Lögberg - 23.09.1943, Side 8
8
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 23. SEPTEMBER 1943.
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
♦ ♦ ♦
Dr. Richard Beck, forseti ÞjóS-
raeknisfélagsins, kom til borgarinnar á
laugardagsmorguninn var, og sat fund
í framkvæmdarnefndinni þá um dag-
inn; hann hélt heimleiSis á sunnu-
daginn.
•f ♦
Mr. og Mrs. Sig. Björnson frá
Fargo, N. Dak., voru stödd í borginni
i lok fyrri viku, ásamt Pred syni sín-
úm.
♦ ♦
Mr. H. A. Bergman, K.C., forseti
Manitoba Law Society, lagöi af staS
vestur til Vancouver síSastliSinn
þriSjudag í málaflutningserindum;
hann bjóst viS aS verSa aS heiman
fram í lok mánaSarins.
+ > -f
Dr. Tweed verSur í Árborg þann
30. þ. m.
+ -f -f
Sögubækur, Ljóðmæli, Tíma-
ril, Almanök og Pésar, sem gef-
ið er úl hér veslan hafs, ósk-
ast keypi. Sömuleiðis "Tíund"
eftir Gunnsí. Eyjólfsson, "Út á
víðavangi" eftir St. G. Stefáns-
son, Herlæknisögurnar allar,
sex bindin.
Björnssons Book Store.
702 Sargent Ave,
Winnipeg.
-f ♦ ♦
Þær systur F.lva og Alda, dætur
Mr. og Mrs. Jónas Pálsson í New
Westminster, B.C., voru staddar í
borginni nokkrar klukkustundir á
laugardaginn var.
♦ ♦ ♦
Laugardaginn 18. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband í Sambandskirkj-
unni í Winnipeg, Thorarinn Ingvar
.Gíslason og June Doraine McKnight.
Brúðguminn er sonur þeirra Ingvars
Gíslasonar og Thóru Gi^Smundson,
konu hans, sem búa á Reykjavík P.O.,
Manitoba. BrúSurin er af írskum
Æettum frá Homewood, Man. Þau
voru aSstoðuð af Capt. T. A. Arna-
son og Miss Jean Butler. Séra Philip
M. Petursson framkvæmdi athöfnina.
♦ ♦ ♦
Roskin hjón óska aS fá leigt eitt
stórt herbergi, eða tvö lítil herbergi
nú þegar; þau þurfa að fá keypta á
staðnum eina máltið á dag. Hringið
upp 205 481.
BUSINESS
EDUCATION
DAY OR EVENING
CLASSES
To reserve your desk, write us,
call at our office, or telephone us.
Ask for a copy of our 40-page
illustrated Prospectus, with which
we will mail you a registration
form.
Educational Admittance
Standard
To our Day Classes we admit only
students of Grade XI, Grade XII,
and University standing, a policy
to which we strictly adhere. For
Evening Classes we have no edu-
cational admi'ttance standard.
AIR-COOLED,
AIR-CONDITIONED
» CLASSROOMS
The “SUCCESS” is the only air-
conditioned, air-cooled private
Commercial College in Winnipeg.
TELEPHONE 25 843
SUCCESS
BUSINESS COLLEGE
Portage Ave. at Edmonton St.
WINNIPEG
Gefin voru saman í hjónaband s.l.
laugardag 18. þ. m. Kristinn Krist-
jánsson og Irene Mable Crawford.
Foreldrar brúðgumans eru Friðrik
/Lúðvík Kristjánsson og Gestný Gest-
son kona hans, en brúðurin er af ensk-
um ættum. Athöfnin fór fram að
heimili séra Philip M. Petursson.
Brúðhjónin voru aðstoðuð af F. J.
Crawford, bróður brúðarinnar og
Mrs. T. Blondal, systur brúðgumans.
Framtíðarheimili þeirra verður hér
í Winnipeg.
♦ ♦ ♦
Mrs. Sidney Larson frá Rochester,
New York, dóttir þeirra Mr. og Mrs.
John Ólafsson, 23 Lindal Apts., hefir
dvalið hjá foreldrum sínum í rúma
viku, en lagði af stað heimleiðis í gær;
hún ætlaði að koma til fundar við
mann sinn, Dr. Sidney Larson og
börn þeirra í Toronto, þar sem fjöl-
skyldan mun dveljast í' nokkra daga
sér til skemtunar.
