Lögberg - 30.10.1941, Side 2

Lögberg - 30.10.1941, Side 2
'i LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 30. OKTÓBER, 1941 Sigurvegari hafsins Frú “Nemó” ú Gimli. (Framh.). Quesada hafði drepið yfir- manninn á San Antonió, en af því Magellan gat ekki refsað öll- um uppreistarmönnunum, réði hann af að taka einn af hverj- um fimm og byrja á Quesada. Réttur var settur, vitni leidd, skrifari ritaði framburðinn og seinast kvað Magellan upp dóm- inn: Caspar Quesada var dæmd- ur til dauða. En hver átti að framkvæma dauðadóminn? Luis de Motina þjónn Quesada hafði tekið þátt í upphlaupinu þegar maðurinn var drepinn, og var honum gef- inn kostur á að bjarga lífi sínu með því að verða húsbónda sín- um að bana. Ákvæði þetta var hræðilegt, en að lokum fékk Magellan hann til — ókvalinn — að gangast undir þenna kost. Sneið hann höfuðið af Quesada í einu höggi. Þá átti Magellan eftir að kveða upp dóma yfir Juande Cartagena, sem var aðalforingi samsærisins og prest, sem kvatt hafðiitil síð- ara upphlaupsins, og engu ósek- ari en Cartagena sjálfur. Magel- lan ákvað að skilja þá eftir þeg- ar flotinn legði úr höfn, og birðir af mat og víni og þeir svo afhentir guðs miskunn á hend- ur, hvað hann vildi við þá gera. Þessi grimdar-dómur var end- urtekinn af Francis I)rake — heppnastur allra eftirmanna sinna — þegar hann 57 árum síðar lenti á þessari sömu ógæfu- höfn, Port San Julien, þá lét h a n n uppreistarforingjann Thomas Doughty kjósa, hvorl hann vildi heldur deyja heiðar- legum dauða fyrir sverði sem Quesada, eða vera skilinn eftir sem Cartagena. Doughty hafði lesið ferðasögu Magellans og vissi að enginn hafði frétt af Carta- gena eða prestinum, hann kaus því að láta lífið fyrir sverðinu svo sem sómdi hraustum manni og enn féll höfuð ofan í sand- inn í Port San Julien. Þá 4 eða 5 mánuði, sein Magel- lan var þarna vetrarfastur, lél hann menn sína vinna sem kapp- samlegast að endurbgeta skipin. Oftast voru þokur og hvergi sásl lífsmark. Morgun einn um vor- ið sást þó ókendur karlmaður á næstu hæð. “Svo var hann mik- ill vexti,” segir Pigafetta, “að við náðum honum aðeins í mitti. Hann var í haglega saumuðum skinnfötum. Sérstaklega voru þó fæturnir stórir, og vegna þessara stórskornu fóta (pata- gao) var landið nefnt Patagónía. Tröllmenni þetta nálægðist okk- ur glottandi, dansandi og syngj- andi. Magellan bauð einum manna sinna að dansa eftir hon- um og það var sem sá óboðni tæki þetta sem hann væri vel- kominn, kom hann svo til okkar. Sjómennirnir báru honum mat, Business and Professional Cards A. S. BARDAL 848 SHERBROOOKE 8T. Selur llkklatur og annast urn ðt- farlr. Allur ötbúnaöur sá. beatl. Ennfremur selur hann allskonatr mfnnisvarCa og legstelna. Skrifstofu talslml 86 607 Helmilis talslml 601 662 ST. RECIS HOTEL 285 SMITH ST„ WINNIPEQ pœalleffur op rólepur bústaóur j í míOMki borgarínnar ! Herbergi J2.00 og >ar yfir; me8 | baCklefa 63 00 og þar yfir. Ágætar mfiltlCir 40c—60c > Free Farking for Ouestt Arthur R. Birt, M.D. 605 MEDICAL ARTS BLDG. Winnipeg Lækningastofu-slmi 23 703 Heimilisslmi 46 341 SérfrœOingur í öllu, er aO húösjúkdómum lýtur Viðtalstími: 12-1 og 2.30 til 6 e. h. DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Oífice tlmar 3-4.30 • Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. ROBERT BLACK SérfræCingur I eyrna, augna, nef og hálssjökdömum 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy ViCtalstlmi — 11 til 1 og 2 tU 6 Skrifstofuslmi 22 251 