Lögberg - 24.05.1945, Blaðsíða 3
3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. MAI, 1945
Sýningin á Tungunúp
Frh.
Lítið þið nú vel yfir þessa
sveit, um leið og þið farið frá
Ási, stuttan spöl þar vestan við
bæinn liggur hið þjóðkunna
náttúrunnar meistaraverk, Ás-
byrgi, það rekur víst sköpulag
sitt til eldsumbrota, einhvers-
SÍaðar langt aftur í gleymdum
öldum, en það þykjast menn
samt vita með vissu nú á dög-
um að sá eldur sem þá hefur
verið umferðar smíðameistari í
Kelduhverfinu, hefur hlotið að
vera miklu vandvirkari en nafn-
ar hans nú á dögum, ef dæma
skal af hinu almáttuga smiði
hans, Ásbyrgi, sem er hefur ver-
ið og verður augnayndi allra
þeirra mannþúsunda, sem sé>ð
hafa það. Nú rennum við skygn-
um vorum norð-vestur um bygð-
ina, þarna standa Austurgarðar,
þar bjó Gunnar Pálsson góður
og gestrisinn bóndi, faðir Jo-
hanns, sem var um skeið skrif-
stofuþjónn á innflytjenda skrif
stofunni í Winnipeg. Næsti bær
vestur þaðan er kirkjustaðurinn
Garður þar bjó Erlendur Gott-
skálksson, eitt sinn alþingismað-
ur, faðir Jóns Eldon, sem um
stutt skeið var ritstjóri Heims-
kringlu, þarna, sem þið sjáið þétt
bygðast norðan undir brekkunm
heitir einn bærinn, Krossdalur,
þar var Kristján Jónsson skáld
fæddur þá sjáið þið stórann og
reysulegan bæ hjá vatninu þarna
bærinn, og vatnið, eiga sama
nafn, Víkingavatn, þar hefur
jafnan verið tvíbýli og góður bú-
skapur, norðan við Víkingavatn,
undir sveitar vanganum að vest-
an, út við sjóinn, stendur vel
hýstur bær. Lón í Kelduhverfi,
Þar bjó þá góðu búi Guðmundur
Jónsson, sonur merkis bóndans,
Gamla Lóns Jóns, eg hefi nú
nefnt nokkra bæi nafni sínu
þarna í hverfinu, yfir hina hafið
þið séð eftir tilvísun minni.
Lítið nú vel yfir þessar sveitir,
sem eg hefi nú sýnt ykkur, set-
ið vaxtarlag þeirra vel í muna
ykkar, og biðjið hann lengst
allra orða fyrir það að gleyma
ekki fjöllunum.
Nú skulum við snúa áliti voru
meira yfir baksvip landsins fjöli-
in þar uppi hálsar og hlíðar.
þarna stendur vaxtarfagurt fjall
skamt fyrir framan okkur það
á heima hérna á Tunguheiðinni
og heitir Búrfell, fjallahryggirn-
ir þarna nokkru sunnar heita
Krubbar, en hlíðarnar þarna litlu
austar heita Grísatungur, þessi
örnefni sem eg hefi nú talið eiga
öll heima á Tunguheiði.
