Lögberg - 02.04.1942, Blaðsíða 7

Lögberg - 02.04.1942, Blaðsíða 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 26. MARZ, 1942 7 ty1 PARADE The Government IJquór Control Commlssion is not made herein as to the quality of the iiquor referred to. responsible for any statement Tötralegi drengurinn Jón Guðmundsson þýddi (Frá “Nemó” á Gimli) (Framhald) í FLOTBOLLANUM Af vatninu svengir mann, segir máltækið. Og fann eg nú mjög til þie ss hve satt þetta er, þvi eg var orðinn glorhungraður eftir baðið. Eg sá brauðmola á borð- inu, og flot var í bolla á hyllu uppi yfir borðinu. Brauðið var mér ætlað, en flotið mátti eg eigi snerta, meðan eg var einn heima. Eg stóðst eigi freistinguna. Eg varð óhlýðinn og tók hnifinn í vinstri hönd mér og var einmitt búinn að stinga honum niður í flotið, er virtist skugga bregðast fyrir í stofunni, og jafnframt því heyrði eg inarrandi hijóð frá glugganum. Mér varð litið við, og hver getur lýst því hversu skelfdur leg varð? Hann stóð við gluggann klæddur rauðum kjól, er á öxlunum var alsettur gráu silfri. Á höfðinu bar hann hatt með hvitum fjöðrum og sverð við hlið. “Er Sims gamla heima?” spurði hann og stakk höfðinu inn um gluggann er stóð opinn. í stað þess að svara misti eg flotbollann, svo hann fór í hundrað parta. Hann hló, eg fór að gráta. —• “Varstu hrædd- ur við mig, barnið mitt?” mælli hann og kom inn um dyrnar. Eg stökk niður af borðinu, ten gætti þess eigi, að í staðinn fyrir brækurnar mínar stuttu, var eg í siða nærpilsinu hennar Sims gömlu; varð mér því fótaskortur °g féll endilangur ofan í alt flotið. Eg veinaði af angist. Liðsfor- inginn reisti mig á fætur aftur. Eg hljóðaði hástöfum og sagði i sífellu: “Hvað skyldi Sims Segja,” ien til að hngga mig lagði hann spegilfgara spesíu á borð- og sagði að fyrir hana gæti eg heypt tvo flotbolla handia Sims gömlu, en afganginum gæti eg sjálf haldið. Eg bæði ,h!ó og grét í einu og neri flotinu mieira framan í mig er eg vildi þerra tárin er streymdu títt niður eftir kinnum mér. “Er mamma þín heima?” spurði hann aftur. “Niei,” svaraði eg snöktandi. “Er ekki Hans ifóstursonur hennar heima?” — “Jú, það er eg.” — “Þú skilur mig ekki, barnið mitt, eg á við hann Hans.” — “Já, eg er hann.” — nú mundi leg fyrst eftir því að eg var i kvenklæðum, og skammaðist eg min ógurlega. En liðsforinginn spurði mig hvort eg heiina bæri kvenklæði. Eg benti honum á garinana mína, er eg hafði brieitl til þerris, og sagði honum að *igi ætti eg nema eina treyju og einar brækur, en það hefði vökn- að í tjörninni í garði “agents- ins” og því væru þau þarna. — “Það ert þá þú. Þú ert röskur drengur,” sagði hann, svo tók hann báðuin höndum um höfuð mér og kysti mig niðri í öllu flotinu. — “Þú hefir bjargað henni Elnu minni, drengur minn góður.” Því næst sagði hann að mi yrði hann að fara til kirkjn að halda barni undir skirn, og yrði því að hafa hraðann á, len i fyrramálið kl. 8 skyldi eg finna S1g i garðinum, því þá ætlaði hann að tala við mig. Að svo mæltu kvaddi hann mig með handabandi og gekk leið sína. Það var faðir hennar Elnu litlu, er hafði kyst mig. Eg gat, nú eigi lengur verið í kvienklæð- unum þröngu, og dreif mig úr beini, og fór í garmana mína uftur, þó hálfvotir væru. Þó þau væru rifin og ba*tt, voru þau þú harlmannsklæði. Eg var góður úrengur, hann sagði mér það. bað var faðir hennar Elnu er það bafði sagt. Tempora mutantur et nos in illis 1 Hin spegilfagra spesía lá á borðinu, og það var svo siem hægt að sjá hana. Eg var bú- inn að bera ösku á flotklessurnar á gólfinu, og bollabrotunum var eg búinn að kasta í ruslatunn- una. Þau sauð í kaffikatlinum, og þægan ilminn lagði langar leiðir í burtu, eins og hann vildi fyrirfram boða Sims gömlu að eitthvað væri um að vera heima. f stuttu máli, eg hafði búist við heimkomu hiennar eftir föngum. Hún kom heim og var í illu