Lögberg - 30.03.1944, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. MARZ, 1944.
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c. ,
•
Samskot í útvarpssjóð
Fyrstu lútersku kirkju.
Helgi Vigfússon, Tantallon,
Sask. $2.00. Mr. og Mrs. E. Sig-
valdason, Baldur, Man. $1.00.
Jonas Helgason, Baldur, Man.
$1.00. Mr. og Mrs. Einar Johnson,
Steep Rock, Man. $3.00. H. J.
Thorgeirsson, Churchbridge.
Sask. $1.00. Árni Bjarnason, Ár-
borg, Man. $1.00. Mr. og Mrs.
Oscar Johnson, Vogar, Man. $2.00
Mrs. John Líndal. Lundar, Man.
$1.00. Mr. og Mrs. Joe Peterson
Árborg, Man. $2.00. Mrs. Guðrún
Sveinsson, Víðir, Man. $2.00. Jón
Magnússon, 1856 William Ave..
Wpg. $1.00. K. Gunnlaugsson,
The Narrows, Man. $1.00. Mrs.
Gunnþórun Gunnlaugsson, The
Narrows, Man. $1.00. Miss M.
Gunnlaugsson, The Narrows.
Man. $1.00. K. Goodman, The
Narrows, Man. $1.00. Mr. T.
Thorsteinson. The Narrows, Man.
$1.00. Mrs. Guðrún Magnússon,
Víðir, Man. $2.00. Mrs. Aldís
Péturssan, 624 Agnes St. Wpg.
$2.00. Mrs. Steina Hillman, og
fjölskylda, Bantry, N. D. $3.00.
Ónefnd kona, Gimli, Man. $1.00.
Mrs. Jóhanna Thordarson, Akra,
N. D.$1.00. Mr. og Mrs. S. Sigurds
son, Box 129, Lundar, Man. $1.00.
Mr. og Mrs. H. P. Tergesen,
Gimli, Man. $2.00. Mrs. Anna M.
Jónasson, Gimli, Man. $2.00. Mr.
og Mrs. J. R. Johnson, Wapah,
Man. $2.00. Mr. og Mrs. O. J. Ol-
son, Steep Rock, Man. $5.00.
Kærar þakkir,
V. J. E.
•
Séra V. J. Eylands og frú,
Grettir L. Jóhannsson konsúll og
Einar P. Jónsson ritstjóri Lög-
bergs fóru til Grand Forks á
mánudaginn, til þess að vera
viðstödd háskóla samkomu North
Dakota háskólans, þar sem herra
Sigurgeir Sigurðsson biskup var
aðal ræðumaðurinn.
•
Þjódræknisdeildin “Esjan” í
Árborg, hefir nú ákveðið að hafa
vísnasamkeppni innan deildar-
innar þann 23. apríl n. k. Efni
vísnanna “íslenzk tunga”, þrjár
eða fleiri ferskeytlur alls; send-
ist vísurnar til ritara félagsins
fyrir 10. apríl. Á fundinum þ. 23.
apríl verður einnig nýtt deildar-
blað á dagskrá, lesið af ritstjóra
þess V. Johannessyni. Verður
það óefað góð skemtun.
Festið þetta i minni.
•
Jóns Sigurðssonar félagið, I.
O. D.E. heldur fund, þriðjudags-
kvöldið, 4. apríl, á heimili Mrs.
K. J. Austman, Rupertsland Ave.
Til þess að komast þangað skulu
konur fara með North Main
strætisvagni númer 26, og alla
leið norður til Green Brier Inn.
Þar er farið af vagninum og
svo í áttina austur að.ánni.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur
776 Victor St.—Phone 29 017
Guðþjónustur á hverjum
sunnudegi.
Á ensku kl. 11 f. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir æfinlega velkomnir.
•
Lúterska kirkjan í SelkirU:
Pálmasunnudag.
Sunnudagaskóli kl. 11 áru
Ensk messa, kl. 7 síðd.
