Lögberg - 28.03.1946, Page 4

Lögberg - 28.03.1946, Page 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2&. MARZ, 1946 --------iLogtoerg---------------------*. GefiS út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED j 695 Sargent Ave., Winnipeg, Maniitoba Utan&skrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. PHONE 21 804 Prófessor Sveinbjörn Johnson Mig setti hljóðan, er símadeild Canadian Pacific járnbrautarfélagsins hringdi í mig á miðvikudagsmorguninn þann 20. yfirstandandi mánaðar og las fyrir mig símskeyti frá Dr. Árna Iielga- syni í Chicago þar sem mér var gert að- vart um að nóttina á undan hefði pró- fessor Sveinbjörn Johnson látist af hjartaslagi í bænum Champaign í Illinois ríkinu, en þar hafði hann átt heima um allmörg undanfarin ár; freklega tuttugu og sjö ár voru liðin frá því, er fundum okkar fyrst bar saman, er hann sem gestur, dvaldi nokkura daga í þessari borg; mér líður það aldrei úr minni, hve þessi hjartahreini og djúpvitri maður var ástúðlegur í viðmóti við mig, alls- endis ókunnugan, hve brosmildur hann var og hlýr, þótt fas hans alt vitnaði jafnframt um óhvikula alvöru og sterkan vilja; eg fann til þess að þar væri á ferð víkingur með barnshjarta, er á sínum tíma myndi marka djúp spor í tímans sand; þetta varð orð og að sönnu, þótt hugboð mitt vitaskuld ylli þar minstu um; hinir fyrstu samfundir okkar Svein- bjarnar leiddu til vináttu, er styrktist í rót með fjölgandi árum, þrátt fyrir litaskiptin, sem hún nú hefir tekið, við sviplegt fráfall hans. í stuttri, en íturhugsaðri ritgerð um prófessor Sveinbjörn sextugan, er birt var í Almánaki Thorgeirson’s 1943, eftir Dr. Richard Beck, er í innganginum þannig komist fagurlega og maklega að orði: “í hlutfalli við höfðatölu íslendinga vestan hafs, er það óneitanlega orðinn álitlegur hópur þeirra karla og kvenna, sem borið hafa merki manndóms og at- hafna á þarlendum vettvangi með þeim hætti, að varpað hefir ljóma á ættland- ið og þjóðstofn vorn. Hin fögru kveðjuorð Arnar skálds Arnarsonar til vor Vestur-íslendinga, í tilefni af íslandsför Guttorms J. Gutt- ormssonar, eiga því við staðreyndir að styðjast, og verður hugarhlýja þeirra og aðdáunarandi fyrir það ennþá áhrifa- meiri, en ella væri: “Þeir sýndu það svart á hvítu með sönnun er stendur giíd, að ætt vor stóð engum að baki í atgerfi, drengskap og snild.” Meðal þeirra manna af íslenzkum stofni í Vesturheimi, sem hæzt ber í þarlendu þjóðlífi fyrir hæfileika þeirra og áhrifamikið nytjastarf, er prófessor Sveinbjörn Johnson; enda hefir hann skipað mikilvægar stöður og haft með höndum víðtæka menningar- 'og stjórn- arfarslega starfsemi í tveimun ríkjum Bandaríkja Norður-Ameríku, Norður- Dakota og Illinoins.—” ^ Prófessor Sveinbjörn var fæddur að Hólum í Hjaltadal þann 10. dag júlí- mánaðar, árið 1883. Faðir hans, Jón Jónsson skipstjóri, lézt á bezta skeiði ævinnar, en vestur um haf fluttist Sveinbjörn kornungur með móður sinni Guðbjörgu Jónsdóttur frá Nesi í Fljót- um og stjúpföður sínum Ólafi Jóhanns- syni frá Framnesi í Blönduhlíð; settust þau brátt að í íslenzku frumbygðinni við Akra í North Dakota, og í því um- hverfi naut Sveinbjörn barnaskóla- mentunar; námshæfileikar Sveinbjarn- ar voru snemma ábærilegir, og með þeirri festú, er jafnan svipmerkti skap- gerð hans, lánaðist honum að ryðja sér braut til æðri mentunar, og ljúka á sín- um tíma stúdentsprófi, meistaraprófi og embættisprófi í lögvísi við háskóla North Dakotaríkis, í Grand Forks; öll- um slíkum prófum lauk Sveinbjörn með heiðri, og vann margskonar heiðursvið- urkenningar; hann þótti snemma mark- viss og skemtilegur ræðumaður, er náði föstum og óbifandi tökum á hugsana- lífi hlustenda sinna; mælgimaður var hann enginn, en þeim mun vissari í rökum; persónuleiki Sveinbjarnar, drengilegur og styrkur, mótaði hugsun hans og málfar, og gerði hvorttveggja