Lögberg - 26.08.1943, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. ÁGÚST 1943.
7
Á mynd þessari sézt brezk Beaufighters sprengjuvél á lágflugi, þar sem hún veitist
að þýzkri hersnekkju undan ströndum Hollands, og sprengir hana í loft upp.
Æfiminningarorð
Magnús 'Ingimarsson.
Hann er fæddur á Galtarhöfða
í Sanddal, í Mýrasýslu, 3. des.
1870. Foreldrar hans voru Ingi-
mar Marísson og kona hans
Marta Pétursdóttir.
Árs gamall flutti hann með
foreldrum sínum að Hvassár-
hlíð í Norðurárdal. Sex ára
gamall misti hann móður sína,
og ólst svo upp með föður sín-
um til 15 ára aldurs, að hann
fór að vinna fyrir sjálfum sér,
hjá vandalausum — á ýmsum
bæjum í sveitinni, og leið alla-
vega — eins og þeir kannast
við, sem hafa orðið að brjóta sér
veg frá æsku, til þroska og
manndóms, munaðarlitlir og fé-
vana. Magnús kom sér vel við
húsbændur sína, enda varð hann
fyrir því láni nokkrum árum
eftir að hann fór úr föður-garði,
að gerast vinnumaður hjá hin-
um góðu hjónum, Snorra Þor-
steinssyni og konu hans Guð-
rúnu Sigurðardóttir frænku
sinni, á Laxfossi í Stafholts-
tungum.
Var hann hjá þeim hjónum í
6 ár, og leið þar jafnan vel og
agætlega, og mintist þeirra ávalt
raeð þakklæti og virðingu.
Hinn 16. júní árið 1900, gekk
Magnús að eiga ungfrú Vilborgu
Guðmundsdóttir frá Grafarkoti
1 sömu sveit, greinda- og fjöl-
íróða konu, og vel ættaða —
enda reyndist hún Magnúsi jafn-
an hinn ábyggilegi lífsfelagi.
Hinn 19. s. m. sem þau Magnus
og Vilborg giftu sig, fluttu þau
alfarin af landi burt, vestur um
haf til Ganada, og settust litlu
síðar að búi í íslenzku nýlend-
unni í Tantallon, Sask., á bújörð
Ingimars föður Magnúsar, og
bjuggu þar í 10 ár. Þaðan fluttu
þau hjón búferlum vestur í
fýlki til Merid, P. O. Sask.
Þar nam Magnús land, og bjó
á því í 20 ár, við þolanlegan
efnahag — þó stundum væri
þröngt í búi — átti hann þar
sammerkt við landa sína sem
oftast komu félausir að heiman,
og urðu að afla sér og sínum
lifibrauðs með landnámi, á lítt
numdum, og óreyndum lands-
svæðíhn.
Þeim hjónum varð 6 barna
auðið, og verða þau nafngreind
hér eftir aldursröð: Marta, Mrs.
E. Ólson, búsett í Edmonton,
Alberta, á 4 börn. Guðmundur
dó á fyrsta ári. Jóhanna, Mrs.
J. K.t Mc Cullagh, á 1 dreng,
búsett í Saskatoon, Sask. Guð-
fríður, Mrs. F. Kardeff, búsett í
Saskatoon, Sask., á 2. börn. Guð-
rún, Mrs. Young, búsett í Ott-
awa, Ont., barnlaus. Vilmundur,
giftur skoskri konu, bóndi við
Merid, P. O. Sask., á 2. drengi
Míríam, fósturdóttir, 17 ára.
Systkini Magnúsar voru 6:
ívar dó 19 ára á íslandi, nokkru
fyrir s. 1. aldamót. Þorsteinn
bóndi við Merid, P.O. Sask., dá-
inn 1931, um fimtugt. Ágúst
trésmiður í Stykkishólmi, giftur
og á börn. Benjamín búsettur í
Reykjavík, giftur og á 1 son.
Sigríður, Mrs. H. Benediktsson,
búsett í Wynyard, Sask., á 3
börn á lífi. Petrína Sigríður,
Mrs. G. Kjartansson,, ekkja. á 6
börn, búsett við Reykjavíkur-
P.O. Man.
