Lögberg - 23.10.1941, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. OKTÓBER, 1941
5
umgangast menn óþvingað og
feimnislaust, hverrar þjóðar sem
þeir eru og hvort þeir eru her-
menn eða eitthvað annað, og eg
treysti mér til þess að gera þetta
án þess að stoí'na í hættu tungu
minni og þjóðerni, eða ást til
þess, sem íslenzkt er. Þetta
hljóta margir að geta sagt með
fullum rétti. Þrátt fyrir þetta
viðurkenni eg hættu þá, sem nú
steðjar að okkar litlu þjóð, og
vil leggja til það litla, sem eg
má, til þess að afstýra henni.
En hollast mun þá að taka öllu
með stillingu og sanngirni.
Vafalaust hafa skifti íslenzkr-
ar kvenþjóðar af erlenda setu-
liðinu verið harla misjöfn. Á-
reiðanlega hafa margar þeirra
gert þjóð sinni skömm, en hitt
væri okkur líka eins mikil
skömm, að álíta allar stúlkur
týndar, sem einhver kynni hafa
haft af hinum erlendu gestum
okkar. Hafa 'ekki allar áminn-
ingar og prédikanir foreldra og
eldri kynslóðarinnar jafnan mátt
sin lítils gagnvart eðilishneigð
hinnar óreyndu og glaðlyndu
æsku, Hefir okkur ekki gengið
illa að kenna ungur piltum og
stúikum að velja sér maka sam-
kvæint hinni köldu skynsemi?
Verða það ekki oftast tilfinning-
arnar, sem ráða? Og hvað þýð-
ir að tala um þjóðrækni eða eitt-
hvað annað, þegar ástin er ann-
arsvegar? Segja merín ekki, að
ástin sé blind? Hafa ekki ís-
lendingar fyr og síðar farið út
um lönd í ýmsum erindum og
fastnað sér um leið ýmist dansk-
ar, sænskar, norskar, þýzkar,
enskar og amerískar konur, eða
þá dætur íslands sér eiginmenri
ýmissa annara þjóða, Hafa ekki
útlendingar komið til íslands og
orðið ástfangnir í islenzkum
heimasætum og tekið sér þær
fyrir konur? Reyndar hefir þetta
aldrei verið í stórum stil, en
tækifærin hafa ekki verið stærri,
en aldrei hefir þetta fengið
þunga dóma, hvað þá verið for-
da*mt.
Já, en nú er hér um hernám
að ræða. Veit eg vel, og eg við-
urkenni alvöru þess, en tilfinn-
ingar manna spyrja ekki altaf
um hin skynsamlegu rök. Gætu
nú ekki íslenzkar stúlkur verið
svo óhepnar eða hepnar að kynn-
ast mannvænlegum hermanni og
verða ástfangnar í honum, og
hugsað sér hann sem lífsföru-
naut? Þvi þá að klína einhverju
smánarnafni á allar slíkar stúlk-
ur, sem ef til vill og vonandi eru
fáar? Hér þarf, eins og i öllum
öðrum málum, sanngirni og
dómgreind.
En svo eru það allar hinar,
þessar “syndugu.” Hvað um
þær, og hvaðl er hægt að gera?
Eg veit, að þar koma mér snjall-
ari og ráðabetri menni til sög-
unnar. Frá þeim, sem mest og
bezt vita um þessi mál, hefi eg
neyðst til að trúa hræðilegum
sögum, og séu þær sannar, þá
þarf skjótra aðgerða við, ef fs-
land á ekki að verða pútnahús
fyrir hermenn tveggja stórvelda.
En syndir mannanna koma þeim
í koll. Hinar ungu dætur íslands
eru ekki fyrstu og stærstu synd-
ararnir. Hvernig hefir þjóðar-
uppeldi okkar verið undanfarið?
Hvaða bókmentir hafa verið í
mestum hávegum, og hverjir
hafa hlotið hæst ritlaun? Hafa
ekki klámsögurnar verið okkar
“fögru” bókmentÍF undanfarin
ár? Hefir ekki öll siðvöndun
verið dæmd sem gamaldags
kerlinganöldur? Var ekki Guð
gerður rækur xir hæstu menta-
stofnunum þjóðanna, að miklu
eða öllu leyti? Hvaða uppeldi
höfum við gefið dætrum okkar?