Heimill8s!ml 401 991 Dr. S. J. Johannesson 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) Talslmi 30 877 • Viðtalstími 3—5 e. h. Thorvaldson & Eggertson LögfrœOingar 300 NANTON BUDG. Talslmi 97 024 DR. A. V. JOHNSON Dentiat 9 606 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 27 7Ö2 en urðu brátt hissa, er þeir sáu hverfa ofan í hann skipsbrauð úr fullri kröfu, næst voru hon- um bornar tvær rottur, sem hann gleypti lifandi.” Magelian festi á hann smá- bjöllur, en svo flýtti hann sér i hurt og kom svo aftur með aðra risa, jafnvel tvær risa-innur. Þetta varð þó þessum óslægu náttúrubörnum til hörmunga einna. Svo sem öðrum rann- sóknarmönnum, hafði Magellan sú kvöð verið á herðar lögð, að hann kæmi með sýnishorn af öllum þjóðflokkum sem þeir fyndu og væru ókunnir. Var því mönnum skipað að hand- taka tvo þessara manna. Sjó- mennirnir hlóðu nú á þá gjöf- um, sem þeir gátu höndum hald- ið, þar á eftir fengu þeir þeim tvö járn, en af því þeir ekki gátu tekið á móti meiru í höndur sín- ar, var þeim sýnt hvernig þau gætu lagst utan um fæturnar, þurfti svo aðeins fáein högg ti! að hnoða naglana. Villimennirnir höfðu í fyrstu gaman af að hafa þessa fögru hringi um öklana, en nú var hægt að berja þá með sandpok- um og auðgert að handtaka þá, því nú voru þeir ekki hættulegir og keisarinn umfram alt þurfti að sjá jafn fágæta gripi. Eftir þetta voru þeir hornir fram á skip. í San Julian áttu Spánverjar stöðugt að etja við slys og óhöpp. Þegar fór að draga úr vetrar- stormunum, sendi Magellan litla skipið Santiago til að kanna ná- grennið og átti að vera komið eftir nokkra daga; en þá kom skipið ekki og Magellan beið með úþreyju. F"yrstu fréttirnar bár- ust úr landi. Skjögrandi menn sáust koma á einni hæðinni, voru það tveir af skipverjum á Santiago og báru ill tíðindí. Skipið hafði strandað í ofsa roki, en skipverjar bjargast á land. Magellan sendi tafarlaust bát eftir mönnunum, en Santiago, hraðskreiðasta skipið í flotan- um, var eyðilagt. Loksins 24. ágúst 1520, bauð Magellan að lagt skyldi úr þess- ari óheilla höfn, og litu þeir í síðasta skifti mennina tvo, sem skildir voru eftir í fjörunni. í San Julien hafði Magellan mist skip og tveir af skipstjórunum höfðu verið drepnir. Ár var lið- ið frá upphafi ferðar, enginn nýr fundur og ekkert áunnist. Liklega hefir þetta verið þung- bærasti dágur í æfi Magellans. Hann leitaðist við að halda á- fram ferðinni, en ofsarok bönn- uðu honum leiðina í tvo þreyt ■ andi mánuði, en þótt hann vissi ekki var hann skamt frá tak- markinu. Tuttugasta og fyrsta október sá hann hvar skaut upp hvitum klettum bak við ókenda og vogskorna strönd, og litlu seinna komst hann inn á vík eina Iitla og djúpa, þar var vatnið dökt, en eyðileg, hörku- leg og ógurleg var ströndin og útsýnið líflaust. Ekkert mann- degt lífsmark, enginn jurtagróð- ur, ekkert nema vindþytur. Far- mennirnir litu með hálfum huga á þenna dökka vog, sem var svartur sem heimur Hadesar og fjöllum luktur. Allir voru sam- mála um að þetta sund væri að- eins fjörður og að lögun eins og margir firðir í Noregi. Magellan, sem var gagntekinn af trúnni um dulið sund, ákvað að kanna þenna eftirtektaverða fjörð,-og bauð því skipunum San Antonió og Conception að halda af stað, en farmenn voru mjög tregir, áttu þeir að sigla svo langt vestur sem þeir fengju komist og koma aftur að liðnum 5 dögum með fréttirnar. Ekki voru skipin horfin úr augsýn, er skelti á afspyrnu roki, og ekkert sennilegra en