Lögberg - 23.10.1941, Blaðsíða 1

Lögberg - 23.10.1941, Blaðsíða 1
t PHONE 86 311 Seven Lines ***$%^* ** rttt%1£‘vv ftn° Cot- Servioe and Satisfaction PHONE 86 311 Seven Lines Cot- d L»tttt-*v. Cl< anV^ For Better Dry Cleaning and Laundry efs N 54. AEGANGUB LÖGBERG, FIMTU D AGINN 23. OKTÓBEE, 1941 NÚMER 43 Ameríska herskipið Kearny sætir árás um 350 mílur suðvestur af Islandi Pattullo-stjórnin bíður ósigur í British Columbia Á föstudagsmorguninn þann 17. þ. m. veittist kafbátur, vafa- laust þýzkur, að ameríska her- skipinu Kearny eitthvað um 350 mílur suðvestur af íslandi, að því er símfregnir frá Washing- ton herma; skipið laskaðist nokkuð, en komst þó hjálpar- laust í höfn. i fyrstu var svo frá skýrt, að skipverja hefði eigi sakað, en nú er það komið á daginn, að ellefu týndu lífi, en Eftirspurn eftir matreiðslukonum Stjórnarderild sú, er Hon. J. T. Thorson veitir forustu, Depart- ment of Natiönal War Services, hefir nýverið auglýst eftir 300 matreiðslukonum, sem innritað- ar verði í herþjónustu, og fá fallega einkennisbúninga; þær konur, er fullnægja settum kröf- um, i'nnritast annaðhvort í Cana- dian Women’s Axiliary Air Force eða C^nadian Women’s Army Corps. Umsækjendur þurfa ekki hð vera neinir sérfræðingar, heldur kunna einungis góða, al- genga matargerð; kaupgjald er níutiu cent á dag, auk einkenn- isbúnings, fæðis og læknishjálp- ar ef þörf krefur. Umsóknareyðublöð fást hjá R.C.A.F. hersöfnunarstöðvum, yfirherstöðvum fylkjanna og skrásetningarstjórn N ationai War Services stjórnardeildarinn- ar víðsvegar í borguin og bæj- um. -------V-------- Ástandið á Frakklandi Þann 20. þ. m., réðust tveir franskir menn á þýzkan herfor- ingja, er hann að morgni þess dags var á leið til herstöðva sinna, og skutu hann til dauðs; þetta gerðist í bænum Nantes á Frakklandi; ekki hefir lögregl- unni tekist, enn sepi komið er, að handsama þá tvo menn, er að tilverknaðinum voru valdir. En í hefndarskyni, létu þýzk hernaðarvöld taka af lífi fimmtíu franska menn, öldungis án dóms og laga. -------V-------- Borgarstríð í Júgóslavíu Svo er gremjan í Jugóslavíu við hernámssveitir Hitlers í landinu orðin mögnuð, að stað- hæft er, að þar sé nú í rauninni um borgarastríð að ræða; eink- um eru það ibúar Svartfjalla- lands, er halda uppi mótþróa gegn Hitler og fylgifiskum hans. Nokkuð var af itölsku setuliði í Jugoslavíu, og er mælt að tvö þúsund ítalskir hermenn hafi fallið í þessari nýju borgara- styrjöld. -------V------ Brezki loftflotinn herðir á sókn Á aðfaranótt síðastliðins þriðjudags, veittist brezki loft- flotinn þunglega að borginni Neapel á ítalíu, og ýmsum fram- leiðsluborgum Suður-Þýzka- lands; er það staðhæft, að hvor- irtveggja aðilja, ítalir og Þjóð- verjar, hafi beðið gífurlegt tjón af völdum árásanna. Bretar mistu tíu orustuflugvélar, en Þjóðverjar ellefu. tíu sættu mismunandi meiðsl- um; skip þetta er einungis árs- g.amalt, 1,630 smálestir að stærð. Atburður þessi hefir sem vænta mátti, vakið óhemju gremju í Bandaríkjunum. Er utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, Mr. Hull, var spurðúr um það, hvort stjórnin hefði ekki þegar sent mótmæli til Þýzka- lands, lét hann svo um mælt’, að tilgangslaust væri að bera fram mótmæli við stigamenn. Frá þýzk-rússneska stríðinu Þó fregnir af vettvangi stríðs- ins sé daglega næsta sundurleit- ar og þokukendar, þá mun það þó sönnu næst, að umsát Þjóð- verja uin Mo'skva miði seint á- fram þrátt fyrir aukið magn skriðdreka og aukinn liðsafla, er þeir síðustu, undanfarna sólar- hringa, hafa