Lögberg - 25.02.1943, Page 4

Lögberg - 25.02.1943, Page 4
4 LÖGBERG. FIMTUDAGINN 25. FEBRÚAR 1943. -----------Xöjjberg--------------------- Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS. LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: KDITOH DfKíBEHG, 69ó Sargent Ave., Wínnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Löyberg’” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Ræða flutt við setningu 24. ársþings Þjóðræknis- félags af Dr. Richard Beck, forseta félagsins. Góðir íslendingar, háttvirtir þingmenn ,og gestir! “Og lífsins kvöð og kjarni er það að líða og kenna til í stormum sinna tíða.” Aldrei hafa þessar ljóðlínur Stephans G. Stephanssonar verið sannari heldur en á þeirri vargöld og víga, sem nú gengur yfir heim- inn og sogað hefir mikinn þorra menningar- þjóðanna niður í hringiðu tortímingar sinnar og ógna. Erum vér öll, sem byggjum Vestur- heim, bæði í Canada og Bandaríkjunum, beinir eða óbeinir aðilar í þeirri úrslitabaráttu, sem þjóðir vorar heyja nú við hlið annara lýðræðis- þjóða gegn hinni róttækustu og illræmdustu cfbeldisstefnu, er sögur fara af. Eru þeir því úr harla “skrítnum steini”, eða enn þá harð- ara efni — ef nokkrir eru —, sem ekki kenna sárt til í þeim örlagastormum, sem nú geisa um gjörvalla jörð og leggja í auðn og rústir heila landshluta og stórborgir, gera að engu þau menningarverðmæti, sem keypt voru dýru verði svita. blóðs og tára liðinna kynslóða. Aldrei verður heldur of mikil áherzla lögð á það, að lýðræðisþjóðirnar hafa haft upp sverð sitt til varnar dýrmætusfu eign einstaklinga og þjóða, réttinum til sjálfsákvörðunar, ein- staklingsfrelsinu, en án þess verður enginn maður að minni, né nokkur þjóð að þjóð, í sönnustu merkingu orðsins. Sameinuðu þjóð- irnar — United Nations — heyja nú veraldar- víða mannréttinda-baráttu, því er það, að vitrir og víðsýnir stjórnmálamenn, lýðræðis- og friðarvinir, eins og dr. C. J. Hambro, stórþings- forseti Norðmanna, hafa látið svo um mælt, að þetta heimsstríð væri “styrjöld fólksins”. Þetta verður mönnuni ljósara, er þeir kryfja til mergjar rök ofbeldisstefnunnar, sem lýð- ræðið á nú í höggi við, og svifta grímunni af ásjónu hennar. Óvíða veit eg það gert jafn eftirminnilega, hvað þá betur, heldur en í hinni snjöllu og tímabæru grein dr. Guðmundar Finnbogasonar. “Það, sem af andanum er fætt” í Skírni 1941, og farast honum þar orð á þessa leið: “Aldrei hefir vísvitandi uppreisn gegn and- anum náð eins vítt yfir og verið eins illvíg og á síðustu tímum, þar sem einræðið og hernaðurinn ríkir. Og vér sjáum, hvert stefnir. Einræði, herstjórn, harðstjórn, leynilögregla vinnur allt vísvitandi að því að gera mann hræddan við mann, frá hinum neðsta til hins hæsta. Hver maður verður þræll þess, sem yfir hann er settur, en harðstjóri þess, sem undir hann er skipaður. Þeim, sem óhlýðnast, er útrýmt eða hann er einangraður og stund- um kvalinn. Skoðanir eru búnar til eftir skip- un foringjans, án tillits til sannleikans, og þess- um skoðunum er öllum skylt að játa og fylgja í framkvæmd. “Taki þeir nú ofan, sem höfuð- ið hafa” er boðorðið á þessu draugaþingi. Allur frjáls félagsskapur er bannaður. Öll þekking og öll tækni er notuð til þess að viðhalda