Lögberg - 24.05.1945, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. MAÍ, 1945
“Buchenwald”
Útvarpserindi, eftir Hon Major General George P. Vanier
sendiherra Canada í Frakklandi.
Lauslega þýtt af Jónbirni Gíslasyni.
Þriðjudaginn 1. maí, hélt sendiherrann eftirfarandi ræðu
yfir útvarpið frá París. Umræðuefni og orðaval var slíkt,
að mig fýsti mjög að ná í erindið til þýðingar. Eg spurðist
fyrir um handritið hjá C.K.Y. útvarpsstöðinni, en fékk enga
úrlausn. Eg skrifaði því The Canadian Broadcasting
Corporation í Toronto og sagði þeim að mér væri áhugamál
að þýða erindi sendiherrans fyrir íslenzkt vikublað ef það
væri fáanlegt.
Lýsingar þær, sem hér eru gefnar, hafa að vísu borist
til eyrna manna áður, en stundum verið nokkuð dregnar í
efa af sumum, en þessi maður er hér segir frá er slíkur, að
e9 fyrir mitt leyti efast ekki um sannleiksgildi frásagnarinnar.
fj,G HEFI KOMIÐ til Þýzka-
“ lands og séð eitt af hinum
mörgu fangelsum Nazista fyrir
svo kallaða pólitíska útiaga —
þrælabúðirnar í Buchenwald.
Þér þekkið þær nú þegar af
afspurn og myndum í blöðum og
tímaritunl, en ef til vill hafið
þér verið ófúsir að trúa, jafn-
vel því sem þér sáuð og lásuð.
Eg er kunnur mörgum útvarps
notendum í Canada; má eg full-
vissa þá um að þær lýsingar,
sem eg gef hér, eru sannleikan-
um að fullu og öllu samkvæm-
ar, hversu voðalegar sem þær
kunna að virðast.
Ástæðan til að eg fór þessa
rannsóknarför, var sú, að öðlast
allar mögulegar upplýsingar um
þá Canadamenn er kynnu að
hafa verið þar, eða væru enn
meðal hinna nýlega frelsuðu
fanga, 20.000 að tölu.
Eg var svo heppinn að vera í
fylgd með hóp þingmanna frá
Bandaríkjunum. Þeir voru sinn
úr hverri áttinni; frá Washing-
ton, Alabama, Texas. Indiana,
Illinois, Pennsylvania og New
Jersey; helmingurinn var demo-
cratar, hinir repúblicanar.
Hverju, sem kann að hafa mun-
að á þeirra pólitísku trúarjátn-
ingum, voru þeir allir á einu
máli um að strangar ráðstafan-
ir þyrfti að gjöra, til að fyrir-
byggja endurtekning slíkra
glæpaverka gegn mannkyninu í
heild, á komandi tíma.
Buchenwald fangelsin eru ná-
lægt því svæði er áður var dýra-
garður, hér um bil 5 mílur frá
Weimer, þar sem Goethe og
Schiller lifðu og dóu. Röð fag-
urra trjáa er beggja megin braut
arinnar heim til búðanna; þessi
yndisfagri vegur er í voðalegii
mótsögn við þær ógnir, sem
mæta auganu, innan fangelsis-
veggjanna.
Fangabúðir þessar voru byggð-
ar árið 1937, af pólitískum föng-
um og handa þeim sjálfum.
Hversu daufheyrðir vorum vér
þá við grimdarverkasögnum og
kvalaópum er bárust til eyrna
vorra, sem formáls kapítuli
þeirra múgmorða og hermdar-
verka er koma áttu.
1 fyrstu voru þessar búðir ætl-
aðar aðeins' 8.000 manns, en þeg-
ar her bandamanna kom þang-
að 11. apríl, voru þar næstum
60.000 fangar. Hið fyrsta sem
flaug í huga minn er þangað
kom var: “Þetta er turninn
Babel, þar sem allar tungur eru
talaðar”.
Þessir einstaklingar, þetta
margra þjóða samansafn, er
eilíf smán hinni þýzku þjóð;
þeir eru limlestir, sjúkir, hálf-
dauðir og deyjandi. Þessir písl-
arvottar bera vitni gegn Þjóð-
verjum. hverra misgjörðir hrópa
í himininn.
