Lögberg - 26.08.1943, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN ÍB. ÁGÚST 1943.
3
Ný jörð og nýr himinn
Efíir Wendell Willkie.
Lauslega þýíi úr "One World".
Jónbjörn Gíslason.
Niðurl.
í lok síðasta stríðs voru engar
flugvélaferðir yfir Atlantshafið;
nú er það haf aðeins crmjó
ræma, er flogið er yfir í reglu-
bundnum áætlunum. Kyrrahaf-
ið er ofurlítið breiðara sund,
en útilokar þó ekki þann virki-
leika að bæði Norðurálfan og
Asía eru rétt við okkar eigin
bæjardyr.
Ameríka hefir um þrjá kosti
að velja, nú eftir stríðið, í fyrsta
lagi: þröngan innilokunarstakk
með takmörkuðu einstaklings
frjálsræði; í öðru lagi: land-
vinningastefnuna, er kostar
frelsisskerðingu annara þjóða; í
þriðja lagi: þátttöku í sköpirn
veraldar er ákveður tækiíæra-
jöfnuð fyrir alla kynflokka og
allar þjóðir. Eg er sahnfærður
um að Ameríska þjóðin velur
síðasta-' kostinn með yfirgnæf-
andi meirihluta, en til þess.að
það val beri fullann árangur,
verðum við ekki einungis að
vinna stríðið, heldur friðinn með
og hefja það starf nú þegar.
Að mínu áliti eru þrír hlutir
nauðsynlegir eins og nú er hátt-
að málum: friður verður að
grundvallast á alþjóðar mæli-
kvarða; heimurinn verður að
vera frjáls, hagfræðilega og
stjórnmálalega svo einstaklingar
og þjóðir geti lifað í friði og
einingu; Ameríka verður að
eiga virka og skapandi hlutdeild
í viðreisnarstarfinu og friðnum.
Þegar eg segi að sannur frið-
ur verði að grundvallast fyrir
allar þjóðir, þá á eg við að
hann verði bókstaflega að um-
faðma og innibinda alla veröld-
ina. Meginlönd og úthöf eru
aðeins vissir partar af heildinni,
eins og það kom mér fyrir sjón-
ir. England og Ameríka eru
partar; svo eru einnig Rússlar.d,
Kína, Egyptaland, Sýrland, Tyrk
land og íran. Friður getur ekki
haldist varanlegur í nemum
þessara parta, nema undirstaðan
sé lögð fyrir alla heildina í einu.
Slíkt verður ekki framkvæmt
með tilkynningum einum sam-
an, eins og Atlantshafs sáttmál-
anum, vegna þess að hér kem-
ur mest til greina samþykki
þjóðanna sjálfra. Hafi samvinnu
mistök eftir síðasta stríð kennt
okkur nokkuð, þá ber að hafa
hugfast að jafnvel þó leiðtogarn-
ir sín á milli, komi sér saman
um vissa höfuðdrætti og sér-
stök slagorð, meðan sxríðið
geysar, þá þýða þeir sínar eigin
yfirlýsinga eftir eigin höfði þeg-
ar kemur til lokasamninga. Þess
vegna verða allar sambandsþjóð
irnar að samþykkja höfuðdrætti
fyrir samstarfstilhögun á kom-
andi tíma. Fagrar hugsjóna-
ríkar og vonarfullar yfirlýsingar,
eins og þær sem eru í Atlants-
hafssáttmálanum, munu aðems
gjöra gys að okkur, eins og
hinar fjórtán greinar Wilsons
forseta, fullnægjugjörð slíkra
yfirlýsinga verður ekki afgreidd
af neinum þeim er rétt í svip-
inn hafa völd, heldur af þjóð-
unum sjálfum er hlut eiga að
máli.