Árið 1931 flutti Magnús ásamt
konu sinni og fósturdóttur til
Wynyard, Sask., og settist þar
að í snotru húsi, sem Jóhanna
dóttir þeirra hjóna keypti handa
foreldrum sínum, og bjó hann
þar til æfiloka. Börn þeirra
Magnúsar og Vilborgar eru
prýðilega myndarleg í sjón,
flest eða öll býsna vel mentuð,
þó sá sem þessar línur ritar,
geti ekki tilgreint mentastig
þeirra, en veit þó að Jóhanna
var barnakennari, og háskóla-
kennari mörg ár, í Ssaka'tchewan
fylki.
Öll munu þessi mannvænlegu
börn hafa verið artarleg við
foreldra sína og fóstursystir, þó
nágranna þeirra hjóna hér í
Wynyard, hafi máski grunað, að
Jóhanna skaraði þar fram úr
systkinum sínum, og draga auð-
vitað álit sitf af því, hvað hún
bjó höfðinglega í haginn fyrir
aldraða foreldra. — Þau nmnu
dæmin færri, að börn skaffi
foreldrum sínum ellihæli til
sjálfsábúðar —.
Slíkri framkomu má ?kki
levna, enda verður hún og er,
talin Jóhönnu, Mrs. McCullagh,
til hins mesta sóma. Magnús og
yilborg kunna líka að meta
þennan drengskap, og voru á-
valt samhend’ að hlvnna að
þessum griðastað sínum, og
gerðu hann vistlegri bæði innan
húss og utan. Þar ræktuðu þau
stórann matjurðagarð, sem
reyndist þeim drjúgt búsílag
þar sem þau voru bæði nýtin
og sparsöm, en þó gestrisin og
greiðug. Magnús vann smásnún-
inga hér og þar í bænum, eftir
því sem kraftar hans leyfðu,
heimili hans til bjargar, og hon-
um sjálfum til ánægju.
Magnús var naumast meðal-
maður á hæð, en hann var þétt
bygður og svaraði sér vel; sömu
leiðis var hann andlits-fríður í
betra-meðallagi, svipurinn var
oftast góðlegur, enda mun
Magnús hafa verið góðmenni í
eðli sínu, og skal það eitt haft
til marks hér, hvað hann reynd-
ist fósturdóttur sinni prýðilega
á allann hátt. Vilborg var manni
sínum samhent þar sem ann-
arsstaðar. Það mun verða talið
þeim hjónum til sóma, hvað þau
reyndust fósturdóttur sinni vel,
og ekki mun Vilborg og börn
hennar gera það endaslept við
Miriam, sem sjá má af því, að
Jóhanna tók móður sína og
fóstursystur til sín, á heimili
sitt í Saskatoon; hafa þær verið
hjá henni síðan að Magnús féll
frá, og liðið ágætléga sem vænta
mátti.
Þar stundar Miriam nám við
háskóla í borginni, en fóstra
og fóstursystur sjá henni borg-
ið til manndóms og menta.
Nú hefði átt við að geta
Magnúsar að nokkru sem rit-
höfundar, þó það verði ekki
öðruvísi gert hér, en rétt á hann
minnst sem slíkann.
Sá sem þessar línur ritar,
hefir ekki þau skilríki við hendi
sem til þess þurfa, að gera
grein fyrir því helsta, sem birt-
ist í vikublöðum og tímaritum
eftir Magnús, á síðastliðnum
20—25 árum.
Það má svo að orði kveða að
Magnús væri jafn fimur á ljóða
gerð sem laust mál. Hann orti
mikið af lausavísum, ferskeytl-
um og hringhendum.
Hann mun hafa kveðið fiesta
hætti ferskeytta.