♦ ♦ ♦
Dr. Thorbergur Thorvaldson, pró-
fessor við háskólann í Saskatchewan,
og forseti canadis.ka vísindafélagsins,
kom austan frá Móntreal og Toronto
um síðustu helgi. Margrét kona hans
kom til fundar við hann hér í borg-
inni.
♦ ♦ ♦
Spilafundur (Brídge) verður hald-
inn í fundarsal jSambandskirkju
föstudaginn 1. október. Ágóðanum
verður varið til að senda jólaglaðn-
ing til íslenzkra hermanna erlendis.
Kvenfélagið vonast til að fólk sæki
þennan spilafund og þar með styrki
gott málefni.
♦ ♦ ♦
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur
776 Victor St.—Phone 29 017
Guðþjónustur á hverjum
sunnudegi.
Á ensku kl. 11 f. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir æfinlega velkomnir.
♦ ♦ ♦
Messur við Churchbridge cg
víðar í seplember mánuði:
Þann 5 í Concordia; þ. 12.
í Hóla skóla kl. 2. eftir miðdag.
í Concrdia þ. 19. og þ. 26. kl.
11 f. m. á Red Deer Point og kl.
3. e. h. í Winniegosis sama dag.
Menn eru beðnir að gæta þess,
að messutíminn í Hóla skóla er
ákveðinn klukkan 2. e. h.
s. s. c.
♦ ♦ ♦
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Ensk messa, kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
♦ ♦ ♦
Sunnudaginn 26. sept.
Messað í Viðinessöfnuði kl. 2
síðdegis
S. Ólafsson
♦ ♦ ♦
tSLBNSK GUÐSÞJÓNUSTA
í dönsku kirkjunni í Vancouver, E.
19th Ave. og Burns St., sunnudaginn
3. okt., kl. 7.30 að kvöldiu. Allir vel-
komnir.
R. Marteinsson.
♦ ♦ •♦■
Sunnudaginn 26. sept. messar séra
H. Sigmar í Fjallakirkju kl. 11 f. h. í
Eyford kl. 2.30 og í Mountain kl. 8
e. h. Allar messurnar á íslenzku.
Offur til líknarsjóðs lúterskra sam-
banda í Iandinu—The Lutheran World
Action.—Allir velkomnir.
♦ ♦ ♦
MESSUR 1 UPHAM
Sunudaginrt 26. september, íslenzk-
ensk guðsþjónusta kl. 2 e. h.; sunnu-
dagaskóli á undan messu.
Egill H. Fáfnis.
-»•♦-*■
PRESTAKALL NORÐUF
NÝJA ÍSLANDS
26. sept.—Hnausa, messa kl. 11 f.h.;
Árborg, íslenzk messa kl. 2 e. h.;
Riverton, íslenzk messa kl. 8 e. h.
3. okt.—Víðir, messa kl. 2 e. h.;
Geysir, messa kl. 8.30 e. h.
B. A. Bjarnason.
MINNIST BETEL
I ERFÐASKRAM YÐAR
Mrs. Margrét Bjarnason, kona Hall-
dórs Bjarnason, fyrrum kaupmanns
hér í borginni, lézt að heimili stnu
704 Victor Street, á sunnudaginn var,
19. þ. m. Hún var fædd á Hofsós, en
alin upp á Sauðárkróki hjá foreldrum
sínum, Árna Árnasyni og Sigríði
Eggertsdóttur. Vestur um haf kom
hún árið 1892, og starfaði fyrstu ár-
in hér í borginni við saumaskap o. fl.
Halldóri Bjarnasyni giftist hún árið
1898; áttu þau heimili í Glenboro,
fyrstu tíu árin, en síðan í Winnipeg.
Hún lætur eftir sig þrjú börn; Láru
Guðrúnu, Mrs. John A. Vopni, David-
son, Sask., Önnu Mþrgréti, hjúkrunar-
konu í New York, og Otto Herold
vélfræðing í Geraldton, Ont. — Jarð-
arförin fór fram frá Fyrstu Lútersku
kirkju á miðvikudaginn og var mjög
f jölmenn.
