Lögberg - 24.01.1946, Blaðsíða 8

Lögberg - 24.01.1946, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. JANÚAR, 1946 Or borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Avenue, Mrs. F. Thorcfarson, 99£ Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. * Samkvæmi fyrir hermenn Nefndin sem annast undirbú- ning viðvíkjandi samsæti því, sem haldið verður í Royal Alex- andra hótelinu, 18 febrúar til þess að bjóða velkomna heim alla þá af íslenzkum stofni sem hafa verið í herþjónustu, er nú búin að senda út þrjú hundruð boðsbréf. Þess ber að geta að hver hermaður eða kona sem tekur boðinu fær tvo aðgöngu- miða, svo tala gestanna getur orðið um fimm hundruð manns. Það er þess vegna afar nauðsyn- legt að allir sem hafa fengið boðsbréf láti Mrs. J. B. Skapta- son, 378 Maryland St., vita sem allra fyrst hvort boðið verði þegið. Fyr en nefndin hefir ábyggilega hugmynd um tölu boðsgestanna, er henni ómögu- legt að ákvarða hve marga að- göngumiða megi selja almen ningi. Aðgöngumiðar verða seldir á $1.75 hver, og verða til sölu ef- tir 1. febrúar. Nánari auglýsing- ar síðar. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eylands, ^testur. Guðsþjónustur: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 12:15. 4* Messur þrjá síðustu sunnudagana í janúar hjá ísl. lút. söfnuðinum í Vancouver: 27. janúar—Messa í Pt. Roberts kl. 11 f. h. íslenzk messa í Vancouver kl. 7.30 e. h. Allir boðnir og velkomnir. Messurnar fara fram í dönsku kirkjunni, Corner E. 19th Ave. og Burns St. + Sunnudaginn 27. janúar mess- ar séra H. Sigmar í Point Roberts kl. 11 f. h. og í dönsku kirkjunni Corner E. 19th og Burns St. Van- couver, B.C., kl. 3 e. h. Messan í Vancouver fer fram á íslenzku. Veitið því eftirtekt að messan í Vancouver er kl. 3 e. h., en ekki að kveldinu. + + S. B. Benediktsson skáld í Langruth, biður Lögberg að flytja hinum mörgu vinum sín- um, er sendu honum heillaóskir um jólin og nýárið, sínar inni- legustu þakkarkveðjur fyrir hugulsemina; þetta er blaðinu ljúft að gera, jafnframt því sem það árnar skáldinu fagurra fram- tíðardaga. + Þann 11. jan. lézt í Wynyard, Sask. Jón Jónsson, Garðar, fædd- ur að Görðum á Álftanesi, 24. jan. 1852. Kona hans var Guð- rún Sveinbjarnardóttir, látin 1918. Hann lætur eftir sig eina dóttur, Margréti Guðrúnu, gifta Pétri Thorlacius við Wynyard. Hann var jarðsunginn af séra S. S. Christopherson, í grafreit Wynyard-bwjar þ. 15. s. m. + John Christy (Friðjón Krist- jánsson) bóndi í Argylebygð, lézt á sjúkrahúsi í Winnipeg 12. þ. m. Hann var fæddur í Dakota en hafði alið aldur sinn að mestu í Argylebygð. Útför hans fór fram frá Grundarkirkju 15. jan. Séra Valdimar J. Eylands jarð- söng. + Kristján Mýrdal, fasetignasali frá Chicago, lézt þar í borg 10. jan., en var jarðaður í heima- sveit sinni nálægt Lundar þann 18. janúar. Hans verður vænt- anlega minst nánar síðar. + Séra Skúli Sigurgeirsson frá Gimli og frú, voru stödd í borg- inni í byrjun vikunnar. + Mr. og Mrs. C. Tomasson frá Hecla, hafa dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. Ungmenni, sem hafa í hyggju, að leggja stund á nám við verzlunarskóla í Winnipeg, ættu að leita upplýsinga á skrifstofu Lögbergs; þeim getur orðið