Skömmu eftir komu banda-
manna, var haldin minningar-
athöfn, til heiðurs hinum fram-
liðnu. Hinir eftirlifandi gjörðu
svofelda yfirlýsingu við það
tækifæri: “Vér erum samansafn-
aðir hér til þess að heiðra minn •
ingu vorra föllnu félaga, er
voru skotnir, hengdir, troðnir
fótum, kyrktir, sveltir, kæfðir,
drepnir á eitri og píndir. Sú eina
hugsun er hélt oss við lífið, er
vér í vanmáttugri heift sáum
Jónbjörn Gíslason.
félaga vora falla, var vonin um
að dagur hefndarinnar rynni
upp um síðir.”
Hatursfræ það er Þjóðverjar
sáðu um allan heim, er sérstak-
lega í Evrópu, var slíks eðlis að
margir mansaldrar munu líða
hjá, áður en uppskera hefndar-
innar verður að fullu stöðvuð.
Eg vil láta óhagganlegar stað-
reyndir bera vitni í sínu eigin
máli. Hér eru nokkur atriði:
Opinberar tölur í nafnalista
fangabúðanna yfir dauðsföll, yf-
ir janúar, febrúar, marz og
fyrstu.tíu dagana af apríl á þessu
áril, námu 18.485.
Dauðsföll! Takið eftir: Það
jafngildir borg með þessum íbúa
fjölda, þurkaðri út af jörðinni á
3 mánuðum og 10 dögum.
Heilbrigðisástand fanganna
eftir frelsun þeirra, var slíkt að
60 dóu daglega. Tala allra þeirra
er dóu í Buchenwald, verður
aldrei sönnuð að fullu. en áreið-
anlega fleiri en 50.000, ef til
vill 100.000.
Vér skoðuðum aftökuherberg-
ið og sáum hinar fjórföldu raf-
magnslyftivélar er fluttu líkama
fanganna til brensluofnanna fyr-
ir ofan; nokkrar hálfbrunnar
líkamsleifar voru þar enn.
Vér sáum vélar er gjörðu slík-
ann hávaða að þær drektu kval i
ópum fórnardýranna meðan þau
voru drepin, áður en brenslan
fór fram. Svona voru böðlarnir
nærgætnir.
Venjuleg aftökutala var 80 á
dag og áhöld voru til, fyrir
brenslu það marga. Þegar fleiri
voru líflátnir — sem oft kom
fyrir — var líkunum raðað i
hlaða eins og eldivið og óleskj-
uðu kalki dreyft yfir. Slíkar
leifar fundust þegar her banda-
manna kom inn. Vér sáum sum
af þessum holdlausu, særðu og
blóðugu líkum.
1 hinum lélegu sjúkrahúsum
voru hundruð manna, margir
með opnum ógrónum sárum og
svo holdlausir að þeir gátu leg-
ið aðeins stutta stund á sömu
hlið. Nokkrir er gátu staðið upp-
réttir, voru lítið annað en skinn
og bein og óskiljanlegt hvað
tengdi hné og öklalið saman.
Vér sáum nokkur hundruð
barna; flest voru Pólskir Gyð-
ingar. Sum þeirra höfðu verið
þar í fleiri ár. Tíu ára og eldri
unnu sem þrælar í hergagna-
verksmiðjum. Ekkert þeirra
vissi — eftir því sem eg komsi
næst — hvar foreldrar þeirra
voru, að öllum líkindum allir
dauðir, þegar tekið er tillit til
hinnar villimannslegu meðferð-
ar Þjóðverja á Pólverjum og
Gyðingum.
Lampahjálmur fanst — eg sá
hann — búinn til úr skreyttu
mannsskinni, til grimdarfullrar
nautnar fyrir frú eins Nazista
foringjans.
Goethe orti mörg sín fegurstu
ljóð undir eikitré einu miklu,
er nú stendur við Buchenwald
þrælabúðirnar. Fangaverðir Nas-
ista voru svo smekkvísir að þeir
notuðu þetta fræga tré fyrir
gálga; þeir hengdu menn upp á
höndunum, bundnum fyrir aft-
an bak.
Afskifta og tilfinningaleysi
Weimarbúa er mjög athyglisvert;
svo virtist sem athafnir hersins
— hversu grimdarlegar sem þær
voru — kæmi þeim ekki minstu
vitund við; þeir einmitt löguðu
breytni sína eftir þeirri fyrir-
mynd er herinn skóp.