þessu kerfi innan ríkisins, svo langt sem það nær hverja stundina, og til þess að brjóta undir sig hvert annað ríki eða stjórnarkerfi, sem ekki gefst upp andspyrnulaust. Með þessum hætti eru öll hreinskilin viðskipti sálnanna útilokuð innan ríkisins og frjáls andleg við- skipti við þá, sem utan þess búa, bönnuð með ritskoðun, eftirliti pósts og síma og útvarps og banni gegn því að hlusta á erlent útvarp. Einu vísindin, sem fá að vera óáreitt innan ríkisins, eru þau, sem snerta efnisheiminn og tæknina — maðan þau ekki finna upp eitthvað meðal til að reka burtu þrælsóttann, sern heldur slíku kerfi saman. Slíkt kerfi leiðir til andlegs dauða, því að andinn, sem lífgar, hefir sína uppgönguaugu í sálum einstaklinganna og streymir þaðan út um heiminn á líkan hátt og eg benti á um tónverkið, sem verður til í sál tónskáldsins og getur orðið líf af lífi allra, sem það nær til. Ef þessi uppgönguaugu eru eitruð eða stífluð eða einangruð, verður maðurinn ægilegasta en óæðsta skepna jarðarinnar, því að hann hefir þá framið sálarmorðið.” Hér er ofbeldis og einræðisstefnu nútíðar- innar rétt lýst og kröftuglega, helstefnunni, eins og hún hefir jafn réttilega nefnd verið, því að hún leiðir, fyr eða síðar, til andlegs dauða. Verður það þá skiljanlegt, hversvegna frelsisunnandi mönnum og konum finnst mikið til um þá baráttu, ekki síst af hálfu hinna smærri þjóða, sem nú er háð gegn slíkum eyðingaröflum og kúgunar. Hvarflar manni þá eðlilega í hug snildarkvæði Guðfinnu Jóns- dóttur frá Hömrum, “Heilagt stríð”, um hreysti- lega vörn frænda vorra Norðmanna gegn ofurefli innrásarmannanna í hið söguríka og fagra land þeirra, heimaland vorra fornu feðra: í afdölum Noregs um andnes hvert er aldað og sorfið viljans stál. í Glámsaugu heiftúðug, heljarmyrk, nú horfin hin norræna þjóðarsál. En sögunnar kyndla hún kveikir í dag og kveður sín Hávamál. Nú birtir um arfleifð íslendings og atgeir feðranna syngur við. í ánauð hernámi hugans verst hið harðfenga, prúða Noregs lið. Vér kennum voru forna frelsisdraum í frændanna sverðaklið.” Skáldkonan mælir hér af speki og innsæi. “Vor forni frelsisdraumur” speglast í sjálfs- vörn, og sókn, frændanna norsku, þar sem hetja vakir á hverjum bæ. Sá frelsisdraumur knúði norræna ættfeður vora vestur yfir hafið til íslandsstranda og rættist fagurlega í stofn- un hins forna íslenzka lýðveldis. Og sá frelsis- draumur lifði með þjóð vorri, þó lýðveldið liði undir lok; hann blossaði upp á örlagarík- um stundum í sögu hennar og hefir rætst að nýju með endurheimtu stjórnarfarslegu sjálf- stæði hennar á síðustu árum. ísland er að vísu, sem stendur, hernumið land, og fylgja því eðlilega mikil vandkvæði cg hömlur á ýmsum sviðum. Þjóð vor hefir einnig goldið þung afhroð af völdum stríðsins. Um það féllu Sveini Björnssyni, ríkisstjóra íslands meðal annars þannig orð, í ávarpi sínu til þings og þjóðar þ. 14. nóvember í haust: “Sjómennirnir okkar hafa ekki sýnt minni hreysti en sjómenn annara þjóða í þessum mikla hildarleik, þótt ekki taki þeir þátt í vopnaviðskiptum. Og þar höfum vér fært fórn- ir, sem eg hygg að þoli samanburð við fórnir ýmsra annara þjóða, í hlutfalli við íbúatölu landsins og skipaeign. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafél- agi íslands hafa frá ófriðarbyrjun farist í sjó 61 maður af sannanlegum hernaðarorsökum, en 104, sem telja má öll líkindi til að farist hafi af sömu orsökum, þótt engir hafi komist til vitnisburðar. Verða þetta samtals 165 manns- líí eða nær því IV2 af þúsundi allra landsbúa. Á sama tíma höfum vér misst 6 skip, sem sannanlega hafa farist af hernaðaraðgerðum, en 10 skip, sem öll líkindi eru til að farist hafi af sömu orsökum; verða það samtals 16 skip, að smálestatali nær einum tíunda hluta af skipaeign íslendinga.” En allur annar og stórum verri hefði þó áreiðanlega hlutur íslands orðið, ef það hefði lent í ránshöndum einræðisþjóðar. Því sagði Thor Thors, sendiherra íslands í Washington, í útvarpsræðu 7. júlí í sumar: “Þegar við ber- um kjör okkar íslendinga saman við Norð- manna og Dana, þá getum við verið þakklátir fyrir okkar hlutskipti. Bandaríkjamenn hafa búið vel og drengilega að okkur, og við skul- um vona og óska þess, að svo verði framvegis.” Sveinn ríkisstjóri tók í sama strenginn í fyr- nefndu ávarpi sínu. Auk þess eru miklar líkur til, að hjartfólginn frelsisdraurftur hinnar ís- lenzku þjóðar hljóti lokaráðningu sína með stofnun lýðveldis á íslandi á næsta ári. Það sem eg vildi sagt hafa í stuttu máli er þetta: Frelsisástin hefir gengið eins og rauður þráður gegnum sögu íslands frá upphafi vega þjóðar vorrar. Og sú djúpstæða frelsisþrá er bæði eitthvert allra fegursta einkenni íslend- ingsins og jafnframt meginþáttur í þeirri marg- þættu menningararfleifð vorri og hugsjóna, sem félagsskapur þessi leitast við að varð- veita og gera sem frjósamasta í lífi voru vestan hafs. Raddir frelsis og framsóknar finna því greið- lega hljómgrunn í sálum íslendinga í landi hér, enda má vænta þess af afkomendum og arfþegum jafnfrjálshuga manna og þeirra, er á íslandi hafa búið frá fyrstu tíð, að þeir skipi sér framarlega í fylkingu, þegar á þá er heitið til varnar lýðfrelsi og mannréttindum. Sú hefir einnig reyndin orðið. Þeim til minnis, sem kunna að hafa gleymt því, skal þess getið, að í heimsstríðinu fyrra, 1914—’18, gengu til- tölulega fleiri Canadamenn af íslenzkum stofni í herþjónustu, en menn af nokkrum öðrum þjóðstofni í landinu. Svipuðu máli gegn- ir í því hinu mikla frelsisstríði, sem nú er háð. Menn íslenzkrar ættar hafa tekið sinn fulla 'þátt í hersókninni á ýmsum vígstöðvum, svo sem í hinni sögufrægu Dieppe-árás á Frakk- land. Sömu söguna er að segja sunnan landa- mæranna. Milli þegnskyldu við það land, sem við búum í. unnum og vinnum, og ræktarsemi við ís- lenzkar menningarerfðir er ekki neinn árekstur. íslenzkar frelsis, framsóknar og menningar- hugsjónir eru sprottnar upp úr sama jarðvegi og lýðræðis- og mannréttindakenningar í brezku og bandarísku stjórnarfari. Fánarnir þrír, sem skreyta hér veggi hlið við hlið, eru því talandi tákn þeirrar sameiginlegu frelsisástar, sem íslenzkum mönnum, brezk- um og bandarískum er í blóð borin. Þeim skilst það einnig, að sigursæl stríðssókn á veraldar víðum vettvangi, eins og nú er um að ræða, krefst vaxandi fórna af hálfu vor allra. En “stórt er best að vinna”, sann- ast þar. Vegna þess, hve stormar líð- andi tíðar hafa gripið hug minn föstum tökum, hefi eg að þessu sinni