Lögberg - 07.01.1943, Side 5
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 7. JANÚAR 1943.
5
til hlýtar rannsakaðir, þar um-
hverfis þennan risa helli er þjóð
garður frægur og merkilegur
— Mammotte Cave National
Park — 73 fermílur að stærð,
renna í gegnum hann tvær ár,
sem eru skipgengar, þá eru
ágætir keyrsluvegir um garðinn
auk gangstíga, sem eru mikið
notaðir af ferðafólki, er þetta
talinn merkilegur sælureitur
fyrir þá, sem vilja skemta sér
við brjóst- náttúrunnar.
Því miður gafst engum, sem
sóttu þingið í Louisville tæki-
færi að sjá neitt af þessum
undrum, hafði forstöðunefndin
í Louisville ákveðið að sýna
þingmönnum merka staði í rík-
inu, en sökum stríðsins, og þá
sérstaklega vegna hinna ströngu
ákvarðana með að spara bensín
og togleður hlaut það að farast
fyrir, og kvartaði enginn um
það. “Það, sem verður að vera,
viljugur skal hver bera”.
Tennessee er næsta ríki fyrir
sunnan Kentucky, er það svipað
að stærð og Kentucky, hefir það
átt sinn merkilega þátt í sögu
sambandsins og menningarfram-
sókn þjóðarinnar. Er talið að
De Soto hafi verið einn fyrsti,
eða með fyrstu hvítu mönnum
sem þangað stigu fæti, La Salla
bygði virki þar, sem borgin
Jón frá Ljárskógum:
Sól skal rísa
i.
Eystra og vestra æðir darrahríðin.
Ógnir stríðsins kvelja hrjáðan lýðinn.
Rauðum dreyra litast sær og lönd.
Tíðkast mæðramorðin, bræðravígin.
Menning heimsins reynist stærsta lýgin.
Heilar álfur þjaka þrældómsbönd.
Æskublómsins blóði og lífi fórna
böðlar þeir, sem hildarleiknum stjórna.
Þykka múga hrannar dauðans hönd.
Engjast undir ránvalds hæl og helsi
hönd og sál, er vöndust áður frelsi.
Beisk er þrælsins þögla sálarkvöl.
Þjóðin mörg, sem lifði frjáls í landi,
liggur knésett, fjötruð þrældómsbandi,
kvelst í þögn — og á ei annars völ.
Frelsi er kjarni og lífæð alls, sem lifir,
ljós, er skærast tindrar veröld yfir.
Svipting þess er þjóðar sorg og böl.
Norður hingað, heim að íslands ströndum,
hingað, þar sem friður réði löndum,
seilist stríðsins loppa, grimm og grá,
sek um morð á mörgum landsins sonum
— mæðra, feðra, systra og bræðra vonum
blóðug morðhönd sökkti í djúpan sjá.
Hernumin mun heill vors lands og gleði,
heiður þess og framtíð öll í veði,
standi ei þjóðin vökul verði á.
II.
Stutt er ennþá íslands frelsissaga.
Enn má muna sólarlitla daga,
fólksins stríð við áþján, eld og snjó.
Langt var stríðið — voldugt dáðaverkið:
Vorsins óskasynir hófu merkið,
heróp gall — frá afdal út á sjó.
Barizt var, unz aldinn erkifjandi
útlægur var gerr úr þessu landi.
Frelsissól á blárri hvelfing hló.
Bjart var þá í hug og hjarta þjóðar.
Heilagur var bjarmi þeirrar glóðar,
sem þá skærast skein um íslands fjöll.
Æskan hafði gengið vösk til víga,
vorsins fjendur látið undan síga,
dagað uppi drauga þeirra og ttröll.
Blakti að hún sá fáni, er æskan unni.
Upp til blárra himna reis af grunni
íslands glæsta, unga frelsishöll.
III.
Nú er önnur öld í þessu landi.