I lægðinni löngu og breiðu,
sem þið sjáið þarna sunnan und-
ir Tunguheiðar endanum liggur
Reykjaheiði, önnur sú lengsta
heiði í Þingeyjarsýslu, hún er
hrjóstrugt land, með hellu hraun
og gjám, hæðirnar sem þið sjáið
rísa þarna sunnan við hana heitar
Þeistareykja bungur í þeim eru
Þeistareykja brennisteins nám-
urnar, þar var eitt bóndabýli í
minni ungdómstíð, þar bjó þá
maður, sem Gísli Gíslason hét
einhver sá stærsti og fagurvaxn-
asti maður, sem eg minnist að
hafa séð, hann var sonur Gísla
skálds frá Skörðum í Reykja-
hverfi og albróðir Arngríms
Gíslasonar dráttlistar manns og
sundkennara, afa læknisfrúarinn
ar B. J. Ðrandson í Winnipeg,
nú göngum við upp á brattann
sunnan við þessar gulgrænu
Þeistareykja bungur, háu hæð-
irnar þarna langt suður heita
Hágöng og háa fjallið, sem hvílir
sig þarna á bakinu á þeim heitir
Eilífur, sá piltur varðveitir næði
sitt innan vébanda Reykjahlíðar
prestakalls. Suðvestur undir þess
um hæðabungum liggur sú dá-
samlega fagra Mývatnssveit, og
nú bið eg ykkur þess kæru sýn-
ingargestir mínir og samferða-
menn, hérna heim á Núpinn, að
syngja fyrir mig þetta vers, sem
ætti að vera gert að þjóðsöng
allrar heimaþjóðarinnar “Bless-
uð sérhi sveitin mín”. En nú
skulum við snúa okkur meira
til vesturs, og horfa um stund
á háa fjallgarðinn þeim megin,
þessi langi fjallgarður heitir
Kinnarfjöll, sveitin Kaldakinn
liggur austan undir honum við
byrjum að líta yfir þessa sjón-
arvotta okkar þarna lengst tii
suðvesturs, þið sjáið stóra skarð-
ið, sem klýfur fjallgarðinn þarna
í tvent, það er Ljósavatnsskarð,
við syðri öxl skarðsins að aust-
anverðu stendur kirkjustaðurinn
Ljósavatn, þar hjó all-góðu bú’
Sigurður Guðnason. Þar austur
í móunum er bærinn Hrifla,
skammt austan við Hriflu renn-
ur Skjálfandafljót þar nálægt er
Goðafoss, þar norður af er all-
hár háls eða fell, sunnan undir
því er bærinn Fremstafell. Þar
bjó valmennið Hallgrímur, faðir
Jónasar, sem fluttist til Ameríku
og var almennt nefndur Hall.
Fremstafells systkinin börn Hall-
gríms voru mikið myndarfólk í
þessu felli nokkru norðar stend-
ur bærinn Ystafell, þar bjó góðu
búi um nokkura ára skeið Sig-
urður Jónsson ráðherra, norður
með þessu felli að austan renn-
ur Skjálfandafljót til sjávar,
mjói hálsraninn austan við fljót-
ið heitir Fljótsheiði, austan við
hann liggur stór og þéttbygð
sveit, sem heitir Reykjadalur að
sunnan, en Aðaldalur að norð-
an. í þessari sveit eða sveitum,
eru fimm kirkjur á þessum bæj-
um, sem eg nú nefni Einarsstöð-
um. Helgastöðum, Múla, Grenj-
aðarstað og Nesi í Aðaldal þó
munu aldrei hafa verið þar
fleiri en þrír prestar, samtímis,
margir voru þar all-sjálfstæðir
bændur, en þó held eg að fátækl-
ingarnir hafi verið fleiri, á Hraun
koti í Aðaldal bjó all-góðu búi,
Jónas Kristjánsson faðir Mrs.
Rögnvaldar prests Péturssonar í
Winnipeg og þeirra systra, Frið-
jón Jónsson, faðir þeirra skáld-
anna, Sigurjóns og Guðmundar
á Sandi, bjó all-vel, séra Bene-
dikt í Múla var sagður ríkur og
svo voru víst fleiri vel bjarg-
álna. ,
Lítið nú yfii; til Köldukinn-
arinnar aftur, fetið þið athygli
ykkar þar norður með bæjaröð-
inni frá Ljósavatnsskarðinu alla
götur norður að sjónum, gangiö
um hlaðið á Landamótsseli þar
bjuggu á þessum árum gæða
hjónin Björn Jóhannesson og
kona hans, foreldrar Óla J.