dvalið sérstaklega við hinn vígða þátt frelsisástarinnar í hugsjónaarfleifð vorri og menn- ingu. En á oss íslendingum sann ast þjóðernislega það, sem Guð- mundur Friðjónsson sagði í markvissu erfiljóði nýlega: “Merkilegt móðerni mannheill veldur, þróun og þroska.” Megi oss sá sannleikur aldrei úr minni hverfa, hvort sem • vér höfum fyrst og fremst í huga vora fögru og tignu tungu, sem bergmálar hjartslátt þjóðar vorrar frá kyni til kyns, hinar auðugu og ódauðlegu bókmentir vorar, með speki þeirra og rit- snilld, eða þær hugsjónir, sem varpað hafa bjarma manndóms og sálargöfgi á hin kröppustu kjör og hafið lífið sjálft upp í æðra veldi. Eins og litirnir í ljósbandinu, fléttast þetta allt fagurlega saman í samræma heild í þjóðararfi vorum og menningar. En óhrakin standa enn orð dr. Guðmundar Finn- bogasonar, í kaflanum snjalla um íslenzkuna, í bók hans ís- lendingar: “Trúmenskan við fagra fortíð, viðleitnin að þróast í samræmi við það, sem best er í eðlinu, er aðalsmark ein- staklinga sem þjóða.” * * * Þegar vér horfum yfir farinn veg á árinu, verður oss að von- um ofarlega í huga minningin um mörg mæt og merk félags- systkini, sem látist hafa á því tímabili; en þau eru þessi, sam- kvæmt upplýsingum frá Guð- manni Levy, ■ fjármálaritara: Friðrik Swanson, Winnipeg, heiðursfélagi; Sigtryggur Jónas- son, Árborg, heiðursfélagi; dr. V. A. Vigfússon, Saskatoon, Sask.; Otto W. Bárdarson skóla- stjóri, Carmel-by-the-Sea, Cali- fornia; Magnús Jónsson, frá Fjalli, Blaine, Wash.; dr. John Árnason, Tacoma, Wash.; Guð- mundur Hjartarson, Steep Rock; Guðmundur Egilsson, Wynyard, Sask.; Magnús Ingimarsson, Wynyard, Sask.; Thorgils Hali- dórsson, Mountain, N.-Dak.; Mrs. Anna J. I. Einarsson, Cavalier, N.-Dak.; Stefán Abrahamsson, Winnipeg; Mrs. Jóna Goodman, Winnipeg; Mrs. Sesselja Gott- skálkson, Winnipeg; Kristján Hannesson, Winnipeg; Mrs. Jón Jónatansson, Winnipeg; Lýður S. Lindal, Winnipeg; Mrs. Rann- veig K. Stefánsson, Winnipeg, séra Níels Steingrímur Thorláks- son, Canton, S.-Dak. í þessum hópi eru menn, sem staðið hafa framarlega í fylk- ingu íslendinga í landi hér síðan á landnámstíð, og skipa heiðurs- sess í sögu vorri; þá eru þar aðrir, sem féllu að velli um aldur fram í blóma lífsins. En þakklátlega minnumst vér þess- ara félagssystkina allra saman fyrir trúmensku þeirra við sam- eiginlegar erfðir og áhugamál og vottum skyldmennum þeirra hugheila samúð vora. Ú ibr eiðslumál. Ánægjulegt er það til frásagn- ar, og ætti að vera til uppörfun- ar í starfinu, að félaginu hefir drjúgum aukist liðsafli á liðnu ári víðsvegar um Vesturálfu. Nær ágústlokum í sumar var þjóðræknisdeild stofnuð í Mikley með 40 meðlimum. Embættis- menn hennar eru: Mrs. H. W. Sigurgeirsson, forseti; G. A. Williams, vara-forseti; Bergþór Pálsson, ritari; Mrs. Þorsteinn Pálsson, vara-ritari og Helgi K. Tómasson, gjaldkeri. Má óhætt segja, að þar sé rúm hvert vel skipað. Hefir deildin þegar tek- ið til starfa og er íslenzkukenn- sla í þágu barna og unglinga helsta mál á starfsskrá hennar; getur eigi þarfara eða tímabær- ara viðfangsefni. Deildarstofnun þessi var árangur af útbreiðslu- ferð, sem Ásmundur P. Jóh- annesson, féhirðir, Mrs. Einar P. Jónsson, vara-ritari, Sveinn