Eykst með hverjum degi þjóðarvandi.
íslands frelsi ógnar hætta mörg.
Rægð er stétt gegn stétt og hönd gegn hendi.
Hatramlegar aldrei land vart brenndi
hagsmuna- og stéttastyrjöld örg.
Hvort mun þeim, er hatursstríðið heyja,
hepnast loks það níðingsverk: að fleygja
gimsteini vors frelsis fyrir björg?
Skal sá verða endir íslandssögu
eftir “sigurljóð og raunabögu”,
skugga og skin í þjóðar þúsund ár?
Skal þá fyrir sjálfs vor hendi hníga
heill vors lands á slóðum bræðravíga
— gróðurdöggvum breytt í blóðug tár?
Skal þá íslenzk æska, lands vors framtíð,
ofurseld sem herfang spilltri samtíð
— hamingja vor hljóta banasár?
Hlusta, þjóð mín! Það skal aldrei verða!
Þá skal fyrr í níðingsblóði herða
íslands gamla, hvassa frelsishjör!
Enn skal landsins æska fram til víga
ótrauð, djörf, á mátt sinn trúuð stíga
— vorglöð sveit með sigurljóð á vör.
Draugalið, af vonzku og hatri vakið,
verða skal í yztu myrkur hrakið'
— íslenzk æska, veit því verðug svör!
Sól skal rísa — sindra á íslands fjöllum,
senda kveðju landsins börnum öllum,
geislakveðju, er örvi æskuþor.
Sól skal rísa — frelsissól og friðar,
frelsissól, er aldrei snýr til viðar,
meðan þjóðin man sín gengnu spor.
Sól skal rísa! Vermi vorsins andi
vitra og sátta þjóð í frjálsu landi.
Upp skal renna voldugt frelsisvor.
—Dvöl.
Memphis nú stendur.. Ríkis-
stjórinn í Tennessee, Mr. Pren-
tice Cooper, er Lúterskur maður
og var hann valinn til þess að
flytja erindi á þinginu í Louis-
ville, sem var skýrt og greini-
leg’t óg lýsti heilbrigðum trúar-
anda.
Fyrir allmörgum árum síðar.
komst Tennessee-ríkið allvel og
áberandi á forsíðu stórblaðanna
og smáblaða vítt um heim, fyr-
ir lög þau er það samdi er fyrir-
bauð að kend væri í skólum
landsins lögmál breytiþróunar-
innar, sem kend er við vísinda-
manninn Darwin, og mál það,
sem hafið var gegn kennaran-
um Mr. Scope er braut í bág
við það lagaákvæði. Má segja
að það hafi verið óskynsam-
leg lagaákvæði, kenning Dar-
wins hefi eg aldrei getað séð
að komi neitt í bága við trúar-
hugsun eða trúarlíf eða það aú
hann hafi kveðið neinn dóm
upp um trúmál eða áframhald
lífsins “On Decent of Man”, og
“Origin of the Species” voru á
fyrri tíð og eru enn mínar
uppáhalds bækur, þó eg að vísu
máski hafi aldrei skilið þær tii
hlýtar. Darwin var fyrst og síð-
ast vísinda- og rannsóknarmað-
ur, og lifði og hrærðist algjör-
lega í þeim heimi og var sinni
köllun trúr. Eg hefi aldrei getað
skilið það að hann hafi á neinr.
hátt viljað eyðileggja heilbrigða
trúarhugsun eða sannleika þann
sem felst í kristinni kennngu,
og kristnum hugsjónum og anda.
En það hafa verið menn á
ýmsum sviðum, sem hafa reynt
að nota Darwins-kenninguna til
þess eyðileggja trúarhugsun-
ina og trúarlífið, menn sem
annaðhvort hafa ekki skilið eða
viljað skilja hinn mikilhæfa vís-
inda- og fræðimann, er því ekki
ástæða að fordæma of hart fólk-
ið í Tennessee, sem í góðum til-
gangi, þó máski af skammsýni,
reyndi að verja það, sem það
taldi helgast.
