Lögberg - 13.06.1946, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. JÚNl, 1946
--------ILogbcrg —
G«fiö tit hvern fimtudag: af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 .‘ ‘.argent Ave., Winnipeg, Maniitoba
Utanáskrift ritst jórans:
EDITOR LOGBERG
>95 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Rtstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The "Lögberg" is printed and published by
The Columbía Rress, Limited, 695 Sargent
Aver ue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Class Mail,
Post Office Dept., Ottawa.
PHONE 21 804
Fagurt æviátarf
Hið fegursta §if öllu fögru á þessari
fögru jörð, er fögur mannsævi—draum-
ur guðs — sem blessar sjálfa sig og sam-
ferðasveitina með fögrum og kærleiks-
ríkum nytjaverkum; slík ævi er jafnan
fórnfús og óeigingjörn.
Einn þeirra samtíðarmanna vorra,
er vegna mannástar sinnar og aðdáun-
arverðrar kærleiksþjónustu í þágu lítil-
magnans, hefir vakið á sér athygli vítt
um lönd, er Albert Schweitzer, söng-
fræðingur, guðfræðingur, læknir og rit-
höfundur; hann er ættaður frá Elsass-
fylkinu í Frakklandi, og lagði stund á
læknisfræði með það fyrir augum, að
koma til liðs við lítilmagnana, hina fá-
kunnandi og þjáðu blökkumenn, er haf-
ast við í nýlendum Frakka í Afríku; fólk
þetta hafði svo að segja farið á mis við
alla læknishjálp og var haldið hvers
konar kvillum; vinir Alberts gerðu alt,
sem í þeirra valdi stóð, til þess að telja
hann ofan af fyrirætlunum sínum, og
kváðu hann bíða mundu bráðan bana
innan um hinn blakka vesældarlýð, er
grafinn væri sundur af smitnæmumi
sjúkdómum; en hann lét engar slíkar
fortölur á sig fá og kvaðst eiga heilagri
köllun að gegna, er guð og lífið krefðist
af sér að rækja; hann nam guðfræði í
Strassburg; hann var í átta ár organisti
við Bach-hljómsveitina í París og gegndi
í tvö ár hliðstæðu starfi í Barcelona, en
lauk embættisprófi í læknisfræði við
Parísarháskóla; hann lagði einkum fyr-
ir sig skurðlækningar og fékk brátt á sig
mikinn orðstír í þeirri grein læknisvís-
indanna.
Árið 1913 lagði Albert Schweitzer
leið sína til áminstra nýlendna í Afríku
og kom á fót sjúkrahúsi í þorpinu Lam-
barene, en gaf sig jafnframt við trúboði;
meðan á fyrri heimsstyrjöldinni stóð,
létu frönsk stjórnarvöld taka þenna
mikla mannvin fastan og töldu hann
vera viðsjárverðan útlending; var þetta
því furðulegra, sem vitað var að maður-
inn var fæddur í frönsku fylki og hafði
þegar samið allmargar bækur á franskri
tungu; um fangavist sína var Albert
læknir næsta fáorður, en víst er um það,
að hún varð honum næsta þungbær, því
þegar hann var látinn laus, var hann
allmjög bilaður á heilsu ;•* áður en langt
um leið náði Albert læknir sér það vel,
að hann hóf fyrirlestraferðir vítt um
Norðurálfuna, auk þess sem hann hélt
organ-hljómleika í því augnamiði, að
afla fjár handa sjúkrahúsi sínu í Afríku,
sem bæði þurfti* að endurbæta og
stækka; en er til Afríku kom á ný hafði
sjúkrahús hans verið jafnað við jörðu,
og var því eigi um annað að gera en
byrja á nýjan leik; þess var heldur ekki
langt að bíða, að nýtt og fullkomnara
sjúkrahús risi upp af rústum hins fyrra
og voru þar lærðar hjúkrunarkonur á-
valt við hendi; vinsældir Alberts læknis
meðal þeirra blökkumannasveita, er
hann umgekst urðu slíkar, að fólkið
skoðaði hann sem útvalinn sendiboða
guðs og vildi alt að hans vilja gera.
