Lögberg - 28.03.1946, Side 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. MARZ, 1946
Frá Þjóðræknisþinginu
Það var óvenjulega fjölment að
þessu sinni, troðfult á öllum sam-
komum og fundir vel sóttir. Má
ætla að þetta beri vott um aukinn
áhuga og er það vel, því þjóð-
ræknisfélagið er eina félagið,
sem getur beitt sér fyrir áhuga-
málum allra Islendinga í Vestur-
heimi, varðandi þjóðrækni þeirra
og verndun íslenzkra menningar
verðmæta. Mjög er það nú samt
ábærilegt, að sú kynkvísl, sem
stofnaði þetta félag og hefur
barist fyrir viðhaldi þess jafnan
síðan, er nú tekin fast að eldast.
Þarf félagið í framtíðinni, að
ná meir til hinnar ungu og upp-
rennandi kynslóðar. Leitast er
við, að gera þetta með barna-
fræðslu í ýmsum bygðum með
nokkrum árangri. Bót er í máli,
að yngsta deild félagsins “The
Young Icelanders Canadian Club
í Winnipeg’^er mjög vakandi í
starfinu.
Þingið var ekki einungis fjöl-
sótt, heldur og hið ánægjuleg-
asta að flestu leyti. Voru það
einkum hinir góðu gestir: Ing-
ólfur Gíslason læknir og Niels
Johnson dómsmálaráðherra
Norður Dakotaríkis, sem gerðu
það líflegt og skemtilegt.
Ingólfur læknir er svo kýminn
og kátur, að manni verður að
hlæja að hverju sem hann segir,
jafnvel þótt það kunni að vera
dauðsfall uppí dölum Fróns, og
er það þó ekki fyrir það, að
læknirinn hafi slíkt í kýmnis
ræðum, heldur geta menn ekki
stöðvað hláturinn. Það hefur
sannarlega verið hressandi og
læknismeðal við tannpínu og
minniháttar magakveisu, að fá
svo skemtilegan læknir í sjúkra
vitjun. Ræða hans var þess utan
stórfróðleg um helbrigðis ástand-
ið á Islandi, þótt sumu væri þar
slept, sjálfsagt viljandi, sem frá
mínu sjónarmiði hefði mátt
minnast á, á eg þar einkum við
kynferðissjúkdómana, þessi átu-
meins í lífskrafti þjóðanna, sem
fer stöðugt vaxandi á íslandi,
sem annarstaðar.
Læknirinn bar fram kveðjur,
fyrsta þingdaginn, frá forseta og
stjórn Islands, og sendiherra Is-
lands í Washington. Sömuleíðis
bar hann fram boðsbréf til rit-
stjóranna í Winnipeg og Grettis
Jóhannssonar ræðismanns, frá
þjóðræknisfélaginu í Reykjavík,
þess efnis að þessum mönnum
ásamt eiginkonum væri boðið í
heimsókn til íslands á næstkom-
andi sumri. Sjálfsagt hefur það
verið fyrir vangá að Gísli John-
son, ritstjóri Þjóðræknistíma-
ritsins var ekki tekinn í töluna,
þótt það hefði verið viðeigandi,
því ritið hefur mikla útbreiðslu
heima.
Þingsetningardaginn flutti líka
Hon. Niels Johnson, domsmála-
. ráðherra, kveðju frá ríkisstjóra
Norður Dakotaríkis og einkar
skemtilegt ávarp frá sjálfum sér.
Hófst þingið mjög svo ánæju-
lega því auk þessa ber sízt að
gleyma þingsetningarræðu for-
setans, enkar snjöllu erindi og
fluttri með þeirri röggsemd og
fjöri, sem Dr. Beck er svo eigin-
leg. Hanner einnig atkvæða
maður um alla fundarstjórn og
setur lífsmark áhugans á alla
fundi.
Um kveld þessa dags stóð “The
Icelandic Canadian Club” fyrir
ágætri samkomu í fyrstu Lút-
ersku kirkjunni. Var þar margt
um manninn og margt til skemt-
unar. Ágætur upplestur á ís-
lenzku, serti ungar stúlkur intu
af hendi. Þar söng einnig kvenna
söngflokkur undir stjórn Mr.
Paul Bardals og sungu þær mikið
og sungu vel. Ávarp forsetans,
Mrs. Hðlmfríður Daníelson var
bæði snjalt og viðeigandi. 9r hún
nú að láta af embætti sem for-
seti deildarinnar; á félagsskap-
urinn henni mikið að þakka, því
hún hefur verið afar ötul og
framkvæmdarsamur forseti.