sent til þessara vig- stöðva. Stalin hefir persónu- léga tekist á hendur yfirstjórn alls varnarliðsins í Moskva og umhverfis borgina. Þjóðverjar sækja enn að úr þremur áttum, og haf« komist næst borginni að vestanverðu, eða um 50 mílur. í Donhéruðunum hefir Þjóð- verjum unnist einna mest á, að því er síðustu fregnir herma, og hafa náð þar haldi á ýmsum mikilvægum hergagnaframleiðslu borgum. --------V-------- Heimsókn til Selkirk Hin góðkunnu hjón Séra Steingrímur N. Thorláksson og frú hans dvöldu í Selkirk um “Thanksgiving” helgina í gisti- vináttu Mr. og Mrs. Jón Hinriks- son. Heimsóttu þau inarga af fornvinum sínum hér í bæ. Á sunnudagskvöldið þann 12. okt. prédikaði séra S'teingrímur í kirkju Selkirk-safnaðar fyrir margmenni, postullegan boðskap, fluttan af miklum styrkleika og sannfærandi krafti. Eftir messu var haldið hátíð- legt 44. afmæli Kvenfélags Sel- kirksafnaðar, er starfað hefir jafnan af dæmafárri trúmensku og markvissu fylgi við málefni safnaðar síns. — Einnig þar flutti séra Steingrimur erindi. Mrs. Lillian McKeag, söng þar yndislega að venju. Mrs. S. Sæ- mundsson, varaforseti félagsins stýrði samkomunni og flutti á- varp í sjúkdómsfjarveru Mrs. Capt. J. Sigurdur, forseta félags- ins. Sóknarprestur mælti nokkur orð. Mr. L. Oddson var við hljóðfærið. Selkirk-söfnuður þakkar Thor- lákssons hjónunum heimsóknina og kynninguna gegnum hin mörgu umliðnu ár, og árnar þeim allrar blessunar. Mrs. J. A. Sigurðsson, ekkja séra Jónasar A. Sigurðssonar, hefir dvalið um hríð í Selkirk meðal kunningja og vina þar. Um undanfarna tíð hefir hún dvalið með systur sinni, Mrs. Johnson, og dætrum hennar, í Pembína, N. Dak. — í nálægri tíð mun Mrs. Sigurðsson nú fara til Elínar dóttur sinnar, Mrs. H. Kjartansson í New York borg, til dvalar. Hennar morgu vinir árna henni blessunar og farar- heilla á öllum óförnum æfiveg- um. S. ólafsson. Hon. T. B. Pattullo Eins og frá er skýrt á öðrum stað hér í^blaðinu, beið Liberal- flokkurinn, undir forustu Mr. Pattullo’s forsætisráðherra, til- finnanlegan ósigur í kosningum til fylkisþings, sem fram fóru í British Columbia síðastliðinn þriðjudag. ------V------- Ömurleg tíðindi frá Grikklandi Á mánudaginn bárust þau ömurlegu tíðindi á öldum ljós- vakans vítt uin heim, að búlg- arskir ræningjar-hefði ráðist inn í grískt hérað, látið þar greipar sópa um öll verðmæti, og skotið til dauðs fimtán þúsundir varn- arlausra, grískra manna. --------V------- • / Fyrátu bœkur Menningarsjóðs komnar Bókaútgáfa Menningarsjóðs sendir nú frá sér tvær fyrstu bækurnar á þessu ári og von er á fleirum síðar. \ Bækurnar, sem eru nýkomnar á markaðinn eru: Um mannfé- lagsfræði eftir J. Rummey í þýð- ingu dr. Guðm. Finnbogasonar, og Ljóð og sögur, eftir Jónas Hallgrímsson (íslenzk úrvalsrit); Jónas Jónsson hefir annast út- gáfuna og er framan við löng ritgerð um Jónas Hallgrímsson, eftir J. J. — Fást báðar þessar bækur í ágætu bandi og einnig heftar. Morgunblaðið hefir grenslast eftir því, hvaða bækur fleiri séu væntanlegar frá Bókaútgáfu Menningarsjóðs á þessu ári. Bækurnar verða alls sjö, eða e. t. v. átta, sem Menningarsjóð- ur gefur út á þessu ári. Auk þeirra tveggja bóka, sem komn- ar eru á markaðinn, eru þessar væntanlegal: Uppreisnin á \ eyðimörkinni (síðari hluti). Fylgir þessuin hluta ágætur uppdráttur af Arabíu. Þá er von á sagnfræði- riti, eftir Skúla Þórðarson, sagn- fræðing. Er það sagnfræði og mannkynssaga yfir timabilið frá lokum heimsstyrjaldarinnar til vorra daga. Hér verður án efa mikinn og