Lögberg - 30.03.1944, Blaðsíða 1
Togarinn Max Pemberton ferst með
29 manna áhöfn
Samkvæmt Morgunblaðinu 16. janúar 1944.
Öll von er úti um það, að togarinn “Max Pemberton” sé
ofansjávar. Hann er talinn af og hafa með honum farist 29 sjómenn.
Ekkert hefir til skipsins spurst síðan 'þriðjudagsmorguninn
11. janúar. Þá sendi togarinn á venjulegum kalltíma, svohljóð-
andi: “Lónum innan við Malarrif”. Var skipið þá á leið til Reykja-
víkur úr veiðiför, með fullfermi.
Leitin.
Leitað hefir verið að skipinu
undanfarna daga, en leitin hefir
engan árangur borið. Tóku bæði
skip og flugvélar þátt í leitinni.
í gær var leitað á mjög víð-
áttu miklu svæði. Var skygni
gott og veður hagstætt. Þessi
skip tóku þátt í leitinni:
Sæbjörg, Óðinn og Þór. Enn-
fremur brezkar og amerískar
flugvélar, svo og íslenzka flug-
vélin. Var leitað um allan Faxa-
flóa, djúpt og grunt á siglinga-
leið og til og frá um Flóann. ís-
lenzka flugvélin flaug einnig
djúpt af Breiðafirði og Látra-
bjargi og 50 sm. út af Arnar-
firði; þaðan í S. 20 sm. og síðan
að Látrabjargi og inn Breiða-
fjörð að Skor, suður á miðjan
Breiðafjörð, þaðan langt út og
upp að Öndverðarnesi og suður
Faxaflóa djúpt af sigljngaleið.
Var ágætt flugveður og skygni
gott.
Þá var leitað með fjörum á
Snæféllsnesi, alt frá Ólafsvík, út
og suður með Nesinu og fyrir
Staðarsveit allri.
Hvergi fanst neitt, sem gæti
gefið bendingar um afdrif tog-
arans. Er leitinni nú hætt og
skipið talið af. Mun fara eins
um þetta skip og mörg önnur,
að aldrei verður upplýst hvað
hefir orðið því að grandi.
Þeir sem fórust.
Þessir 29 sjómenn fórust með
skipinu:
Pétur Maack, skipstjóri, Ránar-
götu 30, f. 11. nóv. 1892.
Pétur A. P. Maack, 1. stýri-
maður, sonur skipstjórans, Ránar
götu 2, f. 24. febr. 1915.
Jón Sigurgeirsson, 2 stýrimað-
ur, Ásvallagötu 28, f. 9. nóv. 1912.
Þorsteinn Þórðarsson, 1. vél-
stjóri, Sólnesi við Baldurshaga,
f. 19. maí 1892. Sonur hans, Þórð-
ur, var 2. vélstjóri á skipinu.
Þórður Þorsteinsson, 2 vél-
stjóri Sólnesi við Baldurshaga, f.
10. maí 1924.
Hilmar Jóhannsson, kyndari,
Framnesveg 13, f. 4. marz 1924.
Benedikt S. Sigurðsson, kynd-
ari, Hringbraut 147, f. 19. des.
1906.
Gísli Eiríksson, bátsmaður,
Vífilsgötu 3, f. 1. apríl 1894.
Björgvin H. Björnsson, styri-
maður, Hringbraut 207, f. 24. ág.
1915. Bróðir hans sem næst er
talinn var á skipinu.
Guðjón Björnsson, háseti, Sól-
vallagötu 57, f. 27. febr. 1926.
Valdimar Guðjónsson, mat-
sveinn, Sogamýrarbletti 43, f. 21.
ágúst 1897.
Guðmundur Einarsson, neta-
maður, Bárugötu 36, f. 19. jan.
1898.
Guðmundur Þorvaldsson,
bræðslumaður, Selvogsgötu 24.
Hafnarfirði, f. 7. des. 1899.
Sigurður V. Pálmason, neta-
maður, Bræðraborgarstíg 49, f.