Hvaða tækifæri höfum við búið
þeim í þjóðfélaginu? Hvaða
mentun hafa þær fengið, hag-
nýta grautarmentun og gert
og fánýta? Höfum yið búið þær
undir það, að verða vænar og
mildar húsmæður, eða skrif-
stofu lausagopar? Hvaða manns-
efni höfum við alið upp handa
þeim? Nú þrengja þessar spurn-
ingar sér upp á okkur. Við
höfum alið kynslóðina upp á
kjánalegan og óhagnýtan hátt.
Þjóðaruppeldið hefir verið
hörmulega vitlaust. Á þetta
hefi eg margsinnis bent undan-
farin ár i ræðu og riti. Við höf-
um gefið ungu stúlkunum fá-
nýta gruatarmentun og gert
þeim mögulegt að taka atvinn-
una frá piltunum. Þeir hafa þvi
ekki getað stofnað heimili og svo
hafa ungu stúlkurnar vanið sig
á lausung. Nú kemur uppsker-
an.
Ungir menn þurfa að fá góða
atvinnu á heppilegum tíma æsku-
áranna, svo að þeir geti trúlof-
að sig og stofnað heimili. Þetta
er vegur lífsins, og hann er góð
ur. Ungar stúlkur eru fæddar
með sterka ásthneigð, þær þurfa
að eignast kærasta þegar þeirra
tími kemur, verða konur og mæð-
ur. Slík skilyrði verður þjóðfé-
lagið að búa þeint og mun þá
vel fara.
En nú hefir það verið frelsið,
sem allir hafa heimtað, og kon-
ur ekki síður. Hvernig fer svo
uin alt þetta frelsi? Hvað segja
konurnar nú? Þær geta ekki
fengið hjálp við húsverkin, þó
þeim liggi lífið á, meðan þær
eru að ala fyrstu börnin sín.
stúlkurnar vilja vera frjálsar.
Það er kvenfrelsið. En hvernig
nota þær nú sumar þetta frelsi
sitt? Það er ekki nóg að vera
“vandlátur” vegna hinna fögru
hugsjóna, það iþanf líka að vera
gert með skynsemd.
Eins og komið er, þá er bezt
að við tökum öll á okkur sökina.
Við erum allir meira og minna
samsekir. Gerum svo hið bezta,
sem hægt er. Einhver ráð eru
við öllum meinum. f þessu til-
felli má leiðbeina sumum, halda
vörð um aðra (stúlkubörn á aldr-
inum 12—17 eiga ekki að ráða
ferðum sínum sjálfar). Tökum
svo upp markvissa og fumlausa
sókn og baráttu fyrir þjóðlegri
ment, sannkallaða sjálfstæðisbar-
áttu, hlúum sem bezt að þjóð-
rækni. íslenzkri tungu og öllu
því, sem okkur er dýrmætl.
Þetta eigum við að gera með fé-
tagslegum samtökum, bókment-
um, blaðaskrifum, útvarpi og
öllum þeim tækjum, sem við eig-
um völ á, og búumst svo við
hinu bezta af framtíðinni. —
“Vakið, standið stöðugir í
trúnni. Verið karlmannlegir,
verið styrkir” — Og umfram alt,
lærum eitthvað af skaðanum og
komum þjóðaruppeldi okkar á
þjóðlegan og haldgóðan grund-
völl í framtíðinni.
—(Morgunbl. 30. ág.).
--------V---------
Framtíð íslenzkrar
myndliátar
Viðtal við Ján Þorleifsson
listmálara.
f Blátúni við Kaplaskjólsveg
býr einn af merkustu listamönn-
im okkar, Jón Þorleifsson málari
frá Hólum í Hornafirði. Þar sat
eg nokkra klukkutíma á dögun-
um og naut þess að virða fyrir
mér marggr nýjar myndir. Það
stafar mikilli birtu og hlýleik
frá yerkum Jóns Þorleifssonar,
en slíkt veitir hvíld og ró og
stingur mjög í stúf við þau við-
horf, sem hin hamslausa tilvera
nú á tímum hefir skapað. Mér
dylst ekki, að Jón á sér mikið
og markvisst starf að baki. Korn-
ungur hét hann því að gerast
listmálari, og í því skyni dvaldist
hann við nám í Khöfn frá 1918
til 1929, en fór þó tvívegis á
þeim árum til Parísar til frekara
náms (1921 og 1926). Siðan 1929
hefir hann * verið búsettur í
Reykjavík.
Talið barst að myndlist, og eg
spurði:
—Hver er staða listamannsins
í þjóðfélagi okkar?