Þegar eg fullyrði að hófuð-
skilyrði fyrir friði er frelsið
sjálft, þá er eg aðeins að gefa
skýrslu um þá voldugu rás við-
burðanna, sem enginn lifandi
maður — ekki einu sinni Hitler
— fær stöðvað. Menn og konur
um allann heim eru á kröfu-
göngu, efnislega, andlega og
hugsjónalega. Eftir margra alda
sinnuleysi og svefn, eru hundruð
milljóna manna og kvenna í
Austur Evrópu og Asíu vöknuð
og byrjuð að hugsa. Gamall
frelsisótti hefir mist ofurafl sitt.
iÞetta fólk er ófúst að vera leng-
ur austurlenzkir þrælar fyrir
' vesturlanda auðsöfnun. Augu
þess eru að opnast fyrir því að
'velferð mannanna í heiminum,
er komin undir trausti þeirra
hver til annars. Það er fastráðið
í — eins og við verðum líka
að vera — að ekkert arðrán eigi
sér framar stað, hvorki í þess
eigin félagslífi eða í sambandi
þjóðanna. Skrautlega húsið uppi
á hæðinni, með moldarkofunum
alt umhverfis, hefir tapað sínum
töfrablandna ógurleik.
Vesturlöndin og þeirra ímynd-
| uðu yfirburðir og æðstu völd,
eru nú undir rannsókn. Asia
j hefir fundist fátt um alt okkar
grobb og öll okkar stóryrði.
Rússland og Kína og öðrum
I Austurlöndum, er nú fuilljós
jmáttur sinn og megin, þau vita
^vel að margar af fyrirætlunum
framtíðarinnar liggja í þeirra
.skauti til úrlausnar; íbúarnir
hafa ákveðið að vera framvegis
undanþegnir framandi yfirráð-
um og veita með því andleg-
um og efnislegum gróðri eðli-
leg og óþvinguð vaxtar skil-
yrði.
Viðskiptafrelsi er engu síður
nauðsynlegt en hið pólitíska
frelsi. Menn verða, ekki einungis
að hafa kauprétt á annara verzl-
unarvöru, heldur verður þeím
einnig að vera mögulegt að selja
sína eigin vöru.
Enginn friður er mögulegur,
engin framþróun hugsanleg og
engin viðskiptatrygging fram-
kvæmanleg, án þess við finnum
aðferð til að brjóta til granna
þá óþörfu tollgarða er hindra
vöruflutning frá þjóð til þjóðar.
En það skal játað, að fyrirvara
og samningslaust afnám tolia,
mundi reynast háskalegt. Eg veit
að margir Ameríkumenn, hverra
lífsskilyrði eru betri en um-
heimsins, eru alvarlega hræddir
við slíkar ráðagerðir, þeir halda
að slík ráðabreytni muni koma
í bága við þeirra eigin daglega
lifnaðarhætti; . en einmitt hið
gagnstæða er sannleikurinn.
Mörg drög liggja að hinni
undraverðu framþróun í Banda-
ríkjunum, þar á meðal hin ótæm
andi náttúruauðlegð, frjálslyndi
hinna þjóðfélagslegu lagaboða
og skapgerð íbúanna sjálfra, alt
þetta hefir þar lagt fram sinn
rífleiga skehf. En að mínum
dómi er stærsta atriðið sú stað-
reynd, að fyrir tilhögun hamingj
unnar var hér í Ameríku skap-
að hið víðáttumest? flatarmál í
veröldinni, sem inniheldur eng-
ar hindranir í viðskiftum eða
hugsjónum.
Þeim sem kunna að vera ó-
ráðnir og með hálfum nuga,
CHINESE WAR RELIEF
FUND
The national objective for this Fund is
$1,000,000.00. Manitoba’s share is $60,000.00.
Will YOU DO YOUR SHARE?
v I
This is the first call we have had for our
gallant Chinese ally, who has been fighting our
wars for 12 years.
NEVER A MORE DESERVING APPEAL
This space contributed by THF. DREWRYS LIMITED
MD 103.
vildi eg meiga benda á að jafn-
vel núgildandi lifnaðarhættir
Ameríkubúa geta ekki haldist
óbreyttir í framtíðinni, þegar
tekið er tillit til þess skulda-
bákns sem þjóðin verður að bera
að stríðslokum, nema því að-
eins vöruskipti verði greiðari en
verið hefir, milli hinna ýmsu
þjóða. Heimurinn er sannarlega
minni ummáls nú en fyrr, vegna
framfara í iðnaði og flutningum.
Það er einnnig ófrávíkjanlegur
sannleikur, að bætt lífskjör ein-
hvers manns einhverstaðar í
heiminum, leiðir af sér ofurlítið
bætt kjör allra manna alstaðar
í heiminum.