Thorvaldson, M.B.E., vara-fjár- málaritari og forseti fóru til eyjarinnar. Jafnframt því, sem eg býð hina nýju deild vel- komna í hópinn og fulltrúa hennar á þingið, vil eg þakka Mikleyingum alúðlegar og ágæt- ar viðtökur. Þá hefir íslendingafélagið í New York ákveðið að gerast deild í Þjóðræknisfélaginu; er það fyrri atbeina Árna G. Egg- ertssonar, K.C., lögfræðings, er sótti fund íslendinga austur þar síðastliðinn vetur sem fulltrúi stjórnarnefndar vorrar. Hafi hann heiður og þökk fyrir þenn- an stuðning sinn við málstað vorn. Forseti Islendingafélags- ins í New York er E. Grettir Eggertson raffræðingur. Feta þeir bræður því sjáanlega vel í fótspor föður síns um trygð við íslenzk þjóðræknismál. Einnig barst mér nýlega til- kynning um það frá J. J. Mid- dal, ritara Lestrarfélagsins “Vestri” í Seattle, að það félag hefði einnig ákveðið að gerast sambandsdeild í Þjóðræknis- félaginu, en forseti þess var þá Kolbeinn S. Thordarson. Er mér ljúft og skylt, að bjóða nefndar deildir velkomnar í félagið, og ánægjulegt er það sérstaklega, að með upptöku þeirra brúar félagið álfuna þvera. Ekki er það þó, góðu heilli, New York íslendingarnir einir, sem gengið hafa undir félags- fána voru á Austurströndinm, því að fyrri stuttu síðan barst mér sú góða frétt, að eigi færri en 15 íslendingar í Boston hefðu gengið í félagið. Eigum vér það að þakka drengilegri forgöngu Pálma Sigurðsson af Seyðisfirði, og ágætum stuðningi Einars P. Jónssonar ritstjóra, sem drjúgan hlut átti að því máli. Þá hefir forseti aflað félaginu eigi all- fárra nýrra meðlima með bréfa- skriftum. En fjármálaritari gerir nánari grein fyrir nýjum deild- um og félögum í skýrslu sinni. Ýmsir stjórnarnefndarmenn félagsins, svo sem vara-forseti, séra Valdimar J. Eylands, ritari, dr. S. J. Jóhannesson, Mrs. E. P. Jónsson, dr. S. E. Björnsson, vara-fjármálaritari og Ásmund- ur P. Jóhannsson hafa talað máli félagsins beinlínis eða óbeinlínis með ræðum eða öðrum hætti á fundum deilda og ýmsum mannamótum. Hinn síðastnefndi flutti meðal annars ávarp af félagsins hálfu í samsæti, er Sveini Thorvaldson var haldið í tilefni af 70 ára afmæli hans í marsbyrjun í fyrra. Forseti hefir heimsótt þessar þrjár deildir á árinu: “Frón” í Winnipeg, “Báruna” í N.-Dak. (tvisvar) og sambandsdeildina “Vísi” í Chicago; flutti hann erindi eða ávörp á samkomum þeirra allra; vildi einnig svo heppilega til, að hann gat tekið þátt í miðsumarfagnaði Islend- inga í Chicago. Með bréflegum kveðjum félagsins til íslendinga- daganna og annara meiriháttar mannamóta hefir hann einnig leitast við að vinna að aukinni samheldni íslendinga í landi hér. Þá hefir forseti flutt á ann- an tug af ræðum á ensku um ísland og íslenzk efni á árinu, á ýmsum stöðum í N.-Dakota, tvær þeirra í útvarp. Hann hef- ir einnig ritað greinar og rit- dóma um sömu efni í amerísk blöð og tímarit. Rétt nýlega er einnig komið út ( New York safn enskra þýðinga af íslenzk- um ljóðam og smásögum, Icelandic Poems and Siories, sem hann hefir aflað efni til og búið undir prentun. Hefir Prin- ceton University Press prentað rit þetta fyrir menningarfélagið The Scandinavian Foundation. Islandsmyndin. Eins og getið var um í árs- skýrslunni í fyrra, var Þjóð- ræknisfélagið