Lögberg - 15.04.1943, Síða 3
I
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. APRJL 1943.
innar; biblíuna greindi jafnt á
við gamla og nýja heimskerfið.
Annað bréf ritaði hann Krist-
inu, stórhertogafrúnni, líks efnis
og studdi þar mál sitt með því
að vitna til kirkjufeðranna.
En þá var það, að svartmunk-
ur einn, Lorini að nafni, lagði
bréf Galilei til Castelli ábóta
fyrir rannsóknarréttinn; en rétt-
urinn vísaði því máli frá sér
og kvað Galilei skyldi óhultur
vera fyrir allri áreitni, ef hann
héldi sér eingöngu við kerfi sitt
og leiddi rök að því, en léti
biblíuna eiga sig; var þetta sann
nefnt heilræði í raun og veru.
En andstæðingar Galileis létu
ekki af undirferli sinni.. Galilei
fer til Rómaborgar árið éftir og
®tla sumir, að honum hafi verið
stefnt þangað; aðrir halda, að
hann hafi ætlað að fá skýlausa
staðfestingu páfa og höfuð
klerka hans á skoðun sinni. En
víst er það, að málið kom aftur
fyrir réttinn 1916. Var þá Gali-
lei kærður fyrir það, að hann
kenndi, að sólin væri miðstöð
sólkerfisins og skildi svo biblí-
una í samræmi við þá staðhæf-
ingu sína. Dómendur kváðu
þessa hvumleiðu kenningu ský-
lausa villukenningu, því að hún
væri “berlega gagnstæð heilög-
um ritningum.”
Nú voru áðurnefnd bréf Gali-
leis, rit Kópernikusar og ágrip
Keplers af því, sett á villurit-
skrá þaþólsku kirkjunnar og for-
boðuð; hélzt það bann í kaþólsku
kirkjunni allt fram á daga
Benedikts páfa XIV. Þá leyfði
páfi, að fylgt væri nýja kerfinu,
ef ekki væri talið, að það væri
annað en getgáta.
Galilei var nú harðbannað að
kenna framar snúning jarðar og
kyrstöðu sólar; en leyft var hon-
um að haga svo orðum sínum,
að kerfi Kópernikusar væri “rök
studd getgáta”; sömuleiðis mæt.ti
hann nota hana kappsamlega
svo sem leiðarþráð að nýrri
vísindalegri niðurstöðu í þessu
efni, en stilla þó röksemdum
sínum sem mest í hóf; hann
mætti í hæsta lagi halda henni
fram sem vísindalegum líkum;
hitt mátti hann hvergi segja,
að hún væri fullsönnuð og ó-
hrekjandi.
Galilei var nú leyft að fara á
fund Páls páfa III. Og þrátt
fyrir allt hét páfi honum fullri
vernd sinni. Að því búnu hvarf
Galilei aftur til Florentz.
Þessu næst er frá því að segja
að árið 1618 sáust þrjár hala-
stjörnur á lofti í einu. Galilei
var þá veikur og gat eigi at-
hugað þær sjálfur. En lærisvein
ADVANTAGES
THAT WILL A
TO YOU
TEACHERS POSSESS
UNIVERSITY STANDING
“Success” students receive better instruction because of our large staff of
expert teachers, most of whom are University graduates.
GRADE XI (Supplements Allowed)
MINIMUM FOR DAY SCHOOL
When you enroll at the “Success,” you will associate with young men and
women of ability and scholarship. To our Day Classes we admit only
students of Grade XI (supplements allowed), Grade XII, or University
stancling.
AIR-CONDITIONED,
AIR-COOLED ROOMS
All our classrooms are air conditioned and air cooled. Our $13,590.00
General Electric air-conditioning system provides an abundance of pure,
filtered air, which is completely changed every 10 minutes. Temperature,
summer and winter, is thermostatically controlled, providing year-around
comfort. The “Success” is the only air-conditioned college in Winnipeg.
INDEPENDENT
EXAMINATIONS
“Success” students have the exclusive advantage of independent gradua-
tion examinations, provided by the Business Educators’ Association of
Canada. Our graduation examination papers are set and marked by an
independent Examination Board appointed by the Association.
CORRECT POSTURE
UPHOLSTERED CHARIS
A chrome-plated, upholstered chair is provided for each student. The
College is also equipped with modern office machinery and individual
desks.
Send for a free copy of our 40-page illustrated Prospectus. Better still,
call at our office for an interview; you will enjoy looking over our
beautifully appointed, air-conditioned premises.
ENROLL NOW
Day and Evening Classes
OPEN ALL SUMMER
PORTAGE AVE at EDMONTON STREET
WINNIPEG
PHONE 25 843
sinn, Giuducci, lét hann flytja
þá skoðun sína í fyrirlestri, að
halastjörnumar væru vígahnett-
ir; var sá fyrrilestur prentaður
árið eftir. Kristmunkur einn,
Grassi að nafni, reif þennan
fyrirlestur allan niður og komst
að þeirri niðurstöðu, er síðan
reyndist réttari, að halastjörn-
urnar væru reglulegir himin-
hnettir og hvörfuðu um sól eftir
sporbaugum. Þeim ritlingi svar-
aði Galilei óðara með ritlingi,
sem nefndist: Málmreynir og
varði skbðun sína, og kvað það
vera snjallorðasta ritið, sem eft-
ir hann liggur. En þar fór hann
þó halloka, af því að hann
byggði þar ekki á eigin rann-
sókn, eins og jafnan endra nær.
