Lögberg - 20.12.1945, Blaðsíða 1
PIIONE 21374
. xx \Mxi*
A Complete
Cleaning
Institution
PHONE 21374
iox&
ha,underer ’ A Complete
Cleaning
Institution
58. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 20. DESEMBER, 1945
NÚMER 51
Jólafötin
MARTEINN LOTHER
Tileinkað Bandalagi Lúterskra Kvenna.
* * *
Lag:—Vor guð er borg á bjargi traust.
Ein er sú rödcL, er ómar hæst
í alheims-kristnum sálum.
Sá hreimur gengur hjarta næst
í helgum trúar-málum.
Sú rödd, það Ijúflingslag—
sem lífsins reiðarslag—
um aldir ómar hátt,
og andans styrkir mátt,
Það undra-orð er — Lúther!
í hverju landi hljómur sá
á hæstu tónum klingir,
sem vekur æðri andans þrá
og inn hið góða hringir.
Sá endur-ómur skær,
er ávalt flytur nær
þann háa Himinsson,
þá helgu friðarvon,
það alheims-orð er — Lúther.
Slíkt þrek, sem reis úr þýzkri jörð,
er þjóðlífs menta gróði,
ér róttœk lífsins reglugjörð
í reynd, í söng, í óði.
Sú röddin himinhá
burt hrekur mók og dá.
Það orð, er flytur fjöll,
burt fælir vanans-tröll;
Slíkt undra-orð er — Lúther!
Það reynslu-djúpa regin-skin,
sá röðul-geislinn fagur —
þann guðdóms-skrýdda gróður-hlyn
æ gyllir nótt sem dagur.
Sá hái Himinsson,
í helgri trúar-von,
vor tengir bróður-bönd
of bjarta mannlífs strönd.
Það Ijós er — Marteinn Lúther!
S. B. Benedictsson.
Maður nokkur sem ólst upp
út í sveit við mikla fátækt segir
frá því að eitt sinn hafi faðir sinn
falið sér, þegar hann var lítill
drengur, að reka erindi við hátt-
settan embættismann sveitar
sinnar, sem átti heima í veglegu
húsi í kaupstað þar nálægt.
Drengurinn lagði af stað með
hálfum hug, og því nær sem
dró heimili höfðingjans því meir
óx ótti hans. Hann hafði aldrei
talað við jafn tiginn mann, ald-
rei komið í svo skrautlegt hús.
Hann var hræddur um að sér
mundi verða orðfall, og hann
fann til þess að hann var ekki
nógu vel klæddur fyrir slíká
heimsókn. Jafnvel eftir að hann
hafði barið að dyrum, langaði
hann til að taka til fótanna og
hlaupa í felur. En hann herti
upp hugann og beið þess að til
dyra væri gengið. Og sá sem
til dyra kom var sjálfur höfð-
inginn, sem tók sveitadrengnum
með hinni mestu alúð og talaði
við hann eins og jafningja sinn.
Brátt fór feimnin af sveininum
og hann fann ekki lengur til
smæðar sinnar eða fátæktar.
Mér kemur þetta atvik úr æfi
sveitapiltsins í hug, er eg minn-
ist þess að við stöndum nú
frammi fyrir hallardyrum jóla-
hátíðarinnar. Við erum um það
bil að berja að dyrum hennar;
við stöndum með höndina á hún-
inum reiðubúnir til inngöngu.
Við heyrum söng inní höllinni,
sem er svo dýrleg og björt, og
við heyrum hátíðlega tilkynn-
ingu: “Drottinn er í nánd.” Það
kemur hik á okkur, við finnum
til þess að þetta er helgur stað-
ur, og að heilög athöfn er að
fara fram. Erum við nú sæmilega
til fara? Jú, að ytra hætti eru
fötin okkar smekkleg og sam-
boðin árstíðinni. En sú tilfinning
vaknar hjá okkur að til þess að
gista þennan stað, þurfi annað
og meira til en ytri klæðnað ein-
göngu. Við lærðum í æsku að
Drottinn lítur á hjartað, og hug-
renningarnar. Enginn maður er
hæfilega klæddur til jólahalds
nema hann sé hreinn í hjarta
sínu og eigi göfugar hugrenn-
ingar. Okkur verður því flestum
að orði, þar sem við stöndum
við hallardyrnar: “Nakinn er
eg, klæddu mig, krankur er eg
græddu mig.” Hin andlegu
klæði okkar flestra eru víst
fremur fátækleg á þessum jólum,
og við finnum til þess, eins og
sveitapilturinn, að við erum ekki
maklega undir það búin að koma
fram fyrir hin göfuga höfðingja
sem í höllinni býr.
