Lögberg - 30.10.1941, Síða 8

Lögberg - 30.10.1941, Síða 8
8 LÖGBERGr, FIMTUDAGINN 30. OKTÓBER, 1941 Úr borg og bygð Mr. Jónas Björnsson frá Gimli, var staddur í horginni í byrjun vikunnar. ♦ -f ♦ Nýíátinn er hér í borg Odd- geir Anderson, 72 ára að aldri( er heima átti að 567 Elgin Ave. ♦ ♦ ♦ l'he Junior Ladies of the First Lutheran Church Victor St., will hold their meeting on Tuesday, Nov. 4th, at 2.30 p.m. in the church parlors. -f ♦ ♦ Þann 28. þ. m. gaf séra Valdi- mar J. Eylands saman í hjóna- band að heimili sínu 776 Victor Street, Edgar Bárðarson og Nellie Annie Tucker^ bæði frá Hnausa, Man. -f ♦ -f Samkvæmt bréfi frá New York til ritstjóra Lögbergs, er hr. Árni Jónsson alþingismaður frá Múla væntanlegur þangað með Goða- fossi þann 1. nóvember næst- komandi. -f -f -f Sendið inn áskriftargjöld yðar fyrir Lögberg, og geriát nýir kaupendur að blaðinu fyrir næátu ára- mót. -f -f ♦ Mrs. Katrín Jósefsson, kona Jóhannesar Jósefsson á Elgin Avenue, lézt á Grace sjúkrahús- inu síðastliðinn mánudag. Útför hennar f^r fram á fimtudaginn þann 30. þ. m. kl. 3.30. Katrín var fædd á Ærlæk í Axarfirði 19. apríl 1858. -f -f -f HALLOWE’EN DANCE AND BRIDGE undir umsjón Jóns Sigurðssonar félagsins verður haldinn í I.O. G.T. Hall, Sargent Ave., fimtu- daginn 30. okt., byrjar kl. 8.30 e. h. Verðlaun gefin fyrir “Bridge.” Inngangur 35c. Arður af skemtuninni verður notaður í þarfir hermanna. Næsti fundur félagsins verður á heimili Mrs. H. F. Danielson, 869 Garfield St. þriðjudaginn 4. nóv., kl. 8 e. h. Mrs. R. H. Harl segir fréttir af I.O.D.E. þingi sem haldið var í byrjun október- mánaðar. -f -f -f SKEMTISA MKOMA í ÁRBORG Á föstudagskveldið þann 7. nóvember næstkomandi, verður haldfin skemtisamkoma í Ár- borg að tilstuðlan þjóðræknis- deildarinnar “Esjan”, er telja má víst að verði fjölsótt, því mikill þjóðræknisáhugi ríkir jafnan í Árborg og grend. Á sam- komu þessari flytur Mrí. Einar P. Jónsson erindi. Ragnar Stefáns- son skemtir með framsögn, auk þess sem sitthvað fleira verður til skemtunar. Samkoman fei fram í samkomuhúsi bæjarins, og byrjar kl. 8.30. -f -f -f Mr. J. J. Bíldfell er nýkominn heim til Winnipeg eftir all-langa dvöl í norðurhluta Canada, norð- an við allar hvítra manna bygðir að heita má. Fór hann þar viða um, en fór einnig til Grænlands og sá hinar ifornu Islendinga- bygðir þar í landi. Hefir hann nú góðfúslega lofað kvenfélagi Fyrsta lúterska safnaðar í Win- nipeg að flytja erindi um þessar fornu Grænlandsbygðir og sýna mvndir þaðan. Er gert ráð fyr- ir að það verði á miðvikudags- kveldið hinn 19. nóvember n.k. Það er búist við að marga fýsi að heyra það sem Mr. Bíldfell hefir að segja um hinar fornu bygðir Grænlands, sem altaf eru nærri hugum íslendinga hvar sem þeir eru, og einnig að sjá góðar myndir þaðan og ræðu- maðurinn er svo kunnur íslend- ingum í Winnipeg oj| reyndar Vestur-fslendingum yfirleitt, að það er óþarfi að mæla sérstak- lega með honum. Þessarar væntanlegu samkomu verður nánar getið síðar. Gefin saman í hjónaband af séra Sigurði ólafssyni þann 25. okt., að heimili hans í Selkirk, Orval William Hay, hermaður, frá Barrie, Ontario, og Rebecca Helgason, dóttir Mr. og Mrs. Jó- hannes Helgason, Riverton, Man. -f -f -f