Þegar vinur Galileis, Barber-
ini kardináli, settist að páfastóli
undir nafninu Urban VIII., þá
fór Galilei til Rómaborgar vor-
ið 1624, til að árna páfa allra
heilla. Var honum þá sýndur
allur sómi, sem hugsast gat þá
tvo mánuði, sem hann dvaldi
þar; leysti páfi hann og syni
hans út með ríflegum féfjöf-
um.
Nú fór Galilei að semja rit
með þeim hætti, að þar gætu
komið fram öll rök með og móti
kenningu Kópernikusar; var sú
kenning honum löngum hug-
kær. Bókin var í samtalsformi;
mæla þar tveir menn með kenn-
ingunni, en einn á móti og nefn-
ist sá Simplicus. I formálanum
er því andmælt, auðvitað í
skopi, að úrskurður rannsóknar-
réttarins hafi verið gerður ^f
fávizku eða gremju; segir þar
þvert á móti, að dómendur hafi
hlýtt á með gaumgæfni, er hann
skýrði frá hinum vísindalegu
rökum, sem nýja kenningin bygg
ist á, og síðast er því haldið
fram, að ástæðurnar fyrir úr-
skurði réttarins hafi eingöngu
verið trúarlegs eðlis.
Bókin var prentuð í Florentz
og nefndist: “Samtal um aðal-
heimskerfin þeirra Ptólomæusar
og Kópernikusar”.
Ekki leið á löngu áður en
þessi bóik Galileis væri talin
brot á fyrrimælum réttarins; var
Galilei þá stefnt til Róm; kom
hann þangað í febrúar 1633 og
var honum fengin vist hjá sendi
herra hertogans í Toskana.
Nú fer tvennum sögunum
fram. En allt virðist benda á,
að sú muni réttari vera, sem
byggist á réttarskjölunum.
Dómurinn var kveðinn upp
22. júní 1633. I dómsástæðunun)
segir, að Galilei hafi kennt for-
boðaða kenningu, rofið skuldbin
ingu sína og óhlýðnast skipun
réttarins, fengið staðfestingu
páfa á bók sinni rneð ólögleg-
um hætti; hann sé ,mjög grun-
aður um villu; þess vegna krefst
rétturinn þess, að hann afneiti
þessari villu og öllum öðrum
villudómi með eiði; rétturinn
forboði “Samtalsbók” hans, en
dæmi hann til gæzluvarðhalds,
svo lengi sem réttinum þóknast”.
Að svo mæltu kraup Galilei á
kné og sór fneð hönd á helgri
bók, þ. e. biblíunni, að aldrei
skyldi hann halda fram hreyf-
ingu jarðar né kyrrstöðu sólar,
lýsti yfir andstyggð sinni á
hinni forboðuðu skoðun, og hét
að þola allar þær skriftir, sem
honum kynnu að verða dæmdar
til refsingar. Eftir 4 daga dvöl í
sölurn réttarins hvarf svo Galilei
aftur til bústaðar síns hjá sendi-
herranum.’
Af réttarskjölunum má sjá, að
ekki stóð lertgi á yfirhejrrslunni;
þess er líka getið, að vel hafi
verið með hann farið, því að
hann hafi brátt látið í hlé síga
til að forða sér við báli og
brennu.
Hin sagan segir, að yfirhevrsl-
an hafi bæði verið löng og
ströng og illa hafi verið með
hann farið, rétturinn haft píslar-
tæki við hendina til að ógna
honum, ef til kæmi. Þessi saga
er ósennileg, þar sem Galilei
átti sendiherrann að verndara,
var í vinfengi við páfann sjálf-
an, en páfinn hafði réttinn í
j
hendi sér; auk þess var Galilei
í miklu gengi hjá höfuðklerk-
um páfa.
Hin síðari sögusögn er ef til
vill sprottin af því, að margir
hafa síðar fundið Galilei það
til ámælis, að hann þorði eigi
að halda sannfæringu sinni, þar
sem hann hafði þó sjálfur gert
uppgötvanir, sem sönnuðu hana
ótvíræðlega; hefir þeim þótt
hann hafa með því svikið sann-
leikann, hne'kkt gildi nýju kenn-
ingarinnar í augum almennings
og sett smánarblett á sjálfan
sig. Honum til réttlætingar hef-
ir svo þessi saga smám saman
til orðið. Ofríki og grimmd rann
sóknarréttarins, sem öllum var
kunn, þótti þá vera bezta sára-
bótin fyrir hann. Löngu seinna
var því svo bætt við, að þegar
rétturinn var búinn að pína
hann til að neita kenningunni
nýju með eiði, þá hafi hann
stappað fætinum í gólfið og'
sagt: “Hún snýst samt”.
