Lögberg - 22.08.1946, Blaðsíða 6

Lögberg - 22.08.1946, Blaðsíða 6
G Margrét Werner Beatrice fanst það svo indælt að vera dáð og tilbeðin á svo hrífandi hátt. Nú fann hún ekki lengur til einangrun- ar. Hún beið óþreyjufull hvers morguns eftir að sjá Alfred og hlusta á tal hans, sem var henni sem indæl músík. Hún var viss um að geta mætt honum á hverjum degi, og hann þreyttist aldrei á að dáðst að fegurð hennar og fríðleik. Hann elskaði hana og sagði það á marg- víslega mismunandi hátt. Henni varð miklu kærara að sitja niður við strönd- ina eða inni í skóginum, og hlusta á hann, en að vera heima til lengdar, í fá- sinninu. Enginn á heimilinu hafði minsta grun um þá hættu, sem Beatrice var að steypa sér í. Þetta var einmitt sú ást sem móðir hennar óttaðist svo mikið. Þetta var sú ást, sem skáldin sungu um, og skáld- sagna höfundarnir vegsömuðu og skrif- uðu um. Þetta var æsandi og þægilegt, en síðar er Beatrice fór að elska sjálf, þá skildi hún að þetta var barnaleikur. Það sem æsti mest tilfinningar henn- ar var, að þessir samfundir voru leyni- legir. Ef Alfred hefði fengið að koma heim til hennar, hefði hún orðið leið á honum undir eins, en það. að allt varð að vera leynt varð svo ginnandi fyrir hana. Það var eitthvað sem hún gat dvalið við með hugsanir sínar. Á hverj- um degi þurfti hún að taka langa göngu- túra í eina eða aðra átt til að mæta Al- fred Hankins. Kornið varð full þroskað á akrinum, og blómin fölnuðu smátt og smátt og dóu, og dóttir Ralphs Cuming gekk óvarandi móti forlögum sínum. 18. Kafli Loksins kom að því að þessi ástar- draumur Alfred Hankins fór að bland- ast kvíða. Það leið að því að hann varð að fara burt, og fara með skipinu til Kína, eftir nokkra daga. Hugsunin um að hann yrði að skilja við þessa indælu stúlku, sem hann elskaði af öllu hjarta, særði hug hans, meir en hægt er að lýsa. Honum fanst að hann væri nú fyrst að lifa, er hann kyntist henni, og hann fann til þess að lífið án hennar yrði sér óbærileg þraut, og þung byrði fyrir hann að bera. Hann spurði sig hundrað sinnum: “Elskar hún mig?” Hann vissi ekki hvað hann átti að halda um það. Hann ákvað, að hann skyldi fá að vita vissu sína um það. Hann þorði ekki að horfast í augu við fram- tíðina, ef hann skyldi missa af henni. Burtfarardagurinn færðist nær og nær. Dagurinn er skipið átti að fara var ákveðinn, og hann hafði ekki feng- ið neitt loforð hjá Beatrice. _ Einn morgun mætti hann henni hjá klyfinu, þar sem gatan lá í gegn frá eng- inu inn í fegursta blettinn í landareign- inni. Þar var allt þakið viltum blómum af alslags tegundum. Hin voldugu álm- tré sem stóðu í kringum þennan fagra lund vörpuðu þægilegum skugga yfir umhverfið. “Hvað sólskinið er bjart!” sagði hann; “það er eins og fuglarnir fari að syngja og blómin opni sig, þegar þú kemur út á morgnana, Miss Cuming.” “Eg er ekki sólin þeirra,” svaraði Beatrice og brosti. “En þú ert sólin mín,” sagði hann, og áður en hún hafði tíma til að svara, féll hann á kné fyrir framan hana, tók um hendur hennar og tjáði henni ást sína, sem var alveg að brenna hann. Það var ómögulegt að hlusta á slík orð, án þess að komast við; þau voru sönn, og svo vel sögð af djúpri tilfinn- ingu. Hann sagði henni hve dimm fram- tíð sín yrði án