Hjónavigslur framkvæmdar af séra H. Sigmar á heimili hans að Mountain, N.D.: Arthur A. Magnusson frá Cavalier, N.D., og Helga M. Nel- son frá Akra N.D. þriðjudaginii 14. október. Sigurður Dalsted frá Backoo, N.D. og Kathleen Emma Magn- usson frá Cavalier, N.D. sunnu- daginn 19. október. Hannes G. Kristjánsson frá Crystal, N.D. og Elizabeth I Björnson frá Svold, N.D. laug- ardaginn 25. október. -f -f -f Gefin saman í hjónaband í Vancouver, B.C., þann 18. okt., þau Magnús Eliason, 26 W. Broadway, Vancouver og Helen Scrimbitt, 252 E. lOth Streel North Vancouver. Brúðguminn er sonur Guðmundar Elíassonar fyrrum bónda á “Laufhóli” í Ár- nesbygð og Margfétar Sveinsdótt- ur konu hans. Brúðurin er dótt- ir Steven Scrimbitt, Regina, Sask. og Mary konu hans, sem dáin er fyrir nokkrum árum. Brúðhjón- in fóru stutta giftingarferð til Victoria, B.C. Framtíðarheimili þeirra verður að 26 W. Broad- way Vancouver. -f -f -f Miss Freyja Eleanor ólafsson hjúkrunarkona, dóttir séra Sig- urðar og frú Ingibjargar ólafs- son í Selkirk, er í þann veginn að leggja af stað til Suður- Afríku ásamt mörgum hjúkrun- arkonum víðsvegar að úr Can- ada, til þess að ganga í þjónustu stjórnarinnar í Suður-Aifríku, til eins árs þjónustu í senn. Miss ólafsson stundaði nám við skól- ann á Gimli, en lauk Grade XI. í Árborg, einnig stundaði hún um hríð nám við Jóns Bjarna- sonar skóla. Hún lauk námi i hjúkrunarfræði við Almenna sjúkrahúsið í Winnipeg 1938. Um þriggja ára bil starfaði hún við Margaret Scott Nursing Mis- sion i Winnipeg, og nú síðast um hríð í þjónustu Winnipeg-borg- ar. Hún hefir getið sér góðan orðstýr fyrir dugnað og hæfi- legleika í starfi sinu. -f -f -f VILHELMINA E. BERGÞÓRSON andaðist að heimili sonar síns og tengdadóttur, Jóns og Petrínu Bergþórson að Lundar mánudag- inn 20. október. Hún var fædd að Eldleysu í Mjóafirði 9. febrú- ar 1854. Foreldrar hennar voru Eyjólfur Jónsson og Guðrún ó- feigsdótti.r, sem þar bjuggu. Árið 1882 giftist hún Bergþór Jóns- syni frá Hriflu í Suður-Þingeyj- arsýslu. Eftir fjögurra ára bú- skap að Langalóni við Möðru- dalsheiði fluttust þau vestur um haf árið 1889. Settust þau fljót- lega að í svo nefndri Álftavatns- bygð austan Manitobavatns, og bjuggu þar búi sínu í tuttugu og fjögur ár. Árið 1914 létu þau af búskap og fluttu til Lundai'- bæjar, og þar hafa þau dvalíð síðan á heimili sonar sins. Af fjórum börnum þeirra lifa að- eins tvö: Jón að Lundar, og Björg Stefania, gift Rúnólfi Rún- ólfsson í Seaman, Sask. Albert sonur þeirra féll skömmu áður en heimsstriðinu fyrra lauk, um haustið 1918. Eitt barna þeirra dó í bernsku. Mrs. Bergþórson var af kunn- ugum talin tápmikil og dugleg kona og einkar vöpduð til orða og verka. Hinn mikli mann- fjöldi, sem koin saman tii kveðjuathafnarinnar, sem fór fram i kirkju Lundar safnaðar á föstudaginn (24. okt.) bar þá líka ótvíræðan vott um vinsæld- ir þessarar merkiskonu, ekki síð- ur en um samúð með hinum rúmlega áttræða ekkjumanni, sem fylgdi konu sinni til grafar eftir næstum sextíu ára sambúð. Friður Guðs hvílir yfir minn- ingu hennar og moldum. MUS-KEE-KEE Áhrifamikið kvefmeðal, búið til úr gömlum Indíána jurta for- skriftum. petta er verulegur heilsugtjafi, sem veldur eðlilegri starfsemi hins mannlega líkams- kerfis. Ráðgist við lyfsalann í dag viðvíkjandi MUS-KEE-KEE Messuboð FYRSTA LÚTERSIÍA KIRKJA Séra Valdimar J. Eylands Heimili: 776 Victor Street. Sími 29 017. Sunnudaginn 2. nóv.: Ensk messa að morgninuin kl. 11; sunnudagsskóli kl. 12.15 e. h. fslenzk messa að kvöldinu kl. 7. -f -f ♦ LÚTERSIA IÍIRKJAN í SELKIRIÍ Sunnudaginn 2. