Lögberg - 07.05.1942, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. MAÍ, 1942
7
ywwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww's
\erzlunarsköla
NÁMSSKEIÐ
Það borgar sig fyrir yður
að leita upplýsinga á
skrifátofu Lögbergs, við-
víkjandi námsskeiðum
við beztu verzlunarskól-
ana í Winnipeg ....
Veitið þessu athygli f
nú þegar.
WMAAAAAAAAAMAMAAAAMAAMAAAAMMAAAAAAAW/
Aðkomufólk
Eftir Sigurð Skúlason
Það er vor yfir Reykjavík.
t’rostmóða vetrarins, þrungin
göturyki og kolareyk, er horfin
um stund, og sólaskinið glampar
rótt sem snöggvast á regnfáðu,
sprungnu malbikinu. Niðri við
höfn kveður Hegrinn kolaljóð
sitt, og því til áréttingar sleppir
hann hverju sótsvörtu fanginu af
öðru ofan í óseðjandi kolahítir
skipanna, sem hann mettar frá
hæðum.
Fótatak stóriðjunnar er tekið
að bergmála í bænum, og hin
magaveiku, pólitísku sináskáld
iá við 'það andlegan sinadrátt,
spúa vindlingareyk í kapp við
eimflautur gufuskipanna og bú-
;'st til að yrkja um ríkisnýtingu
vélanna, í þeirri von, að þau
verði sjálf þjóðnýtt.
En Guðjón gamli í Hásnum
skilur ekki það, sem er að ger-
ast á mölinni úti við himinbláu
sundin. Hann hefir ekki verið
iaugaður í ilmvötnum nýja tím-
ans, og þetta eina skilningarvit,
sem hann starfrækir enn i full-
homnu sjálfræði, er stíflað ai
íslenzku neftóbaki. Guðjón i
hásnum á sér ekki neina goðum-
horna skáldlega afrá*. Hann
verður að láta sér nægja að
snýta sér ærlega að fornum sið,
urra eins og helsært dýr yfir
spillingu aldarinnar og soga að
l>vi búnu vænan tóbakskúf af
hínu handarbakinu upp i af-
skræmt niefið til þess að reyna
nð sættast rétt sem snöggvast
við tilveruna.
Hann er nú alveg hættur að
labba sér alla leið ofan i mið-
hæ, niður á eyrina, karlfuglinn.
Hann hefst að mestu leyti við
heima i Básnum nú orðið, ýmist
mni við eða á lóðarblettinuni
hak við kofann. En af innri
hvöt eigrar hann þó daglega nið-
Ur á hornið á Vesturgötu og
Harðastræti og húkir þar jafnan
stundarkorn til þess að mæna a
fiskvagninn, sem stendur þar, þó
að þetta sé ekki annað en lítil-
mótlegur handvagn. Þarna á
torgniefnunni stendur hann,
studdur vik prik sitt, án þess að
uokkur maður veiti honuin at-
hygli fremur en gangstéttartetr-
mu, sem hann húkir á, enda er
hann orðinn sjálfsagt fyrirbrigði
á þessum stað um þrjúleytið síð-
öegis. Hann hugsar nú lekki
Iramar nema eina hugsun, karl-
sauðurinn, og hún er eitthvað á
Þessa leið:
■—Vont er að vera gamall, en
verra ier þó að vera ungur. Það
var munur, þegar við Ásdis mín
vorum að alast upp, o-já, o-jæja.
Hann er orðinn samdauna um-
hverfinu að því undanskildu, að
hann getUr aldrei sætt sig við
sargið í vöruflutningabílunum.
Þegar þeir bruna fram hjá hon-
um, verður hann myrkur og
griettur á svipinn, og þá urrar
hann lágt, eins og særð skepna.
Heir, sem mæta honum, halda
vafalaust, að hann sé að stynja
af langvarandi gigtarverkjum, ef
þeir á annað borð heyra þá urr-
'ð í honum fyrir skröltinu í bíln-
um. Þeir miða þessa glyktun
sína að sjálfsögðu við likams-
hró þessa langþreytta manns.