—Jón svaraði eftir nokkra um-
hugsun:
—Nú orðið vita flestir, að
myndlist er þýðingarmikill þátt-
ur í nútímamenningu þjóðarinn-
ar. Enn þá eru það ef til vill
listamennirnir, sem hrópa til
þjóðarinnar, en þess mun ekki
langt að bíða, að þjóðin fari að
kalla á listamennina. Og þann-
ig á það líka að vera. Hér þarf
að skapast eining og sayistarf,
til þess að unt sé að hefja list-
ina á hærra stig og veita henni
tækifæri til að njóta sin til fulls.
Almenningur hér er að vonum
fákunnandi um aðalgildi lista
og á örðugt með að gera greinar-
mun góðs og ills í þeim efnum.
Það er svo margt á boðstólum af
tómstundafikti, málverkum eftir
menn, sem enga þekkingu hafa
og litla eða enga hæfileika. Þetta
ruglar fólk, og þess háttar mynd-
ir ættu að hverfa úr búðarglugg
um. Það er ómenning, að slíkt
skuli vera á boðstólum, þar sein
nóg er af góðum málurum, sem
hafa gnægð af mynduin handa
öllum. Vandað málverkasafn
myndi eiga ómetanlegan þátt i
því að kenna fólki að skilja list.
Það vantar hér. En hins vegar
ber að minnast þess, að hér í
Reykjavík að minsta kosti eru
allmargir menn, sem hafa lengi
keypt listaverk og þannig smóm
saman skapað sér vönduð einka-
söfn. Þannig hefir líka hér í
höfuðstaðnum skapast hópur á-
hugasamra manna, sem á séí
orðið staðgóða þekkingu á ís-
lenzkri myndlist. Með því að
hafa daglega góð Iistaverk fyrir
augunum, læra menn að meta
þau. Og nú kaupa langtum
fleiri myndir en áður. Það opin-
bera hefir aftur á móti lítið gert
í þessum efnum. Hér eru reist-
ar inargar opinberar byggingar,
án þess að listamenn fái að koma
þar nærri, nema að sáralitlu
leyti. Það þarf að takast sam-
vinna milli byggingarmeistara og
listamanna um þetta mál. Menta-
málaráðið hefir brugðist mjög
vonum íslenzkra listamanna, eins
og nýlega hefir komið fram i
yfirlýsinigum frá þeim í blöðun-
um.
—Hvernig hefir þróun mynd-
listarinnar verið háttað hér á
landi?
—Upphaflega var málaralistin
tiltölulega fábreytt og var eink-
um bundin vil landslag. En með
hverju árinu, sem líður, gætir
vaxandi fjölbreytni, bæði hvað
efnisval áhrærir og engu síður
efnismeðferð. Þetta viðhorf
hefir skapast með þroska lista-
mannanna sjálfra. Hinir yngri
hafa lært af þeim eldri, og hinir
eldri hafa engu síður lært af
þeim yngri, en í þeirra hópi
eigum við ýmsa góða og sérlega
vel vakandi listamenn, sem ekki
víkja úr vegi fyrir örðugleikun-
um. Mér er óhætt að segja, að
á þessu sviði ríkir hér engin
kyrstaða, hvorki hvað starfslög-
ún né starfsgetu snertir.
—Hverjar myndlistarstefnur
hafa einkum orðið áhrifaríkar
hér á landi?
—Raunsæisstefnan, “impres-
síonisminn” og kubbastefnan
(“kúbisminn”). En hér, eins og
annarsstaðar, eru það mjög fáir
eða engir, sem fylgja nokkurri
einni stefnu í þrengstu merk-
ingu. Auðsætt er, að það eru
einkum þeir yngstu í hópi ís-
lenzkra listmálara, sem gerst
hafa boðberar þeirrar hugsjón-
ar, sem felst í kubbastefnunni.
Miðaldramennirnir eru “impres-
síonistar” og þeir elztu raunsæ-
ismenn. Samt eru í þessum
efnum nokkrar undantekningar.
En eg álít mikils um það vert,
hve vel íslenzkir málarar hafa
fylgst með tímanum og reynt
að læra einmitt af þvi bezta,
sem völ hefir verið á. Þannig
hafa þeir skapað sér góðan
grundvöll til sjálfstæðs þroska.
Eg lit svo á, að þrátt fyrir það,
þótt við, íslenzkir málarar, höf-
um orðið að sækja lærdóm okk-
arotil annarra þjóða, hafi skap-
ast hér málaralist með sameigin-
legum, glöggum séreinkennum.