♦ ♦ ♦
Jón Arnórsson lézt að hemiili sínu í
(Piney, föstudgainn 18. september.
Hann var fæddur á Vorsabæ í Ölfusi
30. april 1874. Kom vestur uni* haf
árið 1911, settist að í Piney og átti
þar heimili ávalt síðan. Jarðarförin
fór fram í samkomuhúsi Piney bæjar
a mánudaginn að viðstöddu fjölmenni.
;Séra Valdimar J. Eylands jarðsöng.
♦ ♦ ♦
Mr. Magnús Paulson frá Toronto,
Ont., dvelur í borginni þessa dagana.
Dánarfregn
Fimtudaginn 26. ágúst dó Margrét
Eyólfsdóttir Scheving á heimili sonar
síns og tengdadóttur, þeirra Mr. og
Mrs. Stefán Scheving í Seattle, Wash.
Hafði hún um undanfarna marga
mánuði verið mjög heilsutæp.
Margrét sál. fæddist á Islandi 19.
október 1860. Foreldrar hennar voru
Eyólfur Kristjánsson og Lukka Gísla-
dóttir Hin látna kom til Ameríku
18 ára að aldri. Var hún fyrst um
hríð í Nýja Islandi. Það voru um
62 ár síðan hún giftist Árna Schev-
ing, sem dó árið 1900. Þau hjón
eignuðust 7 syni og eina dóttur, auk
þess ól Margrét sál. upp frænku sína
Mrs. (Mamie) Creighton. Nú lifa
hana 3 synir og fósturdóttirin. Fyrstu
16 ár búskaparins bjuggu Schevings
hjónin í Cavalier héraði norðaustar-
lega í Pembina-sveit og höfðu þeir
þá félagsbú bræðurnir Árni og Einar
Scheving. Þá skiftu þeir með sér og
fluttust báðir til Hensel-bygðarinnar.
Þar bjó Margrét sál. þar til hún flutt-
ist til sonar síns í Seattle, Wash., í
júnímánuði 1942.
Margrét sál. var vel gefin, vönduð
■kona og félagslynt. Vann hún mikið
að málum safnaðar sins (Vídalíns-
safnaðar) og kvenfélagsmálum bygð-
ar sinnar, þó hún ætti annrikt heima
fyrir, þar sem maður hennar dó frá
henni og börnunum á svo ungum
aldri. Ýmsum fleiri sorgum varð hún
að mæta á æfiferlinum en bar það alt
með kristilgeri hugprýði. Var hún vel
látin og mikilsvirt í sveit sinni.
Útfararathöfn var höfð i Seattle
miðvikudaginn 1. sept. er séra H. S.
,Sigmar stýrði. Var líkið síðan flutt
til N. Dak., og voru útfararathafnir í
Cavalier og í Vídalínskirkju. Hún var
lögð til hvíldar við hlið eiginmanns
og annara ústvina í grafreit Vídalíns
safnaðar. Séra H. Sigmar jarðsöng.
Elín Jónína Jónsdóttir Thordarson
andaðist á sjúkrahúsinu í Grafton
laugardaginn 4. september Heimili
hennar undanfarin mörg ár var i
Miles City, Montana. En í sumar
hafði hún dvalið um æði langt skeið
hjá bróður sínum Joseph J. Myres
og konu lians og einnig hjá dóttur
sinni og tengdasyni Mr. og Mrs.
Stefán Thordarson í grend við Garð-
ar. Veiktist hún hastarlega þar og
varð að flytja hana á sjúkrahúsið í
Grafton, þar sem hún dó eins og áð-
ur er sagt.
Elín sál. fæddist á Einfætisgili í
Hrútafirði í Strandasýslu 5. júlí 1876.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson
frá Mæri og eiginkona hans Ragn-
hildur Josephsdóttir. Elín sál. giftist
31. desember 1901 Guðmundi J.
Thórdarson, bónda í grend við Garð-
ar. Þau hjón eignuðust eina dóttur,
Guðrúnu (Mrs. Stefán Thórdarson).
Hún hafði eignast 7 systkini — fimm
bræður dóu í æsku og systir hennar
(Mrs. Elías Vatnsdal) fyrir nokkr-
um árum. Einn bróðir, Joseph J.