að því hreint ekki svo lítill hagur. Það fólk, sem hefir aflað sér verzlunarmentunar, á margfalt hægra með að fá atvinnu, en hitt, sem slíkra hlunninda fer á mis. Spyrj- ist fyrir um kjör á skrif- stofu Lögbergs nú þegar; það getur margborgað sig. Gimli prestakall— Sunnudaginn 27. janúar: Messá að Húsavick kl. 2 e. h., bæði málin verða notuð. íslenzk messa að Gimli kl. 7 .e h. og árs- fundur safnaðarins að guðsþjón- ustunni aflokinni. Meðlimir eru beðnir að fjölmenna, því áríðandi málefni er á dagskrá. Skúli Sigurgeirsson. + Árborg-Riverton prestakall— . 27. jan.—Árborg, ensk messa kl. 2 e. h. 3. febr.—Riverton, ensk messa kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason. + Lúterska kirkjan í Selkirk— Sunnudaginn 27. janúar: — Sunnudagaskóli kl. 11 árd. íslenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson. Gefin voru saman í hjónaband á laugardagskvöldið var, þann 19. janúar, þau Anna Jónasína Árnason, dóttir Jóns Arnasonar fyrrum kaupmanns á Oak Point, og Helgu konu hans, og Emi Leo Johnson frá Oak Point, son- ur Einars J. Johnson bónda þar og Sigurbjargar konu hans. Hjónavígslan fór fram á heimili foreldra brúðarinnar, 648 Victor Street í viðurvist fjölda gesta. Séra Valdimar J. Eylands gifti. + Mr. Sveinþór Thorvaldson, sonur Sveins kaupmanns Thor- valdssonar í Riverton og fyrri konu hans frú Margrétar Thor- valdson, lézt á heilsuhæli Ruby systur sinnar hér í borginni síð- astliðið sunnudagskvöld, ókvænt- ur maður 46 ára að aldri; hann hafði átt við freklega tveggja ára vanheilsu að stríða. Sveinþór heitinn var drengur hinn bezti og framúrskarandi vinfastur; auk foreldra sinna og stjúpmóð- ur, lætur hann eftir sig fjölda systkina. Útför Sveinþórs fór fram í Riverton á miðvikudag- inn. + Mr. G. A. Williams kaupmaður frá Hecla, var staddur í borginni á mánudaginn. + Dr. Sveinn E. Björ/lsson fyrr- um læknir í Árborg, hefir verið skipaður héraðslæknir í Ashern læknisdæmi frá 1. marz næst- komandi að telja. Dr. Sveinn og frú hafa dvalið vestur við Kyrra- haf síðan í haust; þau hjón hafa jafnan verið liðtæk varðandi þátttöku í íslenzkum mannfé- lagsmálum, og er það hinum mörgu vinum þeirra því mikið fagnaðarefni, að íslenzk bygðar- lög fái notið starfskrafta þeirra framvegis. + Frú Björg Isfeld hefir tekið að sér organistastarfið við Fyrstu lútersku kirkju í fjarveru Miss Snjólaugar Sigurðson; hefir frú Björg gegnt áður þessu starfi við hinn ágætasta orðstír. + Ársfundur deildarinnar “Bár- an” verður haldinn í skólahúsinu á Mountain, laugardaginn 2. febr. n.k., kl. 2 e. h. — Á þessum fundi verða lesnar skýrslur yfir störf deildarinnar á liðnu ári, kosnir embættismenn fyrir næsta ár. Ennfremur fer fram kosn- ing fulltrúa á Þjóðræknisþingið, sem haldið verður í Winnipeg, Man. í febrúar n.k. Á eftir fundi verður dálítil skemtiskrá, með stuttum ræðum, söng og músík, svo, félagsmenn og konur, gjörið svo vel að fjölmenna. Kaffiveit- ingar í fundarlok. Fyrir hönd nefndarinnar, A. M. A. + Gefið í minningarsjóð Bandalags Lúterskra Kvenna , Mr. og Mrs. Th. Anderson, Winnipeg, $25.00, í minningu um ástkæran son, Air Gunner Wil- lard Adolphe Anderson. Með innilegu þakklæti, Anna Magnússon, Box 296, Selkirk, Man. + Þann 