Fór Magnús þar að dæmi fyr-
irrennara sinna, að kveða um
daglega viðburði og náttúru-
lýsingar, fórst honum það oftast
vel og sæmilega, þó að hann
kvæði í líkum stíl og þeim, sem
var helst í móð, um s. 1. alda-
mót. Stundum kvað Magnús sam
virkar vísur í kvæða-formi, og
fórst það sömuleiðis * vel. Nú
minnist eg þess, að eg sá kvæði
eftir hann í okt.—des. hefti
Eimreiðarinnar 1939. Er það
kvæði 8 erindi ferskeytt og hring
hend. Sem sýnishom af þessu
kvæði set eg hér 1. og 5. erind-
ið, en fyrst vil eg benda á efni
þessa kvæðis: Magnús kveður
þarna hringhendu ágrip af
æskuminningum sínum — vor-
blómin eru að vísu dáin, en
ættjarðabþráin lifir — þó hann
gerði sér ljósa grein fyrir þ\n,
að honum mundi ekki auðnast
að sjá ísland og æskustöðvarn-
ar öðruvísi en 1 endurminning-
unum. Hann gerir grein fyrir
æsku sinni, nefnir “berjalaut og
bröttuhlíð” o. s. frv., Sömuleiðis
víkur hann að þjóðtrúnni, nefn-
ir hörpuslátt huldumanna í
hamrasölum íslands. Ennfremur
lýsir hann gróðurmagni íslenzkr
ar moldar, og dregur hugljúfa
mynd af umhverfi sveitabæj-
anna um túnasláttinn, fólkið
gengur með andlegu-vaxandi
fjöri að vinnu — á meðan:
“Lóan söng í lífsins kjör
ljúfust föng og gleði.”
í niðurlagi þessa kvæðis gerir
Magnús sér grein fyrir því að
hann er orðinn aldraður maður,
sem á heima í fjarlægu — frjó-
sömu landi — þaðan leikur hann
ljóð-endurminningar æsku sinn-
ar og yngir upp ást sína til hinn
ar fjölprúðu móðurjarðar.
Vorblóm dáin eru öll,
en mér háir tregi.
Ætíð þrái’ eg Islands fjöll,
aldrei sjá þó megi.
Törafrítt var tún í sveit,
töðu nýttust gæðin.
Bjart og hlýtt um bygðan reit
brostu grýttu svæðin.
Eg vil fullyrða að Magnús átti
roargar vísur ámóta og þessar,
og sumar betur kveðnar, þó eg
hafi þær ekki hér við hendina,
til að gera grein fyrir þeim. Þá
er aðeins að nefna hið óbundna
mál hans. Eg þarf þó ekki að
lýsa því fyrir Vestur-íslending-
um, þar sem hann skrifaði í
bæði Winnipeg blöðin — Lög-
berg og Heimskringlu, emnig
skrifaði Magnús allmikið í
“Sögu”, fjórðungsrit Þorsteins
Þ. Þorsteinssonar, sem hann gaf
út í Winnipeg, um allmörg ár.
Oft voru ritgerðir Magnúsar
með þjóðsagna- og æfintýrablæ,
og aðlaðandi. Stundum skrifaði
hann um trúarbrögð — spírit-
isma og guðspeki, má af þeim
ritgerðum ráða, að hann hafi
sjálfur verið guðspekingur.
Það'bar við að Magnús skrif-
aði um landsmál þau sem á
dagskrá voru, og fórst honum
það hönduglega — báru rit-
gerðir hans vott um, að hann
væri frjálslyndur í skoðunum
og vildi vel.
Ennfremur ritaði hann tals-
vert úr heimahögum — lýsti
hann þá landshlutum og bygðar
lögum — hvernig bæir voru í
sveit settir — gerði grein fyrir
ábúendum -— eins og þeir komu
honum fyrir sjónir, á uppvaxt-
arárum hans. Það hefi eg fyrir
satt, að Vilborg hafði reynst
Magnúsi góður ráðgjafi við lýs-
ingarnar, því hún er bæði minn-
ug og glögg — hún mun hafa
gefið honum all ábvggilegar
upplýsingar, er hann skrifaði
hina hugljúfu ritgerð um “Norð
urárdalinn”. Eins og áður er að
vikið, þá gera þessar línur sem
nú eru ritaðar, enga fullnaðar-
grein fyrir Magnúsi Ingimars-
syni — eða ritverkum hans, en
eiga þó að vera vottur í þá átt
— að unna honum sannmælis.
