Lögberg - 26.09.1946, Blaðsíða 7

Lögberg - 26.09.1946, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. SEPTEMBER, 1946 7 Fréttabréf frá íslandi Reykjavík, 2. sept. 1946. Sumarið á íslandi er nú á enda. Næturnar eru orðnar dimmar. Það er farið að kólna og haust- rigningarnar eru framundan. Eftirmæli sumarsins 1946 verða misjöfn. Sumarið hefir verið ágætt, segir bóndinn. Veðráttan hefir verið góð og nýting heyja með bezta móti. En sjómaðurinn mun ekki hugsa jafn blýlega til sumarsins. Síldin hefir brugðist annað árið í röð, og ‘þar með af- sannað kenninguna, sem flestir trúðu á, að góð síldarár kæmu altaf á milli síldarleysisáranna. Síldarframleiðslan er ekki nema 1/3 af því magni, sem áætlað var að yrði framleitt. Um síðustu mánaðamót var búið að fram- leiða um 17,000 tonn af síldar- lýsi og svipað magn af síldar- mjö'li, og á sama tíma var búið að salta um 140,000 tunnur. Um 40 skip eru hætt síldveiðum. Megnið af síldarlýsinu verður flutt út til Bretlands og Soviet- ríkjanna, en Bretar og Hollend- ingar fá mest af síldarmjölinu. Búið var að selja 10,000 tonn af síldarmjóli til Bandaríkjanna, en vegna síldarbrestins verður varla hægt að afskipa meiru en 1500 - 2000 tonnum. Saltsíldin hefur verið seld til Sovietrikjanna og Svípjóðar og dálítið magn til Bandaríkjanna. Síldarleysið er ekki eina áfall- ið, sem íslenzka útgerðin hefur orðið fyrir í sumar. Islfiskmark- aðurinn í Bretlandi, sem var undirstaða undir veí megun og hagsæld síðustu ára, hefur farið mjög versnandi. Fyrir nokkrum vi'kum ákvað brezka stjórnin að setja á verðlagsákvæði, sem eru sama og algjört bann við löndun á hausuðum fiski í Bretlandi. Þar eð íslenzku togararnir hafa á stríðsárunum eingöngu landað hausuðum fiski, en brezku togar- nir selja sinn fisk með haus, virð- ast þessi nýju ákvæði beinast fyrst og fremst gegn íslenzkum hagsmunum. í viðbót við verð- lækkunina á brezka markaðin- um, hafa Bretar ákveðið að inn- leiða á ný 10% verðtoll á fisk frá löndum utan samveldisins. Þess- ar ráðsafanir hafa það í för með sér, að ís'lenzkir útgerðarmenn hafa hætt viS í bili að senda tog- ara sína með ísfisk til Bretlnds. Flestir togararnir fiska Iþví í salt, en markaðurinn fyrir saltfisk er nú talinn góður. Búist er við að togararnir fari að sigla til Bret- lands á ný síðar í haust, þegar minna berst að af fiski og verðið þar af leiðandi væntanlega hækkar. Dagana 25. ágúst — 9. septem- ber standa yfir í Reykjavík sam- ningar milli Dana og íslendinga í sambandi við uppsögn sam- bandslaganna Af hálfu Dana ta'ka þátt 17 manns, þar af 4 færeyingar, sem 'leggja áherzlu á að fá að halda fiskveiðiréttind- um sínum við ísland. 1 íslenzka hluta samninganefndarinnar eru: Jakob Möller, Gunnar Thorodd- sen, Eysteinn Jónsson, Stefán Jóhann Stefánsson og Kristinn Andrésson. Sérfræðingar nefnd- arinnar eru prófessor Ólafur Lár- usson og Háns Andersen, sem hefir undanfarin ár dvalið í Bandaríkjunum og Kanada við nám í þjóðarrétti. Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Sigurðar Þórðarsonar er væntanlegur til Banidaríkjanna um mánaðarmótin september- október. Kórinn mun halda um 60 hljómleika í Bandaríkjunum og Winnipeg. Einsöngvarar kórs- ins verða Stefán íslandi og Guð- rnundur Jónsson. Fyrstu hljóm- leikarnir verða 7. október í New- ton, N. J., 8. okt., í Lyric The- atre, Baltimore, og 9. okt. í Con- stitution Hall, Washington. Síð- ustu hljómleikar verða í New York 14. og 15. des., en engin ástæða er fyrir Islendinga að bíða eftir þeim, því góðar sam- göngur eru við Newton, Balti- more og Washington. Valdimar Bjömson frá Min- neapolis varð fertugur hinn 29. ágúst s. 1. Hann hefir í tæp 4 ár starfað á veguui ameríska hersins og sendiráðsins á Is- landi, þótt staða hans sé Com- mander í flotanum. Valdimar hefir aflað sér alveg sérstakra vinsælda, eins og kom glöggt í ljós á afmælisdaginn þegar um 300 manns heimsóttu hann í Camp Knox í Reykjavík. Valdi- mar býst við að fara úr herþjón- ustunni í október og fara til Bandaríkjanna. Á Evrópu meistaramótinu sem haldið var í Gsló í frjálsum í- þróttum í ágústlok, varð Gunnar Huseby evrópumeistari í kúlu- varpi. Kastaði hann kúlunni miklu lengra en Rússinn og Sví- inn sem voru honum næstir. Finnbjörn Þorvaldsson sprettu- hlaupari stóð sig einnig mjög vel á mótinu, en fékk samt engin verðlaun. Ameríski sendiherrann í Reykjavík, Louis G. Dreyfus, hef- ir verið útnefndur sendiherra í Stokkhólmi. Ekki er búið að til- kynna hver verður eftirmaður hans í Reykjavík. Reykjavík heldur áfram að þenjast út. Um 600 hús eru nú í smíðum, en samt eru húsnæðis- vandræðin gífurleg. Mest er byggt undir Öskuhlíð fyrir norð- an Hafnarfjarðarveginn og á Melunum. Gullbrúðkaup (Frh. af bls. 2) abörn, og nú þótt að fólk af ensk- um, þýzkum, frönskum skozkum, spönskum og kanadiskum ættum beri Guðmundssons nafnið, þá gjörir það aðeins hópinn marg- breytilegri og ríkari. Hér eru í kveld 7 synir, konur þeirra og börn, 2 dætur ásamt mönnum sínum og börnum; líka veit eg að allir hér í kveld muna unga manninn sem að prýddi hópinn, en er nú horfinn sjónum vorum. Við sem að höfum þekt þessi merku hjón, í meðlæti og mót- læti, dáumst að jafnaðargeði þeirra og sálanþreki, enda veit eg fyrir víst, að Passíusálmar Hallgríms undir koddanum hjá Mrs. Guðmundsson, Biblíuljóð Valdimars á borðinu hjá henni og raðir af kvæða- og sögubók- um, að þetta veganesti muni oft hafa verið leiðarljósið, eða vörð- urnar á Hellisheiðinni amerísku, og hin fögru trúarljóð sem að hún yrkir sjálf nú á efri árum sínum. — Gullbrúðguminn er einn af Iþessum góðu og gömlu íslenzku mönnum, sem að aldrei fellur verk úr hendi, jafn hagur á allt; og eru þau nú orðin mörg minnismerkin sem að hann er búinn að leysa af hendi.. Fyrir nokkru síðan fórum við með merkis hjónunum frá Is- landi í heimsókn til Tujunga. Á heimleiðinni sögðu þau við mig: “Ameríka virðist ekki hafa eyðilagt Islendinginn í þeim Ingi- björgu og Bjarna.” Þetta var falleg setning og sönn. Ekki get eg lokið máli mínu án þess að minnast á tugi af drengjum, sem að þessi góðu hjón ólu upp að einhverju leyti á 10 ára tímabili, óknitta börn í varðhaldi, sem að þau gengu í foreldra stað, og gerðu að nýt- um mönnum. Á fögrum sumardegi var 6 ára drengur á gangi með afa sín- um úti í blíðveðrinu. Gamli mað- urinn segir við snáðann, “í dag er sól í sálu minni. Barnið, sem