Lögberg - 03.12.1942, Blaðsíða 2

Lögberg - 03.12.1942, Blaðsíða 2
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 3. DESEMBER, 1942 Þing Sameinuðu lútersku kirkjunnar (U.L.C.A.) í Louisville F erðahugleiðingar Oft hefi eg funaið til þess að því meira, sem eg sé af víðáttum þessa mikla meginlands, þeim mun sterkari verða þau tengsl, er binda hug og hjarta við átthaga minnar amerísku þjóðar og alt, er telst til trygðar og mats á verð- mætum hennar og sögu. Eg hefi borið gæfu til þess að fá að sjá um helming af ríkjum Bandafylkjanna og um leið að verða fyrir miklu af þeirri fjölbreytni, er stórfengleik' heillar heimsálfu hefir til að bera. Um leið rennur upp fyrir manni að þetta mikla land hefir verið leiksvið marg- breyttra sögulegra æfintýra, sem mynda einn mest heillandi þáttinn í sögu mannanna fram á þennan dag. Hvert nýtt svæði er ber fyrir augu rifjar upp viðbótarþátt þess mikla hlutverks að skapa hér nýtt þjóðlíf fyrir athafnir og áræði hinna ólíkustu kynstofna. Þegar maður ferðast marga daga og nætur á óslitinni ferð með hröðum farartækjum án þess að nokkur takmörk blasi við, eins og altítt er, verð- ur tilfinningin fyrir því yfirgnæfandi að hér er alt að finna og það í stórum stíl. Sléttur og skógar, fjöll og fyrn- indi, hrikaleg fegurð og hugþæg angurværð, ógnandi auðnir og aragrúi borga, fljót og vötn, fossar og jöklar, heitai lindir og hávær gos, mannvirki og mentastofnanir — að nefna aðeins fátt eitt. Verður þetta eins og tákn þjóðlífsins mikilfenglega, sem innibindur um leið æðstu möguleika og alvarlegustu hættur, en hefir þó sem heild gefið undir fót- inn ýmsum björtustu vonum og mest töfrandi hugsjónum mannlífsins. Mér finst að eitthvað mjög skorti á næmleik hjá börnum þjóðarinnar ef viðhorfið alt í náttúrunni, þjóð- lífi og sögu, örfar ekki neitt blóðrásina eða brýnir hugann til metnaðar, framsóknar og trygðar við það fegursta og bezta er land og þjóð táknar. Slíkt víðfeðmi heillar án þess að maður þurfi að vera blindur fyrir því að ekki er alt að óskum, þó hátt sé undir himin möguleika og hugsjóna. Kirkjan í samlíðinni Eitthvað af þessu var í huga mínum er eg enn á ný lagði upp í langferð frá Kyrrahafsströndinni austur, í þetta sinn til Luiisville í Kentucky ríki, laust fyrir miðjan októ- ber, til að sækja þing hinnar miklu Sameinuðu lútersku kirkju (U.L.C.A.). Miklu af ferðinni er eg orðinn þaulvanur, en í þetta sinn var nýtt takmark í ríki, sem eg aldrei áðui hafði heimsótt. Og ríkið var sjálft Kentucky, fæðingar- staður Lincolns, að flestra áliti hins göfugasta og mesta manns, sem Ameríka hefir alið. Þetta örfaði eftirvæntingu og gerði ferðina að meira æfintýri en annars hefði verið. Það var heillandi umgjörð fyrir nýjan þátt kirkjusögunnar, sem framundan var. Eins og aukin kynning við land og þjóð hefir örfandi áhrif á þá, sem ekki eru dauðir úr öllum æðum, eins ætti það að vera að fá aukna sjón á lífi og I starfi kirkjunnar. Eg er enganveginn blindur fyrir því, að kirkjan er ekki fullkomin, en þrátt fyrir állar auðnir og öræfi í lífi hennar er mér gleði að geta sagt að því meira sem eg kynnist og fæ heildarsjón á lífi hennar, því meir örfar það hjá mér lotningu fyrir hugsjónum hennar o^ samhygð með viðleitni hennar að efla Guðs