Lögberg - 03.12.1942, Side 1
S5. ARGANGUR t LÖGBERG. FIMTUDAGINN 3. DESEMBER, 1942 NÚMER 49
HELZTU FRETTIR
Forustumaður hniginn í val
Capt. Sigtryggur Jónasson.
ALT í SAMA HORFI.
Þingmenn Liberalflokksins í
Ontariofylkisþinginu héldu ný-
verið flokksfund til þess að
ræða um stjórnmálaviðhorfið
eftir að Mitchell F. Hepburn
lét af stjórnarforustunni og
Gordon D. Conant tók við;
höfðu ýmsir gert sér það í hug-
arlund, að til alvarlegrar
sprengingar kæmi vegna þess
hve embættisafsögn Mr. Hep-
burn gerðist með skjótum hætti,
og eins hins, að hann sjálfur
valdi eftirmann sinn kjósend-
um allsendis að forspurðu; hitt
var og vitað, að bitur ágreining-
ur átti sér stað innan ráðuneyt-
isins vegna hinna óvæntu til-
tekta Mr. Hepburns; en slíkt
hafði í för með sér embættis-
afsögn tveggja ráðherra, þeirra
Nixons fylkisritara og Olivers
heilbrigðismálaráðherra; höfðu
þeir báðir haldið því fram, að
beinast hefði legið við fyrir Mr.
Hepburn að rjúfa þing, og efna
til nýrra kosninga.
En þegar á áminstan fund
kom, sýndist alt falla í ljúfa
löð, en það jafnframt ákveðið,
að þegar að afstöðnu næsta
fylkisþingi, sem kemur til funda
15. janúar næstkomandi, skyldi
kvatt til flokksþings, er velja
ætti formlega nýjan flokks-
foringja.
* * *
C.C.F. FLOKKURINN VINNUR
ÞINGSÆTI í BRITISH
COLUMBIA.
Við aukakosningu, sem fram
fór í Salmon Arm kjördæminu
til fylkisþingsins í British Col-
umbia þann 26. nóvember síðast-
liðinn fóru leikar þannig, að
frambjóðandi C.C.F. flokksins,
George F. Stirling, gekk sigr-
andi af hólmi með allmiklu
afli atkvæða umfram gagn-
sækjanda sinn, Cyril Thompson,
bæjarstjóra í Salmon Arm, er
bauð sig fram til stuðnmgs við
samsteypustjórnina í British
Columbiafylki. Fram að þessu
hafði kjördæmi þetta alla jafna
sent íhaldsmann á fylkisþing.
* * *
SMUTS VONGÓÐUR.
Mr. Jan Smuts, forsætisráð-
herra Suður-Afríku sambands-
ins, sem nýlega er kominn heim
eftir því nær mánaðardvöl í
London, hefir nýst yfir því í
viðtali við blaðamenn, að hann
sé vongóður urh það, að leið-
angur sameinuðu þjóðanna gegn
nýlendum Frakka í Afríku muni
senn verða til lykta leiddur, með
fullnaðarsigri á þeirra hlið.
4 -f -f
KOSINN í SKÓLARÁÐ.
Séra Philip M. Péiursson.
í síðastliðnum bæjarstjórnar-
kosningum, var Séra Philip M.
Pétursson kosinn í skólaráð með
miklu atkvæðamagni.
WINNIPEG KÝS NÝJAN
BORGARSTJÓRA.
Garnel Coulier.
Við bæjarstjórnarkosningarn-
ar á föstudaginn var, hlaut
Garnet Coulter kosningu til
borgarstjóra fyrir næstu tvö ár,
með 4,350 atkvæðum umfram
John Quen núverandi borgar-
stjóra. Mr. Coulter er lögfræð-
ingur að mentun; hann hefir
átt sæti í skólaráði og bæjar-
stjórn um alllangt skeið við
vaxandi orðstír; hann þykir
gætinn maður og hollráður.
♦ 4- ♦
ENDURKOSINN í BÆJAR-
STJÓRN.
Valeniinus Valgarðson.
Við nýafstaðnar bæjarstjórn-
arkosningar í borginni Moose
Jaw í Saskatchwan, var Valen-
tinus Valgarðson skólastjóri,
endurkosinn til tveggja ára í
bæjarstjórn við stóraukið kjör-
fylgi; varð næsthæstur að at-
kvæðatölu, þeirra, er í kjöri
voru.
f -f -f
AMERÍKUMENN SÖKKVA
JAPÖNSKU HERSKIPI OG
FJÓRUM VÖRUSKIPUM.