Allir velkomnir.
Sama dag messað í Lútersku
kirkjunni á Gimli, kl. 2 síðd.
S. Ólafsson.
íslenzk guðsþjónusta í
Vancouver.
Sunnudaginn 9. apríl kl. 3 e. h.
í dönsku kirkjunni á E. 19th Ave
og Burns St. Fulltrúanefnd og
djáknanefnd íslenzka lúterska
safnaðarins í Vancouver, verða
settar í embætti.
Hátíðarsöngur.
Allir boðnir velkomnir.
R. Mcrteinsson.
•
Sunnudaginn 26. marz messar
séra H. Sigmar á Mountain kl.
11 f. h. og í Péturskirkju við
Svold kl. 2 e. h. Báðar messur
þessar verða föstumessur.
Á Mountain messað á íslenzku
en í Péturskirkju á ensku.
•
Prestakall Norður Nýja is!anrt;
2. apríl—Framnes, messa ld.
2 e. h.
9. apríl—Árborg, íslenzk messa
kl. 2 e. h.
Riverton, ensk messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
•
Messuboð.
Pálmasunnudag 2. apríl.
Messa á íslenzku í Vídalíns
kirkju kl. 11 f. h. og í Eyford
kirkju kl. 2 e. h. einnig á íslenzku.
, 6. apríl ensk messa á Mountain
kl. 8 e. h. 7. apríl messa í Fjalla-
kirkju kl. 2 á íslenzku og messa
á. Hallson kl. 8 e. h. á ensku.
H. Sigmar.
•
Skúli Sigurgeirsson, cand.
theol. flytur guðsþjónustur að
Langruth á páskasunnudag, kl.
2 e. h. á íslenzku og kl. 7,30 e. h.
á ensku.
Þann 7. marz andaðist Oliver
Olsen, 907 Ingersoll St. á Grace
sjúkrahúsinu hér í borg, 67 ára
gamall. Hann var fæddur á ís-
landi en hefur verið 66 ár í þessu
landi, fyrstu 6 árin í Halifax en
síðastliðin 60 ár í Winnipeg.
Ásamt konu hans Björgu lifa
bann sonur, Oliver B.; dóttir, Mrs
K. B. Sigurðsson, bæði til heim-
ilis í Winnipeg og fjögur barna-
börn. Jarðarförin fór fram frá
útfararstofu A. S. Bardal á föstu-
daginn 10. marz, og var hann
lagður til hvíldar í Brookside
grafreit.
•
Mr. Oddur H. Oddson bygg-
ingameistari frá Chicago, sem
dvalið hefir hér um slóðir og
norður við Winnipeg-vatn í hálf-
an þriðja mánuð, lagði af stað
heimleiðis á laugardaginn var.
| The Royal (anadian Navy |
I NEEDS YOU I
NOW !
if The Royal Canadian Navy neéds an unlimited number of :
! seamen and stokers. Recruiting is being continued, however, ,
I in all other branches. !
! -y Applicants previously turned down for minor medical reasons,
) will be reconsidered for shore duty.
SF-E tiif: recruiting officer immediately at
II.M.C.S. CHIPPAWA
51 SMITH STREET, WINNIPEG ■
This space contributed by THE DREWRYS LIMITED
{ MD124 j
Ein af deildum Kvenfélags
Fyrsta lúterska safnaðar, heldur
Silver te og sölu á heimatilbún-
um mat af ýmsu tagi, í samkomu-
sal kirkjunnar á föstudaginn 31,
þ. m., bæði síðari hluta dags og
að kvöldinu. Maturinn, sem
þarna verður til sölu, er margs-
konar og til hans vandað sem
bezt má verða. Hér verður tæki-
færi að fá sér góða rúllupilsu
og lifrarpilsu og margt fleira
góðgæti. Auk hagnaðarins af
matarkaupum verður þarna á-
gætt tækifæri að finna kunn-
ingjana við kaffiborðin og tala
við þó, sjálfum sér og þeim til
skemtunar.
