Lögberg - 22.08.1946, Blaðsíða 5

Lögberg - 22.08.1946, Blaðsíða 5
5 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. ÁGÚST, 1946 k) ÁtiLGAMÁl LVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Mjólkur sósa — Ef jþú kant vel að búa til ein- falda mjólkursósu, er auðvelt að breyta henni á margan 'hátt með því að bæta mismunandi efnum í hana, með margvíslegum rétt- um, eftir því hvaða ef’num er bætt í hana. Mjólkursósa er búin til þannig: Smjör eða önnur feiti, 3 mat- skeiðar; hveiti, 3 matskeiðar; salt, 1 teskeið; mjólk, 2 bollar. Bræddu fituna við vægan hita; bættu í hveitinu, saltinu og pip- arnum. Hrærðu vel. Taktu ílátið af hitanum og heltu hægt í mjólkinni og hrærðu. Láttu nú sósuna sjóða og hrærðu stöðugt þar til sósan er þykknuð. Til þess að flýta fyrir, má hita mjólkina í öðru íláti. Mældu hveitið á undan fitunni svo þú þurfir ekki að þvo skeiðarnar tvisvar. Mustard sósa — Bættu IVi matsfceið af þurru mustard við hveitið í mjólkur- sósunni. Þessi sósa er góð með soðnu nautakjöti, svínsfleski, harðsoðnum eggjum, grænum baunum og káli. Paprika sósa — Bættu 1% teskeið af paprika við ihveitið í mjólkursósunni. Þessi sósa fer vel með fiski bæði gufusoðnum og bökuðum, einnig með grænum lima baunum og káli. Curry sósa — Bættu % teskeið af curry ■dufti við hveitið. Þessi sósa er góð með harðsoðnum eggjum, shrimp, kindakjöti og hænsna- kjöti. Parsley sósa — Hrærðu hálfum bolla af niður- skornu parsley út í mjólkursós- una. Ágæt sósa með soðnum og steiktum fiski, kjöthleifum gul- rótum, káli og kartöflum. Pea sósa — Hrærðu einum bolla af soðn- um ertum úti í 'mjólkursósuna. Góð með fiski og kjöt loaves. Ost sósa — Hrærðu 2 bollum af muldum ost og V2 teskeið af Worcester- shire sósu út í mjólkursósuna. Sjóddu sósuna við vægan hita og hrærðu stöðugt í henni, þar til osturinn leysist upp. Þetta or ágæt og saðsöm sósa með macaroni, kartöflum, hrísgrjón- um, eggjum og tomatoes. Horse-Radish sósa — Hrærðu tvo-þriðju úr bolla af tilreiddu horse-radish, ásamt 1. teskeið lemon safa út í mjólkur- sósuna. Góð með soðnu kjöti, fleski og grænum baunum. Pimiento sósa — hrærðu V\ bolla af fínlega muldu pimiento út í mjólkur- sósuna. Þessi sósa er ágæt með hænsafcjöti, fiski eða kjöt loaves, hrísgrjónum, grænum baunum, og káli. -f -f 4 Frá bœjardyrum karlmannsins: KONAN OG HEIMSMENNINGIN (Lauslega þýtt úr ensku kvennablaði) Eg þelkki unga sveithstúlku. Hún vinnur ásamt nokkrum öðrum stúlkum á bóndahæ. Hús- bóndinn er roskinn, harðsvírað- ur piparsveinn. Skemmtilegur er hann á sína vísu. Hefir hann þá bjargföstu trú, að konan sé á réttri hillu sem móðir og hús- móðir, en karlmaðurinn sé “herra sköpun.arverksins.” Einn af gamla skólanum! Kvöld eitt sátu þau og spjöll- uðu saman að kvöldverði lokn- um. Byrjaði þá gamli maðurinn að þrátta við þær um uppáhalds- deiluefni sitt: “Hvern skerf haf- ið þið konur lagt til heimsmenn- ingarinnar? Sumar ykkar hafa reynzt fyrirmyndar húsmæður og — mjólfcurbústýrur,” bætti hann brosandi við. “En auðveld- ara mundi að telja þær