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Ensk messa kl. 7 síðd. S. ólafsson. -f -f -f ISLENZK GUÐSÞJÓNUSTA í VANCOUVER, B.C. Guðsþjónusta til minningar um lútersku siðbótina verður haldin, ef G. 1., í dönsku kirkj- unni á Burns St. og 19th Ave. E. kl. 3 e. h. næsta sunnudag, 2. nóv. Komið og kveðjið aðra til komu. Við skulum halda fjöl- menna minningarhátíð. Rúnólfur Marteinsson. -f -f -f LÚTEIiSKA PRESTAIÍALLIÐ í AUSTUR-VATNABYGÐUM Séra Carl J. Olson, BA., B.D. SunnxÆaginn 2. nóv.: Edfield kl. 11 f. h. Foam Lake kl. 3 e. h. Leslie kl. 7 e. h. Allir eru boðnir og velkomnir- -f -f -f Messað verður að Hólar Hall sunnudaginn þann 2. nóv. n.k. kl. 2 e. h.? fljóti tíminn. II. E. Johnson. -f -f -f GIMLI PRESTAKALL Sunnudaginn 2. nóv.: Betel, morgunmessa; Víðines, messa kl. 2 e. h. Gimli, íslenzk messa kl. 7 e. h. Sunnudagsskóli Gimli safnað- ar kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason. -f -f -f Séra B. Theodore Sigurðsson, flytur guðsþjónustur í Vatna- bygðum á eftirgreindum stöðum og tíma á sunnudaginn þann 2. nóvember næstkomandi: Mozart, kl. 11 f. h. Wynyard, kl. 3 e. h. Kandahar kl. 7.30. Allar þessar guðsþjónustur fara fram á íslenzku, og verða þæi síðustu, er séra Theodore flytur þar vestra að þessu sinni. -f -f ♦ Sunnudaginn 2. nóvember fer fram hátiðleg sunnudagaskóla- guðsþjónusta í kirkjunni á Mountain kl. 11 f. h. Sunnu- dagaskólinn beitir sér fyrir við sönginn. Allir velkomnir. For- eldrum barnanna sérstaklega boðið. Sama dag (2. nóv.) mess- ar séra Haraldur í Brown, Man. kl. 2.30 e. h. Allir boðnir og velkomnir. -f -f -f Messur i Blaine prestakalli verða á eftirfylgjandi stöðum í nóvembermánuði, ef Guð lofar: Sunnudaginn 2. nóv.— Bell- ingham kl. 11 f. h. (á ensku); Blaine kl. 2 e. h. (á íslenzku) og Blaine kl. 8 e. h. (á ensku); ræðuefni við allar messurnar: “Klæðist alvæpni Guðs.” Sunudaginn 9. nóv. — Blaine kl. 11 f. h. (á islenzku); Point Roberts kl. 2 e. h. (á íslenzku); Bellingham kl. 8 e. h. (á ensku); ræðuefni við allar messurnar: “Samþjónar vorir.” Sunnudaginn 16. nóv.—Bell- ingham kl. 11 f. h. (á ensku); Blaine kl. 2 e. h. (á islenzku) og kl. 8 e. h. (á ensku); ræðu- efni við allar messurnar: “Skatt- peningurinn.” Sunnudaginn 23. nóv.—Blaine kl. 11 f. h. (á ensku) þá syngur hinn nýmyndaði söngflokkur sem samanstendur af 15—20 ungmennum, undir stjórn Mr. H. Sweeney, skólakennara. Bell- ingham kl. 2 e. h. (á íslenzku) kl. 8 e. h. Enslc messa með myndasýningu af prestskap Jesú Krists. Allar messurnar helg- aðar þakklætistilfinningu krist- ins fólks. Sunnudaginn 30. nóv. — Bell- ingham kl. 11 f. h. (á ensku); White Rock, B.C. í húsi Mr. og Mrs. Leifur Björnsson kl. 2 e. h. (á íslenzku); Blaine kl. 8 e. h. (á ensku); ræðuefni við alIaT messurnar: “Endurkoma Jesú Krists.” Allir boðnir hjartanlega velkomnir. Guðm. P. Johnson. --------y--------- Athugasemd