En jólafötin eru tilbúin og
standa okkur til boðá, ef við að-
eins viljum fara í þau. Fyrst er
þar skikkja gleðinnar. “Drottinn
er í nánd,—verið glaðir.” Vissu-
lega höfum við meiri ástæðu til
að vera glöð á þessum jólum, en
um mörg undanfarin ár. Það
hefir verið erfitt undanfarin ár
að halda jól, og tala um frið á
jörðu, og Guðs velþóknan yfir
mönnunum, þegar segja má að
hvergi hafi verið friður á jörð-
unni, og við vitum að það er
mjög fjarri því að Guðs velþókn-
án hafi verið yfir háttalagi mann-
anna. En nú eru ógnir styrjald-
arinnar að mestu afstaðnar fyrir
okkur. Drengirnir okkar, þeir
sem á annað borð koma heim, eru
nú flestir komnir eða á leið-
inni, eða á öruggum stöðum við
það sem áður var. Þetta er okk-
ur öllum hið mesta gleðiefni. En
samt erum við hrygg í huga og
hugsjúk um margt. Okkur ógna
þau vindaský sem enn þjóta í
lofti, finst friðurinn enn illa
trygður, og margt uggvænt um
horfur framtíðarinnar. Við kvíð-
um ef til vill okkar eigin fram-
tíð, og búum að þungum sárum.
En samt er okkur boðið að taka
skikkju gleðinnar á herðar.
“Verið ávalt glaðir, vegna sam-
félagsins við Drottinn.” Til
forna báru Guðs börn með sér í
útlegðinni nokkuð sem kallað var
sáttmálsörk. Þar var um eins-
konar skrín að ræða er geymdi
helgidóma, sem táknuðu sér-
staka návist Guðs með mönnun-
um hvar sem þeir voru staddir.
Mönnum var mikill hugarléttir
að því að geta fest hendur og lík-
amlega sjón á þessum táknum
guðlegrar návistar einkum þeg-
ar stormarnir blésu á móti. Sam-
félagið við Drottinn var trygt í
meðlæti og mótlæti, það var
gleðiefnið mesta. Við höfum
einnig þetta tákn, — kirkja
Krists er sú sáttmálsörk, sem
tryggir okkur öllum samfélagið
við Guð hvort sem við líðum eða
fögnum, lifum eða deyjum.
Horfnir ástvinir standa þá einn-
ig í þessu samfélagi við Drott-
inn, og eru honum enn ná-
tengdari en við erum enn á
þessu stigi. Höfðinginn mildi í
jólahöllinni dýrlegu hefir tekið
á móti þeim, og sett þá sér til
hægri handar. I því trausti fá-
um við sárabót, og tökum á okk-
ur skikkju gleðinnar þótt hér sé
dapurlegt víða.
Annað klæði, sem okkur er
boðið að bera inn í höll jólahá-
tíðarinnar er hjúpur Ijúflynáis-
ins. “Drottinn er í nánd — Ljúf-
lyndi yðar verði kunnugt öllum
mönnum.” Þótt við höfum tekið
skikkju gleðinnar á herðar, sé-
um nokkurn veginn ánægð með
lífið og sátt við Guð og menn,
skortir okkur oft tilfinnanlega
ljúflyndi. Ljúflyndi er ávöxtur
gleðinnar, heillavænleg áhrif og
dagfarsprýði, sem streyma frá
okkur til annara manna. Það er
skortur á ljúflyndi, á hógværð,
á einlægni, á samheldni og sam-
vinnu sem hefir verið hinn mikli
bölvaldur í sambúð mannanna
fyr og síðar. Það vantar svo sem
ekki að menp hafi verið ánægð-
ir með sjálfa sig, hafi notið lífs-
gleði að vissu marki. En sú lífs-
gleði og ánægja hefir oft verið
sprottin af því að geta ráðið yfir
öðrum og haft sitt fram, með
?ic!ci«!c!e!e!e!e*cicte!c!cictc!€!«(e!c!e‘6tete!e!et«*c‘ctcte!e!e!et6tetetc!e!c!ctc!ctc>e!c!c!etete«c*c«
Innilegar Jóla-
og
Nýárskveðjur
til íslenzka þjóðarbrotsins í þessu landi, með þökk
fyrir ánægjuleg og ábyggileg viðskifti.