Aðal atriði þessarar samkomu
var hin prýðilega ræða Hon.
Niels Johnson. Það má skrum-
laust fullyrða, að ræðan hefði
flest til síns ágætis og var yfir
höfuð af þeirri tegund, sem bú-
ast má við frá velgefnum og
mentuðum hugsjónamanni. Efni
hennar var um heimsástandið og
þörf á alþjóðastjórn til friðtrygg-
ingar. Hún var full af heilbrigðri
hugsun og alveg laus við þær
ýfingar og hnútukast til vissra
þjóða, sem nú alment tíðkast og
þykir alveg sjálfsagt þótt vant
sé að vita hvernig menn hugsa
sér að tryggja frið með því fyrst
að reyta- aðra til reiði, en smá-
peðin leika þetta eftir höfðingj-
unum, þótt leikurinn sé grár og
geti orðið afdrifaríkur til illra
heilla. Það er ekki víst að eg sé
ræðumanni samdóma í öllu sem
hann sagði, sérstaklega fanst mér
hann helzt til bjartsýnn á mögu-
leikana um alþjóðastjórn eins og
nú er í pottinn búið. En hvað
um það, ræðan var ágæt og hug-
vekjandi. Og það er nú sízt að
undra þótt menn geri sér þær
vonir að mannkynið hafi vit á
að bjarga sér frá bróðum bana
með því að taka það eina ráð,
sem helzt myndi duga til að af-
stýra styrjöldum. Eg get ekki
lýst áhrifum ræðunnar betur en
með því að segja ykkur hvað mér
datt í hug: “Hérna er maður,
sem er líklegur til að komast
langt og verða sér sjálfum, ætt-
mönnum sínum og þjóð ávalt til
sóma, haldi hann þessari stefnu.
Gaman þykir mér nú að vita
hvert spásögn sú rætist. .
Annars má þess geta, að ræðan
mun verða prentuð í “The Ice-
landic Canadian Magazine,” og
vil eg ráða fólki til að kaupa
ritið og lest ræðuna. Geta má
þess að Hon. Niels Johnson á
aldraða móður í Winnipeg til
heimilis hjá dóttur sinni Mrs. V.
J. Eylands, því hún og dóms-
málaráðherran eru systkyn.
Samkoman, sem ,deildin Frón
stóð fyrir næsta kvöld var einnig
vel sótt og fór vel fram. For-
seti Fróns, Mr. Guðmann Levi,
stjórnaði henni. Ekkert veit eg
hvert Mr. Levi er ræðumaður
mikill en hann hefur þann kost
að eyða ekki tíma í að hlusta á
sjálfan sig þegar menn vitan-
lega hafa komið til að hlusta á
aðra.
Aðal ræðumaðurinn var Ing-
ólfur læknir, en þar sem eg hei:
þegar sagt frá honum eins og
hann kom. mér fyrir sjónir á
ræðupalli, og ræðan hefur nú
þegar birst á prenti er þarflaust
að fara þar um fleiri orðum.
Karlakór Winnipeg söng nokk-
ur lög. Kórinn er prýðilega æfð-
ur undir stjórn Mr. Sigurðsson-
ar og sjaldan hefúr mér fundist
betur sungnir sumir þeirra söng-
va er þeir fóru með þetta kvöld,
svo sem “Tárið” og “Ólafur
Tryggvason.”
Mrs. Alma Gíslason söng þar
einsöngva af þeirri list sem henni
er lagin, þegar henni tekst veru-
lega upp, og henni tókst veru-
lega vel þetta kveld, var unun
mikil að hlusta á hana. Eg vil
skjóta því inní, því eg sé enga
ástæðu til að þegja yfir því, að
söngur hennar hreif fjölda fólks
utan bygðarinnar við síðustu ís-
lenzku útvarps guðsþjónustuna
frá Sambandskirkjunni. Eg
minnist þess ekki, að eg hafi
leyrt rokkvísurnar öllu betur
sungnar en af Mrs. Gíslason
>etta kveld. Geta má þess að
hún söng þar einnig einn söng
eftir Mrs. Ottesen - Guðmunds,
dóttur Nikulásar Ottesen í Win-
nipeg.
Einnig skemti Ragnar Stefóns-
son með upplestri. Las hann loka
caflan úr sögunni “Móðir ísland”
eftir Hagalín. Það er engin leið
að lýsa dáindis listinni (the
suptle charm) í hirini hófstiltu
upplestrar kunnáttu Ragnars.
