Lögberg - 07.01.1943, Blaðsíða 1
56 ÁRGANGUR
PHONES 86 311
Seven Lines • .
, \
'lSSs-.í*L„
Cot' ** and
Salisfaciion
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. JANÚAR 1943.
NÚMER 1
LÖGBERG ÓSKAR ÍSLENZKA MANNFÉLAGINU GLEÐILEGS NfÁRS
Tilkynning frá íslenzka sendiráðinu í
Washington, D.C.
Nýtt ráðuneyti myndað á islandi
Kveðju frá Islandi verður útvarpað
Samkvæmt símskeytum, sem
undanfarið hafa borist frá Utan-
ríkisráðuneytinu í Reykjavík,
fól ríkisstjóri, Sveinn Björns-
son, Dr. juris Birni Þórðarsyni
lögmanni í Reykjavík að mynda
utanflokka ríkisstjórn til bráða-
birgða. Verkaskipting og skipun
hins nýja ráðuneytis er þessi:
Björn Þórðarson er forsætis-
ráðherra og hefir ennfremur
með höndum kirkjumál, Björn
Ólafsson, stórkaupmaður, er
fjármálaráðherra, og fer einnig
með verzlunarmál önnur en þau,
er viðkoma útflutningsverzlun.
Einar Arnórsson, hæstaréttar-
dómari, er dómsmálaráðherra,
og hefir ennfremur mentamái
með höndum. Vilhjálmur þór,
bankastjóri, er utanríkisráð-
herra og einnig atvinnu- og
samgöngumálaráðherra, og
Jóhann Sæmundsson, læknir, er
félagsmálaráðherra.
Ríkisstjóri ákvað, að stjórnin
hátíðakveðjur
til íslands.
Að tilhlutun Upplýsingaskrif-
stofu Bandaríkjanna í New York
— Office of War Information —
sendi dr. Richard Beck, forseti
Þjóðræknisfélags íslendinga í
Vesturheimi, eftirfarandi jóla-
og nýárskveðju heim til íslands,
er símuð var þangað þann 24.
desember og mun hafa verið
útvarpað þar:
“í nafni Þjóðræknisfélags ís-
lendinga í Vesturheimi er mér
sérstaklega ljúft að senda heima
þjóðinni hugheilustu jóla- og
nýársóskir. Veit eg, að landar
mínir víðsvegar vestan hafs
taka einhuga undir þær kveðj-
ur. Minningarnar að heiman eru
oss altaf ríkar í huga, en aldrei
fremur en á jólunum og ára-
mótunum. Menningararfurinn
íslenzki er oss uppspretta orku
og framsóknaranda, sem vér
viljum varðveita og áváxta sem
allra lengst. Vér gleymum
aldrei gamla landinu góðra erfða
og fögnum yfir samböndum
milli íslands og Vesturheims.
Vér biðjum íslandi og íslending-
um allrar blessunar í bráð og
lengd.”
-f -f -f
SENATOR
GEORGE P. GRAHAM.
Nýlátinn er í Ottawa, Senator
George P. Graham, 83 ára að
aldri; hann gaf sig við blaða-
mensku framan af æfi, og var
ungur kosinn á fylkisþingið í
Ontario; eigi leið á löngu unz
Senator Graham náði kosningu
til sambandsþings fyrir Brock-
ville kjördæmið, en árið 1907
var hann skipaður ráðgjafi járn-
brautarmála í ráðuneyti Sir
Wilfrids Laurier; átti hann þar
sæti fram til 1911, er Liberal-
flokkurinn tapaði kosningu
vegna frumvarps um gagn-
skiftusamninga við Bandaríkin.
n er Mackenzie King myndaði
sitt fyrsta ráðuneyti 1921, fól
skyldi skipuð eingöngu utan-
þingsmönnum, eftir að árangurs-
laust hafði verið reynt að ná
samkomulagi milli þingflokk-
anna um ríkisstjórn, er nyti
stuðnings þingmanna. Enn er
ekki vitað, hvers stuðnings þessi
bráðabifgða-ríkisstjórn kemur
til að njóta á Alþingi eða hvert
fulltingi stjórnmálaflokkarnir
veita henni.