Guðjón á Básnum ler ekki
fœddur í Reykjavík. Hann er
ættaður austan yfir Fjall og er
sveitamaður1 í húð og hár. Hann
hom of gamall til höfuðstaðar-
ms til þess að konum væri unt
aÖ afklæðast sveitamenskunni
°g selja upp þvi lifsviðhorfi, sem
mótast hafði i ætt hans í þús-
und ár. Hann hafði ekki einu
sinni skóaskifti, hvað þá fata-
skifti, ,er hann gerðist landnáms-
uiaður í ríki malbiksins niðri
við hin rómantísku sund, hafði
aldrei haft fvrir því áður, er
hann fór snögga ferð til höfuð-
staðarins, hafði aldrei átt sér þar
svört spariföt eins og læknirinn,
þresturinn hans og oddvitinn.
örlögin höfðu að þvi, að virt-
1 st bundið hann við sömu jörð-
ina og faðir hans, afi og langafi
höfðu búið á hver fram af öðr-
um i óvenjulegri þaulsætni, enda
þótt ábýlisrétturinn væri aðeins
til ,eins árs í senn, ábýlisréttur,
sem segja mátti upp fyrir Mik-
jálsmessu ár hvert, en aldrei
hal'ði verið stuggað við i manna
minnum. Og Guðjón hafði ár-
lega goldíð svipaða krónatölu i
landskuld af jörðinni og faðir
hans hafði áður greitt, og sömu
smjörleigurnar af kúgildunum.
Hvort tveggja hafði hann jafnan
goldið skilvísliega jarðeigandan-
um, sem var kaupmaður suður i
Reykj avik.
Árin liðu hægt og stilt. Guðjón
sléttaði árlega ámóta stóran bletí
á túninu og hann hafði sléttað
á ári hverju, síðan hann tók við
jörðinni. Að öðru leyti beið
hann þar dauða síns eins og for-
feður hans höfðu gert, mann
fram af manni, án þess að hon-
um og konu hans yrði “barna
auðið,” siem svo'er nefnt.
En vor eitt, er hann kom ti!
höfuðstaðarins til þess að inna
af hendi landskuld sína og leig-
ur, brá svo kynlega við, að jarð-
eigandinn tjáði honum, að þetta
yrði nú víst í siðasta skiftið, sem
þeir hittust í þeim tilgangi, þvi
að í náinni framtíð mundi hið
opinbiera, rikiö sjálft, verða eig-
andi jarðarinnar.
Þetta voru mikil og óvænt tíð-
indi, og Guðjón gamli vissi i
fyrstu ekki >sitt rjúkandi ráð,
botnaði ekki neitt í því, sem
kaupmaðurinn var að segja hon-
um. Þó að honum hefði verið
skýrt frá því, að himintunglin
hefðu skyndilega breytt um
gang, mundi hann tekki hafa orð-
ið nærri eins agndofa. Undrunin
varnaði honum máls, enda var
hann ekki vanur því að setja i
ræður um það, sem fyrir hann
bar. En jarðeigandinn, sem vaf
veraldarvanur og vissi, hvað
klukkan sló, sagði ofboð rólegur
á svipinn, að stjórnin hefði á
síðasta Alþingi látið flytja frum-
varp til laga þess efnis, að ríkinu
veittist heimild til að taka vissar
jarðir á sína arma, eins og hann
orðaði það. Hugskotssjónir vald-
hafanna höfðu einmitt beinst að
ábýlisjörð Guðjóns gamla, með
því að miklar líkur þóttu fyrir
því, að þar væri girniJegt að reka
í framtíðinni nýtízku ríkisbú-
skap, reisa þar sumarbústaði
handa miklihæfum, íslenzkúm
stjórnmálamönnum, ler slitiö
hefðu kröftum sínum tilfinnan-
lega í þágu ættjarðarinnar og
barna hennar. Þangað var gert
ráð fyrir, að tignir erlendir gest-
ir mundu sækja þessa valda-
menn heim til þess að hvílasL
mieð þeiin i örmum islenzkrar
bláfjallanáttúru og samgleðjast
þeim vegna viturlegra forráða
þeirra yfir landi og þjóð. — Svo
væri það sumra hyggja, að í ásn-
um fyrir ofan bæinn mundii
vera fólgnir málmar.