Björnssonar í Wynyard, Sask.,
nú göngum við fram hjá nokkr-
um bæjum norðan með kinn-
inni til Fellssels, þar bjó þá með
fyrri konu sinni Sigríði Johann-
esdóttur, systur Sigurjóns ríka á
Laxamýri, Sæmundur Eiríksson
prests frá Þóroddsstöðum í
Kinn. Sæmundur var mikill mað
ur að vallarsýn og sagður berg-
risi að kröftum, hann fluttist tii
Ameríku bjó þar og dó þar, ná-
lægt bænum Mountain í Norður
Dakota.
Nú skulum við færa okkur
norður með bæjaröðinni að
kirkjustaðnum Þóroddsstöðum,
það er all-góð bújörð. Þar bjó
Sigurður Þorsteinsson, all-góður
bóndi, næst komum við að bæn-
um Geirbjarnarstöðum, nyrsta
ferjustaðnum við Skjálfanda-
fljót, þar bjó Sören Árnason
fremur fátækur en góðgjarn
maður,' nú færum við okkur
norður að Granastöðum til
þeirra gáfuðu og gestrisnu
hjóna, Guðjóns Halldórssonar og
Sigurveigar Jónsdóttur, þangað
var svöngum gott að koma, þar
stóð gestrisnin úti á bæjarhlað-
inu og bauð vegfarendum bæði
hvíld og hressingu, þessi mætu
hjón voru ættuð úr Bárðardaln-
um, frá bæjunum Öxará og
Hvarfi. Sigurveig var hálfsystir
Valdimars Ásmundssonar ritstj.
Fjallkonunnar. Eg hygg að þessi
mætu hjón og börn þeirra hafi
öll flutt til Ameríku. Margt af
afkomendum þeirra býr nú ná-
lægt bænum Wynyard í Sask.,
en gestrisnu minning gömlu
hjónanna býr enn að nokkru
leyti á Granastöðum, næsti bær
norðar heitir Núpá, þar bjó all-
góðu búi Jören, faðir Helgu,
konu Magnúsar Friðrikssonar,
þa fluttust til Ameríku bjuggu
lengi í bænum Selkirk í Mani-
toba.
Þá komum við að bænum
Borg, þar bjó Friðbjörn Jóns-
son, fremur fátækur, en góður
drengur. Þaðan göngum við norð
ur Viknafjörurnar til bæjarins
Naustavíkur, þar bjó Baldvin
Sigurðsson bróðir Indriða merkis
bóndia, sem bjó lengi nálægt
Mountain í Norður Dakota. Bald
vin var bóður bóndi. í þessari
vík, þá nefnd Náttfaravík, bygði
fyrstur manna á íslandi, Nátt-
fari, þræll Garðars Svafarssonar.
Á Vargsnesi, nyrsta bænum, bjó
Klemens Jónsson, góður karl.
Lítið þið nú upp á hæstu fjöll-
in í þessum fjallarana, þau heita
Granastaðanípa, Badrangi og Há-
göng, norðvestur frá Hágöngum
liggur Flatey, eins og græna of-
an á sjónum, en þaðan norðvest-
ur rekur Grímsey hægri hliðina
upp úr hafinu í 55 kílómetra fjar-
lægð. Hyggið þið nú hérna nær
Tjörnesinu, þarna sjáði þið tvær
eyjar, svo sem danska mílu und-
an landi þær heita Mánareyj -
ar, og nú er sýningin á enda.
Áður en tjaldið fellur, vildi
eg mælast til þess að þið lituð
enn einu sinni yfir sýningar-
sviðið ef þið vilduð kannske
festa í minni, eitthvað af því
sem þið hafið heyrt og séð frá
þessari sjónarhæð. Horfið þið nú
fast, já, fast og lengi.
Að endingu skulum við syngja
þetta vers:
“Þið þekkið fald með blíðri
brá.”