Þeir sem þekkja það þurfa þess
ekki við, hinir geta ekki gert sér
neina hugmynd um það. Sem
upplesari minnir hann mig helzt
á Einar Kvaran.
Samkoman í Sambandskirkj-
unni síðasta kvöldið var einnig
ágæt. Veitti hinn fráfarandi for-
seti, Dr. Beck henni forstöðu. Til
skemtunar var einsöngur Miss
“í Guðs nafni”
Margir hafa reynt það, er þeir
koma í ókunnan stað, að þeim
finst sem þeir hafi komið þar
áður. Þeir kannast þar við sig,
og eðlilegasta skýringin, sem
þeim finst vera á þesu, er sú, að
þeir hafi séð þennan stað í
draumi. En fæstir hafa reynt
neitt líkt því, sem kom fyrir
breskan liðsforingja á Malta nú-
na í stríðinu. Hann sá fortíð og
nútíð blandast saman í eitt og
enginn fær gefið neina skýringu
á {>ví, og sízt hann sjálfur, því
að hann veit að hér var ekki um
draum að ræða.
Hann var seint um kvöld á
leið heim til sín af dansleik í
Sliema.
Leið hans lá fram hjá gömlum
tyrkneskum kirkjugarði og þótt-
ist hann sjá þar einkennilegar
verur á ferli milli bautastein-
anna. I sama mund stóðu tvær
konur, með slör fyrir andliti, á
veginum fyrir framan hann. Þær
ávörpuðu hann og báðu hann að
fylgja sér til Valetta.
Hann fylgdi þeim alla leið að
húsi þeirra, sem var bæði stórt
dg skrautlegt. Þær buðu honum
inn og hann þáði það. Komu þær
þá inn í viðhafnarstofu með
skrautlegum húsgögnum. Yfir
Margrétar Helgason. Undarlegt
hvað lítið hefur verið minst á
þennan snildar söngvar'a, en það
er hún, ekki einungis í mínum
eyrum heldur margra annara. Að
mínu viti tekur engin henni
fram að næmum listasmekk á
efni og anda íslenzkra ljóða og
laga. Auk þess er röddin óvenju
hrein, blæfögur og beygjanleg.
Hún er frá Mikley, en þaðan
hefur margt ágætt söngfólk kom-
ip, og hæfileika fólk af flestu
tagi.
Myndirnar frá íslandi, í litum,
voru mjög fagrar svo eg engar
fegri séð af okkar fósturláði. Er
vonandi að Dr. Árni Helgason
verði til með að sýna þær í
mörgum íslenzkum bygðum. Það
var skaði mikill að hann var ekki
þarna til staðar til að skýra þær
og enginn sem þekti staðhættina.
Myndirnar voru víst teknar af
ferðalagi um hinn svo nefnda
Fjallbaksveg á suð-austur land-
inu.
Eitt af því sem gerðist þetta
kvöld var útnefning heiðursfél-
aga í þjóðræknisfélaginu. Gerði
skrifari þá útnefningu en menn-
irnir voru eins og þið hafið þegar
séð: Dr. John C. West forseti
ríkisháskólans í Norður Dakota;
Prófessor Ásmundur Guðmunds-
son forstöðumaður guðfræða-
deildarinnar í háskóla Islands,
og séra Albert E. Kristjánsson,
Blaine, Wash. Ekki má gleyma
Bardals bræðrunum sem skemtu
með hljóðfæraslætti. Það voru
þeir Capt. Njáll Bardal og Arin-
björn Bardal yngri, synir Arin-
bjarnar Bardals. Mér, að minsta
kosti, mun ekki bráðlega úr
minni líða clarinet solo Arin-
bjarnar: The Lost Chord by Sul-
livan.
Eg hef gerst fjöjorður um þéss-
ar samkomur alveg viljandi, af
því mér finst oflítil viðurkenn-
ing gefin þeim, sem helzt stuðla
að lista lífi hér yestra; þess utan
ekki frítt við að flokkslegrar
hlutdrægni gæti stundum hjá
okkur, þá sjaldan getið er hér
um söngvara o. sv. frv.
Á samkomum þeim er standa
í sambandi við þjóðræknisþingið
er tekið á því bezta og kemur
þá gjarnan í ljós að hér er bara
undarlega mikið af listfengu
fólki. Það myndi stórum dauf-
legra yfir íslenzku félagslífi hér
vestra legðist þinghaldið niður,
og er þess viss að engin sem
sótti að minsta kosti þetta þing,
úr bygðunum muni hafa iðrast
>ess.