Árið 1934 flutti Albert læknir fyrir-
lestra við Oxford-háskóla, er lutu að
jafnrétti og mannúðarmálum, og áttu
óvenjulegum vinsældum að fagna.
Ýmsir háskólar sæmdu Albert lækni
doktorsnafnbótum, og í Frankfurt voru
honum veitt Goethe's verðlaunin fyrir
langa og dygga þjónustu í þarfir mann-
úðarinnar. Þessi göfugi og sérstæði
maður, sem nú er 71 árs að aldri, er
búsettur í Calmar í Elsass-fylki; hann
er maður fríður sýnum og hetjulegur í
framgöngu; á y»ngri árum hafði hann
mikið, hrafnsvart hár, sem hefir nokkuð
skift lit og tekið á sig silfurblæ.
Víðkunnur, brezkur guðfræðingur,
sem er gagnkunnugur Albert lækni, læt-
ur svo um mælt, að hann hafi engum
öðrum manni kynst, er minni sig jafn
ljóslega á Krist. Albert læknir er ljúfur
í viðmóti, einarðlegur á svip, og úr aug-
«
um hans skín starfsgleði hins sanna og
hreinhjartaða umbótamanns; hann hef-
ir verið kallaður rödd hrópandans í
auðnum Afríku; hann varði beztu árum
ævinnar til þess að bæta fyrir syndir
hvítra manna gagnvart hinum blökku
bræðrum þeirra; en þrátt fyrir öll hans
mörgu og miklu mannúðarstörf og ó-
mótmælanlega einlægni, hafa nokkrar
þröngsýnar myglusálir amast við bók-
um hans, svo sem “Quest of Historical
Jesus,” og ‘‘Ethics and Civilization.”
Hefir því verið borið við, að þessar bæk-
ur skorti kjölfestu hefðbundins kenn-
ingakerfis; hvílík fjarstæða slíkt er,
kemur gleggst í ljós þá hugleidd er sú
lífsspeki hans, sem felst í eftirgreind-
um orðum hans sjálfs: “Hinn unaðslegi
tilgangur lífsins er fólginn í því, að vér
helgum lífið í óeigingjörnum kærleika
því öllu, sem lifir og hrærist á þessari
jörð.”
Blaðamannaþing
Síðari hluta vikunnar, sem leið, var
háð hér í borginni hið árlega þing viku-
blaðasambandsins í Manitoba; voru þar
samankomnir flestir ritstjórar viku-
blaðanna ásamt frúm sínum. Forsæti
skipaði Mr. Marsh, ritstjóri og útgef-
andi blaðsins Dauphin Herald; er hann
ungur áhugamaður, sem veit hvað hann
vill; langflestir ritstjóranna, sem til
vikublaðasambandsins teljast, eru af
engil-saxneskum stofni, þótt nokkurir
að vísu séu af öðru sauðahúsi, eða öðr-
um þjóðernislegum uppruna; allir eiga
menn þessir, eins og gefur að skilja,
ólík hugðarmál, þótt margt eigi þeir
sameiginlegt, svo sem það að vanda blöð
sín eftir föngum, og vinna að heill cana-
disku þjóðarinnar; þarna ægir saman
miðalda konservatívum, forhertum
liberölum og háspenntum C.C.F.-sinn-
um; á þingi sem þessu koma stjórnmál
tæpast til greina, því mestum þingtím-
anum er varið til íhugunar á hagsmuna-
hlið blaðanna, hvernig auka megi út-
breiðslu þeirra, bæta vélakost og afla
blöðunum sem mestra tekna af auglýs-
ingum; alt er þetta þarft, og verðskuld-
ar fylztu athygli af hálfu útgefenda og
ritstjóra, sem í mörgum tilfellum eru
sömu mennirnir; á þingum þessum rík-
ir jafnaðarlegast hollur eindrægnisandi,
sem mikið má læra af; þarna eru í raun-
inni allir eitt!
Það er ósegjanlegt ánægjuefni, að
endurnýja kunningsskap við stéttar-
bræður sína á þessum þingum og skift-
ast á við þá kveðjum.
