Lögberg - 15.03.1945, Page 1

Lögberg - 15.03.1945, Page 1
— • ' PHONE 21374 A Complete Cleaning Institution 58- ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. MARZ, 1945 PHONE 21374 V\W«Y' Lou«<ifrerS iot prV A „rs <ln<l Cteon LÚVCÖ r stora^ A Complete Cleaning Institution NÚMER 11 Gjörvuleg lœknishjón Á myndinni hér að ofan, getur að líta ungu læknishjónm þau Dr. Dallas Medd og frú hans; frú Medd var fyrir gift- ingu sína May Isfeld hjúkrunarkona; hún er dóttir þeirra Ericks A. ísfeld forstjóra og frú Bjargar ísfeld píanista, 668 Alverstone Street í þessari borg. Um átta hundruð manns sottu þingslitasamkomu ^jóðrœknisfélag sins í Fyrstu lút. kirkju Svo var mannmargt við þing- slitasamkomu Þjóðræknisfélags- i Fyrstu lútersku kirkju, að Veldi þess 28. febrúar, s. 1., að ekki var viðlit, að fleiri kæmust að; þótti samkoman takast yfir 6fuð hið prýðilegasta; fyrri mta skemtiskrár stýrði vara- °rseti félagsins, séra Valdimar ' Eylands, en þeim síðari, for- seti þess, Dr. Richard Beck. Á móti þessu flutti hr. Árni • Eylands frá Reykjavík, langt fróðlegt erindi um þróun ^ndbúnaðar á íslandi, og ný- , _Pun á vettvangi atvinnumála Pjóðarinnar. Mr. Jón J. Bíldfell ^ upp Þjóðræknisdrápu S. B. euedictssonar skálds í Lang- ruth, sem Lögberg birti í vikunni Sem leið. Sú hefð hefir komist á, að Sl®asta þingkveldið kysi þjóð- laeknisfélagið heiðursfélaga, og Var sve einnig gert í þetta sinn; samkvaemt uppástungu frá séra r§urði Ólafssyni, studdri af Ás- ^undi P. Jóhannsyni, voru eftir- §reindir menn kjörnir heiðurs- felagar: Einar Jónss0I1) myndhöggvari ^ra Galtafelli, Vilhjálmur Þór, yrverandi utanríkisráðherra, og 1 Jónsson ritstjóri Tímarits Jóðraeknisfélagsins, sem jafn- i ram’t hefir verið endurkosinn til þess starfs. Það hafði verið auglýst fyrir ug> að á þingslitasamkomunni yrði sýnd kvikmynd Lofts Guð- mundssonar af hátíðahöldunum a Ingvöllum og í Reykjavík, í tilefni af lýðveldistökunni í s. 1. júní mánuði, og höfðu því margir hugsað gott til glóðarinnar, og hlakkað mjög til sýningarinnar; þeir urðu heldur ekki fyrir von- brigðum, því myndin er yfir höfuð tilkomumikil, fróðleg og fögur; meðan á sýningunni stóð, voru víst margir viðstaddir með hugann allan heima. Dr. Beck skýrði myndina, og dró með orð- um sínum, að minsta kosti að engu leyti úr áhrifagildi hennar. Þetta kveld, eins og raunar öll hin samkomukveldin, var um alt hið ánægjulegasta, og bar á sér sannan þjóðræknisblæ. LÆKNAR HEFJA STRtÐ GEGN ÁFENGISEITRI Fræðslustarfsemi um áhrif áfengis og baráttu gegn því hófu læknar á félagsfundi í Montreal 5. þ. m. Læknafélagið samþykkti til- lögu þess efnis að skora á Maurice Duplessis forsætisráð- herra í Quebec-fylki að gerast foringi þeirrar hreifingar; að krefjast þess að áfengislögunum verði vægðarlaust framfylgt og að stjórnin fækki vínsölustöðum í Montreal eins mikið og hægt er. Dr.Paul Letondal, forseti læknafélagsins lýsti því yfir að áskorunin hefði verið samþykkt í einu hljóði. Hann skýrði frá því að drykkjuskapur færðist svo í vöxt í Quebec-fylki, að til vand- ræða horfði. Kvað hann áfengís- nautnina