að brast kjark að spyrja afa sinn útí þetta frekar, hljóp til mömmu sinnar, þar sem hún var önnum kafin í húsverkunum, og spyr: “Mamma, hvað er sál?” Móðirin svaraði d rólegum og sannfær- andi róm, “Vinur minn, Guð gaf okkur öllum líkama og sál. Sálin er hið mikilverðasta, því að hún fer aftur til Guðs sem að gaf hana, en líkaminn hverfur aftur til jarðarinnar.” Þegar að eg las þessa sögu, datt mér í hug að um margt hafi Mrs. Guðmundsson verið spurð um af 10 gáfuðum börnum, og að svörin muni hafa verið bæði rétt og ákveðin, og í móðurlegum rómi. • Að endingu öska eg af öllu hjarta, gullbráðhjónunum, börn- um þeirra og niðjum, alls hins bezta, og að æfikveldið megi verða bjart og fagurt, eins og að sólarlagið er í sólarlandinu Ty- unga, þegar að sólin er að hniga bak við Hrepphóla hnúkana. Skúli G. Bjarnason. ♦ Til barnanna minna! Börnin mín! Þið sem að skilj- ið málið mitt, og þið sem að ekki skiljið það, hafið komið ykkur saman um að velja þennan stað og stund til þess að gleðja ykkar gömlu foreldra. Eg veit að þið munið hugsa um liðinn dag, þeg- ar að við foreldrarnir ykkar lögðum fyrst á stað út á lífsbraut- ina — eg veit ennfremur að ykk- ur kemur til hugar hvernig að við höfum litið út þá, og hvemig að umhorfið okkar hafi verið. Ekki ætla eg mér að reyna að draga upp lýsingar-mynd af því, aðra en þá, að við vorum börn að aldri, og með litla lífsreynzlu. —Við vorum fátæk og félaus eins og fuglamir, sem að ekkert hafa nema sínar eigin fjaðrir — en veganestið var barnstrúin — trúin og traustið á handleiðslu skaparans! Já, fuglarnir flugu saman, og fljótt fjölgaði í hreiðrinu — en stundum var lítið um föt og fæði, samt- oftast nægilegt. En veganestið, barnstrúin, þraut ekki; hún hefur verið ljósið og leiðarvísirinn í gegnum blítt og strítt. — Nú er aftur farið að fækka í hreiðrinu, og farið að líða á daginn; starfskraftarnir eru að smá fjara, og nóttin í að- sigi, en þið sem standið nú í blóma lífsins og í skóla veraldar- innar,, mikið til þess að læra og sum af ykkur búin að læra mik- ið — þótt enn meira sé ólært, því svo lengi sem að maðurinn lifir er hann undir prófi. Lexí- urnar eru harðar og þungar og næstum óskiljanlegar, en væri ekki svo, þá væri lífið ekki þess virði að lifa það; prófsteinninn er hjarta-spjöldin og sá sem að prófar, reiknar rétt fyrir okkur. Reiðum okkur á það. — Ó, að eg gæti á þessari fagnaðarstundu látið eitthvert orð inn í sálar- djúp ykkar, sem að ekki gleymd- ist, fremur en inntaks orðið á fermingarræðu minni, og á hjónvígslu okkar foreldranna ykkar, sem að var hið sama; en orðin sem að til þess voru valin voru þessi: “Hvað svo sem að þið gjörið, þá gjörið það í nafni guðs, þakkandi honum fyrir alla hluti.” Ekki vil eg þó halda því fram að hafa lifað eftir þessari fögru kenningu, en það hefur geymzt í hjartarótinni síðan að eg var fjórtán ára gömul. Jæja, börnin mín, þið eruð að heiðra giftingardaginn okkar í dag, og okkur sjálf; ykkur kom saman um þessa fallegu hugsun, að gefa okkur föt sem að við er- um nú klædd í. — Við finnum til þess með djúpu þakklæti til ykkar og sömuleiðis til barnanna sem eru fjærverandi, og einnig til bamanna sem að hafa slegist