Lögberg - 10.12.1942, Síða 2

Lögberg - 10.12.1942, Síða 2
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 10. DESEMBER, 1942 i Kafli úr útvarpsrœðu Olafs Thors, forsætis- ráðherra þann 5. okt. VIÐSKIPTI ÍSLENSKU STJÓRNARINNAR CG BANDARÍKJASTJÓRNAR. Það mun hafa verið sunnu- daginn 26. júlí síðastl., að hing- að kom einn af aðalráðamönnum Bandaríkjanna. Að kvöldi þess dags átti hann tal við ríkisstjóra og mig og tjáði okkur, að í Bandaríkjunum ríkti andstaða gegn því, að íslendingar sliti sambandinu við Dani fyr en sambandslagasamn. segði til um, vegna þess, að Bandríkin teldu það geta skaðað sína hagsmuni. Var af fslands hálfu m. a. bent á, að samkvæmt alþjóðarétti væri sá samningur þegar úr gildi fallinn, en því til svarað. að slíkt gæti alltaf verið álita- mál. Leið nú fram til 31. júlí, en þann dag bárust mér ný boð sama efnis frá stjórn Banda- ríkjanna, og var mér afhent ónákvæmt afrit þess skeytis, er sendifulltrúi Bandaríkjanna hér á landi hafði um þetta borist. ,Svona stóðu sakir þann 4. ág., er Alþingi kom saman. Þann dag að kvöldi, gaf ríkisstjórnin þingmönnum skýrslu um málið og bar fram þá ósk, að henni til aðstoðar í málinu yrðu skip- aðir 2 menn frá hverjum þing- flokki, og var það gert. Var nú unnið að kappi að málinu. Þann 8. ágúst afhenti eg sendifulltrúa Bandaríkjanna svohljóðandi tilkynningu, en jafnframt var sendiherra islands í Washington símað um málið: Álitsgjörð, afhent sendifull- trúa Bandaríkjanna af forsætis- ráðherra þann 8. ágúst 1942. Út af hinum vinsamlegu skila- boðum, sem þér fluttuð mér 31. júní þ. á., um óþægindi þau, sem stjórn U. S. A. telur að slit á Sambandsl.samn. milli fslands og Danmerkur fyrir tilskilinn tíma geti valdið, hef ég haft samráð við formenn og for- ustumenn allra flokka Alþingis, enginn þeirra undantekinn, og standa þeir óskiptir bak við það, sem nú skal greina: 1) Það hefir ekki verið og er ekki ósk íslendinga að baka stjórn U. S. A. nein óþægindi, heldur, að áfram haldist óskert það vinsamlega samneyti, sem verið hefir. 2) Orðalagið samningsslit fyr- ir tilskilinn tíma á væntanlega við samningsslit, sem gangi í gildi fyrir 1944, því að frá þeim tíma að telja, gefur samningur inn sjálfur skýlausa heimild til þess að slíta sambandinu ein- hliða. Um það hefir aldrei verið neinn ágreiningur milli íslend- inga og Dana né við aðra, enda orð samningsins um það efm ótvíræð. 3) Tvisvar löngu fyrir núver- andi ófrið hefir Alþingi lýst því yfir einróma, að þessi heimild yrði notuð af íslands hálfu, Þ. e. sambandinu slitið þegar eftir árslok 1943. Þetta er á vitorði Dana, hinna Norðurlandaþjóð- anna og annara, sem fylgjast með málefnum íslands. Hafa menn því verið við því búnir. 4) Ákvörðun um að slíta sam- bandinu og stofna lýðveldi á íslandi hefir að baki sér ekki eingöngu alla flokka þingsins, heldur og alla þingmenn þings- ins án undantekningar — ekki aðeins certain faction) og væntanlega yfirgnæfandi meiri- hluta þjóðarinnar. Mun það koma fram við þjóðaratkvæði, sem látið verður ganga áður en málinu er ráðið til lykta ti! fullnustu. 5) Vakin skal athygli á því, að 17. maí 1941, lýsti Alþingi því yfir einróma, að það teld: ísland hafa öðlast rétt til fullra sambandsslita við Danmörku og að það vildi, að stofnað verði lýðveldi á íslandi jafnskjótt og sambandinu við Danmörku verði formlega slitið. Þessar ályktanir höfðu þannig verið gerðar og birtar opinberlega áður en her- vernd U. S. A. á íslandi kom til tals. Þessar ályktanir Al- þingis voru tilkynntar stjórn Dana formlega stjórnarleiðina. 