Lögberg - 15.10.1942, Side 8
8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 15. OKTÓBER, 1942
Or borg og bygð
Gefin saman í hjónaband laug-
ardaginn 3. okt. í Lútersku
kirkjunni í Selkirk, að vðistöddu
mörgu fólki, Colin Albert Glan-
field, frá Selsdon, Surry, Eng-
land, flugmaður í R.A.F., Este-
van, Sask. og Violet Augusta
Thorvaldson, Selkirk, Man. Að
giftingunni afstaðinni sátu
vandajnenn og vinir ríkulega
veizlu á heimili Mr. og Mrs.
Einar Thorvaldson, foreldra
brúðarinnar, 537 Eveline St.,
Selkirk. Séra Sigurður Ólafs-
son gifti.
♦ ♦ ♦
Capt. Kristján J. Austmann
hefir dvalið í borginni síðan á
föstudaginn var; hann er her-
læknir með bækistöðvar í On-
tario, og hvarf þangað aftur á
þriðjudaginn.
♦ ♦ ♦
1 minningarkvæðinu, sem ný-
lega birtist í Lögbergi pm Guð-
mund Magnússon, eftir B. J.
Hornfjörð, hefir sú villa slæðst
inn, að í stað “Framnes þakka
fyrrum”, á að vera “fækka
fyrrum.”
♦ ♦ ♦
Selkirk, Man.
9. okt., 1942
Herra E. P. Jónsson,
Ritstjóri.
Viltu vera svo vænn og skila
til hans Jóns halta frá mér
þessari gátu-úrvinslu:
6 andir, 2. al. hver= 12 aln.
4 álftir, 4 al. hver=16 aln.
20 titl., 0.10 al. hver=2 aln.
30 fuglar 30 álnir
Með vinsemd,
Halldór Gíslaspn,
Selkirk.
♦ ♦ ♦
Þeir séra Egill H. Fáfnis og
G. J. Oleson frá Glenboro, lögðu
af stað suður til Louisville,
Kentucky á mánudagskveldið til
þess að sitja þar ársþing Sam-
einuðu lútersku kirkjunnar fyr-
ir hönd íslenzka, lúterska kirkju-
félagsins. Fjórði fulltrúinn af
hálfu íslendinga á áminstu
kirkjuþingi, er séra Kristinn K.
Ólafson, forseti kirkjufklagsins.
Munið eftir tombólunni í Sam-
bandskirkjunni næsta mánu-
dagskvöld þann 19.
♦ ♦ ♦
Mr. Guðmundur Jónsson frá
Vogar, Man., er staddur í borg-
inni þessa dagana.
♦ ♦ ♦
Mr. Magnús Peterson frá
Langruth var gjtaddur í borginni
í byrjun vikunnar.
♦ ♦ ♦
Dr. Tweed verður í Árborg á
fimtudaginn þann 22. þ. m.
♦ ♦ ♦
Mr. Grettir L. Jóhannsson,
ræðismaður Islands fyrir Mani-
tobafylki, lagði af stað suður í
Bandaríki um miðja fyrri viku;
hann er einn þeirra fulltrúa lút-
erska kirkjufélagsins, sem sitja
ársþing Sameinuðu lútersku
kirkjunnar i Norður-Ameríku,
sem nú stendur yfir í Louisville,
Kenturky. Mr. Jóhannson ætl-
aði einnig til Washington og
New York í embættiserindum.
♦ ♦ ♦
Nefnd úr kvenfélögum Fyrsta'
lúterska safnaðar, sem það hlut-
verk hefir með höndum, að ann-
ast um böglasendingar til þeirra
hermanna úr söfnuðinum, sem
nú dvelja utan Canada, biður
aðstandendur þeirra hér með
vinsamlegast, að senda sér taf-
arlaust nöfn þeirra og rétta
utanáskrift; vegna fyrirmæla
póststjórnarinnar, þurfa slíkar
bögglasendingar að komast héð-
an fyrir lok yfirstandandi mán-
aðar. — Upplýsingar sendist til
Mrs. A. S. Bardal, Ste. 2 Bardal
Block, og Mrs. George Eby, 144
Glenwood Crescent, sími 501 348.
í lok fyrri viku voru stödd
hér í borginni Mr. og Mrs.
Grettir F^eeman frá Siglunes.
Miss Svafa Guðmundson, Hjálm-
ar Guðmundson, og tvær Magn-
ússon-systur frá Hayland.
♦ ♦ ♦
Mr. B. Eggertson kaupmaður
og Páll Johnson frá Vogar, voru
staddir í borginni á miðviku-
daginn.
♦ ♦ ♦
Hreinn H. Goodman, einn af
frumherjum Piney-bygðar lézt
að heimili sínu þar í sveit á
laugardaginn var. Hann var
ættaður úr Rangárvallasýslu, en
kom vestur um haf árið 1900.