Að síðustu: Þegar eg fuilyrði
að umheimurinn heimti fulia
þátttöku Ameríku, er eg aðeins
að bera fram heimboð er mer
var falið á hendur af Austur-
landabúum. Þeir óska að Banda-
ríkin og aðrar bandaþjóðir verði
samfélagar þeirra í þessu mikla
komandi æfintýri. Þeir viija
sameinast okkur við sköpunar-
verk sambands frjálsra þjóða,
sem eru lausar við hagsmuna-
lega rangsleitni að vestan og
pólitíska undirhyggju að austan.
Sem væntanlega félaga í þessu
nýja volduga sambandi, kjósa
þeir okkur hvorki óráðna eða
hrædda; þeir þarfnast félaga
sem ekki hikar við að segja til
syndanna, hverjum sem er, og
hvar sem er í veröldinni.
Þeir vita að við erum reiðu-
búnir að leggja fram til þessa
stríðs, alla okkar krafta, og þeir
gjöra ráð fyrir að við nú þegar
— en ekki eftir stríðið — notum
alt okkar mikla afl til að efla
frelsi og réttlæti. Aðrar þjóðir,
utan ófriðarins bíða, ekki
miður óþolinmóðar eftir að við
grípum hið stærsta og einstak-
asta tækifæri í veraldarsögunui,
tækifærið til að skapa nýtt sam-
félag, þar sem menn og konur
hvar sem er um víða veröld,
geta lifað og þroskast í sjálf-
stæði og sönnu frelsi.
ENDIR.
Spurt—Hvers vegna er svo lítiS til
í búöum af “Chocolate bars”?
Svar—ÁstæSan er sú, aS hér um
bil alt, sem fæst, er keypt undir eins
til þess aS senda til hermannanna.
Spurt—Mér er sagt aS nýju skömt-
unarbækurnar gangi í gildi 2. septem-
ber. Á maSur þá aS skila af sér eSa
eySileggja gömlu bókina?
Svar—'Nei. ÞaS á aS halda henni
og geyma hana eins vel og áSur, vegna
þess aS kjötseSlarnir í henni verSa
notaSir þangaS til seint i nóvember
mánuSi.
Spurt—F.r sala á “rubber” regnkáp
um takmörkuS ?
Svar—Já. “Rubber” regnkápur má
ekki selja nema til þeirra, sem vinna
sérstaka vinnu og þurfa þeirra þvi
nauSsynlega meS. En þaS er nóg til
af reghkápum af öSrum tegundum, sem
•öllum er leyft aS kaupa.
Spurt—Eru ljósmyndir háSar há-
tnarks reglugerSunum ?
.Svar—Já. Ljósmyndarar verSa aS
halda sér viS þaS verS, er sett var á
hámarkstimabilinu.
Spurt—Er ekki hámarksverS á nýj-
um kartöflum ,3j/j cent pundiS ? ViS
erum í sumarbústaS og verSum vana-
lega aS borga 5 cent pundiS.
Svar—HámarksverS í Manitoba er
3JJ cent eSa 10 pund fyrir 33 cent.
Ef bústaSur ykkar er i Manitoba þá
ættuS þiS ekki aS horga liærra verS en
þetta.
Spurningum á islenzku svaraS á ís-
lenzku af Mrs. Albert Wathne, 700
Banning St., Winnipeg.
“Finst yður hún Fjóla ekki
fjaðurlétt?”
“Er það nokkur furða — önn-
ur eins gæs”.
“Hvers vegna ertu hér, vesl-
ings maður?” spyr ung stúlka,
sem er í heimsóknarferð í fanga
húsið, einn fanganna.
“Eg hefi verið svikinn af 13,
ungfrú”, svaraði maðurinn.
‘“Einmitt það. Hverjir éru
það?”
“Það eru 12 kviðdómsmenn
og einn dómari.”
“Konan mín hefir það hræði-
legasta minni, sem eg hefi
nokkurn tíma heyrt getið um”.
“Nú gleymir hún öllu?”
“Nei, hún man alla skapaða
hluti”.
Dómarinn: Hvers vegna vor-
uð þér að berja konuna yðar?
•
Kærði: Eg var með því að
sýna henni, að það væri ekki
rétt, sem hún sagði, að hún
væri illa gift.
Þetta getur kallast áþreifan-
leg sönnun.
