Lögberg - 30.03.1944, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. MARZ, 1944.
3
hafa komizt niður annarsstaðar
um hávetur í harðfenni en þarna.
Hvíldu þeir sig nú þarna um
stund. Sótti þá svefn á þá Björn
og Magnús. Sagði Júlíus svo frá,
að Björn mundi hafa dáið úr
svefni og lítið bært á sér, en
Magnús kastast til er hann var
að helfrjósa. Það mun hafa bjarg-
að Júlíusi, að hann sofnaði ekki,
en gekk um gólf og barði sér
meðan hinir lágu. Þegar svo var
komið, að tveir voru látnir, gat
Júlíús ekki lengur haldizt þarna
við hjá þeim helfrosnum og held-
ur nú í áttina sem Magnús hafði
bent til. Gekk svo unz fyrir hon-
um varð dalbrún andspænis,
klettótt mjög. Fer hann nú að
leita sér ofankomu á vestri brún
dalsins^ og gekk það ærið seint,
því hann kvaðst hafa orðið að
fara eins á höndum sem fótum
ofan dalshlíðina, sem aðeins var
fær þarna fyrir klettum og harð-
fenni fyrir framan svonefnda
“Þverá”, sem fellur ofan í Djúpa-
dal af hálendinu, en þar er dal-
brúnin klettalítil, en hvergi apn-
ars staðar.
Hélt Júlíus nú heim dalinn þó
stirður og frosinn væri og var þá
veðrið orðið beint á hnakkann,
en þangað til hafði það verið á
vinstri hlið ofan á dalbrún frá
því hann skildi við þá félaga
sína helfrosna á vetrarhjarninu.
I þenna tíð bjó í Djúpadal
Þórður hreppstjóri Þorsteinsson,
prests í Gufudal og er sú ætt al-
kunn.
Þenna dag undir kvöld sást til
manns á rölti fram í dalnum.
Þótti grunsamlegt að sjá þarna
mann á ferli nú í skafhríð að stór-
hríð afstaðinni, og þótti sem
manninum munaði lítt eða ekki
neitt heim á leið.
Var farið að forvitnast um
hann og hann leiddur hægum
fetum heim til bæjar. Kom þá
skjótt í ljós, að báðir fætur voru
freðnir allt að knjám. Hendur
og andlit var líka kalið til stór-
skemmda. Var honum hjúkrað
sem bezt að hægt var og að ráði
læknis, Ólafs Sigvaldasonar í Bæ,
þítt kalið með klakavatni. Júlíus
skýrði frá afdrifum þeirra félaga
og greindi afstöðu og stefnu frá
því hann skildi við þá, unz hann
náði dalbrúninni.
Þegar upp stytti var safnað
mönnum um alla byggðina, og
hafin leit að þeim félögum, og
fundust þeir langt vestur í Rei-
bólsfjöllum, Björn strax, en
Magnús um vorið, skammt frá,
þegar snjóa leysti.
Júlíus lifði nær hálfan mán-
uð í Djúpadal við verstu líðan,
einkum upp á síðkastið, og dó
af sárum sínum, eða afleiðing-
um þeirra.
Voru þeir félagar allir harm-
dauði fólksins þarna í byggðar-
laginu, því þeir Júlíus og Björn
voru einhverjir mestu efnis-
menn í Þorskafirði og Magnús
mesti vöndunar- og þrekmaður,
en nokkuð við aldur, og varð
öllum í héraðinu minnisstæður
þessi atburður, og villa þéirra
hin mikla, svo mjög af leið sem
þetta var. Hefir breytt vindstaða
sennilega átt sinn þátt í því. Er
mjög vafasamt að þeir félagar
hefðu nokkurntíma fundizt, ef
Júlíus hefði ekki komist lífs af.
Jólablað Vísis.
11-C.M.C. I0O u.
Tvœr bækur eftir
i.