hennar og hve líf sitt yrði vonlaust án hennar! En ef hún gæti og vildi elskað sig, og að hann mætti endurgjalda ást hennar í sama máta, er hann kæmi aftur, þá skildi hann gera hana hamingjusama sem drotningu. Hann skyldi taka hana með sér til hinna sólríku landa — skyldi sýna henni öll þau undur og allt það fagra, sem hún þráði svo mikið að sjá — skyldi kaupa henni gimsteina og svo fína búninga, sem fegurð hennar verðskuldaði — skyldi vera auðsveipur þræll, ef hún bara vildi elska hann. Þetta var undur fagur og blíður morg- un; engið var glitrandi, vermt af morg- un sólinni. Beatrice leit í hans fríða andlit, sem var nábleikt af kvíða fyrir hverju hún mundi svara, og hún fann lOGBERG, FIMTUDAGINN 22. ÁGÚST, 1946 að hann þrýsti vörunum að hendi sér, og hún varð eins og utan við sig af slíkri ást. Jú, þetta var ást sem hún hafði lesið um, og hugsað um. “Beatrice,” sagði hann, með skjálf- andi róm, “segðu, að þú elskir mig — segðu að eg geti komið aftur, og að þú viljir verða konan mín. Allt líf þitt skal þá verða heiður og fagur sumardagur.” Orð hans tóku hana heljartaki. Með öllum sínum gáfum, mentun og' stæri- læti, fann hún að hún var veik og mátt- vana frammi fyrir ást þessa sterka manns. Næstum án þess að vita hvað hún gerði, lagði hún hendi sína á höfuð þessa krjúpandi manns. Það var ekkert beint svar, en það gerði hann rólegri. Hann faðmaði hana að sér, án nokkrar mótstöðu frá henn- ar hálfu. Hann kysti hennar blómlegu varir og rjóðu kinnar. Beatrice sagði ekki eitt einasta orð; hún var hálf hrædd og viðkvæm, og næstum magnlaus fyrir ást þessa fríða manns. “Nú ert þú mín,” sagði hann, “mín eigin; ekkert nema dauðinn skal að- skilja okkur!” “Sussu!” svaraði hún. og ótta kend geðshræring greip hana. “Það er orð sem eg get ekki þolað, Alfred; segðu það ekki framar.” “Eg skal ekki gera það,” svaraði hann, og hræðslan hvarf úr huga henn- ar. Hann var svo sæll — hann elskaði hana svo innilega — hann var svo stolt- ur af að hafa unnið hana. Hún hlustaði á hann fleiri klukkutíma þennan morg- un. Það var 15. júlí — hann bað hana að minnast þessa dags. Eftir tvö ár ætlaði hann að koma heim úr ferðinni, og taka hana til sín, úr þessu einmana- lega og rólega húsi, þar sem fegurð hennar og yndi hafði hingað til eins og verið grafið niður. Það var þetta sem hafði hertekið huga Beatrice. Xað var ekki svo mjög ást á Alfred — þrátt'fyrir nð henni leizt vel á hann. En smjaðrið. skjallið — upplyftingin, hressingin, að mæta slík- um manni; ást hans var orðin að nautn fyrir hana. Þó, ef það hefði verið nokk- ur annar vegur til að komast burt frá þessu tilbreytingarleysi, sem hún hat- aði svo mikið, þá hefði hún án tafar tekið hann. Alfred var að því leyti kær- astinn hennar, sem hann var mögueiki ti að koma henni burt frá þessu breyt- ingarausa og þreytandi lífi, sem með hverjum deginum sem leið, varð henni óþolanlegra. Hún hlustaði, og gleði brosi brá yfir andlit hennar er hann sagði henni, að hann kæmi aftur eftir tvö ár og tæki hana; hún hugsaði einungis um það æf- intýralega í því; en hún hugsaði ekki um hve óheiðarlegt það væri af sér, að halda þessu sambandi leyndu fyrir öll- um, svo lengi; og þó vissi hún hversu mikið að móðir sín hræddist og hataði alt tal um ást