Um þinghaldið og framgang
málanna mun síðar getið.
Lundar, 18. marz, 1946.
H. E. Johnson, ritari
Þjóðrœknisfélagsins.
dyrunum stóð arabisk áletrun:
“Bismillah” ( í guðs nafni).
Hann dvaldist þar nokkra
ntsud við fjörugar umræður, og
fór svo.
Daginn eftir saknaði hann
vindlingahylkis síns. Datt honum
í hug að hann hefði gleymt því
hjá konunum og sendi þjón sinn
þangað. En þjónninn kom aftur
svo búinn, kvaðst ekki finna
húsið.
Liðsforinginn fór þá sjálfur á
stað. Þegar hami kom í þá götu,
þar sem húsið átti að vera, fann
hann það ekki, en í stað þess
var þar mjög fornfálegt hús, sem
virtist hafa verið í eyði í mörg
ár. Hann snéri sér þá að götu-
sópara og spurði hvaða hús þetta
væri. Götusóparinn sagði hon-
um að það væri altaf kallað
“gamla tyrkneska húsið” og þar
hefði ekki nokkur átt heima í
mörg ár.
Liðsforininn opnaði þá úti-
dyrnar og kannaðist þegar við
húsaskipan þg)tt alt væri nú hrör-
legt hjá því sem það var um
nóttina. Mikið ryk var á gólf-
inu og í því sá hann spor sín síð-
an um nóttina. Hann rakti þau
inn í þá stofu þar sem hann hafði
setið hjá stúlkunum. Yfir dyr-
um var sama áletrunin og hann
hafði séð þá. Og á miðju gólfi
lá vindlingahylki hans og á þv
stóð nú hin arabiska áletrun
“Bismillah.”
(Þessi frásögn var birt í Lund-
únablaðinu “Morning Post” og
staðfest af nánustu ættingjum
liðsforingjans Sir William Good-
enough flotaforingja og Lady
Cozens-Hardy).
Hinir svokölluðu “þyngdar-
töfrar” voru alkunnir til forna í
Persíu, Indlandi og Egyptalandi.
Þeir lýstu sér í því, að einhver
hlutur varð óskiljanlega þungur,
ef færa átti hann úr stað, eiris og
hann sjálfur gerði sig þyngri til
þess að -láta ekki flytja sig. (I
íslenzkum þjóðsögum kemur
þessi trú líka fyrir).
Fyrir nær þremur árum gerð-
ist slíkur atburður í mexikanska
þorpinu San Juan Parangericu-
tiro.
Hinn 14. marz 1943 kom jarð-
eldur upp í nágrenni þorpsins og
var gosið svo ákaft að elasúlan
stóð 500 metra í loft upp og
stráði eldi og eimyrju yfir akra
og bygð. íbúar þorpsins flýðu
hver um annan þveran, en^prest-
urinn kallaði á nokkra menn og
bað þá að hjálpa sér til þess að
bjarga tveimur líkneskjum úr
kirkjunni, Kristslíkneski og lík-
neski af St. Juan de la Cholchas.
Líkneski þessi vógu um 50 kg.
hvort og tveir menn báru hvort
þeirra léttilega út úr kirkjunni.
En þá tóku þau alt í einu að
þyngjast og fleiri urðu að ganga
undir þau. Það dugði ekki og
seinast fengu eigi sex menn bor-
ið þau. Þeir lögðu þau niðúr
dauðuppgefnir og þurkuðu af sér
svitann. Allir voru undrandi.
Presturinn hóf bæn. Alt í einu
snéri hann sér að kirkjunni, laut
niður og lyfti upp Kristsmynd-
inni, sem rétt áður hafði verið
svo þung að sex menn gátu ekki
borið hana. Þá skipaði prestur-
inn svo fyrir, að bera skyldi lík-
neskin aftur til kirkjunnar. Og
nú brá svo við að þau léttust við
hvert skref og seinast gat einn
maður borið hvort þeirra inn í
kirkiuna.
(Presturinn og söfnuður hans
hefir staðfest þessa sögu, og hún
hefir birst í mexikönskum blöð-
um).
+
Einfætingur
Þessi atburður gerðist í South
Devon í Englandi fyrir nokkrum
árum, og hefir engin skýring
fengist á honum.