25. nóv. 1894.
Sæmundur Halldórsson, neta-
maður, Hverfisgötu 61, f. 2. apríl
1910.
Kristján Halldórsson, háseti,
Innri-Njarðvík, f. 20. marz 1906.
Hann var bróðir Sæmundar, sem
talinn er næst á undan.
Jens Konráðsson, stýrimaður,
Öldugötu 47, f. 29. sept. 1917.
Jón M. Jónsson, stýrimaður,
Hringbraut 152, f. 10. okt 1914.
Valdimar Hlöðver Ólafsson,
háseti, Skólavörðustíg 20A, f. 3.
apríl 1921.
Magnús Jónsson, háseti,
Frakkastíg 19, f. 11. ágúst 1920.
Jón Þ. Hafliðason, háseti,
Baldursgötu 9, f. 19. sept. 1915.
Halldór Sigurðsson, háseti,
Jarðarkoti, Árnessýslu', f. 26. sept.
1920.
Gunnlaugur Guðmundsson, há
seti, Óðinsgötu 17, f. 15. jan.
1917.
Kristján Kristinsson, aðstoðar-
matsveinn, Háteigi, f. 2. júní 1929
Ari Friðriksson, háseti, Látr-
um, Aðalvík, f. 4. apríl 1924.
Aðalsteinn Árnason, frá Seyðis-
firði, f. 16. sept. 1924.
Jón Ólafsson, háseti, Keflavík,
f. 22. marz 1904.
Arnór Sigmundsson, háseti,
Vitastíg 9. f. 3. okt. 1891.
Skipið.
Togarinn “Max Pemberton”
var 323 rúmlestir br., bygður í
Englandi 1917. Aðaleigandi skips
ins var Halldór Þorsteinsson,
skipstjóri í Háreigi. Þótt skipið
væri orði þetta gamalt, 26 ára,
var það talið með traustari skip-
um í togaraflotanum, enda altaf
mjög vel við haldið og allur út-
búnaður þess eins vrandaður og
frekast var völ á.
Pétur Maack skipstjóri var
með þektustu skipstjórum á tog-
araflotanum, orðlagður aflamað-
ur og afburða sjómaður. Á skip-
inu var valinn maður í hverju
rúmi.
TEKJUSKATTUR
Það sem óborgað er af tekju-
skatti þeim sem fellur í gjald-
daga 30. apríl, þarf nú ekki að
borga fyrr en 31. ágúst, sam-
kvæmt tilkynningu á mánudag-
inn frá fjármála skrifstofunni.
Tekjuskatts skjölin verður þó að
senda fyrir lok apríl mánaðar.
NÝSKIPAÐUR SÉNDIHERRA
Rússneska stjórnin hefir form-
lega tilkynnt, að hún> hafi skip-
að G. N. Zarubin til sendiherra
í (^anada. Fyrirrennari hans í
embætti þessu var Fedar Gusev,
sem í síðastliðnum ágústmánuði
var skipaður sendiherra rúsá-
nesku ráðstjórnarríkjanna í
London.
Stephen Leacock,
prófessor við McGill háskól-
ann, heimsfrægur fyrir kymni
ritverk sín, lést síðastliðinn
þriðjudag í Toronto. Hann var 74
ára gamall.