eiga mikinn þátt í hinni ægilegu útbreiðslu tæringar og kynferðissjúkdóma; hann bætti því við að af hennar völdum sköpuðust fátækrahverfi með allri þeirri eymd, sem þeim fylgdi. Hann kvaðst einnig verða að lýsa því yfir að áfengisnautn væri völd að margskonar melt- ingari og tauga sjúkdómi og ein aðal orsökin að vitfirring og van- skapnaði. Sig. Júl. Jóhannsson, þýddi úr Free Press. Kveðjuskeyti Prof. Richard Beck, Forseti Þjóðræknisfélags íslend- inga í Vesturheimi, Winnipeg. Herra forseti, góði vin: Þar sem eg veit, að á þjóð- ræknisþinginu, sem nú situr í Winnipeg, mörg hundruð Islend- ingar koma saman í hinu göf- uga starfi sínu fyrir eflingu og viðhaldi hinna andlegu banda við ísland, vil eg biðja þig að færa þeim öllum mínar beztu kveðjur og heillaóskir fyrir þessu glæsilega starfi ykkar, sem hefur svo mikla þýðingu líka fyrir okk ur sem búum á heimalandinu. Eg fann svo vel er eg heimsótti ykkur og dvaldi hjá ykkur þessa tvo ógleymanlegu mánuði, hve ísland á mikil ítök í hugum ykk- ar, gömlum og ungum, og eg fann í þeim innilegu og stór- kostlegu móttökum, er þið veitt- uð mér, hjarta íslands opnast á mó'ti mér, á öllum þeim stöðum, sem þið komuð til móts við mig, til að heyra íslenzk ljóð og ís- lenzk lög á hinu söguríka máli okkar, hinni íslenzku tungu. Eg vil því biðja þig, hefra forseti, að færa hinum mörgu vinum mínum í Winnipeg, í Mountain og Garðar og í Grand Forks — og á Lundar — og gamla fólkinu á Betel, öllum, sem stóðu að því að gefa mér þessi ógleymanlegu augnablik til geymslu og til æ- varandi gleði á komandi árup — þakkir mínar fyrir þessar gleði- stundir er við komum saman. Eg held eg hafi mælt rétt er eg sagði í samkvæmi “The Icelandif' Canadian Club” að eg skildi þvi þið hylltuð mig og heiðruðuð — að það var af því — “að þið Vestur-íslendingar — gamlir og ungir væruð allir ástfangnir —. og að eg kæmi frá unnustunni —• frá íslandi”. Verði svo altaf. Megi ísland og hið unga lýð- veldi alltaf leysa sitt sögulega hlutverk í heiminum þannig — að þið haldið áfram að unna'og elska Island eins og þið hafið alltaf gert. Megi frá íslandi allt- af koma straumar til ykkar er eldi hugann og glæði hugsjónirn- ar og geri ykkur stolta af að hafa ættartengsli ykkar við sögu- eyjuna. Vona eg brátt séu á enda ógnir þessarar styrjaldar, og að fórnir þær er þið hafið gefið til endur- reisnar heiminum megi færa ykk ur frið, hamingju og réttlæti og Canada og Bandaríkin njóti langra friðartíma. Lifi þá einnig og þróist þjóðræknisstarfsemi íslendinga, megi forsjónin leiða göngu íslendinga hvar í heimi þeir ferðast, aldrei alveg úr vegi hugans eða hjartans — frá ís- landi. Með vinsemd og virðingu, Eggert Stefánsson. New York 14. febr., 1945. Herra Guðmann Levy, forseti Frón, Winnipeg, Canada. Herra forseti: íslendingafélagið í New York, færir íslendingafélaginu Frón, hugheilar hamingjuóskir, í til- efni af aldarfjórðungs starfi til varðveitingár íslenzkrar menn- ingar. Megi guð blessa, og íslenzka Fjallkonan halda verndarskildi sínum yfir starfsemi félags yðar á komandi árum. F. h. íslendingafélagsins í New York Óttarr