. Refskák auðvalcLsins
Ekki man eg eftir, að eg hafi
heýrt þessarar bókar getið,
hvorki í blöðum okkar hér, eða
þeim fréttum sem hingað berast
þó enn á skötspónum, heiman
að. Bókin fjallar um tildrög yfir-
standandi stríðs, eða það, sem
gerðist að tjaldabaki í heimspóli-
tíkinni, síðustu árin fyrir stríð-
ið. Þó nú sé liðin meir en þrjú
ár síðan bókin var skrifuð finnst
mér hún muni enn eiga erindi
til manna, sérstaklega þeirra,
sem ekki hafa átt kost á að
lesa, um þessi mál, annað en hin
almennu blaðaskrif. Eins og allir
vita, sem nokkuð þekkja til Þor-
bergs, er hann socialisti í húð og
hár, og bókin er skrifuð af þeim
eldlega áhuga og mælsku, sem
einkennir höfundinn þegar hanrf
skrifar um þau mál, sem honum
liggja á hjarta.
Eg býs\ við að sumum muni
þykja hann draga um of taum
Rússa en halla heldur á Frakka
og Breta. En þá er þess að gæta
að rás viðburðanna hefur nú
varpað nýju ljósi á þessi mál,
og sannað það að höf. hafði
meiri þekkingu og gleggri skiln-
ing en þeir, sem hann átti í
höggi við. Annars er það eitt
af höfuð kraftaverkum stórblaða
mennskunnar hve vel henni hef-
ur tekist að koma í veg fyrir
það, að fólk gæti hugsað um þessi
mál af skynsemi eða heilbrigðu
viti. Bændur hinna kapitalistisku
landa halda enn að frelsi sitt sé
undir því komið að þeir fái að
bölsótast, og slíta kröftum sín-
um fyrir aldur fram, inni á ein-
hverjum landbletti, sem þeir fá
að kalla sína eign. En reynslan
hefur sýnt að landblettirnir eru
á hraðri ferð úr höndum bænd-
anna, inn til braskara og okur-
félaga, þrátt fyrir alt stritið,
og hinn dýrmæta eignarrétt.
En börn bændanna streyma inn
til bæjanna, og slást í hóp ve^rka-
manna, sem halda að þeir geti
tryggt frelsi sitt, með því að
eignast lögtryggðann rétt til að
prútta við iðjuhölda, um verð
vinnunnar. Þrátt fyrir það að
reynslan er sú að þeir verða að
veðsetja afkomendur sína í þús-
undliðu til tryggingar síþækk-
andi ríkisskuldum, og fá svo oft
ekki nema hálfa kviðfylli að
launum.
Rússar hafa reynt að ráða fram
úr þessum vandamálum á þann
hátt, að taka fyrir kverkarnar á
landsölu braskinu og sjá bænd-
unum fyrir innanlands markaði
fyrir varning sinn; en fela verka-
fólkinu stjórn iðnaðarins,.og síð-
ast en ekki síst með því að setja
á stofn ríkisfésýslu óháða út-
lendu bankavaldi.
Þó það megi nú kalla fullsann-
að að hin svonefnda friðkaupa-
stefna (appeasement policy)
þeirra, sem fóru með málin fyrir
hönd Frakka og Englendinga fyr-
ir stríðið væri ekkert annað en
dulklæddur fasismi, með heims-
yfirráð á bak við eyrað, þá er
ekki rétt að eigna þessum þjóð-
um í heild slíkt hugarfar. Það
mætti t. d. benda á það að hæg-
fara sócialismi hefur ef til vill
hvergi slegið dýpri rótum en í
ensku þjóðlífi. Og sú dreifing
ríkisvaldsins, sem hefur orðið
innan hins brezka veldis, er engu
síður merkileg þó hún hafi feng-
ist með frjálsum samningum en
ekki stríði.
Ekki er mikið vandað til um
frágang þessarar bókar, hvað
pappír og prentun snertir. Og
málið er ekki eins gott eins og á
sumu öðru, sem eg hef lesið eftir
Þorberg, en hún er skemtilega
aflestrar og fróðleg um þá hlið
þessara mála, sem lítt hefur verið
á lofti haldið. Þorbergur Þórðar-
son á þökk skilið fyrir þetta rit,
og þeir, sem hafa gaman af að
kynnast þessum málum geta tæp
lega fengið gleggra yfirlit í jafn
stuttu máli.