skip Magellans brotnaði í spón við skerin, þó bar hann þyngri áhyggju út af San Antonió og Conception, hann var gagntekinn af inegnustu hræðslu; hylurinn hlaut að hafa skollið á þau í þrengslunum og þau brotnað í | spón, en kraftaverk ef þau björguðust. Á fimta degi í þessari skelfing- arbið, sást segl. Guð verið lof- aður! Annað skipið hafði þó komist af. Nei, tiæði skipin komu heil á húfi. Ekki hafði Magellan komið auga á þau fyr en hann sá eldblossa frá báðuiu hliðum þeirra, einn, tveir, þrír. Þeim fylgdu svo skotþrumurnar. Hvað hafði komið fyrir? Því eyddu þeir púðrinu til einskis? Og skipin báru gó§ tíðindi. Þau hafði hrakið vestur eftir, og ekki annað sýnna en þau ræki upp á sker, sem voru fyrir stafni, en á síðustu mínútu opnaðist sundið framundan. Þó þeir ekki hefðu séð fyrir vesturenda þess- arar leiðar, voru þeir samt á þeirri skoðun, að þetta væri fremur sund en fjörður. Sem nærri má geta voru þetta þær æskilegustu fréttir fyrir Magel- lan, sem var örþjakaður af á- hyggjum. Nú mátti sízt tefja, og svo var skotið til heiðurs Carli keisara, og bænir endur- fluttar, og síðan með auknum hug héldu þeir inn í Völundar- húsið, er Magellan skýrði Todos los Eantos, en eftirmenn hans Magellans sundið. óvanaleg og draugaleg sjón hefði það verið að sjá þessi fjög- ur skip líða hljóðlaust inn í þenna dimma vog. úr fjarlægð lýsti af snjóklæddum hnjúkum, er blésu frá sér ísköldum vind- um á farmennina. Engin lifandi vera bærðist á þessum hrjóstr- ugu heljar ströndum; þó var það á nóttunum að þeir sáu blaktandi loga, því nefndu þeir landið Tierra del I'uego, þ. e.: Eldlandið. Þessi stöðugi eldur sem átti eftir að loga í margar aldir kom frá Eldlendingum, er ekki kunnu listina þá að kveikja eld, ef hann drapst, og urðu því að halda honum við á nóttunm í kofum sínum á þurru grasi. Leiðin er afar vandrötuð, og verður ekki farin nema með mestu varúð. Sundið kvíslast oft, og verða þar margar grynn- ingar og sker á báðar hendur. Hvað eftir annað skelti á öskr- andi byljum. Ekkert lýsir betur listfengi og nákvæmnri eftir-: tekt Magellans en það, að hann sem fyrstur manna fór um sund- ið og við hann er kent síðan, var sá eini í fjölda ára er komst eftir því slysalaust. Hann var mánuð að komast sundið (paso). Loksins bar hann sigur úr být- um. Þakkir séu þrautseigju hans og gætni. Þegar svo að sundið opnaðist og sást út á ómælis haf- flötinn er sagt að gleðitár hafi runnið niður svart slteggið. Magellan krafði nú skipstjór- ana um skýrslu yfir vistabirgð- irnar. Þeir höfðu lokið við fyrsta þáttinn, en voru þeir við- búnir að taka þann næsta og leita uppi kryddeyjarnar? Hann gat ekki borið á móti því að vistaskortur gæti leitt af sér al- varlega hættu, en höfum það 1 huga að kjarkur hans sjálfs var óbilaður. Hafnsögumaðurinn á San Antonió, Estevao Comez, var sá eini er réði frá ferðinni og sagði að væri ferðinni haldið á- fram, myndu allir deyja aumk- unarlegum hungurdauða. Þetta var bygt á rökum, en Magellan hafði meiri áhuga fyrir málefni keisarans en sín eður manna sinna. Flotinn skyldi halda áfram, og jafnframt áttu slcipstjórarnir að halda matar- skortinum leyndum fyrir far- mönnunum. San Antonió var sent til aö kanna sundið, en hann kom ekki á ákveðnum tíma, svo margir dagar gengu í bið og leit að því, en það fanst ekki. Skipaði Ma- gellan þá stjörnuspámanni að leita til stjarnanna um hvarf skipsins. Stjörnufræðingnum hefir óefað verið kunnugt um uminadi Comezar, og kom með það svar frá