Munið að þetta er á föstudag-
inn í þessari viku, hinn 31. marz.
•
Carl Thorvaldson, 21 árs, er
nýkominn heim úr herþjónustu
utanlands og er nú í Fort Osborne
Barracks. Hann gekk í herinn í
maí 1942. Móðir hans, Mrs.
Johann Thorvaldson býr í Sel-
kirk.
Lokasamkoma Laugardagsskól
ans í Winnipeg verður haldin 6.
maí. Nánar auglýst síðar.
•
Islendingar í Norður Nýja Is-
landi, eru að undirbúa verulega
stórhátíð í tilefni af lýðveldis-
stofnun Islands. Fer hátíð þessi
eða íslendingadagur fram að
Hnausum þann 17. júní næst-
komandi. Undirbúningur mikill
að hátíðahaldi þessu er þegar
hafinn undir forustu fjölmennr-
ar nefndar. Forseti hennar er Mr.
B. J. Lifman.
íslendingar í Winnipeg halda
Islendingadag sinn venju sam-
kvæmt á Gimli 2. ágúst næstk.,
og koma þar saman eins og að
undanförnu margar þúsundir
manna og kvenna; er hin ötula
nefnd þessa hátíðahalds, vel á
veg komin með alla skipulagn-
ingu. Forseti íslendingadagsins
er Mr. Hannes Péturson.
Icelandic Canadian Club.
A meeting of the Icelandic
Canadian Club was held in the
Antique Tea Room, Sunday night
March 19. Th? president, Hólm-
fríður Daníelson informed the
meeting that the Most Reverend
Sigurgeir Sigurðsson, Bishop of
IceTand had asked her to convey
to the Club his warmest greet-
ings and his sincere appreciation
for the honor the club had con-
ferred upon him bv presenting
him with a life membership
scroll. He wishes the Club every
success in its efforts to further
Icelandic culture in this country.
Mr. A. G. Eggertson, K.C.,
gave a very gratifying report on
the Icelandic Canadian concert
of Feb. 21. Dr. Árni Helgason
hand graciously come from Chic-
ago and shown the delightful col-
ored film of Iceland; this he did
without the Club having to incur
any expense. The Club is donat-
ing the proceeds of the concert
to the Jón Sigurðsson Chapter,
I.O.D.E.
Rev. Halldór Johnson gave
very interesting and informative
lecture, “Iceland’s Struggle for
Independence”, A hearty vote of
thanks to the speaker was moved
by Mr. A. G. Eggertson, K.C.
The meeting was very well
attended and members enjoyed a
social hour, coffee and cookies
served by the Social committee,
so ably convened by Mrs. Couch.
•
Hið eldra kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar, heldur fund í
samkomusal kirkjunnar á fimtu-
daginn þann 30. þ. m., á venju-
legum tíma.
•
Mr. og Mrs. Th. Pálsson frá
Hecla, Man., komu til borgarinn-
ar á mánudaginn og búast við
að dvelja hér í vikutíma.
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRAM YÐAR
Gaman og alvara
Náttúrufræðingurinn Thoreau
lá á banasænginni. Guðhrædd
frænka hans spurði: “Henry,
ertu sáttur við Guð ”
“Eg veit ekki til að við höfum
nokkurntíma orðið ósáttir,” svar-
aði Thoreau.
Jón skáld Jónatansson kom
eitt sinn í Vigur til sr. Sigurðar
alþm. Stefánssonar og orðaði við
! prest að gott væri nú að fá í
(staupinu. En prestur kvað það
nú dýrt, því nú væri á því hár
tollur. Þá kvað Jón:
Nú er tollur öllu á
íta þrengir sporum
það óhollum þakka má
þinga gengjum vorum.