6) Rétturinn til sambandsslita nú þegar byggist á þeirri skoðun íslenzkra fræðimanna, sem þeir telji í samræmi við skoðun flestra fræðimanna um alþjóða- rétt, að samningsslit séu rétt- mæt, ef annar aðili ekki full- nægir í verulegum atriðum. En síðan 9. apríi 1940 hafa Danir ekki átt kost á að fullnægja :kuldbindingum sínum sam- kvæmt samningnum, og hann þar með burtu fallinn, er Is- land óskar þess. Enda frum- réttur viðurkendur fullvalda þjóða að ákveða sjálf stjórnatt-- fyrirkomulag sitt. 7) Ef óskað er frekari upplýs- inga um þróun málsins og aðrar staðreyndir eða frekari skýr- in’ga, er mælst til, að rætt sé við sendiherra íslands í Was- hington og þess jafnframt ósk- að, að honum sé afhent afrit af orðsendingu þessari. 8) Þess skal getið, að Aiþingi mun lýsa yfir því, að danskir ríkisborgarar íski’|i halda . ó- skertum réttindum sínum sam- kvæmt sambandslagasamningn- um, þar til hægt verður að semja um frambúðarviðskipti þjóðanna, þótt Dönum hafi ekki verið og sé ekki unnt að full- nægja samningsskyldum sínum. 9) Ríkisstjórnin hefir þegar eftir að Alþingi hafði í júm 1942 ákveðið að skipa nefnd til þess að undirbúa fyrir þmg það, sem nú er komið saman, frum- varp að lýðveldisstjórnarskipun, gert ráðstafanir til þess að skýra konungi og ríkisstjórn Dana frá öllu málinu. En ekki er komin enn frétt um, að sú skýrsla, sem send var af stað fyrir 6 vikum síðan, sé komin fram. Hún var ekki komin fram fyrix viku síðan. 10) Núverandi ríkisstjórn hef- ir opinberlega lýst yfir því, að hún mundi beita sér fyrir lausn málsins á þessu ári. Frá þessu er því ekki hægt að víkja án þess að gefa opinberar skýring- ar, sem varla verður neitað, að hægt sé að nota á einhvern hátt til propaganda. , 11) Eg vænti þess, að stjórn U. S. A. taki framangreindar ástæður til sömu vinsamlegu athugunar sem vér erum jafnan fúsir til að athuga það, sem stjorn U. S. A. kann að hafa frekar fram að bera. En þess skal getið, að vegna skammrar setu í þetta sinn verður Alþingi að taka mál þetta fyrir mjög bráðlega. if.it.1f. Leið nú fram til 20. ági^st að mér var afhent svohljóðandi svar: , Sendiráð Bandaríkja Norður- Ameríku. Reykjavík, 20. ágúst 1942. Herra ráðherra. Með skírskotun til álitsgjörðar yðar, herra ráðherra, sem mér var afhent 8. ágúst 1942, leyfi eg mér, samkvæmt fyrirmælum ríkisstjórnar minnar, að setja fram hér að néðan athugasemd- ir ríkisstjórnar Bandaríkja Norð ur-Ameríku við efni álitsgjörðar yðar. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefir athugað gaumgæfilega á- litsgjörðina, sem lýsir sjónar- miði íslands að því er varðar einhliða uppsögn í náinni fram- tíð á sambandslagasamningnum milli íslands og Danmerkur og sambandi því, sem byggist á honúm. Ríkisstjórn Bandaríkjanna viðurkennir, að ógilding samn- ingsins og sambandsins og hin- ar fyrjrhuguðu breytingajr á grundvallaratriðum í stjórnar- fari íslands, sé mál, sem ís- lenzka þjóðin ein ætti á friðar- tímum að taka ákvörðun um, eftir óskum sínum og þörfum. Ríkisstjóm Bandaríkjanna hefir ekki minnstu löngun til þess að skerða á nokkurn hátt athafnafrelsi Islenzku þjóðarinn- ar í þessu máli, en það er hins- vegar ósk Bandaríkjastjórnar, að á þessum erfiðu tímum sé ekkert það aðhafst, sem kynni að hafa óheppileg áhrif á hernaðarátök hinna sameinuðu þjóða, en undir árangri þeirra er svo injög komið frelsi og framtíðarvelferð, ekki einasta Bandaríkjanna og íslands, held- ur og annara þjóða. . Það er skoðun Bandaríkjastjórnar, að sameiginlegir hagsmunir í góð- um árangri af hernaðaraðgerð- um hinna sameinuðu þjóða séu best tryggðir með því, að ó- breytt ástand — status quo — sé nú látið haldast á íslandi. Það að viðhalda óbreyttu á- standi, mundi forða því að fram kæmu ásakanir um, að íslend- ingar hefðu notað sér ólán Dan- merkur, sem og koma í veg fyr- ir þá