Sömu niðurstöðu hafa listdómar-
ar annarra þjóða, sem skrifað
hafa um islenzkar málverkasýn-
ingar erlendis, komist að.
—Þér mintust áðan á vöntun
málverkasafns.
—Já, það er mjög aðkallandi,
að hér verði reist málverkasafn.
Slíkt safn yrði alþjóð ómetanleg-
ur fjársjóður og þá ekki hvað
sizt listamönnunum sjálfum, sem
eru hér svo tilfinnanlega fjarri
listasöfnum annara þjóða. Að
vísu býst eg við, að okkar safn
yrði fyrst og fremst skipað ís-
lenzkum málverkum og að lítið
yrði lceypt þangað af verkum
erlendra listamanna. En eins
og nú standa sakir, eru öll þau
listaverk, sem ríkið á, geymd
hingað og þangað í skólum og
prívat-húsum. Sumt er i kjall-
arageymslum, og líklega er eitt-
hvað týnt, en margt er orðið
skemt vegna vanhirðu. Og nú
þegar gerðar hafa verið ráðstaf-
anir til að koma ýmsum dýrmæt-
um munum i sem öruggasta
geymslu, hefir víst ekki þótt
taka því að bjarga listaverkum
ríkisins frá glötun!
—Eru hér nokkrir sjóðir, sem
styrkja listamenn til náms eða
aukins þroska?
—Lítið mun vera um slíkt.
nema hvað Sáttmálasjóðurinn
hefir stundum styrkt málara og
aðra listainenn til náms. Um
nokkurt skeið voru veittar á
fjárlögum 5 þús. krónur, sem
varið var til ungra listamanna.
En þessi fjárveiting var feld
niður, þegar Mentamálaráði var
falið að úthluta styrktarfé til
listamanna. En með þeirri ráð-
stöfun Hel eg, að kosti þeirra
hafi verið þrengt allverulega.
Hér eru því miður engir einka-
sjóðir (“prívat-legöt”), sem list-
málarar eig.i aðgang að, eins og
mjög tíðkast erlendis.
—Hver áhrif hefir einangrun-
in á íslenzka myndlist?
u—Því er ekki auðsvarað. En
að sjálfsögðu hefir hún mikil
áhrif. Málararnir finna vafa-
laust sért til þess, hve oft þeir
fara á mis við góðar sýningar,
sem oft eru haldnar í nágranna-
löndunum og menn keppast um
að skoða. Hins vegar losar ein-
angrunin okkur við það, að sjá
sitthvað, sem er lítils virði og
mundi ef til vill aðeins rugla
menn. Og þá sjaldan íslenzkir
listamenn eiga þess kost að sigla,
nota þeir oft timann betur og
hafa meira gagn af því, sem þeir
sjá, heldur en þeir, sem altaf
hafa það við höndina. Áhrifin
verða því sterkari og varanlegri
en ella myndi verða.
—‘Hvernig lítið þér á framtíð-
ina?
—Eg vil sem ininst spá. En
mér finst, að öll rök bendi til
þess, að íslenzk málaralist eigi
sér mikla framtíð fyrir höndum.
Raunar má segja, að það velti
á miklu, hvernig þjóðinni í heild
tekst að skapa sér örugga fjár-
hagslega framtíð. Það er ekki
nóg, að til séu málarar, er hafa
næga hæfileika og kunnáttu, ef
alt annað vantar. fslenzka þjóð-
in hefir sýnt það á 3—4 undan-
förnum áratugum, að hún vill
töluvert leggja af mörkum fyrir
ósvikna list. Að öllu óbreyttu
eða batnandi, held eg, að íslenzk-
ir listamálarar geti horft von-
glaðir fram í tímann og búið sig
hugdjarfir undir það, að þeim
verði falin stærri og víðtækari
verkefni en þeir hafa átt kost á
hingað til. —(Samtiðin.).
--------V---------
Fyrir 100 árum fórst gufu-
skipið President á Atlantshafinu.
Það var í fyrsta skifti sem gufu-
skip, er stundaði Atlantshafs-
ferðir, fórst, og menn vita enn
ekki með hverjum hætti slysið
bar að höndum. President lagði
af stað frá New York 11. marz
1841 með 136 manns innanborðs.