Eg hefi venjulega haft ánægju af að lesa ritgerðir Péturs Sig- urðssonar um eitt og annað og eg hafði einnig nautn af að lesa greinina um listamanninn fræga dansk-íslenzka, Thorvaldseen i Lögbergi 16. okt., ummæli H. C. Andersens og Georg Brandesar um snillinginn og afrek hans, og frásögn um hina glæsilegu mót- töku er Kaupmannahöfn fagn- aði þessum heimsfræga ástmög dönsku þjóðarinnar. En hvað munnmælasögunni viðvíkur, er segir að hann hafi tvívegis gert unnustu sinni minkun, get eg ekki séð að auki hróður hans eða listamannsgildi. Eg hygg að listin hefði ekki beðið nokkurn hnekki við það að hann hefði haldið trygð við heitmey sina, ef þessa munnmælasögu er annars nokkuð að marka, sem eg vona að ekki sé. En það er annað í þessari grein P. S., sem eg átti ekki von á úr hans penna, og sem mér gramdist, en það eru óþarfa slettur til tveggja ágætismanna Bandaríkjanna, Thomas Paine og Robert G. Ingersoll, er hann gef- ur í skyn að hafi verið myrkurs- ins börn — því áður en hann minnist þeirra telur hann fram þrjú “Ijóssins börn,” Whitefield, er dó á hnjánum, Abraham Lincoln og * David Livingstone. Við andlát þeirra hafi verið bjart. Svo kemur þessi grein: “Slíkt verður ekki sagt um menn eins og Thomas Paine, Ingersoll eða Nietzsche, þótt þektir menn væru. Kvöldroðans blik lék ekki um himinn þeirra hinstu stunda; kvöldið var þá grámyglulegt, hráslagalegt og kalt.” Eg læt ritsnillinginn Nietzsclie eiga sig; hann var af alt öðru sálufélagi en Paine og Ingersoll. Hvað hafa þeir Paine og Inger- soll unnið til þess að vera kall- aðir myrkursins börn? Thomas Paine átti drjúgan þátt i frelsisstríði Bandaríkjanna með ritum sinum “The Crisis” og “Common Sense”; sagt hefir verið um þau rit, að þau ’hafi verið sá eldstólpi, er vísaði veg hinum stríðandi lýði um nótt þrenginganna til sigurs. Síðar ritaði hann hina frægu bók sína “Age of Reason” um trúmál — leitaðist hann við i þeirri bók að eyða miðalda- myrkri hjátrúar og hindurvitna í kristninni, en auka ljós þekk- ingar og víðsýni, efla mannúð og umburðarlyndi. Paine var guðstrúarmaður með ðdauðleikavon. Skoðanir Abra- ham Lincolns á trúmálum munu hafa fallið mjög saman við skoð- anir Paines, og náskyldar stefnu Únítaranna Ralph Waldo Emer? son, Theodore Parkers og Wil- liam Ellery Chaunings, sem séra The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelrr Agrents for BULOVA Watchee Marriage Licenses Issued TBORLAKSON & BALDWIN Watchmakers and Jeioellers 699 SARGKNT AVE., WPG. Matthias Jochumsson var svo hrifinn af. Col Robert G. Ingersoll, þessi göfugi, frjálsi andi, hafði svo næma réttlætistilfinningu og skarpan skilning á veilunum í hinum svokallaða “rétttrúaða evangeliska kristindóm” að hann gat ekki orða bundist, en réðist með öllu afli afburða mælsku og rökfimi á þær ltenningar kirkjunnar er stríddu á móti samvizku og heilbrigðu viti, svo sem guðshugmynd Gamla Testa- mentisins, óskéikulleik Ritning- arinnar, útskúfunarkenningunni og blóðfórnar frðiþæging, og skildi svo við þessar kenningar að þær áttu sér ekki framar uppreisnarvon hjá upplýstu fólki með sæmilegri dómgreind. Ingersoll var ástríkur heimilis- faðir, t'ilfinninganæmur og hjálp- samur með afbrgiðum, hann unni visindum og