Guðjón gamli hafði aldrei fyr
gert sér ljóst, hvað Alþingi væri
í raun og veru, að það væri eins
konar guðleg forsjón smælingj-
anna, sárbeitt eða Ijúf, alt eftir
því, hverjir réðu þar og hverjir
hlut áttu að máli. F'élagsmála-
hyggja 20. aldarinnar hafði enn
ekki hert hina deigu sál hans í
j á r n 1 á g a rvatni nútímaefnis-
hyggju, eftir að hún hefði öðl-
ast eldlegan lit í hinum póli-
tizka afli flokkssmiðjunnar.
Sannast að siegja hafði hann
ekkert vit á þessu, sem kallað
var pólitík og flestir íslendingar
voru altaf að tala um. Þess-
vegna var heldur ekkert tillit
tekið til hans á hærri stöðum.
Guðjóni fanst einna helzt, að
pólitíkin væri eingöngu bundin
við Reykjavik, enda þótt öll fag-
uryrðin væru yfirleitt miðuð við
fólkið í dreifbýlinu, scm stjórn-
málamennirnir fórnuðu öllum
kröftum sínum og jafnvel sálar-
rósemi. En suður i Rieykjavík
sat þetta AJþingi, sem hann
ihugsaði sér einna helzt sem eins
konar veizluhald þeirra útvöldu.
Þar sátu dýrlegustu menn þjóð
arinnar á rökstólum ár hvert,
meðan á vertíðinni stóð. Um
alþingismennina var aldrei talað
öðruvisi en í þriðju persónu
fleirtölu í karlkyni, enda þóti
konur hefðu um skeið átt sæti á
þingi. Molarnii’, sem hrutu af
borðum þessa veizlufólks við há-
borð líísins í höfuðborg þjóðar-
innar, bárust að visu austur yfir
Fjallið í líki pólitískra blaða. En
Guðjón gamli hafði litils orðið
vísari, þó að hann læsi þau.
Hann sá að vísu tvö stjórnmála-
blöð, sem ýmist voru send ó-
keypis eða fyrir hálfvirði, af þvi
að hann átti heima á pólitísku
háþrýstisvæði dreifbýlisins og
var auk þess háttvirtur kjósandi.
En þessi blöð sögðu að jafnaði
hvort annað Ijúga mestöllu eða
misski'lja flest alt það, siem þau
'fluttu og nokkru máli skifti, og
Guðjón, sem lengi vel hafði verið
á sama máli og síðasta blaðið,
sem hann fékk, var nú hættur að
nenna eða mega vera að því að
láta skapa sér 52 stjórnmálavið-
horf á ári. Hann var hættur að
lesa blöðin. En hann lét af
þægð og gömlum vana flytja sig
á kjörstað, þegar hetjurnar að
sunnan óku um héruð til þess
að sækja í sig veðrið undir næstu
Aliþingisveizlu. Og hverja hann
kaus, valt þá nokkuð á þvi,
hvernig honum leizt á mennina,
sem í kjöri voru, hve djarf-
mannlega þeir sögðu sannfær-
ingu sina, og hváða hjarðmanns-
bréf hann hafði síðast fengið.
Yfirleitt hafði hann talið sér
þing og stjórn óviðkomandi sem
slik fyr en nú.
— Þú getur náttúrlega reynt
að fara upp í stjórnarráð og vita,
hvað ráðherrarnir kunna að
segja, hafði jarðeigandinn sagt
við hann að skilnaði. — En eg
tel upp á, að þér vierði tafar-
laust bygt út í næstu fardög-
um. Þeir kváðu ekki ætla að
láta neinn privatmann búa leng-
ur á jörðinni, bætti hann við.
Og Guðjón gamli hafði rölt af
slað áleiðis upp i stjórnarráð.
Aldrei hafði hann dreymt um,
að hann mundi nokkuru sinni
voga sér inn í þetta svonefnda
hvitahús þarna austan við Lækj-
artorgið. Hann eigraði inn um
hliðið, mændi siem snöggvast
hugstola upp að húsinu, færðist
því næst í aukana og rölti inn í
húsið. Reffilegur húsvörður
spurði hvað honum væri á hönd-
um.
Guðjón þurft að finna ráð-
herrann.