Það var einn morgun að fólkið
í þorpinu kom á fætur að það
sá, að mikið hafði snjóað um
nóttina, og í snjónum sáu þeir
einkennilega slóð, sem lá þvert
yfir akra, engi, girðingar og hús
og var hún rakin um 40 mílna
vegalengd. Þessi slóð hlaut að
vera eftir einfæting, því að spor-
in voru í beinni línu hvert fram
af öðru og voru öll eins, klofin,
í hálft, um 4 þumlungar á lengd
og 2 á breidd, en 8 þumlungar
milli þeirra. — Sumsstaðar lá
slóðin þvert yfir nokkur hús,
yfir heystakka og 5 metra háa
veggi.
Fréttin barst fljótt út og vís-
indamenn og blaðamenn streym-
du til Devon. Vísindamennirnir
urðu að játa, að þessi spor þektu
þeir ekki. Ekki væri kunnugt
að til væri nokkur skepna, er
léti eftir sig slíka slóð. Sporin
voru teiknuð nákvæmlega og
steypumót tekin af þeim og send
á náttúrugripasafnið í London.
Enginn þekti þessi spor, og þau
hafa aldrei sést síðan.
(“Times” sagði frá þessum at-
urði og sagði að engin eðlileg
skýring yrði gemin á honum).
+
Elddansinn
1 skýrslu þeirri er Smiths Etno-
logiska stofnunin gaf út árið
1883—84, má lesa einkennilega
frásögn eftir Washington Mat-
thews lækni, sem gerði sér far
um að kynnast siðum Indíána,
þegar hann var læknir í Fort
Wingate í New Mexico. Frásögn
hans er af trúarbragðahátíð, sem
Navajo-Indíánar héldu 28. októ-
ber 1884 skammt frá Wingate-
virkinu. — Mattheæs segir svo
frá:
“Ellefti dansinn var nefndur
elddansinn. Tíu menn með landa-
dúk, gengu inná autt svæði, en
áhorfendur stóðu í hring þar um.
Allir þessir menn, nema for-
inginn báru í höndum kyndla úr
ræmum af sedrusviðarberki.
Þeir kveiktu á kyndlunum við
hinn heilaga eld og hófu svo
tryltan dans umhverfis eldinn.
Síðan tóku þeir að berja hver
annan með logandi kyndlum.
Hver maður barði þann sem á
undan var, á bert bakið, og
stundum nugguðu þeir bakið
hver á öðrum með eldinum, en
enginn kipti sér upp við það. Ef
þeir náðu ekki til annars manns
hýddu þeir sjálfa sig með loga-
vendinum. Og voru það engin
smáhögg, sem hver vitti öðrum.”
Þegar dansinum var lokið
skoðaði læknirinn alla þá, sem
tekið höfðu þátt í honum. Hvergi
sást votta fyrir brunasárum á
hinum nöktu líkömum þeirra.
Hann hafði sjálfur horft á að-
ferðirnar og honum var alveg
óskiljanlegt hvernig þeir höfðu
komist óskemdir úr dansinum.
—Leshók Mhl.
Fyrsta sveitaþorpið á ís-
landi, sem byggt er eftir
skipulagi frá upphafi
Austur í Fljótsdalshéraði er
nú að byggjast fyrsta sveitaþorp
á íslandi, sem byggt er eftir
fyrirfram gerðu skipulagi.
Þorp þetta er að rísa rétt aust-
an við Lagarfljótsbrú, í landi
Egilsstaða.
Vísir hefir fengið upplýsingar
um væntanlegt fyrirkomulag
þorpsins hjá húsameistara ríkis-
insð Guðjóni Samúelssyni, sem
er formaður skipulagsnefndar.
Það hefir löngum verið rætt
um sambyggðir eða þorp til
sveita, einkum með tilliti til
þarfa bænda, svo sem viðgerðar-
verkstæði, tré og járnsmíði, múr-
vinnu, verzlun o. fl. Þessa vinnu
þarf yfirleitt að sækja til sjávar-
þorpa eða kaupstaða og þeir sem
stunda hana búa á mölinni og
hafa í fæstum tilfellum neinar
landsnytjar eða neina mögu-
leika til þess að njóta gæða
«veitalífsins.
Hér á landi hafa að vísu mynd-
ast þorp til sveita, eins og t.d.
Hveragerði og Selfoss. En þessi
þorp hafa ekki verið byggð eftir
skipulagi og það veldur þeim í
ýmsu miklum örðugleikum,
einkum hvað snertir landsnytjar.