Fjögur verzlunarfélög höfðu blaða-
menn og frúr þeirra í boði sínu að þessu
sinni, og voru það heildsölu pappírsfé-
lögin Clark Bros. Ltd., MidWest Paper
Sales, Ltd., Brewery Products Corpora-
tion og T. Eaton Company Limited.
Skorti þar hvorki gleði né góðan fagnað.
Mr. Norris, ritstjóri í bænum Elk-
horn hér í fylkinu, var kosinn forseti á-
minstra blaðasamtaka fyrir hið nýbyrj-
aða starfsár.
Tvenns konar afmæli
Forsætisráðherrann í Canada, Mr.
King, á tvenns konar afmæli þessa dag-
ana; hann er sjötíu og tveggja ára að
aldri, og hefir gegnt stjórnarforustu
með þjóð sinni í tuttugu ár; hefir hann
með hinu síðarnefnda sett met, eigi að-
eins í þessu landi, heldur og innan vé-
banda brezka veldisins í heild. Mr. King
nýtur enn ágætrar heilsu og lætur
hvergi bilbug á sér finna, þótt hlaðinn
sé störfum myrkranna á milli jafnt utan
þings sem innan; það má til sanns vegar
færa, að honum sleppi sjaldan verk úr
hendi og að hann þá uni hag sínum bezt,
er störfin hlaðast sem mest á hann.
Mr. King er manna vitrastur og ras-
ar eigi um ráð fram; hann er gæddur
svo ákveðnum og traustum forustu-
hæfileikum, að Liberal flokknum hefir
aldrei komið til hugar að skipta um for-
ingja á því langa og viðburðaríka tíma-
bili, sem hann hefir veitt honum forustu.
Mr. King er maður hollráður og grund-
ar viðfangsefni jafnan í kjöl áður en
hann fellir úrskurð; þetta gildir jafnt
um umboðsstjórnina heima fyrir sem
meðferð hinna vandasömustu utanrík-
ismála.
Mr. King hefir haft víðtæk áhrif á
viðhorf heimsmálanna, auk þess sem
það mun löngum í minni haft, hvert
jafnvægi hann skapaði í canadisku þjóð-
lífi meðan á síðustu alheimsstyrjöld
Carl F. Frederickson
1886-1946
Þ^gar við hjónin fluttum á
síðastliðnu hausti til hins nýja
starfsviðs okkar í Vancouver,
B. C., þá var það eitt meðal ann-
ars, sérlega ánægjulegt að hitta
fyrir ýmsa kunningja og sam-
verkamenn frá fyrri árum. Með-
al þeirra voru hjónin Matthildur
og Carl Frederickson. Carl hafði
eg þekt þegar hann var unglings
drengur í Argyle-bygð. Er eg
svo gerðist fyrst kennari og síð-
ar prestur í Vatnabygðunum í
Saskatchewan, hitti eg hann þar
fyrir, ásamt með fólki hans. Og
síðan átti eg öll starfsár mín þar,
mikið og gott samstarf með þeim
hjónum, og naut vináttu þeirra
og góðsemi. Og nú er til Van-
couver kom var af þeirra hálfu
hinu sama að mæta: alúð, vin-
semd og gestrisni. Reyndist sú
vinsemd þeirra og annara góðra
kunningja frá fyrri árum, okkur
sérstaklega mikilvæg er við vor-
um að hefja hér starfið og koma
okkur fyrir í algerlega nýju um-
ihverfi.
Það var okkur líka mikil á-
nægja að sjá hvað Carl var nú
hress og frískur, þrátt fyrir þau
veikindi er við vissum að hann
hafði orðið að þola. Eins og fyr,
var hann glaðvær og góðlyndur,
félagslyntur og starfssamur í fél-
agsmálum Islendinga hér. Fanst
mér stundum að hann í því efni
leggja of mikið á sig, af því eg
vissi um hina takmörkuðu
krafta. En áhuginn og viljinn
var svo ótakmarkaður.