—-Hvaða ráðherra? Þeir voru
um þessar mundir þrír. Raunar
var nú einn þeirra erlendis og
annar á ferðalagi norður í landi.
En sá þriðji var hieima, og við
hann gæti Guðjón fengið að tala
eftir svo sem klukkutima. Mað-
urinn var ákaflega umsetinn,
sem ekki leyndi sér, því að marg-
ir biðu hans.
Guðjón beið í röska tvo
klukkutima. En þá vissi hann
heldur ekki fyrri til en hann
stóð frainmi fyrir þessum hæst-
virta umbjóðanda þjóðarinnar,
sem reyndist vera allra viðkunn-
anlegasti maður, þó að ekki bæri
við fyrstu sýn neitt tiltakanlega
á þvi, að hann væri í þjónustu
þessa umkomulitla svieitabónda.
“Já, svo þér heitið Guðjón
Guðmundsson og búið þarna á
Núpi. Já, það er nú það. — Ja
— það hefir nú verið talið heppi-
legt, að rikið tæki þessa jörð —
vegna þjóðarinnar. Þér skiljið
það, að það verður aldrei hjá
því komist, að hróflað sé við iein-
hverjum, þegar verið er að vinna
að alþjóðarheill,, og því verðið
þér nú að verða burt af jörðinni
i næstu fardögum. Þér sjáið,
að heill almennings — alþjóðar
— og stundarþægindi einstakl-
ingsins geta ekki altaf samrýmst.
En Guðjón gamli botnaði ekk-
ert í öllu þessu. Hann ætlaði að
fara að útskýra það fyrir ráð-
hérranum, hve miklar jarðabæt-
ur hann hefði unnið og að þess
vegna fyndist honum liann hafa
rétt til ábúðar á jörðinni fram-
vegis. En í sömu andránni þok-
aði ráðherrann honum áleiðis til
dyranna, og áður en Guðjón
gamli fengi nokkrum vörnum
auk heldur rökum við komið,
var hann kominn alla leið iit á
gang og rétt að segja dottinn
aftur yfir sig niður stiga — en
annar maður kominn til ráð-
herrans, inn í helgidóminn.
Eins og smælingjum er títt,
þegar þeir koma af fundi stór-
inenna, var Guðjón gamli i hálf-
gerðri leiðslu, er hann kom út
lrá ráðherranum. Hann áttaði
sig naumast á því, sem gersl
hafði. Honum fanst heimsókn
sin í stjórnarráðið hafa verið
einna áþekkust furðulegum
*
draumi. En eitt hafði honum þó
lærst, og það var, að vegir stjórn-
málamannanna væru honum og
hans líkum órannsakanlegir.
öllu veruleika-kendari var sú
staðreynd, að Guðjóni gamla og
konu hans var liygt út af jörð-
inni vorið eftir. Fyrir Mikjáls-
messu neytti rikisvaldið glæsi-
fegra aflsinuna við þennan fá-
tæka smælingja, sem alla æli
hafði verið trúr yfir litlu og ár-
lega hafði bætt annars manns
jörð — og boðaði honum skilyrð-
islausa brottför hans af jörðinni.
sem hann og forfeður hans höfðu
tekið trygð við í full 300 ár.
Þannig varð hin jarðneska for-
sjón á undan þeirri forsjón, sem
lætur menn deyja, “þegar alt er
komið í kring.” í krafti þess-
ara nýtizku örlaga skolaði
straumur nýja timans þeim
Núpshjónunum vestur yfir
Fjallið ásamt nokkrum föggum,
heimild fyrir lítistandandi upp-
boðsskuldum, sem hæpið var, að
innheimtast mundu, og’ tveini
vagnhestum, sem þau hjónin
riðu fiet fyrir fet vestur í óviss-
una.
Guðjón gamli festi kaup á
gömlum steinbæ i Vesturbænum.
Hann lenti þannig í þeim hluta
Reykjavíkur, þar sem forn bæj-
arbragur lifir enn í kolunum, ef
að er góð. En þau Núpshjónin
áttuðu sig ekki á slíku. Guðjón
gamli gerðist ökumaður í skjóli
þess, að hann átti tvo unga vagn-
hesta. Þau hjónin höfðu ' i
nokkur ár nægilegt að bíta og
brenna, og klárarnir gerðu sitt
gagn i þjónustu heildsalanna
niðri i bæ, sem þurftu að láta
flytja vörur til viðskiftamanna
sinna víðsvegar um bæinn.