í daglegri framkomu við ná-
granna sína var hann fáorður,
hægur og prúður; en þegar
maður fór að kynnasfhonum,
I komst hann að því, að Magnús
var bæði fróður og findinn í
samræðu, svo auðvelt var að
láta sér líða vel í návist hans,
þegar umræðuefnið var að hans
skapi.
Magnús varð bráðkvaddur 30,
nóv. 1942, á heimleið frá járn-
brautarstöðinni í Wynyard.
Hann hafði gengið ofan að stöð-
inni, til að mæta Vilborgu og
Miriam, sem voru væntanlegar,
og komu þá um daginn með
lestinni vestan frá Saskatoon.
Á heimleið talaði hann við þær
hlýlega, eins og hann var vanur
— hafði orð á því, að honum
væri kalt, þó hann væri vel
búinn — “hjartað mundi missa
slag við og við — og kuldinn
væri að innan.” Það er um
hálfrar mílu vegalengd sem þau
þurftu að ganga að húsi sínu —
og á þeirri leið miðri, eða því
sem næst, hneig hann niður,
og er örendur. Kona hans leiddi
hann, og athugaði útlit hans
nákvæmlega, en sagðist ekki
hafa getað séð neinn sársauka
drátt í andliti hans, og naumast
mundi hann hafa gert sér grem
fyrir því, sem að fór. Jarðar-
förin fór fram 3. des., frá ís-
lenzku kirkjunni 1 Wynyard, og
var henni stýrt í grafreit bæjar-
ins, af séra B. T. Sigurðssyni,
sem flutti hugljúfa útfarar-ræþu
að við stöddum vinum og vanda
mönnum. Vinir Magnúsar muuu
minnast hans lengi, og ástvinir
hans sakna — og geyma þógula
þökk í frmatíðinni, um minn-
ingu hans.
J. J. N.
“Matur er mannsins
megin”
Svo segir garnalt spakmæli, sem
aldrei veröur hrakiS; þa8 finna þeir
bezt, sem matarlausir eru 2—3 daga,
aS dugur þeirra dvinar fljótt, og
“hungraður maður hefir enga sarn-
vizku,’’ segja Bretar, og mun eitthvaö
hæft í því, ab hungrabir menn taka
hvaö, sem þeir ná í, sér til saKnings,
og skeyta engum lögum, ef svo stend-
ur á.
Nú segja vitrir menn aö matur og
olía vinni þetta voöastríð, sem nú
geisar í heiminum.
Þaö er fáum ljóst, hvaö mikil
hungursneyö er nú í Noröurálfu hjá
hinum undirokuöu þjóðum, og ekki
sízt meðal hertekinna manna; sem
skifta miljónum, en viö Ameríkumenn
lifum í alsnægtum, sem mest er þvi
að þakka, að við lifum í friði og hlýð-
um heilbrigðum löguni, og njótum
góðs af veglyndi hinnar vitru og vold-
ugu Bandarikja þjóðar, sem allar
þjóðir vill sætta, — og vernda hverja
smáþjóð í þessari heimsálfu, og styð-
ur með ráði og dáð hverja bágstadda
þjóð í heiminum; þeir eru t. a. m.
enn aö fæða hungraða Spánverja, siö-
an uppreisnin var þar. Þeir uröu aö
berjast hart fyrir frelsi sínu, þegar
Bretar fóru að kúga þá, en nú fæöa
þeir og klæða Breta, fullvissir um að
fá þaö aldrei borgað. Nú verða þeir
aleinir að berjast við hina grimmu
Japansmenn, sem svikust að þeim í
fullum trygðum, en bíða nú ósigur
hvar sem þeir mæta Bandaríkj amönn-
um. þó eru Japanir fjórða öflugasta
þjóö heimsins.
Jafnframt styðja Bandaríkjamenn
Rússa og Kínverja í stórum stíl, til að
verjast hinum grimmu Húnum og
Japönum, og sækja nú svo fast aö
Itölum og Húnum, aö ósigur þeirra
er auðsær.