Hann var jarðsunginn í Piney,
á þriðjudaginn. Séra Valdimar
J. Eylands flutti kveðjuorðin.
♦ ♦ ♦
Heimilisiðnaðarfélagið heldux
næsta fund á miðvikudagskvöld-
ið, 21. október, að heimili Mrs
Hannes Lindal, 912 Jessie Ave.
Fundurinn byrjar klukkan átta.
Mr. Ragnar H. Ragnar, söng-
stjóri og píanókennari frá
Mountain, N. Dak., kom til borg-
arinnar á laugardagskveldið var.
og hélt heimleiðis aftur á
þriðjudaginn; hann lét hið bezta
af hag sínum, og hag íslend-
inga yfirleitt þar syðra.
♦ ♦ ♦
Kvenfélag Sambandssafnaðai
cfnir til spila-samkomu (bridgel
mánudagskveld 26. október í
samkomusal kirkjunnar til jóla
glaðnings íslenzkra hermanna
utan Canada. Byrjar klukkan 8.
Á víðavangi
Yfirforingi þýzku njósnarstarf-
seminnar í Frakklandi, Max v.
Schwartzkoppen ofursti, hafði
tvívegis verið sæmdur heiðurs-
merkjum af frönsku stjórninni.
Hann var í mörg ár hernaðar-
ráðunautur þýzku sendisveitar-
innar í París, og starf hans sem
yfirmanns njósnarkerfisins var
Frökkum fyllilega kunnugt um.
Þeirra eigin starfsmenn, sem
þetta mál varðaði lásu og létu
afrita öll þau skjöl, sem von
Schwartzkoppen komst yfir, en
tli þess að hann skyldi ekkert
gruna og standa í þeirri sælu
trú, að hann væri að leika á
Frakka, sæmdu þeir hann þess-
um heiðursmerkjum: fyrst gerðu
þeir hann riddara heiðursfylk-
ingarinnar og síðan “komman-
dör.” í
Sokkar og vetlingar
úr tvíþætíu bandi óskast til kaups
eins fljótt og verða má
Sýnishorn sendist til
Keystone Fisheries Ltd.
325 MAIN STREET, WINNIPEG
XAAM
ERZLUNARSKOLA
NÁMSSKEIÐ
Það borgar sig fyrir yður
að leita upplýsinga á
skrifátofu Lögbergs, við-
víkjandi námsskeiðum
við beztu verzlunarskól-
ana í Winnipeg ....
* Veitið þessu athygli »
nú þegar.
WAAAAAAAMMWMAMAAMAMAAAAMiAAMAif
I Dodge City í Kansas í
Bandaríkjunum, hefir verið reist
minnismerki um þær 7 miljónir
uxa, sem brautryðjendurnir
höfðu að akneytum.
* * *
Ed Bancroft Lexington, Ken-
tucky í Bandaríkjunum hefir
gengið með sama hattinn dag-
lega í 26 ár.
* * *
Gufuskipið “John Randolph,”
fyrsta járnskip Ameríku fór
sína fyrstu ferð yfir Atlantshafið
í lestinni á skipi gerðu úr tré.
Skipið var bygt á Englandi, af
því að menn kunnu þá ekki í
Ameríku að smíða járnplötur,
voru þær svo sendar sundur-
lausar til Savannah í Georgiu
og settar þar saman.
* * *
Carolínu af Braunschweig-
Wolfenbuttel var synjað að-
göngu að krýningu Georgs kon-
ungs IV. og dó sökum þess af
harmi þremur vikum síðar. Hún
giftist Georg IVI. 1795, er hann
var prins af Wales; en hann rak
hana frá sér að tveim árum
liðnum. Og er hann skyldi
krýna í Westminster Abbey
1821, þá var henni þröngvað
með valdi frá því að koma
þangað inn.
* * *
Stærsta, þyngsta og hæsta
hljóðfæri í heimi er klukku-
spilið í turninum á Riverside
Church í New York. Alt
klukkuspilið vegur 140 tonn;
það er sett saman af 72 klukk-
um, og þyngsta klukkan vegur
20,148 kg.
* * *
Mr. M. L. Kappelhoff, Akron,
Ohio, á sér dúfu, sem hefir til-
búi-nn væng og getur þó flogið
hátt og leikið sér í loftinu.
Frakkneska tennisleikkonan
Susanna Lenglen, vann báða
Simple-leikina í Wimbledon og
sex sinnum vann hún tennis-
meistara-titil Frakklands. Hún
þreytti leiki í Nizza á Suður-
Frakklandi 1926 og tapaði aldrei
leik í þeirri keppni.
♦ * *
Jakob I., Englandskonungur,
kvæntist Önnu af Danmörku í
ágúst 1589. Þegar Anna sigldi
til Stóra Bretlands, barst skip-
ið, sem hún var á til Noregs
fyrri ofviðri. Konungi leiddist
þóf þetta, og lét í haf frá Leith
í Skotlandi í október, til að
sækja brúði sína og kvæntist
henni svo í Osló í nóvember-
mánuði; en óveður hömluðu
konungi frá að sigla vestur til
Englands alt fram í maímánuð
næsta ár. Það var sagt, að
Agnes og Richie Graham hefði
gert þessa storma með göldrum
og voru þau síðan brend \
Edinborg í janúar 1591. Líf-
læknir konungs var líka háls-
höggvinn fyrir þennan sama
“glæp.”