Myres í grend við Mountain, N.D.
lifir hina látnu.
Eiginmann sinn misti Elín árið
1912, og fluttist þá til Miles City,
Montana og hefir búið þar síðan.
Elín sál. var velgefin kona, trygg
og vinföst. Var hún trúhnegið kona
og hafði tekið mikinn þátt í kristi-
legri starfsemi þar sem hún átti heima.
Er feigðin sveif að henni fól hún sig
'Drotni sínum í auðmýkt og trausti.
Elín var jarðsungin frá kirkju
Garðarsafnaðar fimtudaginn 9. sept-
ember, og lögð til hvíldar við hlið
eiginmanns síns í grafreit Garðar-
bygðar. Séra H. Sigmar jarðsöng.
Ragnheiður Skafta-
dóttir Bergmann
Fæddur 21. janúar 1870
Dáin 19. maí 1943
Ragnheiður var fædd í Litlutungu'
í Miðfirði, í Húnvatnssýslu, ár og
dag sem að ofan er greint
Foreldrar hennar voru Skafti Helga-
son, bóndi, og Margrét Bjarnadóttir
kona hans. Föður sinn misti Ragn-
heiður þegar hún var á sjönnda árinu.
Síðan var hún á ýmsum stöðum í Mið-
firði, og kom sér ætíð og alstaðar vel.
Systkini Ragnheiðar voru ekki
mörg. Alsystir hennar hét Helga, og
var Mrs. Dalman; dó hún vestur á
Kyrrahafsströnd fyrir fáum árum.
Tvær hálfsystur þeirra, Margrét og
Guðrún, fóru aldrei frá Islandi.
Ragnheiður gifti sig árið 1896.
Maður hennar var Björn Jónasson
Bergmann, ættaður úr Miðfirði. Hann
er dáinn 9. nóv. 1932. Faðir Björns,
Jónas Bergmann, lézt í Víðinesi í
Nýja íslandi fyrir tuttugu árum síð-
an. Albræður Björns eru Jónas
Bergmann í Winnipeg og Guðmund-
ur Bergmann i Gimli. Hálfsystkini
þeirra eru Sigfús Bergmann, bóndi í
(Víðinesbygð; Lilja, ekkja eftir Guð-
mund Hansson, í Geysisbygð, og Ásta,
kona Kristinns Lárussonar, bónda í
Víðinesbygð.
Fyrstu búskaparár sín bjuggu Björn
og Ragnheiður á Torfastöðum og síð-
ar á Valdarási í Víðidal,, en fluttu
þaðan vestur um haf árið 1903. Ár-
langt dvöldu þau í Winnipeg, en fluttu
síðan norður i Nýja ísland og settust
að í Geysisbygð.
Börn þeirra hjóna, Björns og Ragn-
heiðar Bergmann, urðu níu alls. Þrjá
drengi mistu þau á unga aldri; en
elzta barn þeirra, Anna, andaðist 10.
april 1924 rétt innan við þrítugt.
Einnig dáin er Jóhanna Thorbjörg;
hennar maður var Sigurður P. Sig-
urdson, prentari í Winnipeg. Jó-
hanna dó 1940, en Sigurður fyrir ári
síðan. Skilja þau eftir sjö börn mun-
aðarlaus.
Af börnum Björns og Ragnheiðar
eru nú á lífi: Láll Leví, Skafti Marinó
og Jóhannes Karl, allir búsettir á föð-
urleifð sinni; og Jóhanneseína Salóme,
kona Clarence Jakobson, bónda i Ár-
dalsbygðinni. Foreldrar Clarence eru
Guðmundur og Una Jakobson á Sval-
barði i Framnesbygð; en Una er dótt-
ir Gests sál. og Þóreyjar Oddleifson í
Haga fyrir austan Árborg. Jóhannes
Karl Bergmanri er nýlega giftur, og
á fyrir konu Helen Sesselju dóttur Ár-
manns Magnússonar bónda í Víðir-
bygð. Sella, eins og hún er kölluð,
hjúkraði Ragnheiði i banalegunni og
sinti hússtörfum. Nft er hún komin í
húsmóðurstað. Opinberuðu þau Jó-
hannes og Sella trúlofun sína við lík-
börur Ragnheiðar, en giftu sig 14.
júní s.l. Hygg eg að augu hinnar
öldruðu, deyjandi húsmóður hafi með
ánægju og velþóknun séð þá ráðstöf-
un í aðsigi.