Það eru til menn, sem halda
því fram að trúin og trúarhugs-
unin sé “þrándur í götu fyrir
allri andlegri og efnalegri fram-
þróun meðal mannanna”, ef hún
væri upprætt þá fyrst næði
heimurinn sér á strik til æðstu
fullkomnunar. Þetta hefir nú
verið reynt. Hitler hefir upp-
íætt trúna á Þýzkalandi, hann
hefir innleitt nýtt siðalögmá!
og nýtt menningarlíf þar og
víðar í Evrópu með það fyrir
augum að það nái til endimarka
jarðar, allir ættu að geta dæmt
um það hvert heimurinn hafi
grætt eða muni græða á þeim
skiptum. William Jennings
Bryan hinn mikilhæfi stjórn-
málamaður og mælskumaður
Bandaríkjanna, blandaði sér inn
í þetta Scopes-mál í Tennessee
og dó þar eins og kunnugt er.
Bryan þó mikilhæfur væri, var
all glámskygn á ýmsum sviðum,
svo sem þá er hann sagði sig
úr ráðuneyti Wilsons er óhjá-
kvæmilegt var að Bandaríkin
yrðu að stíga á hálsinn á þýzka
herveldisskrímslinu.
í sambandi við þetta kemur
mér í hug kvöldstund ein er eg
átti með K. N. Julius skáldi í
Winnipeg fyrir löngu síðan, K.
N. var æfinlega góður við mig,
heill og skemtilegur, sagði hann
mér frá mörgu, og las fyrir mig
ýmsar vísur og ljóð eftir sig,
og hafa sum þeirra aldrei kom-
ið á prent, og meðal þess, sem
hann hafði yfir var grafskrift
Bryans, sem hljóðar á þessa leið:
Hristist heimur kristinn,
heiðnum opnast leiðir.
Glópar aldnir gapa
Gjálíf æskan brjálast.
Bryan fremdar frægi,
fallinn er nú karlinn;
æpir ei að Scope,
Apa-lution drap hann.
1. John Thomas Scope, kenn-
ari, sem málið var höfðað á
móti.
2. William Jennings Bryan,
dó í Dayton Tennessee, 65 ára
gamall.
Frh.
Gaman og alvara
Friðarvinurinn gekk fram hjá
hjónum, sem voru í háarifrildi
út á miðri götu:
“Svona, svona, gott fólk”,
sagði hann, “verið. ekki að kýta
úti á miðri götu.”
Hjónin snéru sér að honum.
Maðurinn varð fyrir svörum.
“Hvað kemur yður það eigin-
lega við,” sagði Tiann reiður.
“Annars erum við alveg sam-
mála, og alls ekki að rífast.”
“En mér heyrðist ”, sagði
friðarvinurinn.
“Það kemur ekkert málinu
við, hvað yður heyrðist,” sagði
eiginmaðurinn. “Til þess að fólk
deili, þarf það að vera ósam-
mála, er ekki svo?”
“Jú.”
“Ja, við erum alveg sam-
mála,” sagði eiginmaðurinn.
“Konan mín heldur, að eg ætli
ekki að láta hana hafa neitt aí
vikulaununum mínum, og eg er
henni hjartanlega sammála.”
-f + ♦
Bankastjóri nokkur var fræg-
ur fyrir nísku. Dag nokkurn
sendi hann aldraðan negra 10
kílómetra eftir regnhlífinni
sinni.
Veðrið var heitt þennan dag
og vegirnir rykugir, en negrinn
leysti þó verk sitt bæði fljótt og
vel af hend^
Þegar hann kom til baka aft-
ur þakkaði bankastjórinn hon-
um með mestu virktum og hóf
síðan að þukla á öllum yösum
sínum.