En svo .vildi það til, að at-
vinna Guðjóns gamla minkaði
skyndilega á einhvern dularfull-
an hátt. Það gerðist á tæpu ári.
Allir vöruflutningar heildsal
anna urðu blátt áfram að engu
einmitt um það leyti, sem Guð-
jón átti að rétlu lagi að fara að
yngja upp klárana sina. Og
brátt rak að þvi,.að hann hætti
alveg að eiga erindi ofan í bæ.
Það var engum blöðum um það
að fletta: heildsalarnir voru að
fara á höfuðið, enda var líka
óspart talað um kreppu í blöð-
unum, og engin ástæða var til
að efast um, að þau segðu satt i
þeim efnum. Svo lögðu þau
Guðjón og kona hans hestana
sína 'loks sér til munns, og vagn-
arnir voru^seldir hæstbjóðanda,
þeim hjónunum til framdráttar.
Alt þetta entist þeim skamt. En
er það var upp étið, gerðist
Revkjavíkurbær forsjá þeirra
eins og svo inargs aðkomufólks,
sem löggjöf þjóðarinnar studdi
ínn á hina aflíðandi þurfamanna-
braut. Þau héldu áfram að eiga
heima i Básnum og öðluðust
kenningarnafn af honum í stað
þiL'ss að vera kend við bæinn
sinn austur i faðmi blárra fjalla.
Nú voru þau hætt að gera víð-
reist, fóru ekki einu sinni !
kirkju. Guðjón gamli var stóri
vísirinn á heimilinu. Hringrás
hans var Túngata — Garðastræt-
ið — Vestnrggtan og Bræðra-
borgarstígurinn. Hann skreidd-
ist út úr Básnum flesta daga árs-
ins með hækkandi sól. En
gamla konan eigraði rétt út fyrir
Báslóðina til þess að kaupa þeirn
i matinn. Hún var litli vísirinn
í lilveru þeirra hjónanna.
Það er laugardagur. Guðjón
gamli er á heimleið neðan ai'
horninu á Garðastradi og Vestur-
götu. Hann er kominn heim
undir básinn, svo að hringferð
hans í dag er senn lokið. Nú
þarf hann að fá sér miðdegis-
blund, draumlausan lúr, til
hressingar langþreyttum likama
sínum. En sál hans ónáðar nú
ekkert framar nema neftóbaks-
leysi og svo þetta annarlega
skrölt í vörubílunum, sem gamli
maðurinn heyrir, en skilur ekki.
Hann órar ekki. fyrir því, að
það eru þessir bílar, sem hafa
útrýmt hestvögnunum hans af
götunum og gert hann sjálfan
að óþörfu hjóli í þjóðfélagsvél-
inni, heldur argar bílaskröltið !
eyrum hans eins og óskiljaleg
dómsraust — illur bifur.
Þannig fór um þennan full-
trúa gamla tímans, þennan skil-
getna son feðranna í þúsund ár.
Skyldi röðin nokkurn tima í
svipuðum skilningi koma að full-
trúum nýja tímans, þeim inönn-
um, sem vörubilunum aka?
—(Samtíðin).
Ví SUR
Morgunsól
Vonin eykur veldi sitt,
vængjar gleðibraginn;
þegar blessað brosið þitt
býður góðan daginn.
Kvöldsól
Glitra fe*ll i geisJadúk,
greypt i stellingonum.
Skygnist Elli öfundsjúk
út úr fellingonum.
Sól og öfund
Stilin gylla góðlynd vill
grös á sillum fjalla.
Þoku-fyllum öfund iill
eys á milli hjalla.
Hreiðar E. Geirdal.
Our Printing
Service
i íti cltaracter and
is personal n c Tbe bet-
intimate m contac . we
ter class P foducing ^aS
take pnde 'nl tinCtive clien-
W?n * owe usVe opportumty
ottervingyom
695 SABCENT
A.VEN0E, \ninnipeo