skapi, því prófessorinn og frú hans höfðu bæði farið í iniðdags heimboð og Sims gamla er hafði ásett sér að halda “eldhúsdag” gat ekki fengið vinnulaun sín fyr en daginn leftir. Eg vil ekki reyna að lýsa þeirri undrun og gleði, er Ijómaði út úr andlili hennar, er eg kom nokkuð fram í sögu mína og áður en eg vissi af, var hún búin að neka að mér rembings koss, og kallaði mig “hjartans ungann sinn.” Hún iagði spesíuna í aðra hönd.mér en grænköflótta klumpslega flösku í hina og bað mig að bú- ast við að hún mundi hafa glatt á hjalla í kvöld. Þegar eg næsta morgun opnaði augun var eg eigi lítið forviða, er eg sá Sims gömlu, ,er eg hélt að lægi í rúminu og vera að halda sér “eldhúsdag“ standa við borð- ið og slétta lín. Hún klappaði á kinnina á mér og spurði mig ihvernig eg hefði sofið um nótt- ina, hún bar mér kaffibolla, meira að segja með sykri; j stuttu máli, alt var svo -breytt frá hinu hversdagslega, að mér fór að detta í hug að klípa mig sjálfan í handlegginn til þess að vita hvort mig dreymdi. Eftir skipun hennar varð eg í meira lagi að dubba mig upp, og eftir að leg var búinn að þvo mig all- an hátt og lágt, færði hún mig í skyrtu póstritarans, því hún þvoði fyrir hann; síðan varð eg að klæðast hinum háu ullarsokk- um Sims gömlu, þó eg streyttist á móti því af öllum mætti. Hjá Jensen skósmið hafði hún --- fyrir góð orð og 8 skildinga at spesíunni — fengið til láns bux- ur og skó af syni hans. Að síð- ustu varð eg að klæðast treyju með fagurgljáandi hnöppum í, hana átti Lúðvík sonur prófiess- orsins. Siins gamla kom ineð hana heim til sin til þess að bæta hana. Þá tók hún þríhyrnt spegilgler ofan af hyllu og sýndi mér, til þess eg skildi geta feng- ið hugmynd um hver áhrif þessi umbúnaður hafði á mig, og varð eg í sannleika að viðurkenna, að eg alls eigi var líkur sjálfum mér, því sjálfan mig þekti eg vel af hinum ódýru myndum, er teg hafði séð af sjálfuin inér í forar- pollum og gluggarúðum kaup- mannanna. Klukkuna vantaði aðeins fáar mínútur í 8 er Sims gamla sagði inér, að nú væri tími til fyrir mig að búast tii brottferðar. En hve hjartað barðist í brjósti mér. Skyldi eg nú sjá Elnu? Skyldi hún nú kalla mig rifinn ræfil, er eg var svo skrautbúinn? Hvað skyldi nú liðsforinginn vilja mér? Hann var þó búinn að gefa inér spesíu og ímyndaði sér sjállsagt, að hún væri vel geynid í peninga kassanum. Hann ætlaði ef til vill að gefa mér bláa buxnagarma, eður vesti með gljáandi hnöppum. Eg var að hugsa um þetta á meðan eg var á leiðinni til dyranna á skíð- garðinum. Æ! en hvað mig klæjaði á fótunum. Eg var alls óvanur sokkum, svo' þeir kitl- uðu mig og klóruðu, svo méi fanst það alveg óþolandi. Mér var að detta í hug að fara í kringnm Sims gömlu og klæða mig úr sokkunum, en er eg leit við sá eg að hún stóð í dyrunum og kallaði til mín og sagði: “Áfram ! áfram!” Þeir skulu þó fú ráðningu áður len eg geng inn í garðinn, svo eg hafi þó frið fyrir þeim dálitla stund, hugsað. eg með sjálfum mér, og fór að núa og rífa fótleggi mína upp og niður með tánum á skónum; en á meðan eg er að þessu góðverki við sjálfan mig, var skíðgarðs- hurðinni lokið upp, og liðsfor- inginn gekk inn í garðinn. Áður en eg fór af stað hafði Sims gamla sagt við mig: “Láttu hann ekki sjá að þú sért að klóra þér, því eg veit ekki hvað hann hugsaði um skjólstæðing minn.” Þessvegna roðnaði eg út undir eyru, en hann hafði ef til vill ekki séð það, þvi þegar hann tók í hönd mína, sagði hann við mig: “Þú ert þá kominn vinur minn litli, hefir þú beðið lengi?” — “Nei.” — Liðsforinginn leiddi mig með sér til og frá um garð- inn og spurði mig um marga hluti, t. d. hvort eg kynni að lesa og skrifa, eður hvort það væri nokkurt handverk, er ieg sérstaklega bæri löngun til að læra. En eg get ekki iinyndað inér að hann hafi orðið miklu fróðari fyrir upplýsingar þær, er eg gaf