En nú hafa sýslunefndir Múla-
sýslna séð fyrir lekann og ákveð-
ið að byggja sveitaþorp eftir
fyrirfram ákveðnu skipulagi og
jarðnæði fyrir íbúana. Og vorið
1944 fór Skipulagsnefnd ríkisins
og skipulagsstjóri austur á Hér-
að til þess að athuga sthði fyrir
slíkt þorp.
Það voru nokkurir staðir sem
komu til greina og að síðustu
varð Skipulagsnefnd sammála
um að reisa þorpið sem næst
Lagarfljótsbrúnni, en það er mið-
stöð aðal umferðaæða héraðsins.
Heppilegast þótti að byggja
þorpið austan brúarinnar, í Eg-
ilsstaðalandi. Þar er landrými
mikið og gott til ræktunar.
Þorpið er byggt með það fyrir
augum, að þar búi fyrst og fremst
menn er hafi iðnað í einhverri
mynd og verzlun að aðalatvinnu,
en garðrækt og jarðyrkju sem
aukastarf. Þó er gert ráð fyrir
að nokkur hluti íbúanna hafi
landbúnað að aðal^tarfi, en þeir
verði samt miklu færri.
I þessu þorpi er nú þegar kom-
ið upp sjúkrahús, sem ætlað er
héraðinu. Er þar pláss fyrir 10—
12 sjúklinga í einu. Þá er og búið
að reisa tvo læknabústaði og
dýralæknisbústað, en kaupfélag-
ið á Reykjarfirði hefir byggt þar
verzlunarhús. Á s.l. sumri voru
svo byggð þar 10 íbúðarhús og
eru miklar eftirspurnir eftir lóð-
um í þorpinu, svo allar líkur
benda til að það byggist fljót-
lega og að þangað safnist fjöl-
menni. á fáum árum.
I framtíðinni er hugsað að auk
þeirra bygginga sem þegar eru
komnar, risi þar skólar. kirkja,
samkomu- og íþróttahús, slátur-
hús, verksmiðjur fyrir niðursuðu
landbúnaðarafurða, verkstæði
fyrir tré- og járnsmíði, fyrir
vélar og bifreiðar, auk íbúðar-
húsa.
Ákveclið hefir verið að út-
hluta vissri landspildu til hvers
einstaklings, sem miðuð yrði við
þarfir hans og atvinnugrein. Það
er þá fyrst og fremst lóð undir
hús og garðstæði, en jafnframt
land til grasnytja, túnræktunar,
slægna, og til garðræktar. Gert
er ráð fyrir sameiginlegu beiti-
landi, en hinsvegar ræður hver
einstaklingur hvort hann vinnur
einn ^ð nytjum lands síns eða
í samvinnu við aðra.
Það hefir verið komið upp
mótoxrafstöð í bili í þorpinu og
hefir ríkið komið henni upp. En
um þessar mundir er unnið að
athugun byggingu orkuvers fyrir
allt Austurland og er gert ráð
fyrir að hafizt verði handa um
framkvæmdir innan skamms
tíma. Breytast þá iðnaðarmögu-
leikar mjög til batnaðar og auk
þess mætti stunda ræktun á
gróðurhúsum í stórum stíl með
rafmagnið að hitagjafa.
Vatn til þorpsins er tekið úr
lind, sem er í 2ja til 3ja km.
fjarlægð og er þegar byrjað að
undirbúa vatnsleiðsluna. Sömu-
leiðis verður komið fyrir sam-
eiginlegri sorpæð frá húsunum.
Gera má ráð fyrir að sveita-
þorp eigi mikla framtíð fyrir
sér. Við Lagarfljót er nú verið
að koma upp fyrsta sveitaþorp-
inu á íslandi, sem byggt er eftir
fyrirfram gerðu skipulagi. Menn
vænta mikils af því og óska
brautryðjendum góðs gengis og
allra heilla í merkilegu staijii.
— Vísir, 6. febrúar.
— Eg er ekki—hikk—fyllri en
það, að eg gæti fundið—hikk—
leiðina heim, ef eg vissi aðeins,
hvar eg á heima.
+
— Erjur elskenda endurnæra
ást þeirra.
+
— Sannleikúrinn er stundum
ósýnilegur. — Spakmæli.
+
Sjómaður segir frá: ,
— Einu sinni, þegar eg fór í
land á skógivaxinni eyju, vissi
eg ekki fyrr en ljón réðist aftan
að mér, sló byssuna úr höndum
mér og át mig síðan upp til agna.
— En hvernig getið þér þá
setið hér og sagt frá tíðindum?
— Það er heldur ekki eg, bara
einhver, sem líkist mér.