Möller, forseti. New York, 14. febr., 1945. Herra Richard Beck, forseti Þjóðræknisflags ísl. Winnipeg, Canada. Herra forseti: íslendingafélagið í New York, sendir þingi Þjóðræknisfélags Is- endinga, beztu kveðjur, með ósk um gæfu og gengi á komandi árum. F. h. íslendingafélagsins í New York, Óttarr Möller, forseti. Evanston, 111., 21. febr., 1945. Próf. Richard Beck, Forseti Þjóðræknisfélags íslend- inga í Vesturheimi. Kæri Mr. Beck: Þá er nú komið að þeim tíma er þið haldið hið árlega þing Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi. Það er æfinlega stórviðburður ár hvert á meðal okkar Vestur-íslendinga. Eg eg væri nær mundi eg sitja það á hverjum vetri, en því miður haml ar því fjarlægð og ýmsar aðrar ástæður. Eg sendi því hér með innilegar kveðjur til þingsins frá mér per- sónulega og einnig frá Islendinga félaginu Vísir í Chicago og ósk um ávaxtaríkt verk í framtíðinni eins og að undanförnu. Þinn með vinsemd og virðingu. S. Árnason, forseti. Vancouver, B.C., 12. febr. ’45 Dr. Beck, Grand Forks, N.-Dak. Kæri vinur: Eg skrifa þér þessar línur fyrir hönd Þjóðræknisdeildarinnar Grund í Argyle, til þess að þakka þér og Þjóðræknisfélaginu fyrir lagið Isafold og Hátíðaljóðin, sem deildinni voru send. Kærar þakk- ir til þín og félagsins fyrir send- inguna. Þá vil eg einnig tilkynna þér í sambandi við umburðar- bréf ykkar í sambandi við breyt- ing á þingtíma að eftirfylgjandi samþykktir voru gjörðar hjá okkur á fundi, sem deildin hélt 18. jan. s. 1., í Glenboro. “G. J. Oleson og A. E. John- son: Að deildin sjái engann hag í því frá neinu sjónarmiði að .breyta þingtímanum.” Breytingartillaga Th. Swanson og G. S. Jphnson: “Að fundur- inn álíti vorið hentugri tíma fyrir þingið.” 3 greiddu atkvæði með breyt- ingartillögunni, en margir móti, nokkrir greiddi ekki atkvæði. Aðaltillagan var þá borin upp og samþykkt, 18 með 2 á móti. Mátti því heita að fundurinn væri ein- róma á móti því að þingtíma væri breytt. Við kusum erindreka á Þjóð- ræknisþingið á fundinum í Glen- boro, þann 18. jan., annars hefur deild okkar verið fremur að- gjörðalítil á árinu og engin af- rek eru frá henni að segja, við kusum góða nefnd á fundinum til að skrifa upp meðlimi fyrir næsta ár. Með bestu óskum til þín og þinna, og svo til Þjóðræknis- félagsins og í hönd farandi þings. Þinn einlægur. G. Oleson, skrifari. NÝTT SIGURLÁN Útboð nýs sigurlásn í Canada, hefst í apríl-mánuði næstkom- andi, og er ákveðið að upphæðin nemi einni biljón og þrjú hundr- uð og fimmtíu miljónum dollara; er þetta stærsta lántakan, sem nokkru sinni hefir verið farið fram á í sögu hinna canadisku þjóðar. FJÖLSÓTT SAFNAÐARSAMKOMA Á mánudagskvöldið þann 5. þ. m., var haldin afar fjölmenn safnaðarsamkoma í Fyrstu lút. kirkju, fyrir atbeina forseta safn- aðarins, Mr. G. F. Jónassonar, í samræmi við safnaðarráð. Mr. Jónasson stýrði fundi, og skýrði fyrir þeim, er hann sóttu, athafn- jr safnaðarráðs á síðastliðnum tólf mánuðum, svo sem um marg- háttaðar umbætur á kirkjunni, er ekki hefðu þolað lengri bið; benti hann jafnframt á eitt og annað með ljósum rökum, er frekari