Þorberg Þórðarson
ii.
Edda Þorbergs Þórðarsonar.
Höfundurinn ritar all-langann
formála fyrir bókinni, og er þetta
upphafið: “Koll-leki Snorra
Sturlusonar færði í letur kennslu
bók handa skáldum órum.” Og
síðar í formálanum: “Bók sú,
er hér liggur í handriti — lið-
ugum sjö öldum síðar, er einnig
kennslubók, rituð handa skáld-
um órum.” Og ennfremur: “Þessi
bók kennir skáldum óruc, hvern-
ig tengja má við staði, hús og
herbergi merkilegar hugsanir,
einnig það, hvernig gera má til-
raun til að örva skynjun lesand-
ans á slíka bletti með því að
græða þá við hina lífrænu at-
burði í heimi andans. Þannig
lærist að skynja dýpt lífsins, að
heyra nið aldanna á hverjum
þeim stað, 1 hverjum þeim krók
og kima, þar sem vitað er, að
mannlegur heili hefur hugsað
merkilegar hugsanir, ort ljóð,
sagt sögu, málað mynd, samið
lag eða lyft huganum til háleit-
ari viðfangsefna. Slík skynjun
eftir auðlegð lífsins, fegrar lyrik
daganna. eykur fjarvíddir hins
sýnilega. Þetta ber þó ekki að
misskilja á þann veg, að eg telji
kvæði mín heyra yfirleitt til
þeirra hugsana, sem merkilegar
geti heitið.”
Þessari síðustu staðhæfingu
trúi eg ekki. Mér hefir fundist
drýldni og mikillæti höfundar-
ins, yfir þessari ljóða framleiðslu
sinni, stara framan í mig alla
leið frá nafni bókarinnar til graf-
skriftarinnar á síðustu blaðsíðu.
Þarf ekki annað en benda á upp-
hafsorð formálans, þar sem hann
tekur sér óboðið sæti við hlið
Snorra Sturlusonar. Og lýsir því
yfir að hann kalli “bók þessa
Eddu”. Hér er oflátungsháttur og
smekkleysi í dásamlegu jafnvægi.
Eg býst við að dýrkendum Þor-
bergs sjái þarna eina dásamlega
opinberun, markvissrar fyndni
sannleiksástar og hugrekkis, þar
sem hann nú slaungvar þessu
“upp í jórtrandi ginið á borgara-
legri hræsni”. Þeir um það, en
mér þykir ilt til þess að vita jafn
ágætt ljóðskáld og Jóhannes úr
Kötlum er, skuli eiga þátt í þess-
ari höfuð smekkleysu.
Eg hef lengi haft mætur á Þor-
bergi Þórðarsyni fyrir margar
bráðskemtilegar ritgerðir, sem eg
hef lesið eftir hann, og eins fyrir
hve vel hann hefur staðið fyrir
máli jafnaðarmennskunnar, því
eg trúi því að hugsjónir jafnaðar-
manna muni bjarga heiminum úr
því aungþveiti, sem hann er
k*ominn í, ef honum verður bjarg-
að. En ljóðagerð hef eg ekki þekt
fyr en nú að mér barst þessi
bók í hendur. Eg sá að vísu
“Hvíta Hrafna” fyrir löngu síð-.