fölsku ásökun, að Banda- ríkjastjórn hefði notað sér hér- veru Bandaríkjahers og ástandið í Danmörku til þess að greiða fyrir sambandsslitum. Stjórn yðar og mín stjórn vita það báðar, að Bandaríkin eru á engan hátt riðin við hin- ar fyrirhuguðu aðgerðir Islend- inga í sjálfstæðismálinu, en öx- ulríkin mundu telja öðrum þjóð- um og stjórnum trú um, að Bandaríkin ættu þar upptökin. Af framansögðum ástæðum vill Bandaríkjastjórn endurtaka þá bendingu, að rétt sé að fresta að taka ákvörðun um sambands- slitin þangað til betur stendur á, ekki aðeins vegna Bandaríkj- anna og íslands sjálfs, heldur og í þágu heimsskipulagsins og skilnings milli þjóða yfirleitt. Kveðjuorð. Sign. Carlos Warner, sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar á íslandi. Herra forsætisráðherra, utanríkisráðherra Ólafur Thors. Morgunblaðið. Sumarið var kalt á íslandi Norðanlands snjóaði iðulega niður í bygð. Vísir hefir átt stutt viðtal við búnaðarmálastjóra, Steingrím Steinþórsson og spurt hann tíð- inda um heyskap o. fl., en menn eru nú alment búnir að ná inn heyjum. Sumarið var yfirleitt kalt, einkuni norðanlands, og úrfellasamt. Snjóaði iðulegá I bygð nyðra og sunnanlands gránaði oft í fjöll og stundum alt niður í fjallsrætur. Menn munu alment búnir að ná inn heyjum, sagði búnaðar- málastjóri. Hey munu þó sum- staðar úti enn norðanlands. — Útheysskapur var yfirleitt með minna móti og víða rýr að gæð- um, en töðufengur í meðallagi og kanske vel það sumstaðar. Vegna fólkfæðar hafa menn sumstaðar ekki annað miklu meiru en að heyja á túnum, og vitanlega stafar það ekki ein- göngu af erfiðleikum í sambandi við tíðarfarið, að heyskapurinn er rýr, heldur og vegna skorts á vinnuafli. Sumarið hefir verið kal,t eink- um norðanlands, og úrfellasamt, og hefir iðulega snjóað í bygð. Fyrir hálfum mánuði eða svo var skafrenningur á Vaðlaheiði og á Möðrudalsöræfum varð að moka vegna fannkomu, til þess að bílar kæmust leiðar sinnar. Sunndnlands hefir sumarið einnig verði fremur kalt. Búnaðarmálastjóri taldi, að kartöfluuppskera mundi verða í meðallagi sunnanlands og sumstaðar kannske betri en í meðallagi, sennilega yfirleitt nokkuð misjöfn, og stafar það sumpart af því, að ekki hefir verið unnt fólksleysis vegna að hirða garðana nógu vel. Upp- skera úr görðum verður lélegri norðanlands, en þó ekki með versta móti. Aldrei hefir verði meira undir því komið en nú að nota vélar við heyskaparstörfin eftir því sem frekast er unnt, vegna fólksleysis, en við mikla erf- iðleika er að etja af völdurn sty r j aldariinnar, svo sem um útvegun varahluta o. s. frv. Furðulega hefir þó úr ræzt. Einnig hafa verið útvegaðar landbúnaðarvélar frá Ameríku, eftir því sem unt var, aðallega sláttu- og rakstrarvélar. Fyrir styrjöldina fluttust hing að aðallega Deering og Cormick sláttuvélar, sem eru amerískar, en voru umsmíðaðar í Þýzkal. og Svíþjóð með tilliti til ís- lenzkra staðhátta. Ennfremur var flutt inn mikið af Hercules- vélum, en þær eru sænskar. Varahluti í þessar vélar hefir vitanlega ekki verið hægt að fá frá Þýzkalandi og Svíþjóð. Sam- kvæmt upplýsingum, sem Vísii hefir fengið hjá Ásgeiri Jóns- syni hjá* S. I. S. hefir verið reynt að ráða bót á þessum erf iðleikum, með því að fá vara- hluti smíðaða í Ameríku og í smiðjum hér, og hefir þetta borið þann árangur, að alt hefir bjargazt furðanlega. Nokkur töf hefir þó orðið vegna mikilla anna og verkafólksskorts hér, en mikið hefir þó verið smíðað af varahlutum hér. Allmiklai birgðir voru og fyrir hendi i stríðsbyrjun. Það verður þó erf- iðara með þetta framvegis, því að ekki er hægt kostnaðar vegna og annars, að smíða alla vara- hluti hér, sem búast má við að fari að verða