Síðan spurðist ekkert til skips-
ins eða þeirra, sem á því voru,
fyrri en flöskuskeyti fanst nokk-
urum mánuðum siðar. Stóð í
þvi, að sá, er ritaði það, þjónn á
skipinu, hefði verið sá eini sem
komst af og að skeytið v&ri ritað
í björgunarbát 29. mai. Áður
höfðu menn haldið. að skipið
hefði farist í ofviðri, sem fór yfir
vestanvert Atlantshaf um miðj-
an marz. ,
Skipulag
eldvarnanna
í loftárásum
(Morgunbl. Reykjavik 3. sept.)
Undirbúningur undir eldvarnir
borgaranna er nú svo vel á veg
kominn, að búist er við, að hægt
verði að byrja að útbýta eld-
varnatækjum meðal húseigenda
innan nokkurra daga. Eldvarna
tæki þessi eru:
Skjólur fyltar með sandi, sand-
pokar og skóflur.
Það er skylda hvers húseig-
anda, að hafa þessi tæki. I
minstu húsunum er gert ráð fyr-
ir, að hafðar verði tvær skjólur,
einn sandpoki og skófla. En
annars fer það eftir því, hve stór
húsin eru, hve mikið af hverju
þessara tækja telst nauðsynlegí
að hafa þar.
Kostnaður húseigenda í minstu
húsunum við öflun þessara
tækja er áætlaður kr. 15.00 í tví-
lyftum húsum, 22—23 kr. o. s.
frv.
Loftvarnanefnd hefir í sumar
unnið að því að safna birgðum
af skjólum, skófluín og sand-
pokum. Hafa verið keyptir af
brezka setuliðinu bensíndunkar
og þeir útbúnir sem sandskjólur.
Hverfisstjórum loftvarnanefnd-
ar verður þegar þar að kemur,
falið að sjá um að eldvarnatæki
þessi séu í hverju húsi í bæn-
um. En auk eldvarna borgar-
anna hefir loftvarnanefnd skip-
að sérstaka slökkviliðsmenn i
hverju hverfi í bænum, en hverf-
in eru, eins og áður hefir verið
frá skýrt, 61.
útbúnaður í húsum.
Fyrir hvert hverfi, en í þeim
eru upp og ofan 60 hús, eru skip-
aðir slökkviliðsmenn, þar af tveir
fyrirliðar. Útbúnaður hverrar
slikar slökkvideildar verður
l>essi: Stigi, 40m. langt reipi, 15
m. löng vatnsslanga, sem hægt er
að skrúfa á vatnshana, 10 m.
löng slanga, nokkuð mjórri,
járnkarl og sköfujárn.
Gert er ráð fyrir, að sveitir
þessar veiti aðstoð í eldsvoða,
hver í sínu hverfi, eftir því sem
er á þeirra valdi.
En hinu nýja eldvarnaskipu-
lagi er ekki þar með lokið. Á
fjórum stöðum í bænum hefir
verið komið upp deildum frá
aðalslökkvistöðinni. — Deildir
þessar eru við Túngötu, Klapp-
arstíg, Vegamótastíg og Fjölnis-
veg^ og í hverri deild eru starf-
andi 45—50 slökkviliðsmenn. Fá
deildir þessar véldælur, er fyrir
löngu hafa verið pantaðar hing-
að, og væntanlegar eru á næst-
unni, og auk þess annan almenn-
an slökkviútbúnað. Ef úm mikla
elda er að ræða, geta hverfis-
stjórarnir snúið sér til þessara
slökkvistöðvardeilda um aðstoð.
En miðstöð alls eldvrarna eða
slökkvistarfsins er og verður aðal
slökkvistöðin, og mun hún snúa
sér að slökkvistarfi þar sem
nauðsyn er brýnust.
Margra mánaða verk.
Hið fjölþætta skipulag, sem
hér hefir verið skýrt frá, er
margra mánaða verk, sem unnið
hefir verið við ýmsa örðugleika.
En með þessu hefir slökkvistarf-
seminni hér, ef til loftárása kem-
ur, verið koinið í það horf, sem
nauðsynlegt er, og þeir sem kynt
hafa sér eldvarnastarfið í Eng-
landi, skýra svo frá, að varnirn-
ar séu svipaðar hér, að öðru leyti
en Irví, að hér er einn eldvarna-
liðsmaður á hver tíu hús, en i
Englandi tveir á hver tiu hús.
Tryggingamál eldvarnaliðs-
manna munu nú vera leyst, en
á meðan engin ákvörðun hafði
verið tekin um þau mál, virtisl
gæta nokkurrar tregðu hjá
mönnum, að taka við þessu borg-
aralega skyldustarfi. Málið mun
nú vera leyst á þann hátt, að
ríkis og bæjarvöld hafa lýst yfir
því, að eldvarnaliðsmenn skuli
trygðir á sama hátt og sjómenn.