ríki á þessari jörð. Það er auðveld dægradvöl úr athafnalitlum sessi að fella þunga og skilningssnauða dóma yfir kirkjunni og ófullkomleikum hennar, en hitt er þarfara að koma auga á hvernig forsjónin notar þessa stofnun til að hefja og hrinda áleiðis því, sem mannkynið má sízt án vera. Þegar heim- urinn er allur í brotum og hver höndin upp á móti annari, er boðskapur kirkjunnar um einn Guð og föður allra manna og bræðralag það er Kristur stofnsetti og ekki er bundið við þjóðerni eða hörundslit svo að segja hið eina, sem lýsir til betra dags þegar ógnunum er lokið. Jafnvel upp ú: ófriðinum stendur greinilegur vottur þess að þessi boð- skapur er ekki fráskilinn veruleikanum, heldur hefir náð föstum tökum bæði hjá áhrifamönnum og lítilmótlegum hjá öllum þjóðum. Það er samtengingarafl, sem enginn ófriður fær að fullu rofið. Undir því að varðveita það og efla er öll framtíðarheill komin. Eg gerði mér von um að eins og eg var að kanna nýja stigu landafræðislega til aukins mats á landi mínu og þjóð, eins mundi hin kirkjulega stefna, sem eg var að sækja, að einhverju leyti gefa mér nýja sjón á akri kirkjunnar og hlutverki til að hefja það er fyrir vakir. Eg varð ekki fyrir vonbrigðum hvað þetta snertir. U.L.C.A. Sameinaða lúterska kirkjan (U.L.C.A.) er tuttugu og fjögra ára gömul. Hún myndaðist þannig að þrjár lútersk- ar deildir sameinuðust. Það var einingarstefna, sem þar réði. Hreyfingin í einingarátt er eitthvert heilbrigðasta einkenni samtíðarinnar í kristilegu tilliti. Oft áður og fram á þennan dag hefir borið á þeirri hugsun að eindrægni kæmist á eftir þeirri leið að ein deild kristninnar gleypti aðra eða að minsta kosti yfirbugaði hana. Þetta hefir ekki gefist vel. Venjulega hefir það fjarlægt menn í stað þess að draga saman. Nú er sú viðleitni fremur að lærast að leiða hugina saman með því að kynnast og meta það, sem menn eiga sameiginlegt, í stað þess að einblína á það, sem aðskilur. Þetta gefst mikið betur. Viturlegast reynist að snúa sér fyrst að því að greiða fyrir samkomulagi með þeim, sem næstir eru hver öðrum. Þannig verði ákveðnust spor tekin til sannrar einingar. Eftir þeirri leið varð Sam- einaða lúterska kirkjan til og í þeim anda hefir hún áfram verið samdráttarafl í kristilegu tilliti. Kirkjufélag vort bar gæfu til þess að hverfa frá einangrunarstefnu og tengjast samvinnu við þessa heild. Með því sneri það baki við þeirri stefnu að það sé heilbrigðast að vera fráskilinn öðrum kristnum mönnum vegna ímyndaðra eða verulegra yfirburða er maður sjálfur hafi til að bera og halda sig utan við straum samtíðar kristninnar. “Að þeir allir mættu vera eitt” er hugsjónin. Þingmenn vorir og dvalarsiaðir Fjórir erindrekar frá kirkjufélagi voru sóttu þingið í Louisville, tveir leikmenn og tveir prestar. Grettir konsúll Jóhannsson frá Winnipeg og G. J. Oleson lögregludómari frá Glenboro skipuðu leikmannasessinn, en séra Egill H. Fáfnis og eg vorum málsvarar kennimannastéttarinnar. Okkur bar að garði mismunandi, en í Chicago hafði eg hitt konsúlinn við íslenzka guðsþjónustu, er eg flutti og hann var svo vænn að sækja. En allir hittumst við ekki saman fyr en í Louisville. Urðum við þar í nánu nágrenni, þeir þrír Canadamennirnir í Seelbach gistihöllinni en eg