Heiminum hefir hlotnast rán-
dýrt tækifæri til að kynnast þe&s-
um voðalegu hryðjuverkum gegn
mannkyninu. Hér verður að
staldra við og athuga reiknings-
skil: í Buchenwald er ritaður sá
svívirðingar kapítuli marmkyns-
sögunnar, sem tíminn er ekki
fær um að afmá eða friðþægja
fyrir. Maður er næstum neydd-
ur til að álíta að misgjörðamenn-
irnir er frömdu þessi níðings-
verk, hafi ekkert ranglæti séð í
athöfnum sínum. Ef til vill hafa
þeir verið stoltir af sínum ótæm-
andi möguleikum að úthluta
kvölum og dauða.
Þeir eru ekki eins og aðrar
mannlegar verur, þeir eru djöful
óðir. Þeir eru búnir örþunnu
menningar yfirborði, en hið
innra hljóta þeir enn að vera
villimenn. Með því er ekki ætl-
un mín að móðga vilta menn
yfirleitt, vegna þess að vísinda-
legur siðfágunar hjúpur umlyk-
ur öll þessi hermdarverk, sem
villimenn á óhefluðu frumstígi,
í óþroskuðu samfélagi, gætu ekki
fundið upp.
Frá byrjun hafa margir litið
svo á, að þetta stríð væri í raun
og veru ný krossferð; barátta
milli Guðsríkis og djöfulsins; að
Nasista krossinn væri reistur
gegn krossi Krists og byði hon-
um byrginn. Nokkrir lögðu ekki
trúnað á slíkt, en nú eru þeir
neyddir til að trúa.
Hermenn vorir vita gjör en
nokkru sinni fyr, hversvegna
þeir berjast og hversvegna félag-
ar þeirra hafa verið drepnir og
aðrir særðir. Þeim er ljóst að
engin fórn er of stór, ef þessi
hinn illi andi verður að síð-
ustu kveðinn niður.
í Þessari ferð notaði eg tæki-
færið og heimsótti og talaði við
franska pólitíska útlaga; þeir
voru hér um bil 1.600. Eg flutt:
þeim vinar og samhygðar kveðju
frá Canada, í þjáningum þeirra
og einnig aðdáunarorð fyrir hug-
rekki þeirra og staðfestu í kvöl-
um fangabúðanna.
Þessi yfirstandandi dagar eru
sorgardagar fyrir Frakkland. Að
vísu fellur straumur útlaga og
fanga í vestur og margir era
endurfundir vina og vanda-
manna, en tugir þúsunda koma
aldrei aftur. Ástvinir og frænd-
ur eru nú fyrst að kynnast hin-
um voðalega sannleika; vonim-
ar sem héldu uppi hugrekki
þeirra í fjölmörgum tilfellum,
eru nú að fullu og öllu brotn-
ar.
Hér er eitt dæmi: Foreldrar
og tveir bræður einnar vinkonu
minnar voru flutt nauðug til
Þýzkalands, af lögreglu Nasista;
móðirih dó í október s. 1. og
faðirinn í febrúar, en engar
fregnir af bræðrunum
Afturkomnir fangar hafa hver
sína sorgar sögu að segja. Fyrir
fáum dögum talaði kona mín
við heimkominn pólitískan út -
laga; kona hans og börn voru
sett í gas herbergi Nasista í
Þýzkalandi. Hann sagði sinnu-
leysislega: “Eg býst við að eg
eigi að telja mig heppinn að
vera í lifandi manna tölu; eg er
bara Gyðingur.” Hvílík ákæra
gegn þjóð, sem kallar sig kristna.
Hvaða ályktanir drögum vér
hér af? Þegar eg starði á þetta
leiksvið. smánar og spillingar,
sem eg hefi hér lýst, duldist mér
ekki að fólk sem fremdi slíka
glæpi, hlyti að hafa oss 'óþekta
hugmynd um gildi og tilgang
mannlegs lífs. Vér trúum á
eilíft gildi hverrar einstaklings
sálar og að Kristur kæmi í heim-
inn til að frelsa oss. “Hann —
sonur Guðs — varð maður”. Eng-
in dýrðlegri vígsla gat oss hlotn*
ast. Ekkert guðlegt getur búið
í þeim mönnum sem meðhöndla
meðbræður sína eins og óarga-
dýr. Þeir trúa ekki á ódauðleika
sálarinnar, þáð er kjarni máls-
ins, þar í liggur hættan — al
varlegri en hættan sem getin er
af pólitískri metorðagirnd og
landvinningaþrá.