stjörnunum — sem að þessu sinni reyndust rétt — að San Antonió hefði strokið og siglt á leið heim til Spánar. Magellan var nú i miklum vanda staddur, að skera úr þessu vandræðamáli. Á San Antonió var meirihluti matvælanna og að halda ferðinni áfram var blált áfram sjálfsmorð, en fyrirmæli hans urðu svo að 28 nóv. 1520 sigldu þessi þrjú skip norðvest- ur á óþekt hafið. Einhversstað- ar hinumegin við sjóndeildar hringinn hlutu kryddeyjarnar að vera, þessar dýrmætu eyjar, og enn lengra burtu Hidustan og China, og hinumegin við það, langar-langar leiðir var heima- land þeirra, Spánn. Svo var skotið úr fallbyssunum til að heilsa þessu ókunna hafi, en litlu skipin þrjú og einmana sigldu út á það. Þessi fyrsta ferð yfir þetta þá óþekta hafa er eitthvert ódauð- legasta þrekvirki sem til er. Ferð Columbusar hefir ætíð verið víð- frægð, en Columbus sigldi á þremur nýjum og útreiddum skipum og ferð hans á útleið stóð aðeins í 33 daga, og hafðí nægilegan matarforða heim aft- ur. Ferð Magellans lág eiginlega eitthvað óákveðið út á haf-vídd- ina. Menn hans uppgefnir, skortur og hungur gekk fyrir þeim og eftir, fötin rifin, seglin fúin og reiðinn slitinn; murlu margir hafa öfundað félaga sína, sem skárust úr leik. Þeir sigldu svo í 40 daga, 00 og 100 daga er hvergi varð landa vart. Sjálf - ur hélt Magellan að hann fyrir löngu væri kominn fram hjá Japan, en sannleikurinn var sá, að hann hafði ekki farið 1/3 breiddar þessa ógnar úthafs, sem hann vegna góðviðrisins nefndi Kyrrahaf. Kyrt og friðsamt var það, en sá friður var grimdarlegur; hafið var sem spegilgler, loftið heið- skýrt og glóandi, en megna fýlu lagði neðan úr skipunum. Aug- un sukku inn í höfuðin, andlitin hrukkuðust, allir sáu ofsjónir og skipin öll voru orðin að fljót- andi sjúkrahúsum, vatnið var orðið úldið af miskunnarlausum sólargeislum, skipshrauðið var orðið að gráu, skítugu dufti af rottuskít og iðaði af möðkum. Rotturnar, svo sem þær eru þó ógeðslegar, voru orðnar að eftir- sóknarverðu sælgæti og veidd- ar á öllum skipunum, en til aö halda niðri hungurskvölunum tugðu menn sag eða leður. Um 19 manns þ. e. 1:10 af skipverj- um dóu í kvölum á þessu hræði- lega ferðalagi yfir Kyrrahafið, en með þeim fyrstu voru vesalings Papagoarnir, sem ræut hafði verið. Loksins þann 6. marz 1521 koin kall úr reiðanuin: “Land, aho! — Það var kominn tími ti! þess. Að liðnum 2—3 döguin hefði að líkum enginn staðið lif- andi og engin saga skráð um þessa ferð. En þarna var nú eyja! Skipin voru vart komin undir land er rennilegum bát var skotið út frá landi, hann var með seglum saumuðum úr pálmablöðum. Náttúrubörnin, sem komu voru allsnakin, þeir klifu skipin liðugir sem apar, og svo voru þeir i háttum sinum ólíkir hvítum mönnum, að þeir höfðu hönd á öllu, sem ekki var naglfast og tóku með sér og þar á meðal skipsbátinn frá Trineda, sem þeir fluttust á í land í mik- illi sigurgleði. Magellan vildi kenna þjófuin þessum lærdómsrika grein, sendi í land 40 vopnaða sjómenn, brendu þeir kofa þjófa þessara en færðu til skipa það er þeiv fundu af fuglum, fiski og aldin- um. Ennfremur refsaði Magellan eyjarskeggjum með því að nefna eyjar þeirra “Þjófaeyjar”; það eru nú Ladronurnar. Ránsferð þessi bjargaði Spán- verjunum frá hungurdauða. Þriggja daga hvíld, nýir ávextir, kjöt og vatn hrestu skipshafnirn- ar til fullrar heilsu. Með endurnýjaðan hug og dug var svo ferðinni haldið áfram í norðvestur, og með hverri viku sáu þeir nýjar eyjar, sá þá Magellan að