an, en var ekki mikið hrifinn af
ljóðunum. Þó eg sé ekki öllu
samþykkur, sem Dr. Stefán
Einarsson segir í bók sinni um
Þorberg, þá finnst mér hann
hafi hitt naglann á höfuðið, með
því að láta skáldið reka lestina
í hinum þríeina titli (fræðimað-
ur, spámaður, skáld) er hann
sæmir Þorberg á fimtugsafmæli
hans. Þetta ber þó ekki að skilja
svo, að eg álíti að Þorbergur
hafi enga hæfileika 1 þá átt. Þó
allmikið sé af leirburði í bókinni,
er þó fleira, sem bendir til þess
að höfundurinn mundi hafa getað
orðið gott skáld ef hann hefði
lagt rækt við hæfileika sína til
ljóðagerðar. Hann er afburða vel
hagmæltur, þó ekki yrki hann
mikið undir dýrum bragháttum,
hefur skáldlegt málfar og ríkt
ímyndunarafl og er tilfinninga-
maður þrátt fyrir allan sinn galsa
og glannaskap. En það virðist
hlaupa einhverskonar öfugsnúð-
ur á skapferli hans og tilfinn-
ingar ef hann minnist á ljóð-
rænan kveðskap. Hann kveðst
ekki geta lesið eða hugsað til
slíks kveðskapar, jafnvel hinna
bestu skálda í þeirri grein, svo
sem Huldu og Guðm. Guðmunds-
sonar, án þess að fyllast viðbjóði
klígju og alskonar óværu, sem
svo svo snýst upp í “króniskan
nábít”. Þó er ljóðrænan svo rík
í honum sjálfum að hún brýst
út hvort sem hann vill eða ekki.
Hér eru nokkur dæmi:
Eg sat í kvöld við sæinn,
er síðasti geislinn dó,
og hlustaði, er haíaldan
hörpuna sló.
Eg sat í kvöld við sæinn,
og svipir birtust mér,
Bleikir undir bárum
þeir byltu sér.
Held eg að Hóseas heitinn hafi
með vegagerð sinni reist sér þann
minnisvarða, sem lengi mun end-
ast.
Hverri kynslóð ber skylda til
þess, að minnast með þakklæti
hvers verks, sem vel er unnið
af þeim sem farnir eru.
Það er viturlegt að hagnýta
sér trúlega uppfræðslu af við-
burðum ævinnar, og fara vel með
minningu þeirra manna, sem
maður hefir umgengist; þannig
veitast manni þau hyggindi, sem
í hag koma.
Þetta er bók reynslunnar, sem
skráð er atburðum ævinnar, og
sem geymir myndir þeirra, sem
menn hafa átt samleið með.
“Það verður á bók þessa svo var-
lega að skrifa,
sem veikur er fæddur og skamt
á að lifa.”
S. S. C.
Borgið Lögberg!
Þegar látið liggur
lík þitt í moldu
döggva skal eg tárum hin
deyjandi strá.
Sjást munum við sælli
svanni, á efsta degi
.hinumegin við höfin blá.
í nesjunum grænar grundir
gróa við lygnan straum,
og ljósálfar bjartir leiðast
um landið í sólardraum.
Þar svanasaungvar óma
sætt um dal og ver.
Þú heillast í dýrðardraumi
og dagarnir gleymast þér.
Og sorgar hélan svala
er sífelt amar mér,
kælir ei yl þeirrar æsku
sem elskar og dreymir hér.
Síðustu 3 vísurnar eru upphaf
á kvæði, sem heitir: “Nesin og
Siglufjörður.”
Frh.
Minningarorð
Hlýleg eru þau orð og mak-
leg, sem séra Egill Fáfms ritar
um Hóseas heitinn Jósephson, en
vegna þess að séra Egill mun
ekki hafa kynst honum fyrr en
um seinni hluta ævi hans, lang-
ar mig sem gagnkunnugum til
að minnast á eitt atriði; bið alla
hlutaðeigendur að taka það
ekki sem móðgunar atriði af
minni hálfu, því það er ekki til-
gangurinn.
Hóseas heitinn má heita braut-
ryðjandi; vann hann mikið að
vegagerð í suðvestur hluta
Argylebygðar, ef til vill víðar;
var eg með honum löngum.
Lagði hann svo mikla ástund-
un á að leysa verkið vel af
hendi, að hann lét það sitja fyr-
ir eigin hag; mun það fremur
fátítt.