skortur á. Vísir spurði Ásgeir Jónsson um innflutning á landbúnaðar- vélum frá Ameríku. Kvað hann inn hafa - verið fluttar um 150 sláttuvélar og 60 rakstrarvélar í sumar. Vélar þessar áttu að koma í vor, en það dróst fram eftir sumrinu, vegna erfiðleika af völdum styrjaldarinnar. Það eru nýjar gerðir af Deering og Cockshutt sláttuvélum, sem inn hafa verið fluttar, og hafa þæi reynst vel. Plógar fluttust aðallega inn frá Norðurlöndum fyrir stríð, en plógar af þeim stærðum, sem henta íslendingum, eru ekki framleiddir í Ameríku. Sýnis- horn plóga hafa verið send vest ur, að því er Ásgeir Jónsson tjáði Vísi, en vafasamt er hvort unnt verður að fá umleitunum um framleiðslu þeirra sinnt, vegna styrjarlarinnar. Rakstrar vélarnar, sem inn voru fluttar, voru tiltölulega ódýrar, og hafa reynst vel. Vísir, 25. sept. Tíundir Páls Bjarnasonar Eg hefi lesið greinar þessar sem birtust í Heimskringlu í september, og undrar mig stór- um hvaða fitons andi fór í manninn út af þessari litlu grein minni, og hvað hún hefir snert hans viðkvæmu hjarta strengi, hann hlýtur að hafa þekkt sjálf- an sig þar. Hann segir að eg hafi ráðist á sig og hugsjónir sínar, en hans nafn nefndi eg aldrei, og réðist alls ekki á hug- sjónir hans hverjar sem þær kunna að vera, eða neinar þug- sjónir, nema hann telji bölsýni, öfund og bæjarþvaður hugsjón- ir, en það gjöri eg ekki. Já, eg hefi ráðist á bölsýnina, sem er eitur í lífi mannanna og bið ekki forláts á því og tek ekkert aftur,. eg hefi ráðist á þann ósið í mannlegu eðli, að sjá ekkert nema það illa og ljóta og kannast ekki við neitt annað, og þá hugsun að ætla náunganum alt ilt. Slíkir menn sjá ekkert gott í lífinu eða fari manna, sjá ekkert ljós, sjá ekki sólina þó hún skíni í heiði eins og gamli Björn í Öxi, Slíkir menn gjöra lífið ömurlegt — fyrir sjálfa sig og aðra. En ís- lenzkt máltæki segir að maður- inn sé sinnar gæfu smiður, og er mikill sannleikur í því, mað- ur getur mikið skapað lífið og gæfuna eftir því hvort hann kýs að ganga sólarmegin á braut lífsins, eða hann ræðst á okkur fimm í þessu Tíundar skrifi þó hann skammi mig mest. — Eg þekki J. M. ekki neitt, nema það sem eg hefi séð eftir hann á prenti. Mér finst hann hafa Veterans... Again You are Urgently Needed for ACTIVE SERVICE in Canada or Overseas JOIN the 37th ACTIVE COMPANY Veterans Guard of Canada NOW BEING MOBILIZED AT WINNIPEG Join Your Old Comrades and Help Finish the Job This Space Donated by MD 78 At least eight million market hogs are needed to supply Britain and the Armed Forces and workers in Canada during the next twelve months. Ample supplies of feed are available but skllful adaptation In the use of produetlon facilities will be required to meet this goal. Hog production can be increased immediately by saving every pig now on hand and those farrowed in the next few months. This is important and will require special care. Many pounds can be added to the total by carrying each pig to a weight of at least 200 lbs at the farm. Every sow whose litter can be cared for should be bred this fall even though the pigs will not be marketed for another 10 or 12 months. Producers can help win the war by converting this year’s surplus grain Into more Bacon for Britain and Pork for Canada. Forjurther information consult your Provincial Department of Agriculture, Agri- cultural College, nearest Dominion Experimental Farm or Live Stock Office of the Dominion Department of Agriculture. ____________________________________ 173S AGRICULTURAL SUPPLIES BOARD - -?./-■ Dominion Department of Agriculture, Ottawa i Honourable James G. Gardiner, M inisíer

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.