Með frábærunt dugnaði og atorku
unnu Björn og Ragnheiður land þaðr
sem þau'; tóku til heimilisréttar sunn-
arlega í Geysisbygð, þar sem kallað
er í “flóanum.” Eins og nafnið gefur
til kynna, var þar votlendi, skógur
mikill með köflum, og vegir illfærir.
En óbilandi viljakraftur hjónanna,
sem bæði voru þétt á velli og þétt í
lund, og samhent í öllu, vann sigur á
erfiðleikunum. Þeini farnaðist vel.
Og þegar börnin komust upp, óx
vinnukrafturinn stórum. Virtist þeim
þá eitt land fremur lítið og létt viður-
eignar fyrir slíka vinnuvíkinga, og
bættu við sig Iöndum.
En tímarnir breytast og mennirnir
með. Björn og Ragnheiður eru nú
bæði héðan farin “meira að starfa
Guðs um geim.” Og verk þeirra
fylgja þeim, í þakklátri minningu
;...........
geymd til blessunar og uppörfunar
eftirlifandi afkomendum þeirra og
vinum. Búskapurinn er í góðum
höndum sona þeirra.
Leiðirnar skiljast að sinni; en fagr-
ar endurminningar lifa og varðveitas
sem helgur dómur í hugum og hjört-
um eftirskilinni góðvina, unz sam-
leið er hafin á ný. Minningin lifir um
þróttmiklu starfskonuna, Ragnheiði
Skaftadóttur Bergmann, sem mætti
bæði blíðu og stríðu sífelt með sigri
hrósandi djörfung og kristilegri still-
ingu, bjargföst og sæl í þeirri sann-
færingu að lífið sé sigur og guðleg
náð. Já, minningin lifir um glaðlyndi
og þolgæði, sem hún auðsýndi endra-
nær, og ekki þá sízt er hún að lokum
varð að standa í þungu stríði við ill-
kynjaðan sjúkdóm í þrjú ár, sem hélt
henni svo að segja rúmfastri síðastp
árið, unz hún fékk lausn og eilífan
frið.
Fjölmenni var við jarðarför Ragn-
heiðar, sem fram fór þ. 21. maí s.I.
frá heimilinu. Dagurinn var sólbjart-
ur og fagur, eins og liðinn æfidagur
hinnar mætu konu. Kveðjuorðin
■flutti sóknarpresturinn, séra Bjarni
A. Bjarnason, og jós hina látnu mold-
um í hinum fagra grafreit, sem er í
nánd við Haga í vesturjaðri Geysis-
bygðar.
Fögur er foldin,
heiffur er Guffs himinn,
indœl pílagríms wfigöng.
B. A. Bjarnason.
Wartime Prices and
Trade Board
Spurningar og svör.
Spurt. Fyrir nokkru reyndi eg
að fá peningunum skilað aftur
fyrir vörur sem eg hafði keypt
en var svo ekki ánægður með,
en mér var sagt í búðinni að
þetta væri bannað. Er það rétt?
Svar. Verzlunum er ekk: bann
að að endurskila verði eða skifta
vörum, ef farið er með vörurn-
ar innan tólf daga frá bví að
þær voru keyptar. Ekki heldur
ef vörurnar eru skemaar eða
gallaðar að einhverju leyti.
Spurt. Eg leigi út tvö herbergi,
en er als ekki ánægð með fólkið
sem er í þeim. Það er hávært og
vill láta hafa mikið fyiir sér.
Herbergin eru leigð m.ánaðar
lega. Er nauðsyýilegt að gefa
þeim þriggja mánaða fyrirvara
til þess að flytja út?
Svar. Á, og eftir fyrsta október
1943, samkvæmt nýjustu leigu-
lögum, geta húsráðendur sem búa
sjálfir í húsum sínum, en leigja
út herbergi eða smá íbúðir íólki
sem notar sama inngang í hús-
ið og hefir einnig not af annað-
hvort baðherbergi eða öðrum
þægindum, sagt leigjendum upp
húsplássi með eins mánaðar fyr-
irvara, og án þess að nokkur
ástæða sé tekin fram.