þeim var borgið. Eftir hans reikningi taldi hann víst að þetta væru Molukka-eyj- arnar, þ. e. kryddeyjarnar og í- myndaði sér að þar hefði hann náð takmarki fyrir ferðinni, en þetta reyndist ekki svo: hann hafði rekist á alóþektar eyjar, Filippí-eyjarnar, eignaði hann þær Carli keisara, og bætti með því einu fylki við ríki hans; laut það lengur Spánar stjórn en nokkurt þeirra landa, sem þeir fundu Columbus, Cortes og Pizarro. Tuttugasta og áttunda marz komust þeir til Mazzaoa, er það lítil ey og telst til Filippí-eyja. Þar varð Magellan fyrir þeirri merkilegustu reynzlu á æfi sinni. Þegar skipin þrjú nálguðust land, hópuðust vinveittir íbúarn- ir ofan að ströndinni, en Magel- lan sendi Enrique þræl sinn i land til njósna, og hugði sem rétt var að ibúðarnir eyjar- skeggjar tækju betur á inóti brúnleytum manni heldur en hvítum og skeggjuðum. Nú kom undrið. Þegar ey- . lendingarnir höfðu slegið hring um Enrique varð þessi Malaja- þræll orðlaus af undrun, því hann skildi mest af því sem þeir mæltu. Það voru mörg ár lið- in frá því hann síðast hafði heyrt mælt á sína upprunalegu tungu. M'eð þessum fréttum var Magellan viss um að nú hefði hann náð takmarkinu. Hann var kominn til þeirra þjóða sem mæla á malajisku. Það sem lærða menn hafði að- eins dreymt um var nú sannað; jörðin var hnattmynduð, því menn böfðu faðmað hana í kring. Vikudvöl í Mazzava var á- nægjulegasti tíminn af allri ferð- inni. Calambu konungur eyjar- innar tók á móti Magellan af mestu rausn og birgði hann að vistum og drykkjum eftir fcgk- ustu þörfum. Nú var aðeins eftir að komast til kryddeyjanna og reka þar erindið, en ekki vildi Magellan yfirgefa Filippska haf- ið án þess að hafa skapað Spám gildandi eign lil frambúðar, því það fanst honum ekki nægilegt, að ánafna konungi þessa#litlu eyj». Hann spurði því Calambu kon- ung hver eyjan væri stærst og var honum sagt það væri Zebu (Cebu). Eftir þetta siglir Magel- lan áleiðis “svo sem hin ógæfu- sömu örlög höfðu fyrirhugað,” eins og sá ábyggilegi Pigafetta kemst að orði. Þegar Magellan lcom til Cebu. sá hann undir eins að staðurinn var þýðingarmikill. Á höfninni voru kínversk verzlunarskip auk þeirra innlendu. Hann vildi því birtast þeim innlendu sem guð þruinu og eldinga, skipaði því að skjóta kveðjuskotum, en við þau flúðu íbúarnir í allar áttir. Na*st þessu sendi Magellan Enrique * hasti til lands að tjá höfðingj- anum að þrumurnar hefðu ekki verið sendar í fjandsamlegu skyni, heldur til virðingar þeim volduga Rajah af Cebu. Enrique hafði einnig verið boðið að geta þess að alt væri undirbúið til að sýna hans hátign margskonar dýran varning til vöruskifta. Humabon, sem var Rapah af Cebu, var ekki undirförull að eðli og tók boðuin þessum þur- lega og sagði að fyr en nokkur viðskifti gætu farið fram, yrð' Magellan að greiða hafnargjald, hann hefði áreiðanlega ekki vik- ið frá því, ef ekki Mahomedansk- ur kaupmaður sem nýlega var kominn á skipi “Junk” frá Síam, hefði lotið og hvíslað í eyra Rajahans viðvqrunarorðum! hann hetði séð ýmislegt í fari þessara hræðilegu kaupmanua og bezt myndi að komast hja öllu þrátti hvað sem það kostaði. Þeir væru sanlskonar djöflar og lagt höfðu undir sig Calient, alla Hindustan og Malakka. Þessi ræða hafði þau áhrif að Jajah- inn féll frá hafnargjaldinu, bauð sendimanni Magellans til veizlu og kvaðst fús að ganga til frið- samlegra vöruskifta við þessa nýkomnu gesti. Að sínu leýh

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.