á íslandi þá ný- búið að senda félagi voru að gjöf eftirmynd af íslandskvik- mynd Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga og var hún sýnd fyrsta sinni hér vestra síðasta þingkvöldið. Hefir myndin síðan verið mikill og merkur liður í útbreiðslustarfi þessa árs og verið sýnd á þessum stöðum í Canada: Winnipeg, Selkirk, Gimli, Riverton, Mikley, Glen- boro, Cypress River, Baldur Wynyard, Vancouver og Camp- bell River. Á sumum þessum stöðum hefir hún verið sýnd oftsinnis, t. d. 5 sinnum í Wini- peg, 3 sinnum að Gimli og tvis- ar í Selkirk. Hefir vara-forseti haft umsjón með útlánum á myndinni norðan landamæranna og ber að þakka honum árvekni í því starfi. Á liðnu hausti var myndin síðan send til Banda- ríkjanna til sýningar meðal Is- lendinga í landi þar. Hefir húr. þegar synd verið á þessum stöð- um: Minneapolis, Mountain. San Francisco, Seattle, tvisvar, og verður þessa vikuna sýnd í Blaine, en þar er hún í vörzlu umboðsmanns vors séra Alberts E. Kristjánsson. Annars hefir forseti umsjón með útsendingu myndarinnar sunnan landamæra Hefir Islandsmynd þessi hvar- vetna fallið í frjóa jörð og má óhætt fullyrða, að hún hafi bæði treyst ættarböndin íslenzku og aflað félagi voru vinsælda. Fræðslumál. Eigi verður það of oft endur- tekið, hvert grundvallaratriði viðhald íslenzkrar tungu vestra hér er í starfi Þjóðræknisfélags- ins. Er því gott til þess að vita, að íslenzkukennslu barna og unglinga er haldið uppi á ýms- um stöðum. Má þar fyrst nefna .Laugardagsskóla Þjóðræknisfél- agsins í Winnipeg, sem starf- ræktur er með svipuðum hætti og verið hefir, og er sæmilega sóttur, þó æskilegt væri, að enn fleiri foreldrar notfærðu sér það ágæta tækifæri, sem börnum þeirra veitist þar til að læra íslenzka tungu. Kennarar hafa þessir verið: Mrs. Einar P. Jóns- son, er skólastjórn hefir með höndum, Mrs. Hjálmar Daníel- sor, Miss Vala Jónasson, Mrs. Kristín Jefferson og unglings- pilturinn John Butler, sem getið var um sérstaklega í skýrslu síðasta árs. Er dæmi hans, sem aðeins er íslenzkur í aðra ætt, mjög öðrum til fyrirmyndar. Mrs. Daníelsson hefir æft söng- flokk barna með aðstoð Mrs. S. B. Stefánsson. Stendur fél- agið nú sem áður í hinni imestu þakklætisskuld við kennara þessa fyrir áhuga þeirra og fórnfúst starf. Sama máli gegnir um Ásmund P. Jóhanns- son, sem enn hefir, eins og um undanfarinn áratug, látið sér sérstaklega umhugað um hag skólans og framgang. Þá standa deildir félagsins í Riverton, Árborg og Mikley, og ef til vill víðar,* að íslenzku- kennslu með góðum árangri. Bera þeim öllum þakkir, sem leggja hönd að þeirri þörfu starf semi. Á síðasta Þjóðræknisþingi gerðist sú nýbreytni, að for- seta var falið að skipa milli- þinganefnd í fræðslumálum. Skipaði hann hana þessum mönnum og konum: Mrs. Einar P. Jónsson, formaður; Ásmund- ur P. Jóhannsson, Mrs. S. E. Björnsson, Svein Thorvaldson og Miss Vilborg Eyjólfsson; hef- ir fólk þetta allt sýnt hinn mesta áhuga á fræðslumálum vorum. Forseti hefir einnig setið fundi nefndarinnar og stutt hana að starfi eftir föngum. Tók nefnd- in þegar til starfa eigi löngu eftir þingið í fyrra og hefir unn- ið að því að skipuleggja íslenzku

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.