Flotamálaráðuneyti Banda-
ríkjanna hefir tilkynt, að Ame-
ríski flotinn hafi sökt- nýlega
japönsku orustuskipi ásamt fjór-
um flutningaskipum í námunda
við Salomonseyjar, er Japanir
voru að reyna að koma þar nýj-
um liðsauka og hergögnum á
land.
-f -f -f
ELDSVOÐI VELDUR GÍFUR-
LEGU LÍFTJÓNI.
Á laugardagskvöldið var, kom
upp eldur í næturklúbb einum
í Boston, þar sem mannfjöldi
mikill skemti sér við dans; um
fimm hundruð manna létu lífið,
en álíka fjöldi liggur á sjúkra-
húsum í meiri eða minni bruna-
sárum. Þess er getið til, að
kviknað hafi í húsinu út frá
biluðum rafvír. Ríkisstjórinn í
Massachusetts hefir þegar í sam
bandi við lögreglu borgarinnar
fyrirskipað gagngera rannsókn
í málinu, og látið loka um ó-
ákveðinn tíma öllum nætur-
klúbbum í Boston, en þeir eru
58 að tölu. ,
Dramatískur og sögu-
frægur viðburður
Adolf Hitler hafði hátíðlega
lýst yfir því á dögunum, er hann
hernam alt Frakkland, að und-
anskilinni hafnarborginni Tou-
lon, þar sem meginhluti franska
sjóflotans hafði bækistöð sína,
að sér kæmi ekki til hugar að
hrófla við þeirri borg, og tók
Laval málamyndaráðherra
Frakka það loforð vitaskuld
gott og gilt eins og flest ann-
að úr þýzkri Nazista átt; en
veður er ekki ávalt lengi að
breytast í lofti, og fór svo í
þetta sinn. Á íöstudaginn þann
27. nóvember, s. 1., lét Hitler
hernema Toulon, og hafði auð-
sjáanlega ásett sér að ná um
leið haldi á þeim herskipum
öllum, er á höfninni lágu, en
þau voru 62 að tölu; en hon-
um varð ekki kápan úr því
klæðinu, því á örfáum augna-
blikum sprengdu hinir frönsku
flotaforingjar öll herskipin til
agna, og varð af þessu svo
glóðþrunginn reykjarmökkur, að
naumast grilti borg né höfn
klukkustundum saman.
Yfirforingjar hinna frönsku
víkingaskipa stóðu gunnreifir á
stjórnpalli, og sukku með bryn-
drekum sínum í saltan sæ.
4- ♦ ♦
ÁNÆGJULEGT SAMSÆTl'.
Síðastliðið föstudagskvöld.
var Ásgeiri Guðjohnsen, vél-
setjara hjá Columbia Press Ltd.,
haldið ánægjulegt samsæti á
St. Regis hótelinu, voru þátt-
takendur um fjörutíu; forsæti
skipaði Victor B. Anderson
bæjarfulltrúi; að lokinni máltíð
voru haldnar margar stuttar
ræður, og mikið sungið á milli.
Ásgeir er vinsæll maður og
vel gefinn, og verkamaður, sem
þá er bezt gerist.
Til minja um gleðimót þetta,
i var heiðursgestinum afhentur
vandaður silfurborðbúnaður að
gjöf, er hann þakkaði fyrir með
hlýjum og vel völdum orðuim
Samsæti þetta var haldið í
tilefni af því, að heiðúrsgestur-
inn var þá rétt að því kominn
að ganga í heilagt hjónaband.
4-4-4-
SAMBANDSSTJÓRNIN TAP-
AR SÆTI í QUEBEC.
La Fleche vinnur kosningu.
Þann 30. þ. m. fóru fram
tvennar aukakosningar til sam-
bandsþings í Quebecfylki. í
Montreal—Outremont sigraði
“War Services ráðherrann, I^. R.
La Fleche,1 er í Charlevoix—
Sagueny kjördæmi vann utan-
flokka frambjóðandi þingsætið.
4 4 4
RÁÐLEGGUR ÍTÖÍ.UM AÐ
LEGGJA NIÐUR VOPN.
Ohurchill forsætisráðherra
Breta hefir ráðlagt ítölum að
hætta að berjast, vegna þess
að sameinuðu þjóðirnar muni
innan skams sprengja allar
verksmiðjur þeirra í loft. Mússó-
lini svaraði þessu með því, að
Hitler myndi veita ítalíu næga
hjálp til þess að vinna stríðið.