konur, er markað hafa spor á sviði menningarinnar en hóp kinda. Heimspekingar, stjórnmálamenn, iandfcönnuðir, verzlunarmenn,, vísindamenn — allt karlar því nær undantekningarlaust! — Menning vor er sköpuð af karl- manninum. Okkur getið þið þakkað þá veröld, er þið lifið nú í.” Vinstúlku minni varð svara- fátt. En margt gæti hún hafa sagt. Hún gæti til dæmis hafa sagt, að þessi heimsmenning karlmannsins hefði varla verið þess verð að lofsvngja hana í lok ársins 1944. Hún gæti hafa sagt, að heimsmenning vor væri nú öll önnur, ef konan hefði, í stað karlmannsins, haft yfirhöndina í sköpun hennar. En hið raun- verulega svar myndi þó verða öllu djúptækara. í rauninni er það rangt að tala um menningu karls og konu sem tvennt ólíkt, því að “maður og kona eru eitt,” stendur þar. Það er því jafn fjarstætt að aðskilja áhrif karls og konu í sköpun jarðlífsins og áhrif hjarta og heila á starfsemi líkamans. Eg tek þetta dæmi vegna þess, að það er a.m.k. að nokkru leyti rétt, að karlmaðurinn samsvarar heilanum, en konan hjartanu í veröld vorri. Hann er hugsuður- inn, en hún ræður tilfinningun- um í vél þeirri, er heiminum stjórnar. Það er að vísu rétt, að konan hefir þar til nú fyrir stuttu verið lítt áberandi í heiminum. En það hefir hvorki fjarlægt hana né tekið burt hennar skerf af sköp- un veraldarinnar. Bóndanum ætti að vera slíkt kunnugt bezt allra manna. Þýð- ingarmestu kostir jarðar hans eru fólgnir í jarðveginum sjálf- um. Uppskera hans er ekki ein- göngu háð plægingu, herfingu og sáningu eða sól, regni og vindi, heldur og jarðveginum sjálfum og lífinu í honum. Sól og regn koma að ofan, en lífsandinn leit- ar upp á við, upp úr jörðinni. Þannig þarf sú staðreynd, að konan hefir verið í skugganum og borizt lítt á í daglegu lífi, ekki að vera sönnun þess að hún hafi ekki átt þar sinn þátt. Hún er ímynd jarðvegsins, og hefði hún ekki reynzt góður jarðveg- ur, yæri heimurinn löngu kom- inn til grunna. Nægilegt er að minnast þeirra áhrifa, sem mæður hafa á börn sín. Því nær hver maður, er getið ihefir sér frægð í sögu mann- kynsins, ihefir haft konu sér við hlið. Eg lít ékki á þetta frá “rómantísku” sjónarmiði, þ.e. að konan sé ástmey eða eiginkona, heldur konan, sem styður hann og styrkir og er um leið upp- spretta beztu hugmynda hans. Hann er raunsæismaðurinn. Hann er önnum fcafinn við hina tæfcnislegu heimsbyggingu, hún “TIVOLI” OPNAÐ I fyrradag var skemmtistaður- inn “Tivoli” opnaður hér í Reykj- avífc að viðstöddum allmörgum gestum. Skemmtanir þær, sem mönnum gefst þarna fcostur á, eru að mestu mjög nýstárlegar fyrir Islendinga, því þarna eru ýms skemmtitæki, sem til þessa hafa ekki þefckst hér á landi. Sigurgeir Sigurjónsson, lög- fræðingur, formaður “Tivoli h.f. skýrði frá því að bálft annað ár sé síðan undirbúningur hafi ver- ið hafinn að byggingu þessa skemmtistaðar. Svæc^ið sem “Tivoli” er á, er um 2. ha. að stærð. Þarna hefir verið komið fyrir bílabraut með 20 bílum, hringekju, eða áttfætling, “Par- ísarhjóli,” danspalli, sem mun vera sá stærsti, sem nú er til