Lögberg - 15.04.1943, Blaðsíða 1

Lögberg - 15.04.1943, Blaðsíða 1
56 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. APRJL 1943. . NÚMER 15 # 'I y n c***^™- ‘ •- í;^-uí.w — Vinnurjsér frama Þessi glæsilega stúlka, sem myndin er af, er Carol Joy Feldsted, dóttir þeirra Mr. og Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street hér í borg- innL Miss Feldsted útskrifaðist í Arts og Fine Arts við há- skólann í Chicago, 1941 og 1942. Nú er hún að búa sig undir meistaragráðu, og hlaut nýverið hinn svonefnda Sny- dacker námsstyrk í lok hins fyrsta kennslutímabils við Chicago Art Institute. HELZTU FRÉTTIR maría markan syngur í ÚTVARP. í símskeyti er Grettir Leo Johannson barst frá hr. George Ostlund í New York á mánu- daginn var er skýrt frá því, að María Markan muni syngja yfir National Broadcasting Company Blue network á fimtudag^kvöld- ið, klukkan 7,30 New York tími (6,30 e. h. Winnipeg tími), 15. apríl, á prógrami er nefnist “Metropolitan Opera”. Tilraun hefir verið gjörð við útvarpsstöðvarnar í Winnipeg með að flytja þetta útvarp, en vegna þess, að NBC blue net- work er ekki leitt til Winnipeg, og einnig vegna þess, að frétt- um er útvarpað á þessum tíma, verður ekki hægt að hlýða á þetta útvarp frá Vestur-Canada útvarpsstöðvunum. CBY, Toronto, og CFCF, Mon- treal,. flytur prógram þetta. ♦ ♦ ♦ halda fund í brennerskarði. í vikunni, sem leið, héldu þeir Hitler og Mússolini sinn fjórða samtalsfund í Brennerskarði frá því að núverandi styrjöld hófst; þangað hafa þeir sótt, er mikið þótti liggja við, svo sem nú, vegna hrakfara möndulveldanna 1 Tunisíu; hvað þeim J raun og veru fór á milli, er ekki vitað, að öðru leyti en því, að Músso- lini heimtaði aukinn herstyrk af fóstbróður sínum; daginn eftir fundinn hafði Berlínarút- varpið í hótunum við Banda- fikjamenn um að senda þýzkar sprengjuflugvélar til New York °g sýna þeim í tvo heimana, hvenær, sem svo byði við að horfa. -f -f -f Maður verður úti Fyrir skömmu varð maður að nafni Guðbjörn Guðmundsson [rá ísafirði úti á leið að Höfn 1 Hornavík. Laugardaginn 27. þ. m. varð Ouðbjörn Guðmundsson úti á ieiðinni frá Búðum í sléttu- hreppi að höfn í Hornavík í sama hreppi. Hafði Guðbjörn rneð sér fylgdarmann, því að fara þurfti yfir fjallveg s. n. Skálakamb. Þeger upp á há- heiðina kemur kveðst Guðbjörn ekki þarfnast fylgdarmanns leng Ur og hélt ferðinni áfram einn. Farið var að lengja eftir Guð- irni er hann kom ekki að öfn á tilsettum tíma cfg var þegar hafin leit. Lík Guð- Jartar fanst síðastliðinn þriðju- Mbl. 6. marz. BANDAMENN VINNA STÓR- SIGRA í TUNISÍU. Undanfarna daga hafa herir sameinuðu þjóðanna í Tunisíu unnið einn sigurinn öðrum meiri; eftir að hafa náð bænum Sousse á vald sitt, sem gerðist á mánudagsnóttina, eru sveitir þeirra komnar til Enfidaville, sem liggur um 27 mílur fyrir norðan áminstan stað. Nú er það heróp Sir Mortgomery’s og fylkinga hans, að linna eigi sókn fyr en komið sé alla leið til Tunis; en þangað eru ekki nema liðugar þrjátíu mílur. Fylkingar Rommels eru á látlausu undan- haldi, og spá hernaðarsérfræð- ingar því, að hann muni ekki treystast til að koma við veru- legri vörn úr því sem komið er, fyr en þá í hafnarborginni Bizerta. Mælt er, að um hundr- að þúsund hermenn möndul- veldanna hafi