í fyrstu ræðu forsætisráð-
herra á Alþingi lýsti hann þv:
yfir, að höfuðverkefni nýju
stjórnarinnar væri að vinna bug
á dýrtíðinni með því fyrst og
fremst að setja skorður við
frekari verðbólgu og láta verð-
lagseftirlitið ná til allra vara og
gæða. Jafnframt, sagði for-
sætisráðherrann, hyggst ríkis-
stjórnin að koma atvinnuvegun-
um á heilbrigðan grundvöll, og
gera nauðsynlegar ráðstafanh'
til að samræma innflutnings-
verzlunina við hinn takmarkaða
skinakost landsmanna.
hann Senator Graham á hendur
forustu hermálaráðuneytisins^
en nokkru síðar tókst hann á
hendur forustu járnbrautamál-
anna. Hann var skipaður Sena-
tor árið 1926. Senator Graham
var aldrei ákafur flokksmaður,
og vildi jafnan unna andstæðing
um sínum sannmælis, engu síð-
ur en sínum eigin skoðana-
bræðrum.
♦ ♦ ♦
MERKUR ÍSLENDINGUR
LÁTINN.
Þann 4. þ. m., lézt að heimili
sínu í Regina, Sask., Björn
Hjálmarson, skólaumsjónarmað-
ur fylkisstjórnarinnar í Sask-
atchewan, glæsimenni með fá-
gætum, lærdómsmaður mikill og
mælskur vel. Björn heitinn átti
við langvarandi vanheilsu að
stríða, en bar þjáningar sínai
með hinni mestu hugprýði; hann
lætur eftir sig ekkju, Sigrúnu
Frederikson Hjálmarson, ásamt
fjórum börnum. Bróðir Björns,
Kristján Hjálmarson, er búsett-
ur í Winnipeg.
Utför Björns fór fram í
Regina þann 7. þ. m.
-f -f -f
RAFLÝSING BÆNDABÝLA.
Nefnd, skipuð 5 verkfræðing-
um, er fylkisstjórnin í Manitoba
fól það á hendur, að rannsaka
skilyrði fyrir því, að auka svo
orku rafkerfis fylkisins, að raf-
lýsa mætti hvert einasta og
eitt bændabýli í Manitoba, hefir
nú lokið störfum, og fengið
álitsskjal sitt fylkisstjórninni í
hendur; kemst nefndin að þeirri
niðurstöðu, að vel sé tiltækilegt
að hrinda þessu í framkvæmd,
muni nema liðlega 600 dollurum
til jafnaðar á hvert býli. Fráfar-
jafnaðar á hvert býli. Fráfar-
andi forsætisráðherra, Mr.
Bracken, þakkaði nefndinni á-
gætt og ítarlegt starf, og kvað
sér þykja fyrir, að láta af mála-
forustu fylkisins, áður en þetta
nytja fyrritæki kæmi til fram-
kvæmda.
NÝÁRSÁVARP KINGS
FORSÆTISRÁÐHERRA
TIL CANADISKU
ÞJÓÐARINNAR.
Bjarminn frá vitum vonar-
innar út við sjóndeildarhring-
inn, ætti að veita oss öllum þrek
til þess að horfast djarflega í
augu við þau verkefni, er fram-
undan bíða; sjálfsblekking má
eigi koma til greina; átökin
verða þyngri, og að líkindum
langvinnari, en vér höfðum gert
oss í hugarlund.
Og nú, er vér stöndum við
þröskuld nýrra áramóta, verð-
um vér að gera oss ljósa grei.i
fyrir þeirri hættu, sem frá þvi
stafar, að leggja of mikla á-
herzlu á nýlega sigurvinninga,
með því að slíkt gæti auðveld-
lega truflað dómgreind vora.
og dregið úr óumflýjanlegum
ásetningi vorum til úrslitaátaka.
Og þótt viðhorfið hafi óneit-
anlega breyst til hins betra,
megum vér ekki missa sjónar
á þeirri staðreynd, að loka
baráttan til fullnaðarsigurs, er
óháð enn; og eftir því sem vett-
vangur orustunnar miklu dregst
saman, eða smækkar að um-
máli, hlýtur sólcnin að aukast
og líkjast meir og meir veru-
legum hamförum.
Á ári því, sem nú er að hefja
göngu sína, þarf eigi að efa, að
her vor allur taki þátt í hinni
bitrustu sókn; þess vegna er
það auðíætt, að vér þui íun K-
öllumx vorum styrk, og öllum
voru hugrekki að halda. Og það
er engan veginn ólíklegt, að það
verði hlutskifti vort, að ganga
í gegnum eina þá mestu eld-
raun, er borið getur að höndum
í sögu þjóðar vorrar; vér verð-
um að vera viðbúnir manntjóni
í réttu hlutfalli við gildi sigurs-
ins; og með þeim hætti einum,
fáum vér umflúið ónauðsynleg-
ar fórnir; og með þetta fyrir
augum, þetta eitt, getum vér
flýtt fyrir þeim degi, er sam-
félagsöryggi, réttlæti og hinn
þráði friður, fái yfirhöndina í
mannheimum á ný.