og gjálífi. “Þú mátt ekki segja móðir þinni eitt einasta orð um þennan samning okkar,” sagði hann; “það verðurðu að láta mig gera, þegar eg kem aftur. Eg hef þá peninga, og kannske verð yfirforingi á stóru skipi. Hún neitar mér ekki um þig, þegar hún fær að vita hve heitt eg elska þig, og jafnvel þó faðir þinn — sem þú hefur aldrei séð — komi heim, þá samt heldurðu trúnaði þínum við mig, Beatrice, er það ekki áreiðanlegt?” “Jú, eg vil vera trúföst,” svaraði hún, og hún meinti það sem hún sagði. Heim- koma föður hennar var algjörlega óviss; það gæti kannske skeð að hann kæmi eftir tíu eða tuttugu ár — það var eins iíklegt að hann kæmi aldrei. Alfred gaf henni tveggja ára frest. “Ef einhver annar reynir að vinna ást þína, Beatrice,” sagði hann, “hrósa fríðleik þínum og bjóða þér tign og auð- æfi, þá manstu eftir að vera, trú Alfred þínum; viltu gera það, mín kæra Bea- trice?” “Já,” svaraði hún ákveðið, “eg skal gera það.” “Þessi tvö ár líða fljótt,” sagði hann. “Á fimtudaginn kemur, á eg að fara héðan; lofaðu mér að vera með þér eins mikið og hægt er þangað til. Þegar eg er farinn burt frá þér verður mér tím- inn eins og löng dimm nótt.” Það vildi svo til að Werners hjóniif voru að vinna á enginu hinumegin við víkina. Margrét og Lilian höfðu nóg að gera, önnur að taka upp bækur úr kassa, sem var nýkominn, hin við að Ijúka við málverk; Beatrice hafði því nógan tíma til umráða fyrir sig. Hún var allan sinn frítíma hjá Alfred. Miðvikudagurinn var síðasti dagur- inn sem þau gátu verið saman, og hann sat hjá henni svo lengi, að það leit út eins og hann gæti ekki skilið við hana. Hann á skilið þá viðurkenningu, að ást hans var einlæg og hrein: Þó hún hefði ekki átt neitt, hefði hann elskað hana eins mikið. Einasta skýið á hamingju himni lians var meðvitundin um, að hún stóð honum svo miklu ofar í mannfél- aginu. Hann reyndi að telja sér trú um, að sagan um föður hennar væri ekki sönn. Hann hugsaði að Ralph Cuming mundi aldrei taka dætur sfnar á heim- ili sitt, og þess vegna var hann óhrædd- ur, hvað það áhrærði. Síðari hluta miðvikudagsins gengu þau saman ofan á klappirnar við sjó- inn, settust þar og horfðu út.á hafið. Alfred tók uppúr vasa sínum lítið eski og lagði það í lófa hennar; hún opnaði það og hrópaði upp af undrun. í eskinu var sá fegursti hringur, sem hún hafði nokkurntíma séð. eða getað hugsað sér, úr skýru gulli, með þremur fáséðnum gimsteinum í. Líttu á það sem er grafið innan í hringinn,” sagði hann. Hún hélt hringnum upp og las: “Þang- að til dauðinn skilur okkur.” “Ó, Alfred,” sagði hún, “þarna kemur þú með þetta orð aftur! Eg er hrædd við það. Því þarf eg að heyra það svo oft?” Hann brosti að hræðslu hennar, og bað hana að lofa sér að setja hringinn á fingur henni. ^Eftir tvö ár,” sagði hann, “skal eg setja glitrandi gullhring á þessa fögru hendi. Brúkaðu þennan, Beatrice, þangað til, fyrir mig; þetta er trúlofunar hringurinn okkar.” “Eg skal ekki taka hann af fingrin- um,” sagði hún. “Mamma veitir því enga eftirtekt, en hitt fólkið heldur að mamma hafi gefið mér hann.” “Og nú,” sagði hann, “lofaðu mér einu sinni enn, Beatrice, að þú viljir vera mér trú — þú vilt vonast eftir mér — og þegar eg kem til baka. viltu leyfa mér að gera kröfu til