í Henry Watterson Hotel. Vegna óvissu fram á síðustu stund um að geta farið, hafði eg ekki getað trygt mér húsnæði fyrir- fram eins og hygnum ferðamönnum hæfir og þeir samherj- ar mínir höíðu gert, heldur varð að treysta á .gæfuna eftir að á staðinn var komið. Gafst það vonum betur. Nafnið Watterson dróg athygli mína sem nafn hins þjóðkunna blaðamanns er stofnaði hið víðkunna dagblað Courier- Journal í Lóuisville. Er það enn í fremstu röð hinna beztu blaða í landinu. Er gistihöllin ekki til vansa nafninu, því það er hinn ákjósanlegasti verustaður. Þingsalurinn var í Brown Hotel skamt frá, sem var aðal aðsetur þing- gesta. Iceland Ýmsir fundir voru haldnir áður en þingið sjálft hófst. Fyrst og fremst hélt Luiheran Broiherhood U.L.C.A. stefnu sína dagana á undan. Meðal smærri funda má telja mót forseta kirkjufélaganna í U.L.C.A. Áttu þeir ráðstefnu með starfsfyrirliðum Board of American Missions. Kom eg því til Louisville á þriðjudag 13. okt., eða degi áður en þingið hófst. Fyjrsta kvöldið lá ekkert ákveðið fyrir mér, og gintist eg því til að sækja hreyfimynda leikhús. Var myndin Icc-land með Sonja Heinie í aðalhlutverki þar á.boðstólum. Eg var búinn að sjá ummæli um myndina í blöðum og að Reykvíkingar væru ekki hrifnir af henni, en sjón er ávalt sögu ríkari. Það er ekki á hverjum degi að maður sér blasa við sér á hverju torgi flanna auglýsingar með “Ice- land” að titli. Myndin er forsmán. Þar er ekki minsti vottur af sönnum veruleika hvað snertir íslenzka staðhætti eða líf í sambandi við dvöl setuliðs Bandaríkjanna í land- inu. Veruleika blæ á þó eflaust skautakonan fræga að setja á þetta “pródúkt,” því hvers mundu menn fremur vænta á íslandi en íss. Því er treyst að amerísk alþýða ekki glöggvi sig á því að ef á skauta skal fara í Reykjavík verður það að jafnaði að vera eins og hér á Kvrrahafs- ströndinni, á ísj sem er frystur með nútíðar tækjum véla menningarinnar, en ekki af veðráttunni. Þó væri myndin tiltölulega saklaus ef ekki væri öðru misboðið en þessum staðháttum náttúrunnar. Þegar til mannlífsins kemur, fer fyrst að slá út í svo um munar. íselndingar, sem sýndir eru, koma allir fram sem hálfvitar. Aðal áhugamál þeirra virðist að gifta dætur sínar — helzt hermönnum. Þar má heldur ekki um skeika að eldri dóttirin giftist á undan þeirri yngri. Engin hjólliðugheit á skautum, sem Sonja Heinie getur sýnt, nægir til þess að bæta upp þessa van- kanta. Ef þessi mynd ætti að vera mælikvarði þess alment hvaða sannveruleik hreyfimyndirnar flytja, fá þær slaka einkun sem uppfræðslutæki. Þessi auglýsingaöld er ekki ætíð vönd að því hvernig auglýst er. ísland er í lítilli skuld fyrir slíkan bjarnargreiða. Kirkja studd af auglýsingum í þeirri stærstu af tíu lúterskum kirkjum í Louisville átti þingheimur að koma saman til guðsþjónustu í byrjun þings. Hljómar það kunnuglega að kirkjan nefnist Fyrsta lúterska kirkja. Er B. C. Lindsay þar prestur. Nefnist stræti það Broadway er hún er á, og er það mikið kirkju nágrenni. Auðar lóðir eru beggja megin kirkjunnar, sem því miður eru ekki hennar eign. Þar hafa því auglýsinga- félög komist að með stærðar “billboards” á báða bóga með venjulegu auglýsingaskrumi. í fljótu bragði gæti manni komið til hugar að nálægð kirkjunnar