Bandaríkjamenn fara svo viturlega
og kænlega i allar hernaöarsakir, að
engin ráðstöfun þeirra bregst, og •
spara mest af öllu menn sina, sem
sýnir mannúð þeirra; þeir liftryggja
hvern einasta mann, sem best og borga
erfingjum hans lifeyri ef liann fellur;
slíkt hefir engin önnur þjóð í heimi
vorum nokkurntíma áöur gjört. Nú er
þaö eitt af stórmálum Bandaríkja-
manna, aö safna og gevma ínátvæli,
til aö seðja hinar hungruðu þjóðir
strax og búið er að sigra þrælmennin
þvzku og losa þær úr prísundinni.
En Canadamenn gefa Englending-
um þúsund miljónir dollara i mat- 1
væluin árlega, þó þeim sé það um
megn, því á kreppuárunum 1930—36
kvartaði stjórn vor mjög yfir aö vetja
5—6 miljón dölum árLega til styrkt-
ar nauöstöddum mönnum; illvígastir
í því efni voru þeir R. Bennett og
Hepburn.
Þlessi mikla gjöf er þjóðernisleg
fórn. Samt eru afar miklar byrgðir
af hveiti geymdar í Canada, sem ekki
er hægt aö selja á Evrópu markaði
fyrir spellvirkjum þeim, sem svamla
á sjónum, og bíður eftir betri tíö.
Eramleiðsla matvæla hefir aukist í
Ameriku síöan markaður hækkaði á
þeim, og nú er tekinn meiri fiskur úr
sjó og vötnum, en nokkurntima fyr,
því þó eitt fiskivatnið sé tæmt, er
gnægð af öðrum stórum vötnum í
Vestur-Canada, sem full eru af góð-
um fiski.
Árið 1941 var fiskað í Norður-
Ameriku 1,200,000,OOo (ein biljón og
tvö hundruð miljón) pund af fiski,
og er það ekki meira en í meðallagi;
á þeim fiski lifðu tæp Vz miljón
manna, og ekki er þessi fiskur seldur
fyrir meira en 62 miljónir dollara.
Langmest af þessum fiski var þosk-
ur, og álit manna er að fljótteknastur
sé matur úr sjó og vötnum, og er það
víst áreiðanlegt, því síld og fiski-
mergö sú, sem lifir í Atlantshafi er
stórkostleg og veidd í afar miklar
vörpur af gufuskipum; það er hin
stórgerðasta veiðiaðferð, sem enn er
þekt í heiminum.
Nú er óskað eftir að sem mest sé
veitt af fiski, til að mæta hinni miklu
þörf, sem er, og verður á matvælum,
því nærri öll Amerika er í stríði, og
þarf að nesta fjölda af ungum mönn-
um í útverið stóra, Evrópu, og nú er
borgað hátt verð fyrir fiskinn, svo
veiðimenn eru allvel haldnir.
Chicago-borg ein keypti 68 miljón
pund af fiski næstl. ár, það er þó að-
eins 13 pund á mann, ef 5 miljónir
lifa í borginni, eða ein máltíð á viku
fyrir hverja fjölskyldu, og er þá dýr-
ast amáltíðin, sem þeir neyta, en líka
ef til vill hin bezta.
Nova Scotia og British Columbia
selja mestan fisk frá Canada, en
langmest af fiski kom til Chicago frá
Alaska, lax og lúða.
Eg tók nokkuð í þessa ritgjörð úr
mánaðarritinu “Canadian Fisherman.”
S. Baldvinssott,
Gimli.
Þorparinn: Ertu tilbúinn að
deyja? Eg ætla að skjóta þig.
Maðurinn: Hversvegna?
Þorparinn: Eg skýt alla þá,
sem líkjast mér.
Maðurinn: Er eg líkur þér?
Þorparinn: Já.
Maðurinn: Skjóttu mig þá.
♦ ♦ ♦
Tommi: Hefirðu aldrei lent í
j árnbr autarsly si? ”
Daddi: Jú, einu sinni, eg kysti
föðurinn í staðinn fyrir dóttur-
ina, þegar lestin var í jarðgöng-
unum. Það var hræðilegt slys.
Borgið Lögberg!