NÝÁRSKVEÐJUR
TIL VESTUR-ÍSLENDINGA.
Sendiherrahjónin í Washing-
ton, þau Hon. Thor Thors og
Mrs. Thors, biðja Lögberg að
flytja öllum Vestur-íslending-
um hugheilar kveðjur í tilefni
af áramótunum..
Lögberg vill nota þetta tæki-
færi til þess að þakka sendi-
herranum þann mikilvæga
og margháttaða stuðning, sem
hann hefir látið blaðinu í té frá
komu sinni til þessarar álfu.
♦ ♦ -♦■
MIKILVÆG
FRÆÐSLUSTARFSEMI.
Frá byrjun þessa mánaðar og
til mánaðarmóta, stendur yfir
hér í landi fræðslustarfsemi, er
það hefir að markmiði, að
“kenna þjóðinni að éta”. Er
þetta fræðslustarf kallað á
ensku máli “Canadian Nutrition
Program”. Með þetta fyrir aug-
um, er svo til ætlast, að þjóðin
læri að færa sér skynsamlega í
nyt þær fæðutegundir, sem hér
eru framleiddar, þannig, að til
raunverulegra þjóðþrifa leiði.
Gert er ráð fyrir, að tilgangin-
um verði einkum náð með blaða
auglýsingum, ritgerðum og út-
varpsfræðslu.
Hér er um heilbrigðislegt vel-
ferðarmál að ræða, sem cana-
disku þjóðina varðar í heild.
SKIPAÐUR KING'S COUNSEL
G. S. Thorvaldson, K. C.
Síðastliðinn nýársdag lýsti
dómsmálaráðherra Manitoba-
fylkis, Hon. James McLenaghen
yfir því, að G. S. Thorvaldson,
einn af fylkisþingmönnum
Winnipeg borgar, hefði verið
skipaður King’s Counsel. Mr.
Thorvaldson, er sonur Sveins
Thorvaldsonar, M. B. E. í
Riverton, og fyrri konu hans
Margrétar; hann er vinsæll hæfi
leikamaður, líklegur til aukins
frama, endist honum heilsa og
líf; hann hefir getið sér ágætan
orðstír á fylkisþingi.
♦■ ♦ ♦
FRÁ
AUSTUR^ÍGSTÖÐVUNUM,
Svo má segja, að rússneski
herinn haldi áfram óslitinni
sigurför á hinni 1000 mílna
löngu víglínu Rússlands; hafa
þeir undanfarna daga náð á vald
sitt hverri borginni á fætur
annari, og tekið mikinn fjölda
þýzkra hermanna til fanga;
mest hefir þó kveðið að sókn
og sigurvinningum Rússa á
svæðinu milli Don og Volgu,
þar sem heilar hersveitir af
liði þjóðverja hafa verið kró-
aðar með öllu inni, og þúsundir
gefist upp. Suður og suðvestur
af Stalingrad, hafa Rússar þó
unnið sína stærstu sigra, og er
staðhæft að Hitler sé farið að
verða næsta órótt innan brjósts
vegna viðhorfsins á þessum
hernaðarsvæðum; þá hafa Rúss-
ar og hrakið Þjóðverja úr mikil-
vægum varnarvirkjum í grend
við Leningrad, og er nú víst
talið, að á þeim vettvangi séu
þeir í þann veginn að hefja
hina hamrömustu sókn gegn
óvinahersveitunum, með það
fyrir augum, að leysa Leningrad
úr umsát.
♦ ♦ ♦
HERLIÐ FRÁ CANADA
í TUNISÍU.
Síðastliðinn miðvikudagsmorg
un var það formlega tilkynt, að
Canadiskir hermenn væru komn
ir til Tunisíu, og hefðu þegar
hafið þar skyndiárás á mikil-
væga flotastöð, er möndulveldin
fram að þessu höfðu á valdi
sínu; ekki er þess getið hve
herflokkur þessi héðan úr landi
sé mannmargur.
♦ ♦ ♦
JAPANIR
GEGAST UPP í BUNA.
Nú er svo komið, að setulið
Japana í Buna á New Guineu,
eða það sem eftir var af því á
þessum stöðvum, hefir gefist
upp fyrir herskörum Banda-
ríkjanna og Ástralíu. Það fylgir
sögu, að yfirburðir hinna sam-
einuðu þjóða í lofti, hafi riðið
baggamuninn.