fallið Bandamönn- í hendur í viðureign þessari, auk ógrynnis af hergögnum. ♦ *■ STÓRTJÓN Á SEYÐISFIRÐI AF VÖLDUM OFVEÐURS. - Mikið tjón varð á Seyðisfirði af völdum ofveðurs, sem geisað hefir um Austurland. Á Seyðisfirði brotnuðu bæði loftskeytamöstrin og eyðilögðu þau m. a. símalínur og trjá- garða. Línur rafveitunnar slitn- uðu og á nokkrum stöðum, svo að sumt af bænum varð raf- magnslaust um stundarsakir. Skemdir urðu víða á húsþök- um, fauk t. d. mikill hluti af þaki mótorsmiðjunnar. Glugga- ráður brotnuðu, og síma- og rafmagnslínur slitnuðu allvíða, er lauslegt brak fauk á þær. Mbl. 3. marz. ♦ ♦ ♦ HOLDSVEIKRASPÍTALINN í LAUGARNESI BRENNUR TIL KALDRA KOLA. í útvarpsfregnum frá íslandi frá Birni Björnssyni blaðamanni á þriðjudagskvöldið, var þess getið, að hoídsveikraspítalinn í Laugarnesi hefði í vikunni á undan brunnið til kaldra kola. Manntjón varð ekkert. GJÖF TIL 3TÚDENTAGARÐSINS. Stjórn “Anglia”. félags ensku- mælandi mannaj afhenti í gær kr. 20.000.00 — andvirði tveggja herbergja — að gjöf til Nýja Stúdentagarðsins, Forréttindi til dvalar í her- bergjum þessum fá enskir stú- dentar-, sem stunda nám við há- skólann, en að þeim frágengnum íslenzkir stúdentar, sem leggja stund á ensk fræði. — Annað herbergið á að nefnast “Shake- speare” en hitt “Anglia”. Mbl. 3. marz. Gaman og alvara Varaðu þig — ís í nánd! Nú hafa menn fundið svo næma hitamæla, að þeir geta greint hita af kveiktum vindli í kíló- metra-fjarlægð frá hitamælin- um. Mælir þessi hefir reynst vel í sjóleiðum, þar sem hætta getur stafað af hafís. Mælirinn finnur fljótt, ef jakar nálgast, þótt þeir séu langar leiðir burtu; lækkar þá hitinn skyndilega og varar skipshöfnina og tekur hún þá til nauðsynlegra ráða. * * * Sykurrófur "deyfðar". Á hverju ári, þegar sykurrófurnar eru teknar upp, þá hefst hinn svonefndi “sykurbardagi”; er sú orusta í því fólgin að rófunni þarf að breyta í safa á svo skömmum tíma sem unnt er; úr safanum er svo sykurinn unninn. Meðan á þessum bar- daga stendur, eru sykurverk- smiðjurnar í einni háspennu látlausri; en eftir það dregur úr ganginum og margar verksmiðj- ur standa auðar, þangað til ný rima hefst. Þessi allóhagkvæma rekstursaðferð á rót sína í þeim sérkennileika sykurrófunnar, að sykurinnihaldið er mest fyrst eftir það, er hún er tekin upp. Eftir lítinn tíma fara aðrar efna- breytingar að gera ,vart við sig og minkar við sykurmagnið fljót lega, sumt fer, meðal annars burt með “andardrætti” rófunn- ar. Af þessari ástæðu flýta þeir sér alt hvað af tekur, að vinna sykurinn úr rófunum. Nú á seinni tímum hefir verið revnt að koma í veg fyrir þessa skyndi vinnu með því að deyfa rófurnar nýuppteknar með klóróformi, Acetylin og kolsýringi, svo að sykureyðsla rófunnar til eigin þarfa minki, og rófurnar megi geyma alllengi, svo að lítið syk- urtjón verði að. Nú geta sykur- verksmiðjurnar unnið árið um kring að sykurgerðinni. Þessari nýbreytni er fylgt með mikilli athygli í þeim löndum, þar sem sykurrófna-ræktin er mest, fyrst og fremst í Þýzkalandi. -f -f -f Njósnarar á stríðstíma deyja sjaldan ráðalausir. Sumir teikna hernaðarlandabréf á neglur á kvenfólki og lakka síðan yfir uppdrættina. En einn alkunnur njósnari kom lengi vel skila- boðum til hernaðaraðilja, án þess að upp kæmist, hvaða