4 4 4
FRÁ LYBÍU.
Síðustu fréttir þaðan herma,
að slegið hafi nýlega í brýnu
milli hersveita Rommels og
brezka sóknarliðsins í grend við
Agheila þar sem mælt er að
þjóðverjar hafi sínar síðustu
varnarstöðvar í Lýbíu; Nánari
fregnir af viðureign, þessari eru
enn eigi við hendi þó mælt sé,
að skarar Romels hafi skjótt
látið undan síga.
Áherzla lögð á aðal-
leiðslu hitaveitunnar
Væntanlega verður hægt að
taka upp vinnu við Hitaveituna
nú á næstunni, íþegar efnið verð-
ur komið á sinn stað. Þó ekki
sé að vita hve margir verkamenn
fást nú í þá vinnu.
Tíðindamaður blaðsins átti i
gær tal við Valgeir Björnsson
bæjarverkfræðing og spurði hann
hvernig verkinu myndi verða
hagað. Hann sagði m. a.:
—Við leggjum aðal áherzluna
á að ljúka sem fyrst við aðal-
leiðs’una upp að Reykjum, svo
sem mest af henni verði lagt fyr-
ir haustið.
Verkið við að leggja pipur
þessar er þannig, að erfitt er að
vinna að því þegar tíð er slæm.
Eins og kunnugt er, verður
reiðingstorf notað sem einangr-
unarefni, utan um pipurnar.
Torfflagið verður 10 sentimetra
þykt, en vafið vírneti utan um.
Vegna þess hve pípurnar lengj-
ast og styttast við hitabreytingar,
þurfa þær að geta mjakast til í
rennunum og verða því völtur
undir þeim, en pípurnar festar í
rennistokkinn hér og þar, með
vissu millibili. Pípurnar, sem
koma frá Ameríku eru allar stál-
pipur.
—Hvað varð um “bonnapip-
urnar,” sem keyptar voru í JJan-
mörku?
—Mikið af því efni, sem keypt
var i Danmörku og ekki komst
hingað er nú selt. En “bonna”-
pípurnar eru enn óseldar. Þær
“bonna”-pípur, sem hingað eru
komnar, verða notaðar uppi á
hverasvæðinu á Reykjum, til
þess að leiða vatnið úr uppsprett-
um og borholum í dælistöðina.
Rennurnar fyrir þær pápur eru
steyptar og eins húsið fyrir dæl-
nrnar.
—Hvenær er hægt að gera ráð
fyrir að Hitaveitan verði fuli-
gérð?
—í fyrsta lagi fyrir haustið
1943, eins og nú er komið málum.
En mikið veltur á því, að koma
aðal leiðslunni vel áleiðis í haust.
Þegar hún er fullgerð má e. t. v.
fara að veita vatninu í bæjar-
kerfið smátt og smátt eftir því
sem leiðslurnar i götunum og
inntakið í húsin verður fullgert.
—Hvert verður einangrunar-
efnið i götunum?
—Til þess verður notað hraun-
gjall, er verður flutt til bæjarins
jafnóðum og það verður notað.
—Mbl. 7. sept.
BORAÐ EFTIR VATNI VIÐ
RAUÐARÁ.
Hitaveituborinn, sem undan-
farið hefir verið notaður við
borun hjá Þvottalaugunum, hef-
ir verið fluttur að Rauðará hér
í bænum og verður brátt byrj-
að að bora þar eftir vatni. Er
ekki ólíklegt, að þarna fáist
heitt vatn, og ef svo skyldi
reynast, verður það notað til
hitunar í verksmiðjuhverfinu
sem er umhverfis Rauðará.
Helgi Sigurðsson verkfræðing-
ur skýrði Morgunblaðinu svo
frá í gær,'að engin vissa væri
fyrir hendi um, að þarna væri
heitt vatn í jörðu, en þó ekki
fengist nema kalt vatn þarna,
þá væri borunin ekki til ónýtis,
þar sem nota mætti kalda vatn-
ið til neyslu, ef eitthvað kæmi
fyrir Gvendarbrunnavatnsveit-
una.
Hjá Rauðará er gamall brunn-
ur, sem notaður hefir verið til
að brynna kúm í. Vatnið í
brunni þessum er volgt og frýs
ekki á vetrum. Þykir það gefa
nokkrar vonir um, að heitt vatn
sé þarna dýpra í jörðu. Vatnið
í brunninum er venjulega 10—
12 gráðu heitt.