Á föstudagskvöldið þann 8.
janúar næstkomandi, kl. 11.50,
Winnipeg tími, verður útvarpað
yfir aðalkerfi Canadian Broad-
casting Corparation, kveðju á
íslenzku frá dómprófasti, séra
Friðrik Hallgrímssyni; kveðjan
var samin fyrir atbeina Þjóð-
GÍFURLEGAR LOFTÁRÁSIR.
Loftflotinn brezki, með aðstoð
canadiska flugliðsins , gerði
meiri háttar sprengjuárás á iðn-
héruðin í Ruhrdalnum á mánu-
dagskvöldið, er orsakaði stór-
vægilegt tjón; einkum voru það
stálstevpuverksmiðjur þjóð-
verja, er harðast voru leiknar
í þessari orrahríð.
* * #
þjóðverjar' á flótta
í KÁKASUSFJÖLLUM.
Nýjustu fréttir frá austurvíg-
stöðvunum, sem útvarpað var á
miðvikudagsmorguninn, skýra
frá því, að hersveitir Þjóðverja
á þessum svæðum, séu á lát-
lausum flótta undan hinum
harðsnúnu sóknarfylkingum
rússnesku ráðstjórnarríkjanna.
♦ ♦ ♦
HVAR LEITAR BRACKEN
KOSNINGAR?
Um það er mikið skrafað, hvar
Mr. Bracken muni leita kosn-
iiigar' til sambandsþingsýmargir
halda að Selkirk komi naum-
ast til mála; honum hefir veriö
boðið Souris-kjördæmið í Mani-
toba, en nú er þess síðast getið
til, að hann muni freista gæf-
unnar í Tororito South.
♦ ♦ ♦
SAMBANDSÞING
KEMUR SAMAN.
Samkvæmt fregnum frá Ott-
awa, kemur sambandsþing sam-
an til funda þann 28. þ. m. Fyrir
þing verða að líkindum lögð
þau hæztu fjárlög, sem sögur
fara af í þessu landi; talið er
víst að allmiklu þingtímans
verði varið til þess að ræða
margháttaða endurbóta skipu-
lagningu að loknu stríði.
ræknisfélagsins í Reykjavík, og
send Þjóðræknisfélagi Islend-
inga í Vesturheimi.
Ávarp þetta verður flutt á
eftir “Messages to the North”.
Helztu stöðvar verða C. K. Y.,
990 kcl. og C. B. K. Waterous
Sask.
ÞIGGUR SÆMD
AF KONUNGI.
Lieut-Col. John Hjálmarson,
M. B. E.
Þessi ungi og efnilegi maður,
sem hækkað hefir jafnt og þétt
í tígn síðan hann innritaðist í
canadiska herinn, var nú á
síðastliðirm nýársdag cxmdur
af Bretakonungi með því að
hljóta British Empire verðlauna
medalíuna; hann er fyrsti ís-
lenzki hermaðurinn, sem orðið
hefir slíks heiðurs aðnjótandi.
John er sonur þeirra Mr. og
Mrs. Chris Hjálmarson, hér í
borginni.
FÓR ÚT UM ÞÚFUR.
Nýleg tilraun, er Japanir
gerðu til þess að koma liði á
land á Solomonseyjum, fór
öldungis út um þúfur. Tvo
japönsk beitiskip og níu tund-
urspillar, tóku þátt í lendingar-
tilrauninni, en urðu frá að
hverfa, sum skemd, vegna
sprengjuárása hinna sameinuðu
þjóða.
Net laganna
Eftir James Jefferey Roche.
Svo undravert net eru lög hvers lands,
það legst yfir braut hvers syndugs mans.
Svo haglega ofið er þess garn:
að ekki sleppi neitt syndabarn.
Hve stóru fiskarnir flýja þig,
svo fullkomið net — það undrar mig.
Skrítnar skoðanir
Eftir James Jefferey Roche.
Þegar eg var sextán seytján ára,
sagði fólk í ríki grárra hára:
“Gerðu ei þetta, þú ert langt og ungur!”
þá eg vildi seðja andans hungur.
Eg er orðinn fullra fimmtíu ára,
fæ í ríki dökkra og ljósra hára
svona ráð: “í ró og næði vertu,
reyndu ei þetta — langt of gamall ertu!”
Skrítinn ertu aðfinninga heimur,
öfgabundinn mótsetningum tveimur.
Eigi bernska og þroski stund, og stefni,
starfi saman — lifði eg hana í svefni.
Sig. Júl. Jóhannesson, þýddi.
HELZTU FRÉTTIR