umbóta þyrfti við, og taldi það reynast myndi söfn- uðinum þeim mun affarasælla, þess fyr, sem að slíku væri unn- ið; seinna á fundinum kom það drengilega í ljós með ríflegum fjárframlögum, hvert traust safn aðar meðlimir bera til forseta síns og safnaðarráðs í heild. Sam kvæmt uppástungu frá Hjálmari A. Bergman háyfirdómara, var safnaðarráðinu greitt með fögn- uði einhljóða þakkaratkvæði, og því faldar framkvæmdir allar, fyrir safnaðarins hönd; aðrir, sem til máls tóku, voru A. S. Bardal, S. O. Bjerring, J. G. Johannson og Asmundur P. Jóhannsson. Stutt skemtiskrá var um hönd höfð, og samanstóð hún af fiðlu- spili Allans Beck, stúlknakór, er ungfrú Ingibjörg Bjarnason stýrði, og myndasýningu undir umsjá A. S. Bardal. Að því loknu var sezt að kaffidrykkju. Or borg og bygð The “Juniorettes” of the First Lutheran Church, Victor St., will hold a shamrock Tea on Fri- day, March 16th from 8 to 10.30 p. m. in the lower auditorium. of the church. A musical programe will be rend- ered, also novelties made by members of the Club will be sold. • Nýlega eru komnir hingað frá höfuðborg íslands, tveir ungir menn, þeir Kristján Einarsson og HEFIR SÉÐ SITT AF HVERJU P.O. John Thompson Þessi gerfilegi ungi maður, P. O. John Thompson, er sonur þeirra Mr. og Mrs. Einar Thomp- son að 234 Burnell St., hér í borg- inni; hann hefir verið fyrir skömmu sæmdur Distinguished Flying Cross. Nú er komið á þriðja ár síðan P.O. Thompson innritaðist í canadiska flugher- irjn; hann tók þátt í loftorustu yfir Þýzkalandi og yfir ýmissum löndum hinna hernumdu þjóða; sem stendur, starfar P.O. Thomp- son við flugæfingaskólann á Gimli; tveir bræður hans eru einnig í herþjónustu, Cpl. Thorn- ton í flughernum. og Petty Officer Magnús, í R.C.N.V.R. Höskuldur Þorsteinsson, til náms við flugskóla Konnies Johannes- sonar; piltar þessir eru báðir ætt- aðir úr Reykjavík. The Junior Ladies’ Aid of the First Lutheran Church will hold a regular meeting in the church parlors, Tuesday, March 20th, at 2.30 P. M. It is important that all members attend this meeting. © KOMINN AUSTUR YFIR RIN Ameríski herinn er kominn austur yfir Rín, og hefir á bökk- um árinnar náð haldi á eitthvað um 60 fermílna landspildu; hann fór yfir ána við Remagen og not- aði hina svonefndu Ludendorf brú, sem Þjóðverjum hafði ekki unnist tími til að sprengja upp í tæka tíð. Afmœlisvísur um sjálfan mig (Til skáldanna). Litur grár í vöngum vex, versnar andans klaki; áratugi á eg sex orðið mér að baki. Eg er orðinn mest til meins, megna fátt að styrkja, heldur ekki nú til neins nema helzt að yrkja. Til þess sárt eg tíðum finn hve tókst mér fátt að skrifa; hann var bundinn hugurinn við hitt að reyna að lifa. \ Að eiga barna ærinn fans V oft er mörgú að sinna; fæða og klæða fjórtán manns fanst mér nóg að vinna. Reyndist mér um runnið skeið réttnefnd vina kveðja; við eyktamót á ævileið mig allir vilja gleðja. 1 annars hjarta að rækta rós, er réttan hug að sýna. Þið hafið reynt að láta ljós lífs á veg minn skína. 14. febrúar, 1945 F. P. Sigurðsson.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.