hér á landinu. Þá er þar og skáli, þar sem í eru yms áhöld til dægra- styttingar. Er skáli þessi aðeins til ibráðabirgða, en ætlunin er að þarna verði reist myndarlegt veitingahús. — Framkvæmdar- stjóri “Tivoli” verður Stefán Bjarnason. Vegir hafa verið lagðir um svæðið og hér og þar eru smá- hús, þar sem selt er sælgæti, gos- dryfckir o. fl. I skála þeim, er áður getur, er radió-hús, þaðan sem útvarpað er um allt svæðið. Hátalarar eru þar á 10 ,stöðum. Aðgangur að “Tivoli” kostar 3 krónur fyrir fullorðna, eldri en 12 ára, 1 króna fyrir börn 5—12 ára, en efckert fvrir yngri börn. Auk þess borga menn svo fyrir skemmtiatriðin, sem þeir velja sér. Tíminn, 11. júlí. heldur við lífsneistanum. Ekki má líta á þetta sem sam- band einstakra manna og kvenna, heldur sem samband manns og konu yfirleitt, allt frá upphafi vega, jafnt hjá háum sem lág- um. Konan er vörður og vernd- ari tryggðarinnar, hugsjónanna og heitra tilfinninga í heimi vor- um. Og hafi eitthvað farið öðru vísi en skyldi, eins og nú viðist vera, er það því að kenna, að maðurinn hefir ekki hlýtt með nægilegri athygli á það, sem konan hefir sagt honum. Heil- inn hefir skellt skolleyrunum við hjartanu, ef svo má að orði kveða. Dagar þeir, sem nú fara í hönd, eru slíkir, að þeir opna augu vor fyrir sannleiksgildi þessarar staðhæfingar. I seinni tíð hefir yfckur konunum hlotn- ast meiri virðing, meira frelsi og meiri áhrif í heiminum. Hér býðst ykkur tækifæri frá hendi heimsins sjálfs. Það eruð þið, öllum öðrum fremur, sem getið gert ‘hann að betri heimi, svo framarlega sem þið haldið áfram að vera konur í orðsins fyllstu merkingu. Eg hirði ekki um hversu gáfaðar, starfsamar og vísindalegar þið kunnið að verða, svo framarlega sem þið haldið hinum kvenlegu eiginleikum yfckar. Varðveitið hugsjónir ykkar, tryggð og tilfinninganæmi! Til þess komuð þið skapaðar í konu- líki. — Tíminn. FRÉTTIR (Frh. af bls. 1) gjörn. Hann sagði og að þjóð sín væri ákveðin í að borga fyr- ir yfirsjón sína og byggja á nýj- um igrundvelli framtíðar vel- ferð þjóðar sinnar. Undirtektir undir mál Tatar- escu voru alvarlegar og þungar, hjá öllum nema Tékkó-Slövum og Molotoff, sem fylgdu máli Tatarescu sem einn maður og kröfum hans, sem þótti stynga mjög í stúf við framkomu þeirra gagnvart óskum ítalíu manna. Fleiri málsvarar hinna sak- feldu þjóða töluðu ekki í vik- unni sem leið, opiniberlega, en Janos Gyongyesi utanríkisráð- herra Ungverja lét svo um mælt við fréttaritara í París: “Ef sam- bandsþjóðirnar ekki draga úr kröfum sínum á hendur Ung- verjum, þá eru tvær kynslóðir þeirra dæmdar til þrældóms, og jafnvel þá yrði Ungverjum það urn megn að fullnægja kröfum þeirra eins og þær eru framsett- ar í fniðarsamnings uppkastinu.” “Ofckar lífsframfærsla er nú á lægra stigi en lífsframfærsla fólks í Austurríki og á Þýzka- landi, og lengra getum við naumast farið í þá átt,” sagði hann. Hnn benti og á að í ársreikn- ingum þjóðar sinnar væru 420,- 000,000 florins — $21,000,000 sett- ir til síðu til endurreisnar heima fyriir, og “er sú hæsta