að- ferð hann hafði til þess. Loks uppgötvuðu menn, að hann seldi 'alskonar skrautker, prýdd kín- verskum myndum. Við nán^ri athugun kom í ljós, að mynd- irnar voru ekkert annað en hernaðarupplýsingar á kín- versku! Or borg og bygð Séra K. K. Ólafsson forseti lúterska kirkjufélagsins, var staddur í þorginni í fyrri viku, og hélt fund með framkvæmda- nefndinni; hann á nú heima í Chicago, og hvarf heimleiðis þegar að loknum fundi. ♦ ♦ -* Mr. Gísli Einarsson frá River- ton hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. Mr. Sigurður Sigurðsson frá Lundar, kom til borgarinnar á þriðjudaginn. ♦ ♦ ♦ Lestrarfélagið á Gimli held- ur sína árlegu samkomu til arðs fyrir bókasafn sitt í samkomu- húsi bæjarins á föstudags- kvöldið; vandað hefir verið hið bezta til skemtiskrár. Meðal ann ars flytur Wolter J. Lindal dóm- ari þar ræðu. Frá Islendingum sunnan landamœra Dr. Keith S. Grimson í Dur- ham, North Carolina, vinnur sér vaxandi álit sérfróðra manna fyrir rannsóknir sínar í lækna- vísindum. Hann er sérfræðing- ur í þeirri grein lækningatauga- sjúkdóma, er “sympatþectomy” nefnist, og hefir gert sjálfstæðar rannsóknir á því sviði. Hefir hann bæði flutt erindi um þau efni á læknafundum í Banda- ríkjunum og ritað um þau í ýms tímarit, er fjalla um læknis fræði. ítarleg yíirlitsritgerð um nýjustu rannsóknir í sérgrein hans og skyldum fræðum birtist nylega í tímaritinu “lnternat- iónal Abstract öf Surgery”. Telja læknisfróðir menn hana bæði vel samda og um allt hina athyglisverðustu. Dr. Grimson er sonur þeirra Guðmundar Grímson dómara og frúar hans í Rugby, North Dakota. Eins og kunnugt er af frá- sögnum íslenzku vikublaðanna, eru margir íslendingar nú við nám víðsvegar í Bandaríkjunum. Meðal annars eru tveir íslenzkir læknar, þeir Dr. Kristján Jó- hannesson og Dr. Friðrik Kristó- fersson, við sérfræðinám á læknaskólanum í Duke Uni- versity í Durham, North Carol- ina. Eru þeir styrkþégar Rocke- feller-stofnunarinnar (Rocke- feller Fellows). Fyrir stuttu síðan birtist viðtal við þá í blað- inu “The Durham Herald-Sun”. Hafði það inni að halda ýmsan fróðleik um ísland, gagnlegan amerískum lesendum. Þá véku þeir læknarnir einnig að sam- búð íslendinga og ameríska setuliðsins og að áhrifum her- námsins á íslenzkt þjóðlíf og menningu. Nýlega er komin á prent önn- ur útgáfa af kennslubók, er nefnist “Our State, North Dakota”, eftir C. W. Leifur, skólastjóra í Bismarck, N. Dak., en hann er af íslenzkum ættum, fæddur og uppalinn í íslenzku- bygðinni við Mountain. Bók þessi, sem er í sex köflum, fjall- ar um landafræði og sögu N. Dakota ríkis, ríkisstjórnina, land stjórn í Bandaríkjunum, um notkun mannafla og landgæða og um borgaralegar skyldur. Er bók þessi notuð við kennslu í ýmsum gagnfræðaskólum í rík- inu og vel af henni látið. Richard Beck. Mannfagnaður Síðastliðið laugardagskvöld, safnaðist saman all álitlegur hóp ur manna og kvenna á hinu vin- gjarnlega heimili þeirra Jónas- son systkfna að 693 Banning St. hér í borginni; tilefni þessa mannfagnaðar var það, að gleðj- ast með þeim Birni Methúsalems syni og frú Bergljótu Methú- salemson, er þá áttu aldarfjórð- ungs hjónabandsafmæli. En þó þarna væri saman komið margt fólk, var það- ekki nema nokkurt brot úr fjölmennum vinahópi þessara mætu