Business and Professional Cards
Wartime Prices and
Trade Board
AUKINN SKAMTUR
Þegar nýju skömtuirarbækurnar
ganga í gildi annan september, veröur
kaffi og te skamturinn aukinn um
einn þriöja, samkvæmt tilkynningu frá
W.P.T.B.
Gildi seölanna er óbreytt. Hver
seöill er fyrir hálft pund af kaffi eöa
tvær únzur af te eins og áður. Skamt-
urinn er aukinn þannig aö hverjir tveir
seölar sem hingað til hafa gengiö í
gildi fjórða hvern fimtudag, veröa nú
látnir ganga í gildi þriffja hvern
fimtudag.
Þessa viðbót viö skamtinn eigum
viö því að þakka að flutnings erfið-
leikar hafa minkað dálítið. Þess er
vænst að eftir því sem erfiðleikar
minka verði skamturinn á þessum
vörutegundum aukinn.
Skömtunardeild W.P.T.B. hefir á-
kveðið að skamta “Jams”, “Jellies”,
“marmalade” og hunang. Sala á
þessum vörutegundum hefir þegar
verið takmörkuð, og ekkert fæst keypt
fyr en nýju skömtunarbækurnar ganga
í gildi 2. september. Það er enn ekki
búið að ákveða hve mikið fáist með
hverjum seðli eða hvaða seðla eigi
að nota.
Eftirfylgandi seðlar falla úr gildi
31. ágúst:
Smjörseðlar 2-21 ?22-23.
Kjötseðlar 8-9-10-11-12.
SPURNINGAR OG SVÖR
Spurt—Hvenær fæst kaffi skamtur-
inn handa börnum ?
Svar—Öll börn, sem verða tólj ára
á, eða fyrir fyrsta september fá te og
íkaffi seðla í nýju bókunum, en ef
þau verða ekki tólf ára fyr en eftir
fyrsta Sept. verða þau að bíða þang-
að til bókum verður útbýtt næsta vor.
Spurt—Er nauðsynlegt að sýna eið-
fest skjöl til þess að fá skömtunar-
bækur hatida ungbörnum?
Svar—Nei. Ef komið er með fæð-
ingar eða skírnar-vottorð, þá er manni
strax fengin bók.
Fréttir frá Seattle
Kæri herra ritstjóri Lögbergs:
Forstöðunefnd Isl. dagsins hér, bið-
ur mig að senda blaðinu nokkur orð
um hátiðahaldið.
Siðan sumarið 1925 hafa tslending-
ar í Seattle staðið fyrir ísl. degi
-fyrsta sunnudag ágústmánaðar, að
Silver Lake, Wash., — um 25 milur
vegar í norður átt frá borginni. Þess-
ar samkomur hafa verið vinsælar og
oft fjölmennar — gestir komið langt
að og úr öllum áttum. Oft hafa ræðu-
mennirnir verið gestir úr fjarlægð.
Nú er alt í þessu sambandi meiri
erfiðleikum bundið en verið hefir:
ferðalög takmörkuð, og fjöldi fólks
vinnur sunnudaga sem aðra daga.
Þrátt fyrir það munu hafa sótt daginn
hátt á fjórða hundrað manns.
Veðrið var stilt og blítt frá morgni
til kvölds. Á meðan ræðuhöldin o. s.
frv. fóru fram var kyrð og ró í skugga
og slkjóli gnæfandi trjánna “í lundin-
um góða,” svo allir gátu notið sín.
— — — þar næst var ‘sports pro-
gram” úti á grænni flötinni, — en
dans í samkomusalnum um kvöldið.
Alt fór vel og skipulega fram.
Stór þáttur í ánægju gestanna er
að hittast og tala saman við kaffi-
borðin. — Nefndin sá öllum fyrir
kaffi ókeypis.
Eins og að undanfórnu, saknaði
maður nokkurra þeirra elstu, sern
aldrei létu sig vanta, en á árinu hurfu
af leið.
Forseti ísl. dagsins, herra Kolbeinn
S. Thordarson, setti mótið um kl. 2
e. h. Allir sungu þjóðsöngvana fögru
“Star Spangled Banner” og “Ó Guð
vors lands.” Síðan flutti forseti stutt
ávarp til gestanna óg las um leið bréf
frá Dr. R. Beck, kveðju Þjóðræknis-
félagsins í tilefni dagsins. — — —
Söngflokkur undir stjórn herra Tana
Björnssonar skemti vel með ísl.
söngvum, en ungfrú Thora Johnson
spilaði undir. Ungfrú Kristín Jóns-
son lék á fiðlu, en Elín systir hennar
spilaði undir.----— Ungfrú Elaine
M. Federick söng einn enskan söng
og tvo íslenzka, en ungfrú Elín Jóns
son spilaði undir. Þessu efnilega,
unga og listræna fólki tóku áheyrend-
ur með miklum fögnuði.