í samleið með ykkur, og sem að í dag eru að leggja sitt fram, okkur til ánægju, vil eg segja, Guð blessi ykkur og stýri hverju ykkar spori. Og áður en eg lýk þessum fáu orðum, vil eg minn- ast þess, að okkar mesti heiður eru gjörðir og athafnir vkkar Frá Vancouver TILKYNNING. Mér er ljúft að tilkynna að á þessu sumri hefur Elliheimilis nefndinni hér í Vancouver, tek- ist að komast að samningum við Betel nefndina og lúterska kirkju félagið um peningalán, sem er óvenjulega sanngjarnt og greiðir svo veg fyrir okkur, sem að þessu máli hér starfa, að nú sýnist mögulegt að koma heimilinu á “laggirnar.” Eg vil hérmeð votta persónu- lega og fyrir hönd nefndarinnar, innilegt þakklæti fyrir drengi- lega hjálpsemi og vinarþel sem Betel nefndin hefur frá byrjun auðsýnt okkur. Og er með þess- ari hjálp frá Betel, stigið það spor, sem hefur komið á fullri samúð og samvinnu allra sem al- varlega veita þessu máli stuðn- ing. “En langt er enn til lands.” Nú er brýn nauðsyn að hver ein- asti vinur þessa fyrirtækis, sendi sem allra fyrst þá hjálp sem honum eða henni er möguleg. Því nefndin er að hugsa um kaup á heimili, á næstunni, ef inn- tektir leyfa. “Hjálpið nú.” Peningar sendist til féhirðis: Dr. P. B. Guttormson, 1457 West 26th, Vancouver, B. C. Og verð- ur hvittað fyrir. Mér skilst að gjafir til svona fyrirtækis megi dragast frá Fed- eral Income Tax. Nefndin horf- ist í augu við brýna nauðsyn á elliheimili hér, og starfar af öll- um mætti; er vonandi að imdir- tektir almennings gefi okkur möguleika til framkvæmdar. Vinsamlegast, I G. F. Gíslason, Forseti nefndarinnar. Nafnkunnur biskup sat í sæti sínu í leikhúsinu og var að líta í kringum sig á prúðbúna menn, og skrautbúið kvennfólk sem var í fleignum silkikjólum ofan á bringur. Eftir stundarkorn á- varpaði sessunautur, sem var kona, bisiskupinn og spurði: “Hafið þér nokkurn tíma séð annað eins?” “Aldrei.” svaraði biskup alvarlega, “aldrei síðan að eg var vaninn af brjósti.” ♦ Yfirumsjónarkona yfir kvenna-i deild við voldugann háskóla, til- kynti skólameyjunum eftirfylgj- andi: “Forseti háskólans og eg, höfum komið okkur saman um að hætta öllu amors flaugsi í skóla- garðinum.” Þegar að skólastýr- an sá stúlkurnar allar fara að hlæja, þá kom hálfgjört fát á hana: “Og ennfremur, verður allt kossaflóðið sem gengið hefir á rétt undir nefinu á mér að hæ.tta.” bamanna. “Það er rótin, sem að ber blómið, en blómið ekki rót- ina.” Svo aftur langar mig að þakka ykkur öllum fyrir okkur, og biðjum ykku*- að túlka mál mitt til þeirra af börnunum sem að ekki skilja málið mitt, og líka til þeirra sem eru í fjarlægð. Ingibjörg Guðmundsson. ♦ Til Ingibjargar og Bjarna Guð- mundssonar, á gullbrúðkaupi þeirra, 1. sept. 1946. Eftir langrar ævislóðar átök hörð og blóðug spor, dísir haustsins gefa góðar, glaðar stundir, von og þor. þið eruð rík af Islands arði, orka, snild og drenglund hlý ávalt bjó í ykkar garði, afrek göfug, fom og ný. Gæfan bjó í hreiðri hlýju, heilsteyptir með sæmdarbrag afkomendur ykkar, tíu, ykkur faðma hlýtt í dag. Hugir þeirra, hlaðnir þökkum, hugsa um marga dýra fórn — flytja vörum kærleiksklökkum koss fyrir ástúð, vernd og stjórn. Steingrímur