Án þess, og þangað til, Þýzka-
land lagar þjóðlíf sitt samkvæmt
Guðs og manna lögum verður
því ekki treyst.
ENDIR.
Nýjar uppfindingar
-f-M-
Nýtt miðstöðvar hitunarfyrir-
komulag í húsum, sem ekki að-
eins gefur gnægð hita, heldur
líka orku til ljósa, eldunar og
annara heimilisþarfa er það nýj-
asta sem kemur frá rannsóknar-
stofu byggingameistara sam-
bands Bandaríkjanna. Hitann og
orkuna gefur fljótandi efnablönd
un sem þeir nefna Tetra-cresyl-
silicate og hita má upp í 817
gráður á Fahrenheit. Telja upp-
findinga mennirnir víst að þetta
nýja húsa hitunar fyrirkomulag
spari mönnum að minsta kosti
48 % af hitunar og raforku kostn-
aði húsa, frá því sem nú á sér
stað.
Frá Rússlandi kemur sú
frétt, að vísnidamaður þar, að
nafni Sepan Tummanov hafi
fundið upp mál, sem aldrei
fölni eða missi lit. Frumstæða
þess eru malaðir steinar, en
hver önnur efni séu í því, getur
Tummanov ekki um. Hann tek-
ur fram að svo hafi þessi nýja
uppfinding verið þrautreynd að
um ágæti hennar sé ekki að
efast og sérstaklega sé mál þetta
hentugt listmálurum, postulíns-
gerðarmönnum og til varnar og
prýði myndastyttum, sem úti
eru, því það sé óhult vörn gegn
veðrum og vindum í þúsundir
ára.
Verzlunareigandi í Malbourne
í Ástralíu, hefir fundið upp
hækju, sem breyta má í stól að
vild og hefir Bandaríkjamaður
að nafni Norman Myer, keypr
uppfindingu þessa og gefið sam-
bandsþjóðunum hana til notkun-
ar handa hermönnum.
Frá Los Angeles kemur frétt
um nýja bifreið, sem knúin er
með loftþrýstingi í stað gasolíu.
og er sagt að þær taki hinum
eldri bifreiðum að ýmsu leyti
fram. Hristingur mikíu minni.
Menn ýta á hnapp eða takka og
vélin rennur hægt og hispurs-
laust af stað. Menn geta farið
eins hart og hægt og þeir vilja,
eftir sléttum vegum og upp og
yfir brattar bungur, því aflið er
nóg. í stað gasolíu geymis er loft-
geymir og annar olíugeymir, eða
lampi, sem kveikt er á og hitar
eða þenur loftið í loftgeyminum,
sem er aflgjafi og orkulynd bif-
reiðarinnar. Nota má hvaða olíu
sem hægt er að brennt til að hita
loftið í geyminum með.
Látum Oss Vera Ganadamenn!
“Vér skulum skoða alla þegna vora, án tíllits til þjóðernis sem
Canadamenn. Sýnum minna af yfirborðs Canadianisma. Látum
é
oss í Canada vera Canadamenn.”
■ JOHN BRACKEN.
Vér erum skuldbundnir til að ná þjóðlegu hámarki í velmegun, sem allir
Canadamenn séu hluthafar í, án tillits til uppruna eða trúarbragða. Hver
maður, kona og barn, sem gert hefir Canada að kjörlandi sínu, á að vera
fullveðja þátttakandi í hlunnindum canadiskra þegnréttinda.
Allar framsóknarákvarðanir vorar, lúta að því, að sérhver Canadaþegn,
án tillits til búsetu, verði hluthafi í þróun Canada, og hinni sönnu grund-
vallareiningu þjóðfélagsins.
Treystið þeim manninum, sem sannað hefir trúnað sinn í verki.
Sigrið með BRACKEN
-f-M-
-f-f-f
Greiðið atkvœði með yðar
PROGRESSIVE CONSERVATIVE
CANDIDATE
Published by the Progressive Conservative Party, Ottawa