og velmetnu hjóna; ekki verður ætt þeirra rakin hér, en ráða má af kvæði Dr. Björnssonar, sem birt er í blaðinu þessa viku, hvar stofn þeirra liggi heima á Fróni. Húsráðandi, Mr. Jónas T. Jónasson, hafði veizlustjórn með höndum og tókst hið prýðileg- asta til; skýrði hann með vel völdum orðum tilgang samsætis- ins, jafnframt því sem hann flutti heiðursgestunum fvrir sína eigin hönd, systkina og náinna vina, hlýjar árnaðaróskir. Dr. S. E. Björnson Mirá Árborg, flutti ráeðu, en tengdasystir hans, Mrs. Árni G. Eggertson, las kvæði hans með listrænni nákvæmni. Einar P. Jónsson, mælti nokkur orð til silfurbrúðhjónanna, og las þeim tvö erindi. Einnig tóku til máls bróðir silfurbrúðgum- ans, Mr. Halldór Methusalems- Swan, frú Lára Klémens frá Ashern og Konnie Johannesson flugskólastjóri. Gjafir nokkurar til minja um atburðinn voru af- hentar silfurbrúðhjónunum. og þökkuðu þau hvort um sig sig gjafirnar, ásarpt þeim hlýhug í þeirra garð, er samsætið í heild sinni bæri vott um. í samsæti þessu, sem var í alla staði hið virðulegasta, var mikið um söng; __ enda er silfurbrúðguminn annálaður raddmaður; við hljóðfærið voru til skiptis þær Fríða Jóhannes- LIÐSÖFNUNARFULLTRÚI FYRIR C.W.A.C. í ÁRBORG. Mrs. E. L. Johnson. son og Olive Finnbogason. Rík- mannlegar veitingar voru fram- bornar, og má með sanni segja að í veizlu þessari skorti hvorki gleði né góðan fagnað. í tilefni af silfurbrúðkaupi Björns og Bergljótar Miehúsalemsson. Að vakna á hverju vori ^ með vaxandi þroskahug, að auðgast með hverju ári * að ástum og hetjudug, er uppfylling þeirra óska, sem eindrægnin hóf á flug. Að sigla mót nýju sumri í sólskini eins og þið, og þroskast í auðlegð andans við ástir og hjartafrið, er kjarninn í íslands eðli og elskandans stefnumið. Einar P. Jónsson. Björn og Bergljót Methusalemsson 25 ára giítingarafmæli. Forðum var Ashern eitt flóatetur er fjötraður var af eigin gróðri, starandi fram úr örófi alda augum blindum í veröld hljóðri. Hversu lengi hann lá í böndum x er leyndardómur hins mikla anda, er yfir djúpunum dulinn svífur með dásemd lífsins til beggja handa. En fjöturinn leystist, sem ís í eldi árdagssólar, á nýju vori; við átök manna, er afli beittu orkufegnir, og hvatir í spori. Þá vorU löndin yngd og urin, og ástin fékk mál, í blómahjali. En þó þau vildi ekki við það kannast Þá vantaði ár, óg fjöll og dali. í byrjun var því úr vöndu að ráða með valningu lands og húsasmíðin; því hvorki í baksýn bar við himin Burstafellið né Reykjahlíðin. Það vildi þá til á vorri ungu, í vexti og leysingu nýrrar tíðar, að söngvarann, Bidda frá Burstarfelli Begga heyrði til Reykjahlíðar. Þá Ashern breyttist á einni stundu: umhverfið birti og gjörvöll tíðin, í hugans baksýn er báru við himin Burstarfellið og Reykjahlíðin. Og pokkru síðar þið heyrðuð hljóma helgisöngva á feðratungu, frá brimsins gný, og til hljóðra heiða. er himininn sjálfur og jörðin sungu. En áður þið skilduð að ívaf dagsins í uppistöðu vors lands og þjóðar er traustast og mýkst úr erfðaefni Öræfajökuls og Hekluglóðar! Til hamingju á ykkar heiðúrsdegi heilsi’ ykkur ár og fjöll og dalir: frá brimsins gný og til hljóðra heiða, hljómi nú Ashern gleðisalir! S. E. Björnsson, Árborg, Man. \

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.