16. janúar voru gefin saman í hjónaband að heimili Mr. og Mrs. Oliver Goodman, Nettly Lake, Man., John Penfold Stocks, frá Rooseville, B.C., og Frances Croft, Nettly Lake, Man. Mr. og Mrs. Oliver Good- man aðstoðuðu við giftinguna., Heimili nýgiftu hjónanna verð- ur í Roosville, B.C. Séra Sigurð- ur Ólafsson framkvæmdi gift- inguna. + The Junior Ladies’ Aid of the lst Lutheran Church will hold a birthday meeting in the church parlors, Victor St., Tuesday, Jan. 29th, and will have as their guests the Senior Ladies’ Aid, + Þessi börn voru skírð af séra Skúla Sigurgeirssyni að Piney, 20. þ. m.: Ivan George Mattson Franklin Lawrence Freeman Chrystal Vinge Gerald Sigvart Berg Richard Berg. + Gjafir í námssjóð Miss Agnes Sigurdson: Mr. og Mrs. G. S. Thorvaldson, $25.00; Mr. og Mrs. A. G. Eggert- son, $25.00; Mr. Justice og Mrs. H. A. Bergman, $25.00. Mr. Halldór M. Swan hefir góðfúslega boðist til að safna í þennan sjóð, og er eftirfarandi skrá yfir það, sem honum hefir orðið ágengt: — Mr. og Mrs. Loftur Matthews, $5.00; Mr. og Mrs. Guðman Levy, $10.00; Mr. Halldór M. Swan, $25.00; Mr. og Mrs. C. K. Thor- lakson, -10.00; Mr. og Mrs. S- Jakohson, -10.00; Mr. og Mrs. G. J. Johnson, $10.00; Mr. P. Hall- son, $2.00; Mr. og Mrs. Jochum Asgeirsson, $10.00; Mr. og Mrs. G. A. Stefanson, $5.00; Mr. Elías Elíasson, $5.00; Mrs. B. J. Good- man, $5.00; Mr. Thor O. Hallson, $5.00; Mr. Gunnar Erlendsson, $5.00; Mr. Soffonias Thorkelsson, $25.00. — Samtals $207.00. Áður kvittað fyrir $1,011.00 Með þakklæti, f. h. nefndarinnar, G. L. Johannson, féh. The Swan Manufacturing Company Manufacturers of SWAN WEATHER STRIP Halldor Methusalems Swan Eigandi 281 James St. Phone 22 641 PERTH’S DRY CLEANING SPECIALS CASH and CARRY Suits 59c Men's 2 or 3 Piece . (Whites Extra) Dresses 69c (1 Piece Plain) Pants 21c When Sent with Suil (Whites Extra) Skirts 21c When Sent with Dress (Whites Extra) PERTH’S 888 SARGENT AVE. ÞJÓÐRÆKNISÞINGIÐ Hið 27. ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi verður haldið í Winnipeg dagana 25., 26. og 27. febrúar næstkomandi, á venjulegum stað. Deildir eru ámintar um að senda fulltrúa á þingið, eftir því sem réttindi þeirra mæla fyrir. Dagskrá þingsins verður birt síðar. STJÓRNARNEFNDIN. Saga VESTUK ÍSLENDINGA Þriðja bindið af Sögu íslendinga í Vestur- heimi eftir Þ. Þ. Þorsteinsson, er nú nýlega komið út, mikil bók og merk, 407 blaðsíður að stærð, og í fallegu bandi. Þetta er bók, sem verðskuldar það að komast inn á hvert einasta og eitt íslenzkt heimili í þessari álfu; bókin kostar póstfrítt $5.00. Bókin fæst á skrifstof- um Lögbergs og Heimskringlu, og einnig í Björnson’s Book Store, 702 Sargent Ave., og hjá J. J. Swanson, 308 Avenue Building, Win- nipeg; svo og hjá útsölumönnum í hinum ýmsu bygðarlögum. Það var slæmt í sjóinn og hin- ir tuttugu og fimm farþegar voru nýsestir að borði skip- stjórans, er hann bauð þá vel- komna með stuttri ræðu: “Jeg vona, að hver einasti yk- kar tuttugu og fimm hafi ánæg- ju af ferð þessari”. Súpan var borin inn og hann hjelt áfram: ” Það er einlæg ósk mín, að þessi litli tuttugu og fjögra manna hópur njóti sjóferðarinnar í sem ríkustum mæli. Jeg lít á þessi tuttugu og tvö brosandi