mergjað og eftirminnilegt; í sínum hóp gat Sveinbjörn verið manna fyndnastur, og innan um íslenzka vini sína varð honum tíðvitnað í kýmnisvísur ýmissar eftir kristján Júlíus, er hann hafði alveg sérstakt dálæti á. Starfsferill Sveinbjarnar prófess- ors varð annað og meira en algengt æfin týri; hann varð eitt af kraftaverkuin hins íslenzka kynstofns; eftir að Svein- björn hefir stundað málafærslustörf í nokkur ár, verður hann dómsmálaráð- herra í North Dakota, og nokkuru síðar hæztaréttardómari ríkisins; næsta sporið, er hann svo stígur á þróunar- brautinni verður það, að gerast pró- fessor í lögvísi við hinn mikla háskóla Illinoisríkis, jafnframt því sem hann er skipaður lögfræðilegur ráðunautur þeirrar umfangsmiklu menntastofn- unar. Árið 1935 er Sveinbjörn prófessor valinn til þess af Roosevelt forseta, að annast um ufirumsjón feikna fjárhæðar, er Washingtonstjórn veitti á kreppu- árunum t'il atvinnu- og kjarabóta í Illi- noisríkinu; var þetta hið mesta vanda- og ábyrgðarstarf, er Sveinbjörn leysti af hendi með slíkri háttlægni og rögg, er vakti aðdáun heillar stórþjóðar; þannig speglaðist glögg dómgreind Sveinbjarnar, ásamt réttlætisvitund hans og samvizkusemi í sérhverju því, er hann beitti sér fyrir óg hafði sett sér að inna af hendi; hann gekk jafnan óskiptur til verks, og í óhemju vinnu- gleði sinni, vann hann eitt þrekvirkið öðru meira, og lánaðist loks að ljúka þýðingu af hinni fornfrægu lögbók ís- lendinga, Grágás, yfir á enska tungu, og mun sú bókmennta þrekraun, ein út af fyrir sig, halda nafni hans lengi á lofti. Þegar eg að áliðnu sumri 1944, hitti Sveinbjörn vin minn í veizlu þeirri hinni veglegu, sem þau Dr. Helgi P. Briem, og frú, héldu til heiðurs fyrsta forseta ís- lenzka lýðveldisins, herra Sveini Björns- syni, í New York, áttum við nokkurt tal saman um ritstörf hans, og sagði harni mér þá, að annað veifið hefði sér fund- ist að á þeim vettvangi hefði lífsköllun sín átt að hafa legið, en svo hefði hann á hinn bóginn borið kvíðboga fyrir því, að verða ekki nema meðal fúskari, og væri þá jafnan ver farið en heima setið. “Og nú hefi eg lokið við Grágás,” sagði Sveinbjörn með glettnisbros í augunum; “eg hélt að hún ætlaði að steindrepa mig, ög hún kannske gerir það enn; eg vakti við þetta fram á rauða nótt í frek- lega tuttugu ár, en tel það ekki eftir, verði þýðing bókarinnar að einhverju leyti til gagns og sæmdar.” Við Svein- björn prófessor vorum meira og minna saman alla dagana, sem eg dvaldi í New York; fjallaði samtal okkar jafnaðarleg- ast því nær einvörðungu um íslenzka menningu og íslenzk hugðarmál; ást hans á íslenzkri menningu var engin yfirborðsjátning; hún var grunntónn- inn í skapgerð hans og vitundarlífi. Prófessor Sveinbjörn var merkur rithöfundur er jafnan var viss í sinni sök hann vann íslenzku þjóðinni mikið nytjaverk með bók sinni “Pioneers of Freedom,” er út kom í tilefni af Alþing- ishátíðinni, auk þess sem hann með markvissum ritgerðum í tímaritinu “Ethics of Law,” varðandi samanburð íslenzkrar og enskrar löggjafar, inti af hendi mikilvæga fræðslustarfsemi ís- lenzku þjóðinni til vegsauka; þó mun, eins og Dr. Beck bendir á í áminstri ritgerð um Sveinbjörn sextugan, sú rit- gerð hans einna innviðatraustust og þýngst á metum, er lýtur að lífsspeki Norrænna manna og Forn-Grikkja, er gengur undir nafninu “Old Norse and Ancient Greek Ideals,” þar sem gerður er samanburður á siðfræðilegum og stjórnfræðilegum ritum Aristotelesar og Hávamálum, og það dregið fram, hve margt sé skylt með þeim lífsskoðunum, sem til grundvallar liggja. Sveinbjörn prófessor heimsótti ís- land 1930 sem einn af sendifulltrúum Bandaríkjastjórrtar, og bjó hann jafnan að þeirri för; var hann kjörinn heiðurs- doktor við háskóla íslands og sæmdur stórriddara krossi Fálkaorðunnar, enn- fremur sæmdi háskóli North Dakota- ríkis hann heiðursdoktorsnafnbót í