honum, því stundum varð eg að neita því ölilu og stunduin gekk eg tímunum saman, og var að bíða eftir að sjá Elnu, því nú er eg prúðbúinn var á gangi með iföður hennar, vonaðist eg eftir að henni myndi ekki lítast svo illa á míg. Liðsforinginn gat mér nokkur epli, og sagði við skyldum sjá okkur dálítið um í bænum, og kvaðst þar vilja kaupa handa mér ný klæði í stað þeirra er vöknuðu í tjörninni. Þegar við einmitt gengum út um garðshliðið komu Anna og Elna hlaupandi á móti okkur. Þegar Elna sá mig, sneri hún sér snögglega við og greip i kjólinn hennar önnur, og fól sig á bak við hana. “Komdu Elna og réttu bjargvætt þínum höndina,” sagði liðsforinginn, og er hann sá að hún enn stóð á bak við önnu, bætti hann við: “þetta er Iitli drengurinn röski, er bjargaði þér úr vatninu.” En, ó! Það fór að koma skeifa á litla andlitið fagra, munnvikin fallegu titr- uðu og beygðust niður á við, og er liðsforinginn sagði með al- varlegum málróm — “Elna, komdu nú undir eins og taktu í höndina á honum fyrir þig,”— kendi eg í brjósti um hana, og tók skyndilega til fótanna, og hljóp fram um hliðið út úr garð- inum. Skömmu siíðar kom liðs- foringinn hlæjandi og kvað þann tíma mundi koma er við Elna fúslega réttum hvort öðru hönd- ina. Síðan gengum við ofan i bæinn.— Kæri lesari! Frá þessum tíma rann upp ný sól fyrir inér Eg byrjaði nú alveg nýtt líf, og ef þú hefðir viljað finna mig 8 dög- um leftir þenna atburð, hefðir þú orðið að klappa á dyr hjá Ander- son skólakennara og spyrja eftir Hans Smith í stað þess að finna mig þar sem eg var vanur að liggja og gægjast f gegnum gatið á skíðgarðinum, eða vera að leika mér við “Mads agent” úti á akrinum, eður að vera að þvo gólf og potta fyrir Sims gömlu. Nú mundir þú hafa fundið mig laglega til fara er eg sat í snotru herbengi og starfaði að þvi af alefli að taka framförum í hinni ágætu reiknings-, rit- og lestrar- list. LEIKBREYTING Þannig liðu bernskuár mín, og ef l>ú vilt fylgja mér fengra á líl’sins leið, kæri lesari, verður þú að koma með mér til Kaup- mannahafnar, því í hinum litla bæ er eg var borinn í, leið tím- inn jafnt og tíðindalaust, og það- an er þvi lítið að segja. “Vertu iðinn og hlýðinn,” hafði liðsfor- inginn sagt við mig áður en við skildiumst, og þvi hafði eg lofað með sjálfum mér. í draumum minum um lífið, og í allri hugsun minni um hinn ókomna tíma, stóð nafn nokkurt ritað með gullnum stöfum. Þú getur þér víst til hvaða nafn þaö ler. Það nafn benti mér áfram til starfsemi í lífinu. En fylgdu mér, eg er fús að sýna þér bú- staðinn minn litla á Vesturbrú. Komdu hérna í gegnum garðinn, eg bý þarna uppi á öðrum sal. Líttu á málmplötuna yfir dyrun um hjá mér og muntu sjá, að eg er farinn að hækka í tigninm, því þar stendur: H. Smith, siu^. med. Mér ler mjög hlýtt hérna i herberginu og hefi allmarga. kenslustundir, og hinn eðallyndi velgerðamaður minn borgar an- an kostnað er af bóknámi mínu leiðir. Settu þig niður í ruggu- stólinn, og líttu á þessar tvær stóru og fallegu myndir, er hanga á veggnum uppi yfir* legubekkn- um mínum. Þekkir þú þær ekki aftur. Axlamierki liðsforingjans bera að visu vott um æðri tign í hernum, og Elna er komin yfir fermingu, en mér virðist samt eg muna eftir hverjum drætti í hinu fagra andliti hennar, en því miður hefi eg aldrei séð hana síðan. Þegar eg var fermdur kom liðsforinginn til þess að vera viðstaddur þessa hátíðlegu athöfn, en Elna varð eftir heima i Holstiein. Árið eftir dó kona “agentsins” og þá kom liðsfor- inginn til þess að vera við jarð- arför hennar; þá var hann aftur einn, og þegar eg að síðustu var orðinn stud. art. sendi hann mér ferðapeninga og bað mig að heimsækja þau í Kiel, en er eg kom þangað, var Elna fyrir tveimur dögum komin suður á ftalíu. Foreldrar vinstúlku hennar höfðu fierðast til Róma- borgar, til að dvelja þar um vet- urinn, og höfðu talið