Séra H. S. Sigmar flutti snjalla og
góða ræðu á ensku, um þær íslenzku
erfðir sem vert er að vernda og við-
halda hvar sem þjóðflokkurinn tekur
sér bólfestu.--------íslenzkt erindi
um “trygðabönd” flutti undirrituð.
Eftir þvi sem eg framast veit, þótti
gestunum daguríhn liinn ánægjuleg
asti, og að forstöðunefndin eiga þakk-
læti skilið.
Vinsamlegast,
Jakobína Johnson,
Seattle, Wash.
MEÐÖL sjúkdómum
SkrifitS
NIKKEL’S
SCIENTIFIC LABORATORY
CLARKLPIGH, MAN.
Drummondville CottonCo.
LTD.
55 Arthur St., Winnipeg
Phone 21020
Manufacturers of
BLUENOSE Fish Nets
and Sein Twines
H. L. HANNESSON,
Branch Mgr.
Blóm stundvíslega afgreidd
THE ROSERY lto.
StofnaS 1905
427 Portage Ave.
Winnipeg.
G. P. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
S. M. Backman, Sec. Treas.
Keystone Fisheries
Limited
325 Main St.
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
H. A. BERGMAN, K.C.
íslenzkur löpfrtrðindut
•
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Building, Portage Ave.
' P.O. Box 165«
Phones 95 052 og 39 043
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N.D.
tslenzkur lyfsali
Fólk getur pantað meðul og
annað með pósti.
Fljót afgreiðsla.
Dr. P. H. T. Thorlakson
Phone 22 866
•
WINNIPEG CLINIC
Vaughan & St. Mary's
•
Res. 114 GRENFELL BLVD.
Phone 62 200
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG., WPG.
•
Fasteignasalar. Leigja hOs. Ot,-
vega peningalán og eldsábyrgð
bifreiðaábyrgð, o. s. frv.
Phone 26 821
DR. B. J. BRANDSON
308 Medical Arts Bldg
Cor. Graham og ÍCennedy Sts.
Phone 21 834—Office tímar 3-4.30
Heimili: 214 WAVERLEY ST.
Phone 403 288
Winnipeg, Manitoba
Legsteinar
sem skara framflr
Úrvals blágrýti
og Manitoba marmarí
SkrifiO eftir verOskrd
GILLIS QUARRIES, LTD.
1400 SPRUCE ST.
Winnipeg, Man.
DR. A. BLONDAL
Physician & Surgeon
602 MEDICAL, ARTS BLDG
Simi 22 296
Heimili: 108 Chataway
Slmi 61 023
MANITOBA FISHERIES
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.stj.
Verzla f heildsölu með nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA ST.
Skrifstofusími 25 355
Heimasími 55 463
Uleifets
Siujdlos
/aryeft Pftciogciwhic OiftutiyUimTh Canaaa
•224 Notre Dame-
•r*
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. ' Page. Managing Directot
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fish.
311 Chambers St.
Office Phone 86 651.
Res Phone 73 917.
ANDREWS, ANDREWS
THORVALDSON AND
EGGERTSON
LogfræOingar
209 Bank of NoVa Scotia Bldg.
Portage og Garry St.
Sími 98 291
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMERSET BLDG.
Telephone 88 124
Home Telephone 202 398
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
•
406 TORONTO GEN. TRCSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 26 545 WINNIPEO
O c¥
V
&
Office Phone Res. Phone
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment
A. S. BARDAL
848 SHERBROOK ST.
Selur Likkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legnsteina.
Skrifstofu talsíml 86 607
HeimiLis talsimi 501 562
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœðingur f eyrna, augna, nef
og h&lssjflkdómum
416 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham & Kennedy
Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5
Skrifstofusími 22 261
Heimllisslml 401 991
Dr. S. J. Johannesson
215 RUBY STREET
(Beint suður af Banning)
Talsimi 30 877
Viðtalstími 3—5 e. h.