hefði haft einhver . áhrif, því fyrirsögnin til vinstri blasir við: “Pure as an angel,” en neðan undir verður maður þess var að þessi himneska samlíking á við “Swan Floating Soap.” Til hægri er líka eitthvert hugnæmi í þeirri yfirlýsing að “Merit is rewarded,” en við nánari athugun kemur í ljós að dygðin, sem verið er að hefja, tilheyrir “Honey Crust Bread.” O tempora! O mores! mundi gamli Cicero hafa sagt, ef annað eins hefði orðið á vegi hans. Mann dreymir um að ein- hverntíma verði menn leystir frá hinu óbærilega auglýs- ingafargani, sem( hneykslar augu og eyru og allan heil- brigðan smekk um Ameríku alla. En í bili munu ekki önn- ur ráð en að bíta á jaxlin — og afbera bölið sem bezt maður má. Guðsþjónusla og upphaf þings Þingsetningarguðsþjónustan fór fram með miklum hátíðlegleikum í ofangreeindri kirkju að kvöldi miðviku- dagsins 14. okt. Kirkjan er vegleg, en nú reyndi á hve vel hún rúmaði með talsvert á sjötta hundrað erindreka auk annara gesta og heimafólks. Prestar, sem þjónuðu fyrir altari eða tóku annan þátt, voru hátíðlega skrýddir sam- kvæmt all-hákirkjulegum tíðareglum, sem fullnægt mundi hafa smekk gamla íslenzka fólksins er fanst prestarnir í Ameríku fremur snautlegir í kirkju. Algért frelsi er vitan- lega hvað slík atriði snertir, en meiri viðhöfn í skrúða tíðkast nú alment í amerískum kirkjum en áður fyrri. í því sambandi nægir sú athugasemd að um smekk ber ekki að deila. Allir samþykkja að fyrst og fremst eigi tilbeiðsl- an að vera í anda og sannleika. Tíðaþjónustan og söngur allur í bezta lagi. Forseti Dr. F. H. Knubel flutti kröftuga prédikun er hann nefndi “Hidden Things” út af Matt 13:33. Svo fór fram mjög áhrifamikil altarisganga er allur þing- heimur gekk að Drottins borði. Við þessa athöfn var notað- ur sameiginlegur bikar, í Omaha einstaklingsbikarar. Sýndi það mismunandi venjur innan kirkjunnar. öll offur við samkomur þingsins gengu í þarfir “Lutheran World Action,” sem eru samtök alls þorra lútersku kirkjunnar í Ameríku að kóma að liði trúbræðrum, trúboðum og starfi þeirra ásamt öðrum í erfiðleikum og neyð vegna styrjaldar- innar. Er það sönn kærleiksþjónusta, sem tala ætti til allra er eiga kristið hjartalag. Á næsta ári er gert ráð fyrir að safna einnri miljón dollara hér í Ameríku til þessara þarfa. — Næsta morgun fór fram formleg þingsetning í fundarsal þeim í Brown Hotel þar sem allir starfsfundir þingsins voru haldnir. Guðræknisathöfn hófst á hverjum morgni kl. 8.45, en fundarstörf byrjuðu skömmu eftir kl. 9. Var haldið áfram til hádegis. Svo voru einnig starfsfundir frá kl. 2—5 e. h. Tvisvar voru kvöldin einnig notuð til starfs. Annars voru þau helguð sérstökum samkomum. i Hvaða alhygli vakli þingið? Bezta blað borgarinnar — Courier-Journel — skýrði ítarlega og vel frá öllu, sem fram fór á þinginu. Aðalþættii þess fengu svo útbreiðslu í stórblöðum um land alt. Hið merka tímarit Chrislian Ceniury hafði sérstakan fréttarit- ara á þinginu. Dr. Walter W. Van Kirk gaf ágætt yfirlit yfir starfið í útvarpið tvisvar eða þrisvar fyrir hönd National Broadcasting Company. Er hann talinn bezti út- varpsþulur landsins hvað áhrærir kirkjulegar fréttir. Talar hann ætíð hlýtt í garð lúterskrar kirkju. Þá má nefna að Henry Wallace vara-forseti