeg, elztur sonur Árna heitins Ander- sonar lögfræðing, og frú Annie Anderson. Clifford fór suður í Bandaríki árið 1928, og réðst þar í þjónustu United States Gypsum Company í Chicago. Árið 1930 kvæntist hann Miss Guðvaldinu (Ena) S. Neilson, dóttur þeirra Mr. og Mrs. Carl G. Neilson í Winnipeg. Árið eftir fór Clif- ford til Toronto og vann þar í þágu sama félags, er gekk undir nafninu Canadian Cypsum Com- pany of Canada; ferðaðist hanní erindum félagsins um Strand- fylkin og Muskoka Lake hérað- ið fram á árið 1938. í stríðs- byrjun innritaðist hann í herinn eins og þegar var getið. Clifford var meðlimur Mary- land Methodista kirkjunnar í -Winnipeg meðan hann átti hér heima, og hafði faðir hans gegnt þar forstöðu sunnudagsskóla safnaðarins í seytján ár; en er til Toronto kom, gerðist Clifford þegar meðlimur York biblíu- flokksins. Auk ekkju sinnar lætur Clif- ford eftir sig son, Carl Arthur að nafni, og þrjár systur, Alice í Toronto, Mrs. L. Taylor í Morris, Man., og Mrs. William Flatt í Trenton, Ont., ásamt ein- um bróður, Ralph. útför Cliffords fór fram að hermanna sið í Toronto þann 24. maí; tóku um hundrað og fimtíu herdeildarbræður hans þátt í kveðjuathöfninni, ásamt miklum fjölda annara vina. Jarð- sett var i Prospect Military Cemetary í Toronto. Clifford var maður vinsæll eins og hann átti kyn til, og‘ ljúfmenni hið mesta; er þungur harmur kveðinn að ekkju, syni og öðrum ástmennum við skyndilega burtköllun hans. Dánarfregn Þriðja dag júní mánaðar and- aðist af slysi á þjóðveginum milli Hnausa og Riverton, Man., Axel William Hokanson, bóndi frá Howardville, norðanvert við Riverton. Hann var fæddur í Lutson, Minnesota, 24. júlí 1910, en fluttist barn að aldri með foreldrum sínum til Riverton- umhverfis og ólst þar upp. For- eldrar hans eru hjónin Mr. og Mrs. Carl Hokanson af sænsk- amerískum ættum, mannvænleg og ágæt hjón. Systkini hins látna eru: Carl Július, bóndi við Howardville, kv. Evelvn Mc- Lennan; Anna Marie, gift Mr. Benedikt B. Johnson, Howard- ville; Clara Helen, gift Mr. Guðm. Martin, Hnausa, Man. og Agnes Christine, kona Stefáns Thor- arinson, við Riverton. — Þann 12. apríl 1933, giftist Axel Clöru Ingibjörgu, dóttur Mr. og Mrs. Jón Thordarson, Hnausa, Man. Þrjú börn i bernsku eru eftir- skilin ásamt ungri konu er harm- ar ágætan eiginmann og öldruð- um foreldruin er mist hafa að- stoð sína, og systkinum, er harma hjartfólginn bróður — og samferðamönnum, er sakna djarfs og skyldurækins manns, er með hjálpfýsi og bróðurhug á- vann sér tiltrú og hlýhug þeirra er honum kyntust. Útförin fór frain frá kirkju Bræðrasafnaðar í Riverton 5. júní, að mörgu fólki viðstöddu. Sigurður ólafsson. PETERS0N BROS. verzla með ís og Við Box 46 GIMLI, MAN. Jón Sigurðson Chapter, I.O. D.E. hélt samsæti að heiinili Mrs. B. .1. Brandson (Hon. Regent) 214 Waverley St„ á mánudaginn 17. júní. Gestir félagsins voru íramkvæmdarnefnd Municipal Chapter I.O.D.E. og Provincial Chapter I.O.D.E. ♦ -f -f Frá því var nýlega skýrt hér í blaðinu, að Selkirk söfnuður hefði á fjölsóttum safnaðarfundi kvatt séra Sigurð Ólafsson til prestsþjónustu; nú er vitað. að hann hefir tekið kölluninni, og flytur því til Selkirk og tekur þar við embætti áður en langt um líður. -f -f -f FERMING / BLAINE Þessi ungmenni staðfestu skirnarheit sitt við mjög fjöl- menna guðsþjónustu í lútersku kirkjunni að Blaine, Wash. á hvítasunnudaginn 12. maí: Eleanor Olson LiIIian Sigríður Westford Swain Westford. Einniig var færð Drotni í heilagri skírn Jeanene Sandra, dóttir þeirra ungu hjóna Mr. og Mrs. Edwin G. Laine frá Seattle. Móð- irin er íslenzk. 