F. Hjálmarson.
Frakkar leggja út á nýja
braut í atvinnu og
framleiðslumálum
Hínn þekti verkamannaleið-
togi Frakka, sem nú er iðnaðar-
og framleiðslumálaráðherra í
Charles de Gaulle stjórninni
nýju á Frakklandi, Robert Lac-
oste hefir opinberað stefnuskrá
stjórnarinnar í framleiðslu- og
iðnaðarmálum Frakka. Honura
fórust þannig orð:
“Það væri tál, að treysta á
framtak einstaklinga til þess að
endurreisa og efla velmegun á
Frakklandi eða meðal frönsku
þjóðarinnar. Ríkið eitt hefir efni
til þess.”
*
Lacoste ráðherra hefir ekki lát-
ið sitja við orðin tóm, heldur
hefir hann þegar lagt grundvöll-
inn að hinu nýja fyrirkomulagi,
og með því kveðið upp dauða-
dóm yfir einstaklings iðnaði og
einstaklings iðnaðar fyrirtæki-
um, að mestu leyti, á Frakk-
landi.
Allar iðnaðar stofnanir og mat
vöruframleiðsla, svo sem kol, stál
klæðagerð og aðrar nauðsynja-
vörur verða framleiddar undir
umsjón stjórnarinnar, af þar til
skipuðum mönnum. Sextíu af
þeim hafa nú þegar tekið til
starfa.
Menn í þessar stöður eru vald-
ir með ráði og samþykki verka-
mannafélaganna, en eru hinsveg-
ar í þjónustu iðnaðarmála ráð-
herrans og eiga honum að svara
fyrir gjörðir sínar.
Ríkið ákveður hvað framleiða
skuli, og hvernig framleiðslunni
skuli úthlutað. Einnig hefir rík-
ið vald til að ákveða og úthluta
vinnuafli landsins.
Alsherjar eftirlitsnefnd er á-
kveðin í sambandi við þetta fyr-
irkomulag. í þeirri nefnd sitja
jafnmargir úr flokki verkamanna
og verkveitenda.
“Þetta fyrirkomulag,” sagði
Lacoste ráðherra, “er það eina
demokratiska iðnaðarfyrirkomu-
lag, sem til er,” og hann bættí
við, “þetta nýja fyrirkomulag er
mjög líkt fyrirkomulagi því, sem
nú á sér stað á Rússlandi, að
undanskildu því, að við höldum
réttinum til einstaklingsfram •
leiðslu, og iðnaðar.”
J. J. B.
MEIRA PENINGAVIRÐI
með notkun
MASSEY-HARRIS VÉLA
Vegna manneklu og hárra launa,
sannfærast mjólkurframleiðendur
um nauðsyn gáðra véla. peir
vita, aS Massey-Harris vélarnar
veita þeim meiri arð; þær endast
vel, eru auðveldar í meðförum,
og þarfnast minstu aðgerða sem
hugsast getur.
MASSEY-HARRIS Nr. 9
SKILVINDA
petta er úrvals skilvinda, seld
við ðtrúlega lágu verði; hinar
sex túður skilja mjólkina svo
vandlega, að alt peningavirði,
sem I henni er af rjóma, kem-
ur fram; vélin er auðsnúin og
endnigargóð.
MASSEY-HARRIS
Rite-Way mjólkunarvél
Auðveldlega komið fyrir, og auð-
veld f meðförum. Auðhreinsuð. End-
urbættur Pulsator.
MASSEY - HAKRIS
CO. LIMITED
Toronto. Montreal. Moncton. Winnipeg. Brandon. Regina. Saskatoon
Swift Current. Yorkton. Calgary. Edmonton Vancouver.
Business and Professional Cards
DR. A. BLONDAL Dr. S. J. Johann*«*on
Physi(Hart & Rurgeon 215 RTTBY 8TRBET (Beint suður af Bannin*)
«0i MEDICAL ARTS BLDO Talatmi 30 87 7
Sfmi 93 996 Hetmili: 108 Chataway •
Sfmi «1 023 Vlðtalstlml í—* •. h.