Bandaríkjanna heimsótti og á- varpaði þingið. Vék hann sérstaklega að dýrmæti trú- boðsins. Wallace er alkunnur kristindómsvinur og kirkju- legur áhugamaður. Á móti leikmannahreyginar (Laymen’s Movement) eitt kvöld þingsins, flutti ríkisstjórinn í Tenn- esee, Prentice Cooper, sem sjálfur er ræktarsamur meðlim- ur lúterskrar kirkju, heilbrigt og hugðnæmt erindi um kirkjuna á stríðstímum. Sama kvöldið flutti J. Myron Shimer aðstoðar dómsmálastjóri Pennsylvania ríkis (Deputy Attorney Genereal) mjög ákveðna hugvekju um kristilega ráðsmensku. (Spiritual Implications of Stewardship). Það er heilbrigt tákn tímanna þegar leiðtogar í veraldlegum málum finna kvöð hjá sér að bera vitni áhrifum og gildi kristindómsins með návist sinni og þátttöku í þingum kirkjunnar. Á þessu þingi voru margir atkvæðamenn af öllum stéttum — læknar, lögfræðingar, dómarar, fésýslu- menn, iðnaðarhöldar, bændur og aðrir, sem á þessum erfiðu annatímum létu af venjulegu starfi á aðra viku, til að fjalla um og sinna málefnum kirkjunnar. Það virðist því greinilegt að þetta þing einnar stórdeildar mótmælenda kirkjunnar — lúterska kirkjan er fjölmennust þeirra í heimi —- hefir verið talin merkisviðburður bæði af þeim er tóku þátt í því og alment meðal þeirra er láta sig andleg' mál skifta. ' Kirkjan á þann hlut að máli í því sem göfug- ast er og mestu lofar í nútíðarlífi að engnin getur talist að fylgjast með í menningu samtíðarinnar, sem ekki þekkir til þess er kirkjan er að fást við og að sinna. Þaðan koma skýrustu raddir og áhrif er boða nýjan himin og nýja jörð. Muhlenberg og "Father" Heyer Þetta þrettánda þing heildarinnar (U.L.C.A.) — en þau eru haldin annaðhvort ár — var sérstakt í því tilliti að tvö merkisafmæli í sögu amerískrar kristni, er tilheyra þessu ári, settu mót sitt og blæ á stefnuna. Tvö hundruð ár eru liðin síðan að presturinn Henry Melchior Muhlenberg steig fæti á þetta meginland og gerðist merkasti frumherji lút- ersku kirkjunnar í Ameríku. Hann og niðjar hans áttu ' ríkan þátt í því að leggja grundvöll hins nýja þjóðlífs og ákvarða stefnu þess. Sjálfur átti Muhlenberg brennandi áhuga fyrir að útbreiða kirkjuna og einkunnarorð hans Ecclesia Planlanda — kirkjan verður að gróðursetjast — hafa fræg orðið. — Hitt merkisafmælið, sem tilheyrir þessu ári, minnist þess að fyrir hundrað árum hóf Christian Frederick Heyer (venjulega nefndur “Father” Heyer) trú- boðsstarf sitt á Indlandi, en frá honum stafar hið mikla kristna kirkjufélag á Indlandi er nefnist “The Andhra Evangelical Lutheran Church.” Telur það nú 195,656 sálir. Einkunnarorð Heyer “I am ready now” — “eg er til- búinn nú þegar” — lýsa honum vel og voru svar hans við þörf Indlands og kvöð kirkjunnar. Útbreiðslustarf kirkj- unnar var á þinginu mjög tengt við' minningu þessara merku frumherja og hugsjónir þeirra. Á framstafip þing- salsins yfir altari var veggmynd mikil er sýndi landabréf heimsins. Á því miðju var hin óviðjafnanlega Kristsmynd Thorwaldsens “Komið til mín allir —” en á landabréfið, sem táknaði þörf heimsins, var skráð öðru megin við myndina THE CHURCH MUST BE PLANTED en hinu megin I AM READY NOW. Þessi táknmynd hóf þannig mannlega þörf, kærleiksþel Guðs í Jesú Kristi og lærisveins fúsleikann að vera