Arason. HULIÐ ANÆGJUEFNI. Dag einn þegar eg var 11 ára, kom eg heim til mín grátandi. Hrygðarefni mitt stafaði frá því, að mér hafði verið fengið í hend- ur eitt af lítilfjörlegustu verk- efnunum í sjónleik sem fram átti að fara í sunnudagaskólan- um, en leiksystir mín var kvödd til að taka að sér aðalhlutverkið. Þegar móðir mín fékk að vita angurefni mitt, tók hún úr er hún bar á sér og lagði í lófa minn. Eg leit á það, og svo á hana: Hún spurði: “Hvað sérðu?” Eg svaraði: “Gull kassa, skífu og vísira.” Hún tók við úrinu aftur og opnaði bakið á kassanum og lagði það svo aftur í lófan á mér, og endurtók spuninguna. Eg sagði hénni að eg sæi ósköp smá.hjól og litla skrúfnagla. “Þetta úr væri einskis nýtt ef eitt einasta hjól, eða einn einasta skrúfnagla van.taði í það, jafnt þá parta sem þú sérð, og þá sem ósýnilegir eru.” Þessi litla lexía hefir verið r mér til ósegjanlegrar gleði og ánægju í öllu mínu lífi. Hún •hefir komið mér til þess áð skilja hve þýðingarmikil smáatriðin í lífinu eru, sem allir verða að leysa af hendi, án þess að leita eftir lofi annara. Minnist BETEL í erfðaskrám yðar Mr. Smith var á ferð raeð járn- brautarlest. Hinumegin við ganginn í vagninum, þar sem hann sat, var maður sem var mikið kvefaður. Smith ávarpaði hann og sagði: “Þú hefir mikið kvef.” Maðurinn kinkaði kolli. “Hefur þú reynt að fá þér nokk- uð við því?” spurði Smith. Mað- urinn snýtti sér hraustlega og hristi höfuðið. Mr. Smith fór svo að gefa manninum góð ráð. “Bezta meðalið sem þú getur fengið við svona slæmu kvefi er vatn. Þú skalt drekka eins mik- ið og þú getur af því. Á morgn- ana skaltu þvo á þér munninn úr saltvatni og svo skaltu fá þér heitt toddí á kveldin, og þú skalt vera viss að þér batnar áður langt um líður.” Rétt áður en Smith fór úr lestinni, yrti hann á málkunningja sinn og sagði: “Eg held að það sé kominn tími til þess að við kynnumst hvor öðrum. Eg heiti Smith.” Þeir heilsuðust með handabandi. Svo sagði kvefaði maðurinn, “Eg er Dr. William Mayo.” Hugsað fram! Látitu hreinsa öll fötin, sem þú þarft að láta heins í haust — NÚNA . . . Ágætisverk Hagnýttu þér tækifærið til spamaðar með því að vitja fata þinna í búðina sem næst þér er. Búðir okkar eru nú opnar frá kl. 8 f. h. til kl. 7 e. h. Perth’s 888 SARGENT AVE. — Komið látum oss HÖGGVA VIÐ TIL PAPPIRS- GERÐAR! GOTT KAUP GOTT FÆÐI GOH HÚSNÆÐI Þú’getur valið úr margs- lags verkum, í skógar- vinnunni nú. Njóttu hressingar þeirrar, sem útivinnan veitir. Góð húsakynni, ágætis fæði og hátt kaup. Verkefnin bíða eftir vönum mönn- um. Óvanir menn verk- fráir geta margt lært i sam'bandi við þessa at- vinnu. Leitaðu upplýs- inga nú í dag, um það, hvernig að þú getir unnið þér inn mikla peninga í vetur. Byrjaðu nú strax, svo þú getir notið skóg- arhöggs tímabilsins alls. UPPLÝSINGAR HJÁ • Ráðningaskrifstofu stjórnarinnar í hér- aði þínu, eða sem næst þér er. • Fullmegtugum um- boðsmönnum fyrir Pulp and Paper Company. VIÐ ÞURFUM axarmenn, menn til að keyra hesta, menn til að byggja íbúðir, bíl- og traktor-stjóra, járn- smiði, matreiðslumenn og fleiri. THE PULP AND PAPER INDUSTRY 0F CANADA

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.