I
STEFNA BANDARÍKJANNA
I UTANRÍKISMÁLUM
Cordell Hull, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefir lýst yfir
því, að stefna núverandi Banda-
ríkjastjórnar í utanríkismálum
sé sú, að þegar yfirstandandi
heimsstyrjöld ljúki, verði smá-
þjóðunum engu síður að verða
trygt fullveldi heldur en þeim
hinum, sem meira mega sín; á
hinn bóginn dylst það engum
að stórveldin Bretland, Rússland
og Bandaríkin þurfi að vaka á
verði um það, að Þjóðverjum og
Japönum veitist ekki svigrúm til
hervæðingar á ný. Mr. Hull kvað
stjórn Bandaríkjanna vefa það
að fullu ljóst, að alþjóðasamtök
heimsfriðnum til öryggis yrðu að
komast á, hvort sem slík samtök
vrðu kölluð þjóðabandalag eða
ekki; engin þjóð, smá sem stóð,
mætti skerast úr leik, jafnframt
því sem allar frelsiselskandi þjóð
ir yrðu að láta sér skiljast, að
frelsið sé það eina. sem þess virði
sé, að fyrir því sé barist hversu
víðtækar sem fórnirnar kunni að
vera. *
STRÍÐSFRÉTTIR
þessa síðustu daga hafa ekki
verið sem beztar. 1 hinni miklu
loftárás á Berlín síðastliðinn
föstudag töpuðu bandamenn 73
flugvélum, 13 voru canadiskar.
Er það eitt hið mesta flugvéla-
tap, sem þeir hafa orðið fyrir.
Bardaginn um Cassino heldur
áfram og virðist nú tvísýnt um
hvernig hann fer.
Rússar halda áfram sigurför
sinni og eru þeir nú komnir
inn í Rúmeníu, alla leið að Prut
ánni.
I herþjónustu
Brynjólfur Brynjólfson
Þessi ungi og efnilegi piltur
innritaðist í canadiska flugher-
inn þann 15. marz 1943, og gegn-
ir nú þar stöðu sem Air-Frame
Engineer; hann er fæddur að
Silver Bay, Man., þann 24. febr.
1923. Foreldrar Brynjólfs eru þau
Mr. og Mrs. Sigurður Brynjólf-
son.
Lieutenant Richard Stephan
Marino Hannesson, 26 ára, hefur
verið skipaður kapteinn í Cana-
diska fótgönguliðinu austan við
haf. Hann er sonur Colonel
Hannes Marino Hannesson, Ste
17 Holly Apts., Winnipeg. Kona
Captain Hannesson er búsett að
55 Canborne Road, Morden,
Surrey, England.
ft
D. W. Einarson, 24 Cascades
St., Parry Sound, Ontario hefir
nýlega tekið próf sem fallhlífar-
hermaður.
•
Guðlaug, Aðalheiður Howard-
son, dóttir Aðalvarðar Howard-
son og konu hans að Clarkleigh,
Man., gekk í herþjónustu 7. marz.
Merkur maður
Þann 9. þ. m. lézt í bænum
Williston í North Dakota, Friðrik
Pétur Bergman, 64 ára að aldri,
fæddur í íslenzku byggðinni í
Minnesota þann 11. ágúst 1879.
Hann var sonur þeirra merkis-
hjónanna Eiríks Hjálmarssonar
Bergman og Ingibjargar Péturs-
dóttir Bergman, sem mestan sinn
búskapartíma vestan hafs bjuggu
að Garðar í North Dakota; var
Eiríkur snemma á árum kos-
inn á ríkisþingið í North Dakota,
og var hann fyrsti íslenzki þing-
maðurinn í þessari heimsálfu.
Pétur heitinn hafði átt við all-
langa og stranga vanheilsu að
stríða, er hann bar með kristi-
legu sálarþrekí.
Þessi nýlega látni merkismað-
ur gekk í æsku sinni mentaveg,
og lauk stúdentsprófi við Gust-
avus College í St. Peter, Minn.
Var hann námsmaður hinn
bezti, og aflaði sér þegar á skóla-
árum sínum fjölda vina.
Árið 1910, þann 5. janúar,
kvæntist Pétur og gekk að eiga
ungfrú Mabel Wold; þau eign-
uðust þrjú börn, sem öll lifa:
Claudiu Ingibjörgu, gifta Oscar
Hudrlik í Portland Oregon;
Harriet Virginíu Jackson í
Duluth, Minn., og Frederick
Peter, sem nú er Sergeant í
Bandaríkjahernum; auk ekkju
sinnar og áminstra barna, lætur
Pétur eftir sig tvö systkini, þau
Hjálmar A. Bergman dómara í
hæstarétti Manitobafylkis, og
Kristínu Bergman, sem búsett er
að Mountain, N. Dak.