upphæð sem við getum af hendi látið. En ihún hrekkur naumast til að borga Rússum þeirra árlegu skaðabætur, og þá uppliæð verð- um við að borga, því hún var fastákveðin í vopnahlés samn- ingunum við Rússa.” Gyongyosi sagði að skaðabóta fcriöfurnar á hendur Ungverjum næmu $6,000,000,000.00. “Það ætti að vera ljóst,” sagði hann, “að það er óhugsanlegt fyrir Ungverja að geta borgað þá upp- hæð.” Og hann bææi við: “Svo skuldunum við Vestrænu þjóð- unum $500,000.000.00 þar fyrir utan.” Mr. Gyongyosi benti á með beiskjufullum orðum, að með- ferðin á 650,000 Ungverjum sem voru í Tékkoslóvakíu væri ekk- ert betri en meðferðin á Gyð- ingum. “Þeir lifa í sífeldum ótta; þeir eru án þegnréttinda og mann- félagslegs réttar. Þeir hafa ekki rétt til algengrar atvinnu, ekki rétt á að tala sitt eigið mál, og þeim er bönnuð afnot af Radio og talsíma,” sagði hann. FRELSIÐ OG HJÓNABANDIÐ Það er ekki gaman að þeim guðspjöllum, þegar frelsið og hjónaíbandið verða hvort í ann- ars vegi, eins og nú á sér stað víða, en efcki sízt á ítalíu, því þar er tekið harðara á lausung hjónabandsins en víðast hvar annarisstaðar í heiminum. Við þessi ikjör una þær persónur, sem dauðþreyttar eru orðnar á mökum sínum, afar illa, og til þess að reyna að bæta úr þessu afturhaldi á Italíu, þar sem aftur- 'hald kaþólskunnar er orðið lítt bærilegt í þeim efnum, tók lög- fræðingur einn sig til, sem konu- laus var, og rak iðn sína í ó- þokkahverfi einu í Napel, og myndaði félag, sem þegar hefir náð mikilli útbreiðslu, til þess að kriefjast réttarbóta af ríki og kirkju í þessu efni, og ekki að- eins að kref jast réttarbótar, held- ur til að semja hjónaskilnaðar lög handa ítalska lýðveldinu nýja. Þessar athafnir Signor Lancales, svo heitir þessi lög- fræðingur, sem hér um ræðir, hafa vakið styr mikinn á ítalíu, prestar og ritstjórar hafa lagt sitt til málanna, götu-auglýsing- ár verið settar upp um málið og jafnvel óflog á götum úti átt sér stað. Hið kristilega heimilis- verndarfélag þar í landi festi upp auglýsingaspjöld, sem á var rit- að: “Varið yður á þeim, sem rjúfa heimilis-helgina — Niður með hjónaskilnaðar farganið.” Reta Montagnana, kona Palmiro Togliatte, leiðtoga kommúnista- flökksins sagði: “Flestar konur, sérstaklega alþýðumanna konur eru hjónaskilnaði mótfallnar.” Rússa sagði hún leggja alla á- h'erzlu á festu heimilisins. “Hví skyldum við kommúnistarnir, sem lýðveldisfyrirkomulagi unn- um, styðja þessa ihjónaskilnaðar 'kröfu minnihlutans?” 4-4-4 JÚGÓ-SLAVÍA Um kvörtun orðhvassa hefir u'tanríkisritari Júgóslavíu sent Bandaríkjastjórn og stjórn Breta yfir því, að ihermenn þeirra þjóða í vesturhluta Venezia-héraðsins þar sem þeir Ihafa eftirlit, haldi taum Nazista á móti Tító-mönn- um. Kvartar utanríkisritarinn ýfir því, að þetta sé 12. umkvört- unin, sem hann hafi sent síðan í marz s.l., og engri þeirra hafi verið svarað. í þessari síðustu umkvöntun er tekið fram að júgóslavneskir þegnan njóti ekki neinnar vernd- ar jí eftirlitsumdæmi ofan- greindra hermanna gegn of- stækisfullum árásum, því það sé orðinn siður hermannanna, að veita Nazistunum lið, eða þegar bezt láti, að skifta sér ekki af yfirgangi þeirra og ruddaskap. Enn fremur ihefir Júgóslavíu- stjórnin fcrafist þess að brezk og bandarísk yfirvöld á þessu svæði léti lausa við ríkisvaldið á annað hundrað menn, sem sekir gjörð- ust á stríðsárunflm og Tít-»»mar- skálkur og stjórn hans vill ná í til dóms og dauða. 