Oft var erfitt að leggja beina
braut eftir vegastæðum, þar sem
voru skógar og foræði, á einum
stað ruddi hann breiða braut
gegn um þykkan skóg. Á öðrum
stað mældi hann veg svo nálægt
heimili bónda nokkurs, að bóndi
þóttist búa við skerðan hlut; alt
reyndist þetta þó rétt. Hann
gerði tröð yfir foræði vestah
við Baldurbæ, er var ófært með
öllu; er það hið mesta mann-
virki, um tvær til þrjár mann-
hæðir.
Á þeim árum þótti það hyggi-
legra að leggja vegi í bugðum
kringum hæðir, heldur en að
leggja þær beinlínis yfir bratt-
ann. Um þetta voru deildar skoð-
anir. Hóseas vildi engar króka-
leiðir. Nú er svo komið, að menn
sjá ekki eftir bifreiðum sínum
að klifa upp hallann, vilja það
miklu heldur en að vera að þræða
eftir krókastigum; veldur það
enda slysum ósjaldan.
Menn vilja reisa sér minnis-
varða á ýmsan hátt; háreistar
hallir hrynja til grunna með ár-
unum; bautasteinar mást fyrir
tímans tönn, sannast líka:
>
Legsteina las eg einatt á,
las eg að lægju menn þar góðir,
lesi það allar heimsins þjóðir,
enginn maður þekkir þá.”
En velgerðir vegir haldast við
um aldur og ævi; þeir mega
heita lífþræðir bygðra bóla, og
verðuf því að halda þeim við.
Business and Prc ifessional Cards
Drummondvifie CottonCo. LTD. 55 Arthur St., Winnipeg Phone 21020 Manufacturers of BLUENOSE Fish Nets and Sein Twines H. L. HANNESSON, Branch Mgr. MANITOBA FISHERIES WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla í heildsölu með nýjan og frosinn fisk. 303 OWENA ST. Skrifstofusími 25 355 Heimasími 55 463
(ltlei/ecs StuLctios £%d. (arftti Phofoycwihic OiffanifaiwnVi Canada •224 Notre Dame-
Blóm slundvíslega afgreidd THE ROSERY ltd. StofnaO 1905 427 Portage Ave. Winnipeg.
fHONE gMP m 96 647 *
G. F, Jonasson, Pres. & Man. Dir. S. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH CANADIAN FISH PRODUCERS. LTD. J. H. Page, Manapinp Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St. Office Phone 86 651. Res Phone 73 917.
•
H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfrœðingur 0 Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1658 Phones 95 052 og 39 043 Office Phone Res. Phone 88 033 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 166 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment
EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. tslenzkur lyfsali Fðlk getur pantaC metSul og annað með pósti. Fljðt afgreiösla. ANDREWS. ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON LögfrœOingar 209 Bank of Nova Scotia Bldg. Portage og Garry St. Simi 98 291
J. J. SWANSON & CO. limitED 308 AVENUE BLDG., AVPa. • Fasteignasalar. Leigja hús. TJt- vega penlngalán og eldsábyrgC. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. Phone 26 821 DR. A. V. JOHNSON Dentist 0 506 SOMERSET BLÐG. Telephone 88 124 Home Telephone 202 398
DR. B. J. BRANDSON 308 Medical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tlmar 3-4.30 • Heimili: 214 WAVERLET ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 0 406 TORONTO OEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 546 WINNIPEO
Legsieinar sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari SkrifiO eftir verOskri GILLIS QUARRIES. LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnlpeg, Man. A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezU. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími 86 607 Heimills talstmi 601 562
DR. A. BLONDAL Physician & Surgeort 602 MEDICAL ARTS BLDO. ' Slmi 22 296 Heimili: 108 Chataway Sími 61 023 DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum H 416 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 tll 5 Skrifstofusimi 22 251 Heimilissími 401 991
Frá vini ♦ Dr. S. J. Johannesson 215 RUBT STREET (Beint suður af Banning) Talslmi 30 877 • Viðtalstimi 3—6 e. h.
GUNDRY & PYMORE LTD. British Quality — Fish Netting 60 VICTORIA STREET Phone 98 211 Wlnnipeg Manager, T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreeiated
<$S <£> V