47 manns gengu til altaris. þar á meðal margt ungt fólk. — Nýr söngflokkur var myndaður fyrir þessa há- tíðlegu messugjörð, hann saman- stóð aðeins af ungu fólki undir leiðslu Mrs. Erlingur ólafson. Alt þetta indæla fólk í Blaine, bæði ungt oig gamalt, á því sér- stakar þakkir skilið fyrir sína hluttekningu og samtök í því að gjöra hvítasunnuhátíðina að dýrðlegri stund í lútersku kirkj- unni okkar í Blaine. Guðm. P. Johnson. -f -f -f Sunnudagsmorguninn 9. júní kl. 1 f. h. andaðist að heimili fósturdóttur sinnar, Mrs. önnu Garryson, í Blaine. Wash., hin háaldraða og vel látna hefðarfrú Kristín Jónsdóttir Magnússonar frá Tindum í Geiradal; móðir hennar var Karitas Níelsdóttir frá Kleifum í Gilsfirði, systir séra Sveins Níelssonar á Staðar- stað og Daða hins fróða, sagn- fræðings. Frú Kristín var fædd 17. september 1849, hún var ekkja eftir herra Einar Magnús- son Westford, sem dó árið 1911. og var um mörg ár álitinn einn hinn mesti búsýslumaður bæði í Garðarbygð i N. D. og Mouse River. Eftirlifandi synir þeirra hjóna eru þeir Sveinn og Jakob báðir búandi menn hér á strönd- inni. Mrs. Westford var jarð- sungin frá lútersku kirkjunni í Blaine Þriðjudaginn 11. júní að viðstöddu mörgu fólki; hennar mun síðar verða getið í íslenzku vikublöðunum. Séra Guðm. P. Johnson talaði yfir likbörum hinnar látnu og jós hana moldu. Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Séra Guttormur Guttormsson frá Minneota, Minn., prédikar við árdegismessuna á sunnudaginn kemur 23. júní. Guðsþjónusta fer einnig frain að kvöldinu eins og venjulega. -f -f -f Áætlaðar messur, sunnudaginn 30. júní—Árborg, kl. 11 árd., ensk guðsþjónusta, Young Peo- ples Service; Geysis kirkja, kl. 8.30 siðdegis. S. ólafsson. -f -f -f VATNABYGÐIR Sunnudaginn 23. júni: Kl. 11 f. h„ messa i Grandy; kl. 2 e. h„ íslenzk messa í Wyn- yard. Fundur í þjóðræknisdeild- inni eftir messu. Jakob Jónsson. -f -f -f GIMLI PRESTAKALL 23. júní—Engar messur, vegna kirkjuþings. 30. júní — Betel, morgunmessa, Árnes, messa kl. 2 e. h.; Gimli, íslenzk messa kl. 7 e. h. Enginn sunnudagsskóli á Gimli yfir sumarmánuðina. B. A. Bjarnason. Minniát BETEL * 1 erfðaskrám yðar H. BJARNASON TRANSFER Annast greiClega um alt, sem a8 flutningum lýtur, smáum e8a stórum. ver8. Hvergi sanngjarnara Heimili 591 SHERBURN ST. Stmi 35 909 The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watches Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers and Jewellers 699 SARGENT AVE., WPG. ---------- ! Til þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu SkuluO þér ávalt kalla upp SARGENT TAXI FRED BUCKLE, Manager I.ight Delivery Truck PHONE ! 34 555 - 34 557 SARGENT and AGNES KAUPIÐ AVALT LUMBER hJA THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTO. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551 SONGFÖR TIL VA TNABYGÐA Karlakór Islendinga í North Dakota undir stjórn RAGNARS H. RAGNAR • HLJÓMLEIKAR • verða á þessum stöðum: Wynyard, Fimtudaginn 27. júní Mozart, Föstudaginn 28. júní Leslie, Laugardaginn 29. júní. Við píanóið: Kathryn Arason Samkomurnar hefjast kl. 8.30 e. h.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.