Lögberg - 22.02.1945, Síða 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN. 22. FEBRÚAR, 1945
Við dauðans dyr
Fangavörður segir frá.
Ungur maður hafði verið
dæmdur til dauða. Hann átti að
fara í rafmagnsstólinn eftir fá-
einar klukkustundir. Kona hans
var komin til að kveðja hann.
Hún var ung, fátæklega til fara
og rauðeygð. Tveggja ára son-
ur þeirja hjóna var í fylgd með
móður sinni. Hann ríslaði sér í
mesta sakleysi á klefagólfinu og
fálmaði eftir sólargeislunum,
sem laumuðust inn um gluggann
milli stálrimlanna.
Fanginn hélt í hönd hinnar
ungu konu, sem verið hafði unn-
usta hans fyrir röskum tveim
árum. Þau ræddu ekki um hinn
mikla harmleik er þau höfðu nu
gerzt hluttakendur í, og heldur
ekki um gamlar minningar, er
liðu fyrir hugskotssjónir þeirra
á þessari miklu alvörustund. Þau
röbbuðu aðeins um hversdags-
lega hluti, m. a. það, að dreng-
urinn þeirra hefði kvefazt, kunn-
ingjar þeirra hefðu skipt um at-
vinnu o. s. frv. — Konunni varö
litið' á hönd manns síns. Þar
var lítið sár. Hún greip tösku
sína og hjóst til að binda um
sárið. En allt í einu rankaði
hún við sér: Til hvers var að
eiga við slíkt. Á morgun mundi
það engu máli skipta, hvort þessi
hönd værí særð eða heil. Hún
lokaði töskunni sinni hvatlega og
snýtti sér. “Eg er viss að fá
kvef,” sagði hún. — Þessu atviki
gleymdi eg aldrei, segir fanga-
vörðurinn.
En svo eru önnur atvik frá
miklum alvörustundum, sem
geta jafnvej komið manni til að
brosa. Eg man m. a. eftir einu:
Maður nokkur hafði framið
morð. Hann beið aftökú sinnar,
og lögfræðingur hans var hjá
honum. Maðurinn hafði líftryggc
sig fyrir 2000 dollurum. Helm-
inginn af þeirri fjárhæð átti lög-
fræðingur hans að fá; afgangin-
um mátti hann sjálfur ráðstafa
eftir vild. Góða stund var hann
Kaupið . . .
STRÍÐSSPARNAÐAR
SKÍRTEINI
Macdonald
SHOE STORE LIMITED
492-4 Main Street
“You are as Young as your feet”
í vafa, hvernig hann ættl að ráð-
stafa þessari fjárhæð. Þá var
honum sagt, að kona hans væri
komin til að kveðja hann. Fyrir
nokkrum vikum hafði hún yfir •
gefið hann og tekið saman við
annan mann. Fangann grunaði,
að koma hennar í fangelsið staf-
aði hvorki af sorg né iðrun, held-
ur væri hún beinlínis þangað
komin vegna peninga hans. Hann
ákvað því að gera þá ráðstöfun,
að blóm skyldu keypt fyrir 1000
dollara til skreytingar á líkkist i
hans daginn eftir. Að því búnu
kvaðst hann deyja í fullkominni
sátt við lífið og tilveruna.
Samtíðin.
— Ef skólastjórinn tekur ekki
aftur það sem hann sagði við mig
í morgun, þá neyðist eg til þess
að fara úr skólanum.
— Það er bara svona. Hvað
sagði hann við þig?
— Hann vísaði mér úr skóla
Við óskum íslendingum til gœfu og gengis
á þjóðræknisþingi þeirra, sem í hönd fer, og
ef þér skylduð þurfa eitthvað, sem til hljóm-
listar heyrir, þá höfum vér gnægð slíkra hluta
með sanngjörnu verði.
383 Portage Ave. — Winnipeg — Phone 95 474
Vér bjóðum erindreka
hjartanlega velkomna
á 26. ársþing Þjóðrœknisfélags íslendinga í Vesturheimi.
Fyrsta flokks hótel, samkvæmt evrópisku fyrirkomulagi.
Sanngjarnt verð. Gufuhituð herbergi.
OXFORD HOTEL
216 Notre Dame Avenue
Winnipeg
Robert Sverre Rodvick, forstjóri
í fyrradag var mér sögð saga
af ekta prófessor. Hann leit á
hárburstann sinn en ætlaði að
líta í spegilinn. Og svo sagði
hann:
— Eg þarf víst að raka mig
í dag.
— Það er mikil furða.hve lítið
fólk veit. Þekkir þú til dæmis
“sjö furðuverk veraldarinnar?”
— Nei, ekki nema eitt þeirra
— fyrri mann konunnar minn-
ar.
WINGS CAFE
692 SARGENT AVE. — — SÍMI 37 464
Geo Chaplin, eigandi
Viðurkent fyrsta flokks matsöluhús
Býður erindreka velkomna á ársþing Þjóðræknisfélags
íslendinga í Vesturheimi 1945
Kol! Kol! Koi!
Hrein, hitamikil, vel útilátin.
Pantanir afgreiddar fljótt og vel.
WINDATT COAL COMPANY
UMITED
307 Smith Street. Winnipeg. Phone 97 404
The Old Reliable
Kallið Jón Ólafsson, umboðsmann, til þess að vera viss.
HEIMASÍMI 37 340
/^NSS er það sérátök ánœgja, að bjóða velkomna erindreka á
w 26. ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Veáturheimi,
sem haldið verður senn í Winnipeg, og vér vonum, að
dvöl þeirra hér verði þeim til ógleymanlegrar ánægju. Meðan
áminátir erindrekar dvelja í Winnipeg, vœntum vér þess, að
þeir fœri sér í nyt bœði Eaton’s Mail Order á Donald Street,
og smásölubúð vora, sem svo er vel í sveit sett á Portage Ave.
Stórir og loftgóðir borðsalir, vingjarnlegar setuátofur og vin-
gjarnlegt afgreiðslufólk, átuðlar að því að gera yður heimsókn-
ina eftirminnilega.
^T.EATONC^teo
WINNIPEG CANADA