margvíslegan fróðleik að fá, því þetta tímabil hefir ver- ið harla viðburðaríkt. Verður í bók þessari skýrt frá helztu viðburðum sem skeð hafa á þessu tímabili, svo og getið þeirra hel2tu manna, sem komið hafa við sögu. Væntanleg er “Anna Karenina” eftir ToLstoj, fyrsti hluti, í þýð- ingu Magnúsar Ásgeirssonar. Svo er Almanakið og birtist í því m. a. yfirlitsgrein um helztu is- lenzka fjármálamenn. Loks er Andvari og flytur m. a. aúisögu Jóns ólafssonar bankastjóra. Til orða hefir komið, að Menn- ingarsjóður sendi og áttundu bókina, en ekki mun þetta full- ráðið ennþá.—(Mbl. 26. ág.). Komnir heim úr söngför til Norðurlandsins Eggert Stefánsson og dr. Ur- bantschitsch eru nýkomnir hing- að til bæjarins úr söngför til Norðurlandsins. Tíðindamaður Morgunblaðsins hitti. Eggert að máli í gær og spurði hann hvernig. ferðin hefði gengið. Eggert lék á alls oddi, eins og hann er vanur. Hann lét hið bezta af ferðinni. -—Við fórum aðalega í þessa för, sagði Eggert, til þess að kynna þjóðinni gamla íslenzka sálma, sem dr. V. Urbantsc- hitsch hefir útsett úr hinu stór- merka þjóðlagasafni próf. Bjarna Þorsteinssonar. Eru það 30 gamlir sálmar, sem dr. Urbantsc- htisch hefir útsett. Eg ritaði um hið merka safn séra Bjarna Þorsteinssonar 1923, í merk músík-tímarit í New Yorlc og París; þar lét eg útsetja “Angus Dei” og söng lagið; vakti það mikla athygli. —Létuð þið víða til ykkar heyra að þessu sinni? —Við byrjuðum á Akranesi. Héldum svo til Borgarness, Stykkishólms, ólafsvíkur, Hvammstanga, Blönduóss og Akureyrar, og héldum kirkju- hljóinleika á öllum þessum stöð- um. Á flestum stöðunum voru textar hinna gömlu sálma frá miðlödunum, eftir hina óþektu höfunda, lesnir upp áður en þeir voru sungnir. Séra Sigurður Lárusson . las textana i Stykkis- hólmi, séra Jóhann Briem á Hvammstanga, Páll Kolka læknir á Blönduósi, séra Helgi Kon- ráðsson á Sauðárkróki og vígslu- biskup, séra Friðrik Rafnar á Akureyri. Áhrifin frá gömlu sálmunum voru sterk á áheyrendur. — Merkir prestar þökkuðu mér fyr- ir það menningarstarf, sem eg væri hér að vinna, með því að flytja fólkinu aftur þessa gömlu sálma; þeir fóru miklu lofsorði um starf dr. Urbantschitsch; hann hefði gert þjóðinni mikinn sóma með þvi að draga þessi undurfögru lög fram i dagsljós- ið. —Það er mín skoðun, segir Eggert, að þetta sé bezta mið- aldalistin, sem við eigum, sálm- arnir, kva^Tíin og lögin í hinum nýja búning dr. Urbantschitsch. —Fá ekki Reykvíkingar að heyra þessi lög? —Jú, væntanlega í september. mér hafa og iiorist óskir víða að hér í nágrenninu, um að við komum þangað. Að lokum segir Eggert: ís- lendingar þekkja vinsældir gamla lagsins “Víst ertu Jesús kóngur klár,” sem Páll fsólfsson hefir útsett. — Nú er hér komið úrval af fegurstu lögum gömlu kirkj- unnar, frábærlega vel útsett af dr. Urbantschitsch. Eg er þess fullviss, að hér eftir verði hið gullfagra kvæði Hallgríms Pét- urssonar, Nýársbæn, sungið i*öll- um kirkjum landsins á nýárs- dag.—(Visir 24. ágúst). --------V-------- Krefst afnáms hlutleysislaga Wendell Willkie hefir opin- berlega skorað á þingmenn Re- publicana i báðum deildum þjóð- þingsins í Washington, að þeir beiti sér fyrir um afnám hlut- leysislaganna, er hann nú telur, vegna breytts viðhorfs, standa í vegi fyrir öryggi þjóðarinnar. Síðastliðinn þriðjudag fóru fram almennar kosningar til fylkisþingsins í British Columbia og lauk þeiin á þann veg, að Liberalflokkurinn undir forustu T. D. Pattullo’s, er setið hefir að völdum í tvö kjörtímabil beið ósigur. C.C.F. flokknum