444 JOHN L. LEWIS í CALGARY Rétt fyrir skömmu síðan kom maður mikill vexti á bifreið sinni til Cargary. Hann tók sér gistingu á Palliser hótelinu og var fljótlega í samræðum við embættismenn 18. deildar náma venkamanna Ameríku. Þeir sýndu þessum gesti virðingu 'mifcla, fóru með hann til Banff; Igáfu honum mynd af Eisenhow- | er f jalli og sögðu að tryggð með- lima deildar sinnar í Kanada, stæði eins föstum fótum og fjall- ið Eisenhauer. Gesturinn, sem var hinn þjóð- kunni John L. Lewis, sagði deildarmönnunum á fundi í Cal- gary: “Kaupgjald ykkar er ekki eins og það á að vera.” “Eini munurinn á þræl og frjálsum manni er, að sá síðar- nefndi hefir rétt til að neita að vinna.” “Þeir menn sem með léttúð tala um það tiltæki Bandaríkj- alþingsins, að banna verkföll með lögum, fyrir þá sök að verkfalls- menn gjöra almenningi ónáð með því, taka það ekki með í reikninginn að til 'þess verður að breyta stjórnarfyrirkomulagi Bandaríkjanna.” “Traustur hjálpar sjóður er verkamanna félögunum þörf eign.” Kolanáma verkamenn í Al- berta, sem eru 6,000 að tölu, fá nú $7.55 í kaup á dag. I vinnu- samningi þeim sem þeir hafa við námaeigendurna er tekið fram að hefja megi umtal og nýja kaupsamninga hvenær sem vera vill. Er nú hafinn undirbúnmgur undir nýtt kaupgjaldsstríð, sem vefcjandi ráust meistarans á upp- tökin að. Merkisafmæli íslenzkra bindindissamtaka (Frh. af bls. 4) anlega, eins og segir í smágrein með mynd þess, ‘“ein perlan til viðbótar í því listaverkasafni, sem mun verða þjóðinni því dýr- mætara, sem hún nær meiri ,and- legum þroska og hærra menn- ingarstigi.” Að málslokum vil eg svo votta Unglingareglunni á íslandi og Stórstúku íslands þakfcir fyrir ágætt og mikilvægt vakningar- og menningarstarf á liðnum sex- tíu árum, óslka þeim til ham- ingju með afmælin og framhald- andi öflugs þjóðþrifastarfs í nú- tíð og framtíð. Veit eg einnig, að aðrir íslenzkir Góðtemplarar og bindindisvinir vestan hafs taka heilum huga undir þær þakkir og óskir. The Swon Manufacturing Company Manufacturers of SWAN WEATHER STRIP Halldor Methusalems Swan Eigandi 281 James St. Phone 22 641 PERTH’S ANNUAL FUR EVENT Beautiful Coats in 1947 Styles Tremendous Savings ! FREE STORAGE UNTIL REQUIRED ! VISIT Perth’s Master Furriers 486 Portage Avenue Vernd á augnabliki fyrir þá sem talsíma hafa. Hann er bezta tryggingin þegar skyndilega kviknar í húsum ykkar, eins ef snögg veikindi ber að. eða eitthvað gengur úr lagi, þá getur þú náð í hjálp á augnablikinu — i gegnum talsímann. Líttu því vel eftir talsíman- jm þínum. HANN ER ÞINN BESTI VERNDARENGILL OG FJQLSKYLDUNNAR.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.