Pétur heitinn bjó yfir traustri
skapgerð og var eins og hið forn-
kveðna segir, þéttur á velli og
þéttur í lund; hann stundaði um
langt skeið fasteignasölu og fé-
sýslu í Williston við hinn bezta
orðstír, auk þess sem hann tók
virkan þátt í bæjar- og héraðs-
málefnum; átti hann sæti í skóla-
ráði bæjarfélags síns, og á út-
farardaginn var skólum bæjarins
lokað í virðingu um minningu
þessa mæta manns.
Útförin fór fram í Williston
þarjn 13. marz. Rev. Carl P.
Bast jarðsöng.
BÝÐUR SIG
FRAM TIL ÞINGS
Lloyd L. Stinson, bæjarráðs-
maður, hefir verið útnefndur af
hálfu C.C.F. flokksins sem þing-
mannsefni í mið-Winnipeg kjör-
dæminu hinu syðra, við næstu
sambandskosningar. Mr. Stinson
endar á næsta hausti hið’ fyrsta
kjörtímabil sitt í bæjarstjórninni
í Winnipeg; hann er ritstjóri að
málgagni C.C.F., sem gefið er út
hér í borginni, og gengur undir
nafninu Manitoba Common-
wealth.
Sigurgeir biskup í Hollywood
Ann Sheridan, ein fi'ægasta leikkonan í Hollywood er að
veita herra Sigurgeir Sigurðssyni biskup, tilsögn í kvik-
myndagerð. Þegar þessu fór fram, var biskupinn staddur
hjá Warner Bros. kvikmyndafélaginu.
Sigurgeir biskup sæmdur heiðursdoktors nafnbót
Sámkvæmt skeyti frá Dr. R. Beck, sem barst blaðinu á mið-
vikudags morgun, var herra Sigurgeir Sigurðsson biskup sæmd-
ur heiðursdoktors nafnbót við North Dakota háskólann, þriðju-
daginn 28. marz. Fór þessi athöfn fram á sérstakri samkomu há-
skólans, þar sem Sigurgeir biskup var aðalræðumaðurinn. Um
300 manns voru viðstaddir. Var Sigurgeir biskup tekið með miklum
íögnuði af áheyrendum.
Sigurgeir biskup
Flutt í samsæti í Seattle, Wash.. 12. marz, 1944.
Hér er kominn góður gestur,
gamla landsins æðsti prestur.
Bróðurkveðjur bar hann vestur
blíðrar móðurjörðu frá.
Heiður er að heimsókn slíkri,
hún oss tengir böndum mýkri,
vefur hjörtu varmaríkri
vinsemd yfir breiðan sjá.
Heill sé þér, vor góði gestur!
Gott var að fá þig hingað vestur.
Fyrir mætan fræðilestur
fylstu þökk við tjáum þér.
Drottins höndin heim þig leiði,
háska öllum vernd hans eyði.
Vinarkveðjum veg þú greiði
vinum frá, sem búa hér.
Kolbeinn Sœmundsson.
Til Jóns Sigurðssonar félagsins
Þið haldið upp’ íslenzkum heiðri,
og hlynnið að þjóðfélags-von,
en sá, sem sú hugsjón er helguð,
er hetjan — Jón Sigurðsson.
Hver íslenzkur, karl eða kona,
mun kunna’ ykkur þakkir og hrós,
því þið hafið hálfnað verk hafið
og hlúað að ætternis rós.
Þó ský dragi svart fyrir sólu,
og sögunnar spjöld verði grá,
þá eruð þið — íslenzku konur,
að auka ljós sólunni frá.
En minningar mega ekki deyja,
né mál vort að falla í dá,
sem hefir sitt ódauðlegs eðli,
með uppruna merkin svo há.
Svo upp’ minninga merki,
og metið þá hugsjóna-von,
- sem reist hefir íslenzkur aðall
og æðstur — Jón Sigurðsson.
S. B. BenecLictsson.