andlit eins og faðir á fjölskyldu sína, enda ber jeg ábyrgð á þessum sautján manna hóp. Og nú bið jeg ykkur fjórtán að lyfta glös- um ykkar og skála fyrir fóstur- jörðinni. Jeg er þess fullviss, að okkur átta muni koma ágætlega saman, og jeg er sannarlega þakklátur forsjóninni fyrir að láti mig kynnast ykkur þremur. Þjer og jeg, kæri herra, er- um . .. Heyrðu þarna þj,ónn, berðu diskana út og komdu með næsta rjett”. Utsala íslenzku blaðanna Umboðsmaður okkar á íslandi er Bjöm Guðmundsson, Reynimel 52, Reykjavík. Hann tekur á móti pöntunum á blöðunum og greiðslum fyrir þau. LÖGBERG og HEIMSKRINGLA THE IDEAL GIFT ICELAND'S THOUSAND YEARS A series of popular lectures on the History and Literature of Iceland. 172 pages — 24 illustrations Price $1.50 Send Orders to: MRS. H. F. DANIELSON, 869 Garfield St., Winnipeg, Canada. AIl Gift Orders Sent Promptly, With Gift Cards No 17 — VETERANS' LAND ACT (continued) Benefits and Obligations (Section 9 of Act) The maximum amount which the Director may spend on an ndividual establishment, whether full time farming, small hold- ing, or small holding coupled with commercial fishing, is $6,000, of which up to $1,200 may be spent on livestock, farm equipment and fishing gear, but the maximum of $1,200, available for live- stock and equipmen tis correspondingly decreased at the cost to the Director for land and permanent improvements increases above $4,800, up to the maximum of $6,000. For example, when the cost of land and buildings is $5,400, only $600 remains for the purchase of livestock and equipment. When the cost of land and buildings is $6,000, nothing remains for the purchase of livestock and equipment. Aveteran so established must pay in advance 10% of the amount expended by the Director for land and permanent im- provements plus any cost over $6,000, and contract to repay two-thirds of such cost on amortization basis within twenty-five years, with interest at the rate of 3 ¥2%. If the veteran complies with the terms of his contract for ten years, the Dominion thus absorbs approximately 24% of the cost af land and permanent improvements plus the total cost of the livestock and equipment or fishing gear supplied to him. This space contribuí ed bjj THE DREWRYS LIMITED MD 140 VERZLUNARMENNTUN Hin mikla nýsköpun, sem viðreisnarstarfið út- heimtk á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar fullkomnustu sérmenntunar sem völ er á; slíka mennt- un veita verzlunarskólarnir. Það getur orðið ungu fólki til verulegra hags- muna, að spyrjast fyrir hjá oss, munnlega eða bréf- lega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. THE COLUMBIA PRESS LIMITED TORONTO AND SARQENT, WINNIPEG The Fuel Situation Owing lo shorlage of miners, sirikes. eic.. ceriain brands of fuel are in short supply. We may not always be able to give you jusi ihe kind you want, bui we have excellent brands in stock such as Zenith Coke, Berwind and Glen Roger Briquetles made from Pocohontas and Anlhracite coal. We suggest you order your requiremenls in advance. McCurdy Supply Co. Ltd. BUILDERS' SUPPLIES AND COAL Phones 23 811 — 23 812 1034 Arlington St.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.