grædd- ist langmest fylgi, auk þess sem íhaldsflokkurinn vann nokkuð á. Enginn flokkur út af fyrir sig, nýtur ákveðins þingmeiri- FRA ÍSLANDI Síldarverksmiðjur ríkisins höfðu í gær fengið 190 þús. mál (rúm 140 þús. á Siglufirði og 47 þús. á Raufarhöfn), en höfðu i fyrra um sama leyti fengið 476 þús. mál. Þrærnar á Raufarhöfn voru um það bil tómar í gær, en þrærnar á Siglufirði aftur á móti fullar. Skip þau, sem komitS hafa með síld undangenginn sólar- hring, hafa þó ekki þurft að bíða eftir löndun nema í hæsta lagi 3—4 klst. f fyrrinótt komu um 30 skij> til Siglufjarðar með um 12—15 þús. mál. Mörg skipin voru að- eins meðslatta, en höfðu leitað til Siglufjarðar með hann vegna óhagstæðs veðurs. í gær var veður óhagstætt tii veiði á miðunum. Síldin hefir veiðst undanfarið aðallega á Skjálfandaflóa, en einnig á Eyjafirði. Sildarverksmiðjurnar á Siglu- firði halda áfram vinslu yfir helgina. Dr. Pauls verksmiðjan, sem stækkuð var í vor og í sumar úr 1500 mála afköstum á sólar- hring, í 4 þús. inál á sólarhring, hefir nú verið í gangi í 10 daga samfleytt, og hefir reynst ágæt- lega. Söltun er byrjuð lítilsháttar, en lítil veiði hefir borist og veð- ur er óhagstætt til söltunar. —(Mbl. 13. 'ágúst). hluta, og má þess því vænta, að samsteypuráðuneyti verði mynd- að. Tveir ráðherranna töpuðu kosningu. Kosningaúrslit enn eigi að fullu kunn, er blaðið fei í pressuna, en flokkaskifting þá, sem hér segir: Liberalar 17; C.C.F’. 14; ihaldsmenn 10, og 1 er telst til óháðs verkamannaflokks; í 6 kjördæmum var talningu eigi lokið. Alls eiga sæti á fylkis- þingi í British Columbia 48 þing- menn. tþróttahöll Akureyrar Akureyri 29. ágúst. Á síðasta fjárlagaþingi var samþykt að veita 100 þús. krón- ur til byggingar íþróttahúss á Akureyri, gegn því skilyrði, að jafnhiikil kæmi annarsstaðar frá. Á fundi bæjarstjórnar Akur- eyrar í dag var samþykt að veita alt að 75 þús. kr. úr bæjarsjóði í sama augnamiði. íþróttafélög bæjarins ætla að leggja fram 25 þús. kr. til íþróttahússins. Má þvi gera ráð fvrir, að haf- ist verði handa hið fyrsta um undirbúning þessa fyrirhugaða íþróttahúss, sein svo lengi hefir staðið íþróttamáum bæjarins fyrir þrifum, því ekkert full- nægjandi húsnæði hefir verið fá- anlegt til iþróttaiðkana. Tveimur Bandaríkjaskipum sökt Samkvæmt fregnum frá Wash- ington, hefir tveimur amerísk- um flutningaskipum verið ný- lega sökt, auk þeirra, sem áður var getið; skipinu Lehigh var ’sökt við strendur Afríku á laug- ardag|snóttina, en hinu, Bold Venture, skamt frá íslandi; skip lietta taldi 32 manna áhöfn, og hafa 17 þeirra lent í Reykjavík, en mjög þykir tvisýnt um líf hinna, að því er ráða má af nýj- ustu símskeytum. 90 ÁRA AFMÆLI Elínar Petrínu Pétursdóttur Þiðriksson frá Steinstöðuin í Viðines-bygð i Nýja íslandi 10. OKTóBIíR, 1941 Skagafjarðar fjórðung aldar fékstu að horfa dásemd á. F'imtíu ár og fimtán betur fóstru nýrri bjóstu hjá. Ennþá renna æfi kembur upp i timans mikla rokk. Enn með snild þú plögg þín prjónar, postulanna hyllir flokk. Manstu, er þú með barn á brjósti borgar ungrar knúðir hlið, vanst þar fyrir litlum launum, lærðir Engla nýjan sið? Enginn man og enginn telur æfisporin þung og hörð — allar fórnir frumbýlingsins færðar sinni ungu jörð. Þú ert ein í þeirra tölu þjóðarnafn, sem okkar hófst: þjóðar arf og þjóðar dygðir þú í nýja dúka ófst. Yfir svipnum enn þá ljómar íslenzk birta og þjóðar vit, sem til enda leiðar lýsir, löndum, gegnum alt sitt strit. Þ. Þ. Þ. 0

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.