Kenning Kópernikusar átti við
ramman reip að draga. Frum-
spekingarnir eða skólaguðfræð-
ingarnir risu öndverðir gegn
henni, dagleg reynsla almenn-
ings mótmælti henni, því að
enginn vissi þá, að gufuhvolf
jarðar fylgdi henni á snúningi
hennar um sjálfa sig, náttúru-
spekingarnir Hbfnuðct henni, eins
og Descartes hinn frakkneski,
eða þeir hæddust að henni, eins
og Bacon hin enski; kvað hann
það vera hugmynd eina, órök-
studda af rannsóknum. Ofan á
allt þetta bættist svo, að fylgis-
menn hennar þorðu ekki sjálfir
að kannast við hana opinber-
lega. Galilei gekk þar feti fremst
sakir rannsókna sinna, en brast
(Framh. á bls. 7)
Business and Professionaí Cards
Blóm slundvíslega afgreidd THE pnQCDV Meyers
nUocnT ltd. Studios Ltd.
Stofnað 1905 Largett Photographic Organization in Can.
427 Portage Ave. 124 Notre Dame Ph. 96 647
Winnipeg. (Opp. St. Chailes Hotel)
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. CANADIAN FISH
S. M. Backman, Seo. Treas. PRODUCERS, LTD.
Keystone Fisheries ./. H. Page, Managlng Dlrectoi
Limited Wholesale Distrihutors of
325 Main St. Fresh and Frozen Fish.
Wholrsale Distrihutors of FRESH AND FROZEN FISH 311 Chambers St. Office Phone 86 651.
Kes Phone 73 017.
Office Phone Res. Phone
H. A. BERGMAN, K.C. 87 293 72 409
íslenzkur lögfrœðingur
• Dr. L. A. Sigurdson
Skrifstofa: Room 811 McAxthur 109 MEDICAL ARTS BLDG.
Building, Portage Ave.
P.O. Box 165« Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
Phones 95 052 og 39 043 and by appointment
EYOLFSON’S DRUG Thorvaldson &
PARK RIVER, N.D. Eggertson
tslenzkur lyfsali DögfræOingar
Fólk getur pantað meðul^ og
annað með pósti. 300 NANTON BLDG.
Fljót afgreiðsla. Talsími 97 024
WINNIPEG CLINIC Vaughan & St. Mary’s DR. A. V. JOHNSON
Dentist
Dr. P. H. T. Thorlakson
Phone 22 866 •
• 506 SOMERSET BLDG. Télephone 88 12 4
Res. 114 GRENFELL BLVD.
Phone 62 200 Home Telephone 202 398
•
J. J. SWANSON & CO. ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST. WINNIPEG
LIMITED
30 8 AVENUE BLDG., WPG. pœgilegur og rólegur bustaOur
• i miðbiki borgarinnar
Fasteignasalar. Leigrja hús. Út- Herbergi $2.00 og Þar yftr; með
vega peningalán og eldsábyrgð. baðklefa $3.00 og þar yfir
bifreiðaábyrgð, o. s. frv. Ágætar máltíðir 4 0c—60c
Phone 26 821 Free Parking for Guests
\
Peningar til útláns DRS. H. R. and H. W.
Sölusamningar keyptir. TWEED
Bfljarðir til sölu. Tannlæknar
INTERNATIONAL LOAN • 406 TORONTO GEN. TRCSTS
COMPANY BUILDING
304 TRUST & LOAN BLDG. Cor. Portage Ave. og Smith St.
Winnipeg PHONE 26 545 WINNIPEO
DR. B. J. BRANDSON A. S. BARDAL
216-220 Medicai Arts Bldg. 848 SHERBROOK ST.
Cor. Graham og Kennedy Sts. Selur líkkistur og annast um út-
Phone 21 83 4—Office tímar 3-4.30 farir. Allur útbúnaður sá beztl.
• Ennfremur selur hann allskonar
Heimili: 214 WAVERLEY ST. minnisvárða og legsteina.
Phone 403 288 Skrifstofu talsími 86 607
Winnipeg, Manitoba Heimills talsími 501 562
Legsteinar DR. ROBERT BLACK
sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari Sérfræðingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum
416 Medical Arts Bldg.
SkrifiO eftir verOskrá Cor. Graham & Kennedy
GILLIS QUARRIES, LTD. Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 ttl 5
14 00 SPRUCE ST. Skrifstofusími 22 2 51
Winnipeg, Man. Heimilissfmi 401 991
DR. A. BLONDAL
Physidan & Surgeon
602 MEDICAL, ARTS BLDO.
Slmi 22 296
Heimili: 108 Chataway
Sfmi 61 023
Dr. S. J. Johannesson
* 215 RTJBY STREET
(Beint suður af Banning)
Talsími 30 877
•
ViBtalstími 3—5 «. h.