örðugleikarnir við eldvarna-
starfið hér hafa ekki hvað sízt
reynst miklir vegna þess, að flest
tækin verður að flytja frá út-
löndum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefir fengið frá
slökkviliðsstjóra, hefir slökkvi-
stöðin nýlega fengið um 2 km.
af vatnsslöngum. Á slökkvistöð-
in nú um 6 km. af slöngum. En
5 km. voru væntanlegir hingað
með e. á. “Sessu,” sem nú er
ætlað að hafi farist. En ný pönt-
un verður gerð þegar í stað.
Eins og fyr er getið,' hafa ver- f
ið í pöntun um nokkurt skeið
véladælur handa slökkviliðinu,
10 dælur, sem geta dælt 500
gallónum.
--------V---------
Síldveiðiskipin
eru að hœtta veiðum
Sildveiðin virðist vera að fjara
út. Eru mörg skip að hætta
veiðum og héldu nokkur af stað
heimleiðis í gærkvöldi. Búist er
við, að flest skipin hætti um
miðja vikuna, ef ekki hefir ræst
úr með veiði fyrir þann tíma.
Um helgina komu alls um 7000
mál til ríkisverksmiðjanna. Var
það fjöldi skipa, sem kom með
þessa veiði og munu hafa verið
um 150 mál að jafnaði í hverju
skipi. Var þetta margra daga
samanskrap hjá skipunum, að-
allega veitt vestur við Horn.
f gær var betra veður fyrir
Norðurlandi. Síldarvart var við
Rauðunúpa í gærmorgun; fengu
þar nokkur skip síld, mest 150
tunnur.
Ofanskráðar fregnir eru sain-
kvæmt símskeyti, er fréttaritari
Morgunblaðsins á Siglufirði sím-
aði í gær.
Samtal við Svein Benediktsson
Morgunblaðið átti seint í gær-
kvöldi tal við Svein Btnedikts-
son framkvæmdarstjóra og
spurði hann um horfurnar.
Hann sagði horfurnar mjög
slæmar. Flugvélin flaug í gær
yfir alt síldarsvæðið að vestan
og sást hvergi síld, nema tvær
smátorfur nálægt Reykjarfirði á
Ströndum. b'logið var um Haga-
nesvík, allan Skagafjörð og
Húnaflóa og út með Ströndum.
Var hvergi síld að sjá, að und-
anskildum þeim tveim smátorf-
um, er að framan greinir.
Snemma i dag mun flugvélin
fara yfir veiðisvæðið að austan-
verðu.
Þótt veður kunni að batna eru
menn orðnir vondaufir, að nokk-
ur veiði að' ráði komi úr þessu.
Segja sjómenn mikinn kolkrabba
til og frá um allan sjó. Telja
þeir, að krabbinn hafi flæmt síld-
ina út af Skagafirði'. Þar var all
fult af síld áður en veðrið versn-
aði, en nú sézt þar hvergi branda.
Síldin hefir verið óvenju mög-
ur í sumar og mjög misjöfn. Hef-
ir fengist 2.7 kg. minna af lýsi
úr hvrju máli en áætlað var.
Hefir síldin aldrei verið svona
mögur, síðan 1938.
Sveinn Benediktsson sagði enn-
fremur, að heildaraiflinn í
bræðslu myndi nú vera sem næst
600 þús. mál, þar af um 350
þús. mál hjá ríkisverksmiðjun-
um.
Búið er að selja 15 þús. tonn
af síldarlýsi, svo enn vantar ca.
fjórða part til þess að ná í þá
sölu. Vegna þess hve síldin er
inögur munu þurfa um 800 þús.
mál síldar til þess að fá 15 þús.
tonn af lýsi. §
Gera má ráð fvrir tapi á sild-
arútgerðinni hjá a. m. k. helm-
ing veiðiskipanna. Hlutur sjó-
manna verður og rýr, eða senni-
lega að jafnaði um 1200 kr. efl-
ir sumarið.
Horfurnar eru yfirleitt slæm-
ar. Veiðiveður var gott í gær-
morgun, en versnaði er leið á
daginn. Flest skipin munu
halda heim um miðja þessa viku,
ef ekki breytist til batnaðar.
Nokkur skip ætla að reyna að
þrauka fram að mánaðamótum.
—(Mbl. 26. ág.).