þín?” “Eg lofa því,” sagði hún og horfði á hringinn og steinana, sem glitruðu í sól- argeislunum. Það sem nú kom næst, gat Beatrice aldrei gleymt. Ást hans, og kvíði, að skilja við hana, snerti tilfinningar hennar meir en nokk- uð sem áður hafði komið fyrir hana. Sólargeislarnir voru að deyja út í vestr- inu; mislit kvöldroða ský sáust við hafs- brúnina; bárurnar skullu á klettunum við ströndina og hvít brimlöðurs rák sást í hálfdimmunni meðfram strönd- inni eins langt og augað eygði; en ennþá gat hann ekki skilið við hana. loksins sagði hún: “Nú verð eg að fara, Alfred, mamma saknar mín.” “Eg spær þig ennþá einu sinni að því, kæra Beatrice; viltu, þegar eg kem aft- ur, verða konan mín?” “Já,” svaraði hún. “Vertu mér aldrei ótrú,” endurtók hann. “Ef þú verður —” “Nú, hvað þá?” spurði hún brosandi, er hann hikaði við að tala út setning- una. “Þá, annaðhvort drep eg mig eða þig.” sagði hann. “Láttu mig ekki þurfa að segja svo hræðilegt orð. Slíkt getur aldrei komið fyrir. Allt í heiminum get- ur verið óáreiðanlegt, en þú, hin allra göfugasta stúlka sem til er, þú verður trygg og trúföst. Segðu: “Eg elska þig Alfred,’ og láttu það vera síðustu orðin sem þú segir við mig. Þú ferð með mér yfir hið víðáttu mikla haf, og verður mér staðföst hjálp og traust.” “Eg elska þig Alfred,” sagði hún eins og hann beiddi hana. Niðurbæld þjáningarstuna steig upp frá brjósti hans. Honum fanst það væri sér léttara að deyja, en að skilja við hana. Hann þrýsti andliti hennar að brjósti sér. — Kossar hans og tár virtust brenna það — og nú var hann farinn. Farinn! Allt í einu voru æfintýri síð- ustu vikna horfin sem draumur, og sú hugarhvöt sem hann hafði vakið. Dag- inn eftir fann Beatrice til þess að hið sama tilbreytingarlausa líf endurtók sig, engin blíðmæli, ekkert hrós, ekkert tal um ást. Hann var farinn; alt þetta hugljúfa æfintýri búið; það var ekkert eftir af því, nema endurminningin um ást hans og hringinn á fingri hennar. í fyrstu virtist hugarástand hennar ætla að verða henni óbærilegt. EJinangr- unin, kyrðin og rólegheitin, og hið til- breytingarlausa líf, varð henni nú óþol- anlegra en áður. En er frá leið hætti hún að hafa neina tilfinningu fyrir því, en fór að undrast yfir því hvað hún •hafði gert. Skýlan féU frá augum henn- ar; ekkert af því sem hún hafði gert blindaði hana framar. Alfred Hankins hafði ekki verið búinn að vera marga daga á sjónum, áður en hún fór að finna til blygðunar fyrir að hafa átt þessa leyni samfundi með honum, og reyndi að hugsa eins lítið um það og hún gat. Henni kom til hugar að segja Lilian allt um það, en er til þess kom og hún ætlaði að byrja að segja söguna, og horfði í hið hreina og saklausa andlit systur sinnar, hætti hún við það, og reyndi að telja sér trú um að það hefði aðeins verið gáskafullur gamanleikur. Nú kom bréf frá Mrs. Waughan, þar sem hún tilkynti að hún kæmi til baka. Báðum stúlkunum þótti vænt um hana; hún hafði líka í sannleika gefið tíu beztu árin af æfi sinni í þeirra þjónustu. Hún kom með margar nýjar bækur með sér, bæði músik og nýjar skemtibækur frá öðrum löndum. Nú var meira líf og skemtun í nokkra daga, en svo féll allt í sömu gömlu déyfðina aftur. Mrs. Waughan sá að það hafði orðið stór breyting á Beatrice: Mikið af henn- ar gamla bráðlyndi var horfið. Hún var sem áður full af fjöri og gleði; en á einn hátt var hún orðin stórbreytt. Stundum var eins og undarleg ró legð- ist yfir hennar fríða andlit, sem eins og benti til þess að hugur hennar væri á sveimi, einhverstaðar langt í burtu; hún ver nú ekki eins opinská og einörð sem áður. Það voru þeir tímar, er Mrs. Waughan gat lesið allar hennar hugs- anir, sem oft voru talsvert öfgakendar, en nú virtist að eitthvað væri dulið og innilokað í hjarta hennar. Hún talaði aldrei um framliðna, og nú í fyrsta sinn varð kennslukonan vör við ótta og taugaveiklun hjá henni; það vakti ótta og kvíða í huga Mrs. Waughan.' Hún reyndi með hinni mestu varfærni og umhyggju að komast að því; hver væri orsökin til þessarar breytingar; og að síðustu varð hún sannfærð um, að Bea- trice, eins ung og hún var, og undir eins nánu eftirliti og hún var, hefði þó eitthvert leyndarmál á huganum, sem hún ein vissi, en duldi alla aðra. 19. Kafli Það var einn morgun í ágústmánuði að mikill harmur og sorg féll yfir hið volduga herramannssetur, Elmwood. Cuming lávarður gekk út í garðinn snemma morguns í brennandi sólarhit- anum. Þegar hann kom ekki inn til morgunverðarins, fór einn þjónanna út til að vita um hann, og fann hann liggj- andi sem dauðann í garðinum. Hann var borinn inn í svefnherbergi sitt, og læknar kallaðir frá f jær og nær. Allt var gert, sem þekking og snild gat f té látið til að hjálpa honum, en allt árangurs- laust. Sá tími var nú kominn að hann varð að yfirgefa heimilið. tignina, auð- æfi og stöðu sína í mannfélaginu, sem hann mat mest. Meðan lávarðurinn lá í rúminu, nær dauða en lífi, fölur og meðvitundarlaus, kraup konan hans stöðugt við dánarbeð hans og vék ekki frá honum, eins lengi og hann dró andan og hjartað bærðist. Hann gat ekki talað, og virtist ekki skilja það sem sagt var við hann. Hver veit hvað kann að framkallast í huga manns á slíkum, þögulum augnablik- um, er öll æfin blasir við oss sem opin bók, og vér sjáum glögt allt sem vér höfum gjört á lífsleiðinni? Það gat ver- ið, að meðan hann lá þarna, eins og milli lífs og dauða, að minningin um son hans hafi skorið meðvitund hans, eins og bit- urt sverð; sonur hans, sem hann hafði rekið í burt og nú ráfaði heimilislaus í fjarlægum löndum. Allt í einu heyrðist í þessari dauðaþögn, undarleg rödd, , sem sagði: “Sonur minn!” Það var hinn deyjandi maður, sem sagði þetta. Svo komu harðir krampadrættir í andlit hans. Konan hans var yfirkomin af harmi og þreytu, en er hún heyrði þessi orð, yfirféll hún alveg, og var borin grátandi út úr herberginu. Hún var róleg og lét ekki bugast, en þetta þoldi hún ekki. Hún var veik í nokkra daga eftir að lá- varðurinn var jarðaður. Það leið lang- ur tími þar til nokkur á Werners heim- ilinu vissi um lát lávarðarins. Ralph var strax tilkynt fráfall föður síns, en það liðu mánuðir áður en bréf- ið komst til hans, og svo fleiri mánuðir áður en hann komst til Englands. Erfðarskrá Cuming lávarðar var stutt; þar var ekki nafn sonar hans nefnt. Stór peningaupphæð var ánöfn- uð lafði Cuming, áíamt fögrum búgarði; þjónunum voru ánafnaðar stórar gjafir, og fleirum, sem minnst var með | gjöfum.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.