lögum; engar slíkar mannvirðingar stigu Sveinbirni Johnson til höfuðs; hann mat þær, en var eftir sem áður sami öðlingurinn, sama hógværa ljúf- mennið. Eg held að Sveinbjörn prófessor hafi sent mér flest eða alt, sem eftir hann birtist á prenti, að því undanskildu, er hann samdi á stúdentsárum sínum, og þykir mér gott að eiga slíkt í fórum mínum til minningar um látinn aðalsmann, og per- sónulegan vin. Sveinbjörn prófessor læt- ur eftir sig ekkju, Esther Henryettu Slette, hina • mestu myndar konu af norskum ættum, ásamt einum syni, Paul að nafni; einnig tvær systur, Sigríði, ekkju Jónasar Bergman, og Önnu Johnson. • *Útför Sveinbjarnar pró- fessors fór fram í Grand Forks, N. Dak., á sunnudag- inn var; meðal líkmanna úr hópi íslendinga, voru Dr. Beck og Dr. Thorgrímsen. Með prófessor Sveiríbirni Johnson er genginn grafar- veg vitur og hjartahreinn mannkostamaður, sem holt var að kynnast og gróði að eiga að vini. E. P. J. , FRÁ ÍSLENZKA SENDI- RÁÐINU í WASHINTON Washingtin, D.C. 20. marz, 1946. Herra ritstjóri, Einar P. Jónsson, “Lögberg” 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba, Canada. Herra ritstjóri: Hér með vil eg skýra yður frá því, að á ráðstefnu þeirri, sem nýlega var haldin í Wilmington Island, Georgia, í sambandi við stofnun alþjóðabanka og gjald- eyrissjóðs mætti sendiherra Is- lands í Washington sem fulltrúi íslands. Ráðstefna þessi var haldin í framhaldi af Bretton Woods ráðstefnunni. Þess má geta, að er fulltrúi Kanada var kosinn í framkvæmdarráð al- þjóðagjaldeyrissjóðs greiddi full- trúi fslands honum atkvæði. Þá vil eg einnig skýra frá því, að á UNRRA ráðstefnu þeirri, sem nú stendur yfir í Atlantic City, New Jersey er einnig ís- lenzkur fulltrúi, Magnús V. Magnússon, sendiráðsritari við sendiráð íslands í Washington. **. Virðingarfyllst, Thor Thors. Afi var að segja Jóni frá því, þegar hann tók þátt í heimsstyrj- öldinni fyrri. Þegar hann hafði lokið því, sagði Jón: — En afi, til hvers voru þá allir hinir hermennirnir? 4* Hann: Viltu kyssa mig, Elsa? Hún (feimin): Eg hefi aldrei kyst karlmann áður. Hann: Þá pössum við ágæt- lega saman. Eg hefi nefnilega aldrei' gert það heldur. + —Þér vitið víst ekki, við hvern þér talið? Einn af forfeðrum mínum barðist við Napoleon. — Já, einmitt það. Það var mjög skemtilegt. Hvor vann? Odds Are Against You LADIES! DONT ‘CAMBLE • WITH •BEAUTY!! NATURE ENDOWED YOU WITH ONLY ONE HEAD OF HAIR Do Not Sacrifice Your Crowning Glory to a Price! CONSULT AN EXPERT NELS TODD WHO REALLY KNOWS! "ASSISTANT ARTISTS AT YOUR SERVICE ALWAYS" 300 Kensington Building — Smith and Portage $25,000.00 ALÞJ0ÐAR BYGG-SAMKEPNI fyrir ÚTSÆÐI og MALT ENDURBÆTUR (Að tilstuölan ölgeröar og maltiðnaðarins í Canada) MILLIFYLKJA- og FYLKIS- SVÆÐA VERÐLAUN Takið þátt í alþjóðar-byggsam- kepni strax. Stuðlið að end- urbættu byggútsæði í Canada og vinnið há peninga verðlaun. Samkepnin er fyrir yður. Við- urkendir bændur í viðurkend- um byggræktarsvæðum í Canada, sem rækta O.A.C. 21, Mensury (Ottawa 60), Olli og Montcalm, geta tekið þátt. Verzlunar- og stjórnmálastofn- anir undanþegnar. Umsóknum lýkur 15. júní. Varðandi eyðublöð og upplýs- ingar, skulu þér finna yðar Elevator Operator, Agricul- tural Representative, eða skrifa til: 'L deildarverðla (M $1&,750,0 ' anl(°ba, Saskatchewa b»‘tu Peace ni ' A,b e River hérað p yrstu verSJaun $1 °nnur verSlaun ' $500.00 $3i Fj6r»u verðiaun P . $20 fvr ,Ve,ð!aUn ,v „ vm$1,000 Svæðaverðlaun W* hvert fylki g Aiiir, sem „ H'“,DOO, til’ ^rzr’rvinna•f6 < aSEttu By NATIONAL BARLEY CONTEST COMMITTEE MANITOBA: Provincial Chairman, c/o Extension Service, Dept. of Agriculture, Winnipeg, Man. SASKATCHEWAN: Provincial Chairman, c/o Field Crop Commissioner, Regina, Sask. ALBERTA: i Provincial Chairman, c/o Field Crop Commissioner, Edmonton, Alta.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.