Stærsta umboðsverzlun fiskveiðaáhalda í Vestur-Canada.
%
PARK-HANNESSON
55 ARTHUR STREET
WINNIPEG, MAN.
SfMI 21844
MðtatBtaiataiatataiaiataiatataiataiaiaiaiataiatatataiataiatataiaiataiatatatatatataiatatatatatatatatatC!
»tetctctc«tctctc«ctctctetetctc!c!ctcte!ctctctcic«c«etetetctctctetct6«c!ctetctctctctctctc«ctctc«ctctctc«
i «
S HUGHEILAR JÓLA OG NÝÁRSKVEÐJUR
1
ÍSLENZKRA VIÐSKIPTAVINA VORRA
C. HUBERT
LIMITED
Lumber, Builders Supplies and Fuel
5 POINT DOUGLAS AVENUE
WINNIPEG MANITOBA
1
I
x
I
■
.<5
I
«
1
X
«
I
I
1
aataiatatataiataiaiatataiatataiataiaiaiataiatatatataiatatatatatataiataiataiatataiatatatatatataiaiaiatat*
illu eða góðu. Þannig hafa söfn-
uðir klofnað og heilbrigður andi
heillá bygðarlaga farið út í veður
og vind. Allir kannast við söguna
um gamla manninn, sem var um
það bil að deyja. Er hann fann
stundina nálgast kallaði hann
alla sonu sína fyrir sig, og bað
þá færa sér bindi af viðartágum.
Hann bað þá hvern fyrir sig
að brjóta bindið í sundur í miðju
en það var þeim öllum um megn.
Síðan bauð hann þeim að leysa
bindið og taka hverja tág fyrir
sig og brjóta. Það var auðvelt
verk, jafnvel fyrir þann sonanna
sem yngstur var og minsta hafði
kraftana. “Þannig sjáið þið,
synir mínir,” sagði deyjandi öld-
ungurinn, “að ef þið standið all-
ir saman getur enginn sigrað
ykkur, en ef “þið eruð sundur-
leitir og standið einn sér hver
um sig, getur hver væskill orðið
ykkur að grandi.”
Koma jólahátíðarinnar á að
vera okkur öllum hvöt til ljúf-
lyndis, umburðarlyndis og sam-
vinnu hverir við aðra um fram-
gang þeirra hugsjóna, og efling
þeirra verðmæta, sem hafa skap-
að okkur sérstæða menningu,
hafa gert okkur að góðum borg-
urum og kristnum mönnum.
Þriðja klæðið, sem okkur er
boðið að bera inn í höll jólahá-
tíðarinnar er brynja bænarinn-
ar. “Drottinn er í nánd. Gjörið
í öllum hlutum óskir yðar kunn-
ar Guði með bæn og beiðni, á-
samt þakkargjörð.” Þetta geng-
ur mörgum okkar miður vel. Við
komum ef til vill til Drottins
með stóru vandamalin, sem okk-
ur virðast varða svo miklu, en
(Framh. á bls. 21)
teteteietetcictcietetetetetetctctetctctetetetetcteieteteteietetctetetetctetctctetetetetetctctctctctctc*
BEZTU JÓLA OG NÝÁRSÓSKIR TIL ALLRA
VIÐSKIFTAMANNA OG VINA!
DOUG G0RD0N 1
Bílaviðgerða- og olíusölusiöð
SÍMI 149
SELKIRK
MANITOBA
&ataiataiataiatatatatatatatatataiatatatatatatata«atataiaiatata«aiaiataiataiataiataiataiaiataiata«itatatð
jjtetetetetetcteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteteieteteietetetetetetetetcteictetctca
Sinclairs Tea ^Room
Árna öllum íslenzkum viðskiftavinum
sínum gleðilegra jóla og góðs og
farsæls nýárs.
SINCLAIR’S TEA ROOM
SELKIRK
MANITOBA
%atatatatatataiatataiatatataiatatatatataiataiaiaiaiaiaiataisiaiaiataiataiaiaiataiataiaiaiataiataiat:
1
X
X
X
1
X
X
X
X
I
I
s
I
J
FLASH FROM
REDDY KILOWATT
‘Your Electrical Servant”
<@reetingð anb
#oob Mtðbeð
from me and my fellow Employees of the
Winnipeg Elecrtic Company. We shall in
the coming year continue to provide you
with Competent, Courteous, Low Cost
Service from our
ELECTRICTY
GAS
TRANSPORTATION
UTILITIES