“Þetta var leiðinlegt, Joe,”
sagði hann að lokum. “Mig
minti endilega að eg ætti krónu
í vasanum handa þér, en mig
hefir líklega mismint.
“Leitaðu betur, hr. Henry,”
svaraði sá gamli. “Hafirðu nokk-
urntíma eignast krónu, þá áttu
hana enn.
* * *
Fallegur fugl.
Kennari: “Veizt þú, Elín mín,
hver Kolumbus var?”
Elín: “Já. Hann hefir víst
verið fugl.”
Kennarinn: “Hvað segirðu?
Fugl? Hvaðan hefurðu þessa
vitleysu?”
Elín: “Eg heyrði hann pabba
minn tala í»gær um egg Kólum-
busar og í dag sagðist hann
Bjössi bróðir minn eiga að lesa
í dönsku bókinni söguna um
Kólumbus og eggið, svo að hann
hlýtur að hafa verið fugl.”
Viðurværi og heilbrigðis
viðfangsefni í Manitoba
Nýlegar rannsóknir undir forustu Heil-
brigðisráðuneytisins í Manitoba, hafa
leitt í ljós, að lélegt mataræði, eða
skortur heilsusamlegs viðurværis, ei
algengt meðal fólks víðsvegar um
fylkið.
Þetta er alvarlegt ástand, einkum þeg-
ar mikið liggur við eins og nú á sér
stað.
Vér þörfnust hámarks í andlegu og
líkamlegu atgerfi meðal hermanna
vorra, fólksins, sem í hergagnaverk-
smiðjunum starfar, og borgaranna
yfirleitt.
Þetta útheimtir skjóta athygli, og sam-
starfs-athöfn.
Rannsóknir á persónum í Manitoba á aldrinum
frá 16 til 30 ára bera með sér að . . . .
20«
. voru
C OF LÉTTAR
27 % BLÓÐÞYNNING
90«
miðskólanemendur þörfnuðust
TANNAÐGERÐAR
Ert svarið við þessu
viðfangsetni er . . .
Gott
viðurværi
Fólk þarfnast hollari fæðu, sem inni-
heldur næg málmsölt, bætiefni og
holdgjafarefni. Fólk neytir eigi nógu
mikils af þeim mat, er inniheldur
slík nauðsynjaefni.
Á skránni til hwgri eru
nefndar nokkrar fnöu -
tegundir, er innihalda
hcilsusamleg efni.
Canada’s Opinberu
viðurværisreglur
ÞETTA ERU HEILNÆMAR
OG VERNDANDI
FÆÐUTEGUNDIR.
Neitið þeii-ra sérhvern dag í þeim
mæli, sem hér er skýrt, — meira ef
unt er. —
MJÓLK—Fullorðnir, pela, Börn meira
en mörk, og ost eftir föngum.
ÁVEXTIR—Tómötur einu sinni 4 dag.
eða sítrðnuávextir, eða tðmötu og
sítrðnuvökvi; aðrir ávextir ferskir eða
niðursoðnir.
OARfíMATUR—1 viðbðt við kartöflur
einu sinni 4 dag, er holt að neyta
annara ávaxta, grænna eða gulnaðra,
jafnframt.
CEREALS OG BRAUfí—Einn skamtur
af hrjúfu cereal og 4—6 sneiðar af
hvítu og brúnu brauði, sem viðurværis-
reglur Canada mæla með.
KJÖT OO FISKUR—Einu sinni á dag
kjöt og fiskur, eða kjötlíki. Lifur,
hjörtu, nýru, einu sinni á viku.
EGG—Minst 3—4 egg 4 viku.
Skerfur af D. bætiefni, svo sem fisk-
lifrarlýsi, er nauðsynlegur börnum, og
jafnvel fullorðnu fðlki.
KYNNIST RÉTTU FÆÐUNNI
NEYTIÐ RÉTTU FÆÐUNNAR.
DEPARTMENT of HEALTH and PUBLIC WELFARE