Ekki hvað sízt tók hann mik-
inn þátt í söng, bæði í söngflokk
íslenzka lúterska safnaðarins,
sem hann tilheyrði;í hinum al-
menna íslenzka söngflokk hér
þar sem hann skipaði forystu; og
einnig í fleira sambandi. Dáð-
umst við að því hvað hin fagra
tenór-rodd hans var enn skær
þrátt fyrir undangengna sjúk-
dómsbaráttu. Með söng sínum og
allri þátttöku í honum skemti
hann sífelt öðrum og gladdi þá
Og í söngnum fann hann líka sí-
felt gleði og styrk.
Mikið áhyggju- og sorgarefni
varð það ástvinum hans og vin-
um er heiisa hans alt í einu bilaði
alvarlega í síðastliðnum febrúar-
mánuði. Og svo varð það þá sorg-
arefnið mesta, að þrátt fyrir hina
beztu læknishjálp, og allar
mögulegar tilraunir til að yfir-
buga sjúkdóminn tókst það ekki;
og hann andaðist á St. Pauls
sjúkrahúsinu hér, laugardaginn
16. marz, eftir mánaðir sjúk-
dómsstríð. 1 veikinda stríði hans
nú eins og oft áður, og einnig er
feigðin sveif að, var hin góða og
trúlynda eiginkona hans hjá hon-
um öllum stundum og bar dyggi-
lega með honum þá sáru og
þungu byrði er á hann hafði
lagst.
Carl Friðrik Frederickson
fæddist í Argyle-bygð í Mani-
toba 30. desember 1886. Foreldr-
ar hans voru Tryggvi Frederick-
son og Valgerður Jórísdóttir,
(systir dr. B. B. Jónssonar og
þeirra systkina).
Hjá foreldrum sínum ólst Carl
Stóð; um Mr. King má það
réttilega segja, að hann sé
maður þéttur á velli og
þéttur í lund; maður, sem
veit hvað hann vill og hop-
ar ógjarna af hólmi þótt við
ramman sé reip að draga.—
upp til ársins 1905. Þá fluttist
hann með þeim til Kandahar,
Sask., og bjó þar með þeim til
1917.
Arið 1917 giftist Carl eftirlif-
andi eiginkonu sinni Matthildi
Kristjánson, mágkonu dr. Rögn-
valdar Péturssonar. Var hún hin
mesta myndarkona, nýlega út-
skrifuð af Manitoba-háskólanum,
og um þær mundir við skóla-
kenslu í Vatnabygðunum í Sask.
Þau Matthildur og Carl bjuggu
svo á búgarði hans við Kandahar,
Sask., þar til árið 1936. Var
heilsa hans þá mikið biluð, svo
þau brugðu búi og fluttu til Van-
counver, B.C., keyptu sér þar
heimili og settust þar að. Áttu
þau þar ávalt síðan heimili, þó
þau um stundarsakir byggju í
Winnipeg og Gimli.
Auk eiginkonunnar lifa Carl
fimm systkini: Björn og Sigrún
(Mrs. B. Hjálmarson) í Regina,
Sask., Ethel og Oddný (Mrs.
Thos. Gorrick) í Saskatoon, Sask.
og Björg í Ottawa, Canada.
Eins og að hefir verið vikið, var
Carl mesti sómamaður eins og
hann átti kyn til, — ljúflyndur,
góðgjarn og félagslyndur. Mátti
segja að hann væri hvers manns
hugljúfi. Hann var ágætur söng-
maður, og tók mikinn og góðan
þátt í söng þar sem hann var,
jafnvel þó hann væri stundum
svo óhraustur. Hjónaband Carls
og Matthildar var hið ástúðleg-
asta ávalt. Hún var honum hin
sterkasta stoð bæði í starfi hans
og sjúkdómserfiðleikum. Vin-
sælda mikilla nutu þau bæði hvar
sem þau dvöldu.
Jarðarför Carls sál. fór fram
miðvikudaginn 20. marz frá út-
fararstofunni Simmons & Mc-
Bride Ltd., á Broadway í Van-
couver. Afar mikið fjölmenni
fylgdi hinum látna til grafar. —
Söngflokkarnir og fólkið sungu
viðeigandi útfararsálma og Mrs.
Thora Thorsteinson Smith söng
tvo fagra sólósöngva af þeirri
miklu list sem hún á yfir að ráða.