Og í staupinu, fékk hann áreið-
anlega, því klerkur var risnu-
maður mikíll. -
í borginni Cleveland í Ohio
var haldin umferðarvika. Útvarps
stöð ein fann upp á því snjall-
ræði að láta mann með hljóð-
nama elta bíla, sem óku of h.catt.
og þegar bílarnir voru stöðvaðir,
var samtali ekils og lögregluþjóns
útvarpað. Umferðarvikan bar
ágætan árangur.
SEEDTIME@f
cuyui
HARVEST'
By
DR. K. W. NKATBY *
Director
Line Elevators Farm Ser*/ic#
4»
A New Bulletin
Line Elevators Farm Service
have the enviable distinction of
having published the first Cana
dian bulletin devoted entirely to
the problem of water erosion of
soils. This was Bulletin No. 1.
In less than three years, 50,000
copies were distributed. It has
now been out of print for about
a year. The urgency of the
problem is fully recognized in
government circles, and several
Dominion Experimental Stations
have, for some years, been
coriducting experiments on con-
trol methods.
Bulletin No. 1 was concerned
chiefly, with drawing public
attention to the problem itself
and very little space was devoted
to control.
Bulletin No. 4 is now ready for
distribution. It is entitled “Water
Erosion of Soils in the Prairie
Provinces and Its Control.” Mr.
L. B. Thomson, Superintendent.
Dominion Experimental Station,
Swift Current, and his staff, have
offered invaluable advice and
assistance in the preparation of
the manuscript. The bulletin has,
also, benefited immeasurably
from critieisms and suggestions
made by Professor John Mitch-
ell, University of Saskatchwan,
Mr. W. D. Albright, Dominion
Experimental Station. Beaver-
lodge, and Mr. M. J. Tinline,
Dominion Experimental Farm,
Brandon.
The information published is,
therefore, authoritative. Farm-
ers, country school teachers and
their students may secure copies
through Line Elevator agents or
by writing directly to Line
Elevators Farm Service, Grain
Exchange Building, Winnipeg, or
Herald Building, Calgary.
Wartime Prices and
Trade Board
Hrosshár.
Nú þegar fer að vora og hross
fara að ganga úr hárum eru
bændur ámintir um að safna öllu
fax og tagl hári og koma því á
markað sem fyrst.
Besta hrosshár sem fæst er frá
Vestur-Canada. Það er afar nauð-
synlegt á stríðstímum. Það er
notað í byssubursta, flugvéla
sæti, skriðdrekasæti, matressui
handa sjóhernum og fleira.
Árið 1941 framleiddi Canada
880.000 pund, 75 U af þessar.
upphæð var frá Vestur-Canada.
Árið sem leið fékst ekki nema
450.000 pund. Ef framleiðsla e.
ekki aukin að mun er hætt við
að það verði nauðsynlegt að
kaupa hár frá Suður-Ameríku.
með mjög háu verði.
Bændur eru því beðnir a 5
halda saman öllu sem fæst. Það
er langbest að hafa tvo poka vií
hendina, annan fyrir faxhár og
hinn fyrir taglhár. Verð á góðu
hrosshári er frá 30 centum og
upp í fimtíu cent pundið. Það
er selt til þeirra sem verzla með
húðir og ull.
Spurningar oa svör.
Spurt. Er það ennþá nauðsyn-
legt að skila notuðum tannsápu
og raksápu hólkum, þegar mað-
ur kaupir nýja.
Svar. Það er ekki lengur fyrir-
skipað, en fólk er beðið að skila
þeim. Einnig að leita hjá sér og
skila öllu sem finnst af gömlu
hylkjunum. Það er miklu meira
tin í gömlu hólkunum en þeim
nýju. Tin er sérstaklega verð-
mætur málmur á stríðstímum og
því áríðandi að alt sé notað sem
hægt er að finna.
Spurt. Fyrir nokkru keypti eg •
dálítið glas af jam fyrir tíu cent
og varð að láta af hendi D seði1
fyrir. Er hægt að heimta af
manni heilan seðil fyrir svona
lítið glas?