liðsfor- ingjann á að lofa Elnu að fara ineð þeim. Samt get eg sýnt þér marga laglega smáhluti, er hún hefir bródérað handa mér, og í skrifpúlti mínu liggja nokkur bréf frá henni, en því miðui máttu lesa þau öll. Það eru heillaóskabréf á fæðingardögum mínum og á fermingardegi mín- um og að síðustu eitt til með- lims háskólans. Næsta bréf frá henni vonast eg eftir að fá frá Rómaborg. í bréfi til föður hennar, lofaði hún að rita mé^ langt bréf frá hinni heilögu borg, leftir að hún hefði séð sig dálítið um í henni, og eg bíð með ó~ þreyju eftir bréfi frá hennar kæru hönd. Páskadagurinn 1848 Merki upphlaupsmanna bai hátt yfir víggirðingar Týru, því páskadagurinn var næstum á enda, og vér beðið ósigur. Vér urðum bornir ofurliði, en höfð- um barist hraustlega, það er mér óha*tt að fullyrða. Veiðaraflokkurinn, sein eg var sjálfboðaliði við, var enn í bar- daganuin, því vér vörðum baka- leið herdieildarinnar. “Ef þú hef- ir kúlu eftir i rifflinum, Smith, þá sendu þýzku hundunum eina baun enhþá til að naga, áður en vér förum,” sagði sá gamli og röski undirforingi, er eftir fall liðsforingjans, stýrði her- dieild þeirri, er eg var í. “Já, herra undirforingi,” svaraði eg og miðaði á nokkra prússneska varðmenn er þustu fram úr skóginum. Eg hleypti af, en — “Æ!” sagði eg, hoppaði á hægra fæti en dró að mér vinstri fót- inn. — “Hvað er að?” spurði undirforinginn. “Eg fékk baun- ina sjálfur.” — “Hvar í fjand- anum?” — “f vinstri fútinn, herra? — “'Fjandinn hafi þá, hundana þá arna,” sagði undir- iforinginn til að hugga mig og tók í hönd mér. “Vér verður að flýta okkur, því nú er búið að blása til brottferðar. Siðan haltraði eg af stað með honum. ÁGÚSTÍNBORGARHÖLL Já, nú bý eg í höll. Að vísu var rúmið mitt úr furutré, en eg var samt glaður, því sár mitt var engan veginn hættulegt, og eg hafði góða von um að komast bráðlega á fætur aftur. Það var 28. maí uin morguninn. Her- brestirnir frá Dybol bárust yfir um til vor, og hver sem kom inn í stofuna var spurður. “Hvernig gengur það?” — En ennþá vissu mienn ekkert. f ein- hverju mesta leiðindiakastinu, sem að mér kom, greip eg gamalt dagblað, er eg náði í, og eg held eg hafi verið að lesa það í ti- unda sinni, er hurðinni var lok- ið upp, og hvern sá eg? Liðs- foringjann S., er kom til mín. greip hönd mína og spurði: “Hvernig líður yður, kæri Hans?” — “Þakka yður fyrir, og svona heldur vel, og vonast eftir að skömmum tíma liðnuin að geta þakkað Þjóðverjunum fyr- ir síðast, en mér leiðist ógurlega, kæri liðsforingi.” — Nú fékk eg bráðlega að vita að hann hefði ifarið frá herdeild sinni, er hvíld- ist fyrir utan bæinn. Hann haifði um morguninn komið til Hörup, og beið eftir að sér yrði skipað að fara með flokk sinn yfir til Dybel. Frá Frá Róma- borg hafði hann fengið bréf frá Elnu, sem svar til bréfs þess, er hann hafði ritað henni þangað undir eins og uppreistin hófst, og hann með nokkru liði sinu hafði farið til Danmerkur til þess að berjast gegn uppreistar- mönnum. Hann hafði beðið hana að fara til Lýbiku, svo til Kaupmannahafnar, svo þaðan til “agentsins” og dvelja þar á með- an svo stæði. Hún hafði skrifað, að hún undir eins ætlaði að fara af stað, og var náttúrlega mjög hrædd um föður sinn og Dan- mörku. (Framhald) Presturinn: — Jæja, Guðrún mín, hvað gekk nú að mannin- um yðar í dag. Hann fór út úr kirkjunni undir miðri prédikun- inni? Guðrún: — ó, prestui- minn, hann Högni minn er farinn að verða svo gamalí; hann gengur orðið í svefni. PPINTINS . . . . is really a personal service Most customers have their own ideas and thoughts which they want expressed with the aid of printers type, ink and paper. We believe our service will please your fancy better than the average. You are invited to test it out. CGLtHCI/i I I IA\ LIA4ITED PHONE 86327 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.