boðberar. Á þessum staðreyndum vill kirkjan byggja starf sitt. Sérstakt erindi um Muhlenberg flutti Dr. Paul H. Roth frá Northwestern Seminary, en Dr. A. R. Wentz frá Gettysburg Seminary flutti minningarræðu um Heyer. Erindin voru bæði frábær. Tilfinning var fyrir því að nútíminn þyrfti á anda og áhrifum þessara frumherja að halda. Þjóðminning Muhlenbergs Hvað Muhlenberg snertir hefir ekki aðeins lúterska kirkjan heldur einnig Bandaríkjaþjóðin fundið ástæðu til að minnast þess að tvær aldir eru liðnar síðan hann hóf starf sitt í Ameríku. Þjóðþing Bandaríkjanna skipaði fimtán manna nefnd til þess fyrir hönd þjóðarinnar að eiga þátt í aðal hátíðahöjdum í sambandi við Muhlenberg af- mælið við Muhlenberg College í Allentown, Pennsylvania er stóð í rúma viku um mánaðamótin maí og júní á liðnu vori. Roosevelt forseti var heiðursforseti nefndarinnar, en báðir þingdeildaforsetarnir Wallace og Rayburn voru einnig til forystu. Aðrir nefndarmenn voru nafnkunnir þjóðleiðtogar í ríki og kirkju. Einnig gaf þingið út virðu- legt minningarrit um Muhlenberg. Tilefnið til þessarar þátttöku þjóðarinnar í þessum hátíðahöldum er ekki langt sótt. Hann sjálfur var áhrifamikill frumherji í lífi kirkju og þjóðar, og synir hans og afkomendur liafa haldið áfram að gera garðinn frægAn. Einn sonur hans, Frederick Augustus Muhlenberg var fyrsti forseti í neðri deild Banda- ríkja þjóðþingsins. Annar, John Peter Gabriel Muhlen- berg, var einn af herforingj.um og nánustu vinum George Washingtons. Hann var foringi við Vallev Forge, er svo mjög þrengdi að á hörmunga vetri. Peter, eins og hann var venjulega nefndur, var vígður prestur eins og líka Frederick Augustus. Er víðfræg frásögn um hann, er hann að lokinni guðsþjónustu hjá söfnuði sínum varpaði af sér hempunni og stóð albúinn sem herforingi undir. Enn annar sonur, Gotthilf Henry Ernest Muhlenberg var einnig kennimaður, en að auki vísindafrömuður á sviði grasafræði og einn ar fremstu athafnamönnum í mentamálum á fyrstu árum Bandaríkjanna. Hann var fyrsti forseti Franklin College (nú Franklin and Marshall). Frá þessum ættstofni er kominn mesti fjöldi af yfirburðamönnum er mjög hafa komið við sögu. Þrír hafa átt sæti á þjóðþingi Bandaríkj- anna. Þjóð og kirkja hafa fulla ástæðu til að minnast ætt- föðursins, sem svo ríkan þátt átti sjálfur í frumsögu landsins og hefir lagt þjóðlífinu til einn merkasta ameríska ættstofn- inn. Það ætti ekki síður að njóta gengis að afla sér orðstýrs fyrir afkomendur en forfeður, Þingmál og slörf Ekkert verulegt yfirlit yfir þingstörfin er hér hægt að gefa. Skýrslur embættismanna og starfsnefnda mynduðu stóra bók. Var það mjög til fyrirmyndar hve vel var farið með tíma á þinginu. Mörgu var að sinna, en engu var flaustrað í sambandi við áríðandi mál. Stuttar og greini- legar ræður voru oftast fluttar með og móti ef um ágrein- ing var að ræða, og svo gengið til atkvæða. Það heyrði mjög til undantekninga að skvaldursseggir, sem hafa unað af að hlýða á sjálfa sig, þó enginn njóti uppbyggingar, kæmust að með langlokur sínar. Eitthvað af þeim virðist ætíð með í lestinni á mannlegum þingfundum. Fjárhagur kirkjunnar var í ágætu lagi. En þar sem svo margþætt og

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.