* * *
Indverjinn Singley kemur
fram í Ameríku og kveðst vera
“bruna-trygður maður.” Hann
beygir glóandi járnstöng með
tönnunum, en aðstoðarmenn
hans beina loganum frá svo-
nefndum blásturslampa að lík-
ama hans og láta logann leika
um augu hans, og hann hvessir
augun samtímis í logann.
—(Heimilisblaðið).
Messuboð
Messur í Gimli preslakalli:
Sunnudaginn 18. október—
Betel, kl. 9.30 árdegis.
Gimli, kl. 2 síðdegis.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
♦ ♦ ♦
Lúlerska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 18. októ^r—
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Ensk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
♦ ♦ ♦
Til athugunar við messutím-
ann í Hólaskóla kl. 3 e. h. þann
18. þ. m. að þar er meint fljóti
tíminn (The Central Standard
Time). Þetta verður þakklætis-
messa.—S. S. C.
+ ♦ ♦
Preslakall Norður Nýja íslands
Sunnudgainn 18. október—
Riverton, íslenzk messa og
ársfundur kl. 2 e. h. ; Árborg,
ensk messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
♦ ♦ ♦
Messur í Vafnabygðum:
Sunnudaginn 18. október—
Westside kl. 11 f. h.—ísl.
Foam Lake kl. 2.30 e. h.—ensk
Leslie kl. 8 e. h.—ensk.
B. T. Sigurdsson.
♦ ♦ ♦
Sunnudaginn 18. október pré-
dikar séra H. Sigmar í Vídalíns-
kirkju kl. 11 f. h. (íslenzk messa)
og í Fjallakirkju kl. 2 e. h. (ís-
lenzk messa). Altarisganga í
Fjallakirkju og haustoffur safn-
aðarins til trúboðs. Ensku
kveldmessunni á Gardar, sem
auglýst var að færi fram sunnu-
dagskveldið 18. okt. kl. 8, hefir
verið frestað til 25. október, kl.
2 e. h. Þá hátíð í sunnudaga-
skólanum. Allir velkomnir.
Þakklæli
Jón Sigurdson félagið þakkar
öllum þeim fjölda af vinum og
stuðningsmönnum sem komu á
hið árlega “Silver Tea” og gerðu
þann dag að öllu leyti skemti-
legan og happasælan. Kaffi-
dúkinn sem dregið var um hlaut
Mrs. J. H. W. Price, 53 Evanson
St. (No. 374).
Lögberg inn á hvert einasta íslenzkt
heimili fyrir jólin!
The Columbia Press, Limited,
695 Sargent Avenue,
Winnipeg, Man.
Sendið LÖGBERG sem jólagjöf til
frá
$3.00 innlagðir sem ársgjald.
Húsráðendum til athugunar
Eins og sakir standa, höíum við nægar birgðir
fyrirliggjandi af flestum íegundum kola, en það er
engan veginn víst, hve lengi slíkt helzt við.
Vegna takmarkaðs mannafla í námum, og rýrnandi
framleiðslu af þeim sökum, ásamt örðugleikum við
flutninga, má því nær víst lelja, að hörgull verði á
vissum eldsneytisiegundum í vetur.
Vér mælum með því, að þér birgið yður þegar upp,
og eigið ekkert á hættu með það, að verða eldsneytis-
lausir, er fram á líður. Vér mælum með því, að þér
sendið pantanir yðar nokkrum dögum áður en þér
þarfnist eldsneytisins, vegna aukinna flutningsörðug
leika.
TRYGGIÐ VELLÍÐAN YÐAR MEÐ ÞVÍ AÐ FYLLA
KOLAKLEFANN NÚ ÞEGAR!
McCurdy Supply Co., Ltd.
Byggingarefni og Kol
1034 ARLINGTON STREET
SÍMAR: 23 811 —23 812
TOMBÓLA
í samkomusal Sambandskirkju í Winnipeg
Undir umsjón stj'órnarnefndar Sambandssafnaðar
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 19. OKTÓBER, N.K.
KLUKKAN 8
Fjöldi góðra drátta — Freistið gæfunnar
Sækið þessa ágætu tombólu.
Inngangur og einn dráttur 25c
KAUPIÐ ÁVALT
LIMEEL
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
Our
Printing Service
í character ana
is personal va- c bet-
intimate wbicb we
ter class P^rgoduCÍng bas
take P^de i P toctive ciien-
Tele fGive us tbe opportunity
of serving y°u-
'flThe ÖLoittwbia frc00
U AVENUE. W.NNtPEG
695 SAROENT