Til hvíldar var Carl lagður í
hinum undurfagra Forest Lawn
i grafreit hér í borginni. Séra H.
Sigmar jarðsöng.
Guð blessi minningu hins látna
góða manns, og guð leiði og styrki
syrgjandi ástvini hans.
H. Sigmar.
Kjarnorkusprengjan
og kritin trú
Grein sú, sem hér jer á eftir,
tíirtist í tímairitinu “Christian
Century” eftir ritstjóra þess,
Charles Clayton Morrison. Tíma-
rit þetta er mjög þekkt og víð-
lesið, og byggist útbreiðsla þess
aðallega á greinum kristilegs
efnis, eins og nafnið ber með
sér. Grein þessi fjallar um við-
ho rf kristins manns til þeirra
ískyggilegu tíma, sem vér lifum
á. Greinin er allmikið stytt, eins
og hún birtist hér.
Með kjarnorkusprengjunni
hafa komið þau tímamót í lífi
manna og þjóða, er munu leiða
í ljós, hvort hin vísindalega
þekking reynist til blessunar eða
bölvunar fyrir mannkynið. Vís-
indamönnunum, er sameiginlega
framleiddu sprengjuna, stendur
nú stuggur af því að hafa getað
komizt fyrir leyndardóm kjarn-
orkunnar. Þeir athuga eyðilegg-
ingarmöguleika hennar með hinu
alvarlegasta hugboði. Þessi að-
staða ‘ vísindamannanna gagn-
vart því, sem þeir hafa áorkað,
er eitt af því athyglisverðasta
við núverandi vandamál.
Allur hinn vísindalegi heimur
er nú mjög kvíðandi. Árangur-
,inn af aldagömlu vísindalegu
starfi og striti hefir birzt í
sprengju, sem allt mannkyn get-
ur glatað sjálfu sér með. Og
vísindamennirnir, er horfa með
skelfingu fram á þann mögu-
leika, sem þeir hafa opnað, ganga
í fyrsta skiptið í sögunni, fram
hjá sínum eigin verkahring og
gerast prédikarar og stjórnmála-
menn. Þeir boða hinn hræði-
lega boðskap tortímingar, ef
þjóðirnar ekki taki sinnaskiptum.
Vísindin hafa loksins komizt
rækilega að raun um þann sann-
leika, að hin vísindalega þekk-
ing er harla tvíeggjuð og getur
orðið annað tveggja, til hinnar
stærstu blessunar eða mesta böls,
allt eftir hversu mennirnir beita
henni. Með öðrum orðum: vís-
indin eru ekki sá Messías, er á
að frelsa heiminn, eins og reynt
hafði verið að telja mörgum
manninum trú um. Meistarar
(Frh. á bls. 5)
Útsala íslenzku blaðanna
Umboðsmaður okkar á Islandi er Bjöm Guðmundssi/n,
Reynimel 52, Reykjavík. Hann tekur á móti pöntunum á
blöðunum og greiðslum fyrir þau.
LÖGBERG og HEIMSKRINGLA
AIR CADET WEEK
"HELP DEVELOP THE CANADIAN CITIZENS OF
TOMORROW . . . SUPPORT THE AIR CADET
WORK TODAY"
PLEASE send contributions to your local Air Cadei
League Committee—or direct io the League's Provincial
Headquarters, 616 Avenue Building. Winnipeg.
This advertisement sponsored by
THE DREWRY'S LTD.
■IHHI!!IHIIIIHillimimilHIII«IIIHIHI!IH!IIHIIIIHilimilllHIIIIHIIIIHIII!mm!!IIHIinHIIII
VEXINA ferskara brauðs á morgun
KAUPIÐ
Cream Scone Loaf
( DAC
Biðjið kaupmanninn um það með nafni.
Canada Bread Co., Ltd.
Sími 37 144 Winnipeg
FRANK HANNIBAL, forstjóri
IHllHllliHIII BIIIIBIIIiHllnlillllHlillBiiliH,: ■li!lB!!liH1|iiH,,.■!>:,Blir|,
■
I
■
■