DR. A. V. JOHNSON Dentitt Dr. E. JOHNSON 304 Evoline St. Selkirk
•
6 0« SOMER8ET BLDQ. Offlce hrs. 2.30—6 P.M.
Thelephone 97 932 Phone offii e 26. Res. 230
Home Telephone 202 398
Frá vini Office Phone Res. Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDO. Office Hours: 4 p.m.—8 p.m. and by appolntment
DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur I Augna, Eyrna, nef og hálssjúkdömum 416 MedlcaJ Arts Buildlng, Graham and Kannedy 8t. Skrifstofusími 93 851 Heimaslmi v42 154 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannkeknar • 486 TORONTO OEN. TRC8TS BUILDINO Oor. Portage Ave. og Smlth PHONE 96 952 WINNIPEO
<7lletfets
EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. talenzkur lyfsall
Fólk gretur pantað meOuI og annaP með póstl. Fljót afgrreíðsla •224 Notre Dame-
^ 96 647 r\
A. S. BARDAL 848 8HERBROOK ST. Selur Ukklstur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann aliskonar mlnnisvarða og legstelna. Skrifstofu talstmi 27 324 Heimilis talstmi 26 444 Legsteinar sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manltoba marmarl BkrifiO eftir veröskrd GILLIS QUARRIES. LTD. 14 00 Spruce St. Slmi 28 893 Winnipeg, Man.
HALDOR HALDORSON byogln g ameistari 23 Muslc and Art Bulldlng Broadway and Hargrave Winnlpeg, Canada Phone 9 3 055 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 80 6 AVENUE BLDO.. WPO e raateignasalar. Iæigja hús. Ct- vega penlngalán og eldsáhyrgð bíWelðaábyrgð, o. s. frv. Phone 97 538
INSURE your property wlth HOME SECURITIES LTD. 468 MAIN ST. L,eo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Phones Bus. 23 377 Res. 39 433 ANDREWS. ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON LögfrœOingar 209 Bank of Nova Scotla Bldg. Portage og Qarry St. Simi 98 891
i TELEPHONE 98 010 H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountantt 1101 McARTHUR BUILDINQ WINl^IPEQ, CANADA Blóm stundvíslega afgreidd m ROSERY tio Stofnað 1906 427 Portage Ave. Slmi 97 466 Winnipeg.
Phone 49 489 Radlo Service Specialisti ELEGTRONIG LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equlpment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEO GUNDRY & PYMORE LTD. Brltleh Quality — Flah Nettlng 80 VICTOIUA STREET Phone 98 211 Wlnnlpec Jíanager, T. R. THORTAJjDBCJN Your patronage wtll be vppreclated
O. F. Jonasson, Pres. & Man. Dtr. 8. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Slml 95 227 Wholotala Dittributort of FRE8JJ JLND FROZEN FIBR CANADIAN FISH . PRODUCERS, LTD. /. B. Paoe, Managlng Direciot Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Flsh. 1X1 Chambers St Office Phone 26 328 Rea Phone 73 917.
.
MANITOBA FISHERIES WINNIPEO, MAN. T. Bercovltch, framkv.ttf. Versla 1 heildsölu með nýjan o* frosinn flsk. 101 OWBNA 8T. Skrlístofuslml 85 856 Hedmaslml 55 483 — LOANS — At Rates Authorized by p Small Loana Act, 1939. i PEOPLES “ FINANCE CORP. IVTD. v Licensed Lend—rs P; Established 1929 1 403 Tlme Bldg. Plione 21 43»
Argue Brothers Ltd. Real Estate — Financial — and Insurance Lombard Bullding, Wlnnipeg J. DAVIDSON, Rep. Phone 97 291