aðhyltist breytiþróunarkenninguna. Inger- soll má telja “humanista”, einn- ig mun hann hafa hallast að al- gyðiskenningu Spinoza, eins og fleiri djúpvitrir menn hafa gert. Boðskapur Paines og Ingersolls og skyldra umbótamanna hefir gert heiminn betri, frjálsari og víðsýnni, og áhiáfin á kirkjuna siðferðilegur gróði. Það er orð- ið hljótt um útskúfunarkenning- una í prédikunarstólum. Mannúð, sannleiksást og hrein- skilni voru meginþættir í skap- gerð þessara mætu manna. Inger- soll flutti boðskap sinn af eld- móði og heitri sannfæring og skeylli ekki um hvort hann afl- aðjphonum vinsælda eða óvildar. Hann var að aísu persónulega yinsæll, en vegna kenninga sinria varð hann fyrir cvægum dómum og fordómum af hálfu ilialdsinanna kirkjunnac Eg vil vinsamlega raælast til þess að Paine og Ingersúl séu taldir “Ijóssins börn.” Þegar Ingersoll andaðist nokkru fyrir aldamótin varð öðr- um frjálsum anda ljóð á munni vestur í KlettafjöIIum. Eg set hér að eudingu 2 er- indi úr eftirmælum St. G. Sl. cftir Ingersoll: Frægðar-maður látni, leiddi, Leyfðu mér í hinsta sirm Lyng-grein höggna af heiðum íslands Hengja í dánar kransinn þinn. Sá sem hana úr ljóðshönd leggur Lægst í sveiginn, hann er einn Orkuminni og yngri bróðir, Ekki þegn né lærisveinn. Þú sem gazt í ljósa loga Lifgað upp í mælsku glóð Það sem frjálsast hugsað hefir Hugstór, ung en sjálfselsk þjóð. Hjátrú löngum lærdóm varin Litlu kunni að svara þér. Skáldið firrist fræði múgsins, Fer samt rétt — það veit, það sér.” Friðrik Swanson. Sex mánuðir framundan Splunkurný útgáfa af EATON Ver8- skrám koma af pressunni Petta eru stórar bækur, hundruð blaðslðna, er innihalda tylftir af úrvals, mismunandi vörum. Mánaða vandleg skipulagning, hefir gengið I að framleiða þetta verk. Mark_ aðir heimsins hafa gefið af sér riku- lega uppskeru — Fatnaðir af alfull- komnustu nýtízlcu _____ Húsgögn af ailra nýjustu gerð — Búnaðarverkfæri, sem valin eru vegna endingar, og þrautreynd að þvl er viðkemur ánægju notenda. Sérhver blaðsíða prófuð og endur- prófuð. Sérhver mynd táknar ná- kvæmlega það, sem hún á að tákna. pó á þessi Verðskrá, sem svo gaum- gæfilega hefir verið undirbúin, aðeins sex mánaða llf framundan, því að þeim tlma liðnum, verður önnur EATON’S Verðskrá komin I yðar hendur. Ár eftir ár hefir EATON’S vegna Verðskrár sinnar fullnægt síbreyttum kröfum viðvlkjandi sniði og JLÍzku, og veitt sveitaviðskiftavinum aðgang að þeim sömu innkaupsþægindum og borgarbúar njóta, að því er vöruvali viðkemur. ^T. EATON WINNOCO EATON'S TIL ÞESS AÐ TRYGGJA YÐUR SIIJÓTA AFGREIÐSLU Skuluð þér ávalt kalla upp SARQENT UXI PHONE 34355 - 34 557 SARGENT and AGNES TRIMP TAXI ST. JAMES Phone 61 111 TOMBÓLA f SAMKOMUSAL SAMBANDSKIRKJU í WINNIPEG undir umsjón Stjórnarnefndar Sambandssafnaðar Mánudagskvöldið 3. nóv. n.k. kl. 8 Fjöldi góðra drátta — Freistið hamingjunnar >. Sækið þessa ágætu Tombólu Inngangur og einn dráttur 25c For Good Fuel Values WARMTH - VALUE - ECONOMY - ORDER — / WILDFIRE LUMP (DRUMHELLER) BIGHORN SAUNDERS CREEK LUMP (Saunders Area) CANMORE BRIQUETTES PHONESjlf MCr^VRDY QUPPLY f^O. Ltd. \JbUILDERS’ %^SUPPLIES \fandCOAL LICENSE No. 51 1034 ARLINGTON ST. \

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.