Svar. Það fást tólf únzur af
jam eða jelly með hverjum D
seðli. Þú hefðir getað keypt fleiri
smáglös og fengið þannig alt sem
seðillinn útheimti ef þú hefðir
viljað. Það má engin selja skamt-
aðar vörur án þess að innheimta
seðla. Kaupmenn geta ekki tekið
part af seðli og verða því að
taka heilan seðil hversu lítið sem
keypt er.
Spurt. Stundum finnum við
skömtunarbækur sem hafa
gleymst í búðinni hjá okkur.
Hvað eigum við að gera við þær
ef enginn fyrirspurn er gerð viðr
víkjandi þeim?
Svar. Það á að skila slíkum
bókum á næstu skrifstofu Local
Ration Board eða til Ration
Administration.
Spurt. Hvar geta gcstir frá
Bandaríkjunum fengið skömtun-
arbækur?
Svar. Á Local Ration Eoar 1
skrifstofunni, sem þeim er ná-
lægust. Þeir fylla út umsóknar-
eyðublað og fá svo bráðabirgðá-
skömtunarspjald.
Spurningum á íslenzku svarað
á íslenzku af Mrs. A'lbert
Wathne, 700 Bannir.g St. Wpg.
| Þorsleinn Þ. Þorsleinsson: j
1 v / i
i Saga íslendinga í j
Vesturheimi
í
II. bindi ,
i Bókin, sem enginn þjóðraek- j
| inn íslendingur má án vera. j
i Kostar í ágætu bandi aðeins j
| $4.00, auk 15 centa burðar- j
gjalds. j
j
Fæst hja j
COLUMBIA PRESS, LTD., j
695 Sargeni Ave.
j eða hjá
J. J. SWANSON.
308 Avenue Building,
j Winnipeg
The Swan Manufacturing Co. Manufacturers of SWAN WEATHER-STRIP Winnipeg. Halldór Methusalems Svvan Eigandi 281 James Street Phone 22 641
Most
Suits - Coats
Dresses
“Cellotóne” Cleaned
72c
CASH AND CARRY
For Driver Phone
37 261
Perth’s
Cleaners-Launderers-Furriers
888 SARGENT AVE.
Merkar bækur
Alþingishátíðin 1930, eftir Magnús Jónsson prófessor.
Bókin er að stærð 10x7Ú2 og er 386 blaðsíður, með yfir
200 myndum og uppdráttum. Fræðandi og skemtileg bók,
sem allir er geta ættu að eignast. Verð í kápu $18,50
Verð í bandi 20,50
Afangar, eftir próf. Sigurð Nordal. Þar í “Líf, og dauði”
ásamt ýmsum ritgerðum og fyrirlestrum. Bókin er 9x6 að
stærð og er 293 blaðsíður. Verð í kápu 12,50
Verð í bandi 14,00
Sannýall, eftir Dr. Helga Péturs. Stærð 8x6, og er 256 bls.
Verð í kápu 3,75
Verð í bandi 4,50
Takmarkað upplag af tveim síðarnefndu bókunum.
BJÖRNSSON’S BOOK STORE
702 Sargent Ave. — Winnipeg
FUEL USERS:
We are glad to be able to advise our numerous customers that
our Fuel stocks are more complete than they have been for
some time. Below we name some favorites but we also have
many others.
DOMINION COBBLE
DRUMHELLER LUMP
GREENHILL FURNACE
FOOTHILLS LUMP
SAUNDERS CREEK
POCOHONTAS SCREENED NUT
CARBO BRIQUETTE
STEELTON PEA COKE
Per ton $ 7.20
Per ton 13.10
Per ton 14.00
Per ton 14.10
Per ton 15.25
Per ton 15.20
Per ton 16.20
Per ton 12.50
ll/rCpURDY CUPPLY pO. Ltd.
ItJ. BUILDERS’ O SUPPLIES and COAL
PHONE 23 811 — 23 812 1034 ARLINGTON ST.