Ef svo skyldi reynast, að
þarna fengist heitt vatn, er til-
valið að nota það handa verk-
smiðjuhverfinu, því ekki er gert
ráð fyrir, að verksmiðjuhverfið
fái heitt vatn fyrst um sinn frá
Reykj ahitaveitunni.
Mbl. 25. sept.
Síðastliðinn fimtudag lézt i
Arborg Capt. Sigtryggur Jónas-
son, sem nefndur hefir alment
verið “faðir íslenzka landnáms-
ins í Canada,” níræður að aldri;
það var hann sem lagði grund-
völlinn að nýbygðum íslendinga
við Winnipegvatn; þeim bygð-
um, sem íslendingar í daglegu
máli kalla Nýja Island.
Sigtryggur Jónsson var Ey-
firðingur að ætt, gáfumaður
mikill og höfðinglegur ásýnd-
um; hann hafði mörg járn í
eldinum um dagana, gengdi
í herþjónustu
Sturla M. Freeman frá Piney,
innritaðist í herinn þann 11.
nóv. síðastl., hann er 35 ára að
aldri, fæddur í Winnipeg. Móðir
Sturlu, Mrs. Ásgerður Freeman,
er búsett í Piney, og hefir þessi
sonur hennar stundað búnaðar-
vinnu á Freemannsheimilinu.
4 4 4
Barney Bjarnason, frá Glen-
buro, gekk í herþjónustu þann
18. nóv. síðastl., hann er 21 árs
að aldri, fæddur í Glenboro, og
þar býr móðir hans, Mrs. Ila
Bjarnason.
4 4 4
Halldór S. Hallson frá Lund-
ar, innritaðist í herinn þann 24.
nóv. s. 1. Mr. Hallson er tvítugur
að aldri, fæddur í Winnipeg;
hann hefir stundað fiskiveiðar á
Manitobavatni; móðir hans er
Mrs. K. Hallson í Lundar.
SÆTA HINUM VERSTU
HRAKFÖRUM.
Bæði vestur af Moskva. og
eins á vígstöðvunum umhverfis
Stalingrad, hafa þjóðverjar sæt+
hinum verstu hrakförum; svo
hefir mannfall af hálfu þjóð-
verja verið geysilegt, að Hitler
hefir enn á ný gert stranga
kröfu á hendur Rúmeníu og
Ungverjalandi um stóraukinn
liðsafla frá hvorri þjóðinni um
sig; mælt er, að undirtektir séu
fremur daufar; þá hefir Hitler
einnig sent herforingjum sínum
stranga áskorun um það, að
verja Rzhev-borg með oddi og
egg, því fall hennar kæmist til
jafns við það, að tapa hálfri
Berlín.
Umhverfis Stalingrad geysa
nú frosthörkur, og segjast Rúss-
skipstjórn á Winnipegvatni, sat
á fylkisþingi fyrir Gimli kjör-
dæmi, og hafði um hríð með
höndum ritstjórn Lögbtrgs. Ár-
ið 1930 vitjaði Sigtryggur ís-
lands sem einn af erindrekum
Canadastjórnar, er Alþingis-
hátíðina sóttu.
Sigtryggur var kvæntur Rann
veigu Briem, systur Valdimars
vígslubiskups; fóstiJrsonur
þeirra, Percy, er búsettur í Ar-
borg. Útför þessa merka öldungs
fór fram í Riverton á mánu-
daginn var. ,
ar daglega ganga þar fram á
þýzka hermenn frosna til dauða.
4 4 4
LÖG UM SAMFÉLAGSLEGT
ÖRYGGI.
Á næstunni verður lagt fram
í brezka þinginu frumvarp til
laga, er hefir það að markmiði,
að tryggja brezku þjóðinni stór-
aukið samfélagsöryggi við það,
sem hún nú nýtur, að loknu
stríði.
KOSINN Á SAMBANDSÞING
MEÐ MIKLU AFLI ATKVÆÐA
Rev. Stanley Knowles.
Við aukakosningu þá til sam-
bandsþings, sem fram fór í
Winnipeg síðastliðinn mánu-
dag, gekk frambjóðandi C.C.F
flokksins, Rev. Stanley Knowles,
sigrandi af hólmi með miklu
afli atkvæða.
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRÁM YÐAR