Spurt. Eg sé í blöðunum að það
sé ólöglegt að kaupa skamtaðar
vörur til þess að gefa öðrum.
Þýðir þetta að mér sé t.annað
að senda te til sonar míns sem er
í herþjónustu og handan hafs
Svar. Nei. Það má senda þeim
hvað sem maður getur látið af
hendi. Það má einnig senda til
skyldfólks sem býr utan Canada.
Spurt. Er aldinsafi skamtaður?
Svar. Nei. Aldinsafi í dósum
(canned fruit juce) er undan-
þeginn skömtunarlögunum sem
viðvíkja niðursoðnum ávcxtum.
Spurt. Er leyfilegt að leggja
til skamtaðar vörur fyrir kirkju
samkomur?
Svar. Já. Það er leyfilegt ef
gefið er af eigin skamti. Þegar
verið er að taka til máltíðir fyrir
kirkju samkomur er fólk vana-
lega beðið að leggja til a:t sem
þaxf. Skömtiuðu vörurnar eru
vanalega skift niður þannig,
að hver leggur til það sem hann
getur best af hendi látið. Ekki
má samt biðja um meira en
álitið er alveg bráð nauðsynlegt.
Spurt. Er leyfilegt að selja
heimatilbúið Jam eða Jelly á
sölum sem haldjnar eru fyrir
góðgj örðastof nanir ?
Svar. Nei. Alt Jam og Jelly,
hvort sem það er heimatilbúið
eða keypt í búðum, er háð skömt
unarlögunum og ekkert má selja
eða láta af hendi án þess að
innheimta D seðla fyrir. £n fólk
má borða ált sem það getur
búið til á heimilum sínum, eða
með öðrum úti frá.
Spurt. Mega bændur selja ná-
grönnum sínum afurðir eins og
egg t. d., fyrir lægra en últekið
hámarksverð?
Svar. Já, sjálfsagt! Hámarks-
verð er haesta fáanlegt verð.
Spurt. Geta þeir sem fram-
leiða hunang, fengið að nota
eins mikið og þeir vilja ti! heim-
ilis neyzlu?
Svar. Já. Það má nota til
heimilisþarfa eins mik'ið og
maður vill, af því sem maður
framleiðir sjálfur.
Spurt. Eg er bóndi og slátra
stundum skepnum til heimilis-
neyzlu. Nú var sagt að eg ætti
að fá slátrunarleyfi. Er þetta
rétt?
Svar. Slátrunarleyfi er ekki
nauðsynlegt þegar aðeins er slátr
að til heimilisþarfa, og ekkert
er selt nema á önnur bænda
heimili. En það á að tilkynna
næstu skrifstofu Local Ration
Board skriflega um nafn og
heimilisfang, hve margir búi á
jörðinni, og hvort nokkuð verði
selt til annara bænda.
Spurningum á íslenzku svarað
á íslenzku af Mrs. Albert
Wathne,,700 Banning St. Wpg-
Oskast til kaups
NÚ ÞEGAR
Ullarvetlingar
handa fiskimönnum
SETJIÐ YÐUR í SAMBAND
VIÐ
KARASICKS Ltd
275 McDermol Ave.
Sími 21371
KONUR
óskaát í vinnu
Stúlkur eða giftar konur óskast
í vinnu að parti til við þvotta
og fatahreinsun, ekki yfir 24
klukkustundir á viku. Æfing á-
kjósanleg, en ekki alveg nauð-
synleg. Umsækjendur verða að
vera við því búnir, að takast á
hendur fsta atvinnu.
Finnið að máli
PERTH’S
484 Poriage Avenue
1
Sitjið við þann eldin sem best
brennur
Nú er sá tími komitin, er fólk fer a?5 búa sig undir
vetur, að því er loSfatnaS áhrærir, og þá vill þaS vita-
skuld sitja viS þann eldinn, sem bezt brennur.
í sambandi viS kaup og aS gerSir á loSkápum, ættuS
þér aS snúa ySur til —
M. KIM, FURRIER
608 TIME BUILDING
Sími 86 947